Hrútur heimsótti prest

Föroya bjór

  Á þessum árstíma eru hrútar hafðir í húsi.  Oftast svokölluðum hrútakofa.  Þar eru þeir í góðu yfirlæti.  Fengitími kinda nýafstaðinn og hrútarnir nokkuð sáttir.  Þeim er fært á silfurfati gott hey og una hag sínum vel.  Á sumum bæjum er hrútunum hleypt út daglega til að drekka íslenskt ferskvatn í nálægum læk.  Það kunna þeir vel að meta.  Þeir vita fátt betra og hollara en íslenskt ferskvatn.  Enda vita þeir ekki að bjór er ennþá betri og hollari svaladrykkur.

  Í héraðsblaðinu Skessuhorni á Vesturlandi segir frá hrúti sem brá sér óvænt í bæjarferð.  Hann heimsótti prestinn á Grundarfirði.  Ekki fer sögum af því hvað þeim,  hrútnum og presti,  fór á milli.  Né heldur hvort hrúturinn taldi sig eiga einhverja harma að hefna hjá presti eða hvort um sakleysislega kurteisisheimsókn var að ræða.  Ekki fylgdi heldur sögu hvort hrúturinn og presturinn stönguðust á.  Hrútum þykir fátt skemmtilegra en stangast á.  Ég veit ekki með presta.

  Hitt veit ég;  að á færeysku kallast hrútur veðrur.  Það er framborið vegrur.  Síðar í vikunni læt ég húðflúra á vinstri framhandlegg merkið hér fyrir ofan.  Það mun "harmónera" vel við hægri handlegginn sem skartar húðflúruðu landakorti af Færeyjum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Ég borðaði um helgina hrút
  og hellt í mig rauðvíni af stút,
  ég vissi að ég væri
  vandlát á læri,
  en þetta sló öllu út.
  
                                    Ef til vill undaneldi þessarar myndar skepnu.
 

Helga Kristjánsdóttir, 2.2.2010 kl. 02:26

2 Smámynd: Kama Sutra

Þökkum fyrir á meðan hrútarnir (og prestarnir) detta ekki í mjólkurþambið.

Kama Sutra, 2.2.2010 kl. 05:05

3 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  takk fyrir limruna.

Jens Guð, 2.2.2010 kl. 11:44

4 Smámynd: Jens Guð

  Kama Sutra,  ég hef lengi vitað að mjólk er varasöm. 

Jens Guð, 2.2.2010 kl. 11:46

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta minnir mig á snillinginn Dave Allen. Ef guð hefði skapað konuna fyrst,þá byrjaði frenjan að heimta  já og svo 3 svona.

Helga Kristjánsdóttir, 2.2.2010 kl. 16:48

6 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  takk fyrir það!

Jens Guð, 2.2.2010 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband