Ófyrirgefanlegt klúđur hjá IKEA

kalkunn_lifandi_1182154.jpg

 

 

kalkúnn tilbúinn til eldunar

  Húsgagnaverslunin IKEA í Hafnarfirđi býđur ţessa dagana upp á ţakkargjörđarhátíđarkalkún ásamt međlćti.  Hugsanlega er tilefniđ ađ á dögunum héldu Kanadamenn hátíđlegan haustfagnađ Indíána, svokallađa ţakkargjörđarhátíđ.  Nokkru síđar héldu Bandaríkjamenn ţennan sama haustfagnađ hátíđlegan og kalla hann sömuleiđis ţakkargjörđarhátíđ.

  Á haustfagnađinum er rótgróin hefđ ađ hafa á borđum fylltan kalkún ásamt maís, trönuberjasósu og fleiru.  Ţetta er jafn fastur siđur og hangikjötiđ og jafningurinn á Íslandi á jóladag.

  Verđiđ á ţakkargjörđarhátíđarkalkúninum hjá IKEA er 995 kr.  Húrra fyrir ţví.  Verra er ađ máltíđin stendur ekki undir nafni.  Jú,  skammturinn er alveg ríflegur.  En án trönuberjasultu.  Ţakkargjörđarhátíđarkalkúnn er ekki ţakkargjörđarhátíđarkalkúnn án trönuberjasulta.  Ţetta er hneyksli!

  Mér var svo brugđiđ ţegar engin var trönuberjasultan ađ matarlystin hvarf eins og dögg fyrir sólu.  Mér fannst kalkúnasneiđarnar ekki nógu ţurrar.  Ţađ var eins og ţćr vćru vćttar.  Kannski drógu ţćr svona í sig safann úr rauđkálinu.  Hann flaut.  

  Ég hef ekki oft né víđa í Bandaríkjunum (og aldrei í Kanada) snćtt hátíđarkalkún í heimahúsi.  En í ţau skipti sem ţađ hefur gerst eru hvorki rauđkál né brúnađar kartöflur međlćti. Brúnuđu kartöflurnar í IKEA passa engu ađ síđur glettilega vel međkalkúni.  Rauđkáliđ á sennilega ađ vera stađgengill trönuberjasultu.  En ţví er ekki saman ađ jafna.  Ţetta er jafn fráleitt og ađ hafa franskar kartöflur međ hangikjöti í stađ sođinna kartafla í uppstúfi. 

  Fyrir ykkur sem matreiđiđ kalkún um jólin mćli ég eindregiđ međ kryddblöndu sem heitir Best á kalkúninn.  Og í allra guđanna bćnum hafiđ trönuberjasultu međ.  Ţannig og ađeins ţannig verđur kalkúnaveisla alvöru hátíđarmatur.

  Nćst ćtla ég ađ prófa hangikjötsréttinn í IKEA.  Ef hann er án jafnings verđ ég fyrir jafn miklum vonbrigđum og međ kalkúninn.  Hinsvegar verđur spennandi ađ komast ađ ţví hvort hangikjötsmáltíđin kosti 895 kr. eins og stendur á auglýsingaspjaldi viđ innganginn í matsalinn eđa 995 kr. eins og stendur á verđlista fyrir ofan matborđiđ.  Verulega spennandi.  Ég hlakka til og lćt ykkur vita.

 bestakalkuninn


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Má koma međ sultukrukku međ sér?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.11.2012 kl. 22:20

2 Smámynd: Jens Guđ

  Jóhannes Laxdal,  ţar komstu međ góđa lausn á vandamálinu!  Ţegar ég tékka á hangikjötinu tek ég međ mér - til öryggis - nýlagađan jafning í potti. 

Jens Guđ, 27.11.2012 kl. 22:36

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ekki gleyma kúmeninu! ţađ er toppurinn

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.11.2012 kl. 22:43

4 Smámynd: Jens Guđ

  Jóhannes,  takk fyrir ábendinguna.  Ţetta verđ ég ađ prófa. 

Jens Guđ, 27.11.2012 kl. 23:09

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Ég skrapp í Ikea á fimmtudaginn var og fékk mér pylsu.  Hún var alveg ágćt, mér fannst kalkúnninn of dýr.

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 28.11.2012 kl. 01:22

6 Smámynd: Jens Guđ

  Jóna Kolbrún,  fólk virđist almennt ánćgt međ pylsurnar í IKEA.  Ekki síst ţegar verđ er boriđ saman viđ ađra pylsusölustađi. 

Jens Guđ, 28.11.2012 kl. 11:49

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Ţađ jafnast samt ekkert á viđ sćnsku kjötbollurnar međ sósu, sultu og kartöflum í Íkea, hvar sem sú verslun annars er á norđurlöndunum já og víđar.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 28.11.2012 kl. 20:30

8 Smámynd: Jens Guđ

  Ásthildur Cesil,  ég kannast viđ sćnsku kjötbollurnar í IKEA og kann vel ađ meta ţćr.  Ljómandi bragđgóđur réttur á góđu verđi.

Jens Guđ, 28.11.2012 kl. 21:46

9 identicon

Er Ikea ekki í Garđabć?

Hörđur Stefánsson (IP-tala skráđ) 9.12.2012 kl. 21:33

10 Smámynd: Jens Guđ

  Hörđur,  kannski tilheyrir ţetta landsvćđi Garđabć.  Takk fyrir ábendinguna.

Jens Guđ, 9.12.2012 kl. 22:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband