Ekki missa af! Færeyskt góðgæti í boði í örfáa daga

færeyskur matardiskurfæreyskar brauðsneiðarkjötsúpa  

  Núna eru færeyskir dagar í Smurbrauðsstofu Sylvíu,  Laugavegi 170 (við gatnamótin fyrir ofan Nóatún í Nóatúni).  Þeir vara til klukkan fjögur á laugardaginn.  Þar er boðið upp á ræstkjötssúpu (rast kjöt).  Einnig bakka með fjórum girnilegum smurbrauðssneiðum.  Á einni er skerpukjöt (skerpikjöt).  Á annarri er færeysk rúllupylsa.  Á þeirri þriðju eru niðursneiddir knettir.  Á þeirri fjórðu eru niðursneiddar fríkadellur.

  Ræst kjöt og skerpukjöt eru hvorutveggja þurrkað lambakjöt.  Ræstkjötið er hryggur og frampartur og hangir skemur uppi.  Það er á stigi svipuðu því sem við köllum siginn fisk.  Skerpukjötið er læri og hangir lengur uppi en er ekki jafn þurrt og harðfiskur.  Það bragðast eitthvað í humátt að parmaskinku.  Bæði skerpukjötið og ræstkjötið eru bragðsterk og gefa endingargott eftirbragð.  

  Það er algengt að Íslendingum þyki þetta ekki góður matur þegar það er smakkað í fyrsta skipti.  Eftir að hafa smakkað það oftar vex sterk löngun í að komast sem allra fyrst í svona kjöt oftar.  Þetta er svipað og löngunin í kæstan hákarl,  kæsta skötu og hangikjöt.  Eitthvað sem maður verður að fá sér í það minnsta árlega.  Helst miklu oftar.

  Ræstkjötssúpunni svipar mjög til íslensku kjötsúpunnar.  Þetta er matmikil grænmetissúpa með rófum,  gulrótum,  lauk,  hrísgrjónum og þess háttar.  Hlutfall ræstkjötsins er heldur minna en kjötið í íslensku kjötsúpunni.  Enda gefur ræstkjötið mun skarpara bragð.  Í Færeyjum er algengt að ræstkjötið sé fjarlægt úr súpunni og borðað sér með soðnum kartöflum.  Í Smurbrauðsstofu Sylvíu er kjötið í súpunni.  500 krónur fyrir súpuna á Smurbrauðsstofu Sylvíu er gott verð og auðveldar óvönum að smakka.  Innifalið í verðinu er ábót ef einhver er rosalega svangur.  Ég hef aldrei þurft á því að halda.  Súpan er saðsöm og ein besta ræstkjötssúpa sem ég hef fengið.  Alveg súper.  5 stjörnu súpa.

  Smurðu heimilisbrauði er ekki ætlað að vera eiginlegur veislumatur sem keppir við alvöru "danskt smurbrauð".  Brauðbakkinn gefur góða hugmynd um hefðbundið smurt brauð á færeyskum heimilum.  Þó er skerpukjöt meira til spari í Færeyjum en snætt hvunndags. 

  Færeyska rúllupylsan er keimlík þeirri íslensku.  Sú færeyska er mildari og hlutfall kjöts meira á móti fitu.  Það er töluvert af lauk í henni og smávegis af púðursykri. 

  Knettir eru soðnar fiskbollur.  Uppistöðu hráefnið í knöttum er þorskur og kindamör.  Saman við það er blandað lauki, salti og pipar.  Sumir hafa örlítið af sykri með.  Færeysku knettirnir eru blessunarlega lausir við hveitibragð íslensku fiskbollanna.  Fyrir bragðið (í bókstaflegri merkingu) eru knettirnir eins og ferskari.  Að öðru leyti er bragðið líkt.

  Fríkadellur eru steiktar fiskbollur.  Að öðru leyti eru þær alveg eins og knettir.

  Þannig er frá brauðbökkunum í Smurbrauðsstofu Sylvíu gengið að hægt er að grípa þá með sér heim.  Það er upplagt að gera.  Meðal annars til að gefa öðrum að smakka með sér.  Og þess vegna að grípa með sér nokkra bakka til að eiga daginn eftir.  Jafnvel marga bakka til að eiga í marga daga.  Bakkinn kostar aðeins 1000 kall.

  Það er bráðskemmtilegt og bragðgott ævintýri að gera sér og sínum dagamun með því að smakka þessar færeysku kræsingar.   

færeyskt sjálftökuborð


Nauðsynlegt að vita

flóðhestur

  Meðal allra skemmtilegustu hesta eru flóðhestar.  Þetta eru vinarlegar skepnur;  sterklegar og stæðilegar.  Oftast eru þær rólegar og lausar við æsing og fíflagang.  Stundum geispa flóðhestar.  Mörgum hættir til að tengja það við syfju og hugsa:  "Blessuð skepnan.  Núna langar hana að fara að lúlla."

  Þetta er alröng ályktun.  Þegar flóðhestur geispar þá þýðir það að farið sé að fjúka í hann.  Hann sé orðinn reiður og árásargjarn.  Þá er betra að forða sér.  Annars getur illa farið. 

flóðhestur-ræðst-á-mann


Er Hussein Anti-Kristur?

  Ég hlustaði á spjall Egils Helgasonar við Noam Chomsky í Silfri Egils í sjónvarpinu í dag.  Það var áhugavert.  Þeir komu lítillega inn á þá merku staðreynd að fjórðungur bandarískra lýðveldissinna (republicana) telur fullvíst að forseti Bandaríkja Norður-Ameríku,  Barack Hussein Obama II, sé Anti-Kristur.  Með öðrum orðum að hann sé fulltrúi djöfulsins,  þess illgjarna og vonda skratta sem frá greinir skilmerkilega í mörg þúsund ára gömlum þjóðsögum gyðinga í Mið-Austurlöndum.  Anti-Kristur hefur eitthvað meiriháttar hlutverk í því að ferli að uppvakningurinn Jesú Kristur mæti enn einu sinni til jarðar og nú á okkar dögum heilögum. 

  Lýðveldissinnar eru um það bil helmingur Bandaríkjamanna.  Þannig að 25% þeirra er fjölmennur hópur.  Kannski hátt í 40 milljónir.  Getur verið að allur þessi fjöldi hafi rangt fyrir sér?  Það væri saga til næsta bæjar.  Þetta skiptir okkur jarðarbúa máli.  Bandaríkin eru í forystu í heiminum um þessar mundir. 

  Til gamans má geta að systir kallsins með húfuna,  Petes Seegers,  var kona Ewans McColls.  Dóttir hans sló í gegn á sínum tíma með lagi eftir Billy Bragg,  A New England:    

  Svo var henni drekkt - líkast til óviljandi - af auðmanni á spíttbáti úti fyrir Mexikó.  Áður sló breska leikkonan Tracy Ulaman í geng með lagi hennar  They Don´t Know.


mbl.is Turnarnir féllu „þægilega“ niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jack White, Depeche Mode og Patti Smith kráka U2

  Írska hljómsveitin U2 er sennilega stærsta rokkdæmið í heiminum nú til fjölda ára.  Ég kunni vel við músík U2 framan af ferli hljómsveitarinnar.  Það var gaman að vera í Bandaríkjunum vorið 1997 þegar hljómsveitin sló þar í gegn svo um munaði.  Lögin  With Or Without You  og  I Still Havn´t Found What I´m Looking For  náðu 1. sæti bandaríska vinsældalistans.  Og einnig platan  The Joshua Tree.  Áður höfðu hvorki lög né plötur U2 náð inn á Topp 10 í Bandaríkjunum.  Í Evrópu var hljómsveitin þaulvön toppsætinu á vinsældalistum.

  Ofurvinsældir Íranna í Bandaríkjunum vöktu mikla athygli.  Þarlendir fjölmiðlar voru undirlagðir umfjöllun um hljómsveitina.  Þar fór músíksjónvarpað MTV fremst í flokki og það var varla hægt að stilla á þá stöð án þess að verið væri að spila U2. 

  Svo skemmtilega vildi til að þegar ég flaug til Bandaríkjanna var í flugvélinni bandaríska fréttablaðið Time.  Þar var góð og mikil grein um U2.  Ég keypti eintak af blaðinu þegar lent var í Bandaríkjunum.  Þá uppgötvaði ég að bandarísk útgáfa af Time er frábrugðin þeirri sem seld er í Evrópu.  Greinin í bandaríska Time var allt öðru vísi en greinin sem ég las í flugvélinni.

  Ég var í hálfan annan mánuð að þessu sinni í Bandaríkjunum og allan tímann tröllreið U2 þarlendum útvarpsstöðvum,  sjónvarpsstöðvum og prentmiðlum.  Það þótti saga til næsta bæjar að írsk hljómsveit væri það heitasta á markaðnum. 

  Einhversstaðar á þessum tímapunkti - eða skömmu síðar - fjarlægðust U2 minn pönkaða anti-popp músíksmekk.  Við höfum ekki átt nána samleið síðan. 

  Núna hafa nokkrar frægar poppstjörnur tekið sig til og eru að senda frá sér plötu þar sem þeir kráka lögin af plötu U2  Acthung Baby.  Þeirra á meðal eru bandaríski gítarleikarinn og söngvarinn Jack White (The White Stripes),  bandaríska "pönk" drottningin Patti Smith,  enska tölvupoppssveitin Depeche Mode og írski popparinn Damien Rice. 

  Bono lýsti Patti Smith eitt sinn í ræðu við afhendingu tónlistarverðlauna sem móðir sinni,  elskhuga og ég man ekki hvað.  Patti brást hin versta við og frábað sér þátttöku í hans "dirty works".  Þau eru engu að síðir góðir vinir.  U2 skoraði í 6. sæti breska vinsældalistans með lagi Pattíar,  Dancing Barefood.  Bono sagði viðbrögð Pattíar við ummælum sínum vera "ekta Patti Smith".  Hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með hana ef hún hefði brugðist öðru vísi við.

 


Beikon sem syngur

crispy_bacon

  Það er alveg merkilegt hvað Íslendingum gengur illa að læra að matreiða almennilegt beikon,  eða steikja svínaflesk eins og það er kallað.  Samt er það svo einfalt og þægilegt.  Það eina sem til þarf er sýróp.  Já,  og beikon reyndar líka.  Það hjálpar.  Sýrópinu er penslað snyrtilega á sitt hvora hlið beikonsneiðarinnar.  Ef steikja á meira en eina beikonsneið er upplagt að pensla þær allar með sýrópi.  Þá syngja þær.

  Með beikoninu er gott að hafa spæld egg.  Hrásalat passar einnig vel.  En mestu skiptir tvær rauðvínsflöskur á mann. 


Gleðifrétt fyrir kynlífssvelta

  Nýverið dæmdi franskur dómstóll mann nokkurn til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni skaðabætur fyrir að hafa vanrækt hjónabandsskylduna við hana.  Sigurð Þórðarson,  forstjóra Eðalvara ehf.,  grunar að vandamálið sé ekki bundið við Frakka.  Það sé jafnvel til staðar hérlendis.  Þess vegna hefur hann snúið sér til lögmannsstofunnar Lagarök,  Síðumúla 27,  til að annast lögfræðiumsýslu fyrir fyrstu 3 sem fara fram á bætur frá maka sínum vegna ónógs kynlífs.

  Ef velja þarf úr fjölmennum hópi umsækjenda munu þeir njóta forgangs sem geta staðið við það að makinn hafi ekki leitað bót meina sinna með því að neyta Rauðs Eðal Ginsengs.  Um þetta má lesa nánar með því að smella á þennan hlekk:

http://www.facebook.com/notes/sigur%C3%B0ur-%C3%BE%C3%B3r%C3%B0arson/refsiver%C3%B0ur-kynl%C3%ADfsskortur/230032853715835


Ekki henda gömlu hurðinni!

  Íslendingar eru alltaf að endurnýja hurðir.  Það má varla halda fermingarveislu í heimahúsi eða afmælisveislu öðru vísi en skipta um hurð í íbúðinni.  Sem er hið besta mál.  Verra er að iðulega er gömlu hurðinni hent á haugana.  Það er hið versta mál.  Gömlu hurðina á að nýta sem sófaborð eða stofuborð.  Það eina sem til þarf er að fjarlægja hurðarhún og setja löpp eða lappir undir gömlu hurðina.  Hér er vel heppnað dæmi:

hurð - borðhurð...

  Þessi hurð á myndinni fyrir ofan yrði glæsilegt stofuborð.  Hurðin á myndinni hér fyrir neðan er aftur á móti ekki heppileg til framhaldslífs sem stofuborð. 

hurð..

 


Hrópandi kynslóðabil

grænn hlunkur

  Ég skrapp í verslunarmiðstöðina við Krossmóa í Keflavík í dag.  Fyrir framan Nettó var sendibíll merktur grænum frostpinna,  svokölluðum Hlunki,  í bak og fyrir.  Bíllinn var mannlaus.  Hliðardyrnar voru upp á gátt.  Þar fyrir innan var frystikista með grænum frostpinnum.  Tveir drengir - á að giska 10 ára - tóku hvor um sig væna hrúgu af frostpinnunum.  Þeir fóru með frostpinnana út á bílaplanið.  Þar grýttu þeir pinnunum í allar áttir. 

  Ég veit ekki hver tilgangurinn var.  Drengirnir reyndu ekki að hitta neitt skotmark og köstuðu ekki af fullum krafti.  Svo fóru þeir á reiðhjólum í burtu. 

  Rétt í þann mund kom háöldruð kona gangandi.  Hún kom auga á nokkra frostpinna á bílaplaninu.  Hún tók þá upp og skoðaði í krók og kring.  Þeir voru í glæru plasti og virtust vera heillegir.  Eftir smá umhugsun stakk konan þeim í vasann og fór inn í búð.

  Háaldraður maður kom út úr búðinni og gekk yfir bílaplanið.  Hann rak augu í nokkra frostpinna.  Viðbrögð hans voru þau sömu og konunnar.  Svo fann hann bílinn sinn og ók burt með vasana úttroðna af grænum frostpinnum. 

  Í sama mund bar að aðra gamla konu.  Hún bar sig að alveg eins þau hin.  Þar með voru sennilega ekki lengur margir grænir frostpinnar á bílaplaninu. 

  Þarna kristallaðist kynslóðabil á krúttlegan hátt.  Krakkaskammirnar sáu ekki verðmæti í grænum frostpinnum.  En þeir náðu að gera sér skemmtun úr þeim.  Lítið er ungbarns gaman. 

  Gamalt fólk borðar ekki græna frostpinna.  En það getur ekki hugsað sér að láta þá liggja án hirðis á bílaplani.    


Illa gölluð verðkönnun ASÍ

  Síðasta verðlagskönnun ASÍ hefur vakið mikla athygli.  Einkum vegna þess að hún leiddi í ljós að Bónus er ekki lengur með ódýrustu (eða minnst dýru) matarkörfuna.  Matarkarfan í Krónunni reyndist vera ódýrust og Víðir á svipuðu róli og Bónus.  Talsmenn Bónus eru ekki par sáttir.  Vísa til þess að þar fáist bananar á 198 krónur í stað þess að í matarkörfu Bónus lentu bananar á 247 krónur (eða eitthvað svoleiðis).  Jafnframt að í matarkörfu Bónus var hreint kjöthakk lagt að jöfnu við kjöthakk drýgt með soyakjöti í öðrum verslunum.

  Þessi dæmi sýna að verðkönnun ASÍ er meingölluð.  Það er algjörlega ófært að bera saman verð á ósambærilegum vörum.  Til að svona verðkönnun gefi rétta mynd af verðmun á milli verslana verður að vera um samskonar vöru að ræða.  Annað er út í hött.  

  Heimfærum þetta upp á bíla.  Ein bílasala selur BMW.  Önnur selur Skoda.  Sú síðarnefnda selur ódýrari bíl.  En þetta eru ekki eins bílar.

  Bónus selur vissulega banana á 198 kr.  kílóið.  Það eru svartblettaðir linir bananar á síðasta snúningi.  Kannski nothæfir í bakstur með því að skera burtu svörtustu blettina.  En á engan hátt samanburðarhæfir við grænleita og stinna ferska banana.  

  Það getur ekki verið meira mál fyrir ASÍ að bera saman verð á samskonar vörum,  sömu vörumerkjum,  sömu gæði,  heldur en að bera saman verð á vörum í mismunandi gæðum frá mismunandi framleiðendum.  

  Á meðan þessi afleitu vinnubrögð ASÍ eru stunduð eru verðkannanir þess aðeins vísbending um raunverulegan verðmun á milli verslana en ekki marktækar að öðru leyti.  Engu að síður er athyglisvert að ekki sé lengur á vísan að róa með að Bónus sé ódýrasta matvöruverslunin.  Sú var tíð að Bónus var verulega ódýrari en aðrar verslanir.  Hvað veldur breytingunni?  

banani.jpgbananar.jpg


Verstu popparar sögunnar

  Breska poppblaðið New Musical Express fékk á dögunum lesendur sína til að kjósa verstu poppara sögunnar.  Það gerðu þeir með því að gefa poppurunum einkunn.  Því hærri sem talan er þeim mun ómerkilegri þykir popparinn.  Meðalskor "sigurvegaranna" er fyrir neðan nafn þeirra.  Þetta er hinn áhugaverðasti listi.  Ritstjórn New Musical Express setti einnig saman sinn lista.  Þar hafnaði Justin Bieber í toppsætinu.

   Hverjir kæmu helst til greina á svona lista yfir íslenska poppara?

Paris Hilton

1. Paris Hilton

Skor: 8.21

Fast Food Rockers

2. Fast Food Rockers

Skor: 7.94

Rebecca Black

3. Rebecca Black

Skor: 7.93

Scooch

4. Scooch

Skor: 7.86

Cheeky Girls

5. Cheeky Girls

Skor: 7.83

Peter Andre

6. Peter Andre

Skor: 7.75

Jedward

7. Jedward

Skor: 7.74

Victoria Beckham

8. Victoria Beckham

Skor: 7.72

A1

9. A1

Skor: 7.69

N-Dubz

10. N-Dubz

Skor: 7.68

One True Voice

11. One True Voice

Skor: 7.65

Daphne And Celeste

12. Daphne And Celeste

Skor: 7.62

Another Level

13. Another Level

Skor: 7.51

Vanilla

14. Vanilla

Skor: 7.51

Westlife

15. Westlife

Skor: 7.46

Hearsay

16. Hearsay

Skor: 7.40

Steps

17. Steps

Skor: 7.39

Vengaboys

18. Vengaboys

Skor: 7.33

Ashlee Simpson

19. Ashlee Simpson

Skor: 7.31

Blue

20. Blue

Skor:  7,28


Hasskakan og Fitjagrill týnd og horfin

hasskökur 

  Ég átti erindi til Keflavíkur í kvöld.  Á leið þangað ætlaði ég að koma við í Fitjagrilli.  Mig minnir að matsölustaðurinn hafi heitið það.  Hann var staðsettur í sama húsi og bensínstöðin við hlið Bónus í Njarðvíkum.  Á gatnamótunum þar sem beygt er af Reykjanesbrautinni til Keflavíkur.  Þar greip ég í tómt.  Húsnæðið læst og inn um glugga mátti sjá að Fitjagrill er horfið.

  Fyrir nokkrum árum átti ég dögum saman erindi til Keflavíkur um tíma.  Ég vandi mig á að koma við í Fitjagrilli og fá mér þar beikon og egg með kartöflukökum sem kallast á ensku hash brown.  Sama konan afgreiddi mig alltaf.  Til að byrja með pantaði ég þetta með því að biðja um beikon og hasskökur.  Fljótlega lærði konan inn á þetta.  Þegar ég birtist spurði hún:  "Beikon og hasskökur?"  

  Eitt sinn er ég mætti sagði konan hinsvegar:  "Þú ert nú meiri kallinn.  Það er þér að kenna að ég gerði mig að fífli í gær."

  Hún útskýrði það þannig:  "Þegar þú varst nýfarinn héðan komu nokkrir útlendingar.  Þeir pöntuðu egg og beikon.  Það var erill og ég með pöntun þína í huga.  Þegar þeir báðu um egg og beikon spurði ég í hugsunarleysi hvort þeir vildu hasskökur með þessu.  Það datt af þeim andlitið og þeir urðu skrítnir á svipinn.  Ég fattaði þetta ekki strax en þegar ég sá hvað þeir urðu vandræðalegir áttaði ég mig loks á því að þú varst búinn að rugla mig í ríminu með því að kalla þetta hasskökur.   Ég bara stamaði og hikstaði og reyndi að útskýra fyrir þeim að við værum með hashbrowns.  Þeir virtust ekki alveg kaupa mínar útskýringar.  Þeir horfðu á mig grunsemdaraugum allan tímann sem þeir voru hérna inni."


Hvar er best að geyma fæðubótaefni, vítamín og lyf?

  Samkvæmt rannsóknum í Bandaríkjum Norður-Ameríku geyma flestir sin lyf,  vítamín og önnur fæðubótaefni (ginseng,  Omega 3 og þess háttar) annars vegar í ískápnum eða hins vegar í skáp inni á baðherberginu.  Ætla má að þetta eigi einnig við um Íslendinga.  Gallinn er sá að þetta eru ekki bestir staðir fyrir þessi fyrirbæri.  Ísskápurinn hefur þann ókost að stöðugt er verið að opna hann og raska jafnvægi í kælingu.  Baðherbergið hefur þann ókost að þar myndast raki þegar fólk fer í sturtu eða bað og hitastigið hleypur til og frá.

  Flest lyf og fæðubótaefni tapa virkni sinni undir þessum kringumstæðum.  Best er að geyma þetta dót inni í fataskáp og rökkri svefnherbergisins.  Þar er rakastig og hitastig jafnara en á hinum geymslustöðunum.  Virkni efnanna heldur sér mun betur.   


Máttur bænarinnar

  Ég sá áðan út undan mér heimildarmynd í sjónvarpinu um flótta nokkurra fanga úr fangelsi í Texas.  Þetta voru harðsvíraðir glæpamenn sem sátu inni fyrir morð og alls konar hrottaskap,  eins og gerist og gengur þarna um slóðir.  Þeir skipulögðu og undirbjuggu flóttann af mikilli útsjónasemi.  Það sem mestu máli skipti var að kvöldið áður en þeir létu til skarar skríða þá komu þeir saman,  spenntu greipar og báðu heitt og innilega til Drottins um að flóttinn úr fangelsinu myndi takast.  

  Það var eins og við manninn mælt:  Þeim tókst léttilega að yfirbuga,  lemja,  afklæða og binda nokkra fangaverði.  Flóttamennirnir fóru í föt fangavarðanna,  komust yfir byssur og bíl.  Því næst náðu þeir að plata aðra fangaverði til að opna hliðið á fangelsisgirðingunni og hleypa sér út í frelsið.

  Það var eitthvað sætt og krúttlegt við þetta.   

krikja_1107187.jpg


Það er auðvelt að komast hjá skaðlegum afleiðingum sígarettureykinga

  Í tímaritinu "Cancer" er upplýst að langtíma rannsókn leiði í ljós að fyrsta sígarettan á morgnana sé sú hættulegasta og óhollusta.  Rannsóknin náði til yfir 7000 einstaklinga.  Fyrsta sígarettan tvöfaldar líkur á krabbameini.  Það er ekkert smá.  Sígarettur eru ekki heilsusamlegar.  Ráðið gegn þessu er að sleppa fyrstu sígarettunni.  Leyfa henni að reykja sig sjálfa í öskubakkanum og reykja bara næstu sígarettu. 

Eitt lítið epli í Bónus á 400 kall

  Í dag átti ég erindi í Bónus í Skeifunni.  Þar keypti ég 3 appelsínur,  þrjá banana og eitt epli sem ég varð skotinn í.  Ég tók ekkert eftir verðinu á þessum ávöxtum.  Var eins og uppvakningur (Zombie eða Jesú eftir krossfestingu).  Heim kominn fór ég að skoða kassakvittunina.  Þá sá ég að þetta litla epli sem ég keypti kostaði 400 kall.  Það var dýrara en appelsínurnar og bananrnir sem ég keypti.  Eplið virðist hafa vigtað töluvert umfram raunþyngd þess. 

  Ég sá í hendi mér að erfitt yrði að færa sönnur á að mitt litla epli hefði aðeins verið eitt og mun léttar en kassakvittun mældi.  Þannig að ég lét gott heita.  Snæddi litla eplið og þótti það næstum 400 króna virði.  En þessi afgreiðsla á eplinu gefur fulla ástæðu til þess að fólk gæti að kassakvittun strax við kassa í Bónus í Skeifunni. 

 


Íslensk terta

íslensk terta

  Á færeyskri netsíðu rakst ég á bráðskemmtilega uppskrift að íslenskri tertu.  Hún er kannski áhugavert innlegg í umræðu um "íslenska kúrinn" hans Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,  eiganda 600 milljón króna.  Uppskriftin er þannig:  Tekinn er tertudiskur ofan úr skáp.  Á hann er lögð há skál á hvolf.  Hún þarf að vera örlítið minni en diskurinn.  Utan á skálina er raðað súkkulaðikexi sem heitir Kit-Kat.  Það er að vísu útlent (að ég held).  En mestu máli skiptir að utan um kexið sé hnýttur borði í íslenskum fánalitum. 

  Skálinni er varlega lyft upp og í hennar stað hellt M&M súkkulaðikúlum.  Þær eru reyndar líka útlenskar (að ég held).  Þegar kúlurnar hafa fyllt upp í rýmið eftir skálina er tertan tilbúin.  Kannski má nota súrsaða hrútspunga í staðinn fyrir M&M kúlurnar?  Að minnsta kosti á virkum dögum.  En M&M kúlurnar á laugardögum (nammideginum). 

.  


mbl.is Glæpsamlegur kleinuhringur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjólk er rosalega fitandi

Mjólk

  Samkvæmt danska netmiðlinum Information er mjólk rosalega fitandi.  Ég hef áhyggjur af þessu.  Það er að segja fyrir hönd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem er að eigin sögn kominn á "íslenska kúrinn".  Information vitnar til þriggja virtra og nafngreindra sérfræðinga sem eru á einu máli um þetta.  Þetta er hrikalegt.

  Kúamjólk er sneisafull af vaxtahormónum.  Hlutverk þeirra er að láta kálfa ná örum vexti.  Kálfarnir snúa sér hinsvegar að grasafæði er þeir stálpast.  Samt eru þeir nautheimskir.  Enda taka þeir ekki meðvitaða ákvörðun um breytt mataræði heldur er það eðlishvöt sem ræður för.  Það sama á við um önnur dýr.  Það er aðeins ungviðið sem sækir í mjólk.  

  Manneskjan er undantekning.  Hún þambar mjólk fram eftir öllum aldri.  Jafnvel af áfergju.  Og hellir mjólk út á morgunkornið sitt,  út í múslimadjúsinn sinn (kaffi),  út á hafragrautinn og hvað sem fyrir er.  

  Eftir að manneskjan nær á efri unglingsárum tiltekinni hæð getur hún aðeins vaxið á þverveginn.  Það gerist þegar mjólkur er neytt.  Mjólkin á að stórum hluta sök á vaxandi þyngd vesturlandabúa.  Líka framsóknarmanna.  

  Þetta vaxtahormón heitir IGF-1.  Bölvaður óþverri fyrir fullorðið fólk.  Sérstaklega þurfa íslenskir ferðamenn til Bandaríkja Norður-Ameríku að forðast mjólkina.  Þar er vaxtahormónum dælt í nautgripi með þeim afleiðingum að IGF-1 fer freklega fram í kroppi neytenda.  Eins og glöggt má sjá á vaxtarlagi bandarísks almennings.

  Ég er ekki alveg klár á því en kannski er í lagi fyrir Sigmund Davíð að þamba mysu.   


Skálmöld og Týr í Metal Hammer

  Jómfrúarplata Skálmaldar,  Baldur,  er til umfjöllunar í nýjasta hefti breska þungarokksblaðsins Metal Hammer.  Metal Hammer er annað tveggja af helstu tímaritum þungarokksins á heimsmarkaði ásamt Kerrang!.  Blaðamaður Metal Hammer sótti G!Festival í Götu í Færeyjum í síðasta mánuði.  Ég vonaðist til að hann myndi gera G!Festivali skil í blaðinu.  Það hefði verið gaman.  Sérstaklega af því að mér tókst að ljúga að honum að liðsmenn færeysku tilraunarhljómsveitarinnar Orku spili ekki á hefðbundin hljóðfæri vegna fátæktar.  Eftir á að hyggja var það óraunhæf von því að Metal Hammer afgreiðir aðeins þungarokkshátíðir.  Þess í stað pikkaði blaðamaðurinn út plöturnar  Baldur  með Skálmöld og  The Lay of Thrym  með Tý.  Þessar tvær hljómsveitir voru að hans mati þær áhugaverðustu á G!Festivali.  Enda voru þær það. 

  Umsagnir blaðamannsins um  Baldur  og  The Lay of Thrym  eru afskaplega lofsamlegar.  Hann gefur þeim báðum einkunnina 7 af 10.  Það jafngildir 3 og hálfri stjörnu af 5.  Sem er aldeilis glæsilegt því að Metal Hammer er ekki þekkt fyrir að bruðla í einkunnargjöf.

  Það að þessar plötur séu teknar til umfjöllunar í Metal Hammer og fái þetta jákvæða umsögn er öflug kynning fyrir Skálmöld og Tý og staðsetur þær bærilega inn á kortið hjá þungarokksunnendum um allan heim.  Þegar má merkja það í aukinni spilun á myndbandinu hér fyrir ofan á þútúpunni.  Þegar þetta er skrifað hafa um 25 þúsund manns skoðað þetta myndband. 

 


Q4U í heimsreisu

  Hljómleikar Q4U á Dillon Rokk Bar voru einn af hápunktum Menningarnætur.  Ég sá að vísu ekki alla dagskrárliði Menningarnætur.  Þess vegna hef ég ekki heildar samanburð.  Fyrir bragðið set ég þann fyrirvara að tala um einn af hápunktum í staðinn fyrir að setja ákveðinn greini við hápunkt.

   Q4U hefur aldrei verið betri.  Það er sprengikraftur í hljómsveitinni.  Spilagleðin geislar af hverjum tóni.  Fjörleg sviðsframkoma Ellýjar undirstrikar stuðið og spræka stemmninguna.
.
  Fyrir nokkrum dögum upplýsti ég hér á blogginu að brasilískt plötufyrirtæki hefði gefið út á þarlendan markað safnplötu með Q4U.  Sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1183818/
.
  Platan,  Q4U Best of,  hefur fengið hlýjar móttökur hjá brasilískum útvarpsstöðvum,  músíkpressunni og á diskótekum.  Þó án þess að fara inn á vinsældalista.  Enda reiknaði enginn með slíku.  Hinsvegar hafa viðbrögðin verið það góð að plötuútgefandinn leggur nú hart að Q4U að koma í hljómleikaferð til Brasilíu.  Mjög hart.  Hann suðar og suðar.
.
  Svo sérkennilega vill til að á sama tíma hefur Q4U fengið beiðni um að spila í Þýskalandi og New York.  Í Þýskalandi á Q4U harðsnúinn hóp aðdáanda.  Þar hefur Q4U selt fleiri plötur en á Íslandi.  Áhugi á Q4U í New York er nýtilkominn og tengist sennilega útgáfunni á plötunni í Brasilíu.
.
  Vandamálið er það að liðsmenn Q4U eru fjölskyldufólk í fastri annarri vinnu en að spila rokkmúsík.  Þeir,  eða réttara sagt þau,  eiga börn á ýmsum aldri og barnabörn.  Sumarfrí þessa árs eru að baki.  Það er ekkert einfalt dæmi fyrir þessa miðaldra rokkara að stökkva frá vinnu,  heimilum,  börnum og barnabörnum og fara í hljómleikaferð til Þýskalands,  Bandaríkjanna og Brasilíu.  Fyrir utan að svoleiðis heimsreisa kallar á töluverð fjárútlát - þó að flug og gisting falli á hljómleikahaldara.   
.
  Hljómsveitin var stofnuð fyrir þremur áratugum sem "hobbý" hljómsveit (hliðarverkefni) og hefur alla tíð síðan verið "hobbý" hljómsveit.  Q4U vakti mikla athygli í bíómyndinni og á plötunni  Rokki í Reykjavík.  Nokkru síðar sló Q4U rækilega í gegn með ofursmellinum  Böring
.
  Eftir það hefur Q4U starfað með mislöngum hléum.  Komið fram af og til á hljómleikum og í sjónvarpi án þess að vera mjög áberandi.  Vinsældir Q4U í Þýskalandi blossuðu óvænt upp fyrir tveimur árum eða eitthvað svoleiðis.  Og nú ennþá óvænna í Brasilíu og New York.
.
  Á þessari stundu er alls óvíst hvernig Q4U afgreiðir skyndilega eftirspurn í útlöndum.  Fyrir aldarfjórðungi eða þremur áratugum hefðu svona tilboð frá útlöndum ekki vafist fyrir Q4U.  Það hefði verið stokkið á slík tækifæri án umhugsunar.  Í dag er þetta allt annað dæmi. 
.
  Hvað heldur þú?  Hvað er rétta skrefið í þessari stöðu?
.
q4u-best-of
 .
  Þegar plötutitlinum  Q4U Best of  er slegið upp í google koma upp fimm þúsund síður.  Það sýnir að platan sé komin í öfluga dreifingu.  Það er gaman að skoða þetta.  Hér er dæmi:  http://www.stormingthebase.com/q4u-best-of/
.
q4u Aq4u C

Þessu máttu ekki missa af

  Dagskrá Menningarnætur á morgun er svakaleg.  Framboð á spennandi uppákomum er svo mikið að erfitt er að velja.  Virkilega erfitt.  Til að mynda eru Q4U að spila á Dillon Bar á sama tíma og Fræbbblarnir spila Við Tjörnina.  Hljómleikar beggja hljómsveitanna hefjast klukkan 22.00. 

  Heildarlista yfir það sem í boði er má finna á www.menningarnott.is.  Fyrir utan þau atriði sem mest hafa verið kynnt í fjölmiðlum tel ég brýnt að vekja athygli á eftirfarandi:

  -  Sendistofa Færeyja í Austurstræti er með opið hús á milli klukkan 14.00 til 18.00.  Þar er boðið upp á smakk á færeyskum mat og drykk; færeyskir rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og Guðríð Hansdóttir tekur lagið.  Nafn hennar er framborið Gúrí.  Guðríð syngur frumsamin lög við eigin gítarundirleik.  Textar hennar eru ýmist á færeysku eða ensku og jafnvel á báðum tungumálum í einu og sama lagi.  Músíkstíl hennar má kalla framsækna vísnatónlist (alt-folk).  Flott músík.

  -  Guðríð skemmtir ásamt hljómsveit sinni á Óðinstorgi klukkan 17.30.

  -  Guðríð skemmtir ásamt hljómsveit sinni á Dillon Rock Bar klukkan 20.00.  Það verður fjör.

  -  Teitur Lassen skemmtir í Hörpu klukkan 18.00.  Teitur er heimsfrægastur færeyskra tónlistarmanna.  Lög hans hafa verið notuð í frægum amerískum kvikmyndum og sjónsvarpsþáttum.  Myndbönd hans hafa verið í heitri spilun í músíksjónvarpsstöðvum út um allt.  Einstök lög hans hafa náð vinsældum hérlendis.  Þeirra frægast er Louis, Louis.

    - Listfræðingurinn Oggi Lamhauge leiðir gesti um myndlistasýningu Elinborgar Lutzen í salnum Flóanum í Hörpu klukkan 15.00, 17.00 og 21.00.  Elinborg féll frá fyrir 16 árum.  Hún var teiknari og grafíkeri.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband