Ósætti út af kjúklingavængjum

  Ofbeldi tíðkast víðar en í bandarískum skemmtiþáttaseríum.  Stundum þarf ekki mikið til.  Jafnvel að gripið sé til skotvopna þegar fólki mislíkar eitthvað.  Það hefur meira að segja hent á okkar annars friðsæla Íslandi;  þar sem flestir sýna flestum takmarkalausa ást og kærleika. 

  Í Vínlandinu góða,  nánar tiltekið í Utah-ríki,  vildi umhyggjusamur faðir gera vel við þrítugan son sinn.   Á heimleið úr vinnu keypti hann handa honum vænan skammt af kjúklingavængjum.  Viðtökurnar voru ekki jafn fagnandi og pabbinn bjóst við.  Stráksa mislíkaði að kallinn hafði ekki keypt uppáhaldsvængina hans heldur einhverja aðra tegund.  Mönnum getur sárnað af minna tilefni.  Hann stormaði inn á baðherbergi.  Þar var ein af byssum heimilisins geymd.  Kauði nýtti sér það.  Hann tók byssuna og skaut á kallinn.  Sem betur fer var hann ekki góð skytta í geðshræringunni.  Kúlan fór yfir í næsta hús og hafnaði þar í uppþvottavél. 

  Kallinn stökk á strákinn og náði að afvopna hann.  Áður tókst drengnum að hleypa af tveimur skotum til viðbótar.  Bæði geiguðu að mestu en náðu samt að særa kallinn. 

  Einhver bið verður á að gaurinn fái fleiri kjúklingavængi.  Hann er í fangelsi.  

vængir

           

  .    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er möguleiki að hann hafi viljað Geirfuglsvængi en ekki KFC!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.11.2021 kl. 08:27

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  það var eitthvað svoleiðis!

Jens Guð, 2.11.2021 kl. 08:30

3 identicon

Á Íslandi gengi svona geggjaður byssugaur frjáls um götur bæjarins og færi ekki í fangelsi nema að hann stæli kanski eins og einu súkkulaðistykki úr matvöruverslun.

Stefán (IP-tala skráð) 2.11.2021 kl. 12:56

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  því miður er þetta rétt hjá þér.

Jens Guð, 2.11.2021 kl. 12:59

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jens, ég vil nú byrja á því að byðjast afsökunar að koma að málefni sem er þessari bloggfærslu óviðkomandi.  Ég hef það mér til afsökunar að ég vissi ekki alveg hvar ég ætti að koma þessu á framfæri.  Ég var að hlusta á þig á Útvarpi Sögu þar sem þú fjallaðir um Eivøru Pálsdóttur.  Ég varð alveg yfir mig hrifinn af framgöngu þinni og þeirri gríðarlegu þekkingu þú hefur á henni og Færeyskri tónlist yfirleitt.  Ég held að það væri vel til fundið ef þú yrðir reglulega með þætti, á Útvarpi Sögu, þar sem þú myndir kynna Færeyska tónlist og Færeyska tónlistarmenn.......

Jóhann Elíasson, 3.11.2021 kl. 14:21

6 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  ég þakka hlý orð. 

Jens Guð, 3.11.2021 kl. 14:55

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Jóhann þú ættir að lesa bókina um Eivör sem Jens skrifaði. Mögnuð bók um frábæra söngkonu og líka margt fróðlegt um Færeyjar.

Sigurður I B Guðmundsson, 3.11.2021 kl. 15:57

8 identicon

Í fyrsta lagi varðandi söguna sem Jens segir hér að ofan af klikkaða byssumanninum í USA, að þá þarf ekki að horfa þangað til að finna klikkaða byssumenn. Hér á landi skaut klikkhaus á bíl borgarstjóra og gengur enn laus. Í öðru lagi þá tek ég undir hrósið varðandi bók Jens um  ,, okkar ,, ágætu Eivöru. Bókina hefði átt að verðlauna og nú hefur Eivör einmitt verið verðlaunuð.   

Stefán (IP-tala skráð) 3.11.2021 kl. 17:12

9 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B (# 7),  takk fyrir meðmælin. 

Jens Guð, 3.11.2021 kl. 17:19

10 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  takk fyrir kommentið um bókina og líka umhugsunarverða afgreiðslu á íslenska byssumanninum. 

Jens Guð, 3.11.2021 kl. 17:21

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigurður eftir að ég hlustaði á Jens á Útvarpi Sögu í  dag, er það komið í forgang hjá mér að verða mér úti um bókina og vona ég að ég fái hana í Pennanum Eymundson, sem er eina bókabúðin hér í Reykjanesbæ, annars er ég alls ekki óvanur því að verða að fara til Hafnarfjarðar eða jafnvel til Reykjavíkur eftir flestöllu sem mig vantar..........

Jóhann Elíasson, 3.11.2021 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband