Djöflahorn

djöflahorn 1djöflahorn 2

  Dauðsfall bandaríska þungarokkssöngvarans Ronnie James Dio hefur blásið hressilegu lífi í umræðu og vangaveltur um það tákn sem kallast djöflahorn.  Djöflahorn eru mynduð þannig að hnefinn er krepptur en vísifingur og litliputti látnir vísa sperrtir út í loftið.  Þetta þykir svipa til útlits lítils höfuðs með vegleg horn.

  Ronnie gekk til liðs við bresku þungarokkshljómsveitina Black Sabbath 1979.  Fyrirrennari hans þar við hljóðnemann,  Ozzy Osbourne,  var (og er) vanur að veifa til áhorfenda tákni sem kallast friðarmerki.  Það er myndað með krepptum hnefa en vísifingur og langatöng spennt út í loftið þannig að þau mynda stafinn V (victory = sigur).  

OzzyOsbourne

  Þetta friðartákn var allt að því einkennismerki Ozzy og Black Sabbath.  Ronnie James Dio vildi ekki herma algjörlega eftir Ozzy en þótti sniðugt að veifa djöflahornum í staðinn.  Ronnie lærði táknið af ítalskri ömmu sinni.  Þegar hún bauð börnum góða nótt veifaði hún þessu tákni í merkingunni "Varaðu þig á djöflinum!"  

  Ímynd Black Sabbath gekk út á daður við djöfladýrkun og kukl.  Ronnie þótti djöflahornin smellpassa við þá stemmningu.  Sem þau og gerðu.  Fjöldi annarra þungarokkara fór að flagga döflahornum.  Áður en langt um leið urðu djöflahornin einskonar kveðjutákn þungarokkara.

  Ronnie var hinsvegar ekki fyrstur rokkara til að veifa djöflahornum.  Bítillinn John Lennon átti til að bregða djöflahornum á loft um og upp úr miðjum sjöunda áratugnum.  Í hans tilfelli átti táknið að vera ástarkveðja.  Það átti að líkjast hjarta.  

  Á umslagi Bítlaplötunnar  Guli kafbáturinn  sést Lennon veifa djöflahornum.  Nokkru síðar fór hann að glugga í fræðum kuklarans Alesters Crowleys og uppgötvaði að kuklarar túlkuðu þetta sem djöflatákn.  Lennon var þá snöggur að skipta yfir í friðartáknið.  Hann hélt sig við það eftir þetta.

lennon - friðarmerki

  Þungarokkararnir - aðrir en Ozzy - hafa aftur á móti haldið sig við djöflahornin.  Hér eru Marilyn Manson,  Slipknot,  Flea (Red Hot Chili Peppers) og aularnir í Anvil:

djöflahorn 3 mmansondjöflahorn 6 slipknotdjöflahorn 5 fleadjöflahorn 7 anvil

  Rapparar hafa á seinni árum einnig tileinkað sér djöflahornin.  Hér er það Snoop Doggy Dogg í Metallica bol:

djöflahorn 4 sdoggydogg

  Brúskur forseti missti sig stundum í djöflahornum og allskonar rugli þó samstarfsfólk hans harðbannaði honum að veifa þessu tákni framan í ofurkristna íhaldsmenn.  Karl Rowe hýddi Brúsk alltaf í einrúmi eftir svona klúður.  Brúski fannst það gaman.

djöflahorn 8 brúskur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Coven frá Bandaríkjunum var fyrsta hljómsveitin til að flagsa djöflahornunum, gott djöfla psychedelic band þar á ferð!

http://en.wikipedia.org/wiki/Coven_(band)

Hreyzi (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 19:37

2 Smámynd: Jens Guð

  Hreyzi,  bestu þakkir fyrir ábendinguna. 

Jens Guð, 15.6.2010 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.