Ganga flestir um naktir heima hjá sér?

two_virgins

  Þetta er ekki beinlínis könnun heldur spurning sem kviknaði þegar ég hlustaði á útvarpsþátt.  Ljómandi skemmtilegan og áhugaverðan útvarpsþátt um heilsu og eitthvað svoleiðis.  Það var verið að ræða við konu.  Fróða konu um heilsu, fegurð og neglur.  Hún var eitthvað að tala um það þegar fólk fer úr hlýju húsi út í nístandi vetrarhörkur.  Ég tók ekki almennilega eftir en held að hún hafi talið það hafa vond áhrif á neglur eða húð eða eitthvað.  Nema í miðri þessari frásögn tók hún þannig til orða:  "Yfirleitt hefur fólk 22ja gráðu hita inni hjá sér.  Flestir vilja geta stríplast heima hjá sér."

  Mér er kunnugt um að John & Yoko gengu iðulega um nakin heima hjá sér.  Sömuleiðis hafa fréttir birst af vandræðagangi starfsmanna og foreldra Britney Spears við að koma henni í brækur heima við.  Reyndar ku vera ennþá meira vandamál að fá hana til að þrífa sig.  Hún forðast bað og sturtu svo vikum og mánuðum skiptir.  En það er annað mál.  Þrátt fyrir þessi dæmi hafði ég ekki hugmynd um að FLESTIR gangi um naktir heima hjá sér.  Ég hélt að það væru bara frægu og skrýtnu poppstjörnurnar í útlöndum.

  Nú hefur Yoko,  næstum áttræð,  lýst því yfir að hún ætli að halda upp á sjötugs afmæli Johns á Íslandi 9. október. Nakin?   

fri_arsulan.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég prófaði að vera alltaf nakinn heima hjá mér, reif mig úr öllum fötum um leið og ég kom heim. Komst að því að það hentar ekki þegar maður á heima á jarðhæð í blokk. Örugglega allt annað að búa efst í Dakóta-byggingunni með útsýni yfir Central Park og Strawberry Fields.

Hólímólí (IP-tala skráð) 28.8.2010 kl. 10:36

2 Smámynd: Ómar Ingi

Örugglega allt annað að búa efst í Dakóta-byggingunni með útsýni yfir Central Park og Strawberry Fields.

TRUE DAT.

Ómar Ingi, 28.8.2010 kl. 15:24

3 Smámynd: Halla Rut

Unglingurinn yrði nú glaður með það ef ég gengi hér um nakinn ahhahah eða þannig :)

Halla Rut , 28.8.2010 kl. 17:36

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Jens. Ég er handviss um að þetta er mun algengara en menn halda. Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 28.8.2010 kl. 18:11

5 identicon

Ég er alltaf vidbúinn eins og skátarnir.  Klaeddur í jakkaföt frá morgni til kvölds og skiptir engu máli hvar ég er staddur.  Hef reyndar varabindi í vasanum.  Ég tek til daemis aldrei af mér skóna allan daginn.  Hef sérstaka plastpoka sem ég nota sem "skóhlífar" ef fólk bidur mig um ad taka af mér skóna. 

Gríni sleppt thá finnst mér ágaett ad sokkalaus og í mjúkum fötum innandyra.

Gjagg (IP-tala skráð) 28.8.2010 kl. 18:38

6 identicon

ad vera sokkalaus

Gjagg (IP-tala skráð) 28.8.2010 kl. 18:39

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sefur þú líka í jakkafötum og skóm Gjagg?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.8.2010 kl. 21:08

8 Smámynd: Jens Guð

  Hólimóli,  þetta rifjar upp frægt lögreglumál.  Fyrir 15 eða 20 árum kærði gömul kona í Breiðholti nágranna fyrir að stríplast og ofbjóða með því blygðunarkennd konunnar. 

  Þegar löggan mætti á staðinn til að sannreyna ósköpin kom í ljós að gamla konan þurfti að fara upp á stól úti á svölum hjá sér og teygja sig vel út fyrir svalirnar til að sjá inn um glugga strípalingsins.  Löggunni þótti sú gamla leggja heldur mikið á sig til að hægt væri að fylgja kærunni eftir.

  Ég man ekki hvort það var Spaugstofan eða áramótaskaup sem tók þetta fyrir.     

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:08

9 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  er Strawberry Fields ekki í Liverpool?

