Bestu lög sjöunda áratugarins

  Fyrr á árinu birti söluhæsta poppmúsíkvikublað heims,  hið breska New Musical Express,  lista yfir bestu lög sjöunda áratugarins.  Ég birti niðurstöðuna samviskusamlega á þessu vettvangi.  Það má sannreyna með því að smella á þessa slóð:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1229470/ .

  Töluverð umræða varð um niðurstöðu NME í netheimum um bestu lög sjötta áratugarins.  Flestir voru nokkuð sáttir við listann.  Sem er frekar óvenjulegt þegar um svona lista er að ræða.  Mér virðist sem listi NME yfir bestu lög sjöunda áratugarins veki upp meiri umræðu og vangaveltur.  Ekki þó beinlínis að kvartað sé yfir þeim lögum sem þar tróna efst heldur sakna menn tiltekinna laga sem þeir vilja einnig hafa í toppsætunum.  Hvað finnst þér?

  Svo virðist sem það sé nokkuð sterk stemmning frá sjötta áratugnum á listanum yfir bestu lög sjöundar áratugarins,  samanber The Ronettes, The Shangri-Las og Presley.  Ekkert að því.  Það gerir gott flæði á milli listanna yfir bestu lög sjötta og sjöunda áratugarins. 

  Sjöundi áratugurinn er dálítið erfiður hvað það varðar að þá var allt að gerast.  Létta 3ja mínútna poppið einkenndi fyrstu árin.  Við tóku sýrupoppið,  framsækna rokkið,  hipparokkið og allskonar nýstárlegir hljóðheimar.

1   Bítlarnir - A Day In The Life

2   The Ronettes - Be My Baby

3   The Beach Boys - Good Vibrations

4   Jimi Hendrix - All Along The Watchtower

5   The Shangri-Las - Leader Of The Pack

6   Velvet Underground - I´m Waiting For The Man

7   The Rolling Stones - Sympathy For The Devil

8   Elvis Presley - Suspicious Mind

9   Bob Dylan - Lika A Rolling Stone

10  Marvin Gaye - Heard It Through The Grapevine

  Þetta Who lag er í 26. sæti.  Bandaríska söngkonan Patti Smith gaf það út á smáskífu 1976 áður en pönkið varð til sem músíkform. 


Vond plötuumslög?

  Á dögum vinylplötunnar vóg hönnun umslagsins þungt.  Umslag vinylplötunnar er 31 x 31 cm.  Til samanburðar er algeng stærð á forsíðu bókar 15 x 21 cm.  Vinylplötuumslag glennir sig allt að því yfirþyrmandi framan í þann sem handleikur gripinn.  Flott grafísk hönnun á umslagi gerir heilmikið fyrir plötuna.  Góð dæmi um það eru síðustu plötur Bítlanna.

  Vond grafísk hönnun á umslagi dregur að sama skapi plötuna niður.  Í þeim tilfellum er oft um að ræða að tónlistarmaðurinn á plötunni hefur fengið hugmynd - sem honum þykir snjöll - og fær einhvern ungan teikniglaðan ættingja til að útfæra dæmið.  Undantekingalítið kemur þetta illilega niður á leturvali og úrvinnslu. 

  Í öðrum tilfellum eru poppstjörnurnar greinilega með einhverja ranghugmynd um sig.  Eins og gengur.

verstu plötuumslög A

  Þetta hefur þótt bráðsniðug hugmynd.  Skilaboðin eiga sennilega að vera þau að ekki sé allt sem sýnist.  Þegar betur verði að gáð þá reynist platan dýpri og bitastæðari en halda má í fljótu bragði.  Þarna er líka fótósjoppað af dugnaði.  Næstum sjötug konan virðist vera með jafn slétta húð og fermingarstelpa.

  Þessi plata kom út 2009.  Carly Simon á langan og framan af farsælan feril.  Þekktasta lag hennar er  You´re So Vain.  Hún átti fjölda þekktra kærasta.  Þar á meðal Mick Jagger,  Kris Kristofferson,  Warren Beatty og James Taylor.  Með þeim síðastnefnda samdi hún fjölda söngva.  Hann er á leið til Íslands að syngja í Hörpu. 

  Þegar platan  Never Been Gone  kom út var allt í klessu hjá Carly.  Plötur hennar seldust ekki lengur.  Alvöru plötufyrirtæki vildu ekki gefa út nýjar plötur með henni.  Kaffihúsakeðja hafði aumkað sig yfir hana og gefið út næstu plötu á undan.   

  Never Been Gone  var unnin af vanefnum.  Kella var illa fyrir kölluð og ringluð (í andlegu ójafnvægi).  Hún stóð í málaferlum við kaffihúsið.  Taldi það hafa selt einhver eintök af plötunni en þóst ekki selja neitt. Sonur hennar sá um  Never Been Gone  og var algjör "amatör" á því sviði.  Umslagið ber þess merki.  Á plötunni raular Carly þó sín bestu og þekktustu gömlu lög.  5 stjörnu lög sem slík.  En það er allt svo illa gert að gagnrýnendur gáfu plötunni 1 eða í hæsta lagi 2 stjörnur.  

  Það er eins og sumar poppstjörnur tapi dómgreind eftir langvarandi eiturlyfjaneyslu og rugl.       

  Þannig hljómaði Carly Simon fyrir næstum hálfri öld:

 

vont umslag-2

  Jú,  jú.  Sérhannaðir búningarnir eru svakalega smart.  Eða...ja,  sko,  þeir einhvern veginn smell passa á þessa ofur svölu töffara.   Kjaftur hæfir skel.  Og letrið skrautlegt.  Þeir hafa verið stoltir af sér og plötunni þessir sænsku stælgæjar.

vont umslag-3

  Kynþokkinn gargar.  Hann geislar af þessum skvísum.  Hárið snyrtilega hrúgað upp eins og vel hlaðinn heyvagn.  Og hjörtun syngja í kór.  Glennulegar poppgálur klámkynslóðarinnar geta margt lært af þessum pæjum.  Þær kunna að kitla erótíkina án þess að sýna of mikið.

  Hægt er að hlusta á glaðlega músík þessara glaðværu kvenna hér:  http://mrweirdandwacky.blogspot.com/2010/06/braillettes-our-hearts-keep-singing.html

vont umslag-4

  Þetta eru svo harðir gaurar að þeir bryðja glerflöskur í morgunmat.  Takið eftir öllum gullkeðjunum.  Líka á hundinum.  Vindillinn undirstrikar hversu harðir naglar þessar poppstjörnur eru.  Grrrrrrrr...

 vont umslag-6

  Pizzur og bongótrommur.  Ósvikin ávísun á risa fjör.  Hvoru tveggja pizzurnar og trommurnar eru táknaðar með hvítum kringlóttum flötum.  Og einum rauðum.  Svo er þarna kjöthakk í skál.  Hugmyndasmiðurinn hefur verið við það að rifna úr monti. 

  Hljómsveitin,  Irving Fields Trio,  var skipuð annáluðum stuðboltum frá New York.  Aðrar stuðplötur með hljómsveitinni báru nöfn eins og  Kringlur og bongótrommurKampavín og bongótrommurBikíni og bongótrommur  og eitthvað álíka.  Það einkennilega var að hljómsveitin var ekki með neinar bongótrommur.  Og reyndar ekki pizzur heldur. 

  Það verður ekki hjá því komist að láta sýnishorn með stuðboltunum fylgja hér með.  Þeir kunnu að trylla lýðinn,  þessir guttar:

vont umslag-7

  Þessi skutla er ekkert að eltast við rakáhöld eins og stelpur klámkynslóðarinnar.  Þvert á móti er hún stolt af loðnum fótum.  Og má vera það.  Það er ekkert að því.  Samt myndi þetta umslag ekki teljast markaðsvænt í dag.  Blómamyndirnar á stuttum kjólnum og stólnum eru nánast í stíl.

vont umslag-8

  Hér er einn ofurtöffarinn til.  Munstrið á skyrtunni er eins og geisladiskum hafi verið raðað utan hana.  Kappinn reiðir jakka um öxl og pírir augun á eins kynþokkafullan hátt og honum er mögulegt.  Hann kann þetta.  Dáleiðir hreinlega dömurnar,  dásamaður alls staðar.


Veitingahússumsögn

kínverskur matur
Staður: Tian,  Grensásvegi 12
- RétturHádegishlaðborð
- Verð: 1590 kr.
- Einkunn**** (af 5)
.
  Nafnið á veitingastaðnum Tian er ruglandi.  Í fljótu bragði virðist það vera íslenska orðið  tían  og vísa þar með til Grensásvegar 10.  Þegar betur er að gáð er nafnið skrifað með i og staðurinn er á Grensásvegi 12.  Þá tengir maður ósjálfrátt nafnið Tian við tælenskan mat (thai).  Það stenst heldur ekki skoðun.  Tian er kínverskur veitingastaður.  Ég veit ekki fyrir hvað nafnið Tian stendur og hef ekki haft rænu til að spyrjast fyrir um það.
  Hádegishlaðborðið á Tian er hið fjölbreyttasta.  Meðal rétta er súrsætt svínakjöt,  djúpsteiktar rækjur,  laukhringir,  vorrúllur,  steiktar eggjanúðlur,  djúpsteikt ýsa,  lambakjöt í karrý,  svínasteik í sojahvítlaukssósu,  kjúklingavængir,  rækjuflögur,  fersk salatblanda,  hrísgrjón,  kjúklingaréttur sem kallast Kung pao og áreiðanlega eitthvað fleira sem ég man ekki eftir í augnablikinu.
  Það er dagamunur á því sem í boði er.  Það er að segja á matreiðslunni.  Til að mynda hef ég komið að lambakjötinu í örþunnri ljósgrænni karrýsósu.  Í önnur skipti hefur lambakjötið verið í þykkri brún-grænni karrýsósu.  Djúpsteikta ýsan er oftast svamlandi í þykkri milliþykkri soyjasósu.  Fyrir hefur komið að ýsan fljóti ekki í sósu heldur sé hvert ýsustykki smávegis vætt í þunnri soyjasósu.  Stundum eru djúpsteiktu laukhringirnir ókryddaðir.  Í önnur skipti eru þeir kryddaðir með chili.  Þannig mætti áfram telja.
   Út af fyrir sig getur verið kostur að ganga að staðlaðri matreiðslu á tilteknum réttum.  Einkum ef um uppáhalds rétt er að ræða.  Öðru máli gegnir um hlaðborð.  Þar er viðskiptavinurinn að sækjast eftir fjölbreytni.  Þá er kostur að fjölbreytnin birtist einnig í mismunandi matreiðslu dag frá degi. 
  Allt er þetta hinn ágætasti matur.  Kostur við hlaðborð er að hægt er að fá sér sitt lítið af hverju í fyrstu umferð og fá sér meira af því sem best bragðast í næstu umferð.
  Maturinn á Tian er frekar bragðmildur.  Líka þeir réttir sem merktir eru sem bragðsterkir. 
  Nokkra undrun vekur að jafnan er fátt um manninn í hádeginu.  Iðulega undir 10 manns þegar ég sest þarna niður.  Líkleg skýring er sú að á Grensásveginum og í næstu götum er fjöldi annarra veitingastaða.  Margir þeirra bjóða upp á ódýrari mat.  Samt er 1590 kall fyrir svona glæsilegt hlaðborð góður kostur.
  Tian er frekar fínn staður með dúkuðum borðum.  Innréttingar eru í kínverskum stíl.  Gaman væri ef skerpt væri á stemmningunni með kínverskri músík.  Þess í stað er stillt á íslenska útvarpsstöð með leiðinlegum engilsaxneskum slögurum.  Vert er þó að geta þess að gaman var að heyra þarna eitt sinn blússlagarann ljúfa  Give Me One Reason  með Tracy Chapman.  Þá var ég glaður.
  Önnur nýleg veitingahússumsögn:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1231016/
 
 

Gullkorn: Prófsvör barna

  Kennarar og prófdómarar hafa löngum haldið til haga broslegum svörum barna á prófum.  Oftast er ástæðan fyrir sérkennilegu svari augljóslega sú að barnið hefur ekki skilning á viðfangsefninu en reynir að finna trúverðuga / líklega skýringu.  Án þess að hitta á rétt svar.  Eða þá að barnið ruglast á orðum sem hljóma líkt. Hér eru nokkur dæmi:

 - Úr málfræðiprófi í 5. bekk í Mýrarhúsaskóla: "Hvað nefnast íbúar Húnavatnssýslu einu nafni?"

Eitt svar var:
"Sýslumenn"

Annað var: "Húnvettlingar"

 - Úr svari á prófi í kristnum fræðum í 7. bekk:  "Á hvítasunnudag sendi Jesú lærisveinum sínum heilan anda."

 
- Úr bókmenntaprófi í 6. bekk: "Hvað merkir nafnorðið sammæðra?"

Eitt svarið var á svofelldan hátt: "Að tvær mæður eigi sama barnið."


 - Úr líffræðiprófi í 6. bekk: "Hvers vegna eru reykingamenn yfirleitt hand- og fótkaldari en það fólk sem ekki reykir?"

Einn svaraði: "
Reykingamenn eru með kalt blóð."

Annar svaraði: "
Reykingamenn þurfa svo oft að standa úti við reykingar."

 - Gídeonmenn voru í heimsókn í skólanum.  Einn þeirra lagði út af
orðunum: "
Hvernig getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?"

  Þetta er tilvitnun í Nýja testamentið, sem þeir Gídeonmenn voru að gefa 5. bekkingum.  Ekki var ætlunin að nemendurnir legðu þarna eitthvað til málanna. Einn guttinn stóðst þó ekki mátið og sagði: "
Með því að
reykspóla ekki
."

  - Kennari í barnaskóla var að hlýða pilti yfir Faðirvorið. Hugsanlega hefur stráknum legið reiðinnar býsn á, því undir lok bænarinnar sagði hann: "Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss í hvelli."
 
 - Ígulker teljast til skólpdýra. Þau ganga á prjónum.

 - Mörg dýr eru með heitt blóð, en í öðrum er það frosið.

 - Eva fæddist strax á eftir Adam. Því er sagt að Adam hafi ekki verið lengi í París.

 - Á tímum landafundanna miklu urðu miklar framfarir í kortagerð enda þurfti góð kort svo að löndin lentu ekki hvert ofan á öðru.

 - Grasekkjumaður er ekkill sem þjáist af heymæði.

 - Hæsta fjall á Íslandi ber nafnið Hvannadalshrúgur.

 - Í ástandinu lögðust íslenskar konur mjög lágt en þó ekki með öllum.

 - Helstu hlunnindi í sveitum eru sturta og sjónvarp.
 
 - Aðaleinkenni hesta er að vera sífellt á kappreiðum.

Spennandi tímamót í Færeyjum

færeyskibjórinn

  Færeyskur bjór er sá besti í heimi.  Það er ekki aðeins mín skoðun.  Færeyskur bjór hefur rakað að sér verðlaunum þvers og kruss um heiminn.  Stóru bjórrisarnir í heiminum hafa jafnframt ítrekað óskað eftir viðræðum við færeyska bjórframleiðendur um að koma færeyskum bjór undir sína vörulínu.  Án árangurs.  Færeyskir bjórframleiðendur eru stoltir af sínum bjór og sáttir við sína stöðu.  Núna eru þeir ennþá sáttari en áður.

  Í fyrra var áfengislögum í Færeyjum breytt.  Frá og með næst komandi 1. apríl er heimilt að selja í Færeyjum bjór sem er sterkari en 5,8%.  Eftir þessu höfðu færeyskir bjórunnendur beðið síðan 1907.  Þeir voru margir orðnir nokkuð langeygir eftir þessum tímamótum.

  Þegar lögunum var breytt myndaðist strax gríðar mikill spenningur og eftirvænting í Færeyjum.  Það var reiðarslag er uppgötvaðist að 1. apríl ber upp á sunnudag.  Þá eru vínbúðir (Rúsdrekkasölan) í Færeyjum lokaðar.  Lögin taka því ekki gildi í raun fyrr en 2. apríl.

  Rótgrónasti bjórframleiðandinn í Færeyjum,  Föroya Bjór,  setur á mánudaginn á markað 8,5% bjórinn Træveturin (Þriggja vetra hrútur) og 10% bjórinn Sterkur Veðrur (Rammur hrútur).  Gott getur verið að vita að færeyska orðið veðrur er framborið veggrur.

  Træveturin hentar best með bragðsterkum mat,  dökku kjöti,  signu kjöti og sígnum fiski.  Það er líka gott að þamba hann af stút.

  Sterkur Veðrur smellpassar með ostum,  ljósu kjöti,  laxi,  lúðu og rauðsprettu.  Hann er einnig góður þambaður af stút.

  Annar færeyskur bjórframleiðandi,  Okkara,  lætur sitt ekki eftir liggja.  Hann býður upp á 7,9% Portara og 7,6% Tróndur (Þrándur í Götu).

  Bjór frá Föroya Bjór er til sölu í íslenskum vínbúðum.  Það er viðbúið að Træveturin og Sterkur Veðrur spretti upp í vínbúðunum innan skamms.


Tími húsbílsins er genginn í garð

  Samkvæmt grátkórnum stefnir hraðbyr í að þorp landsins breytist í gettó (þau eru það reyndar þegar ef mark er takandi á jarmandi vælusöngvum þar um).  Fiskvinnslufólk og sjómenn hætta að fá borguð laun fyrir sína vinnu.  Þess í stað mun þetta fólk borga með sér til að fá að vinna.  Það mun togast á um hvert starf og yfirbjóða hvert annað til að fá að vinna.  Hvaðan fólkið fær pening til að borga háar upphæðir með sér er hulin ráðgáta.  Hitt er ljóst að fólkið mun ferðast frá þorpi til þorps,  úr einu gettói í annað eftir því hvar fólkið fær að borga með sér til að fá vinnu.

  Þá er runnin upp sú stund að jarðfast húsnæði er vondur kostur.  Tími húsbílsins er genginn í garð.

húsbíll

Best er að byrja ódýrum húsbíl.

húsbíll-1A

Það getur komið sér vel að hafa smá verönd á húsbílnum,  þægilega eldunaraðstöðu og snúru til að hengja vinnugallann til þerris.

húsbíll-A1

Miklu skiptir að hafa gott þak yfir höfuðið til að verjast íslenskum vindum og regni.  Og nýta rýmið vel.  Þegar fram í sækir verður húsbíllinn stöðutákn.  Þannig er þróunin.  Hún verður ekki stöðvuð.

húsbíll-A3


mbl.is Býr til gettó á landsbyggðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veitingahússumsögn

svínarif-b

- Veitingastaður:  Grill 66Álfheimum
- Réttur:  Grilluð svínarif
- Verð:  1320 kr.
- Einkunn: **1/2 (af 5)
.
  Grill 66 er staðsett í nokkrum afgreiðslustöðum Olís.  Þetta er "ódýr" skyndibitastaður. 
  Matseðillinn er töluvert evrópskur.  Meðal annars er boðið upp á pizzur (Ítalía),  hamborgara (Þýskaland),  fisk & franskar (England),  plokkfisk (Ísland) og svo framvegis.  Franskar kartöflur (Belgía) fylgja flestum réttum. 
.
  Nöfnin á réttunum svipa til nafna á bandarískum borgum og ríkjum (Chicago,  Los Angeles,  Hollywood...).  Ég fatta ekki samhengið.  Margarita pizza (einungis ostur og sósa) er kölluð Tulsa.  Hvernig tengist þannig pizza Tulsa?  Hamborgari er kallaður Oklahoma.  Tulsa er í Oklahoma.  Þetta er ruglingslegt.  
.
  Eitt sumar dvaldi ég í Amarillo.  Ég rakst aldrei á lambasteik þar.  Fór ég þó mikinn á veitingastöðum og lék lausum hala í ófáu hlaðborðinu.  Amarillo-búar eru áberandi sólgnir í nautakjöt og ýmiskonar mexíkanska rétti.  Lambasteikin á Grilli 66 er kölluð Amarillo.  
.  
  Svínarifin á Grilli 66 kallast Kingman.  Þau eru framreidd í litlum ferköntuðum bitum.  Aðeins 1 - 2 bein eru í hverjum bita.  Það auðveldar að ná kjötinu af beinunum með hnífi án þess að káma putta að ráði eins og gerist þar sem svínarifjalengjur eru afgreiddar með 10 beinum. 
  Verra er að svínarifin á Grilli 66 eru ansi bragðdauf - þrátt fyrir ágæta grillsósu.  Vegna þess hvað rifin eru bragðdauf væri betra að hafa meira af grillsósunni.  Hún er samt ekkert skorin við nögl.
  Meðlæti er spriklandi ferskt jöklasalat og bökuð kartafla.  Ofan á jöklasalatinu er jógúrtsósa og ein stór en þunn tómatsneið.  Það væri meiri reisn yfir því að hafa tvær tómatsneiðar.  Þó þær væru minni og ennþá þynnri.  Það er fátæklegt að sjá eina tómatsneið á vænni hrúgu af jöklasalati.  Tómatsneiðin er eins og umkomulaus,  litla greyið.  Ég vorkenndi henni.
  Öllu meiri reisn er yfir því að fá bakaða kartöflu með svínakjötinu.  Henni fylgir smjör (eins og á að vera,  en vill á sumum veitingastöðum verða misbrestur á).  Aftur á móti vantar pipar á borðin.  Á borðum er salt,  tómatsósa, krydd fyrir franskar kartöflur og nóg af handþurrkum.  En ekki pipar.  Eins og það bragðbætir bakaða kartöflu vel og rækilega að strá yfir hana pipar.   
  Vandamálið er þó ekki stærra en svo að viðskiptavinir geta gripið með sér nokkur piparstauk að heiman til að strá úr yfir bökuðu kartöfluna.

Andri Freyr er frábær! Hann er sá flottasti í útvarpi og sjónvarpi!

andri

  Eiður Guðnason,  fyrrverandi sendiherra,  fyrrverandi alþingismaður,  fyrrverandi sjónvarpsstjarna og eitthvað fleira fyrrverandi,  heldur úti áhugaverðu bloggi um málfar og miðla.  Yfirskriftin er "Molar um málfar og miðla".  Það má hafa gagn og gaman af vangaveltum hans og athugasemdum. 

  Suma gagnrýnir Eiður oftar en aðra.  Eins og gengur.  Á dögunum skrifaði Eiður þetta um ástsælasta útvarps- og sjónvarpsmann landsins:

  "Það er alveg séríslenskt sjónvarpssiðferði þegar umsjónarmaður hins sjálfhverfa vikulega Andralandsþáttar leikur aðalhlutverk í langri kaffiauglýsingu sem sýnd var rétt fyrir fréttir (19.03.2012) í Ríkissjónvarpinu. Raunar verður ekki betur séð en þetta sé skýrt brot á þeim siðareglum sem Ríkisútvarpið hefur sjálft sett. En til þess eru reglur að brjóta þær , ekki satt? Sá hinn sami hefur fastan þátt í morgunútvarpi Rásar tvö. Þar er talað um hljóstir, ekki hljómsveitir og bið í síma heitir að hanga á hóldinu. Til hvers er Ríkisútvarpið með málfarsráðunaut? Svo les maður í Fréttablaðinu (21.03.2012) að Ríkissjónvarpið ætli að gera þennan starfsmann sinn út af örkinni til að gera sjónvarpsþætti á slóðum Vestur-Íslendinga þar sem hann segist eiga skyldmenni. Hann segir orðrétt í Fréttablaðinu um skyldmenni sín vestra: ,Pabbi segir að þau séu ógeðsleg en amma segir að þau séu fín. Það er engin ástæða til að greiðendur nauðungaráskriftar Ríkisútvarpsins kosti ferðalag piltsins vestur um haf til að heimsækja ættmenni sín. Sjónvarpið ætti hinsvegar sjá sóma sinn í að gera alvöru heimildaþætti um Vestur-Íslendinga eða Kanadamenn sem eru af íslensku bergi brotnir. Til þess er þessi dagskrárgerðarmaður ekki rétti maðurinn, sé horft til þess sem hann hefur frá sér sent bæði í sjónvarpi og útvarpi. Getur hann ekki bara haldið áfram að gera þætti um sjálfan sig á Íslandi? Eru þeir sem stjórna dagskrárgerðinni í Efstaleiti búnir að tapa áttum og algjörlega heillum horfnir? Hvers eiga frændur okkar og vinir vestra að gjalda? Hversvegna á að kasta takmörkuðu dagskrárfé á glæ með þessum hætti ? Óskiljanlegt."

  Ég hef ekki heyrt Andra Frey tala um hljóstir.  Hinsvegar hef ég oft heyrt hann tala um hljómsveitir.  Enda hefur Andri verið í vinsælum hljómsveitum á borð við Bisund,  Botnleðju og Fidel. 

  Það er fagnaðarefni að Ríkissjónvarpið ætli að gera Andra Frey út af örkinni til að gera þætti um Vestur-Íslendinga.  Enginn er betur til þess fallinn.  Það hafa verið gerðir margir hundleiðinlegir og uppskrúfaðir útvarps- og sjónvarpsþættir um Vestur-Íslendinga.  Nú er röðin komin að skemmtilegum þáttum um Vestur-Íslendinga.   Sjónvarpið fær stóran plús í kladdann fyrir þættina Andri á flandri og Andraland.  Sömuleiðis fyrir að senda kappann vestur um haf til að gera þætti um Vestur-Íslendinga. 

  Það er engin tilviljun að sjónvarps- og útvarpsþættir Andra Freys tróni ítrekað í toppsæti yfir vinsælustu þætti.  Drengurinn er bráðskemmtilegur og orðheppinn.  Hann tekur sig ekki hátíðlega.  Honum er eðlislægt að vera skemmtilegur.  Það er ekkert óskiljanlegt við að stjórnendur Ríkisútvarpsins nýti þennan frábæra "talent" sem mest má vera.  Þjóðin elskar Andra Frey.  Hann var og er hvalreki á fjörur dagskrárgerðar fyrirtækisins. 

  Vitaskuld er Andri Freyr ekki yfir gagnrýni hafinn.  Hann talar hinsvegar tungumál sem þjóðin skilur.  Og elskar að hlusta á.  Hann er flottastur!   

 


Er nokkuð hundur í þér? Broslegir hundar og kettir

  Fá dýr eru fyndnari en hundar og kettir.  Oftast samt án þess að þeir ætli sér það.

dýr-a

  "Ég sver það:  Það var risastór og grimmur Rottweiler hundur sem gerði þetta.  Ég gat ekki hindrað það."

dýr-b

  "Hvernig er best að koma því til skila að það sé tímabært að sá litli sofi í sínu eigin fleti?"

dýr-c

  "Æ,  hvað hann er alltaf notalegur,  ferskur, róandi og svæfandi ilmurinn úr íþróttaskónum."

dýr-d

  "Kötturinn?  Hvernig á ég að vita hvar kötturinn er?  Ég sé engan kött?"

dýr-e

  Ástir samlyndra.

dýr-f

  "Hæ,  strákar!  Viljið þið vera vinir mínir?"

dýr-g

  "Partý!  Partý!  Partý!  Þvílíkt fjör!"

dýr-h

  Vonandi náðu þessar myndir að laða fram bros.


Viðskiptavild nafnsins - sölutækni

  Það er þekkt í sálfræðinni að fólki þykir vænt um nafnið sitt.  Algengt trix sölumanna er að ávarpa hugsanlegan kaupanda með nafni hans.  Við það eitt myndast stemmning sem slagar í humátt að kunningsskap.  Viðmælandinn fer í jákvæðar stellingar við það eitt að heyra nafn sitt nefnt. 

  Takið eftir því að þegar fólk endursegir samtal við einhvern "merkilegan" þá bætir það nafni sínu við tilvitnunina ásamt orðinu "minn".  Viðkomandi lætur ummælin í endursögn hefjast á orðunum "Jóhannes minn,  þetta er alveg rétt hjá þér."  Í raun hefur sá sem vitnað er til þó ekki nefnt nafn hins.   

  Hvenær heyrum við samtal af þessu tagi:  "Jóhannes minn,  hvað er klukkan?"  Hinn svarar:  "Þórhallur minn,   hana vantar 10 mínútur í þrjú."

  Þannig spjallar fólk ekki saman.  Í endursögn bætir fólk nafni sínu og "minn" við.  Þið þurfið ekki að lesa margar blaðagreinar eða viðtöl við fólk áður en þið rekist á svona tilvitnanir.  Sá sem segir frá er ekki að skrökva vísvitandi.  Hann/hún minnir að þannig hafi samtalið verið.

   Svo er það hitt sem er samt ekki eins algengt en þó áberandi:  Þegar fólk lýsir sér í 3ju persónu.  Það nefnir sjálft sig með nafni í stað þess að segja "ég".  "Þá fer Árni í gang," segir í auglýsingu þar sem Árni Guðjónsson,  leikari,  auglýsir SS pylsur.  

  Ég hef löngum velt fyrir mér hvers vegna sumir tala um sig í 3ju persónu.  Það er engin niðurstaða í þeim vangaveltum.  Þannig lagað.  Ég hallast að því að þetta sé einhvers konar minnimáttarkennd.  Þá er ég samt alls ekkert að vísa til auglýsingarinnar með Árna.  Hann er leikari og er að leika tiltekna persónu.

  Mér virðist sem fólk tali helst um sig í 3ju persónu þegar það er að upphefja eitthvað sem að því snýr:  "Þá tók Jónsi til sinna ráða."  Eða:  "Jónsi var ekki lengi að redda þessu."

   Fyrir mörgum árum varð maður nokkur,  mér kunnugur, ráðherra.  Hann hætti að mestu að segja "ég".  Þess í stað fór hann að tala um sig sem ráðherra:  "Ráðherrann lagði til að..."  Hann fór að kenna ýmsa hluti við ráðherra.  Þannig varð hægindastóll hans í stofunni að ráðherrastólnum (áður hét hann húsbóndastóll);  jakkaföt hans urðu ráðherradressið;  fíni blekpenninn hans varð ráðherrapenninn.  Þannig mætti áfram telja.  Kunningjarnir gerðu nett grín að þessu á bak við hann.

  Í einu skiptin sem maðurinn talaði um sig í 1. persónu var í viðtölum í blöðum eða ljósvakamiðlum.  Hins vegar hélt hann áfram að kenna eigur sínar við ráðherra löngu eftir að ráðherratíð hans lauk.


Sérkennilega lagt í bílastæði

illa lagt í stæði A

  Það er ekki öllum gefið að leggja í bílastæði.  Sumum er algjörlega ómögulegt að leggja í stæði.  Aðrir geta lagt í hvaða stæði sem er.  Sama hversu lítið plássið er.

illa lagt í stæði C

Sumir þurfa ekki einu sinni bílastæði til að leggja bílnum snyrtilega við erfiðustu skilyrði.

illa lagt í stæði D

Heimakærum þykir notalegt að leggja bílnum sem næst svefnherberginu sínu.

illa lagt í stæði E

Til er fólk sem nennir ekki að ganga stysta spöl.  Þegar það langar niður að sjó þá ekur það eins nálægt sjónum og hægt er og leggur bílnum nánast á yfirborði vatnsins.


Sparnaðarráð

  Það er dapurlegt að lesa í blöðum eða hlusta í útvarpi á viðtöl við fátækt fólk á Íslandi.  Fólk sem hefur ekki efni á að fjármagna lyfjakaup sín eða kaupa annað hráefni í matargerð en núðlur, hafragrjón og þess háttar.  Samtímis er troðið út úr dyrum á veitingastöðum sem selja 3ja rétta máltíð á hátt í 10 þúsund kall + vín (+ leigubíll).  Sala á 10 milljón króna jeppum er í blóma.  Afskriftir á mörg hundruð milljónum og upp í nokkurra milljarða kúlulán og allskonar er í tísku hjá fólkinu sem gefur börnum sínum og öðrum ættingjum lúxusbíla og lúxusíbúðir þegar það heldur upp á afskriftirnar.

  Á sama tíma hljómar hrokafullt að gefa fátækum sparnaðarráð.  Engu að síður:  Það er pínulítið skrítið að lesa um einstæðinga sem ná ekki endum saman í upphafi mánaðar eftir að þeir hafa borgað 140 - 160 þúsund króna mánaðarleigu fyrir íbúð.  Vissulega eru það mannréttindi að hafa þokkalegt húsaskjól.  En út um allan bæ er hægt að leigja ágæt herbergi á gistiheimilum fyrir 30 - 40 þúsund kall á mánuði.  Þá er allt innifalið:  Internet,  rafmagn,  hiti og sameiginlegur aðgangur að þvottahúsi,  eldhúsi og svo framvegis.  Plús ágætur félagsskapur.

  Þannig má spara 100 þúsund kall á mánuði. 

   


Bestu lög sjötta áratugarins

  New Musical Express  heitir vinsælasta breska tónlistarblaðið.  Það mokselst víða um Evrópu og í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Er söluhæsta tónlistarvikurit heims.  Í höfuðstöðvum New Musical Express hefur verið tekinn saman listi yfir bestu og merkustu lög sjötta áratugarins.  Svona listar vekja alltaf upp léttvægar deilur.  Sitt sýnist hverjum.  Að þessu sinni virðist mér þó sem allt að því einhugur ríki um niðurstöðuna.

  Svo skemmtilega vill til að Presley,  Jerry Lee og Little Richard krákuðu (cover song) allir  Johnny B Good.  Eins og Jimi Hendrix,  Peter Tosh og ótal aðrir.

  Tilvitnanirnar (rökin) eru NME: 

1  Chuck Berry - Johnny B Good

  "Gítar-riffið,  píanóið,  viðlagið:  Allur pakkinn er klassískt rokk og ról.  Krákað (covered) í hundraða vís af allt frá BB King til hljóðrásar kvikmyndarinnar  Back To The Future."

2  Elvis Presley - Hound Dog

  "Blús-kráka sem Presley breytti í rúllandi trommutakt og gítarþunga sem lagði grunn að unglinga uppreisn."

3  Jerry Lee Lewis - Great Balls Of Fire

  "Eitt besta rokklag sögunnar.  Orkumikið rokk og brútal píanóleikur."

  John Lennon hélt því fram að þetta væri fullkomnast allra rokklaga.

4  Little Richard - Tutti Frutti

  "Besta lag Little Richards var byltingarkennd mótun á rokki og róli.  Ekki aðeins í sjálfri músíkinni heldur einnig í tvíræðni."

5  Howlin Wolf - Smokestack Lightnin´

  "Hugsaðu um blús og þú hugsar Howlin Wolf og Smokestack Lightnin'"


Einföld lausn á eiturlyfjavandanum?

 

  Sjálfstæðisflokksmenn vilja fá að sniffa sitt kók og reykja sitt hass án afskipta lögreglu og dómstóla.  Þeir vilja jafnframt geta gengið að þessum vímuefnum í hæsta gæðaflokki,  vottuðum af embættismönnum ríkisins.  Þeir vilja að auki fá að kaupa skammtana sína af ríkisstarfsmönnum í staðinn fyrir að þurfa mikið lengur að kaupa skammtana af sjálfstæðum sölumönnum í geira einkaframtaksins.  Að sögn er vond reynsla af sjálfstæðu sölumönnunum.  Það er fallvalt að treysta gæðum vímuefna þeirra og allskonar rugl í gangi.

  Ýmsir aðhyllast þetta baráttumál sjalla.  Aðrir finna því allt til foráttu.  

  Það er til ráð.  Það er hægt að fá úr því skorið hvort óbreytt ástand annars vegar eða hins vegar leið sjallanna er heppilegri.  Þetta er hægt án þess að taka mikla áhættu.

  Aðferðin er sú að fara í Kópavogi leið sjallanna.  Leyfa þar sölu á hágæða hassi og kóki í vínbúðunum í Dalvegi og Smáralind.  

  Eftir 3 ár (eða 4) verður komin reynsla á þessa leið.  Þá er hægt að bera útkomuna saman við ástandið á Íslandi utan Kópavogs.  Ef Kópavogsleiðin kemur vel út er næsta skref að víkka hana út til Garðabæjar.  Þá þarf reyndar að opna þar vínbúð á nýjan leik.  Garðbæingar eru svo mikið í öðrum efnum að áfengissala hefur ekki þrifist þar.  Hvað þá pöbb.  Það er einmitt betra þegar kemur að umræddri tilraun.

  Ef reynslan verður sömuleiðis góð í Garðabæ er röðin komin að Hafnarfirði.  Og þannig koll af kolli.  Alveg þangað til að Vestmannaeyjar standa einar eftir með gamla fyrirkomulagið.  Þá verða þær um aldur og ævi víti til varnaðar.  Ef sjallarnir hafa rétt fyrir sér.   

 


mbl.is Klofinn Sjálfstæðisflokkur í Kópavogi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegir rangalar póstsins

ÁrsællGunnar Andersen 

  Rekstur Póstsins er i tómu veseni.  Fyrirtækið tapar allt að hálfu öðru hundraði milljónum króna á ári.  Það er óskemmtilegt til lengdar.  Það eru ekki margir kostir í stöðunni.  Þrautalendingin er sú að útibúum er lokað og gamalreyndu starfsfólki sagt upp.  Fólki sem hefur fikrast upp launastigann í áratuganna rás.  Þá fer oft eitthvað í rugl.  En unga starfsfólkið gerir sitt besta.  Ég hef ekki undan neinu að kvarta.  Þetta er allt yndælis fólk,  jákvætt og glaðlegt með ríka þjónustulund.

  Þróunin hefur tekið á sig ýmsar myndir.  Til að mynda er nánast flókið að koma pósti til DV.  Fyrst þarf að finna einhvern sporléttan sem getur lagt land undir fót.  Hann þarf að leita uppi  samviskusaman lektor í Háskóla Íslands.  Flestir treysta best Ársæli Valfells.  Það er heppilegast að ná á honum heima við seint að kvöldi og afhenda honum póstinn.  Til að ekkert fari úrskeiðis verður að merkja póstinn í bak og fyrir með nafni einhvers núverandi eða áður hátt setts embættismanns Fjármálaeftirlitsins.  Til að mynda Gunnars Andersen.  Lektorinn hringir þá í Gunnar til að fá staðfest að pósturinn eigi að skila sér til DV.  Bingó!  Ársæll skilar póstinum til DV ekki síðar en næsta dag. 

  Vandamálið við þessa aðferð er sú að Pósturinn fær ekkert póstgjald.  Það er ein af ástæðunum fyrir rekstrarhallanum.  Þanngi bítur þetta allt í skottið hvert á öðru.   

postman

Ársæll fyrir utan höfuðstöðvar DV við Tryggvagötu.  

Það fer ekki framhjá gestum og gangandi á Tryggvagötu þegar Ársæll mætir á svæðið eldsnemma að morgni.  Hann blastar á útopnu fjörlegum Bítlalögum og tekur hraustlega undir í viðlagi.  Stígur jafnvel nokkur dansspor í leiðinni. 


Lag með Eivöru spilað í jarðarför myrts manns

  2. mars var 22ja ára Dani,  Anders Mark Hansen,  myrtur.  Útför hans fór fram um helgina.  Danskir fjölmiðlar greina frá því að Anders hafi verið hugfanginn af laginu  Hounds of Love  með færeysku söngkonunni Eivöru.  Hann hlustaði á lagið daginn út og inn.  Þess vegna var hann jarðaður undir flutningi á þessu lagi.  Um þetta má lesa á http://ekstrabladet.dk/112/article1723696.ece .

  Ástæða morðsins er talin vera afbrýðisemi.  Anders er sagður hafa daðrað við kærustu 33ja ára gamals manns.  Sem réttlætir vitaskuld ekki glæpinn. 

anders


Krafinn um 200 þúsund kall fyrir laskað mannorð

  Fyrir fimm árum var ég staddur á Selfossi.  Þar var mér bent á frétt í héraðsfréttablaði.  Mér þótti fréttin áhugaverð og skrifaði eftirfarandi bloggfærslu (örlítið stytt):

  "Sævar Óli Helgason var á dögunum dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að ráðast á sýslumanninn á Selfossi,  Ólaf Helga Kjartansson. 

  Forsaga málsins er sú að Sævar Óli hafði áður í tvígang verið dæmdur fyrir annarsvegar heimilisofbeldi og hinsvegar líkamsárás úti á götu.  Hann var ósáttur við dómana.  Hélt því fram að um misskilning væri að ræða.  Hann sé í raun friðsemdarmaður og laus við allar tilhneigingar í átt að ofbeldi.  Hafði í bæði skiptin orðið fórnarlamb miskilinna aðstæðna.

  Hann taldi sig þurfa að leiðrétta þennan hrapalega misskilning við Ólaf Helga.  Ruddist inn í dómssal Héraðsdóms Suðurlands þar sem Ólafur Helgi var að flytja mál.  Og reyndi að koma skilaboðum þessa efnis á framfæri við sýslumanninn,  Ólaf Helga.  Ólafur benti manninum á að þarna væri hvorki staður né stund til að fjalla um þennan misskilning.  Við þau orð fauk í Sævar Óla.  Hann sveif á sýslumanninn,  tók hann haustaki og skellti í gólfið. 

  Þessar "trakteringar" urðu ekki til að sannfæra sýslumanninn um að Sævar Óli sé friðsemdarmaður sem forðist ofbeldi eins og heitan eld.  Þvert á móti kærði sýslumaðurinn Sævar Óla með ofangreindum afleiðingum."

  Í dag fékk ég í athugasemdakerfinu á þessari bloggsíðu eftirfarandi erindi frá Sævari Óla:

kvarkur

  "Að gefnu tilefni, vegna nýgenginns dóms héraðsdóms í svipuðu máli, geri ég, undirritaður, þér Jens Kristján Guðmundsson, sáttartilboð vegna þessara tilhæfulausra lyga og óhróðurs sem þú hefur haft uppi um mig og mína personu á bloggsvæði þínu. Nánar tiltekið þann 27.02.2007.

Sem þú hefur eflaust sett fram mér til háðungar og minnkunar án þess að hafa nokkuð kynnt þér eitt eða neitt í því máli sem þú tjáir þig um og þykist samt hafa vit á...

Vildi ég gjarnan fá að vita hvað ég hef til þess unnið hjá þér, að þú hafir fundið þessa þörf hjá þér að ljúga uppá mig og mína personu og gera svo allt til að draga mannorð mitt í svaðið... Meiddi ég þig, eða þína nánustu, einhverntíma...? Því ég man ekki til þess að hafa nokkurntíma talað við, eða átt á nokkurnhátt viðskipti við þig eða þína... 

Málið er...

Að eftir að ég byrjaði að blogga hérna á blog.is, í janúar, hefur mér verið bennt á að slái maður nafn mitt inní leit hérna á blogginu, þá fær maður upp bloggfærslu þína þar sem þú nefnir mig fullu nafni og lýgur, blákalt, uppá mig, ferð rangt með staðreyndir máls og reynir greynilega að gera sem minnst úr minni personu án sýnilegs tilefnis af einhverri óútskýrðri heift... Hvað veldur annað en þín vafasama personugerð og óútskýrður illvilji þinn í minn garð...? Hvað gerði ég þér til að eiga það skilið að þú ljúgir og svertir mannorð mitt á þennan hátt...?

Það skal því hér með, þér semog öðrum, upplýsast að ég, undirritaður, hef aldrei verið dæmdur fyrir "heimilisofbeldi" einsog þú heldur fram í þessu bloggi þínu... Heldur var ég einmitt að reyna að leggja fram kæru og láta taka af mér skýrslu vegna þesskonar heimilisofbeldis þegar samstuð okkar Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumannsfífls á Selfossi, varð... Komst ég að því seinna að Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumannsfífl á Selfossi, hafði BANNAÐ undirmönnum sínum að taka af mér skýrslu vegna þessa máls... Þrátt fyrir þá nýútgefna verklagsreglugerð Ríkislögreglustjóra um undantekningalausa aðra málsmeðferð slíkra mála hjá lögreglustjóraembættum en mér var þar sýnd... Og er þar með komin ástæða og útskýring á því sem gerðist í framhaldinu...

Því það var EKKI ég sem "réðst" inní dómssal... Það var Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumannsfífl, sjálfur... Væntanlega í því augnamiði að gera málstað minn að engu en allt það "ofbeldi" sem varð þar að undan varð við það að ég greip í öxl hans svo hann hrasaði við er ég var að reyna að stöðva hlaup hans í burtu frá mér... En þú heldur því blákalt uppá mig, í bloggfærslu þinni, að ég hafi "ráðist" á Ólaf Helga, sýslumannsfífl, inní réttarsal... Því lýgur þú... Jens Kristján Guðmundsson...!

Okkar samstuði lauk fyrir utan dómssalinn... Og hefði verið öllum ljóst sem kunna og nenna að lesa dóma sem ég, undirritaður, hef fengið... En þú telur þig væntanlega ekki þurfa þess til að tjá þig um mín mál...

Og væntanlega ekki nein önnur málefni... Er það...?

Býð ég þér því sættir að fyrrabragði því ég tel þig fyrirfram ekki ríkan mann hvorki af andlegum auði né veraldlegum...

Þær eru svona...

Þú ritar mér ásættanlega afsökunnarbeðni vegna þessara lyga þinna í minn garð sem verður svo auglýst í tveimur fréttablöðum er ná landsdreifingu... Munt þú að sjálfsögðu sjá um þann kostnað, að upphæð 200.000.kr...

Og svo skaltu greiða mér 200.000.kr sem bætur fyrir þessar tilhæfulausu lygar þínar í minn garð...

Þar með losnar þú við lögfræði- og málskostnað sem mun allavega tvöfalda þessa upphæð annars, og allir sáttir...

Hafir þú, eða þinn fulltrúi, ekki samband við mig, undirritaðan, innan 14 daga frá ritun og afhendingar (á þínu bloggsvæði) þessa sáttarboðs skalt þú eiga von á að það verði haft samband við þig af mínum lögfræðingum...

Takk...!

Kv. Sævar Óli Helgason

Tjarnargata 32. 101 Reykjavík

Gsm-8487019"

  Svo virðist vera sem bloggfærsla mín hafi ekki verið 100% nákvæm.  En samt innan skekkjumarka.  Eða því sem næst.  Tobbi hefur upplýst mig um það:

  "Þú hélst því fram að Sævar þessi hefði ráðist á sýsla inni í dómssalnum.  Þar mun hafa munað einum metra því aðalárásin átti sér stað utan dómssalsins en þó svo nálægt að sýsli varðist falli með því að grípa í hurðarhúninn að utanverðu.   Svo heldur þú því ranglega fram að delinkventinn hafi tekið sýsla haustaki þegar rétt er að sýsli taldi hann hafa tekið sig hálstaki og dómarinn taldi að hann hefði þrifið í öxlina á sýsla.  Hér er vitaskuld um alvarlegar rangfærslur að ræða og verða ekki réttlættar með því að ákærði og síðar dæmdi í máli þessu fékk svofellda umsögn dómarans: „Framkoma ákærða var ruddaleg og brot hans gagnvart sýslumanni tilefnislaust og gróft. Hann hefur ekki sýnt nein merki iðrunar eða eftirsjár.“

En, með hjálp snjalls lögfræðings, t.d. margumrædds Pro Bono, er líklegt að látið verði við skilorðsbundinn dóm sitja enda voru rangfærslur þínar aðeins metri í öðru tilvikinu en sennilega fimmtán sentimetrar í hinu." 

  Þetta er hið snúnasta mál.  Uppgefið heimilisfang Sævars Óla er svokallaður Ráðherrabústaður.  Gistiheimili fyrir erlenda þjóðhöfðingja.  Sævar Óli hefur að sönnu verið skráður sem útlendur flóttamaður í Danmörku.  Ég veit samt ekki hvort að það flokkast undir erlenda þjóðhöðingja.  Mér skilst að Sævar Óli hafi slegið eign sinni á Ráðherrabústaðinn.  Hann hafi gert sig heimakominn þar með innbroti án lykla.  Mínir fulltrúar telja óráðlegt að pósta peninga og bréf til Sævars Óla á þetta heimilisfang.  Það séu litlar líkur á að það komist til skila.  Eignarhald Sævars Óla á Ráðherrabústaðnum sé ekki viðurkennt.  Og jafnvel leiki vafi á að hann sé réttmætur húsráðandi þar eða hafi þar fasta búsetu.  Mér er illa við að vita af peningum lenda í reiðuleysi vegna misskilnings eða ánákvæmni á búsetu. 


Putin með 107% atkvæða

vladimir-putin

  Valdi Púta,  eða Vladimir Pútin eins og hann er kallaður í Rússíá,  er vinsælasti þjóðhöfðingi heims.  Að minnsta kosti í sumum héruðum þarna fyrir austan.  Fyrir nokkrum árum sigaði hann hernum á íbúa Kekenia.  Þar var einhver órói,  sem herinn barði miskunnarlaust niður.  Svo hefur verið að heyra á eftirlifandi íbúum að þeir kunni Valda Pútu litlar þakkir fyrir.  Meðal annars þess vegna var talið að mótframbjóðandi Valda Pútu myndi sigra með yfirburðum í Kekenia.  Þannig var hljóðið í mönnum.  Stuðningsmenn mótframbjóðandans höfðu sig mikið í frammi. 

  Þegar talið var upp úr kjörkössunum kom annað í ljós.  Mótframbjóðandinn fékk aðeins 1 atkvæði.  Ákafir stuðningsmenn hans virðast hafa svikið lit allir nema 1.  Valdi Púta fékk aftur á móti 1481 atkvæði.  Það eru merkileg tíðindi.  Ekki síst þegar tekið er með í spilið að einungis 1389 voru á kjörskrá.  Þar af áttu sumir ekki heimangengt,  til að mynda sjúkir og háaldraðir.

  Það gerir sigur Valda Pútu ennþá sætari og glæsilegri.  Þeir eru ekki margir þjóðarleiðtogarnir sem geta státað af því að hafa gjörsigrað andstæðinginn með 107% atkvæða. 


Fagur fiskur í sjó

fiskur A

  Fiskur er einhver besti og hollasti matur sem völ er á.  Það er æskilegt að borða fisk að minnsta kosti þrisvar í viku hverri.  Helst oftar.  Fyrir daga kvótakerfisins gátu allir fengið vinnu í fiskvinnslunni.  Menn fengu líka í soðið beint frá sjómanninum.  Í þá daga vissu flestir hvernig fiskur lítur út.  Í dag þekkir fólk ekki fisk nema sem hvítar sneiðar í fiskborði verslana.  Eða umluktar raspi.  Eða í einhverri sósu.

  Það er gagn og gaman að skoða myndir af fiskum.  Rifja upp hvernig þeir líta út áður en þeir eru roðflettir,  beinhreinsaðir og skornir í sneiðar.  Þetta eru krúttlegar skepnur.  En grun hef ég um að margir haldi að fiskar séu ennþá krúttlegri en raun ber vitni. 

fiskur Bfiskur Cfiskur Dfiskur Ffiskur Gfiskur Hfiskur Ifiskur Jfiskur Kfiskur Lfiskur-minnir á einhvern

  Það er svo gaman að margir fiskar minna á þekkt mannfólk.  Maður kannast við svipinn.

 


Verstu plötuumslögin

  Breska tónlistarritið Music Radar hefur tekið saman lista yfir verstu plötuumslögin í sögu þungarokksins.  Af nógu er að taka.  Ótrúlega mörg þungarokksumslög eru ótrúlega hallærisleg.  En þannig hallærisleg að auðséð er að liðsmönnum hljómsveitanna sem um ræðir þykir umslögin svakalega svöl.

  Textinn sem fylgir innan gæsalappa er tekinn úr Music Radar.

verstu plötuumslög-1-boned-up-at the-crack   

1  Boned - Up At The Crack
"Hljóðið sem heyrist er Les Paul að hringsnúast í gröfinni..."
.
verstu þungarokssumslögin-2-cind_night_songs
2  Cinderella - Night Songs
"Sjáið tæfu fötin sem mamma keypti handa okkur í rokkbúðinni.  Hún fann líka nafn á hljómsveitina."
.
verstu þungarokksumslög-3-death-leprosy
3  Death - Leprosy
"Af því að það eina sem fólki líkar betur við en dauða er holdsveiki..."
.
verstu þungarokksumslög-4-battle-axe
4 Battle Axe - Burn This Town
"Og sigurvegarinn í samkeppni 1. bekkjar barnaskólans um teiknað þungarokksumslag er..."
.
verstu þungarokksumslögin-5-scorpions_animal_magnetism
5  Scorpions - Animal Magnetism
"Þetta er ruglingslegt.  Hvort vill maðurinn að hundurinn eða konan þjónusti hann?  Eða bæði?"
 .
verstu þungarokksumslög-pantera
6  Pantera - Metal Magic
"Annar efnilegur nemandi í samkeppni 1. bekkjar barnaskólans um teiknað þungarokksumslag..."
 .
verstu umslög-Tankard-The_Beauty_And_The_Beer
7  Tankard - The beauty And The Beer
"Liðsmenn Tankard eru ástríðufullir aðdáendur Skrekks.  Skrekkur hefur ekki upplýst hvort aðdáunin sé gagnkvæm."
.
verstu umslög-Krokus-Heart-Attack
8  Krokus - Heart Attack
"Sko,  fyrst teiknum við hjarta.  En í raun er það kvenmannsbrjóst.  Erum við snillingar eða...?"
.
verstu umslög-Manowar-Anthology
9  Manowar - Anthology
"Við hættum við upphaflega textann.  Myndin segir allt sem segja þarf."
verstu umslög-vinnie_vincent_invasion-
10  Vinnie Vincent Invasion - Vinnie Vincent Invasion
"Þetta er útpælt,  Vinnie.  Taktu smá áhættu næst.  Fólk þarf að vita hvað það er (ekki) að kaupa..."
Til skýringar:  Öll plötuumslögin hans eru næstum eins.
.
verstu umslög-pat_boone_in_a_metal_mood
11  Pat Boone - In A Metal Mood No More Mr. Nice Guy
"Þú þarft bara að líta á manninn,  þá veistu að þetta er hrikalegt rokk!"
Til gamans má geta að þessi plata er tíður gestur á listum yfir misheppnuðustu plötur sögunnar.
.
verstu umslög-Whitesnakelovehunter
12  Whitesnake - Lovehunter
"Þetta er það sem David Coverdale situr um og hugsar um.  Hey,  það er lifandi!"
.
verstu umslög-cattle
13  Cattle Decapitation - Humanure
"Svo þetta er það sem liðsmenn Cattle Decaitation eru að velta fyrir sér.  Skyndilega er eins og Coverdale sé ofur snjall."
  Vörumerki ótrúlega margra þungarokkshljómsveita eru nánast ólesanlegar klessur.  Í stað þess að láta fagmenn hanna vörumerkið út frá þeim lögmálum sem gefist hafa best er hóað í litla frænda söngvarans.  Sá litli er skratti góður að teikna. 
  Teikniglaði frændinn vill standa sig.  Til að sýna teiknihæfileikana teygir hann hvern anga hvers stafs út og suður,  sýr upp á þá,  býr til aukahala og hættir ekki fyrr en stafirnir hafa verið kaffærðir í flúri.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband