Passið ykkur á þjófum

  Nýverið vaknaði ung fyrirsæta eða fegurðardrottning eða listdansari,  Bryndís Jónsdóttir,  upp við það að hún kom ekki upp orði.  Hún brá við skjótt,  lagði saman tvo og tvo.  Niðurstaðan varð sú að önnur fyrirsæta eða poppstjarna eða listdansari,  Ásdís Rán,  hafi stolið röddinni hennar.  Síðan hafa þær ekki rætt saman.  Enda Bryndísi stirt um mál eftir að röddinni hennar var stolið.

  Ásdís Rán þvertekur fyrir að hafa rænt röddinni frá Bryndísi.  Rán á rödd annarrar manneskju er alvarlegt mál.  Ásökun um slíkt rán er sömuleiðis alvarlegt mál.  Ekki síst þegar sú sakborna heitir Ásdís RÁN. 


mbl.is Leigubílstjóri rændur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sá þetta einmitt á forsíðu Séð og heyrt og velti vöngum yfir því hvort landinn hafi nú loks endanlega snappað.  Ég varð sjálfur svo orðlaus yfir dellunnunni að ég var að hugsa um að hringja í 112 og tlkynna rán á einu stykki orðaforða.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.5.2010 kl. 20:59

2 identicon

Rán á rödd(ina) eða Rán á rödd(inni)...?

Matthías (IP-tala skráð) 15.5.2010 kl. 23:34

3 Smámynd: Jens Guð

  Jón Steinar,  ég er líka svo orðlaus og vankaður að ég hef ekki náð að setja mig inn í þetta undarlega mál.  En reyni að átta mig á því án þess að kaupa Séð & heyrt.  Stundum þegar ég er að keyra út vörum á sólbaðsstofur er svo mikið þar að gera að ég gríp í S&H á meðan mestu lætin ganga yfir.  Ég verð alltaf ringlaður þegar ég les það merka tímarit.  Skil hvorki upp né niður.  Ekki síst þegar þar birtast furðulegar ljósmyndir af mér.  Þó hjálpa þær við að rifja upp fyrir mér hvar ég var nokkrum dögum áður.

Jens Guð, 15.5.2010 kl. 23:35

4 Smámynd: Jens Guð

  Matthías,  þegar stórt er spurt vefst manni tunga um höfuð.

Jens Guð, 15.5.2010 kl. 23:36

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég veit ekki hver maðurinn er á myndbandinu.  En ég veit til þess að kunningi minn hefur lent í samskonar dæmi í 10-11.  Þarna er greinilega á ferð öryggisvörður eða lögga sem kann sitt fag.  Öfugt við lögguna sem missti stjórn á skapi sínu í 10-11 og réðist með ofbeldi á saklausan dreng og frægt varð.  Sú lögga hafði sér til afsökunar að hafa orðið fyrir einelti sem barn og unglingur.  En það dugði ekki til samúðar.

Jens Guð, 15.5.2010 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband