Fćrsluflokkur: Matur og drykkur
30.3.2019 | 05:45
Plötuumsögn
- Titill: Sacred Blues
- Flytjandi: Tholly´s Sacred Blues Band
- Einkunn: *****
Hljómsveitin er betur ţekkt sem Blússveit Ţollýjar. Á komandi hausti hefur hún starfađ í sextán ár. Ţollý Rósmundsdóttir syngur af innlifun, ásamt ţví ađ semja lög og texta. Hún hefur sterka, dökka en blćbrigđaríka söngrödd. Hún sveiflast frá blíđum tónum upp í kröftugan öskurstíl. Virkilega góđ söngkona.
Ađrir í hljómsveitinni eru gítarleikarinn Friđrik Karlsson (Mezzoforte), trymbillinn Fúsi Óttars (Bara-flokkurinn), bassaleikarinn Jonni Ricter (Árblik); og Sigurđur Ingimarsson spilar á ryţmagítar og syngur. Allir fantagóđir í sínum hlutverkum. Mest mćđir á Friđriki. Hann fer á kostum. Meiriháttar! Međ sömu orđum má lýsa Sigurđi í ţví eina lagi sem hann syngur á plötunni.
Hjörtur Howser skreytir eitt lag međ snyrtilegu Hammondorgelspili. Blásaratríó skreytir tvö lög. Ţađ er skipađ Jens Hanssyni, Ívari Guđmundssyni og Jóni Arnari Einarssyni.
Gestahljóđfćraleikararnir skerpa á fjölbreytni plötunnar sem er ríkuleg. Sjö af tólf lögum hennar eru frumsamin. Fimm eftir Ţollý og sitthvort lagiđ eftir Friđrik og Sigurđ.
Erlendu lögin eru m.a. sótt í smiđju Howlin Wolf, Mahaliu Jackson og Peters Green. Öll vel kunnar perlur. Lag Peters er "Albatross", best ţekkt í flutningi Fleetwood Mac. Hérlendis kannast margir viđ ţađ af sólóplötu Tryggva Hubner, "Betri ferđ". Frumsömdu lögin gefa ađkomulögunum ekkert eftir.
Textarnir eru trúarlegir. Ţessi flotta plata fellur ţví undir flokkinn gospelblús. Ég hef ekki áđur á ţessari öld gefiđ plötu einkunnina 5 stjörnur.
Matur og drykkur | Breytt 31.3.2019 kl. 20:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2019 | 06:01
Furđulegur matur
Ég hef nokkrum sinnum sótt Svíţjóđ heim. Reyndar ađeins Stokkhólm. Skemmtileg borg. Góđar plötubúđir. Góđur matur. Víkur ţá sögu ađ sćnsku búđinni Ikea í Garđabć. Henni er stýrt af röggsemi og útjónarsemi af Skagfirđingi. Fyrir bragđiđ er veitingastađur Ikea í Garđabć sá vinsćlasti í heiminum. Međal snjallra trompa er ađ bjóđa upp á fjölbreytta rétti mánađarins. Jafnan eitthvađ gott, ódýrt og spennandi.
Í ţessum mánuđi er bođiđ upp á furđulegan sćnskan rétt, kartöflubollur, svokallađar kroppkakor. Mér virtist sem ţćr samanstandi af hveiti og kartöflum. Kannski smá salti. Inni í hverri bollu er smávegis af svínakjöti. Ţćr eru löđrandi í brćddu smjöri og rjómaskvettu. Títuberjasulta bjargar ţví sem bjarga má. Ţetta er furđulegur matur. Allir fyrri tilbođsréttir Ikea hafa bragđast betur. Undarlegt ađ Svíar sćki í ţennan rétt. Kannski er hann hollur.
Samt. Ţađ er alltaf gaman ađ prófa framandi mat.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
3.2.2019 | 23:27
Samanburđur á Kanada og Bandaríkjunum
Áhugavert og gaman er ađ bera saman Kanada og Bandaríkin. Margt er ólíkt međ skyldum. Löndin liggja saman. Kanada deilir einungis landamćrum međ Bandaríkjunum. Ţau deila hinsvegar líka landamćrum međ Mexíkó. Stöđugur vandrćđagangur er viđ ţau. Kanadísku landamćrin eru vandrćđalaus.
Báđar ţjóđirnar eru enskumćlandi. 35 milljónir Bandaríkjamanna eru ţó spćnskumćlandi. Í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjum kveđa lög á um ađ spćnska og enska séu jafn rétthá. 35% Kanadamanna er frönskumćlandi. Ţar af tala 21% enga ensku.
Kanada er nćst stćrsta land heims ađ flatarmáli (á eftir Rússlandi). Bandaríkin eru í 3ja sćti. Kanada er smáţjóđ í samanburđi viđ Bandaríkin ţegar kemur ađ íbúafjölda: 37 milljónir á móti 325 milljónum.
Ţjóđarréttur Bandaríkjamanna er skyndibiti af öllu tagi: Pizza, hamborgari, kjúklingabitar og kleinuhringir. Ţjóđarréttur Kanada kallast poutine. Uppistađa hans eru franskar kartöflur, mjúkur skjannahvítur sósulegur ostur (ystingur) og ţykk brún kjötsósa. Međ má vera smávegis grćnmeti og smá kjöt.
Svo skemmtilega vill til ađ kanadíski poutine-rétturinn er í bókstaflegri merkingu kenndur viđ Frakka, rétt eins og frönsku kartöflurnar sem hann byggir á. Sumir vilja meina ađ franskar kartöflur séu upphaflega komnar frá Belgíu. Rétt eins og belgískar vöfflur. Ţetta dettur ekki af himni ofan.
Gjaldmiđill Bandaríkjanna og Kanada er dollar, táknađur međ $. Bandaríski dollarinn er alţjóđleg mynt. Ekki sá kanadíski.
Í sunnanverđum Bandaríkjunum er veturinn hlýr og notalegur. Veturinn í Kanada er svalur.
Allir forsćtisráđherrar Kanada eru og hafa veriđ bleiknefjar. Bandaríkin hafa átt hvíta forseta, hörundsdökkan forseta og appelsínugulan forseta.
Matur og drykkur | Breytt 4.2.2019 kl. 12:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
28.1.2019 | 01:21
Ódýr matur
Matarverđ í Toronto í Kanada er töluvert lćgra en á Íslandi. Eins og flest annađ. Ţar ađ auki er skammturinn vel útilátinn. Í stađ ţess ađ leifa helmingnum komst ég upp á lag međ ađ kaupa matinn "take away". Ţannig dugđi hann í tvćr máltíđir. Matarsóun er til skammar. Á veitingastađ sem heitir Caribbean Taste er - á milli klukkan 11.00 - 15.00 - seldur kjúklingur (BBQ eđa karrý) á 610 ísl. kr. Hann er borinn fram međ góđri hrúgu af fersku salati og hrísgrjónum međ nýrabaunum.
Á Caribbean Taste er maturinn afgreiddur í pappabakka međ loki. Ég gat ţví snćtt inni á stađnum og tekiđ afganginn međ mér. Ţađ var ljúft ađ flýta sér hćgt á stađnum. Notaleg ópoppuđ reggí-músík hljómađi á góđum styrk. Á vegg blasti viđ stór mynd af Bob Marley.
Grillađur lax er á 728 kr. Eftir klukkan 15.00 hćkkar verđiđ um 40% eđa meir. Kjúklingurinn er ţá kominn í 855 kr. og laxinn í 1080 kall.
Á nálćgum morgunverđarstađ fékk ég rétt sem heitir "Simple 2 eggs". Spćld egg, beikon, ristađar brauđsneiđar (önnur međ hnetusmjöri, hin međ jarđaberjamauki) og stór plastskál međ blönduđum ávaxtabitum. M.a. ananas, jarđaberjum, appelsínum og bláberjum. Ávextirnir voru heil máltíđ út af fyrir sig. Rétturinn kostađi 837 kr.
Dýrasta máltíđin sem ég keypti var á Eggspectation. 1360 kr. Hún samanstóđ af tveimur lummum (amerískum pönnukökum). Ofan á ţeim var sitthvor stóra og ţykka pönnusteikta skinkusneiđin. Ţar ofan á voru spćld egg. Yfir var heit hollandaise sósa. Međlćti voru djúpsteiktar ţunnt skornar kartöflusneiđar, stór melónusneiđ og tvćr ţykkt ţverskornar appelsínusneiđar (önnur blóđappelsína).
Nćst dýrasta máltíđin sem ég keypti kostađi 1256 kr. Hún var á Maja Indian Cuisine, indverskum veitingastađ. Ţar fćr viđskiptavinurinn ađ velja sér 3 rétti af mörgum úr tveimur hitaborđum. Međlćti er ferskt salat, hrísgrjón og hlussustórt bragđgott nanbrauđ. Ég valdi lamb í karrý, kjúkling í karrý og framandi rétt sem leit girnilega út en var eiginlega eins og ágćt hnausţykk súpa. Indverski pakkinn dugđi mér í 3 máltíđir.
Ég fann matvöruverslun sem selur heitan mat úr hitaborđi. Hćgt er ađ velja úr ţremur-fjórum réttum sem "rútinerast" dag frá degi. Stundum lax. Stundum kjúklingabitar. Borgađ er fyrir réttinn en ekki er rukkađ fyrir međlćti á borđ viđ grćnmeti og steikta kartöflubáta. Verđiđ er 800 - 900 kr.
Algengt verđ á hálfslítra bjórdós er 184 kr.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
22.1.2019 | 05:54
Smásaga um ungt fólk
Hann hafđi aldrei fariđ á dansleik áđur. Frá 16 ára aldri hafđi hann ţó nokkrum sinnum fariđ á hljómleika. En nú var hann mćttur á dansleik. Hann var rétt svo búinn ađ koma sér fyrir viđ barinn er ađ honum vék sér gullfalleg dama. Hún spurđi hvort ađ hann vćri til í dans. Hann var til í ţađ. Tók samt fram ađ hann hefđi aldrei dansađ. Hún blés á ţađ: "Ekki máliđ. Viđ reynum bara ađ samhćfa einhvern takt." Ţađ gekk áfallalaust fyrir sig. Hann var nokkuđ sáttur viđ frammistöđu sína. Hafđi reyndar ekki samanburđ.
Ađ dansi loknum spurđi hún: "Ertu til í panta einhverja spennandi kokteila á međan ég skrepp á salerni?" Hann var til í ţađ. Hún yrđi ađ velja. Hann ţekkti enga kokteila. Hún stakk upp á ţví ađ hann léti barţjóninn velja. Hann tók vel í ţađ.
Eftir nokkra framandi og bragđgóđa kokteila lá beinast viđ ađ ţau fćru saman heim til hans. Ţar fćkkuđu ţau fötum ţegar í stađ. Er hún skreiđ undir sćngina til hans hvíslađi hún: "Nú er komiđ ađ fjármálunum. Semjum um greiđsluna." Honum dauđbrá. Varđ afar vandrćđalegur. Hikstandi og stamandi stundi hann upp međ erfiđismunum: "Fjármál eru ekki mín sterkasta hliđ. Púff! Ég ţekki ekki taxtann. Ég hef aldrei lent í ţessari stöđu. Segjum bara ađ ţú borgir mér tíuţúsundkall og máliđ er dautt."
Matur og drykkur | Breytt 24.1.2019 kl. 17:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2019 | 00:02
Álit ferđamanns
Oft er gaman ađ heyra eđa lesa hvernig útlendir ferđamenn upplifa Ísland. Á netmiđlinum quora.com spyr ung kona frá Singapore í fyrirsögn: "Hve dýrt er Ísland?" Hún svarar sér: "Stutta svariđ er mjög."
Hún fór í 8 daga hringferđ um Ísland. Kíkti á Vestfirđi í leiđinni. Hún var í 5 manna hópi sem tók jeppa á leigu. Leigan var 134.200 kall. Hún hvetur ađra túrhesta á Íslandi til ađ ferđast saman í hópi til ađ halda kostnađi niđri. Jafnframt hvetur hún til ţess ađ keypt sé bílatrygging. Framrúđan í bílnum sprakk vegna steinkasts.
Bensínkostnađur var 48.800 kr. Á veitingastöđum kostar ađalréttur um 3660 kr. Á móti vegur ađ bensínsjoppur selja heitt ruslfćđi á borđ viđ pylsur, hamborgara og franskar. Kostnađur er á bilinu 976 til 1220 kall. Mín athugasemd: Hiđ rétta er ađ pylsa kostar víđast á bilinu 400 - 450 kall. Kannski ţarf 2 pylsur til ađ teljast vera máltíđ?
Daman bendir á ađ hćgt ađ kaupa samlokur í Bónus-verslunum. Sumar álíka verslanir selji líka heitan mat. Sennilega er hún ađ vísa til Krónunnar sem selur heitan kjúkling, sviđakjamma og ţurusteik.
Gistikostnađur hverja nótt á mann var 9760 kall á mann. Notiđ greiđslukort, segir hún. Íslenskar krónur eru verđlausar utan Íslands.
Niđurstađa hennar: Já, Ísland er dýrt. En hverrar krónu virđi!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
20.12.2018 | 04:06
Veitingaumsögn
- Stađur: Sćgreifinn
- Stađsetning: Geirsgata 8 í Reykjavík
- Réttur: Kćst skata
- Verđ: 2350 kr.
- Einkunn: ****
Sćgreifinn er skemmtilega hrár veitingastađur međ sterkan persónuleika (karakter). Hann er í senn "heimilislegur" og heillandi. Andi stofnandans, Kjartans Halldórssonar, svífur yfir og allt um kring. Hann var bráđskemmtilegur og magnađur náungi sem gustađi af. Féll frá 2015. Í hans tíđ var ánćgjuleg ábót viđ góđa máltíđ ađ rćđa sjávarútvegsmál viđ hann. Alltaf var stutt í húmorinn. Hann sá broslegu hliđarnar í bland viđ annađ.
Eitt af sérkennum Sćgreifans hefur veriđ og er ađ bjóđa upp á kćsta skötu og siginn fisk. Skata er svipuđ frá einum veitingastađ til annars. Hjá Sćgreifanum er hún frekar mild. Međ á disknum eru saltfisksbitar, kartöflur, hamsar og tvćr rúgbrauđssneiđar međ smjöri. Í eftirrétt er hrísgrjónagrautur međ rjóma og kanil, kenndur viđ Steingrím Hermannsson, fyrrverandi forsćtisráđherra.
Einn af mörgum kostum Sćgreifans er hófleg verđlagning. Enginn veitingastađur á höfuđborgarsvćđinu býđur upp á hagstćđara verđ á skötumáltíđ í ár.
Ég geri tvćr athugasemdir viđ skötu Sćgreifans: Annarsvegar er skammturinn alltof ríflegur. Ţađ er ekki möguleiki ađ torga nema helmingi hans. Ţrátt fyrir ađ trođa í sig löngu eftir ađ mađur er orđinn saddur. Hinsvegar sakna ég ţess ađ fá ekki rófubita međ. Í sćlli minningu á ég kćsta skötu á Sćgreifanum međ rófubita.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2018 | 06:23
Veitingaumsögn
- Veitingastađur: Rakang
- Stađsetning: Hraunbćr 102A í Reykjavík
- Réttur: Tćlenskt hlađborđ
- Verđ: 2000 / 2800 kr.
- Einkunn: ****
Rakang er tćlenskur veitingastađur, stađsettur í sama húsnćđi og áđur hýsti veitingastađinn Blástein. Hann rak Ásgeir heitinn Hannes Eiríksson. Ţetta er rúmgóđur stađur sem skiptist upp í nokkra sali. Á góđum helgardegi var bođiđ upp á dansleiki.
Fyrir ókunnuga er erfitt ađ finna stađinn. Hraunbćr 102 teygir sig yfir nokkur hús í grennd viđ Orku bensínsölu. Til ađ finna 102a ţarf ađ keyra niđur fyrir eitt húsiđ.
Asísk hlađborđ eru hvert öđru lík. Enda eru ţau iđulega blanda af tćlenskum mat, víetnömskum og kínverskum. Hlađborđiđ á Rakang samanstendur af kjúklingabitum í sósu, ţunnt skornu nautakjöti í sósu, djúpsteiktum svínakjötstrimlum, djúpsteiktum fiski, djúpsteiktum vćngjum og tveimur núđluréttum međ grćnmeti. Međlćti eru hvít hrísgrjón, grćn karrýsósa, rauđ karrýsósa og súrsćt sósa.
Maturinn er bragđmikill og góđur. Á borđum eru flöskur til ađ skerpa enn frekar á bragđi. Ţćr innihalda soyja sósu, sterka chilli sósu og sterka mayones sósu.
Enginn laukur er í matnum, ólíkt ţví sem algengt er í asískum mat. Ţeim mun meira er af grćnmeti á borđ viđ gulrćtur, papriku og blómkáli.
Í hádegi er hlađborđiđ á 2000 kr. Á kvöldin er ţađ 2800 kall. Innifaliđ er kaffi og gosdrykkir.
Ljósmyndirnar njóta sín betur ef smellt er á ţćr.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2018 | 07:27
Hvers vegna ţessi feluleikur?
Á níunda áratugnum vann ég á auglýsingastofu. Einn daginn kom Ingvar Helgason á stofuna. Hann rak samnefnda bílasölu. Hann sagđist vera ađ gera eitthvađ vitlaust. Hann vćri búinn ađ kaupa fjölda heilsíđuauglýsinga í dagblöđunum um tiltekinn bíl án viđbragđa.
Ţegar ég skođađi auglýsingarnar blasti vandamáliđ viđ. Í ţeim var bíllinn lofsunginn í bak og fyrir. Hinsvegar vantađi í auglýsingarnar hver vćri ađ auglýsa; hver vćri ađ selja bílinn. Lesandinn gat ekki sýnt nein viđbrögđ.
Ég á fleiri sögur af fyrirtćkjum sem auglýsa hitt og ţetta án upplýsinga um ţađ hver er ađ auglýsa og hvar hćgt er ađ kaupa auglýstu vöruna.
Í vikunni birtist í Fréttablađinu heilsíđuauglýsing undir fyrirsögninni "Combo-tilbođ". Ţar voru myndir af mat og drykk, brauđmeti og allskonar á tilbođsverđi. Ţađ er ađ segja lćkkuđu verđi - ađ ţví er má skiljast.
Undir auglýsinguna er kvittađ "netgíró Kvikk". Ekkert heimilisfang. Engin vísbending um hvort um er ađ rćđa sjoppu á Reyđarfirđi eđa í Keflavík, Stokkseyri eđa Hofsósi.
Ég sló inn netgíró.is. Fyrirbćriđ reyndist vera einhverskonar peningaplottsdćmi. Lánar pening, gefur út greiđslukort og hengir fólk eđa eitthvađ.
Ég sló inn "kvikk.is". Ţar reyndist vera bifreiđaverkstćđi. Eftir stendur ađ ég hef ekki hugmynd um hver er ađ selja pylsu og gos á 549 kall. Ţangađ til ég kemst ađ ţví kaupi ég pylsu og gos í Ikea á 245 kall. Spara 304 krónur í leiđinni.
Matur og drykkur | Breytt 3.11.2018 kl. 18:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
25.9.2018 | 04:00
Auglýst eftir konu
Eftirfarandi frásögn svipar til brandara sem fór eins og eldur í sinu á níunda áratug síđustu aldar.
Fćreyskur piltur, Klakksvíkingurinn John Petersen, fékk sér far međ Dúgvuni, farţegabáti sem siglir á milli Klakksvíkur og Leirvíkur. Um borđ keypti hann lakkrís og súkkulađistykki. Sćtaskipan er ţannig ađ allir sitja til borđs međ öllum. Ókunnug stúlka settist viđ sama borđ og John. Skyndilega tekur hún sig til og brýtur vćnan bita af súkkulađinu. Honum ţótti ţetta "ódönnuđ" framkoma. Lét samt eins og ekkert vćri og fékk sér sjálfur vćnan súkkulađibita. Hún braut sér annan bita. Ţá fór ađ síga í John. Til ađ tapa ekki restinni upp í stúlkuna gerđi hann sér lítiđ fyrir og sporđrenndi henni međ látum eins og langsoltinn hundur.
Kominn á land í Leirvík varđ John á ađ fálma í úlpuvasa sinn. Ţar fann hann súkkulađiđ ósnert. Rann ţá upp fyrir honum ađ hann vćri dóninn. Ekki stúlkan. Hann hafđi étiđ súkkulađi hennar. Hún var horfin úr sjónmáli. Ţess vegna hefur hann nú tekiđ til bragđs ađ auglýsa eftir henni. Honum er í mun ađ biđjast afsökunar og útskýra hvađ fór úrskeiđis.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 06:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (28)