Ofbeldi upphafið

  Ég horfi stundum á sjónvarp.  Í Sjónvarpi Símans hafa árum saman verið endursýndir bandarískir grínþættir sem kallast The king of Queens.  Sömu þættirnir sýndir aftur og aftur.  Það er í góðu lagi.  Ein aðalstjarnan í þáttunum er virkilega vel heppnuð og fyndin. Þar er um að ræða geðillan og kjaftforan náunga sem kallast Arthur.  Leikarinn heitir Jerry Stiller.  Hann ku vera faðir íslandsvinarins Bens Stillers.  

  Arthur býr heima hjá dóttur sinni og tengdasyni.  Eins og algengt er í svona gamanþáttum þá er konan fögur, grönn og gáfuð.  Kall hennar er feitur, undirförull og heimskur. Allt er þetta með ágætum ef frá er talið að ofbeldi er fegrað sem brandarar.  Hjónin eiga til að hrinda hvort öðru;  konan snýr upp á geirvörtur kauða og kýlir hann með hnefa í bringuna.  Þetta er ekki til eftirbreytni og ber að fordæma.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fátt er svo með öllu illt. Margan eftirmiðdaginn hef ég legið á stofugólfinu og gert magaæfingar um leið og ég horfi á þennan þátt. Doug hvetur mig óbeint áfram. En svakalega býr hann til girnilegar samlokur.tongue-out

Sigurður (IP-tala skráð) 25.10.2021 kl. 07:53

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður, samlokurnar hans eru rómaðar.   

Jens Guð, 25.10.2021 kl. 08:50

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Öfgar" ættu að taka þetta fyrir en sennilega hefur Doug, sem þolandi ekki haft samband við þær, þær sögðu það á Útvarpi Sögu að' þær hefðust ekkert að nema í samráði við þolendur........

Jóhann Elíasson, 25.10.2021 kl. 10:43

4 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  tekk fyrir fróðleiksmolann. 

Jens Guð, 25.10.2021 kl. 10:46

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hlýtur samt að vera skrítið að hafa atvinnu að setja inn hlátur i þættina!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.10.2021 kl. 17:20

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B, vissulega er það skrítið en virðist þurfa til að áhorfandinn viti hvenær á að hlæja.   

Jens Guð, 25.10.2021 kl. 18:18

7 identicon

Það er verið að slátra íslenskum leikara ( eða miklu frekar EKKI leikara ) fyrir lélega frammistöðu í leynilöggumynd. Það má kanski flokka sem ofbeldi að tefla fram hæfileikalitlum manni í stórt hlutverk, eða hvað ? 

Stefán (IP-tala skráð) 29.10.2021 kl. 21:17

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  hver skrifaði um hvern?  

Jens Guð, 30.10.2021 kl. 12:53

9 identicon

Jú, það er verið að tala og skrifa þetta um Audda.

Stefán (IP-tala skráð) 30.10.2021 kl. 13:22

10 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

hehe það er aðalástæðan fyrir áhorfinu á þættina að yhún lemur hann (blíðlega og af ástríki).

Guðjón E. Hreinberg, 30.10.2021 kl. 23:59

11 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 9),  það er ekki gaman fyrir Skagfirðing eins og mig að frétta þetta um Sauðkrækinginn.

Jens Guð, 31.10.2021 kl. 07:54

12 Smámynd: Jens Guð

Guðjón,  þarna komstu með það!

Jens Guð, 31.10.2021 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband