Jón Þorleifs í einkennilegum mótmælagöngum

  Ég hef áður sagt frá því hvers vegna Jón Þorleifsson,  verkamaður og rithöfundur,  var reglulega fjarlægður af lögreglunni 1. maí.  Um það má lesa með því að smella á hlekk hér neðst.  Jón tók aftur á móti virkan þátt í mörgum öðrum mótmælagöngum.  En gekk ekki í takt við aðra göngumenn.  Þvert á móti.  Hann gekk í öfuga átt;  á móti göngumönnum.  Hann þandi út olnbogana til að gera sig sem breiðastan.  Göngumenn urðu að taka stóran sveig til að komast framhjá honum.  Stundum til vandræða,  til að mynda þegar tveir eða fleiri héldu á lofti breiðum borða.  Eða hópur foreldra í einni kös ýtti á undan sér barnavögnum.  Eða þegar nokkrir fatlaðir voru hlið við hlið í hjólastólum.  Aldrei vék Jón fyrir neinum.  Hann stoppaði við svona aðstæður og beið eftir því að hinir sveigðu til hliðar.   

  Jón þurfti ekki að vera ósammála baráttumálum göngunnar til að bregðast svona við.  Þó var það í sumum tilfellum.  Oftar var þetta þó vegna þess að Jón var ósáttur við einhverja þá sem stóðu að göngunni eða auglýsta ræðumenn.  Það þurfti ekki mikið til.

  Síðustu áratugi ævi sinnar sinnaðist Jóni við ættingja sína.  Mér skilst að upphaf þess megi rekja til andúðar hans á verkalýðsforingjunum Gvendi Jaka og Eðvarði Sigurðssyni.  Bróðir Jóns hafi reynt að leiðrétta einhverjar ranghugmyndir hans varðandi þessa menn eða eitthvað í gjörðum þeirra.  Jón tók því illa.  

  Tekið skal fram að ættingjar Jóns voru og eru afskaplega gott og vandað fólk.  Suma þeirra þekki ég.  Samhljóða vitnisburð hef ég frá öðrum um þá sem ég þekki ekki.

  Í fyrsta skipti sem ég heyrði Jón nefna bróðir sinn var í sambandi við verkalýðsforingjana.  Jón úthúðaði þeim og sagði síðan óvænt:  "Ég skil ekki hvað ég þoldi helvítið hann Kristján bróðir lengi."

 Ég hissa:  "Ha?  Af hverju segir þú þetta?"

 Jón:  "Þetta fífl trúir öllu sem Gvendur Jaki og Eðvarð ljúga að honum."

 Ég:  "Hvernig þá?"

 Jón:  "Hann er trúgjarnasti maður sem ég þekki.  Hann er svo trúgjarn að þegar hann lýgur einhverju sjálfur þá trúir hann því samstundis."  

jón þorleifsson x

----------------

Fleiri sögur af Jóni  hér   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á ekki að sabna þessu saman og koma því í heillegt form og setja það svo á netið þannig að sem flestir geti hlaðið því inn?

Tobbi (IP-tala skráð) 2.5.2015 kl. 23:04

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mikið hljómar þetta kunnulega og gæti átt við um flesta stjórnmálamenn í dag!!

Sigurður I B Guðmundsson, 3.5.2015 kl. 09:52

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha foot-in-mouth

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2015 kl. 12:20

4 Smámynd: Jens Guð

Tobbi,  tvö bókaforlög hafa óskað eftir því að fá að gefa þessar sögur út.  Ég nenni ekki að standa í því alveg á næstunni.  Til að vel sé að því staðið þarf að leggja vinnu í að grafa upp ljósmyndir,  sannreyna ártöl og fleiri hluti,  bera frásagnir undir aðra sem voru vitni að atburðum og svo framvegis.  Ég þarf líka að ganga úr skugga um að sögurnar komi ekki illa við ættingja eða fólk sem minnst er á. Að mörgu þarf að hyggja.  Mér þykir mjög gaman að skrifa.  En þeim mun leiðinlegra allt hitt sem snýr að öðrum þáttum ritunar bókar.     

Jens Guð, 4.5.2015 kl. 20:23

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  svo sannarlega!

Jens Guð, 4.5.2015 kl. 20:24

6 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 4.5.2015 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband