Kettir

  Kettir eru eina húsdýrið sem valdi sjálft að verða húsdýr.  Kettir eru eiginhagsmunaseggir út í eitt.  Hjá köttum er ekkert til sem heitir trygglyndi.  Allt er á þeirra eigin forsendum út frá þeirra hagsmunum.

köttur auglýst eftir

  Auglýst eftir týndum ketti.   

köttur á priki

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur á priki.

köttur fer í inniskó

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur laumast í inniskó. 

köttur horfir yfir snjóruðning

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur horfir yfir snjóruðning.

 Köttur með gorm á höfði.

köttur með gorm á hausnum köttur þykist ætla að kyrkja annan köttköttur skríður upp um lampaskermköttur skríður um fataskápköttur situr í tröppu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En þeir eru töff! Og skeyta ekkert um níð og ærumeiðingar!

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2014 kl. 14:06

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessar yndislegu myndir Jens hahahaha...

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.5.2014 kl. 15:02

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sumir reyna að blekkja ketti, og kenna svo köttum um, ef kettir láta ekki  blekkja sig.

Hvað eru þau dýr aftur kölluð, sem gæða sér á hálfdrepnum fórnarlömbum?

Hýenur?

Hýenur nærast víst á hálfdrepnum og varnarlausum fórnarlömbum.

Kettir og hýenur eru víst bara ólíkar dýrategundir, svo ekki passa nú þessar hugmyndaflugs-lýsingar við manneskjur. Eða hvað?

Hvað ætli fógetinn á Skúlagötunni segi um þessar hugleiðingar? Það væri fróðlegt að heyra frá fjölmiðlaeinræðis-vísindaæðsetaprestinum ríkisrænandi, um vafamálin.

Kannski maður geti sótt vit í Akranes-vita, um svikavinnubrögðin sem hafa viðgengist? Skipulögð svikavinnubragðs-upplýsingar eru kannski þar á sveimi? 

Einhverstaðar finnst sannleiks-ljósvitinn. Sannleikurinn um svikavinnubrögð og hótanir, er lífseigari en líkamsdauði jarðarbarnanna.

Kári decode, og skurðgoðið ofurlaunaða: Björn Zoega, vita ekki allt. Djöfullinn í Alþjóðabankanum er varhugavert eyðingarafl.

Kári decode finnur út af því, þegar katta og hundasýnin verða notuð til að klóna fólk, og líffæraflutningaárangurinn á Valsmýrar-klónuðum líffærum verða skorin úr fólki, og grædd í annað fólk.

Sannleikurinn er ljótari en glæpasögu-skáldskapurinn. 

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.5.2014 kl. 15:11

4 identicon

Til eru mörg dæmi um trygglyndi katta, en trygglyndið verður aldrei að hjarðlyndi eins og svo oft hjá mannfólkinu.

L.T.D. (IP-tala skráð) 11.5.2014 kl. 21:27

5 identicon

Kisur eru frábærar :)

DoctorE (IP-tala skráð) 13.5.2014 kl. 11:25

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Þór, það er rétt.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:04

7 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil, takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:04

8 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður, takk fyrir þessar áhugaverðu vangaveltur.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:05

9 Smámynd: Jens Guð

L.T.D., almennt eru kettir að mestu lausir við trygglyndi. Hitt er rétt að hver einstakur köttur hefur sinn persónuleika. Dæmin eru til um að köttur sýni heimilisfólki trygglyndi og þakklæti og svo framvegis.

Einhver dæmi eru um að kettir hafi vakið fólk af værum blundi þegar kviknað hefur í húsi. Aðrir vilja meina að í þeim tilfellum sé kötturinn að hugsa um sjálfan sig. Hann skynji lífshættuna af eldinum og veit að hann nái ekki að koma sér í öruggt skjól án aðstoðar frá heimilisfólkinu.

Önnur dæmi eru til um að köttur hafi komið húsbónda sínum til hjálpar í neyð. Til að mynda þegar innbrotsþjófur hefur ráðist á bóndann. Einhverjir vilja meina að í þeim tilfellum sé kötturinn að passa upp á að bóndinn verði ekki fyrir hnjaski svo hann geti áfram gefið kettinum að éta.

Kettir eiga til að færa húsbónda sínum fugl eða mús sem hann hefur drepið. Eflaust er það vel meint sem gjöf í þakklæti til húsbóndans. Eða þá að kötturinn er pakksaddur. Hann drepur dýrið án þess að hafa lyst á að éta það. Í stað þess að skilja bráðina eftir í reiðuleysi úti á túni vill kisi koma henni í hús.

Ég þekki til þar sem köttur tekur að sér vörslu á ungbörnum heimilisins. Þegar kornabörnin eru látin sofa úti í vagni þá liggur kisi ýmist undir barnavagninum eða ofan á honum. Um leið og barnið vaknar þá kemur kisi í dyragættina og mjálmar ákaflega þangað til barninu er sinnt. Það er til fyrirmyndar.

Verra er að sami köttur hefur verið staðinn að slóttugheitum. Þegar fólk sér til þá umber hann þjösnaskap óvita á sér. En þegar hann heldur að enginn fullorðinn sjái til þá bregst hann hart við þjösnaskap. Bítur óvitann umsvifalaust. Ekki þannig að sjái á barninu en nógu fast til að barnið finnur til og forðar sér.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:31

10 Smámynd: Jens Guð

DoctorE, oft eru þær það, samanber þetta skemmtilega myndband.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband