Æðisleg afmælisveisla - myndir

1234

  Í fyrrakvöld var mér boðið í kjötsúpuveislu hjá kjarnakonunni og mótorhjólagellunni Rannveigu Höskuldsdóttur.  Boðinu fylgdi lof um lifandi blúshljómleika.  Ég vissi ekki að Rannveig (www.rannveigh.blog.is) átti afmæli þennan dag.  En veislan tókst meira en glæsilega í alla staði.  45 manns voru í partýinu og glatt á hjalla.  Ingvi Högnason (www.yngvii.blog.is)  lagði til kjötið í súpuna og súpan var frábær.  Hann tók líka þessar myndir.  Þess vegna er engin mynd af honum.

  Á fyrstu myndinni er fremstur gítarsnillingurinn Arnar Guðmundsson.  Ég veit ekkert meira um hann annað en að hann spilaði á blúshátíð á Rósinberg.  Á mynd númer 4 er Siggi "ginseng" (www.siggith.blog.is). 

  5

  Hér er drottningin sjálf,  Rannveig.

 6

  Grétar Mar,  fyrrverandi alþingismaður (til vinstri) og bítlageggjari,  var hrókur alls fagnaðar að venju og undrun vakti að Siggi "ginseng" (til hægri) fékk sér skyr og hellti kjötsúpunni út á.  Og undraðist mjög að aðrir gerðu ekki slíkt hið sama.  Hann færði Rannveigu pakka af Immiflex svo hún fái ekki svínaflensu.

78 

  Ég held að hann sé austurískur þessi alpahornsblásari.  Þetta var fjölmenningarpartý með gestum frá þremur heimsálfum og 4 löndum.

91011

  Þarna er verið að syngja afmælissönginn.  Ég sé að það fer að koma tími á að skafa burtu skeggið.  Það er hörmung að sjá þetta.

121415

  Þessi blússöngkona er meira en góð.  Hún heitir Angela Basombrio,  er frá Kanada en búsett á Skagaströnd.  Er með mjög sterka blúsrödd,  blæbrigðaríka og fór á kostum í blúsprógramminu.  Það er tímaspursmál hvenær hún verður súperstjarna.  Vinir Dóra eða Blúsmenn Andreu þurfa að heyra í henni og uppgötva að þarna er óuppgötvuð perla í blúsdeildinni.  Aldeilis mögnuð blússöngkona.

16

 


Hvað heldur þú?

 triple lanolin

   Mig langar til að bera undir ykkur eitt atriði.  Ég tek fram að ég er ekki að nota þennan vettvang til að auglýsa fyrirbærið heldur til að fá skilning ykkar á texta.  Þannig er að í vel á þriðja áratug hef ég selt Aloe Vera gel.  Lengst af var það einungis fáanlegt í kvartlítra flösku.  Það átti ekki aðeins við um Aloe Vera gelið sem ég sel heldur öll vörumerki af Aloe Vera geli sem hér hafa verið og eru á markaði.

  Fyrir nokkrum árum bættist við hálfslítra flaska af Aloe Vera gelinu sem ég sel.  Það er hlutfallslega töluvert ódýrara per ml.  Til að vekja athygli á þessu lét ég prenta límmiða með textanum:  "Tvöfalt meira magn,  lægra verð".  Límmiðann set ég á stóru flöskurnar.

  Í dag hringdi í mig kona sem spurði:  "Hvaða búð selur Aloe Vera gelið með þessu tilboði?"  Ég fattaði ekki hvað hún átti við.  Eftir smá spjall kom í ljós að hún túlkaði merkinguna sem "2 fyrir 1".  Ég útskýrði fyrir henni hvaða upplýsingum ég var að reyna að koma á framfæri á miðanum.  Hún var mér óssamála.  Sagði textann vera villandi og plat.  Þetta var samt kurteis kona og bara gaman að spjalla við hana.

  Þess vegna spyr ég ykkur hvort skilningur konunnar á textanum sé réttur.  Hvort textinn gefi annað í skyn en ég ætlaði.

  Ég ítreka að ég er ekki að auglýsa mína vöru með því að bera þetta undir ykkur.  Þess vegna birti ég með færslunni mynd af Aloe Vera geli frá öðrum framleiðanda en Banana Boat.


Frábær myndlistaverk á hrísgrjónaökrum

hrísgrjónaakur1hrísgrjónaakur2

  Í Japan er myndlist í hávegum.  Áhugi Japana á myndlist hefur borist út á hrísgrjónaakrana.  Japanir rækta hrísgrjónaplöntur í mismunandi litum (sjá neðstu mynd) til að búa til þessar glæsilegu risamyndir á ökrum sínum.  Það hefur ekki verið átt við þessar myndir í tölvu af listaverkunum.  Myndirnar sýna raunveruleg listaverk.  Þau eru ekki hönnuð af myndlistahneigðum geimverum heldur metnaðarfullum listrænum hrísgrjónabændum.

hrísgrjónaakur3hrísgrjónaakur4hrísgrjónaakur5hrísgrjónaakur6


Kærar þakkir

bakkabræður

  Þessa hugljúfu kveðju fékk ég senda.  Mér er ljúft að koma henni áfram.  Guðirnir blessi Ísland.  Aðrir gera það ekki.  Nema Færeyingar.


mbl.is Hálfkaraðar glæsihallir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugljúf saga fyrir svefninn

navado kona

  Þessi saga er sögð vera sönn.  Hún segir frá Sallý sem var að keyra heim til sín eftir sölutúr um Norður-Arizona.  Þá kom hún auga á aldraða Navajo-indíánakonu sem gekk hægt eftir vegarkantinum.  Sallý stoppaði bílinn og bauð Navajo-konunni far.  Hún kinkaði kolli án þess að segja neitt og settist þakklát inn í bílinn.

  Sallý reyndi að hefja samræður en sú gamla var ekki ræðin.  Hún svaraði játandi með því að kinka kolli eða neitandi með því að hrista höfuðið.  Hinsvegar virti hún áhugasöm innréttingu bílsins fyrir sér hátt og lágt,  líkast til óvön að sitja í fínum bíl.  Skyndilega varð þeirri gömlu starsýnt á brúnan bréfpoka sem var skorðaður við hliðina á ökumannssætinu.  Forvitni hennar leyndi sér ekki.  Sallý benti á pokann og sagði:  "Þetta er koníaksflaska sem ég fékk fyrir kallinn minn."

  Navajo-konan varð undrandi á svipinn.  Svo kinkaði hún samþykkjandi kolli og sagði:  "Góð skipti."

 


Myndbandið sem beðið var eftir

  Fyrir nokkrum dögum skúbbaði ég,  eins og oft vill verða.  Þar upplýsti ég að íslenska pönkhljómsveitin Q4U nyti óvænt nýtilkominna vinsælda í Þýskalandi.  Mér tókst ekki að finna neitt myndband með hljómsveitinni til að skerpa á fréttinni og gefa sýnishorn af því sem heillar Þjóðverjana.  Einar Loki vísaði síðar á samklippu úr kvikmyndinni  Rokk í Reykjavík.  Þar bregður Q4U fyrir.

  Nú hef ég fengið sendan hlekk á myndband með Q4U.  Myndbandið var sett inn á youtube.com í gær en er úr sjónvarpsþætti frá 1997.    


Busavígsla fór úr böndum

nefbrotinn

  Busavígslur framhaldsskólanema eru eitthvað heimskulegasta og hallærislegasta fyrirbæri sem til er.  Busavígslur kitla einungis óþroskuðustu og mestu kjána í hópi eldribekkinga.  Þeir kunna ekki með það vald að fara sem þeir fá við að fá að leika lausum hala við að niðurlægja nýnema.  Mörg dæmi munu þess að busavígsla hafi orðið upphaf eineltis.

  Í áratugi tíðkaðist að eldri nemendur tolleruðu nýnema í upphafi skólaárs í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal.  Fyrir röskum sextíu árum fór slík tollering úr böndum.  Í hita leiksins tóku menn upp á því að henda nýnemum sem allra hæst upp í loft og reyndu að láta þá snúast í loftinu.  Að því kom að einn nýneminn lenti illa á öxl eldri nema.  Nefið mölbrotnaði og lagðist út á hægri kinn.  Þannig gréri nefið.

  Á þessum árum var óþekkt að svona lýti væru lagfærð.  Maðurinn hafði mikinn ama af þessu áberandi afmyndaða nefi.  Hann fór að taka í nefið og huldi iðulega nefið með vasaklút.  Þóttist þá ætla að snýta sér en lét ekki af því verða heldur hélt vasaklútnum yfir nefið.  Einkum brá hann á þennan leik þegar hann var að kynnast konum sem hann fékk augastað á.  Einhverra hluta vegna hefur engin kona viljað elska þennan nefbrotna mann.  Hann kennir nefbrotinu um.

  Fyrir tæpum fjörtíu árum var maðurinn staddur í Laufskálarétt.  Þar tók hann til hendi við að atast í hrossum.  Í einni viðureigninni sparkaði hestur í andlit mannsins.  Við það brotnaði nefið aftur.  Að þessu sinni lagðist það út á vinstri kinn.  Hnútar á nefinu voru að öðru leyti þeir sömu.

  Mörgum var brugðið sem hittu manninn eftir þetta og vissu ekki af hrossasparkinu.  Það var skrítið að hafa vanist andliti með nef út á hægri kinn en sjá það síðan vera komið út á vinstri kinn.  Sumir áttuðu sig ekki á hver breytingin var.  Þeir áttuðu sig ekki á að þeir voru í raun að horfa á einskonar spegilmynd.

         


Skemmtilegar reddingar

2009-122009-13

  Það má alltaf redda sér í kreppunni,  eins og þessar myndir sýna. 

2009-102009-142009-92009-82009-52009 - nýr Land Cruiser framkvæmdastjóra Marels

  Neðsta myndin sýnir skemmtilegustu reddinguna á efnahagshruninu.  15 starfsmönnum var sagt upp hjá Marel.  Í staðinn var þessi Land Cruser keyptur undir framkvæmdastjórann.


Skúbb! Íslensk músík slær óvænt í gegn í útlöndum

  Óli Palli heldur því stundum fram á rás 2 að hljómsveitir hætti aldrei.  Það er sitthvað til í þessari kenningu.  Hljómsveitir virðast hafa tilhneigingu til að verða langlífari en liðsmenn þeirra gera sér grein fyrir á þeim tímapunkti sem þeir halda að hljómsveitin sé hætt.  Stundum verða óvæntir atburðir úr ólíklegustu átt til þess að endurvekja hljómsveit sem strangt til tekið var hætt.

  Íslenska pönksveitin Q4U er ein þeirra sem virðist hafa 9 líf.  Þessi hljómsveit varð einn af fylgihnöttum Utangarðsmanna og Fræbbblanna í pönksprengjunni um og upp úr 1980.  Meðal liðsmanna Q4U voru einmitt hljóðfæraleikarar úr þessum tveimur hljómsveitum. 

  Q4U vakti töluverða athygli í kvikmyndinni  Rokk í Reykjavík  og á tónlistarhátíðinni  Melarokki.   Lagið  Böring  (sem fjallaði um Bjarna Móhíkana úr Sjálfsfróun) varð síðar vinsæll útvarpssmellur.

  1996 reis hljómsveitin úr dvala eftir margra ára hlé.  Spilaði á hljómleikum,  kom fram í sjónvarpinu og sendi frá sér yfirlitsdiskinn Q2.

q4u

  Fyrir nokkru komst þessi diskur í hendur Þjóðverja nokkurs.  Diskurinn vakti lukku í kunningjahópi Þjóðverjans.  Þjóðverjinn óskaði eftir að kaupa upp það upplag sem til var af disknum,  um 150 eintök.  Þau eintök seldi Þjóðverjinn á "nó tæm".  Nú hefur hann pantað 1000 eintök til viðbótar.

  Það er ekki um annað að ræða en endurútgefa diskinn í því upplagi - og rúmlega það.  Þjóðverjinn telur pöntun sína upp á 1000 eintök aðeins vera til að sinna bráðri eftirspurn.  Pöntun á stærra upplagi muni fylgja í kjölfarið.  Músík Q4U höfði sterkt til Þjóðverja. 

  Þetta eru ekki stórar tölur - sé litið til alþjóðamarkaðar.  En verulega stórar tölur fyrir íslensku pönksveitina Q4U,  sem var hætt en horfir nú til þess að ástæða sé til að endurreisa hljómsveitina enn einu sinni.  Hamra járnið á meðan það er heitt.  Margt spennandi getur verið í spilunum.  Þýski músíkmarkaðurinn er einn sá stærsti í heiminum.  

  Ég fann ekkert myndband með Q4U en á myndbandinu hér fyrir ofan syngur Q4U-liðinn Árni Daníel Júlíusson Sex Pistols-slagarann  Pretty Vacant við undirleik Q4U-trommarans Komma (Kormáks) og liðsmanna Fræbbblanna.

  Hér fyrir neðan eru myndir af Q4U.  Ég veit ekki hvernig Ellý nær að vera sætari og kynþokkafyllri en fyrir næstum þremur áratugum.  Debbie Harry og Siouxie Sioux ná því ekki:

q4ulastq4ubandid  


(Ó)heppinn innbrotsþjófur

  Í Færeyjum er ekki til siðs að læsa húsum.  Ekki einu sinni þegar heimilisfólk er fjarri til lengri tíma.  Tónlistarmaðurinn og plötuútgefandinn Kristian Blak læsti þó húsi sínu þegar hann fór ásamt fjölskyldu sinni til útlanda í nokkrar vikur.  Ástæðan var sú að geðveikur náungi hafði hótað og ofsótt Kristian um hríð.  Meðal annars hafði sá geðveiki gengið í skrokk á bíl mannsins í næsta húsi við Kristian.  Bílnum var lagt fyrir framan hús Kristians og ofbeldismaðurinn hélt að þetta væri bíll Kristians. 

  Kristian óttaðist að sá geðveiki kæmi inn í húsið,  myndi jafnvel setjast þar að og/eða skemma tölvur og fleira.  Húsinu,  sem er í miðbæ Þórshafnar,  var því kyrfilega læst.  Samt var brotist þar inn.  Sem er mjög einkennilegt.  Brotist inn í eina læsta húsið í Þórshöfn.  Innbrotsþjófurinn virðist hafa einungis farið inn í eitt lítið herbergi.  Þaðan stal hann glæsilegum ferðageislaspilara,  svokölluðum "gettó-blaster",  og bunka af geisladiskum sem þar stóðu hjá,  samtals 50 diskum. 

  Þegar Kristian og fjölskylda komu aftur heim frá útlöndum og uppgötvuðu innbrotið og þjófnaðinn gátu þau ekki varist brosi.  Diskana hafði Kristian komið með frá Noregi og átti eftir að fara með þá í Norræna húsið í Færeyjum.  Diskarnir innihéldu allir fornan söng Sama,  svokallað joik,  án undirleiks.  Það eru ekki margir utan Sama sem hlusta á svoleiðis sér til gamans.  Á myndbandinu hér fyrir neðan má heyra sýnishorn af því sem innbrotsþjófurinn hefur haft í eyrunum þegar hann fór að spila geisladiskana.


Mikilvægt að leiðrétta

  Nýverið birtist í Morgunblaðinu opnugrein um bítilinn Paul McCartney.  Ljómandi skemmtileg grein.  Enda skrifuð af Ingólfi Margeirssyni;  oft titlaður réttilega Bítlafræðingur.  Í greininni segir að Paul McCartney hafi samið flest vinsælustu lög Bítlanna.  Áreiðanlega er hægt að færa rök fyrir því.  Bítlarnir áttu mörg fleiri vinsæl lög en þau sem skoruðu hæst á vinsældalistum sem smáskífur.  Það getur þó verið vandkvæðum bundið að kveða upp úrskurð um vinsældir einstakra Bítlalaga sem einungis komu út á stórum plötum. 

  Ef litið er til þeirra laga sem skoruðu hæst á vinsældalistum sem smáskífur verður ekki annað séð en jafnræði hafi ríkt á milli laga Johns Lennons og Pauls McCartneys.  Af 30 vinsælustu smáskífulögum Bítlanna á breska og bandaríska vinsældalistanum er um jafntefli að ræða.  Í fyrri sviganum er hlutur Johns í lögunum og í seinni sviganum er hlutur Pauls. 

  1. All You Need is Love  (100)  (0)
  2. Ballad of John and Yoko  (100)  (0)
  3. Can't Buy Me Love  (10)  (90)
  4. Come Together   (100)  (0)
  5. Day Tripper  (80)  (20)
  6. Do You want to know a Secret  (100)  (0)
  7. Eight Days a Week  (30)  (70)
  8. Eleanor Rigby  (20)  (80)
  9. Free as a Bird  (100) (0)
  10. From Me to You (50) (50)
  11. Get Back  (0)  (100)
  12. Hard Day´s Night  (100)  (0)
  13. Hello Goodbye  (0)  (100)
  14. Help!  (90)  (10)
  15. Hey Jude  (0)  (100)
  16. I Feel Fine  (100) (0)
  17. I Want to Hold Your Hand  (50)  (50)
  18. Lady Madonna  (0)  (100)
  19. Let It Be   (0)  (100)
  20. Long and Winding Road  (0)  (100)  
  21. Magical Mystery Tour  (10)  (90)
  22. Nowhere Man  (100)  (0) 
  23. Paperback Writer  (20)  (80)
  24. Penny Lane   (20)  (80)
  25. Please Please Me (100) (0)
  26. Real Love  (100)  (0)
  27. She Loves You  (50) (50)
  28. Strawberry Fields Forever  (100)  (0)
  29. Ticket to Ride  (100)  (0)
  30. We Can Work it Out  (30)  (70)

  Ég er svo sérvitur að gera ekki upp á milli Johns og Pauls.  Met þá báða jafn mikils.  Með kostum þeirra og göllum.  Mér er alltaf illa við þegar hallar á annan hvorn þeirra í umfjöllun um Bítlana.  Mitt uppáhalds Bítlalag er á meðfylgjandi myndbandi,  hinn lauflétti blús  Helter Skelter,  eftir Paul.  Til gamans má geta að í upptöku var lagið 25 mínútna langt en stytt í tæplega 5 mínútna bút á  Hvíta albúminu.  John og Paul skiptust á sólógítarleik og John blés einnig í saxófón.  John var á sólógítar í fyrri hlutanum en Paul þegar kom að ískrinu.  Allir vel dópaðir og hressir. 

john og paul


Úrslit: Bestu íslensku smáskífurnar

  Þegar Félag íslenskra hljómplötuútgefenda,  rás 2 og www.tonlist.is  hófu í vor leit að 100 bestu íslensku plötunum þótti sumum sem merkar smáskífur væru afskiptar.  Margar af bestu hljómsveitum íslensku rokksögunnar sendu aldrei frá sér stóra plötu (Lp).  Aðeins smáskífur.

  Upp kom umræða um smáskífur sem áttu og eiga erindi í umræðu um bestu íslenskar plötur.  Í kjölfar þeirrar umræðu tók ég áskorun um að finna bestu íslensku smáskífuna.  Skilyrði voru þau að smáskífan væri sjálfstæð útgáfa.  Ekki kynning fyrir stóra plötu.  Sömuleiðis mátti aðallag smáskífunnar ekki vera útlend kráka (cover song). 

  Undirtektir voru góðar.  Um 100 smáskífur voru tilnefndar.  Þær smáskífur sem fengu flestar tilnefningar og/eða stuðning frá öðrum setti ég upp í formlega skoðanakönnun.  Sjálfur reyndi ég ekki að hafa áhrif á uppstillinguna.  Ég var einungis forvitinn að komast að almennu viðhorfi til viðfangsefnisins.  Og var reiðubúinn að sveigja reglur til samræmis við þau sjónarmið sem voru ráðandi.  Þetta var til gamans gert.

  Nú hafa vel á sjöunda hundrað atkvæða skilað sér í hús.  Röðin hefur ekkert breyst frá því atkvæði voru 100,  200,  300,  400,  500 eða 600.  Munur á milli sæta er mikill.  Það gerir útkomuna trúverðugri.  Hún er þessi:

1.  Katla kalda/Ástin sigrar með Mosa frænda 28,4%

2.  Spáðu í mig/Komdu og skoðaðu í kistuna mína  með Megasi  19%

3.  Gvendur á eyrinni  með Dátum  15,6%

4.  Dánarfregnir og jarðarfarir  með Sigur Rós  11,7%

5.  Dimmar rósir  með  Töturum  8,8%

6.  Glugginn  með Flowers  5,2%

7.  Jenny darling  með  Pelican  4,4%

8.  Tilf  með Purrki Pillnikk  3,9%

9.  Yacketty yak, Smacketty smack   með Change, 3,2%

  Ég endurtek og undirstrika að þessi úrslit hafa ekkert með minn músíksmekk að gera.  Ég er samt ekkert ósáttur við efstu sæti.  Gaman væri að heyra viðbrögð ykkar við niðurstöðunni.


Meiri upphitun fyrir kvöldið

  Hér er viðbót við síðustu færslu.  Meiri upphitun fyrir kvöldið:  Fræbbblarnir,  Megas,  Súkkat... (sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/934946/).


Hitað upp fyrir annað kvöld (22. ágúst)

  Á morgun,  22.  ágúst,  ná hátíðarhöld Menningarnætur hámarki um og upp úr klukkan 23.00 á Grand Rokk.  Þar verður boðið upp á skinkufeita (eins og Færeyingar segja) dagskrá með stórstjörnum á borð við guðfeður pönksins,  Fræbbblana,  og Megasukk (Megas og Súkkat).  Einnig koma fram ungrokkararnir í Palindrome.

  Miðaverð er ræfilslegur 1000 kall og allir fá frían bjór.

  Á myndbandinu flytja Fræbbblarnir hið magnaða  KKK took My Baby Away  eftir The Ramones.

fræbbblarnir1


Músíksmekkur og gáfnafar (námshæfileikar)

músíkog einkunnir

  Það er ansi gaman að skoða þennan lista yfir músíksmekk og námsárangur bandarískra nemenda.  Listinn var unninn þannig:  Skoðað var hvað rösklega 1300 bandarísk ungmenni gáfu upp á Fésbók um músíksmekk sinn.  Síðan var kannað hvaða einkunn viðkomandi fékk út úr samræmdu prófunum.

  Niðurstaðan kemur ekki á óvart.

  Skoðum þetta betur:

  Af þeim sem hlusta á rapp og hipp-hopp þá hlusta þeir klárustu á Outkast (1),  Kanye West (2),  Eminem (3) og Nas (4).  Þeir lang heimskustu hlusta á Lil Wayne.  Þeir sem hlusta á Lil Wayne eru jafnframt heimskastir allra á listanum.  Meðaleinkunn þeirra er 876 til samanburðar við þá sem hlusta á Beethoven,  1400.

  Þeir sem hlusta á r&b eru vitaskuld einnig í heimskari kantinum.  Heimskastir eru þeir sem hlusta á Beyonce.
  Unnendur gospel eru á sama stað og þeir sem aðhyllast Beyonce.
  Djassinn er ekki að skora hátt.  Reyndar er þar eitthvað málum blandið.  Frank Sinatra (þokkalegt skor) og Norah Jones (gott skor) eru skilgreind sem fulltrúar djassins.
.
  Léttpoppið skorar heldur ekki hátt.  Heimskustu unnendur léttpoppsins hlusta á Justin Timberlake.  Það kemur ekki á óvart.
  Af þeim sem hlusta á framsækið rokk eru unnendur Radiohead með þeim klárust yfir alla flokka talið.  Beck kemur þar næstur.  Þeir heimskustu hlusta á Afi.
  Samheitið rokk rúmar allt frá þeim klárustu,  sem hlusta á Counting Crows (1) og U2 (2),  til þeirra heimskustu sem hlusta á Aerosmith,  Nickelback,  The All-American Rejects og Bon Jovi. 
  Kántrýboltarnir eru í heimskari kantinum.  Þeir gáfuðustu hlusta á Pat Green og Johnny Cash (einkunn rúmlega 1000) en kjánarnir á Carrie Underwood.  Kenny Chesney og Garth Brooks.
.
  Af þungarokkurum hlusta þeir gáfuðustu á System of a Down og Tool en þeir þynnstu á Disturbed.
  Í klassíska rokkinu skora unnendur Bobs Dylans lang hæst.  Næstir koma Led Zeppelin,  Billy Joel og Bítlarnir.
  Með lægstu einkunnir eru unnendur The Doors og Queen (rúmlega 1000 í meðaleinkunn).

Gott ráð

 bíll með aukabúnaði

  Ég fór á veitingastað.  Við næsta borð sátu tvær konur.  Af aldri þeirra og orðum mátti ráða að þær væru mæðgur.  Dóttirin fékk símtal.  Auðheyrt var að hringjandinn var að boða bíl hennar á verkstæði.  Er símtalinu lauk tjáði hún mömmu sinni frá því að bíllinn færi á verkstæði daginn eftir og verði þar að minnsta kosti í tvo daga.

  "Hvernig ferðu þá að með börnin?" spurði mamman kvíðin.  Dóttirin sagðist ekki vita það.  Hún hefði engan pening til að taka leigubíl.  Þær mæðgur vandræddust yfir þessu í góða stund og veltu fyrir sér ýmsum möguleikum,  sem gengu ekki upp þegar betur var að gáð.

  Allt í einu glaðnaði yfir dótturinni og hún segir:  "Ég fæ bara bíl lánaðan á einhverri bílasölu."

  Mamman hafði efasemdir um þessa lausn.  En dóttirin var sannfærð.  Allt væri frosið á bílasölum.  Það færi illa með bílana að láta þá standa óhreyfða mánuðum saman.  Bílasalar myndu taka því fagnandi að einhver vildi liðka gamlan bíl fyrir þá.

  Konan hringdi í 118 og bað um að sér yrði gefið samband við einhverja bílasölu í Reykjavík.  Það gekk lipurt fyrir sig.  Konan kynnti sig og bar upp erindið.  Bílasalinn spurði greinilega hvort viðgerð á bíl hennar tengdist bílasölu sinni á einhvern hátt.  Nei,  bílinn var í viðgerð á verkstæði úti í bæ og hún hafði bara hringt í einhverja bílasölu af handahófi. 

  Bílasalinn tók erindinu illa.  Konan þuldi upp fyrir hann sömu rök og hún hafði áður sagt mömmu sinni.  Allt kom fyrir ekki.  Er símtalinu var lokið án árangurs stundi konan undrandi og hneyksluð:  "Djöfull sem bílasalar eru hrikalega heimskir!"


Furðulegur brandari

  Eftirfarandi brandara fékk ég sendan.  Ég sprakk úr hlátri við lestur hans.  Ég hef samt ekki hugmynd um hvers vegna.  Ég skil þennan brandara nefnilega ekki.  Skil bara hvorki upp né niður í honum.  Enda er hann verulega furðulegur.  Fattar þú hvað er svona fyndið við hann?

  Tvær konur sátu saman við borð,  þögular...


Skúbb! Íslenskur söngvari á útlendri safnplötu

geir ólafs

  Fyrir síðustu jól sýndi Geir Ólafs Færeyingum þakklæti sitt - og íslensku þjóðarinnar - fyrir höfðinglegt lán til Íslendinga í kjölfar bankahrunsins og færði þeim að gjöf jólalag.  Lagið söng Geir á færeysku og kallaði það  Jólamaðurinn  (sem er færeyska heitið á jólasveininum).  Uppátækinu var vel tekið og lagið var lengi á A-spilunarlista (hot play list) færeyska ríkisútvarpsins,  Kringvarpsins.

  Nú er í undirbúningi færeysk jólasafnplata sem kemur á markað í nóvember.  Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að þar sé um að ræða fyrstu færeysku jólasafnplötuna.  Þar fyrir utan hafa Færeyingar ekki verið duglegir við að senda frá sér jólaplötur í gegnum tíðina.  Ég er að hjálpa til við að setja færeysku jólasafnplötuna saman og það er ekki um auðugan garð að grisja.  Það er að segja færeyskar jólaplötur til að velja lög af eru fáar.  En góðar.  Þannig að safnplatan verður góð.

  Meðal laga á safnplötunni verður  Jólamaðurinn  með Geir Ólafs.  Það verður í fyrsta skipti sem þetta lag kemur út á plötu.  Og ekki seinna vænna.  Jólamaðurinn  er best kynnta og mest spilaða jólalagið í Færeyjum til margra ára. 

  Geir er ákveðinn í að standa við að lagið sé gjöf til Færeyinga.  Hann hefur hafnað greiðslu fyrir lagið á safnplötunni.  Þess í stað ánafnar hann öllum ágóða af laginu til langveikra barna í Færeyjum.  Það er virkilega fallegt og til fyrirmyndar.

  Ekki er búið að ganga endanlega og formlega frá öllum öðrum lögum sem verða á færeysku safnplötunni.  Þess vegna er ótímabært að gefa þau upp.  Eitt lag verður þó með álfadrottningunni Eivöru.  Platan mun fást í verslunum Pier í glerturninum við Smáratorg og í Korputorgi.  Meira um þetta allt saman síðar.  


Skemmtilegar myndir af tvíförum

tvífarar-1tvífarar-3

  Þessar myndir fékk ég sendar og hló.  Mér er ljúft og skylt að leyfa ykkur að skella upp úr líka.

tvífarar-4tvífarar-5tvífarar-6tvífarar-15


Best á nautið - loksins!

stefan-bestálambið 

 Fyrir mörgum árum var umtöluð í Skerjafirði kryddblanda sem Stefán Halldórsson hafði þróað og notað á lambakjöt.  Kryddblandan þótti einstaklega vel heppnuð og gerði lambakjöt að meira sælgæti en áður þekktist.  Þeir sem smökkuðu urðu friðlausir og gátu ekki hugsað sér að elda lamb án þessarar rómuðu kryddblöndu.  Eftirspurn varð slík að fyrir nokkrum árum setti Stefán á almennan markað kryddblönduna Best á lambið.  Hún sló í gegn og fæst nú í flestum íslenskum matvöruverslunum og einnig í Færeyjum.

  Síðan hefur Stefán bætt við öðrum vinsælum kryddblöndum:  Best á fiskinn,  Best á kjúklinginn og Best á kalkúninn.  Í síðustu viku bættist við kryddblandan sem margir hafa beðið eftir:  Best á nautið. 

  www.bestalambid.is 

bestálambið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband