Af hverju allur þessi saltaustur?

  Í gær var sprengjudagur.  Þá var sprengt sem aldrei fyrr í Vaðlaheiðargöngum.  Landsmenn fögnuðu með því að sötra hnausþykka baunasúpu ásamt því að japla á saltkjöti, kartöflum og rófum eða gulrótum.  Í útvarpsauglýsingum hljómaði:  "Saltskert saltkjöt, sama bragð!" og "Helmingi minna salt, óbreytt bragð!"

  Getur þetta staðist?  Eru aðrir kjötsalar - aðrir en þeir sem auglýstu - að bruðla með salt algjörlega að óþörfu?  Þarf aðeins helming af því saltmagni sem áður var notað til að ná fram nákvæmlega sama bragði?  Er það af því að margir eru hættir að nota götusalt (iðnaðarsalt) í matinn?

  Hver sem skýringin er þá grunar mig að margir geti tekið undir óvæntan fróðleiksmola næringarfræðings Landlæknisembættisins:  "Saltkjöt er í eðli sínu mjög saltrík vara."

saltsaltkjöt og baunir 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Held ég salti þessa umræðu!!

Sigurður I B Guðmundsson, 1.3.2017 kl. 08:43

2 identicon

Og urðu miklar skemmdir í Héðinsfjarðargöngunum við allar þessar sprengingar?  Hvort skyldu nú frekar Ólafsfirðingar eða Siglfirðingar vera grunaðir um að vilja loka á milli?  :-)

Dúndri (IP-tala skráð) 1.3.2017 kl. 10:17

3 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B, þú kemst af með helmingi minna salt í það.

Jens Guð, 1.3.2017 kl. 14:52

4 Smámynd: Jens Guð

Dúndri,  takk fyrir athugasemdina.  Nöfnum gangnanna sló saman.  Mér var svo ringlaður út af saltskerta kjötinu.  

Jens Guð, 1.3.2017 kl. 14:54

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er til þess að það myndist ekki hálka í meltingarveginum.  Maður vill síður að hlutir fari þar útaf.

Ásgrímur Hartmannsson, 1.3.2017 kl. 20:23

6 Smámynd: Jens Guð

Ásgrímur,  hlaut að vera eitthvað svona hollustudæmi.  

Jens Guð, 1.3.2017 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband