Hvort kynið er betri bílstjóri? Óvænt niðurstaða

 

 

  Í dag eru leigðir bílar iðulega búnir tölvu sem geymir allar upplýsingar um aksturinn.  Breska fyrirtækið In-car Cleverness skoðaði tölvubúnað tíu þúsund leigðra bíla;  skrásett og flokkað yfir sex mánaða tímabil.

  Í ljós kom að konur aka að meðaltali hraðar en karlar.  Þær aka 17,5% hraðar en karlarnir.  Það kemur á óvart.  Í fljótu bragði ætla flestir að karlar séu glannarnir.  Þeir stígi fastar á bensínpedalann.  

  Þar fyrir utan lenda karlar frekar í óhöppum - þrátt fyrir að aka hægar.  Það eru fimm sinnum meiri líkur á að þeir valdi einhverskonar tjóni á bíl. Allt frá smádældum til stærri tjóna.  Það er ekkert smá munur.  Kannski eru karlar áhættusæknari?  Eða meiri klaufar?    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ungir karlar eru áhættusæknari og eru líklegri til að lenda í tjóni en ungar stúlkur. Allar rannsóknir sýna það. Ungir karlar aka líklega meira en stúlkur svo hlutfallið hjá kynjunum á ekinn kílómetra er e.t.v. ekki svo mikið.. 

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2015 kl. 00:32

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tjónhlutfallið á ekinn kílómetra, átti þetta að vera,

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2015 kl. 00:33

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er ekki líka málið að stúlkur þora að vera varkárar.  Ungir menn þurfa meira að sýna sig í töffaraskap.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2015 kl. 11:23

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú Ásthildur, það er einmitt málið og rannsóknir sýna það. Þetta er að öllum líkindum bæði lífræðilegt (Testesteron eða eitthvað slíkt) og félagslegt fyrirbæri. 

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2015 kl. 17:46

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já mikið rétt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2015 kl. 18:11

6 identicon

Það þarf nú ekki að fara langt til að finna

það ótrúlega, og það hér á Íslandi.

Hér er frétt af 5 bílum á Íslandi og það svo gott

sem í "Middle of no where"

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/02/06/fimm_bila_arekstur_i_vatnsskardi/

Og svo þessi hér, frá Vestmannaeyjum.

Ótrúlegt en satt. 4 bíla árekstur..

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2003/02/11/fjogurra_bila_arekstur_i_vestmanneyjum/

Svona geta hlutirnir gerst á Íslandi..wink

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 25.2.2015 kl. 18:41

7 Smámynd: Jens Guð

 Gunnar Th.  þrátt fyrir töluvert "gúgl" hefur mér ekki tekist að finna hversu vísindalega var staðið að könnunini  Til að mynda þetta sem þú nefnir; tjónhlutfall á ekinn km.  

 http://www.autoexpress.co.uk/car-news/consumer-news/90505/data-suggests-women-drivers-speed-more-than-men

Jens Guð, 25.2.2015 kl. 19:58

8 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  það er alveg klárt að konur þora að sýna meiri varkárni en karlar  Mér hrýs hugur við að rifja upp glannaskap í akstri hjá okkur strákunum á unglingsárum.  Ég hef aldrei orðið var við glæfraakstur hjá konum.

Jens Guð, 25.2.2015 kl. 20:10

9 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður K.,  takk fyrir þessi dæmi

Jens Guð, 25.2.2015 kl. 20:11

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er sennilega karlhormóninn sem er að stríða strákunum. cool

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2015 kl. 20:25

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta með tjónhlutfallið var nú bara ágiskun mín en þegar ég var í ökukennaranáminu var talað um þennan mikla mun á stelpum og strákum varðandi áhættusælni og vísað í rannsóknir. Opinberar tölur um tjón og umferðarlagabrot pilta, sína þetta.

Þess ber þó að geta að eftir að punktakerfið hjá ungum ökumönnum með bráðabirgðaskírteini, sem gildir fyrstu 3 árin, hefur slysum fækkað mjög mikið í yngsta hóp ökumanna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2015 kl. 20:57

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

eftir að punktakerfið hjá ungum ökumönnum var tekið upp... átti þetta að vera

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2015 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband