15.11.2012 | 01:22
Besta aðferð til að þrífa ketti og hunda
Ég sá þessa góðu uppskrift á fésbókarsíðu Önnu Sigríðar Karlsdóttur. Uppskriftin á erindi við alla sem halda ketti eða hunda sem heimilisdýr. Þetta er borðliggjandi frábær aðferð þegar vel er að gáð. Hún er svona og númeruð til að allt fari fram í réttri röð. Það er mikilvægt: Það var hundurinn á heimilinu sem fann upp þessa aðferðin við að þvo ketti og hvíslaði henni að heimilisfólkinu. Það sem hvutti veit ekki er að þetta hentar einnig við þrif á hundum.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.11.2012 | 22:41
Bruce Springsteen segir frá íslenskri konu
Vinna við heimildarkvikmynd um Brúsa frænda (Bruce Springsteen) er komin á fljúgandi skrið. Nafn myndarinnar verður "Springsteen & I". Myndin er samvinnuverkefni þriggja kvikmyndafyrirtækja. Þau eru: Ridley Scott Associates, Black Dog Films og Scott Free London. Uppskriftin að myndinni er sótt í margverðlaunaða mynd Scott Free London, "Life In A Day".
Á heimasíðu Brúsa er upplýst að framleiðandi (producer) myndarinnar sé Svana Gísla. Svana er meðeigandi í Black Dog Films. Ég veit fátt um Svönu annað en að hún hefur eitthvað komið að myndböndum fyrir Sigur Rós.
Á heimasíðu Brúsa eru aðdáendur hvattir til að senda Svönu frásagnir af því á hvern hátt Brúsi og tónlist hans hafa haft á líf viðkomandi. Svana segir að það skipti ekki máli hvort frásögn sé frá aðdáendum sem eru nýbúnir að uppgötva Brúsa eða hvort þeir séu búnir að vera harðlínuaðdáendur í fjóra áratugi. Svana biður líka um sögur af foreldrum, ættingjum, nágrönnum eða öðrum sem séu ákafir safnarar á Brúsa-plötum.
Frestur til að senda inn frásagnir eru til 29. nóv. Netfang Svönu er gefið upp: info@springsteenandi.com . Fólki er einnig boðið að hringja í Svönu. Símanúmerið er hinsvegar ekki gefið upp. Það er skrítið.
Brúsi er eitt stærsta nafnið í rokkinu. Nafn Svönu Gísla ætti því að verða þekkt á heimsvísu eftir að hafa verið kynnt á heimasíðu kappans. Brúsi er þekktur fyrir þátttöku í ýmsum mannúðarmálum. Til að mynda var hann á dögunum duglegur við að safna hjálparfé til stuðnings þeim sem eiga um sárt að binda eftir fellibylinn Sandy. Hann hefur einnig lagt Amnesty International lið og túrað undir merkjum þessa helsta málsvara samviskufanga heims. Svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir fjórum árum tók Brúsi í fyrsta skipti þátt í beinni stjórnmálabaráttu með því að styðja forsetaframbjóðandann Hussein Obama. Þeir eru góðir vinir. Svana Gísla á væntanlega eftir að verða tíður gestur í Hvíta húsinu.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2012 | 21:35
Skammarlega illa lagt. Broslegar / neyðarlegar myndir
Fyrir nokkrum dögum velti ég vöngum - hér á þessum vettvangi - yfir framförum Íslendinga í umferðinni og á fleiri sviðum. Ennþá eiga Íslendingar samt margt ólært. Þar á meðal að leggja ekki í bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Það er að segja að bílstjórar með óskerta hreyfigetu virði þessi stæði og láti þau í friði. Annað vandamál er hvað margir leggja bílum sínum illa og af tillitsleysi gagnvart öðrum. Það er óskemmtilegt að koma að bíl sínum þegar öðrum bíl hefur verið lagt þétt upp við hurðina bílstjóramegin. Þá þarf að klöngrast inn í bílinn farþegamegin eða bíða eftir því að bílstjóri hins bílsins komi og aki á brott.
Svo er það þetta lið sem leggur bílnum að hálfu yfir í næsta bílastæði. Það er lítið gaman að aka um bílastæðissvæði, finna hvergi laust stæði en sjá einn eða fleiri bíla sem nota eitt og hálft stæði. Annar bílstjóri getur ekki nýtt hálfa stæðið.
Það er undarlegt en satt að sumstaðar í útlöndum er til fólk sem leggur bílum sínum eins og kjánalegustu og frekustu Íslendingar.
Stundum koma upp erfið mál þegar togast er á um það hvorn bílstjórann bar fyrr að garði og eigi þar með einskonar frumburðarrétt.
Þarna vildi ein frekjan endilega leggja á bakvið húsið þó að það væri enginn akvegur þangað og í raun alltof þröngt fyrir bíl að troðast þangað.
Sumir láta ekki smá drullufor aftra sér frá því að leggja þar sem þeir vilja.
Lögreglan er ekki alltaf til fyrirmyndar þegar kemur að því að leggja bíl snyrtilega í stæði. Einkum þegar mikið liggur á að gægjast inn um glugga hjá grunuðum.
Þrátt fyrir allt: Þó að illa gangi að leggja bíl á réttri hlið í stæði þá skiptir máli að hárið sé vel greitt. Það er engin reisn yfir því að standa með úfið og illa greitt hár fyrir utan dældaðan bíl. Það er sérstaklega neyðarlegt ef rúður bílsins hafa brotnað.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.11.2012 | 17:19
Íslenskur heilsudrykkur er besti jólabjór í heimi!
Sænska netsíðan Allt om mat er virt og vinsæl. Ekki bara í Svíþjóð heldur víða um heim. Aðallega á Norðurlöndunum. Enda geta allir norðurlandabúar lesið sænsku. Nema Íslendingar (aðrir en þeir sem hafa búið þar).
Það er mark tekið á öllu sem stendur í Allt om mat. Þar á bæ vita menn hvað þeir eru að segja. Þeir segja ekkert nema að vel skoðuðu máli og helst með vandvirknislegum og ítarlegum samanburði.
Nú hefur Allt om mat gert rækilega úttekt á helstu jólabjórum sem í boði eru 2012. Þar trónir á toppnum íslenskur heilsudrykkur, Jólabjór frá Ölvisholti Brugghúsi. Hann fær eftirfarandi umsögn:
Bör ej missas!
Jolabjor, Ölvisholt Brygghus, Island, 6,5 %, 33 cl, 29 kronor
Brun med orange stick. Sötma med tjärtamp. Godisfruktig sötma med tydlig tjärton. Lite lakrits, lite rök, bra. 4 -.
Ég kann ekki sænsku en hef grun um að textinn segi eitthvað á þessa leið:
"Má ekki missa af!
Jólabjór, Ölvisholt Brugghús, Íslandi, 6,5% (styrkleiki), 33 cl, 554 íslenskar krónur. Brúnleitur með appelsínugulum miða. Sætleiki með tjörukeim. Ávaxtasætleiki með skörpum tjörutóni. Smá lakkrís, smá reykur, í góðu lagi. 4-."
Gott væri að fá leiðréttingar á þessa þýðingu. Ég er viss um að hún er tóm vitleysa.
Næstir eru nefndir til sögunnar eftirtaldir bjórar. Þeir fá einkunnina 4 (sem jafngildir 4 stjörnum af 4):
Mysingen Midvinterbrygd, Nynäshamns Ångbryggeri, 6 %, 50 cl, 31,40 kronor
Corsendonk Christmas Ale, Brouwereij Corsendonk, Belgien, 8,1 %, 25 cl, 20,90 kronor
Sigtuna Midvinterblot, Sigtuna Brygghus, 8 %, 33 cl, 22,90 kronor
Anchor Christmas Ale, Anchor Brewing, USA, 5,5 %, 35,5 cl, 25,60 kronor
Midtfyns Jule Stout, Midtfyns Bryghus, 7,6 %, 50 cl, 39,90 kronor
NIce Chouffe, Brasserie dAchouffe, Belgien, 10 %, 75 cl, 56,90 kronor
Liefmans Glühkriek, Duvel Mortgaat, Belgien, 6 %, 75 cl, 57 kronor
Widmer Brothers Brrr Seasonal Ale, Widmer Brothers Brewing, USA, 7,2 %, 35,5 cl, 25,90 kronor
Fullers Old Winter Ale, Fuller, Smith & Turner, Storbritannien, 5,3 %, 50 cl, 22,90 kronor
Síðan eru nefndir bjórar sem teljast vera í meðallagi góðir (þeir fyrst töldu með einkunn 3 - 4. Þeir neðstu með einkunn 2 - 3):
Jämtlands Julöl, Jämtlands bryggeri, 6,5 %, 50 cl, 25,90 kronor
Flying Dog K-9 Cruiser Winter Ale, Flying Dog Brewery, USA, 7,4 %, 35,5 cl, 26,90 kronor
Oppigårds Winter Ale, Oppigårds bryggeri, 5,3 %, 50 cl, 26,50 kronor
Nils Oscar Kalasjulöl, Nils Oscar, 5,2 %, 33 cl, 19,50 kronor
Dugges Easy Christmas, Dugges, 4,2 %, 33 cl, 18,10 kronor
St Eriks Julporter, St Eriks Bryggeri, 5,9 %, 33 cl, 21,90 kronor
Shepherd Neame Christmas Ale, Shepherd Neame, Storbritannien, 7 %, 50 cl, 28,90 kronor
St Peters Winter Ale, St Peters Brewery, Storbritannien, 6,5 %, 50 cl, 26,90 kronor
Ayinger Winter Bock, Brauerei Aying, Tyskland, 6,7 %, 50 cl, 29,90 kronor
Mohawk Blizzard Imperial Porter, Dr Proef Brouwereij, 9,7 %, 33 cl, 29,70 kronor
Sleepy Bulldog Winter Ale, Gotlands bryggeri, 6,2 %, 33 cl, 18,80 kronor
Mohawk Whiteout Stout, Gamla Slottskällans Bryggeri, 9,7 %, 50 cl, 34,90 kronor
Jacobsen Golden Naked Christmas Ale, Carlsberg Danmark, 7,5 %, 75 cl, 55 kronor
Wisby Julbrygd, Gotlands Bryggeri, 6 %, 33 cl,18,90 kronor
Åbro Sigill Julöl, Åbro bryggeri, 6 %, 50 cl, 18 kronor
Falcon Tipp Tapp, Carlsberg Sverige, 4,5 %, 33 cl, 12,90 kronor
Spendrups Julbrygd, Spendrups Bryggeri, 50 cl, 14,90 kronor
Pistonhead Christmas Carol, Brutal Brewing/Spendrups, 5,6 %, 50 cl, 15,90 kronor
Åbro Julöl, Åbro bryggeri, 5,2 %, 50 cl, 15 kronor
Mariestads Julbrygd, Spendrups, 5,8 %, 50 cl, 16,90 kronor
Nisse Julöl, Gamla Slottskällans bryggeri, 5,3 %, 50 cl, 27,90 kronor
Hibernation Ale, Great Divide Brewing, USA, 8,7 %, 35,5 cl, 29,90 kronor
Samuel Adams Winter Lager, Boston Beer, 5,5 %, 35,5 cl, 17,50 kronor
Þessa jólabjóra má sniðganga. Það er lítið varið í þá. Einkunn 1 - 2:
Sofiero Julöl, Kopparbergs bryggeri, 5,2 %, 50 cl, 12,90 kronor
Pripps Blå Jul, Carlsberg Sverige, 5 %, 50 cl, 14,90 kronor
Three Hearts Julöl, Krönleins, 5,3 %, 50 cl, 15 kronor
Störtebeker Weinachts-bier, Störtebeker Braumanufaktur, Tyskland, 6,5 %, 50 cl, 21,90 kronor
Grebbestad Julöl, Grebbestad bryggeri, 5,2 %, 50 cl, 20,50 kronor
Falcon Julmumma, Carlsberg Sverige, 5,2 %, 50 cl, 16,90 kronor
Falcon Julöl, Carlsberg Sverige, 5,2 %, 50 cl, 15,90 kronor
Celt Nadolig Rare, The Celt Experience Brewery, Storbritannien, 5 %, 50 cl, 23,70 kronor
Eriksberg Julöl, Carlsberg Sverige, 5,6 %, 50 cl, 16, 40 kronor
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.11.2012 | 22:13
Músíksmekkur frambjóðenda reið baggamun
Þegar lítill munur er á fylgi forsetaframbjóðenda í Bandaríkjum Norður-Ameríku þá getur músíksmekkur þeirra ráðið úrslitum. Það gerðist í tilfelli Husseins Obama og Mitts Romneys. Músíksmekkur þess fyrrnefnda er meira sannfærandi og á víðar snertiflöt með hinum almenna Bandaríkjamanni. Eða öllu heldur einhversskonar þverskurði af honum.
![]() |
Misskildu hvað var að gerast í landinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt 11.11.2012 kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.11.2012 | 22:57
Íslendingar sýna framfarir
Íslendingar eru allir að koma til, hægt og bítandi, á mörgum sviðum. Við erum farnir að taka tillit til annarra í vaxandi mæli - með grófum undantekningum, eins og gengur.
Fyrir 20 - 30 árum kunnum við ekki að aka á götum þar sem tvær eða fleiri akreinar liggja í sömu átt. Það tók okkur, almennt, mörg mörg ár að átta okkur á því að þeir sem kjósa að keyra hægt eigi að halda sig á akrein lengst til hægri. Hinir, sem kjósa meiri hraða en aðrir, halda sig á á akrein lengst til vinstri.
Ennþá er algengt að sjá einstaka ökumann dóla sér löturhægt á vinstri akrein. En þeim fækkar.
Íslendingum gengur hinsvegar illa að heimfæra þessa reglu yfir á rúllustiga og aðra stiga. Við tökum eftir því erlendis að þeir sem eru ekkert að flýta sér standa lengst til hægri í stiganum. Hinir, þessir sem eru að flýta sér, hraða sér eftir vinstri hluta stigans.
Þegar ekið er um borgina kemur fyrir að gangandi vegfarendur standa við gangbraut og bíða eftir að komast yfir. Því fer fjarri að allir ökumenn stöðvi og hleypi viðkomandi yfir götuna. Ég hef vanið mig á að sýna lipurð hvað þetta varðar. Það einkennilega er að börn sýna þakklæti með því að veifa. Fullorðnir gera það aftur á móti fæstir.
Í fyrravor varð starfsfólk í stórmörkuðum vart við að Íslendingar fóru að apa eftir útlendingum: Að setja á færibandið statíf sem aðgreinir innkaup viðskiptavinanna. Áður þurfti afgreiðslufólkið að greina innkaupahrúgur viðskipta vina að með þessu statífi. En nú hafa íslenskir viðskiptavinir lært að gera þetta sjálfir. Það er eiginlega að verða algilt. Fyrir bragðið er hægt að raða þéttar á færibandið (kúnninn losnar þá við að halda á innkaupadóti sínu þangað til færibandið er orðið autt).
Næst þurfa Íslendingar að læra á stefnuljós og hætta að leggja í stæði fyrir hreyfihamlaða. Það verður erfitt.
![]() |
Virðingarleysið er algjört |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 10.11.2012 kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.11.2012 | 15:57
George W. Bush kaus Obama!
Sitthvað bar til tíðinda í kosningunum sem fóru fram í Bandaríkjum Norður-Ameríku á þriðjudaginn. Enda var kosið um margt. Á vesturströndinni grátbáðu kjósendur um að fá að borga hærri skatta. Fylgdu þeir þar í kjölfar bandarískra auðmanna sem hafa þrábeðið um auðmannaskatt. Í sumum ríkjum kváðu kjósendur upp úr með það að þeir vilji fá að reykja sitt hass í friði; án afskipta lögreglu og dómsvalds. Þá reyndist - nú sem stundum áður - frambjóðendum til framdráttar að hafa kvatt þennan heim og vera komnir 6 fet neðanjarðar. Tveir slíkir sigruðu með stæl.
Óvæntustu tíðindin eru þau að fyrrverandi forseti, reppinn George W. Brúskur, kaus ekki forsetaframbjóðanda síns flokks heldur demókratann Hussein Obama.
Brúskur virtist óvenju ringlaður þegar hann mætti á kjörstað í Texas. Fyrst ruglaðist hann á kjörklefa og salernisklefa. Þegar hann náði áttum og slapp inn í kjörklefann fór allt í rugl. Það þyrmdi yfir hann og hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Ástæðan var sú að það mátti einnig kjósa menn til þings og fleiri embætta. Brúskur varð ringlaður af öllum þeim nöfnum sem hann sá á tölvuskjánum. Í taugaveiklunarkasti fór hann að hamast á tölvunni til að gera eitthvað og til að reyna að átta sig á því hvernig hún virkaði. Áður en hann vissi af var hann búinn að kjósa Obama.
Við það ærðist Brúskur. Hann réðist með ofbeldi á græjuna í örvæntingarfullri tilraun til að afturkalla atkvæðið. Hann var næstum búinn að velta bæði græjunni og kjörklefanum um koll þegar tölvan stöðvaði frekari aðgerðir og Brúskur gat ekki lokið við að kjósa þingmenn eða aðra.
Brúskur hljóp kófsveittur, baðandi út öllum öngum, til starfsfólks kjördeildarinnar og krafðist þess að atkvæði sitt yrði gert óvirkt og hann fengi að kjósa aftur. Það var ekki hægt. Öryggisverðir buðust til að hringja eftir áfallahjálp fyrir hann. Hann afþakkaði en þáði bréfaþurrkur til að þerra svitann.
Brúskur hefur fordæmt kosningagræjuna og sagt hana vera svo flókna og ruglingslega að ómögulegt sé að finna út hvernig hún virki. Framleiðandi græjunnar mótmælir þessu. Hann segir að af öllum þeim milljónum sem kusu með græjunni sé Brúskur eina einasta tilfellið sem áttaði sig ekki á henni. Allir aðrir hafi kosið vandræðalaust og verið ánægðir með hvað græjan sé einföld og auðskilin. Græjunni verði ekki breytt. Vandamálið sé alfarið einskorðað við Brúsk.
![]() |
Tveir náðu kjöri þrátt fyrir að vera látnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 9.11.2012 kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
6.11.2012 | 22:58
Hefnd í stað réttlætis
Margir þekkja Rautt Eðal Ginseng. Margir hafa notað það að staðaldri í áratugi. Aðrir nota það aðeins þegar mikið liggur á, svo sem í prófönnum, á taflmótum eða í öðrum keppnisíþróttum. Fyrir nokkrum árum dúkkaði upp í íslenskum verslunum vara undir nafninu Rautt royal ginseng. Það var í samskonar pakkingum og útlitshönnun að öllu leyti keimlík. Jafnframt voru á umbúðunum og í auglýsingum notaðar orðréttar lýsingar á umbúðum Rauðs Eðal Ginsengs og úr bæklingum um þá vöru.
Í auglýsingum var Rautt royal ginseng ýmist kynnt sem Rautt royal ginseng eða Rautt kóreskt ginseng royal eða Rautt royal ginseng frá Kóreu eða (í sjónvarpsauglýsingu) meira að segja Rautt Eðal Ginseng.
Brotavilji söluaðilans, Eggert Kristjánsson hf., var einbeittur. Ásetningur um að rugla neytendur í ríminu var augljós. Fá hann til að halda að þetta væri allt ein og sama varan. Það tókst. Meira að segja afgreiðslufólk í verslunum hélt að þetta væri sama varan.
Eðalvörur, umboðsaðili Rauðs Eðal Gingsengs, kærðu þetta og Neytendastofa kvað upp úr með að Eggert Kristjánsson hf. hefði brotið samkeppnislög. Einhverjar smávægilegar breytingar voru
Sjá: http://www.neytendastofa.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=2384
Neytendasamtökin létu jafnframt að eigin frumkvæði (vegna fjölda kvartana frá neytendum) rannsaka erlendis Rautt kórekst ginseng (eins og varan er núna kölluð). Þar reyndist vera um svikna vöru að ræða.
Sjá: http://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=12981&ew_0_a_id=294781
Einhverjar smávægilegar breytingar voru gerðar á umbúðum. Eðalvörur telja breytinguna ekki vera næga. Breytingar séu það litlar að fólk sé enn að ruglast á vörunum. Pakkningar eru ennþá eins og útlitshönnun með sömu litum og svipuð að öðru leyti. Meira að segja innkaupastjórar verslana og afgreiðslufólk er ennþá að ruglast á vörunum. Þessum upplýsingum hefur verið komið á framfæri við Neytendastofu. Nýverið klöguðu Eðalvörur Neytendastofu fyrir að taka ekki á málinu. Neytendastofa brást hin versta við og kvað í snarhasti upp þann úrskurð að engin hætta væri á ruglingi. Og það þrátt fyrir vitneskju um hið gagnstæða.
Til gamans má geta að ginseng er selt út um allan heim í mismunandi og ólíkum umbúðum. Til að mynda í glösum eða pökkum af ýmsum stærðum og þykktum.
Til samanburðar eru umbúðir Rauðs Eðal Ginsengs og Rauðs kóreskt ginsengs. Litir eru þeir sömu en ég fann ekki myndir sem eru með sömu lýsingu. Þessar myndir eru þar af leiðandi villandi. Það þarf að hafa í huga að litir séu þeir sömu. Reyndar sér fólk mun á þessum pökkum ef það hefur þá hlið við hlið. En þegar fólk hefur aðeins annan pakkann í höndum þá ræður lögun pakkans og litirnir því að margir eiga erfitt með að átta sig á hvað er hvað. Einkum fólk sem heldur að þetta sé sama varan.
Ég sé að eigandi Eðalvara er búinn að blogga um málið: http://siggith.blog.is/blog/ginseng/entry/1266908/
![]() |
Engin hætta á ruglingi á umbúðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 7.11.2012 kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.11.2012 | 22:15
Varúð! Ekki fyrir lofthrædda
Það er frískandi að sofa úti og anda að sér fersku fjallaloftinu; glugga í bók áður en draumheimar kalla og horfa yfir skógi vaxnar fjallahlíðarnar. Við þessar aðstæður getur verið varasamt að lenda á fylleríi. Líka getur verið varasamt að velta sér mikið og brölta um í svefni.
Fögur er hlíðin. Eða gilið. Maðurinn sem stendur efst til hægri stendur ekki nógu framarlega á klettabrúninni til að njóta stórbrotins útsýnisins til fulls. Þetta er ragmenni. Það er alveg hægt að standa næstum metra framar án þess að detta fram af.
Þetta er útsýnispallur í Kína. Kosturinn við svona útsýnispall er að hægt er að njóta útsýnis betur og lofthræðsla er ekki alveg rökrétt.
Þessi mynd er EKKI fótósjoppuð. Það hefur ekkert verið átt við myndina. Þetta gerðist í alvörunni.
Þetta er frægur útsýnispallur í Noregi. Hann heitir Preikistolen.
Á myndinni hér þarnæst fyrir ofan - af manninum sem hangir neðan í flugdreka: Maðurinn er svokallaður ofurhugi. Hann kom sér viljandi í þessar aðstæður. Ég las um þessa mynd fyrir margt löngu. Maðurinn er þekktur í "stunt-bransanum". Ég man ekki hvert tilefni þessa áhættuatriðis var. Hvort það var sýningaratriði fyrir sjónvarp eða sett upp fyrir auglýsingu. Kannski fyrir kvikmynd. Þegar ég rakst á myndina aftur nýverið þá var ég búinn að gleyma tilefninu. En þetta er ekki til eftirbreytni fyrir lofthrædda.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.11.2012 | 02:24
Hvorn styðja poppstjörnurnar?
Það er skemmtilegur samkvæmisleikur að velta vöngum yfir forsetakosningum í Bandaríkjunum. Sumar poppstjörnur eru áhugasamar um samfélagið og tala ætíð opinskátt um sín stjórnmálaviðhorf. Aðrar poppstjörnur eru lítið fyrir að opinbera stjórnmálaskoðanir sínar, svona að öllu jöfnu, en skjótast óvænt fram í sviðsljósið þegar stutt er til kosninga og styðja opinberlega sinn mann.
Í áranna rás hefur fjöldi skærustu poppstjarna verið viljugur til að styðja opinberlega demókrata og frambjóðendur þeirra. Það náði hámarki þegar Obama bauð sig fram til forseta fyrir fjórum árum.
Mun færri poppstjörnur hafa stigið fram til stuðnings republikunum og frambjóðendum þeirra. Það er að segja bitastæðum poppstjörnum, sem njóta virðingar og vinsælda. Það er ekki beinlínis hörgull á lítt þekktum kántrý-boltum í stuðningsliði republikana.
Meðal yfirlýstra stuðningsmanna Obama er þessa að finna:
Justin Timberlake
Yfirlýstir stuðningsmenn Romneys eru þessir helstir:
![]() |
Úrslitin ráðast í Ohio |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt 6.11.2012 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
3.11.2012 | 00:01
Íslenskur veitingastaður seldi 1944 rétti sem máltíð
Fyrir fimmtán árum eða svo dvaldi ég á hóteli úti á landi yfir helgi. Mætti þar á föstudegi og var til mánudags. Ég keypti hádegisverð og kvöldverð þessa daga, ásamt því að vera í morgunmat, síðdegiskaffi og bjór á kvöldin. Á sama hóteli dvöldu einnig nokkrir aðkomnir iðnaðarmenn sem voru í tímabundnu verkefni á staðnum.
Fljótlega varð ég var við að skömmu eftir að menn pöntuðu máltíð þá heyrðist frá eldhúsinu örbylgjuofn vera settur í gang. Á þessum tíma átti ég tvo unga syni í Reykjavík. Í ísskáp heimilisins í Reykjavík voru jafnan til staðar einhverjir tilbúnir réttir undir nafninu 1944, auglýstir sem þjóðlegir íslenskir réttir fyrir sjálfstæða Íslendinga. Þetta voru ítalskur Carbonara pasta-réttur, indverskur karrýréttur, tyrkneskur korma kjúklingaréttur, asískur mango kjúklingaréttur, ítalskur lasagna réttur, ungversk gúllassúpa, kínverskur súrsætur réttur, indverskur tikka masala kjúklingaréttur, rússneskur stroganoff réttur, ítalskur Bolonese spaghettí réttur og eitthvað svoleiðis. Það var þægilegt fyrir syni mína að geta gengið að þessum þjóðlegu íslensku réttum þegar strákarnir urðu svangir og foreldrarnir fjarverandi.
Ég var vel að mér um þjóðlegu íslensku 1944 réttina á þessum tíma. Eftir að hafa keypt nokkrar ágætar máltíðir á hótelinu þóttist ég merkja að þær væru nánast alveg eins og 1944 réttirnir. Reyndar að viðbættri slettu af hrásalati, niðurskornum gúrku- og tómatsneiðum. Matseðillinn var eins og upptalning á þjólegu íslensku 1944 réttum fyrir sjálfstæða Íslendinga.
Áður en dvöl minni á hótelinu lauk spurði ég hóteleigandann hvort grunur minn væri réttur: Að máltíðirnar væru að uppistöðu til 1944 skyndiréttir. Eigandanum brá til að byrja með en viðurkenndi að svo væri. Bað mig jafnframt um að hafa hljótt um það. Útskýrði síðan fyrir mér að yfir vetrartíma væri erfitt að liggja með annað hráefni en þessa 1944 rétti. Á þessum tíma fékk hótelið réttina frá SS á um það bil 200 krónur í heildsölu. Máltíðin með gúrkum, tómatsneiðum og hrásalati var seld á 960 kall eða því sem næst (sumir réttir á 920 krónur. Aðrir á 980 krónur).
Tekið skal fram að nokkru síðar var þessi aðferð lögð af á þessu hóteli. Eftir það hefur þar boðið upp á (dýrari) úrvals góðar máltíðir lagaðar á staðnum.
![]() |
70% franskra veitingahúsa ber fram tilbúna rétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
25.10.2012 | 21:41
Það má öfunda
Allt bíladellufólk þekkir tilfinninguna. Hún er dásamleg: Að aka um í kraftmiklum blæjulausum bíl í sól og sumaryl; finna milda og hlýja gjóluna kyssa kinn. Þessir gaurar eru ekki að leika sér á rúntinum. Þeir fá borgað fyrir að rúnta um á þessum sportbíl. Þeir eru í vinnunni. Ég veit að öfundin blossar upp í ykkur við að sjá þetta. En ég stóðst ekki mátið.
24.10.2012 | 22:25
Þegar menn urðu að leggja töluvert á sig til að redda hlutunum
Sumum þótti þetta all svakalega glæfralegt. Enda mátti fátt út af bera til að illa færi. Virkilega illa. Öðrum þótti þetta spennandi og ævintýralegt. Það fékk líkamann til að framleiða vænan skammt af adrenalíni sem leiddi til langvarandi vellíðunnar. Það sem skipti samt mestu máli er að það varð að gera þetta þegar flugvélin drap á sér á flugi. Það var ekki um annað að ræða en klifra út á hjólastellið, ná góðu taki á hreyfilblaði og snúa vélina í gang áður en hún tapaði of mikilli flughæð og myndi kollsteypast.
Þegar svona henti þótti kostur ef veður var gott.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.10.2012 | 23:12
Passa sig á löggunni
Löggan í Texas er dálítið skæð. Margar poppstjörnur hafa ekki áttað sig á því og farið flatt á samskiptum við hana. Djassaði kántrý-boltinn Willie Nelson er í hópi fjölmargra poppara sem hafa verið "böstaðar" í Texas. Og það tvívegis fyrir að hafa hass í fórum sínum. Það kostaði hann dágóðar upphæðir í formi sekta.
John Popper í Blues Traveller er annar. Líka með hass í sínum fórum. Síðar var hann "böstaður" með byssur í Wasington (fjóra riffla, níu skammbyssur, Taser-byssu og fleiri svoleiðis leikföng).
Kántrý-boltinn Ray Price var "böstaður" í Texas með hass. Það kostaði hann tæpar 90 þúsund krónur.
Poppstjarnan Matthew McConaughey var böstuð með maríjúana og var nakin á rölti innan um kannabisjurtir sínar þegar laganna verðir í Texas handtóku hann.
Kántrý-boltinn frá Alabama, Ty Herndon, var "böstaður" í Texas. Hann náði að afgreiða dæmið í samfélagsþjónustu.
Gítarleikari Puddle of Mud, Wes Scantlin, lenti í vondum málum þegar hann varð uppiskroppa með áfengi í flugvél í Texas. Hann var ósáttur og endaði í handjárnum í Austin í Texas.
Michale Graves, forsprakki hinnar ágætu pönksveitar Misfits, var í Texas "böstaður" með hass. Dálítið neyðarlegt vegna þess að hann er yfirlýstur og "aktífur" íhaldsmaður sem fordæmir dópneyslu. Sínum augum lítur hver á silfrið.
Kántrýboltinn ljúfi, Randy Travis, hefur lent í margháttuðum vandræðum í Texas. Hann er mikill Jesú-kall og sækir kirkjur. Ekki alltaf án þess að gutli vín í belg. Hann hefur lent í áflogum fyrir utan kirkjuna sína oftar en einu sinni. Þar á meðal hefur hann átt það til að slást fyrir utan kirkjuna sína allsnakinn. Og klessukeyra á bíl sínum fyrir utan kirkjuna. Líka nakinn. Svo og hótað að skjóta lögreglumenn og eitthvað svoleiðis. Einnig nakinn. Þess á milli lofsyngur hann Jesú. Amen.
Pönkararnir Paul Wall og Baby Bash voru "böstaðir" af löggunni í Texas. Þeir voru með hass.
Svo eru það allar hinar poppstjörnurnar sem löggan í Texas hefur "böstað": Snoop Doggy Dog (sem núna heldur því fram að hann sé Bob Marley endurfæddur), You Gotti, Lyl Whine, Fiona Apple, Curren$y, Wheelchair Sport Camp... Listinn er langur.
Lærdómurinn sem má læra af þessu er að löggan í Texas hefur augun hjá sér og er þefvís á dóp. Löggan í Texas gefur ekki afslátt.
Tónlist | Breytt 24.10.2012 kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.10.2012 | 21:17
Þannig getur þú varist þjófnaði - ódýrt og pottþétt!
Allir hafa lent í vandræðum með nestið sitt. Maður er búinn að vakna fyrir allar aldir til að smyrja sér samloku með (niðursneiddum) agúrkum, osti, eggjum, pepperoni, þurrkuðum tómötum, sinnepi og einhverju smálegu öðru; svo er samlokunni komið snyrtilega fyrir í nestisboxinu. Þar gegnir hún því hlutverki að bíða þolinmóð þangað til garnirnar byrja að gaula. Þá er fátt betra en rífa nestisboxið upp og gæða sér á góðgætinu.
Gallinn er sá að vinnufélagarnir eru iðulega búnir að stela samlokunni og snæða hana þegar hér er komið sögu. Við þessu er til krókur á móti bragði. Hann er sá að mála með svart-grænum tússpenna nokkra bletti á plastpokann utan um samlokuna. Þjófurinn hrekkur í kút þegar hann kemur auga á blettina. Hann heldur að þetta séu myglublettir á brauðinu.
Ávinningurinn er tvíþættur: Annars vegar forðar þetta samlokunni frá því að vera étin af óvönduðum. Hins vegar er þjófnum svo brugðið og miður sín að hann þekkist af kafrjóðu andliti, hryllingssvip og taugaveiklaðri framkomu. Það er líklegt að hann byrji að naga á sér neglurnar. Það er óhollt. Líkaminn losar sig nefnilega við kvikasilfur og allskonar óþverra í gegnum neglurnar. Sá sem nagar þær fær þetta óþvegið upp í sig.
Einelti er vont og ber að fordæma. Einn skólabróðir minn tók aldrei með sér nesti í skólann. Þess í stað réðist hann daglega á skólasystkini og náði af þeim nestinu. Nokkra daga í röð náði hann nesti af strák sem kom alltaf með rúgbrauðssamloku með kæfu. Svo fór að einn daginn er sá nestislausi hafði enn einu sinni náð samlokunni eftir töluverð áflog að hann andvarpaði og spurði frekjulega: "Getur þú ekki beðið mömmu þína um að skipta um álegg? Ég er kominn með hundleiða á þessari helvítis kæfu."
Spaugilegt | Breytt 23.10.2012 kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.10.2012 | 22:39
Krúttlegar ljósmyndir af þreyttum dýrum og börnum
Kettir hafa þann ágæta hæfileika að geta fengið sér kríu - í ýmsum merkingum orðsins - hvenær og hvar sem er. Einu kröfurnar sem kettir gera undir þeim kringumstæðum er að hafa eitthvað til að halla höfði á.
Hundar hafa þennan sama hæfileika og gera sömu kröfur.
Börn geta einnig fengið sér kríu í erli dagsins.
19.10.2012 | 23:46
Tillögur óskast. Tökum höndum saman. Styðjum Færeyinga!
Félagar færeyska gítarleikarans Rasmusar heitins Rasmussens í hljómsveitinni Makrel og færeyska rokksenan hafa hrundið af stað söfnun fyrir því sem á ensku kallast Fountain House. Það er stofnun í nafni Rasmusar þar sem fólk með andlega erfiðleika verður aðstoðað við að taka þátt í þjóðfélaginu: Með endurmenntun og stuðningi við að vera þátttakendur í atvinnulífinu.
Það kostar um 50 milljónir íslenskra króna að koma þessu á koppinn. Við Íslendingar verðum að leggja þessu lið. Ég óska eftir tillögum um það á hvern hátt við getum lagt okkar lóð á vogarskálar. Kannski með því halda styrktarhljómleika? Kannski með einhverju átaki þar sem áheitum er safnað? Kannski með því að setja upp hljómleikaferð með íslenskri hljómsveit, færeyskri hljómsveit og danskri hljómsveit í nafn málstaðarins og þær túri saman um þessi þrjú lönd? Kannski með málverkauppboði? Komið með fleiri hugmyndir.
Í dag ræddi ég við Margréti Marteinsdóttur dagskrárstjóra rásar 2. Hún er áhugasöm um að rás 2 taki þátt í átaki af þessu tagi. Án þess að ég hafi rætt við ráðamenn á öðrum útvarpsstöðvum þá er ég viss um að átakið verði stutt af X-inu, Útvarpi Sögu og fleiri útvarpsstöðvum. Kannski eru sjónvarpsstöðvar jákvæðar fyrir stuðningi? Líka dagblöð og vikurit.
Fyrsta skrefið er að fá hugmyndir. Næsta skref er að hrinda hugmynd í framkvæmd. Þetta er ákall til ykkar um að leggja hausinn í bleyti og koma með tillögur.
Frá kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn til minningar um Rasmus.
Tónlist | Breytt 20.10.2012 kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.10.2012 | 02:02
Það er ennþá hægt að ná hljómleikum með gítarleikara Pauls McCartneys!
Það er ekki alltof seint að skemmta sér konunglega á hljómleikum með gítarleikara bítilsins Pauls McCartneys. Rusty Anderson og félagar syngja og leika við hvern sinn fingur á Græna hattinum á Akureyri á laugardaginn (20. október) og síðan bæta þeir um betur á Rósenberg á mánudaginn.
Ég náði hljómleikunum í Austurbæ í kvöld. Á fyrsta hluta hljómleikanna voru fyrst og fremst frumsamin lög Rustys sjálfs. Sum þeirra nokkuð Bítlaleg. Rusty sagði frá tilurð laganna og lék á alls oddi. Fjölhæfur og flinkur gítarleikari. Hann er ekki eins gítars maður. Hann skipti oft um gítar. Hljómsveitin var fjölmenn. Allt Íslendingar nema bassaleikarinn. Trommarinn er búsettur í Bandaríkjunum og fastur liðsmaður í hljómsveit Rustys.
Rusty bindur sig ekki við einn músíkstíl, fremur en Bítlarnir. Hann stekkur úr hörðu rokki yfir í kassagítarballöður eða reggí. Reggílag kvöldsins var úr smiðju Bobs Marleys. Rusty sagði ástæðuna fyrir því vera þá að trommarinn úr Police hafi verið að spila inn á plötu með sér. Rusty fannst ómögulegt annað en láta þennan reggí-jálk njóta sín í eins og einu reggílagi.
Um miðbik hljómleikanna spratt Gunnar Þórðarson fram á svið. Fyrst flutti hann einn síns liðs Bítlalagið Blackbird. Bítladrengirnir blíðu bökkuðu hann síðan upp í Bítlalaginu Don´t Let Me Down. Því næst söng Andrea Gylfa Bítlalagið Elianor Rugby. Magnús R. Einarsson söng Strawberry Fields. Bítlalögin héldu áfram að tikka inn. Rusty skaut þó inn á milli einhverjum frumsömdum lögum. En líka einu Wings-lagi. Svo voru það Bítlalög eins og Birthday (sem er fast á hljómleikadagskrá Pauls og Rustys) og And Your Bird Can Sing. George Harrison lá ekki óbættur hjá garði. Bassaleikarinn söng blússlagarann hans, Old Brown Shoe.
Þarna var samankomið einvalalið snillinga. Allt í allt á annan tug. Þetta var góð skemmtun. Tveir góðglaðir áheyrendur skerptu á stemmningunni. Þegar Gunni þórðar hafði verið fjarri góðu gamni í nokkrum lögum hrópaði annar: "Hvar er Gunni Þórðar?" Sessunautur hans svaraði: "Ég er hrifnastur af stelpunni!". Hann hlýtur að hafa átt við Andreu.
Missið ekki af hljómleikunum á Græna hattinum og Rósenberg.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2012 | 20:32
Spennandi hljómleikar Rustys, gítarleikara Pauls McCartneys, í Austurbæ
Hljómleikar gítarleikara bítilsins Pauls McCartneys verða á morgun (fimmtudag) í Austurbæ. Rusty Anderson heitir kappinn og hefur verið einskonar hægri hönd Pauls (Paul er örvhentur) til fjölda ára og gítarleikur hans sett sterkan svip á plötur Pauls. Ásamt spilamennskunni með Paul hefur Rusty haldið úti eigin hljómsveit og sent frá sér sólóplötur, sem innihalda m.a. bassaleik og söng Pauls. Músík Rustys þykir svipa mjög til tónlistar Pauls. Það er eðlilegt.
Á hljómleikum með Paul er Rusty iðulega bæði í hlutverki Johns Lennons og Georges Harrisonar í Bítlalögum.
Rusty kemur með hljóðfæraleikara með sér. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna syngur og spilar einnig með þeim. Með því að smella á "posterinn" hér fyrir ofan má sjá nöfn þeirra.
Miðasala er á midi.is.
Tónlist | Breytt 18.10.2012 kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2012 | 22:26
Færeyingar eru yndislegt fólk
Ég kom fyrst til Færeyja 1993. Þá var kreppa í Færeyjum. Ég skrapp með Norrænu í helgarferð ásamt syni mínum. Vegna kreppunnar var lágt ris á Færeyingum.
Tónlist | Breytt 17.10.2012 kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)