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:09

10 Smámynd: Jens Guð

  Halla Rut,  það á að ganga fram af og hneyksla unglinga hvenær sem færi gefst.  Það var ráð CIA þegar Bítlaæðið skall á í Bandaríkjunum.  Það voru haldin námskeið fyrir foreldra til að kenna þeim að þykjast vera með meira Bítlaæði en unglingarnir á heimilinu til að unglingarnir yrðu fráhverfir þessari hræðilegu unglingauppreisn sem Bítlaæðið var.

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:13

11 Smámynd: Jens Guð

  Kolbrún,  þetta er kannski rétt hjá þér.  Ég er fæddur og uppalinn á fjölmennu heimili í útjaðri Hóla í Hjaltadal.  Þar tíðkaðist ekki að fólk væri að stríplast heima hjá sér.  En það er svo margt allt öðru vísi hér á höfuðborgarsvæðinu.

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:15

12 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  þetta rifjar upp fyrir mér þegar ónefndur maður keypti sér í fyrsta skipti splunkunýjan bíl.  Sætin voru klædd í hlífðarplast sem kallinn fjarlægði ekki þó það væri mjög asnalegt að sitja í bílnum þannig.  Sömuleiðis hafði kallinn stolið af sjúkrahúsi sem kona hans vann á plastpokaskóhlífum.  Farþegar fengu ekki að stíga inn í bílinn öðru vísi en setja á sig þessar skóhlífar.

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:20

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Naktir heima hjá sér? Það mætti einu sinni lögregla vegna þess að það heyrðist byssuhvellur í íbúð i Breiðholtinu og nágranninn hringdi. Og þá kom nakin maður til dyra, með handklæði um sig miðjan. Hann var svo tregur að hleypa lögreglunni inn í íbúðinna og þeir voru nærri búnir að fá húsrannsóknarheimild í gegnum sima. Menn eru ekki á skotæfingum naktir heima hjá sér á hverjum degi....

Það lá sprunginn plastkona í rúminu hans og þá flýtti lögreglan sér í burtu og nágrannarnir fóru heim...

Óskar Arnórsson, 28.8.2010 kl. 23:20

14 Smámynd: Jens Guð

  Axel,  það gerði Ástþór Magnússon þegar þáverandi fyrrverandi rússnesk kona hans bað lögregluna um að fjarlægja hann af heimili hennar.  Ástþór stökk undir sæng og þóttist vera sofandi og hraut þar þegar löggan mætti á staðinn.  Er löggan lyfti af honum sænginni var kappinn þar í jakkafötum og skóm.

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:22

15 Smámynd: Jens Guð

  Óskar,  ég man eftir þessu dæmi.  Þetta varð frægt í blokkinni sem kallinn bjó í. 

  Ég man líka eftir frásögn þekktrar konu sem sagði frá því í blaðaviðtali að hún lenti í,  ja,  kannski ekki alveg eins dæmi.  En samt.  Hún fór í sturtu og kallinn hennar fór út í búð.  Þegar konan var að ljúka sturtubaðinu var hamast á dyrabjöllunni í blokkaríbúð þeirra.  Konan gekk út frá því sem vísu að kallinn hafi gleymt lyklum og hljóp til að opna fyrir honum.  Þá voru þar mættir einhverjir fulltrúar sýslumanns með stefnu eða eitthvað svoleiðis.  Konan áttaði sig ekki strax á því að hún var nakin fyrr en hún sá hvað gestirnir urðu vandæðalegir.   

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:27

16 Smámynd: Óskar Arnórsson

Jahá! Það er sjálfsagt gaman í vinnunni hjá Sýslumanni af og til...

Óskar Arnórsson, 28.8.2010 kl. 23:31

17 Smámynd: Jens Guð

  Óskar,  það er stundum rosa fjör á þeim bæ.

Jens Guð, 28.8.2010 kl. 23:48

18 identicon

Strawberry Fields nefnist líka minningareitur um John Lennon í Central Park, skammt frá Dakóta-byggingunni þar sem Yoko Ono býr enn.

Hólímólí (IP-tala skráð) 29.8.2010 kl. 17:58

19 identicon

Þess má geta að þar verður margt um manninn þann 8. desember næstkomandi þegar þrjátíu ár eru liðin frá því að John Lennon var myrtur fyrir utan Dakóta-bygginguna ... í sirka 150 metra fjarlægð frá minningarreitnum.

Hólímólí (IP-tala skráð) 29.8.2010 kl. 18:03

20 Smámynd: Jens Guð

  Hólímóli,  takk fyrir þessar upplýsingar.  Ég vissi þetta ekki.  Ómar Ingi hefur verið að vísa í þetta í "kommenti" #2.

Jens Guð, 29.8.2010 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband