Mick Jagger fyrr og nú

 

  Forsprakkar bítlabylgju sjöunda áratugarins eru hver á fætur öðrum að hrúgast inn á áttræðisaldur um þessar mundir.  Það er dálítið skrítið fyrir mann á mínum aldri að fylgjast með því.  Ég var krakki þegar Bítlarnir,  The Rolling Stones, The Kinks,  The Animals,  Manfred Mann og allt það lið kom fram á sjónarsviðið og lagði undir sig markaðinn.  Það voru nú meiri lætin og æðið. 

  Ég heyrði ekki hver var í viðtali í síðdegisútvarpi rásar 2 í dag.  Þetta var varðandi endurfundi skólafélaga í Vesturbænum eða eitthvað svoleiðis.  Viðmælandinn hafði dálæti á The Shadows.  Svo heyrði hann í fyrsta skipti lag með Bítlunum.  Þá varð sprenging í hausnum á honum og hann hugsaði:  "Hvað nú með The Shadows?".

  Margir fleiri,  þar á meðal ég,  muna glöggt er þeir heyrðu í Bítlunum í fyrsta skipti.  Það varð sprenging í hausnum á manni.  Mér yngra fólk mun aldrei skilja þessa upplifun.

  Liðsmenn Bítlanna og Rollinganna hafa ætíð síðan verið það rækilega til umfjöllunar í fjölmiðlum og enn í dag að maður hefur varla tekið eftir því er aldurinn færist yfir þá.  Mick Jagger,  söngvari The Rolling Stones verður sjötugur á næsta ári.  Í huga mér hafði hann ekkert breyst.  En svo fór ég að bera saman gamlar og nýjar myndir af honum.  Galgopalegur svipur unglings hefur vikið fyrir svip virðulegs eldri manns. 

  Einhverra hluta vegna fannst mér aftur á móti fyrir löngu síðan sem Keith Richards væri orðinn fullorðinslegur í framan.  Förum ekki út í þá sálma að sinni.

MickJagger1962 m j-bieber greiðslu

  Mick 1962.  Krakkar í dag halda að kanadíski viðbjóðurinn, Justin Bieber, hafi byrjað með þessa hárgreiðslu.

mick jagger ungur

  Svo síkkaði hárið örlítið.  Fór að ná yfir eyrun.

Mick+Jagger ungur 3

  Hárið hélt áfram að síkka og huldi eyrun.

Mick Jagger 1965

  1965 var hárið komið niður á herðar.

mick_jagger_1968

  1968 var hárið komið niður á bak.

mick jagger miðaldra

  Þar kom að hann fór að skipta hárinu í miðju.  Toppurinn var orðinn það síður.

Mick+Jagger á midjum aldriMick+Jagger+mick

  Hann fór að mála sig um augun og lita hárið svart til að skerpa á útlitinu.

Mick+Jagger+stg430

  Aðeins eldri, kominn með bláa augnskugga og hárið klippt í stílnum "sítt að aftan".  

  Svo eru það nýlegar myndir af kappanum.  Kyntáknið er hætt að nota andlitsfarða.  En litar áfram á sér hárið og augabrúnir.  Raggi Bjarna,  sem er nokkuð eldri,  er unglegri þegar betur er að gáð.

Raggi Bjarna

 Mick-Jaggermick-jagger-picture-1Mick_Jagger2Mick+Jagger eldri

  Mick Jagger er reggae-geggjari, eins og Keith glysbróðir hans.  Í gamla daga söng Mick með jamísku reggae-stjörnunni Peter Tosh (úr Bob Marley & The Wailers) og gaf út á plötu.  Að undanförnu hefur Mick gert út hljómsveitina Super Heavy með Damian Marley (syni Bobs).

  Svo var Peter Tosh myrtur.  Skömmu síðar sóttu blaðamenn bandaríska klámblaðsins Play Jamaica heim.  Þeir hittu gamla félaga Peters Tosh og spurðu hvort morðinginn hafi fundist.  Svarið var:  "já, við fundum þá og slátruðum þeim."  Blaðamennirnir hváðu og spurðu hvað löggan geri í svona dæmi.  Svarið:  "Löggan?  Þetta kom henni ekkert við.  það var enginn að bögga hana!"

  Til skýringar:  Dráp og morð eru algeng orð og tilvik á Jamaica.  Þar hafa verið framin allt upp í 600 morð á viku þegar verst lætur.  En, vel að merkja, sumar vikur eru engin morð framin á Jamaica.


Niðurdregnustu þunglyndissöngvarnir

  New Musical Express heitir vinsælasta breska poppmúsíktímaritið.  Þetta er vikublað sem selst bærilega víða um heim.  Þar á bæ dettur mönnum margt áhugavert í hug og leggja á borð skemmtilegar vangaveltur.  Nú hafa þeir tekið saman lista yfir niðurdregnustu þunglyndissöngvana.  Augljóslega koma einungis vel þekktir söngvar til greina.

  Nokkur sátt virðist ríkja um niðurstöðuna ef marka má athugasemdir á Fésbók.  Einhverjir sakna söngva á borð við  Mother  með John Lennon,  Strange Fruit  með Billie Holyday og einhverra úr herbúðum Radiohead.  Aðrir hlupu til og bentu á að textar Radiohead væru of þokukenndir til að eiga heima á listanum.

  Eins og með alla aðra svona lista er hér aðeins um léttan samkvæmisleik að ræða en ekki Salómonsdóm.

  Hvaða vinsæl íslensk lög ættu heima á svona lista?

1   Johnny Cash - Hurt

2   Joy Division - Love Will Tear Us Apart

3   The Smiths - This Night Have Opened My Eyes

4   Lou Reed - The Kids

5   Bruce Springsteen - The River


Veitingahússumsögn

 brunch

  -  Staður:  Skrúður,  Hótel Sögu

  -  Réttur: Bröns

  -  Verð:  2900 krónur

  -  Einkunn:  **** (af 5)

  Enska orðið  brunch  er samsláttur orðanna  breakfast (morgunverður) og  lunch (hádegismatur).  Hérlendis er fyrirbærið kallað  bröns  eða  dögurður  eða  dagverður.  Eins og með mörg fleiri útlend orð sem þýdd eru yfir á íslensku nær íslenska orðið ekki að festa sig í sessi ef það telur fleiri atkvæði en útlenda orðið.  Samanber að íslenska orðið sjálfrennireið náði aldrei að taka við af danska orðinu bíll.  Betur gengur með orð eins og tölva (í stað computer) og sími (í stað telephone). 

  Sumir halda því fram að bröns  sé bandarískt fyrirbæri.  Hið rétta er að þetta er breskt yfirstéttar fyrirbæri.  Einskonar þynnkumáltíð,  snædd á tímabilinu 10.30 til klukkan 14.00 um helgar.  Þá er hefðbundnum breskum morgunmat blandað saman við hádegismat.  Hefðbundni breski morgunmaturinn samanstendur af beikoni,  spældum eggjum,  pylsum,  bökuðum baunum,  ristuðu brauði,  áleggi (skinku,  osti,  marmelaði...), te, ávaxtasafa...  Í Skotlandi bætist blóðmör við.  Í Bandaríkjunum bætast lummur með sýrópi við.  Munurinn á morgunverði og hádegisverði felst í því að í hádegisverðinum er einnig heitt lambalæri eða rifjasteik, heit sósa og eftirréttur (desert).

  Bröns í Skrúði á Hótel Sögu er fjölþjóðlegt með sushi,  hrefnukjöti,  lummum,  graflaxi og fleiru.  Svo og lambalæri og eftirrétti.  Úrvalið er fjölbreytt og gott.  Mínusinn er að beikonið er ofsteikt (nánast svart og hart).  Annar mínus er að eftirréttirnir eru mismunandi eftir því hvenær að þeim kemur.  Stundum er gott úrval af allskonar tertum.  Stundum er aðeins nýbakað vínarbrauð.  Eða eitthvað annað "aðeins".  Engu að síður er  bröns  í Skrúði verðsins virði.  Þjónar eru stimamjúkir og hjálplegir.  Snöggir að fjarlægja notaða diska undan fyrri réttum og hnífapör.  Ásamt því að bjóða upp á kaffi eða te og ganga úr skugga um að allt sé eins og best verður á kosið.

 

Brunch-Supplies-From-Fresh-And-Easy1


Frábærir hljómleikar

 

  - Staðsetning:  Edrúhöllin,  Efstaleiti 7

  - Viðburður:  Kaffi, kökur, rokk & ról

  - Flytjendur:  Eivör og hljómsveitin 1860

  - Umsjón:  Arnar Eggert Thoroddsen

  - Einkunn:  ****1/2 (af 5)

  Tónleikaröðin  Kaffi, kökur, rokk & ról,  hefur staðið yfir í allan vetur.  Umsjónarmaðurinn,  Arnar Eggert Thoroddsen,  hefur verið einkar lunkinn við að stilla upp einkar áhugaverðri dagskrá.  Þetta er rosalega vel heppnað og flott dæmi.  Aðgöngumiðinn kostar aðeins 500 kall - hversu stór sem nöfn flytjenda eru.  Boðið er upp á kaffi og meðlæti.  Að þessu sinni var það Torfi Geirmundsson sem hellti upp á og bakaði kökur. 

  Venjulega eru tónleikarnir á þriðjudögum.  Núna hentaði fimmtudagur betur vegna þess að Eivör kom frá útlöndum í dag.

  Dagskráin hófst á því að Arnar Eggert sté á svið,  bauð gesti velkomna og kynnti flytjendur kvöldsins.  Hann lét þess jafnframt getið að hljómleikarnir hefjist á slaginu hálf níu og ljúki á slaginu klukkan 10.  Ekkert hringl með það.  Og við þetta var staðið.  Það er til fyrirmyndar.  Alltof oft hefjast hljómleikar á Íslandi ekki fyrr en heilum eða hálfum klukkutíma á eftir auglýstum tíma.  Stemmningin er settlegri en á hliðstæðum hljómleikum.  Allir eru edrú og sitja á stólum.  Nema hvað aðsókn var svo góð að sumir urðu að standa.  Edrú engu að síður. 

  Sextettinn 1860 flytur frumsamið léttrafmagnað þjóðlagaskotið popp.  Hljóðfæraleikur er fínn og raddanir setja svip á flutninginn,  ásamt mandólíni.   Í fyrra sendi 1860 frá sér plötuna  Söguna.  Einhver lög af henni fengu ágæta útvarpsspilun.  Einkum lagið  Snæfellsnes.  Enda ágætis lög,  hlý og notaleg. 

  Drengirnir eru heimilislegir á sviði.  Spjalla við áheyrendur og hvern annan á milli laga.  Það skapar góða stemmningu.

  Eivör kom beint úr flugi í Edrúhöllina.  Sjálf sagðist hún varla vera lent ennþá.  Engu að síður var hún í góðu formi.  Hóf leik með rafmagnsgítar,  skipti svo yfir í kassagítar um miðbik hljómleikanna og endaði með trommuslætti.  Hún flutti meðal annars ný lög af plötu sem hún hefur verið að hljóðrita í Færeyjum og kemur út í sumar.  Þau lög hljóma virkilega spennandi.  Það segir kannski eitthvað að fyrir þeim lögum var klappað ennþá ákafar og lengur en gamalkunnu lögunum.  En að sjálfsögðu var kvittað fyrir öll lögin með háværu klappi og flauti.

  Það þarf ekki að fara mörgum orðum um stórkostlegan söng Eivarar og túlkun.  Eða hennar skemmtilegu kynningar á milli laga.  Hún er besta söngkona heims.  Drengirnir í 1860 upplýstu áheyrendur um að áður en hljómleikarnir hófust fóru fram hljóðprufur.  Þeir sögðust hafa orðið dolfallnir af hrifningu er þeir hlýddu á Eivöru í hljóðprufunni.  Samt hafi hún ekki einu sinni verið að flytja neitt lag.  Hún hefur líkast til "aðeins" verið að spinna eitthvað.  1860-liðar sögðu það vera mikinn heiður að fá að spila á sömu hljómleikum og Eivör.

  Hrifningin var gagnkvæm.  Eivör lýsti 1860 sem æðislega flottri hljómsveit.

  Arnar Eggert kom með skemmtilega lýsingu á Eivöru.  Hann sagði að er hann heyrði fyrst í henni hafi hann fengið á tilfinninguna að hún hafi fundist 2ja ára nakin úti í skógi.  Þaðan hafi hún verið flutt yfir í mannheima og tónlistin síðan streymt frá henni eins og náttúruafl. 

  Það er eitthvað eins og mikið satt í þessu.  Færeyska álfadrottningin er óviðjafnanlegur náttúrutalent.


Varð til lífs að vera hægrisinnaður í framan

adrian

   Frá því 22. júlí í fyrra hefur hinn 16 ára gamli Adrian Pracon (ljósmynd fyrir ofan) undrast hvers vegna Anders Behring Breivik hætti við að myrða hann í Útey.  Margar nætur hefur Adrian legið andvaka og velt þessu fyrir sér.  Nú hefur Anders upplýst fyrir rétti í Ósló hvað varð Adrian til lífs:  Anders fannst Adrian vera með hægri sinnað andlit.  Hann sá sjálfan sig í andliti Adrians.  Anders segist vera með dæmigert hægri sinnað andlit.

Breivik

 


mbl.is „Maður sem skýtur á okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamálið með pönduna leyst snöfurlega

  Pandan er krúttlegt dýr.  Vandamálið er að hún er í útrýmingarhættu.  Kvendýrið er frjótt aðeins í röskan sólarhring á ári.  Eða eitthvað álíka.  Karldýrin kunna ekki almennilega á dæmið.  Þetta er vandamál í dýragörðum út um allan heim.

  Skosk kona er búin að leysa vandamálið að hluta.  Eða eiginlega á ská.  Henni hefur tekist að rækta kindur sem líta út eins og pandabirnir.  Auka kostur er að kindurnar eru sauðmeinlausar.

  pandapanda lambpanda lamb A


Útigrill eru lífshættuleg

  Þess eru fjölda mörg dæmi að fólk hafi fárveikst vegna kolsýrings frá útigrilli.  Í verstu tilfellum hefur þetta valdið dauða.  Þegar ég skrapp til Skotlands um daginn var fyrirferðamikil í breskum fjölmiðlum frétt af dauðsfalli 6 ára stúlku,  Isabelle Harris.  Hún var ásamt foreldrum sínum á tjaldstæði í New Forest í Hants.  Foreldrarnir grilluðu kjöt á litlu kolagrilli fyrir utan tjaldið.  Stelpan var inni í tjaldi.  Framhlið þess var opin upp á gátt. 

  Í meðfylgjandi frétt mbl.is var hins vegar einnota grill inni í tjaldi 14 ára stúlku sem lést um helgina.

  Í fréttum af dauðsfalli 6 ára stúlkunnar kom fram að í fyrra hafi nokkrir fullorðnir einstaklingar látist í tjaldi á Englandi af völdum eiturgufa frá kolagrillum.  Svo virðist sem tjöld loftræsist ekki nægilega vel.  Þess vegna er áríðandi að hafa kolagrill í góðri fjarlægð frá tjaldinu.

  Myndin sýnir tjaldið sem Isabelle var í og grillið fyrir utan.

Isabelle Harris   


mbl.is Fékk eitrun frá einnota grilli og lést
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prestur í sneiðum

prestur_i_snei_um.jpg

Pylsur

  Það er gaman að bera saman pylsumenningu á milli landa.  Kannski í og með vegna þess hvað íslenska pylsan þykir koma vel út úr þeim samanburði.  Útlendingar bera lof á hana.  Íslendingar búsettir erlendis láta vera sitt fyrsta verk er þeir heimsækja Ísland aftur að endurnýja kynni við íslensku pylsuna.  Þessa í brauði með hráum lauk,  steiktum,  sinnepi,  tómatsósu og remúlaði.

pylsa - íslensk

  Þjóðverjar eru æstir í pylsur.  Hvort sem mikið eða lítið stendur til fá þeir sér pylsur.  Á hátíðisdögum þar sem stórfjölskyldan hittist eru pylsur á borðum.  Á þessum sömu dögum og Íslendingar fá sér hangikjöt.  Svo sem á jóladag. 

  Í þýskum kjötborðum er gríðarlega mikið úrval af pylsum.

pylsur - wurstpylsur - wurst Apylsur - þýskarpylsur - þýskar wurstdetpylsur wurst C

  Á þýskum "bröns" eru að minnsta kosti 4 - 5 tegundir af pylsum.  Líka í pylsuvögnum.

pylsur - Wurst D

  Í þýskum stórborgum rölta pylsusalar um með sölustand á maganum.  Pylsurnar eru stórar.  Um það bil þriðjungi lengri en íslenskar pylsur og heldur digrari.  Brauðið er stutt og kubbslegt og frekar hart (þétt).  Pylsan stendur langt út fyrir brauðið.  Brauðið gegnir því aðal hlutverki að halda utan um pylsuna.  Á pylsuna er aðeins sett tómatsósa og sinnep.  Á veglegri pylsustöndum er einnig boðið upp á súrkál.

pylsa - Shot Wurstpylsa - Wurst Epylsa - wurst F

  Á veitingastöðum er boðið upp á pylsur með súrkáli og kartöflusalati.  Á sumum stöðum fylgir rauðkál,  steiktur laukur (ekki þessi harði,  þurri heldur nýsteiktur) og sitthvað fleira.

pylsa - berlin expresspylsa - german-hot-dog

  Þetta sést ekki skýrt á myndinni til vinstri.  Næst okkur er rauðkál.  Síðan er það steiktur laukur og lengst frá okkur er súrkálið.  Þjóðverjar elska súrkál.  Á myndinni til hægri er kartöflusalat næst okkur og pylsan þakin súrkáli.  Á þýskum "bröns" er stærsta skálin með súrkáli.  Á alþjóðavettvangi er rokkmúsík með þýskum sérkennum kölluð kraut (stytting á sauerkraut).

