28.9.2009 | 00:33
Smásaga - byggđ á raunverulegum atburđi
Gösli hefur alltaf haft ţađ gott. Hann hefur stofnađ ýmis fyrirtćki sem fóru vel af stađ. Hann var međ góđar hugmyndir og góđar vörur. En óţolinmćđi í ađ verđa ríkur hefur valdiđ ţví ađ hann hefur áráttu til ađ grípa til ólöglegra flýtileiđa ađ markmiđinu. Honum sést ekki fyrir og dćmin hafa endađ ýmist međ málaferlum og/eđa kollsteypu (gjaldţroti). Um tíma varđ hann ađ flýja land á međan mál fyrndust og viđskiptavinum sem töldu sig svikna rynni reiđi.
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
26.9.2009 | 23:18
Klúđur
Kunningi minn hélt tvö heimili. Eitt í Reykjavík og annađ í ţorpi í töluverđri fjarlćgđ frá Reykjavík. Hann vann og vinnur í Reykjavík en kona hans og börn bjuggu í ţorpinu. Ţar eyddi kunninginn helgum í fađmi fjölskyldunnar. Svo brá viđ eina ađfaranótt fimmtudags ađ hann ţurfti ađ sćkja eitthvađ á heimili sitt í ţorpinu. Hann var ađ vinna til miđnćttis í bćnum. Allir voru sofandi í ţorpinu og hann lćddist inn til sín og gćtti ţess ađ vekja enga. Er hann opnađi dyr svefnherbergisins sá hann konu sína sofa ţar vćrum svefni ásamt manni sem hann kannađist viđ.
Kunninginn lćddist aftur út og brunađi til Reykjavíkur. Daginn eftir hringdi hann í konuna og spurđi: "Hvernig getur ţú gert mér ţetta; ađ draga upp í hjónarúm okkar annan mann?" Konan svarađi: "Ţér kemur ţađ ekki viđ." Svo skellti hún á og svarađi ekki fleiri símtölum frá kunningjanum.
Kunninginn var niđurbrotinn og miđur sín. Hann sá í hendi sér ađ hjónabandiđ var búiđ. Hann ákvađ ađ skella sér til Keflavíkur og sletta ćrlega úr klaufunum á laugardagskvöldinu. Pantađi sér hótelherbergi og var mćttur í ţađ síđdegis á laugardeginum. Hann var ţreyttur eftir kvöldvakt í vinnu á föstudeginum og lagđi sig á hótelherberginu. Hann vaknađi sprćkur um klukkan 9, skellti í sig nokkrum koníaksskotum, fór í sturtu, rakađi sig og klćddi í sparifötin. Fór síđan niđur í borđsal og pantađi veglegan kvöldmat. Ţjónninn svarađi ađ einungis morgunmatur stćđi til bođa. Kunningjanum ţótti ţađ einkennilegt og gerđi athugasemd. Eftir smá spjall um morgunverđ sagđi ţjóninn: "Kíktu hér út um glugga. Hér er ekkert um ađ vera. Allt steindautt á sunnudagsmorgni í Keflavík."
Kunninginn hafđi sofiđ af sér laugardagskvöldiđ og ţađ var kominn sunnudagsmorgunn. Kunninginn var orđinn ţađ hreifur af koníakinu ađ ekki var um annađ ađ rćđa en drekkja sorgum sínum áfram á hótelinu og bölva fram ađ nćstu nótt. Helgin ónýt. Eins og hjónabandiđ.
Lífstíll | Breytt 27.9.2009 kl. 22:44 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (26)
26.9.2009 | 13:53
Krúttlegt - eđa...?
Ég fór í matvöruverslun til ađ kaupa mér Malt. Skammt frá mér var kona međ innkaupakerru. Í barnasćti kerrunnar sat á ađ giska fjögurra ára drengur. Ég var ekkert ađ fylgjast međ ţeim en heyrđi drenginn segja: "Kaupum svona." Konan svarađi: "Nei, ekki núna." Strákur mótmćlti hástöfum međ blöndu af frekju- og hálfgrátandi röddu: "Jú, mig langar svo í svona." Konan útskýrđi vandamáliđ: "Ég á ekki pening fyrir ţessu. Ég á ekki einu sinni pening fyrir öllu sem ég ţarf ađ kaupa."
Viđ ţessi orđ var dreng brugđiđ. Hann saup hveljur og spurđi međ uppglennt augu hálf skelfdur: "Verđum viđ ţá ađ stela?"
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (22)
25.9.2009 | 17:44
Sérkennilegar skilnađartertur
Í Bandaríkjunum halda konur upp á hjónaskilnađ međ heilmikilli veislu fyrir vinkvennahópinn. Skilnađartertan er ómissandi í veislunni. Útfćrslurnar geta orđiđ skrautlegar. Ekki síst ef skilnađurinn hefur veriđ í illu. Ţađ hefur ekkert veriđ átt viđ myndirnar af ţessum tertum í tölvu (fótósjopp). Húmor nýfráskilinna kvenna er bara svona ţó ég skilji ekki alveg hver punkturinn á ađ vera međ sumum tertunum.
"Loksins, loksins er ég laus viđ ţetta fífl!!"
"Farđu út međ rusliđ!!"
24.9.2009 | 01:14
Passiđ ykkur á hvítlauknum
Hvítlaukur er hollur og skerpir á góđu bragđi margra lystugra veislurétta. Hvítlauksátiđ verđur ţó ađ vera í hófi. Annars getur fariđ eins og fyrir ţessari konu:
22.9.2009 | 03:05
Áhrifamestu hljómsveitirnar
Yngvi Högnason (www.yngvii.blog.is) benti mér á skemmtilegan lista yfir 50 áhrifamestu pönkrokkhljómsveitir sögunnar. Listinn er augljóslega tekinn saman af Bandaríkjamönnum. Uppistađan af hljómsveitunum á listanum eru bandarískar og sumar lítt ţekktar utan Bandaríkjanna. Fátt veit ég um ađstandendur listans og netsíđuna The Pulp Lists.
Svona er listinn (innan sviga er merkt viđ ţćr hljómsveitir sem eru ekki bandarískar):
1 The Sonics
Ţetta er bítlahljómsveit frá sjöunda áratugnum. Fjarri ţví pönkhljómsveit nema Bítlarnir, Kinks, Rolling Stones, Who og Hljómar (Thor´s Hammer) hafi veriđ pönk. Rokk The Sonics var blúsađ og hrátt, féll undir stíl bílskúrsrokks (garage). Pönkiđ varđ til mörgum árum eftir ađ The Sonics hćtti. Pönkiđ var og er - ekki síđur en rokkmúsíkstíll - tiltekiđ lífsviđhorf og afstađa til músíkbransans eins og hann var um miđjan áttunda áratuginn.
The Sonics náđi ekki alvöru vinsćldum og er lítt ţekkt utan Bandaríkjanna. Hljómsveitin var endurreist fyrir 2 árum eđa svo. Hún hefur lagađ gamla bítlarokkiđ sitt ađ útjađri pönksins. Jafnframt hefur veriđ sett í gang vel skipulögđ herferđ sem gengur út á ađ telja fólki trú um ađ The Sonics hafi veriđ fyrsta pönkhljómsveit heims. Og nú er hún á The Pulp Lists skilgreind áhrifamesta pönkhljómsveit sögunnar. Ég get ekki kvittađ upp á ađ The Sonics hafi haft nokkur áhrif á pönkiđ. Síst af öllu á hún heima á lista yfir 50 áhrifamestu pönkhljómsveitirnar. Kannski getur hún veriđ í sćti 500. Ađ öđru leyti er listinn ekki alveg út í hött. Eđa hvađ finnst ţér?
2 Ramones
Ramones var eina hljómsveitin í bandarísku pönksenunni á miđjum áttunda áratugnum sem var eins og klćđskerasaumuđ ađ hćtti breska pönksins. Varđ fyrir bragđiđ mun vinsćlli í Evrópu en í Bandaríkjunum.
3 The Clash (ensk)
The Clash var fyrsta og eiginlega eina pönksveitin til ađ verđa súpergrúppa á heimsmćlikvarđa. Í dag er The Clash í hópi stćrstu rokkbanda heims á alţjóđavettvangi. Ég hef 5 sinnum fariđ til Bandaríkjanna og ţađ er skrítiđ ađ heyra lög The Clash spiluđ grimmt í hinum ýmsu útvarpsstöđvuđ sem spila ekki ađeins pönk heldur líka útvarpsstöđvar sem einskorđa sig viđ léttpopp, fönk, reggí, djass...
4 Dead Kennedys
Sprellararnir í Dead Kenndys voru nćstir á eftir Ramones til ađ verđa frćg bandarísk pönksveit á alţjóđavettvangi. Vinsćldir Dead Kennedys voru/eru meiri utan Bandaríkjanna en innan. Ţegar viđ Sćvar Sverrisson, söngvari Spilafífla, rákum pönkplötubúđina Stuđ í upphafi níunda áratugarins fór Sćvar í innkaupaferđ til New York. Í plötubúđ ţar spurđi Sćvar um plötur međ Dead Kennedys. Afgreiđslumađurinn kannađist ekki viđ hljómsveitina og hélt ađ Sćvar vćri ađ hćđast ađ Kennedy-fjölskyldunni. Steitti hnefa og spurđi hvađ Sćvar ćtti viđ međ "Dauđum Kennedyum". Sćvar ţurfti ađ útskýra máliđ međ tilvísun í hljómsveitina.
1987 keypti ég plötu međ Dead Kennedys í plötubúđ í Florida. Síđhćrđur afgreiđslumađurinn sagđi viđ mig međ ţunga: "Mér ber skylda til ađ vara ţig viđ ađ ţessi plata inniheldur klám og óţverra orđbragđ." Ég svarađi: "Ţađ er gaman. Ég ţekki ţessa plötu. Hún er ansi hressileg." Ég keypti fleiri plötur í ţessari plötubúđ. Afgreiđslumađurinn setti plötuna međ DK í brúnan poka áđur en hann setti hinar plöturnar í poka og sagđi: "Ţađ er betra ađ börn sjái ekki ţessa plötu."
5 Sex Pistols (ensk)
Flestir ađrir en Bandaríkjamenn myndu setja Sex Pistols í 1. sćti yfir áhrifamestu pönksveitir. Sex Pistols náđu aldrei almennilega inn á Bandaríkjamarkađ. Bandarískir harđlínupönkarar ţekkja ţó hljómsveitina og gera sér grein fyrir ađ Sex Pistols var stórt dćmi í pönkinu. En í ţeirra huga var The Clash ađal númeriđ í bresku pönkbyltingunni.
6 Minor Threat
7 The Misfits
8 Black Flag
9 Bad Religion
10 Crass (ensk)
11 Adolescent
12 Bad Brains
13 Descentend
14 The Exploited (skosk)
15 Agnostic Front
16 7 Seconds
17 Suicidal Tendencies
18 The Stoogies
19 NOFX
20 Pennywise
21 The Damned (ensk)
22 Operation Ivy
23 Subhumans (ensk)
24 D.R.I.
25 Fear
26 Angry Samoans
27 Social Distorion
28 Agent Orange
29 Reagan Youth
30 T.S.O.L.
31 Cirkle Jerk
32 Dag Nasty
33 D.O.A. (kanadísk)
34 The Germs
35 D.I.
36 Stiff Little Fingers (írsk)
37 Rancid
38 Lagwagon
39 Sick of It All
40 Propagandhi (kanadísk)
41 Husker Du
42 The Dead Milkmen
43 Down by Law
44 The Big D and the Kids Table
45 The Vandals
46 Screeching Weasel
47 Face to Face
48 S.O.D. (Storm Troopers of Death)
49 Total Chaos
50 No Use for a Name
Tónlist | Breytt 23.9.2009 kl. 21:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (21)
20.9.2009 | 20:37
Sami flytjandi á 14 af 17 söluhćstu plötum heims í síđustu viku
Ţađ er sjaldgćft ađ sami flytjandi eigi í sömu viku 2 af 20 söluhćstu plötum heims. Ţađ hefur ţó gerst örfáu sinnum. Ég minnist ţess ekki ađ sami flytjandi hafi átt 3 af 20 söluhćstu plötum heims samtímis. Ţó má vera ađ ţađ hafi gerst í kjölfar dauđa Mikjáls Jacksonar. Hitt er alveg víst ađ aldrei áđur hefur sami flytjandi átt 14 af 17 söluhćstu plötum heims samtímis. Hljómsveitin sem afrekađi ţetta í vikunni 10. - 16. september 2009 spilađi síđast saman fyrir fjórum áratugum. Á stuttum ferli sló hún ótal sölumet. Mörg standa enn. Til ađ mynda ađ í júní 1964 átti hún 6 vinsćlustu lögin í Bandaríkjunum. Auk ţess fleiri lög neđar á bandaríska vinsćldalistanum. Ţetta ár, 1964, átti hljómsveitin 60% af heildarsölu platna í Bandaríkjunum.
Bítlaplötur hafa selst í 1,2 milljarđi eintaka. Ţađ er fyrir utan sólóplötur liđsmanna Bítla. Ţćr hafa flestar selst í góđu upplagi. Nćst söluhćsti flytjandinn, Presley (nei, ég er ekki ađ meina söngvarann í The Troggs heldur hinn), hefur selt tćpan milljarđ platna. Plötuferill hans spannađi röska tvo áratugi en plötuferill Bítlanna 7 ár. Ţriđji söluhćsti flytjandinn, Abba, hefur selt um 500 milljónir platna. Ég vil sem fćst vita um ţá drepleiđinlegu hljómsveit.
Ástćđan fyrir mikilli sölu á plötum Bítlanna í dag er talin vera sú ađ ţćr voru nýveriđ gefnar út í hreinna "sándi" en áđur. Um svipađ leyti var settur á markađ einhver Bítlatölvuleikur. Viđ ţađ er eins og Bítlaćđi hafi skolliđ á heimsbyggđina.
Ţetta voru söluhćstu plötur liđinnar viku (innan sviga er fjöldi seldra eintaka):
1. Jay-Z: Blueprint 3 (489.000)
2. Bítlarnir: Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band (258.000)
3. Bítlarnir: Abbey Road (243.000)
4. Bítlarnir: Hvíta albúmiđ (230.000)
5. Bítlarnir: Rubber Soul (228.000)
6. Bítlarnir: Revolver (216.000)
7. Bítlarnir: Help! (196.000)
8. Bítlarnir: Magical Mystery Tour (184.001)
9. Bítlarnir: A Hard Day´s Night (184.000)
10. Bítlarnir: Please, Please Me (178.000)
11. Bítlarnir: With The Beatles (172.000)
12. Bítlarnir: Beatles For Sale (170.000)
13. Bítlarnir: Let It Be (154.000)
14. Bítlarnir: Past Masters (153.000)
15. Whitney Houston: I Look To You (140.000)
16. Mai Kuraki: All My Best (137.000)
17. Bítlarnir: Yellow Submarine (121.000)
Til gamans má geta ađ fyrra lagiđ er frá 1963 en seinna frá 1969. Fyrra lagiđ var lokalag á hljómleikum Bítlanna ţví ţađ slátrađi alltaf raddböndum Johns Lennons.
Seinna lagiđ var hugsanlega níđsöngur Pauls um Yoko Ono, kćrustu Johns. Paul hefur ţó alltaf ţrćtt fyrir ţađ. Fullyrđir ađ ţađ hafi aldrei hvarflađ ađ sér ađ ráđast ađ henni alveg burt séđ frá ţví ađ hann hafi ekki veriđ sáttur viđ hvernig hún kom inn í feril Bítlanna. Ţađ er ţó ekki alveg hćgt - međ vilja - ađ útiloka kenninguna ţví Paul er diplómat: Gefur oftar í skyn fremur en segja hlutina beint út.
Athygli vekur ađ rythmagítarleikarinn John er ţarna sólógítarleikari. Sólógítarleikari Bítlanna, George Harrison, var í fýlu út í Paul og sagđist ekki nenna ađ taka viđ fyrrskipunum hans um sólógítar í laginu. Paul böggađist aldrei í John, öfugt viđ út í Ringo og George. Ringó er flottur í laginu.
Tónlist | Breytt 21.9.2009 kl. 02:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (25)
17.9.2009 | 22:09
Hver er besta plata Megasar?
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (50)
15.9.2009 | 23:29
Anna á Hesteyri - örfá minningarorđ
Hér fyrir neđan eru nokkrar skemmtilegar sögur af Önnu Mörtu Guđmundsdóttur frćnku minni frá Hesteyri í Mjóafirđi. Hún lést ađfaranótt gćrdags áttrćđ ađ aldri. Fađir Önnu og fađir mömmu minnar voru brćđur. Anna var einkabarn aldrađra foreldra sinna. Hún var ađ ofvernduđ af foreldrum sínum og batt sína bagga ekki sömu böndum og ađrir.
Anna var međ góđa eđlisgreind en vegna einangrunar kom hún sér upp sérkennilegum skođunum. Hún var náttúrubarn fram í fingurgóma og tók ung einarđa afstöđu međ trúarviđhorfum ađventista.
Ćskuminningar mínar af Önnu einkennast af bréfum sem voru ítarlegar lýsingar á húsdýrum hennar og foreldra hennar. Viđ, sex systkini, fengum reglulega frá Önnu löng bréf, hvert um sig. Ţar tíundađi hún ţađ sem helst hafđi á daga húsdýra hennar drifiđ. Hún endurtók ekkert frá einu bréfi til annars. Hún skrifađi um dýrin sín eins og um nána ćttingja/vini vćri ađ rćđa.
Eftir ađ ég flutti til Reykjavíkur á unglingsárum kynntist ég Önnu í persónu. Hún heimsótti mig og mína fjölskyldu og samskipti urđu meiri. Ţegar hún heimsótti mig á auglýsingastofuna sem ég vann á lagđist vinna niđur og vinnufélagarnir grétu úr hlátri undir frásögnum Önnu af sér og sínum. Ţó var ţađ ekki ćtlun Önnu ađ koma fólki til ađ hlćgja. Ţađ var bara ekki annađ hćgt.
Eftir ađ símataxti á Íslandi varđ eitt markađssvćđi var Anna dugleg ađ hringja í mig. Ţau símtöl skildu mig oftar en ekki í hláturkrampa yfir vangaveltum Önnu um lífiđ og tilveruna. Hún hafđi sterkar skođanir á öllu og öllum. Ţćr skođanir voru oft frumlegar og hún velti upp flötum sem ég hafđi aldrei hugsađ út í.
Eitt sinn barst mér bréf frá Önnu sem innihélt einnig fjölda ljósmynda af mömmu og fleiri ćttingjum. Utan á umslaginu stóđ: "Heimilisfólkiđ á Grettisgötu". Póstburđarmanneskjan hafđi greinilega fćrt ţetta umslag hús frá húsi viđ Grettisgötu dögum saman. Á umslaginu var gamall dagstimpill og ţađ hafđi veriđ rifiđ upp.
Anna velti sér aldrei upp úr smáatriđum varđandi póstáritun. Fyrir síđustu jól hringdi í mig kona. Henni hafđi borist jólakort frá Önnu Mörtu. Konan ţekkti Önnu ekki persónulega og vissi ađ kortiđ var ekki til sín. Á umslaginu stóđ ađeins: "Kristín Jónsdóttir, Reykjavík". Sem betur fer vissi ég hver átti ađ vera viđtakandi kortsins. Sú býr í Kópavogi, sem, jú, er stutt frá Reykjavík.
Mér ţykir líklegt ađ Anna verđi jörđuđ í fjölskyldugrafreitnum á Hesteyri. Ţar hvíla foreldrar hennar og afi minn og amma. Anna var áđur búin ađ gefa út yfirlýsingu ţess efnis ađ vilja verđa síđasta manneskja greftruđ ţar. Hinsvegar tók hún fram ađ ef hún félli frá í öđrum landshluta mćtti ekki eyđa peningum í ađ flytja kistu hennar til Mjóafjarđar. Ţeim kostnađi ćtti frekar ađ verja til ţeirra sem minna mega sín í ţjóđfélaginu.
Á seinni árum tók Anna ađ sér róna frá Reykjavík. Ţar á međal ýmsa landfrćga. Ţegar Anna ámálgađi fyrst viđ mig ađ hún vildi fá ađ taka ađ sér róna frá Reykjavík sagđi hún ađ rónar vćru svo skemmtilegir. Bogi og Örvar í Spaugstofunni vćru hennar uppáhald. "Rónarnir í Spaugstofunni eru lang skemmtilegastir," sagđi Anna.
Hér eru nokkrar sögur af Önnu á Hesteyri:
Vinir og fjölskylda | Breytt 16.9.2009 kl. 22:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (38)
14.9.2009 | 00:36
Bestu og verstu bloggarar landsins
Í helgarblađi DV er opnugrein um bestu og verstu bloggara landsins. Úttektin leggur út af niđurstöđu 15 álitsgjafa. Ég er ekki alveg viss en held ađ hver álitsgjafi nefni 3 bestu og 3 verstu bloggarana. Mér til ómćldrar gleđi er ég á lista yfir bćđi bestu og verstu bloggara landsins. Rökin fyrir ađ ég sé einn af verstu bloggurum eru ţau ađ ég sé: "Besserwisser sem telur sig vita allt best".
Ţađ er gaman. Besserwisser er sá sem er yfirmáta fjölfróđur. Ţađ er ég hinsvegar ekki. Ég er fáfróđur en geri mikiđ úr ţví litla sem ég veit. Nákvćmari lýsing hefđi átt ađ vera: "Gefur sig út fyrir ađ vera besserwisser..." En samt. Ţađ er skemmtilegt ađ vera (ranglega) skilgreindur besserwisser.
Lára Hanna hefur yfirburđi sem besti bloggarinn. Hún er vel ađ ţeim titli komin. Ég er henni ekki alltaf sammála. Ţađ skiptir ekki máli. Blogg hennar er eins og fjölmiđill út af fyrir sig. Hún leggur rosalega mikla vinnu í bloggiđ sitt. Ég skil ekki hvernig hún nennir ađ hlađa inn á blogg sitt heimildum sem sumar spanna mörg ár aftur í tímann. Ég kvitta glađur undir ađ Lára Hanna sé besti bloggari landsins.
Verra ţykir mér ađ Stefán Friđrik Stefánsson sé útnefndur versti bloggarinn. Sagđur hafa eyđilagt fréttabloggiđ og vera konung endurvinnslunnar. Ég kann vel viđ blogg Stefáns. Kíki oft inn á hans bloggsíđu. Hann bćtir fróđleiksmolum viđ fréttir Moggans og liggur ekki á sínum skođunum. Hann er íhald af gamla skólanum (Sjálfstćđisflokksmađur) en gagnrýninn á sitt fólk. Opinskár og heiđarlegur og samkvćmur sjálfum sér.
Daglegur fjöldi innlita á bloggsíđu Stefáns vćri ekki sá sem raun ber vitni nema vegna ţess ađ fólk hefur áhuga á ţví sem ţar er í bođi.
Samkvćmt niđurstöđu DV veitir Jón Valur Jensson Stefáni harđa samkeppni sem versti bloggarinn. Jón Valur er sakađur um trúarhrćsni, leiđindi og ýta undir hatur, misklíđ og heiftúđskap.
Egill Helgason er nćst besti bloggarinn.
Gaman vćri ađ hlera álit ykkar á bestu og verstu bloggurum. En vinsamlegast sniđgangiđ mitt nafn í umrćđunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (133)
13.9.2009 | 20:48
Heiđra minningu Helga Hóseasonar međ sönglagi
Simmi og Jói kallast tvíeyki sem ţekktast er fyrir ađ vera kynnar í sjónvarpsţáttunum Ćdol á Stöđ 2. Ţeir halda úti bloggsíđu og - ađ ég held - útvarpsţćtti. Ég er ekki klár á hvađa útvarpsstöđ. Hef ţó grun um ađ ţađ sé á Bylgjunni. Nú hafa ţessir drengir hljóđritađ sönglag til ađ heiđra minningu Helga Hóseasonar. Lagiđ má heyra á: http://blogg.visir.is/simmiogjoi/2009/09/12/vi%c3%b0-hei%c3%b0rum-minningu-helga-hoseassonar-me%c3%b0-lagi-mp3/#comments. Ţegar smellt er á rauđlitađ nafn Helga hefst spilun á laginu.
Ţetta er ljómandi gott hjá drengjunum og fallegt uppátćki. Áreiđanlega eiga ţeir eftir ađ setja lagiđ einshversstađar á netiđ ţar sem hćgt verđur ađ hala ţví niđur.
Til gamans má rifja upp ađ rokksveitin Atomstöđin gaf fyrir nokkru út plötu sem var tileinkuđ Helga Hóseasyni. Helgi tók ţví vel en ţótti músíkin viđbjóđur (sennilega notađi hann annađ orđ). Enda lítiđ fyrir rokkiđ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
12.9.2009 | 23:06
Frábćrt innlegg í umrćđuna
Margir hafa tjáđ sig um íslenska efnahagsviđundriđ. Sitt sýnist hverjum. Og ekki síst hvert framhald á ađ vera á nćstu skrefum til lausnar út úr vandanum. Eitt besta innlegg í umrćđu dagsins er ađ finna á heimasíđu fjölmiđlafrćđinga sem halda úti heimasíđu er kallast landpóstur og vísa ég ţá sérstaklega á: http://landpostur.is/news/frystum_eignir_audmanna_/
Ljósmyndina af hugmyndafrćđingi efnahagshrunsins, Hannesi á horninu, tók Helgi J. Hauksson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.9.2009 kl. 13:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
11.9.2009 | 23:50
Ţađ er eitthvađ skrítiđ viđ ţessar myndir
Ţađ er eitthvađ viđ ţessar ljósmyndir sem einhvernveginn passar ekki alveg. Hvađ er međ ţennan krana?
Eđa rauđa bílinn međ kerruna? Er kerran ekki einkennilega stađsett á akbraut?
Hér er greinilega Jesú međ börnum. En er rofinn ekki stađsettur á sérkennilegum stađ?
Jú, dömurnar taka sig vel út. En hvađ er ţetta međ bílinn? Á hann ađ snúa svona?
Á tćkinu stendur ađ ţađ spóli DVD myndir á byrjunarreit. Mínar DVD myndir gera ţađ sjálfkrafa án ađstođar svona tćkis. Engu ađ síđur fylgir sögu ađ tćkiđ mokseljist. Ţegar horft hefur veriđ á DVD mynd til enda ţarf ađeins ađ skella ţví í ţetta tćki og ef menn vilja horfa á myndina aftur er diskurinn settur aftur í DVD spilarann og myndin hefst aftur á byrjun.
Til hvers er der á derhúfu?
Ég er fćddur og uppalinn í sveit í útjađri Hóla í Hjaltadal. Ég kannast ekki viđ ţennan höfuđbúnađ.
Hvađ var Einar Jónsson ađ pćla međ ţessu höggmyndarlistaverki? Karlinn virđist liggja nakinn á spena á kúnni. Ég kannast ekki viđ svona úr sveitinni.
Á skiltinu er varađ viđ lágflugi.
Spaugilegt | Breytt 12.9.2009 kl. 21:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (90)
11.9.2009 | 01:57
Stóri dagurinn runninn upp: 11. september
Dagsetningin 11. september er greypt í vitund okkar sem munum eftir ţví ţegar fasistar steyptu í blóđugri byltingu lýđrćđislega kjörinni stjórn í Chile 1973. Viđ tók ógnarstjórn Pinochets sem einkenndist af aftökum á pólitískum andstćđingum í ţúsundatali, hryllilegum pyntingar á pólitískum andstćđingum í tugţúsundatali og frjálshyggja.
11. september er líka merkur dagur fyrir ţađ ađ í kvöld verđur nýtt íslenskt barnaleikrit, Horn á höfđi, frumsýnt í Grindavík. Höfundar eru Bergur Ţór Ingólfsson og Guđmundur Brynjólfsson leikhúsfrćđingur. Um tónlistina sér Villi naglbítur.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (35)
9.9.2009 | 21:52
Hvađ er ţetta međ Bítlana?
Breska hljómsveitin Bítlarnir er áberandi um ţessar mundir. Svo mjög ađ kalla má Bítlaćđi. Ég var ađ glugga í útlend músíkblöđ í dag. Ţau skarta forsíđumyndum af Bítlunum og innsíđur eru undirlagđar umfjöllun um Bítlana. Í kvöld voru hérlendis haldnir hljómleikar ţar sem íslenskir popparar fluttu Bítlalög og lög af sólóplötum forsprakka Bítlanna, Johns Lennons. Ţegar ég tala um John sem forsprakka Bítlanna er ég ađ vísa til ţess ađ hljómsveitin var afsprengi hljómsveitarinnar Quarrymen sem hann fór fyrir. Hćgt og bítandi bćttust ţeir viđ sem síđar urđu ţekktasta útgáfan af Bítlunum: Bassaleikarinn Paul McCartney, gítarleikarinn George Harrison og trommarinn Ringo Starr.
Framan af var John fyrirliđi hljómsveitarinnar. Áđur en yfir lauk og eftir ţví sem eiturlyfjaneysla Johns jókst fćrđist hljómsveitarstjórn ađ verulegu leyti yfir á hendur Pauls. George sagđi eftir ađ Bítlarnir hćttu ađ ţeir Ringo hafi alltaf litiđ á John sem leiđtoga hljómsveitarinnar ţótt ţeir hafi sćtt sig ađ mestu - og međ ólund - viđ stjórnsemi Pauls. Báđir hćttu á sitthvorum tíma um hríđ í Bítlunum vegna stjórnsemi Pauls. Ţeir tilkynntu John um brotthvarf sitt en ekki Paul. En látum ţađ liggja milli hluta. John og Paul voru turnarnir tveir í Bítlunum. Í mínum huga voru ţeir tvíeykiđ Lennon-McCartney og ég geri ekki upp á milli ţeirra. Ţannig lagađ.
Ég keypti áđan nýjasta hefti breska poppblađsins Mojo. Ţví fylgir diskur sem inniheldur öll lögin af síđustu plötu Bítlanna, Abbey Road, krákuđ (cover) af Cornershop, Robyn Hitchcock, Gomez og fleiri. Blađiđ hefur áđur gefiđ út fylgidiska međ krákum af öđrum Bítlaplötum. Ţađ er ekki erfitt fyrir Mojo ađ smala saman lögum á ţessa diska. Hvert einasta Bítlalag hefur veriđ krákađ af ţekktum poppurum. Sum lögin af allt ađ 2000 flytjendum sem tilheyra ólíkum músíkdeildum: Djassi, kammersveitum, pönki, kórum, progi, kántrýi, ţungarokki, tölvupoppi og svo framvegis.
Oft heyri ég Bítlunum hallmćlt og ţeir taldir ofmetin hljómsveit. Oftast vegna ţess ađ ţeir sem halda ţessu fram telja Bítlana hafa veriđ léttvćgt poppfrođuband. Vissulega er yfirdrifiđ nóg af léttpoppi á plötum Bítlanna. Bunki af lögum sem mér ţykja leiđinleg. Á móti vegur ađ á plötum Bítlanna er einnig ađ finna sprćk rokklög, sýru, furđulega framúrstefnu, ţungan blús, djass, heimspopp (world music) og allskonar öđruvísi lög. Ég hef mörgum sinnum sett saman (brennt) diska međ Bítlalögum sem komiđ hafa formćlendum Bítlanna í opna skjöldu. Í öllum tilfellum međ ţeim árangri ađ viđkomandi hefur orđiđ ađdáandi Bítlanna.
Ţađ merkilega viđ vinsćldir Bítlanna er ađ hljómsveitin starfađi stutt. Fyrsta platan, Please Please Me, kom út 1963. Síđasta alvöru hljóđversplatan, Abbey Road, kom út 1969. Hljómsveitin starfađi síđast saman ţađ ár en opinberlega hćtti hún 1970. Síđan eru liđnir 4 áratugir og margar hljómsveitir náđ háum hćđum. En ţađ eru Bítlarnir sem eru fyrirferđarmestir í dag.
Fá lög er ađ finna međ Bítlunum á youtube. Ég fann ţó tvo létta Bítlablúsa. Gaman vćri ađ heyra viđhorf ykkar til Bítlanna. Mér ţykir gaman ađ ţrefa um Bítlana.
Tónlist | Breytt 10.9.2009 kl. 23:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (65)
8.9.2009 | 20:45
Sprenghlćgilegar merkingar
Manneskjan sem vinnur í ţessari matvörubúđ virđist ekki vita hvađ viđkomandi ávöxtur heitir. Eđa hvort manneskjan reiknar međ ađ viđskiptavinirnir viti ekki hvađ banani er. Ađ minnsta kosti er sérkennilegt ađ merkja bananana sem "Bogna gula ávöxtinn á 40 cent".
Af lögun ţessa umferđarmerkis er nćsta víst ađ um stöđvunarskyldu er ađ rćđa. Gárungi hefur brugđiđ á leik vegna snjólagsins sem hylur merkiđ og skrifađ "Halda áfram".
Ţađ er ekki ađ undra ađ seljandi ţessara sítróna veki athygli á ađ ţćr henti fullkomlega í ađ búa til appelsínusafa. Hann veit sem er ađ flestir halda ađ appelsínur séu heppilegri ţegar veriđ er ađ búa til appelsínusafa.
Bílnúmer međ blöndu af bókstöfum og tölustöfum geta oft myndađ skemmtilega útgáfu. Hér mynda bókstafirnir nafniđ Guđ og tölustafirnir 666. Samkvćmt kenningum ţeirra sem trúa á guđ er 666 tákn djöfulsins.
Verđmiđinn hefur lent ofan á fremsta staf á nafni framleiđandans á ţessum kattamat. Vegna ţess virđist varan heita "Endaţarms draumórar".
Sorgmćddur rúmenskur ađdáandi Michaels Jackssonar hefur brugđiđ á ţađ ráđ ađ deila harmi sínum međ viđskiptavinum. Til ađ heiđra minningu Michaels Jacksonar hefur ađdáandinn slegiđ upp sérstöku tilbođi á miđ-austurlenskum kjötrétti: Ef keyptir eru 3 skammtar fylgir sá 4đi međ sem kaupauki til minningar um Michael Jackson.
Á spjaldinu stendur "Ósýnilegt límband". Vissulega er ekkert límband ađ sjá. Ummerki benda ţó til ađ einhver hafi hnuplađ límbandinu af spjaldinu.
Ein ţekktasta plata rokksögunnar er "Wish You Were Here" (Ég vildi óska ađ ţú vćrir hér) međ Pink Floyd. Á skyrtubolnum hefur orđinu "bjór" veriđ skipt inn í stađinn fyrir "hér".
Nafn bókarinnar er "Lćkningamáttur krabbameins". Höfundurinn er kona sem útlistar í heilli sjálfshjálparbók hvernig krabbameinssjúklingar geta notađ meintan lćkningamátt krabbameinsins. Ţađ voru raddir í höfđi konunnar sem laumuđu ţessum fróđleik ađ henni. Hún heldur ţví fram ađ sérstök ástćđa liggi ađ baki ţví ađ fá krabbamein og ţví fylgi blessun. Bókin fćst í búđum sem selja nýaldarvörur.
Reyndar er ég ekki viss um ađ myndin sýni umrćdda bók. Undirtitillinn ţarna er "Músík til slökunar fyrir líkama og sál" og stćrđin á pakkningunni passar viđ geisladisksumbúđir. Kannski er kerlingin ađ fylgja bókinni eftir međ geisladisk?
Spaugilegt | Breytt 9.9.2009 kl. 05:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
8.9.2009 | 18:06
Taktu laugardagskvöldiđ frá
Ţađ verđur heldur betur líf og fjör og skemmtilegt nćstkomandi laugardagskvöld. Ţađ er betra og öruggara ađ taka laugardagskvöldiđ frá í tćka tíđ. Ţetta gefur fólki úti á landsbyggđinni gott tćkifćri til ađ bregđa sér í borgarferđ og ţeim sem eru staddir erlendis ástćđu til ađ skjótast upp á Klakann og velta sér upp úr ónýtri krónu.
Eins og sést á myndinni hér fyrir ofan eru ţađ risarnir tveir í íslensku ţungarokki, Sólstafir og XIII, sem munu trođa upp í Sódómu Reykjavík á laugardaginn, klukkan 22.00. Um Sólstafi vísa ég til http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/919886/. Ţetta verđa síđustu hljómleikar Sólstafa á Íslandi í bili. Hljómsveitin er ţétt bókuđ erlendis nćstu vikur og gott ef hljómsveitin er ekki búsett í Bretlandi.
XIII verđur međ "classic line up" af meistaraverkinu Salt sem kom út 1993.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
7.9.2009 | 22:38
Hugljúf og örstutt saga af miđaldra manni
Líf Palla var eins og tilvera uppvaknings. Hann ţurfti ekki ađ hugsa. Ţess vegna sleppti hann ţví. Á hverjum degi endurtók hann án hugsunar sömu hluti og hann hafđi áđur gert í áratugi. Hann vaknađi á morgnana, fékk sér kókópöffs á međan hann renndi í gegnum Fréttablađiđ. Um leiđ og hann lagđi frá sér blađiđ var hann búinn ađ gleyma hvađ stóđ í ţví. Svo var mćtt í vinnuna. Ţar stóđ Palli viđ fćribandiđ og endurtók sömu handtökin allan daginn. Á kvöldin sofnađi Palli yfir heimskulegum ţáttum á Skjá 1 sem eru alveg eins og allir hinir ţćttirnir.
Bćkur | Breytt 8.9.2009 kl. 14:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
6.9.2009 | 23:22
Bráđskemmtilegar ljósmyndir af rónum
Margir hafa undrast hvers vegna flestir rónar líta úr eins og nýkomnir úr góđu átaki í líkamsrćkt ţegar ţeir voru í raun bara á nokkurra daga fylleríi. Nú hefur rannsókn leitt í ljós ađ ţegar langdrukknir menn komast í tiltekiđ ölvunarástand ţá leitar líkami ţeirra ósjálfrátt í helstu jógastellingar, eins og sjá má á međfylgjandi ljósmyndum. Manneskjan á myndunum til vinstri er ađ mestu edrú. Hún stundar jóga.
Ţessi stelling kallast "Savasana" sem ţýđir fullkomin afslöppun. Fólk fer oftast í hana í lok jógatíma eđa í lok erfiđs drykkjudags.
"Balasana" heitir ţessi stelling. Í henni er upplifun á friđ og ró sterkust. Galdurinn er ađ fótleggir og tćr ţurfa ađ snerta gólf eđa jörđu. Höfuđ slútir niđur en annar hluti búksins er ofar.
"Setu Bandha Sarvangasana" er nafniđ á ţessari erfiđu ćfingu. Fótleggir snúa beint niđur en lćri og magi liggja ofar. Hendur, herđar og höfuđ ţurfa ađ liggja á gólfi eđa jörđu. Stellingin hvílir ţreytt lćri um leiđ og hún róar hugann.
Hér eru kviđur og hryggjasúla styrkt međ stellingunni "Marjayasana". Fótleggir liggja samhliđa eftir gólfi eđ jörđu, lćri eru lóđrétt og bakiđ er bogamyndađ.
Ţessi flókna stelling kallast "Halasana". Hún vinnur gegn bakverkjum og svefnleysi. Hún er svo öflug ađ sumir sofna í henni. Mikilvćgt er ađ höfuđ liggi á gólfi eđa jörđu og bakiđ sé ţráđbeint upp í loft.
Ekki má gleyma ađ styrkja axlasvćđiđ og brjósthol. Ţađ er gert međ ćfingunni "Dolpin". Mađurinn framar á myndinni til hćgri telur sig vera međ svo ágćtt brjósthol og axlir ađ hann sleppir ţessari ćfingu.
Ţá er komiđ ađ "Salambhasana" til ađ styrkja mjóhrygg og fćtur. Nauđsynlegt er ađ hćlar séu hćsti punktur og hendur liggi eftir hliđum. Ef undirlag er gott er ćskilegt ađ höfuđ liggi einnig hátt. Mađurinn á myndinni til hćgri fann ekki gott undirlag en gerir sitt besta í ţeim ađstćđum.
Höfuđ og bak ţurfa ađ liggja ţétt á gólfi eđa jörđu og fćtur mynda efsta punkt. Ćfingin, "Ananda Balasana", er góđ fyrir mjađmirnar.
Í lokaćfingunni er tekiđ á honum stóra sínum í "Malasana". Trixiđ er ađ fćtur standa á gólfi eđa jörđu og rass látinn ná nćstum ţví jafn langt niđur en má ţó ekki snerta undirlagiđ. Ćfingin styrkir bakvöđva og ökkla.
Spaugilegt | Breytt 7.9.2009 kl. 05:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (123)
5.9.2009 | 22:44
Kvikmyndarumsögn
- Titill: Reykjavík whale watching massacre
- Leikarar: Helgi Björnsson, Guđrún Gísladóttir, fjöldi útlendinga og fleiri
- Handrit: Sjón
- Leikstjóri: Júlíus Kemp
- Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
- Einkunn: ** (af 5)
Ég er rosalega jákvćđur ţegar ég horfi á nýja íslenska kvikmynd. Ţá sest ég glađur niđur, leiđi ađ mestu hjá mér ţađ sem miđur fer en fagna ţeim mun meira ţví sem betur heppnast. Ţegar leiđ á Reykjavík whale watching massacre fjarađi jákvćđnin út. Viđ tóku geispar og andvörp.
Ţađ hljómar ekki vel ađ segja ţetta. Og myndin er ekki alvond. Handritiđ er klárlega miklu betra en myndin. Söguţráđurinn er fínn og samtöl vel skrifuđ. Barnalegar ranghugmyndir sumra hvalavina og rasismi eru teygđ sundur og saman í háđi. Tónlistin er frábćr. Leikarar standa sig međ prýđi. Stjörnurnar eru Guđrún Gísladóttir og Helgi Björnsson.
Međ úrvals leikara, handrit eftir Sjón og tónlist eftir Hilmar Örn Hilmarsson hefđi útkoman átt ađ verđa snilld. En leikstjóranum, Júlíusi Kemp, tekst ađ klúđra ţessu góđa hráefni sem hann er međ í höndunum. Júlíus hefur áđur afrekađ ţađ ađ leikstýra lélegustu kvikmynd Íslandssögunnar, Blossa. Ţađ má nota um Reykjavík whale watching massacre orđatiltćkiđ ađ góđur biti fari í hundskjaft (ć, ţetta hljómar vođa ruddalega).
Nafniđ Reykjavík whale whatching massacre segir um hvađ myndin fjallar: Hvalskođunarhóp sem lendir í höndum á morđóđri fjölskyldu.
Myndin er kynnt sem spennuhrollvekja. Hún stendur ekki undir ţeirri lýsingu. Margar senur bjóđa reyndar upp á spennu og hroll. En leikstjórinn nćr ekki ađ koma spennunni og hryllingnum til skila. Áhorfandinn finnur ekki til samúđar međ fórnarlömbum ofbeldisins og er sama um örlög ţeirra. Ţar fyrir utan eru persónurnar myrtar svo snöggt og fumlaust ađ morđin verđa eins og hálfgerđ aukaatriđi. Persónurnar eru kannski á spjalli. Svo flýgur haus af. Blóđ spýtist í nokkrar sekúndur. Síđan er klippt yfir í nćstu senu. Ţetta er allt eitthvađ svo hrátt og nakiđ. Ţađ er ekkert skiliđ eftir fyrir ímyndunarafliđ. Ţađ er engum lúmskum vísbendingum plantađ í undirmeđvitund áhorfandans til ađ framkalla óţćgindatilfinningu og vekja upp ugg varđandi ţađ sem mun gerast.
Ţó mikiđ sé um blóđ í myndinni og fjöldi manns meiddur eđa drepinn ţá er hún grínmynd fremur en annađ. Samt er hún eiginlega ekki nógu fyndin til ađ vera flokkuđ sem grínmynd.
Í bíóhléinu var ég alvarlega ađ íhuga ađ sleppa ţví ađ horfa á seinni hlutann. Mér leiddist undir myndinni. Ég harkađi ţó af mér og horfđi á myndina til enda. Ég hefđi alveg mátt sleppa ţví. Í seinni hlutanum leystist myndin einhvernveginn upp. Eftir hrađann um miđbik myndarinnar hćgđi klaufalega á og fátt bar til tíđinda. Enda flestar persónurnar dauđar.
Mér ţykir mjög miđur ađ geta ekki mćlt međ Reykjavík whale watching massacre sem góđri kvöldskemmtun.
Kvikmyndir | Breytt 6.9.2009 kl. 00:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)