  Hamborgari á fortíð í þýsku hafnarborginni Hamborg.  Þar komust menn upp á lag með að borða kjötmeti án þess að leggja niður vinnu.  Þeir héldu tveimur brauðsneiðum utan um kjötið með annarri hendi en héldu áfram vinnu með hinni.  Þjóðverjar hafa stundum ennþá sama hátt á þegar þeir snæða pylsur.  Einskonar hamborgarapylsur.

pylsur - samlokapylsur wurst í hamborgarabrauði

  Grillspjótin í Þýskalandi bera vinsældum pylsunnar vitni.

pylsur - þýskt grillspjót


Merkustu rokkgítarleikararnir

  Blaðamenn næst söluhæsta bandaríska poppblaðsins,  Spin,  (Rolling Stone er söluhæst) hafa sett saman verulega áhugaverðan lista yfir merkustu (greatest) gítarleikara rokksögunnar.  Það sem gerir listann spennandi er að tæknilegur erfiður gítarleikur,  fingrafimi,  hraði og þess háttar telja ekki heldur nýsköpun, framsækni og áhrif á framvindu rokkgítarleiks.  Fyrir bragðið eru hvorki Robert Johnson né Eric Clapton á listanum. 

1 Lee Ranaldo ogThurston Moore (Sonic Youth)

  Indie-rokk síðasta aldarfjórðungs hljómaði allt öðru vísi án Sonic Youth.  Takið eftir sólókaflanum sem hefst frá og með mínútu 1.33.  Aftur á mínútu 2.44.  Þar er ekki loftfimleikum fyrir að fara að hætti klisjukallanna í bransanum.  Þess í stað látlaus, seyðandi og svalur gítarleikur.  Svo sem líka undir sungnu köflunum.

2 Kevin Shields (My Bloody Valentine)

  Lætur gítarinn hljóma eins og eitthvað allt annað.

3 John Fahey

  John heitinn Fahey fæddist 1930-og-eitthvað.  Hann hefur haft gríðarmikil áhrif á fjölda tónlistarmanna,  allt frá Will Oldham til Glenns Jones.

4 Kurt Cobain (Nirvana)

  Kurt var fjarri því tæknilega fær gítarleikari.  En gítarleikur hans túlkaði tilfinningar hans og persónuleika frábærlega vel.  Meira að segja hvernig hann hittir á súra nótu í þessu ofur einfalda lagi.

5 J Mascis (Dinasaur Jr.)

  Brúar bilið á milli Neils Youngs og Prince og Minor Threat.

6 Prince

7 Tom Verlaine ogRichard Lloyd (Television)

8 Johnny Ramone (Ramones)

9 Eddie Hazel (Funkadelic)

10 Jam Master Jay (Run-DMC)

11 Ron Asheton (The Stooges)

12 Andy Gill (Gang of Four)

  Andy Gill var fyrsta anti-gítarhetjan.  Hann var og er mjög flinkur gítarleikari.  Sem unglingur var hann þekktur (í kunningjahópnum í Leeds í Englandi) fyrir að spila eins og Jimi Hendrix.  Kunni hans gítarleika aftur á bak og áfram. Pönkbyltingin 1976/´77 kúventi viðhorfi Andys til rokktónlistar og gítarleiks.  Hann ákvað að spila eins ólíkt gítarhetjum hipparokksins og hægt væri.  Gítarsólóin afgreiddi hann í naumhyggju en fönkaði þar fyrir utan.  Gang of Four varð fyrirmynd ótal hljómsveita,  allt frá Red Hot Chili Peppers til Franz Ferdinand.  

13 The Edge (U2)

  Írski gítarleikarinn The Edge er stundum kallaður besti lélegi gítarleikari heims.  Klingjandi snyrtilegur naumhyggju gítarleikur hans er vörumerki U2.

14 Kerry King ogJeff Hanneman (Slayer)

15 Greg Ginn (Black Flag)


Íslensk tónlist vinsæl í Þýskalandi

 

  Það njóta fleiri íslenskir tónlistarmenn vinsælda í Þýskalandi en Q4U.  Og fleiri en Björk og Sigur Rós.  Afgreiðslumaður í plötubúð í Berlín tjáði mér á dögunum að íslensk tónlist hafi sterka og svala ímynd í huga Þjóðverja.  Hún þyki spennandi,  fersk,  fjölbreytt og í háum gæðaflokki.  Hann viðurkenndi fúslega að íslenskar plötur seljist vel í Þýskalandi.

  Þessi náungi var vel að sér um þær íslensku plötur sem fást í þýskum plötubúðum.

  Mér er minnisstætt þegar ég átti leið til Þýskalands fyrir 15 árum eða svo.  Þá tók ég bíl á leigu.  Svo skemmtilega vildi til að í honum var útvarp.  Fljótlega fann ég útvarpsstöð sem ég kunni þokkalega vel við.  Þar var spilað lag með Emilíönu Torríni.  Hún var ekki orðin þekkt utan Íslands á þeim tíma.  Skömmu síðar bárust aftur á móti fréttir af vinsældum hennar í Ítalíu.  Og í dag er Emilíana Torríni alveg bærilega vel þekkt nafn víða um heim.

  Fyrir 5 árum eða svo stökk ég inn á gólf í plötubúð í Berlín.  Þar hljómaði í hátölurum rokklag sem ég kannaðist við.  Hins vegar kom ég því ekki fyrir mér hvaða hljómsveit þetta væri.  Í vandræðum mínum bar ég undir afgreiðslumenn hvað þeir væru að spila.  Þeir upplýstu að það væri frábær íslensk hljómsveit,  I Adapt.  Fagurri lýsingu sinni fylgdu þeir eftir með því að sýna mér tvö þýsk rokkblöð sem fjölluðu um I Adapt. 

  Ég kann ekki þýsku en mér skildist á mönnunum að umfjöllun blaðanna væri mjög jákvæð.  Til að strákarnir í I Adapt myndu trúa frásögn minni af þessu náði ég að suða blöðin út úr afgreiðsludrengjunum.

  Þetta snilldar lag með I Adapt hefur verið spilað næstum 20 þúsund sinnum á Þútúppunni.

  Til gamans má skjóta inn í að fyrir 2 eða 3 árum endurtók sagan sig (reyndar dálítið öðru vísi) úti í Póllandi.  Frásögn mín af því leiddi í ljós að þar höfðu óprúttnir útgefendur þar í landi gefið út sjóræningjaútgáfu af plötu I Adapt.  Síðast þegar ég vissi var það mál komið í hendur lögfræðinga.  Ég veit ekki niðurstöðuna.

  Fyrir utan þau nöfn sem áður hafa verið nefnd fann ég núna í þýskum plötubúðum plötur með eftirtöldum:  Ólafi Arnalds (5 plötur),  Benna Hemm Hemm (2 plötur),  Jónsa (3 plötur),  Helga Hrafni Jónssyni (3 plötur),  Gus Gus (3 plötur),  Seabear (2 plötur) Sóleyju og Of Monsters and Men.   

  Þetta er gaman.  Þýski plötumarkaðurinn er sá stærsti í Evrópu.  Hann nær líka yfir til Austurríkis,  Sviss og víðar. 

  Plöturnar með Benna Hemm Hemm komu ekki verulega á óvart.  Fyrir nokkrum árum sá ég í þýsku blaði umsögn um hljómleika hans,  innan um umsagnir um (3 um í röð.  Það er flott) heimsþekkt nöfn.

   Á plötu Sóleyjar er límmiði þar sem vakin er athygli á að hún hafi verið í Seabear og Sin Fang.  Nafn Seabear er feitletrað (sem vísar til þess að Þjóðverjar þekki hljómsveitina).

  Á plötu með Emilíönu Torríni er límmiði með fullyrðingu um að platan innihaldi "#1 hit song Jungle Drum".  Getur verið að það glæsilega lag hafi náð 1. sæti þýska vinsældalistans?  Ég gleymdi að spyrja að því.  Ef það er tilfellið þá hafa íslenskir fjölmiðlar vanrækt að upplýsa það.

  Ég keypti mér lítið vasaútvarp í Berlín.  Svo skemmtilega vildi til að um leið og ég kveikti á því þá hljómaði  Little Talk  með Of Monsters and Men.

  Þetta ljúfa lag með Ólafi Arnalds hefur verið spilað yfir 1,3 milljón sinnum á Þútúpunni!  Þegar ég var í New York í fyrra voru hljómleikar með Ólafi auglýstir á þann hátt að hann var/er greinilega stórt nafn þar í borg.


Furðulegt samtal

  Ég átti erindi í banka.  Ég skokkaði léttfættur til gjaldkera (þegar röðin kom að mér, vel að merkja) og tók til máls.  Hátt,  skýrt og ákveðið:  Nú þarf ég að kaupa nokkrar evrur vegna þess að útlöndin kalla."

  Gjaldkerinn fletti upp í tölvunni sinni og svaraði afsakandi:  Þú ert þegar búinn að fara til útlanda í þessum mánuði.

  Vissulega kannaðist ég við það og játaði undanbragðalaust að hafa skroppið til Skotlands um páskana. 

  - Það má bara fara einu sinni í mánuði til útlanda,  upplýsti gjaldkerinn. 

  - Ha?

  - Þannig eru gjaldeyrislögin.  Þú mátt fara einu sinni í mánuði til útlanda.  Það er gjaldeyrisskortur í landinu.

  - Má ég fara 12 sinnum á ári til útlanda,  einu sinni í hverjum mánuði?  En ekki tvisvar á ári í einum og sama mánuði?

  - Það er rétt skilið.  Þannig eru lögin.

  - Ég er búinn að kaupa flugmiða og gistingu.  Ég get farið til útlanda og tekið þar út evrur í næsta hraðbanka.

  - Ja, þá ertu eiginlega að fara á svig við gjaldeyrishöftin.  Það er ekki gott. 

 


Fágætar bækur til sölu

  Ég hef verið beðinn um að láta sérlega bókaunnendur vita af nokkrum fágætum bókum úr dánarbúi Jóns Þorleifssonar,  rithöfundar og verkamanns.  Þessar bækur eru til sölu:

Sögur og sagnir úr BreiðafirðiBergsveinn Skúlason1950
Hlynir og hreggviðir, þættir úr Húnaþingi  1950
Á Hvalveiðastöðvum, minningar Magnúsar Gíslasonar 1949
Þjóðhættir og ævisögur frá 19 öldFinnur Jónsson á Kjörseyri1945
Úr byggðum Borgarfjarðar IIIKristleifur Þorsteinsson1960
Æskustöðvar  Jósef Björnsson frá Svarfhóli1954
Skriftamál uppgjafaprest,ritgerðirs  1962
Opinberar aðgerðir og atvinnulífið 1950-1970  1974
Þjóðlífsmyndir Gils Guðmundsson1949
Minningarbók, Þorvaldur Thoroddsen  1922
Fagrar heyrði ég raddirnar Einar Ól. Sveinsson1942
Frá hugsjónum til hermdarverkaGunnar Benediktsson1937
Það brýtur á boðum Gunnar Benediktsson1941
Íslenskar þjóðsögur III Einar Guðmundsson 
Íslensk endurreisn Vilhjámur Þ. Gíslason1923
Saga Natans Ketilssonar og Skáld RósuBrynjúlfur Jónsson1912
 

Bestu plötur allra tíma?

  Breska útvarpsstöðin Absolute Radio leitaði til hlustenda sinna um val á bestu plötum popp- og rokksögunnar.  Þeir brugðust vel við.  Niðurstaðan kemur kannski ekki mjög á óvart.  En litast pínulítið af músíklínu stöðvarinnar (lauflétt "háskólapopp";  Brit-popp, Coldplay, Keane, Kings of Leon, Muse...),  eins og við mátti búast.  Samt er útkoman ekki alveg út í hött.  Hlustendur hafa reynt að leita út fyrir "playlista" stöðvarinnar.  Svona smá.  Fyrst og fremst er þetta samt aðeins skemmtilegur samkvæmisleikur en ekki fullgildur dómur. 

  Þessar plötur verma efstu sæti:

1   Pink Floyd - Dark Side Of The Moon

2   Oasis - (What´s the Story) Morning Glory

3   U2 - The Joshua Tree

4   Keane - Hopes And Fears

5   The Stone Roses - Stone Roses

6   Led Zeppelin - Led Zeppelin IV

7   David Bowie - The Rise And Fall Of Ziggy Stardust

8   Queen - A Night At The Opera

9   The Beatles - Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band

10  Guns N´Roses - Appetite For Destructin

  Það segir nokkra sögu að plöturnar í 9 efstu sætunum eru breskar.  Útvarpsstöðin er, jú, bresk og töluvert á bresku línunni.

11  Meatloaf - Bat Out Of Hell

12  AC/DC - Back In Black

13  The Beatles - Abbey Road

14  Fleetwood Mac - Rumours

15  Nirvana - Nevermind

16  Radiohead - OK Computer

17  The Clash - London Calling

18  Depeche Mode - Violator

19  The Smiths - The Queen Is Dead

20  Oasis - Definitely


Stórfenglegt! Ótrúlega flott!

vatn + hótel

  Það getur verið gaman að dvelja í þessari kanadísku byggingu að vetri til,  svona upp á úrsýni og stemmningu að gera.  Hins vegar er varasamt að hafa börn í lausagöngu um nágrennið.  Að minnsta kosti ef þau eru á sleipum skóm og glannast. 

  Salerni er í risi á 5. hæð.  Í gegnum þunna glerplötu á gólfi baðherbergisins sér alla leið ofan í kjallara.  Stranglega er bannað að fjölmenna inn á gólf.  Sömuleiðis er betra að hafa vara á ef fólk er í mikilli yfirvigt.  Að auki er bannað að stökkva inn á gólf á skóm með pinnahæl úr járni.  Það er ekkert gaman að pompa niður í kjallara innan um glerbrot.

baðherbergi 


Ólöf Arnalds vinsæl í Skotlandi

  Ég veit ekki hvort að ég er heppinn eða óheppinn með það að hafa 0% áhuga á búðarrápi.  Sama hvort er hérlendis eða erlendis.  Á dögunum brá ég mér til Glasgow í Skotlandi.  Keypti þar ekki neitt nema nokkra geisladiska.  Á flugvellinum á leiðinni heim voru aðrir Íslendingar með þetta 3 - 4 stórar úttroðnar ferðatöskur eftir helgarinnkaup.  Það var broslegt að bera saman raðir fólks sem var að innrita sig hjá öðrum flugfélögum til annarra landa.  Í þeim röðum var fólk ýmist með eina litla ferðatösku eða bara handfarangur.

  Einu búðirnar sem ég heimsæki í útlöndum eru  plötubúðir.  Þar skoða ég hverja einustu plötu.  Í Skotlandi keypti ég um 20 diska.  Eitt af því sem mér þykir gaman að kanna í útlendum plötubúðum er hvað þar er á boðstólum af íslenskum plötum.  Ég fór í 3 plötubúðir í Glasgow.  Í einni þeirra var Brúsi frændi (Bruce Springsteen,  samanber Uncle Sam) tónlistarmaður mánaðarins.  Sérstakur rekki var undir allar hans plötur á tilboðsverði.  Alveg eins uppstilling var á plötum Bjarkar (og Sykurmolanna) en ekki með yfirskriftinni "Artist of the month". 

  Það er að vísu ekki eins gaman að skoða plötubúðir í dag eins og var fyrir 15 - 20 árum.  Núna er aðeins að finna í plötubúðum plötur með þekktum nöfnum.  Maður finnur ekki lengur í plötubúðum plötur með lítið þekktum nöfnum.

  Þeim mun meira gaman var að uppgötva að í skoskum plötubúðum er til sölu 5 laga diskur með Ólöfu Arnalds,  Ólöf Sings.  Ég spurði afgreiðslumann út í plötuna án þess að geta þjóðernis.  Hann svaraði:  "Hún er ekki mega hit og ekkert lík Björk þó að þær séu báðar frá Íslandi.  Ólöf er "folk". Þú getur tékkað á henni á allmusic.com og play.com.  Hún fær góða dóma."

  Ég fletti Ólöfu upp á allmusic.com og platan  Innundir skinni  fær þar 4 stjörnur (af 5).  En sú plata fæst ekki í plötubúðunum sem ég heimsótti.  Bara platan  Ólöf Sings.  Ég sló einnig upp play.com.  Þar fær platan  Við og við  5 stjörnur (af 5).  Sú plata er ekki heldur til sölu í skosku plötubúðunum.  En að  Ólöf Sings  sé til sölu í skosku plötunum staðfestir að Ólöf er nafn í Skotlandi.

  Plötur Sigur Rósar og Jónsa eru einnig til sölu í skoskum plötubúðum.   Þar með eru íslenskar plötur í skoskum plötubúðum upp taldar.


Flott og spennandi sýning

verk atla viðars 

  Í Sverrissal Hafnarborgar í Hafnarfirði stendur yfir sýningin  Skjaldarmerkið hennar Skjöldu.  Hún er hluti af listahátíðinni  List án landamæra.  Höfundur verkanna er fjöllistamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson frá Akureyri.  Auk þess að vera í myndlist hefur hann látið að sér kveða í tónlist, leiklist, á ritvelli og víðar.

  Atli Viðar hefur samið fjölda leikverka.  Allt frá einþáttungum til viðamikilla söngleikja.  Einnig fór hann með hlutverk í sjónvarpsþáttunum  Hæ Gosi  sem sýndir voru á Skjá 1 og eru núna til sýningar í færeyska sjónvarpinu.

  Atli Viðar var í rokkhljómsveitinni Fnyk frænda.  Eftir hana liggur tónlist (2 lög) í kvikmyndinni Ingaló (með Sólveigu Arnarsdóttur í aðalhlutverki).  Að auki hefur Atli Viðar sent frá sér fjölda laga og ljóða á sólósnældum.

  Í Morgunblaðinu hafa birst ótal greinar eftir Atla Viðar.  Margar þeirra fjalla um geðræn veikindi.  Þá eru ótaldar smásögur,  internetverk,  ljóðakver og ýmislegt fleira sem skreytir ferilsskrá Atla Viðars.

Atli Viðar Engilbertsson

  Sýningin í Hafnarborg er fjölbreytt og flott.  Mörg verkanna eru unnin úr og á bylgjupappa.  Það gefur þeim skemmtilegt yfirbragð.  Laðar fram tilfinningu fyrir léttleika og nýtni:  Að grípa til þess sem hendi er næst.  Önnur hráefni undirstrika þetta.  Til að mynda er eitt Íslandskort (af mörgum) þakið haframjöli.  Ofan á það eru límdar nokkrar rúsínur.  Band- og snærisspottar skreyta önnur verk.  Eitt er unnið úr gallabuxum.  Þetta eru skúlptúrar í bland við lágmyndir, málverk, litríka heklaða skó og sitthvað fleira. 

  Meðal skemmtilegra verka eru "styttur" af fjölskyldu unnar úr ómáluðum bylgjupappa.  Virkilega flott.  Einfalt en nostursamlega og vel gert. 

  Atli Viðar hefur næmt auga fyrir formum og litum.  Hann er hugmyndaríkur og djarfur en laus við "stæla".  Hann rembist ekki við að vera frumlegur til að vera frumlegur heldur er innblásinn af sköpunargleði og vinnur úr henni af yfirvegun og einlægni fyrir viðfangsefninu.

  Ég mæli með sýningu Atla Viðars í Hafnarborg.  Hún stendur til 29. apríl.   

  Kíkið á þessa síðu:


Minnismerki um dægurlagatexta

  Frægt tónlistarfólk vegur þungt í ferðamannaiðnaði heimsins.  Bæði beint og óbeint.  Aðdáendurnir sækja í æskuslóðir poppstjarnanna.  Þeir,  en einnig aðrir,  lesa viðtöl við poppstjörnurnar eða heyra viðtöl við þær í útvarpi og sjónvarpi.  Þar bera æskuslóðirnar iðulega á góma.  Og jafnan í jákvæðu samhengi.  Poppstjarnan hljómar eins og ferðamálaauglýsing.  Vekur upp löngun hjá þeim er á hlýðir að heimsækja staðinn.

  Þetta vita ferðamálayfirvöld víða og nýta sér.  Hafnarborgin Liverpool í Englandi er undirlögð einu og öðru sem tengist vanmetnustu hljómsveit rokksögunnar,  Bítlunum.  Meira að segja flugvöllurinn ber nafn forsprakkans og heitir John Lennon flugvöllur.  Flugvöllurinn í Varsjá í Póllandi og sitthvað fleira þar ber nafn Chopins.

  Á Karíbahafi gerir eyjan Jamaíka út á Bob Marley.  Þar ber m.a. heill garður nafn hans.  Í 13 þúsund manna smábænum Nomsus í Noregi er stór stytta af rokk- og vísnasöngvaranum Age Aleksandersen.  Í 3000 manna smábænum Okemah í Oklahóma er vatnsgeymir og fleira merkt vísnasöngvaranum Woody Guthrie.  Þannig mætti áfram telja.

  Víkur þá sögu að skoska 12 þúsund manna smábænum Galashiels.  Þar hafa yfirvöld nú samþykkt að láta reisa heilmikið minnismerki um sönglagið  Kayleigh  með hljómsveitinni Marillion.  Langur texti lagsins verður greyptur með stórum stöfum í merkið. 

  Ástæðan fyrir þessu uppátæki er sú að í textanum fjallar skoski söngvarinn Fiskur um gamla kærustu frá Galashiels.  Fiskur sagði henni fautalega upp á sínum tíma og afsakar það í textanum.  Hann rifjar upp ýmsa nafngreinda staði í Galashields.  Þar á meðal kirsuberjatré á Markaðstorginu.  Minnisvarðanum er einmitt ætluð staðsetning á Markaðstorginu.  Einhverjar gagnrýnisraddir eru uppi um það að kirsuberjatrén hafa verið fjarlægð af torginu til að minnisvarðinn njóti sín.

  Til marks um vinsældir lagsins má nefna að fyrir útgáfudag þess var nafnið Kayleigh ekki að finna á lista yfir 100 algengustu kvenmannsnöfn í Skotlandi.  Nokkrum árum síðar var það orðið eitt af 30 algengustu nöfnunum. 

  Fiskur hóf söngferil sinn í Galashilds.  Bærinn er honum kær.  Honum þykir vænt um söngtextann  Kayleigh  og að honum verði reistur þessi minnisvarði á Markaðstorginu.

  Kayleigh  er þekktasta lagið frá Marillion.  Það náði 2. sæti breska vinsældalistans og hefur öðlast langlífi.  Er til að mynda að finna á ótal safnplötum sem innihalda vinsælustu lög frá níunda áratugnum. 

Market Square í Galashiels A

  Markaðstorgið í Galashiels.  Þarna mun minnisvarðinn tróna og laða ferðamenn að bænum.

  Ég er ekkert fyrir minnisvarða og styttur.  Aftur á móti finnst mér upplagt að götur í Reykjavík verði kenndar við Björk,  Sykurmolana,  Mezzoforte,  Of Monsters and Men,  Mínus og fleiri.

  Í Mosó er upplagt að kenna götur við Sigur Rós,  Ólaf Arnalds og fleiri.  Í Bolungarvík skal kenna  götu við rokkkónginn Mugison. 

Okemah-StreetSignjla-logo


Bretar væla undan köldu brauðmeti

Pizza_Squarespizza-brauð 

  Bretar eru ótrúlegar væluskjóður.  Að minnsta kosti vantar ekkert upp á að volað sé undan öllu mögulegu og ómögulegu í breskum dagblöðum.  Ég man ekki hvort að þetta var svona á árum áður eða hvort að þetta er að ágerast.  Það er vælt undan stöðugum verðhækkunum,  vaxandi kostnaði við að reka heimili,  nýjum álögum,  nýjum boðum og bönnum og ég veit ekki hvað og hvað.

  Meðal nýrra laga sem Bretar væla undan er að óheimilt er að selja á góðu verði bjór,  létt vín og sterk vín.  Það má ekki verðleggja þessar veigar undir tilteknum upphæðum.

  Ennþá sárar er vælt undan 20% skatti sem verður settur á volgt og heitt brauðmeti í Bretlandi frá og með október.  Ekki aðeins vola Bretar undan verðhækkuninni sem skatturinn framkallar heldur einnig hverju þessi nýi skattur mun breyta. 

  Skatturinn leggst á brauðmeti sem er afgreitt heitar en stofuhita.  Þetta þýðir að bakarí verða að fjárfesta í hitamæli.  Pizzur,  vínarbrauð og ýmislegt annað brauð hefur til þessa verið afgreitt heitt eða vel volgt.  Til að komast hjá nýja skattinum þarf brauðið að standa í nokkrar mínútur þangað til það hefur kólnað undir stofuhita.  Verst er þetta með pizzurnar.  Þær koma 90 gráðu heitar út úr ofninum.  Það getur tekið pizzu 15-20 mínútur að kólna niður fyrir stofuhita. 

  Bakarar segja að útilokað sé að kæla brauðmetið undir kæliviftu eða einhverju slíku.  Það kæmi niður á bragðinu.  Brauðið verður að fá að kólna sjálft og hjálparlaust í stofuhita.

  Þá tekur við annað vandamál:  Allir vilja brauðmetið heitt eða vel volgt.  Einhverjir geta tekið strætó heim til sín og hitað það í eldavélarofninum.  Það tekur ekki nema kannski hálftíma ef stílað er upp á að strætisvagninn sé á réttum tíma. 

  Einn möguleikinn er sá að bakaríin komi sér upp auka aðstöðu í nágrenninu.  Þar þarf ekkert að vera annað en örbylgjuofnar.  Viðskiptavinirnir geta tekið brauðmetið þangað - eftir að það hefur kólnað niður fyrir stofuhita - og hitað að vild.  Verra er að pizza upphituð í örbylgjuofni verður lin og slepjuleg.  Best er að hita hana upp á steikarpönnu.  Kannski geta bakaríin líka komið eldavél fyrir í auka aðstöðu (við hliðina á örbylgjuofnum).  Í því tilfelli þurfa viðskipavinir að koma með steikarpönnur með sér að heiman.  Annars yrði þeim stolið.  Fastir viðskiptavinir geta hugsanlega fengið að geyma steikarpönnuna sína í bakaríinu.  Þá verður útbúið sérstakt geymsluherbergi í bakaríunum,  líkt og pósthólf á pósthúsi.  Hver viðskiptavinur fær merkt og númerað hólf undir steikarpönnuna sína.

  Einhver fleiri ráð ætla bakaríin að reyna að finna.  Það er einhugur um að spara viðskiptavininum verðhækkunina.  Staðan gæti orðið sú að skatturinn skili ríkissjóði engum tekjum þegar á reynir.  Það eina sem hann geri verður að valda viðskiptavinum bakaría óþægindum og tímafrekum leiðindum,  sem og bakaríunum.  Ásamt því að auka rekstrarkostnað bakaría.  Það er reisn yfir því.

pizzamanbunny-pizza


Páskar, Jesú og súkkulaðikanínur

  Ég skrapp til Skotlands yfir páska.  Var í góðu yfirlæti í Glasgow.  Fjarri tölvu og stimplaður út úr dægurþrasi á Íslandi.  Það er hressandi.  Hinsvegar hef ég þann hátt á að kaupa næstum öll dagblöð þar sem ég er staddur undir þessum kringumstæðum.  Þau kosta ekki mikið.  Bresk og skosk dagblöð kosta 30 - 45 cent (60 til 90 kall).  Það eru reyndar til örlítið dýrari dagblöð.  En ég læt sem ég sjái þau ekki.

  Hávær umræða um páskana var í breskum fjölmiðlum.  Skoðanakannanir leiddu í ljós að meiri hluti Breta skilgreinir páskana sem heiðna hátíð.  Frjósemishátíð og afmæli páskakanínunnar.  Þessu til samræmis eru tákn páskanna frjósemistákn á borð við egg,  (sígraðar) kanínur,  hænsnaungar og súkkulaði (sem leysir í heila boðefni greddu).

  Á ensku eru páskar kenndir við frjósemisgyðjuna Easter (Oester).  Páskar eru einnig kenndir við að gyðingar losnuðu undan ánauð í Egiptalandi eða eitthvað svoleiðis fyrir margt löngu. 

  Kristna kirkjan tekur þátt í páskahátíð heiðingja og gyðinga. Frjósemistáknin - kanínur,  egg og súkkulaði - koma þar ekki beinlínis við sögu.  Engum sögum fer af Jesú maulandi súkkulaðikanínur eða páskaegg.  En bara gaman að hafa hann með í pakkanum.  Kannski var það hann sem fann upp á því að líma hænsnaunga á páskaeggin? Og gott ef hann samdi ekki málshætti þegar vel lá á honum.

páskaegg-1


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband