Bréfið frá Rasmusi

r-a-s-m-u-s.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Á minningarsamkomunni um færeyska gítarleikarann og þungarokkarann Rasmus Rasmussen las ég upp bréf frá honum.  Þetta bréf sendi Rasmus vinum sínum mánuði eftir að hann varð fyrir fólskulegri líkamsárás, reyndi sjálfsvíg og var vistaður á geðdeild.  Textinn er sláandi.  Ekki síst þegar hann er lesinn núna eftir að Rasmus hefur kvatt þennan heim.

  Ýmsir hafa beðið mig um afrit af bréfinu.  Þess vegna birti ég það hér:

   Eins og þið vitið þá er ég enn á Deild 2.  Hér er gott að vera.  Þrátt fyrir að ég sé búinn að vera hér í fjórar vikur þá er ég ekki langþreyttur á því.  Hér upplifi ég mig öruggan.  Hér er yndislega friðsælt og vítt til veggja.

  Engu að síður þykir mér það ósanngjarnt að geta ekki upplifað mig öruggan utan þessara veggja;  að ganga út í daginn á meðal fólks.  Ég sakna þess að geta ekki farið út á lífið með vinum mínum eða kíkt inn á bar niðri í bæ og spjallað yfir bjórglasi.

  Sömuleiðis sakna ég þess að geta ekki gengið um Þórshöfn í daglegum erindagjörðum,  andað að mér frísku lofti og dáðst að fegurð lífsins sem blasir hvarvetna við ef maður gefur því gaum.

  Ef þessir fordómafullu og árásargjörnu menn hefðu bara verið annarsstaðar en í Þórshöfn.  Til dæmis í Litlu-Dímum eða einhversstaðar.  Þá væri ég núna að sinna mínum daglegu störfum í stað þess að sitja hér og skrifa þetta. 

.


Falleg minningarathöfn um Rasmus í Fríkirkjunni

rasmus-rasmussen-_1176080.jpg

 rasmus-poems_1176081.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Útför Rasmusar Rasmussen fór fram í Færeyjum í gærdag (laugardag).  Á annað þúsund manns mætti til að kveðja þennan merka gítarleikara og tónlistarmann.  Um kvöldið var minningarsamkoma um hann á veitingastaðnum Sirkusi í Þórshöfn.  Færri komust að en vildu.  Þarna spilaði gamla hljómsveitin hans,  Makrel.  Einnig hljómsveitin Deja Vu og fleira tónlistarfólk.

  Rasmus var svo sannarlega vinamargur.  Allir sem honum kynntust hittu fyrir ljúfan, hæglátan, glaðværan og brosmildan dreng.  Allir sem honum kynntust urðu umsvifalaust góðir vinir hans.  Hann var traustur,  einlægur og góður vinur.

  Ljúfmennska Rasmusar stangaðist skemmtilega á við harða,  þunga og háværa rokkið sem hann sótti í.  Hann naut sín best á sviði þegar lætin voru sem mest, hávaðinn mestur og rokkið þyngst.  Þegar hann kíkti í heimsókn til mín vildi hann heyra þær íslensku plötur sem buðu upp á mest "brútal" harðkjarnarokk.  Hljómsveitin Mínus var í sérstöku uppáhaldi.

  Kolbrún Edda Sigurhansdóttir stóð fyrir minningarathöfn um Rasmus við Reykjavíkurtjörn og í Fríkirkjunni í gærkvöldi.   Athöfnin hófst með kertafleytingu á tjörninni við Iðnó.  Síðan var samverustund í Fríkirkjunni.  Það má sjá upphaf athafnarinnar á http:/www.ruv.is/sarpurinn/sjonvarpsfrettir . Fletta upp á 14. okt og mínútu 11:16.

  Í Fríkirkjunni og við kertafleytingu stýrði Hörður Torfason dagskránni.  Hann flutti nokkur lög og spjallaði við gesti.  Færeyska söngkonan Guðríð (nafnið er framborið Gúrí) Hansdóttir flutti lag eftir Rasmus. Ég flutti ávarp og lagði áherslu á að ekki megi heimfæra yfir á Færeyinga í heild ofbeldið og ofsóknir sem Rasmus sætti af hálfu örfárra.  Alls ekki.  Færeyingar almennt eru gott fólk.  Eins og Rasmus. 

  Séra Hjörtur Magni Jóhannsson,  prestur Fríkirkjunnar,  ávarpaði einnig kirkjugesti og bauð okkur að kveikja á kertum til minningar um Rasmus. Þetta var falleg stund. 

  Ég færi Kolbrúnu Eddu sérstakar þakkir fyrir framtakið.   Einnig Herði Torfa,  Guðríði,  Hirti Magna,  Fríkirkjunni og þeim fjöldamörgu sem mættu í samverustundina. 

  Sömuleiðis færi ég íslenskum fjölmiðlum bestu þakkir fyrir góða umfjöllun í kjölfar fráfalls Rasmusar og öllu sem því tengist.  Það var sómi að og nærgætni.

  Rasmus hafði dálæti á Íslandi,  íslenskri rokkmúsík og það var yndislegt að fá að taka þátt í þessari minningarathöfn.  Eftir að ráðist var á Rasmus í Þórshöfn margsagði hann mér að stuðningsbylgjan sem hann fékk frá Íslendingum hafi skipt hann öllu máli.

  2008 spilaði og söng Rasmus á 30 ára afmæli Samtakanna 78.  Ég heilsaði að sjálfsögðu upp á hann, ásamt Ingólfi Júlíussyni,  gítarleikara Q4U.  Ingó var búinn að vinna í Færeyjum myndbönd fyrir færeysku hljómsveitina Tý og hafði kynnst Rasmusi.  Nokkrum dögum síðar skrifaði Rasmus mér tölvupóst og sagði eitthvað á þessa leið:  "Ég geri mér grein fyrir því að það var ekkert mikið mál fyrir ykkur Ingó að heilsa upp á mig.  En þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað það gaf mér mikinn styrk að finna þennan stuðning frá ykkur í verki."   Hann bað mig um að skila þessu til Ingós.  Ingó varð jafn hissa og ég á að þetta skipti Rasmus svona miklu máli.  Rasmus var vinur okkar og auðvitað heilsuðum við upp á hann þegar hann var á Íslandi.

  Rasmus upplifði sig eftir árásina 2006 sem byrði á fjölskyldu sinni og vinum.  Hann hætti í hljómsveitinni Makrel til að hinir í hljómsveitinni þyrftu ekki að svara fyrir það að vera með homma í hljómsveitinni.  Rasmus átti það til að eyða símanúmeri sínu og neita að taka á móti heimsóknum á geðdeildinni og neita að taka við símtölum. Ég lenti í því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann var búinn að biðja mig um að heilsa upp á sig þegar ég kæmi til Færeyja (ég fer þangað 2 - 3 árlega).  Þegar á reyndi var hann í sjálfskipaðri einangrun.  En ekki alltaf.  Við vorum í samskiptum fram á síðasta dag.  Stundum spjölluðum við á fésbók klukkustundum saman.  Stundum var Rasmus hamingjusamur og með ýmis áform varðandi músík.  Stundum var hann langt niðri og fannst hann vera byrði á öllum. 

   Hann stofnaði plötuúgáfufyrirtæki sem bar hið dimma nafn Myrkar Records (Myrkurs plötur).  Hann gaf út plötu undir hljómsveitarnafninu Hatursvart.  Upphafslag plötunnar heitir Í skugganum hjá djöflinum.  Hann sendi frá sér plötu undir listamannsnafninu  Mjörkeborg (í merkingunni eiturskýjaborg eða eiturþokuborg). Það leyndi sér ekki að þungt var yfir bænum.

  Rasmus sendi mér alltaf sýnishorn af öllu sem hann var að gera í músík.  Hann sendi mér einnig plöturnar með áletruninni "Jens Guð, takk! Rasmus". Í tölvupóstum var hann yfirleitt jákvæðurog glaður.  Á morgun ætla ég birta póst sem hann sendi mér mánuði eftir að hann var vistaður á geðdeild.  Ég las þann póst á minningarathöfninni og sumir klökknuðu við.  Ég líka.

.


Minningarathöfn um Rasmus

rasmus-rasmussen

  Á morgun (sunnudag 14. október) verður haldin minningarathöfn um færeyska gítarleikarann Rasmus Rasmussen sem kvaddi þennan heim 32ja ára gamall 10. október.  Athöfnin hefst með kertafleytingu á Tjörninni við Iðnó klukkan 19.00.  Að henni lokinni tekur við samkomustund í Fríkirkjunni.  Þar koma fram m.a. Hörður Torfason og færeyska söngkonan Guðríð Hansdóttir, ásamt því sem ég flyt ávarp.

  Með því að smella á þessa slóð má sjá minningargrein um Rasmus:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1261938/

  Hér er nánar um minningarathöfina:  http://samtokin78.is/frettir/tilkynningar/5607-minningarathoefn-um-rasmus-rasmussen

  Útför Rasmusar fór fram í Færeyjum í dag.  Í kvöld var haldin minningarathöfn um hann á veitingastaðnum Sirkusi í Þórshöfn.  

  Vinsamlegast deilið.


Fátækleg minningarorð um góðan dreng

rasmus rasmussenrasm

  Hörmuleg tíðindi bárust frá Færeyjum í gærmorgun.  Gítarleikarinn Rasmus Rasmussen hefur kvatt þennan heim.  Hann skilur eftir sig djúp og varanleg spor í færeyskri tónlist og færeysku samfélagi. 

  Ég kynntist Rasmusi þegar færeyskur tómstundaskóli fékk mig til að kenna skrautskrift í Þórshöfn á tíunda áratugnum.  Rasmus og félagar hans í þungarokkshljómsveitinni Diatribes bönkuðu upp á hjá mér og buðu á óformlega einkahljómleika í æfingarhúsnæði.  Það hafði spurst út að Íslendingurinn væri þungarokksunnandi.  Ég man ekki hvort Rasmus var þá byrjaður með eina þungarokksþáttinn í færeyska útvarpinu,  Rokkstovuna.  Kannski var það aðeins síðar.  Rasmus langaði til að spila íslenskt þungarokk í þættinum og bað mig um að vera sér innan handar við það.  Sem var auðsótt mál.  Jafnframt kynnti hann mig fyrir færeysku þungarokkssenunni.  Það leiddi til þess að ég tók saman vest-norræna þungarokksplötu,  Rock from the Cold Seas.  Hún innihélt færeysk,  grænlensk,  samísk og íslensk lög.

  2002 hafði ég milligöngu um að nýrokkshljómsveit Rasmusar,  Makrel,  tæki þátt í Músíktilraunum Tónabæjar.  Hljómsveitin sigraði á sínu undanúrslitskvöldi og hlaut bronssætið á lokakvöldinu.  Rasmus var kosinn besti gítarleikarinn.  Hann var einnig kosinn besti gítarleikarinn í færeysku tónlistarverðlaununum AME. 

  Með Makrel spilaði Rasmus oftar á Íslandi og nokkur lög hljómsveitarinnar nutu vinsælda í íslensku útvarpi.  Makrel var stórt nafn í færeysku rokki. 

  Með útvarpsþættinum  Rokkstovunni  hafði Rasmus mótandi áhrif á tónlistarsmekk Færeyinga.  Einnig sem nýskapandi gítarleikari með flottan og sjálfstæðan stíl.  Hann hafði spilað með flestum helstu þungarokkshljómsveitum Færeyja.  Velgengnin steig Rasmusi ekki til höfuðs.  Hann var rólegur, prúður og hógvær;  brosmildur,  glaðsinna og jákvæður.  Lífið brosti við honum. 

  Þá dundi ógæfan yfir.  2006 varð Rasmus fyrir fólskulegri árás á skemmtistað.  Nokkrir menn gerðu hróp að honum og lömdu hann illa.  Næstu daga var Rasmusi hótað öllu illu í síma.  Lögreglan upplýsti að ekkert væri hægt að gera í málinu vegna þess að ofsóknirnar væru vegna samkynhneigðar Rasmusar.  Það var "tabú" í Færeyjum.  Samkynhneigðir Færeyingar fóru leynt með kynhneigð sína og flúðu til útlanda.  Það átti ekki við Rasmus.  Honum þótti það út í hött.  Í Færeyjum var fjölskylda hans og vinahópur.  Þar vildi hann vera. 

   Barsmíðarnar, hótanirnar og viðbrögð lögreglunnar ollu því að Rasmus fékk taugaáfall.  Hann gerði tilraun til sjálfsvígs og var í kjölfar vistaður á geðdeild.  Hann náði aldrei fullri heilsu eftir það.

  Rannveig Guðmundsdóttir,  þáverandi þingkona,  tók málið upp á vettvangi Norðurlandaráðs.  Færeyska lögþinginu var stillt upp við vegg:  Að breyta lögum eða tapa aðild að Norðurlandaráði annars.  Málið vakti mikla athygli um öll Norðurlönd og víðar í Vestur-Evrópu.  Í Færeyjum var tekist harkalega á um frumvarp til breyttra laga.  Andstæðingar breytinga létu mjög að sér kveða í kirkjum eyjanna.  Þar voru haldnar vikulegar bænastundir með ákalli til guðs um að áfram yrði refsilaust að ofsækja samkynhneigða.  Þegar ný lög voru samþykkt eftir mikið þref var flaggað í hálfa stöng við kirkjurnar.  Prestar lýstu deginum sem þeim svartasta í sögu Færeyja.

  Færeyskt tónlistarfólk og ungt fólk almennt stóð þétt við bakið á Rasmusi og sýndi stuðning í verki á margvíslegan hátt.  Fjöldi Íslendinga gerði það einnig.  Rasmus var þessu fólki eðlilega afskaplega þakklátur.  Það skipti hann öllu máli að finna þennan stuðning.  Ekki síst frá Íslendingum. 

  Hægt og bítandi náði Rasmus heilsu upp að því marki að hann fór að semja tónlist á nýjan leik.  Fyrst með því að senda frá sér sólóplötur.  Þar spilaði hann á öll hljóðfæri og söng.  Hann var einnig byrjaður að vinna með hljómsveitum.  En það vofði svart ský yfir - þó honum tækist stundum að leiða það hjá sér.  Síðustu sólóplötuna sendi hann frá sér undir listamannsnafninu Mjörkaborg (mjörka = mengunarský eða -þoka).  Síðustu hljómsveit sína kallaði hann Hatursvart.  Útgáfu sína gaf Rasmus nafnið Myrkar Records. 

  Rasmus var ekki aðeins frábær gítarleikari og tónlistarmaður heldur einnig listmálari,  ljósmyndari og gerði sín eigin myndbönd.  Hann var afskaplega vinsæll hjá þeim sem kynntust honum;  elskulegur og ljúfur drengur.  Í sumar sendi hann frá sér myndband þar sem hann lýsir andlegri vanlíðan á sinn opinskáa og einlæga máta.  Líkamlegu sárin voru gróin en ekki sárin á sálinni:

   

  Rasmus skilur eftir sig hlýjar minningar.  Þær sem og listaverkin hans lifa.

        


Kvartað undan fréttum af Lady Gaga

  Ég byrjaði að blogga á þessum vettvangi fyrir nokkrum árum.  Þá - eins og nú - voru bloggfærslur iðulega tengdar við fréttir á mbl.is.  Einkum fréttir af frægu útlendu fólki;  kvikmyndastjörnum,  poppstjörnum og kóngafólki nágrannalanda okkar.  Hátt hlutfall af bloggfærslum gekk út á upphrópanir, hneykslun og fordæmingu á því að bornar væru á borð fréttir af frægu útlendu fólki.   

  Algengar upphrópanir voru:  "Hverjum er ekki sama?" og "Þvílík lágkúra!" og "Hvernig væri að koma með alvöru fréttir?"  og annað í þá veru.  Með þessu var viðkomandi að koma því til skila að slúðurfréttir af frægu fólki væri fyrir neðan virðingu sína;  gáfumennið sem vildi bara hámenningu og fréttir sem "skiptu máli".

  Nú hafa þeir sem úthrópa slúðurfréttir af fræga fólkinu flestir fært sig yfir á fésbók.  Þar halda þeir áfram að formæla fréttum af fræga fólkinu. 

  Þegar betur er að gáð þá er það þetta sama fólk sem hefur fyrir því að leita uppi slúðurfréttirnar af fræga fólkinu,  lesa þær og "kommenta" við þær.  Fyrir bragðið er það þetta sama fólk sem þrýstir slúðurfréttunum upp í efstu sæti mest lesnu frétta á netmiðlunum. 

  Þetta ágæta hneykslunargjarna og kvartsára fólk fékk góða útrás fyrir vanþóknunarsvipinn um helgina.  Það hafði ekki undan að kvarta sáran yfir því að fjölmiðlar væru að segja fréttir af Lady Gaga.  Þótti það lágkúra á sama tíma og brýnni ástæða væri til að segja fréttir af merkilegra fólki. 

  Skoðum þetta.  Hverjar eru mest lesnu fréttir á mbl.is í dag?

2.  Lady Gaga klæddi sig eftir veðri

3.  Lady Gaga umvafin aðdáendum

5.  Lady Gaga þakkaði Jóni Gnarr

7.  Friðarverðlaun afhent í Hörpu

   Mest lesnu fréttirnar á visir.is:

1.  Jón Gnarr mætti í Star Wars búningi

2.  Lady Gaga loksins komin

3.  Lady Gaga vill fleiri borgarstjóra eins og Jón

  Mest lesnu fréttir á dv.is:

3.  Lady Gaga hrærð á friðarverðlaunaafhendingu

6.  Lady Gaga komin til Íslands

  Vinsælast á ruv.is:

1.  Lady Gaga faðmaði aðdáendur

3.  Ræða Lady Gaga í Hörpu

4.  Lady Gaga komin

6.  Gaga hrifin af Gnarr

7.  Lady Gaga:  Barátta fyrir friði mikilvæg

  Það er greinilega spurn eftir fréttum af Lady Gaga.  Fjölmiðlar svara eftirspurninni - þrátt fyrir kvein þeirra sem drukku í sig fréttirnar af áfergju.  Þeir þökkuðu guðunum fyrir að vera ekki eins og skríllinn sem les slúður um fræga fólkið.  Nú var tilefni og ástæða til að berja sér á brjóst og hreykjast af því að vera laus við minnimáttarkennd íslensku smásálarinnar sem sýnir komu útlendrar stórstjörnu á klakann áhuga.  Miklir menn erum við,  Snati minn,  og yfir aðra hafnir.


mbl.is Lady Gaga klæddi sig eftir veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættulegir jeppabílstjórar

 

  Það er eitthvað sem gerist í hausnum á sumum bílstjórum um leið og þeir setjast undir stýri á jeppa.   Ekki öllum.  Alls ekki.  Bara sumum.  Það er eins og einhverskonar frekjukast hellist yfir þá,  ásamt streitukasti á háu stigi.  Það er eins og þeir upplifi sig sem kónga er eigi að njóta sérstaks forgangs í umferðinni.  Aðrir í umferðinni séu aðeins að þvælast fyrir þeim.  Jeppakarlarnir eru snöggir að leggjast á flautuna,  steyta hnefa og senda öðrum ökumönnum fingurinn.  Það má einnig sjá að jeppagaurarnir eru að hrópa eitthvað.  Enginn veit hvað þeir hrópa en svipurinn lýsir ofsabræði.

  Það eru þessir sömu jeppabílstjórar sem leggja í merkt stæði fyrir fatlaða.  Ekki vegna þess að þeir hafi merki sem heimilar slíkt heldur vegna þess að það eru bestu stæðin.  Reyndar er það fötlun út af fyrir sig að vera jeppabílstjóri með þetta hegðunarmynstur.  En hún er ekki þess eðlis að jeppabílstjórar fái skírteini út á það.

  Þegar þröngt er á þingi vegna einhvers viðburðar;  fótboltaleiks,  hljómleika og þess háttar þá bregst ekki að jeppum er lagt upp á gangstéttir,  umferðareyjar og út um allt nema í almenn bílastæði.

  Þegar jeppakallar sleppa út fyrir höfuðborgina eru þeir friðlausir þangað til þeir hafa ekið utanvegar og spænt upp viðkvæman jarðveg.  

  


mbl.is „Mátti engu muna að það yrði stórslys“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparnaðarráð: Sparaðu 4 dekk og fjórar felgur!

  Flestir eiga 2 bíla. Það eru útgjöld upp á að minnsta kosti 8 dekk á álíka margar felgur. Á meðfylgjandi mynd sést hvernig hæglega má spara þann kostnað um 50%. Það munar um minna.  Þetta er sparnaður upp á 100 þúsund kall eða svo.  Fyrir þann pening má kaupa margar pylsur með öllu. 

spara dekk


Einn góður um Pekka og Ekka

  Þennan brandara um finnsku félagana Ekka og Pekka sá ég á fésbókinni.  Ég hljó svo dátt við lestur hans að ég verð að leyfa honum að kitla hláturtaugar ykkar líka:

  Ekka og Pekka voru úti á vatninu í tuttugu stiga frosti. Ekka spyr: "Hvers vegna ertu ekki með loðhúfuna þína?"

  Pekka svarar: "Hefurðu ekki heyrt um stórslysið á Heiðarvatni í fyrravetur?"

   - Nei, hvað gerðist?

   - Við vorum þarna tveir vinir, Sænski Björn og ég.  Báðir með loðhúfurnar.

   - Og hvað?

   - Sænski Björn bauð upp á snafs og ég heyrði það ekki.


Miðasala á hljómleika Rustys og félaga í fullri sveiflu!

Rusty Anderson

  Miðasala á hljómleika gítarleikara Pauls McCartneys,  Rustys Andersons,  er komin í góða sveiflu á midi.is.  Á myndinni hér fyrir ofan má sjá helstu upplýsingar um hljómleikana.  Svo er bara að hita upp fyrir fjörið með því að spila myndbönd með Rusty Anderson og Paul McCartney.  Þau má finna á þútúpunni.   

  Þarna spilar og syngur Rusty með Paul,  Rod Stewart, Joe Cocker og fleirum.  Ég kann ekki nöfnin á þeim öllum.

  Hér eru þeir Rusty og Paul með fámennari hljómsveit - og njóta sín þeim mun betur.


Færeyskt góðgæti

kjotsupa

  Núna eru færeyskir dagar í Smurbrauðsstofu Sylvíu á Laugavegi 170 (við gatnamótin fyrir ofan Nóatún í Nóatúni).  Þeir vara til klukkan sex á morgun (laugardag).  Þar er boðið upp á ræstkjötssúpu (rast kjöt).  Einnig bakka með fjórum girnilegum smurbrauðssneiðum.  Á einni er skerpukjöt (skerpikjöt).  Á annarri er færeysk rúllupylsa.  Á þeirri þriðju eru niðursneiddir knettir.  Á þeirri fjórðu eru niðursneiddar fríkadellur.

  Ræst kjöt og skerpukjöt eru hvorutveggja þurrkað lambakjöt.  Ræstkjötið er hryggur og frampartur og hangir skemur uppi.  Það er á stigi svipuðu því sem við köllum siginn fisk.  Skerpukjötið er læri og hangir lengur uppi en er ekki jafn þurrt og harðfiskur.  Það bragðast eitthvað í humátt að parmaskinku.  Bæði skerpukjötið og ræstkjötið eru bragðsterk og gefa endingargott eftirbragð.  

  Það er algengt að Íslendingum þyki þetta ekki góður matur þegar það er smakkað í fyrsta skipti.  Eftir að hafa smakkað það oftar vex sterk löngun í að komast sem allra fyrst í svona sælgæti oftar.  Þetta er svipað og löngunin í kæstan hákarl,  kæsta skötu og hangikjöt.  Eitthvað sem maður verður að fá sér í það minnsta árlega.  Helst miklu oftar.

  Ræstkjötssúpunni svipar mjög til íslensku kjötsúpunnar.  Þetta er matmikil grænmetissúpa með rófum,  gulrótum,  lauk,  hrísgrjónum og þess háttar.  Hlutfall ræstkjötsins er heldur minna en kjötið í íslensku kjötsúpunni.  Enda gefur ræstkjötið mun skarpara bragð.  Í Færeyjum er algengt að ræstkjötið sé fjarlægt úr súpunni og borðað sér með soðnum kartöflum.  Í Smurbrauðsstofu Sylvíu er kjötið í súpunni.  600 krónur fyrir súpuna á Smurbrauðsstofu Sylvíu er gott verð og auðveldar óvönum að smakka.  Innifalið í verðinu er ábót ef einhver er rosalega svangur.  Ég hef aldrei þurft á því að halda.  Súpan er saðsöm og ein besta ræstkjötssúpa sem ég hef fengið.  Alveg eðal.  5 stjörnu súpa.

  Smurðu heimilisbrauði er ekki ætlað að vera eiginlegur veislumatur sem keppir við alvöru "danskt smurbrauð".  Brauðbakkinn gefur góða hugmynd um hefðbundið smurt brauð á færeyskum heimilum.  Þó er skerpukjöt meira til spari í Færeyjum en snætt hvunndags. 

  Færeyska rúllupylsan er keimlík þeirri íslensku.  Sú færeyska er mildari og hlutfall kjöts meira á móti fitu.  Það er töluvert af lauk í henni og smávegis af púðursykri. 

  Knettir eru soðnar fiskbollur.  Uppistöðu hráefnið í knöttum er þorskur og kindamör.  Saman við það er blandað lauki, salti og pipar.  Sumir hafa örlítið af sykri með.  Færeysku knettirnir eru blessunarlega lausir við hveitibragð íslensku fiskbollanna.  Fyrir bragðið (í bókstaflegri merkingu) eru knettirnir eins og ferskari.  Að öðru leyti er bragðið líkt.

  Fríkadellur eru steiktar fiskbollur.  Að öðru leyti eru þær alveg eins og knettir.

  Þannig er frá brauðbökkunum í Smurbrauðsstofu Sylvíu gengið að hægt er að grípa þá með sér heim.  Það er upplagt að gera.  Meðal annars til að gefa öðrum að smakka með sér.  Og þess vegna að grípa með sér nokkra bakka til að eiga daginn eftir.  Jafnvel marga bakka til að eiga í marga daga.  Bakkinn kostar aðeins 1100 kall.

  Það er bráðskemmtilegt og bragðgott ævintýri að gera sér og sínum dagamun með því að smakka þessar færeysku kræsingar. 

faereyskar_brau_snei_ar


Vandræðaleg staða

  Sauðfé á undir högg að sækja víðar en í snjósköflum á Norðurlandi,  eystri og vestri. 

hrútur hangir í raflínu

  Þessi norski sauður flæktist í rafmagnslínu á láglendi og trylltist.  Áður en hann vissi af hékk hann á horni í 5 metra hæð.  Þegar hrúturinn kynntist rafmagnslínunni fyrst var hún óþægilega nálægt jörðu þar.  Þegar æði hljóp á hrútinn - við að festa horn í línunni - fór allt úr skorðum  Hann gat aðeins hlaupið í eina átt og línan fjarlægðist jörðu.

  Vitni voru að atburðinum.  Þau gerðu viðvart.  Hrútnum var því bjargað úr prísundinni áður en illa fór.  Hann hefur verið niðurlútur síðan og skammast sín fyrir að hafa verið svona mikill sauður.


Fáheyrður atburður - kollvarpar rótgróinni og viðurkenndri kenningu

nakin kona

  Á föstudegi í síðustu viku sigldu skipverjar á færeyska varðskipinu Brimli - samkvæmt ábendingu - fram á konu eina frammi í firði.  Hún var alein á lítilli jullu,  rænulítil og utangátta.  Allt vakti þetta mikla undrun.  Og samt einkum það að konan var klæðalaus og engin föt í jullunni. 

  Skipsverjar hífðu nöktu konuna um borð og sigldu með hana til höfuðborgarinnar,  Þórshafnar.  Þangað komnir fóru þeir með konuna rakleiðis til frægrar prjónakonu.  Prjónakonan dró þegar fram spunarokk og setti fyrir framan nöktu konuna.  Þá brá svo við að þrátt fyrir neyð konunnar þá tókst henni með engu móti að læra að spinna.  Neyðin kenndi ekki naktri konu að spinna.     


Farsímar eru varasamir

farsími 1. kynslóð 

  Því hefur löngum verið haldið fram að farsímar séu skaðlausir með öllu.  Vísað er í rannsóknir sem sanna þetta.  Gallinn er sá að það eru hagsmunaaðilar sem standa að rannsóknunum:  Farsímaframleiðendur og aðrir sem tengjast farsímaþjónustu.  Þegar á það er bent koma mótrök:  Farsímaframleiðendur þurfa fyrstir allra að fá vitneskju ef eitthvað er skaðlegt við farsímanotkun.  Þannig geta þeir brugðist við og afstýrt skaðabótamálum.

  Jú,  þetta er rétt.  En kapphlaupið um að selja sem flesta farsíma sem fyrst vegur þyngra.  Þess vegna er áherslan á að búið sé að rannsaka farsímanotkun með þeirri niðurstöðu að hún sé skaðlaus.

  Samt er það svo að ekki er talið æskilegt að ung börn séu mikið að blaðra í farsíma.  Einhverjar mælingar hafa sýnt að handfrjáls búnaður áreiti farsímanotanda meira en þegar símanum er haldið við eyrað.  Margir kannast við að hafa fengið hausverk af mikilli farsímanotkun.  Það er vísbending um að það sé að minnsta kosti ekki hollt að tala í farsíma. 

farsíma-skaði

  Eigendur þessara eyrna áttu það sameiginlegt að tala mikið og lengi í farsíma.


Hver túlkar dægurlagatexta rétt?

  Kaldhæðni er vandmeðfarin.  Það kemur glöggt fram í skilningi lesenda á kaldhæðnum bloggfærslum, fésbókarstatusum og enn frekar í athugasemdakerfi á þeim vettvangi.  Svo ekki sé talað um í athugasemdum við fréttir dv.is og fleiri netmiðla. 
  Fólk á erfitt með að greina kaldhæðni þegar um ritað mál er að ræða.  Einkum þeir sem þekkja ekki skrifarann. 
.
  Þetta er auðveldara þegar fólk spjallar saman.  Þá undirstrika raddblær og hlæjandi andlit kaldhæðni í orðum.  Í ritmáli getur broskall gengt sama hlutverki.
.
  Söngvahöfundar bregða stundum fyrir sig kaldhæðni.  Oft með þeim "árangri" að hlustandinn mistúlkar söngtextann.  Áttar sig ekki á kaldhæðninni og tekur boðskapinn hátíðlega.
  Gott dæmi um þetta er lagið  Perfect Day  með Lou Reed.  Þar hæðist Lou að smáborgaranum og lágmenningu.  Þeim sem telur fullkominn dag felast í bíóglápi og heimsókn í dýragarð. 
  Lou segist glotta út í annað þegar þessir sömu menningarsnauðu smáborgarar og hann hæðist að spila  Perfect Day  í brúðkaupsveislum sínum.
.
 .
  Hvor hefur rétt fyrir sér í túlkun á dægurlagatexta,  höfundurinn eða hlustandinn?  Þegar vel er að gáð er meining höfundarins ekki rétthærri en túlkun hlustandans.  Hughrif hlustandans sem meðtekur söngtextann á sínum forsendum eru sönn og góð.  Hlustandinn hrífst af lagi og texta út frá sinni upplifun.  Hann er óbundinn af því á hvaða forsendum höfundurinn orti textan. 
  Það er við höfundinn að sakast að koma ekki kaldhæðni til skila.  Það er ósanngjörn krafa að hlustandinn leggist í djúpa pælingu og þurfi að hafa fyrir því að þekkja þankagang höfundarins. 
 
  Í auglýsingatexta er þumalputtaregla að máta texta við 12 ára krakka.  Að 12 ára krakki geti auðveldlega skilið textann.  Söngvaskáld mættu hafa þá reglu í huga. 
  Annað dæmi um misskilinn texta er  Part of the Union  með gömlu hljómsveit Bretans Ricks Wakemans (Yes),  Strawbs.  Textinn var háðsádeila á drullusokka sem skýla sér á bak við verkalýðsfélög.  Verkalýðsfélagasinnar tóku lagið upp sem baráttusöng fyrir verkalýðsfélagsaðild. 
.
.
  Liðsmenn Strawbs voru ekki andvígir verkalýðsfélögum sem slíkum heldur deildu þeir á þá sem komast upp með eitt og annað í skjóli þess að vera í verkalýðsfélagi.
.
  Enn eitt dæmið um misskilinn texta var og er  Born in the USA  með Brúsa frænda. Brúsi gagnrýndi Víetnamstríðsrekstur Bandaríkjanna og sitthvað fleira.  Áheyrendur fjölmenntu á hljómleika Brúsa veifandi bandaríska fánanum uppblásnir af þjóðernisrembingi.  Lagið varð allt að því bandarískur þjóðsöngur.  Þáverandi forseti Bandaríkjanna,  Ronald Reagan, notaði það sem kosningalag sitt. 
.
 
.
  Eitt dæmið til viðbótar er Revolution  með Bítlunum.   Höfundurinn,  John Lennon,  gagnrýnir þar róttækasta arm 67 kynslóðarinnar,  hippahreyfinguna sem var farin að krefjast byltingar í anda Maos í Kína.  John segir þeim að slappa af.  Hann hafni hatursfullum hugmyndum um byltingu í nafni Maos.  Engu að síður varð þetta lag baráttusöngur byltingarsinna vegna nafnsins,  Revolution  (bylting).  Í búsáhaldabyltingunni á Íslandi var laginu deilt út og suður á fésbók og víðar sem byltingarsönglagi.  Ef vel er að gáð er boðskapur textans and-byltingarsinnaður. 
.
.
  Að vísu var á Hvíta albúmi Bítlanna textanum breytt (eftir að það kom út sem smáskífa).  Á Hvíta albúminu er "count me out" (fælt mig frá) breytt í "count me in".
  Til gamans má geta að George Harrison hataði "fuzz" gítarsánd Lennons í þessu lagi.  Annað:  John söng og spilaði lagið liggjandi á bakinu til að túlka sem best hvað þetta var allt sett fram í rólegheitum án æsings.   
.
  Bubbi deildi á íslenska nasista í laginu  Nýbúinn.  Nasistarnir tóku lagið upp sem sinn baráttusöng. 
.
.
  Það var svo sem ekki við öðru að búast af þeim aulum. 

Versta dauðasena í kvikmynd

  Blessunarlega erum við flest laus við að hafa orðið vitni að raunverulegu morði; drápi á manneskju.  Öll höfum við þó margoft séð í leiknum kvikmyndum fólk drepið.  Eftir þútúpu-væðinguna höfum við jafnvel séð raunveruleg morð.  Þannig að við höfum þokkalega þekkingu á því hvernig manneskja bregst við þegar hún er skotin til dauða.  Við höfum séð það svo oft.  Í frumstæðri kvikmyndagerð í Tyrklandi á áttunda áratugnum voru menn ekki búnir að ná tökum á túlkun dauðastríðs.  Hér er kjánalegasta dauðasena kvikmyndasögunnar frá Tyrklandi (Blossi hvað?).

 


Sparið fjórðung!

  Það eru ekki allir ríkir.  Þrátt fyrir að erfitt sé að finna laust bílastæði vegna allra 10 og 12 milljón króna jeppanna og fólk togist á um hvert eintak af nýjustu árgerð af símum sem kosta 140 þúsund kall (minn sími kostaði innan við 5 þúsund kall).  Það eru miðnæturbiðraðir út um alla Kringlu þegar ný árgerð af tölvuleik fyrir krakka er sett í sölu.  Biðraðirnar og hamagangurinn eru ennþá meiri þegar ný búð með útlendum vörum er opnuð.  Ekki síst ef útrásarvillingar og bankaræningjar tengjast þeim.  Sólarlandaferðum,  borgarferðum,  skíðaferðum,  golfferðum,  íþróttaleikjaferðum og ferðum á allskonar viðburði í útlöndum fjölgar dag frá degi.  Íslensku flugfélögin eru orðin 3 til að anna eftirspurn og eru stöðugt að bæta við nýjum áfangastöðum.  Dýrustu veitingastaðirnir á höfuðborgarsvæðinu eru þétt setnir.  Einkum þar sem máltíðin kostar yfir 10 þúsund kall.  Fólk er byrjað að hamstra pantanir á jólahlaðborðin.  Og það er september. 

  Það sitja ekki allir í slitastjórn né hafa fengið skuldir upp á hundruð milljóna króna afskrifaðar.  Sumir hafa fengið skuldir upp á milljarða afskrifaðar.  Aðrir hafa náð samkomulagi við bræður sína um kaup og sölu og milligöngu um kaup og sölu á fjárhags- og starfsmannakerfi til hins opinbera. 

  En það er til fólk sem þarf að spara.  Og jafnvel þó að það þurfi ekki að spara þá er óþarfa bruðl óþarfi.  Það eiga allir að hjálpast að við að gefa sparnaðarráð.  Ég læt ekki mitt eftir liggja. 

  Gleraugu kosta marga peninga.  Samhent hjón eða pör eða vinir geta sparað fjórðung með því að nota sameiginleg gleraugu.  Það er hægt að gera með því að nota aðeins 3 sjóngler í stað fjögurra.

  Það er smá kúnst að nota svona gleraugu til að byrja með.  Aðallega út af því að annar aðilinn þarf að ganga aftur á bak.  En þetta venst glettilega fljótt og fólk verður samstígara og nánara er á líður. 

sparnaðargleraugu fyrir samlynd hjón 


mbl.is Svaraði Jóhönnu um kerfið 2004
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri hönd bítilsins Pauls McCartneys með hljómleika á Íslandi

  Fyrst kom Ringó til Íslands og spilaði með Stuðmönnum í Atlavík.  Síðan kom Yoko Ono og hélt áhrifamikla og frumlega málverkasýningu í Reykjavík.  Svo kom Paul McCartney og rúntaði á jeppa um landið.  Þessu næst var sett upp sýning á Kjarvalsstöðum með teikningum eftir John Lennon.  Um svipað leyti fór að sjást oftar til Yokoar Ono á götum Reykjavíkur og hún varð sannkallaður Íslandsvinur.  Í Viðey var reist heimsfræg friðarsúla til minningar um John Lennon.  Í tengslum við það hefur heimsóknum Ringós og ekkju George Harrisonar, ásamt Sean Lennon og auðvitað Yokoar Ono fjölgað ár frá ári.  Plastic Ono Band hefur verið að halda hljómleika hérna.  Sonur Georges Harrisonar gerðist tengdasonur Kára Stefánssonar og Íslands.  Bítlabarinn Ob-La-Di Ob-La-Da hóf farsælan feril.  Þangað kíkir Yoko þegar hún á leið um, svo og Bítlasynir.  Tengsl Bítlanna og Íslands þéttast stöðugt.  Ísland er Bítlaland.

  Og hvergi sér fyrir enda á.  Í næsta mánuði heldur hægri hönd Pauls McCartneys,  gítarleikarinn Rusty Anderson, nokkra hljómleika hérlendis.  Þar á meðal í Austurbæ,  Rosenberg og Græna hattinum á Akureyri.  Miðasala hefst á morgun á midi.is.

  Rusty hefur spilað á flestum plötum Pauls og fylgir honum á hljómleikaferðalögum.  Rusty hefur einnig spilað með Sinéad O´Connor,  Elton John,  Willie Nelson,  Joe Cocker,  Cat Stevens,  Meatloaf og ótal öðrum stórstjörnum.  En hann er þekktastur sem sólógítarleikari Pauls McCartneys.  Gítarleikur Rustys setur sterkan svip á marga þekktustu söngva Pauls.

  Hér fyrir ofan og neðan eru myndbandsbútar sem sýna Rusty á hljómleikum með Paul.  Í   myndbandinu fyrir neðan flytja þeir félagar sönglag Johns Lennons,  Give Peace A Chance.  Til gamans má geta að Paul er skráður meðhöfundur lagsins.  Paul þykir vænt um það þó að hann hafi þar hvergi komið nærri. Bítlarnir í upplausn og leiðindi í gangi.  Heiftúðleg málaferli.  John skrifaði Paul reiðilestur og samdi um hann níðsöng (How Do You Sleep?).  Paul svaraði fyrir sig með "Let Me Roll It".  Virkilega flott lag þar sem hann hermir eftir músíkstíl Lennons. 

  Fóstbræðralag þeirra slitnaði þó aldrei.  Þeir spjölluðu saman í síma fram á síðasta dag Lennons.  Ekki alltaf í vinsemd.  En samt inn á milli.  John var skapofsamaður og einstaklega skapstyggur.  Það kom fyrir að John skellti á símtóli og einnig Paul.  Af og til féll allt í ljúfa löð og þeir hittust og djömmuðu saman.

  John sagði síðar að níðsöngurinn um Paul hafi í raun verið meira um sig sjálfan en Paul.  Hann var reiðari út í sjálfan sig en Paul en beindi reiðinni að Paul.     

 


Snúast um sjálfa sig á góðum launum

  Þessi flugvöllur minnir á sitthvað í íslenskri stjórnsýslu - þó að hann sé í útlöndum.  En þetta er eitthvað svo íslenskt.  Flugvöllurinn er dálítið einangraður.  Einu samskipti íbúanna á þessari flugvallareyju við umheiminn eru í gegnum flugsamgöngur.  Íbúarnir eru rétt um tuttugu.  Þeir vinna eingöngu við að þjónusta flugið til og frá eyjunni.  Eru á fínu kaupi við það.  Enda í góðri samningsstöðu þar sem ekki er til annarra að leita.  Svo fá þeir vistir og aðrar nauðsynjar með flugi.  Og njóta ýmissa hlunninda í sárabætur fyrir að vera svona afskekktir og þjónusta mikilvægar flugsamgöngur.

  Flugið er fyrir íbúana og íbúarnir eru fyrir flugið.

flugvöllur 


mbl.is Tímakaupið meira en tvöfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krúttlegar gamlar konur

gomul_kona.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ég átti (brýnt) erindi í vínbúð á Eiðistorgi.  Þar var fátt um manninn.  Þó var þarna háöldruð kona með göngugrind.  Hún þurfti margt að skoða.  Miðaldra kona,  hugsanlega dóttir hennar (hún kallaði hana mömmu.  En það gæti hafa verið til að villa um fyrir nærstöddum), rak stöðugt á eftir þeirri gömlu.  Fann áfengisflöskuna sem sú gamla vildi kaupa (ég heyrði þá gömlu tala um meðala-Sherrý) og kom sér strax að afgreiðsluborðinu.  Sú gamla þurfti margt fleira að skoða og lét ekki reka mikið á eftir sér.  Enda engin ástæða til að göslast í flýti í gegnum vínbúðina.  Yngri konan var komin út að útidyrahurð og rak á eftir gömlu konunni.  Gamla konan tók sér góðan tíma í að finna greiðslu fyrir áfengisflöskuna og skoðaði ýmislegt í leiðinni.  Þegar sú gamla hafði gengið frá greiðslu ruglaðist hún á göngugrind sinni og hjólagrind fyrir innkaupakörfur vínbúðarinnar.  Hún skildi göngugrindina sína eftir í búðinni en brölti út með hjólagrind fyrir innkaupakörfur.  Það voru 2 eða 3 körfur í körfugrindinni.  Sú gamla tók sig vel út með þetta.  Það var reisn yfir þessu.

  Mæðgurnar voru komnar út á stétt þegar dóttirin áttaði sig á mistökunum.  Það tók nokkra stund að gera þeirri gömlu grein fyrir því að hún væri með vitlausa grind.  Hún var ekki til í sleppa körfugrindinni fyrr en dóttirin hafði skokkað eftir göngugrindinni. 
.
  Í sömu verslunarmiðstöð var öldruð kona að rúnta um á nettum rafmagnsbíl.  Bíllinn var ekki plássfrekari en stórt mótorhjól.  Bíllinn var þó á fjórum hjólum,  hljóðlaus og aö öðru leyti eins og yfirbyggt mótorhjól í útliti.  Flott tæki.  Gamla konan átti í örðugleikum með að ráða við tækið.  Ég forvitnaðist um þessa skemmtilegu innkaupakerru.  Rafmagnsbíll þessi nær 15 kílómetra hraða.  Það er lúxus fyrir þá gömlu að skreppa á bílnum til innkaupa á Eiðistorgi.  Ég var á hraðferð og gaf mér ekki tíma til að fylgjast betur með innkaupaferð konunnar.  Miðað við hvað hún var dálítið klaufsk á tækið óttast ég um verslanahillurnar á Eiðistorgi.  . 

Áhrifamikil og ævintýraleg byggingalist

15444_184402920912_657720912_3401733_2259275_n

  Góðir arkítektar fella byggingar inn í landslagið.  Leyfa náttúrinni að njóta sín og ráða för.  Það kunna íslenskir arkítektar ekki.  Sumir aðrir kunna það.

19743_302753100912_657720912_4016055_3191757_n19743_302753110912_657720912_4016056_2508164_n

  Fara jafnvel glannalega leið.  Takið eftir kláfinum sem ferjar fólk til og frá á mynd nr. 2.  Takið einnig eftir kaðalstiganum undir byggingunni á síðustu myndinni.  Hann er varasamur í hvassviðri.

kofahús

  Ég átta mig ekki alveg á þessu timburhúsi.  Fátt er um glugga í efri hæðum.  Burðarþolið er allt í hægri hluta byggingarinnar.  Kannski er þetta sumarbústaður?

ekki fyrir lofthrædda-varðstöð

  Þessi varðstöð fellur ekki beinlínis að landslaginu.  En sumir upplifa landslagið sterkt þegar farið er þarna um.  Einkum þeim sem er snúið við.  Þá er betra að vera ekki lofthræddur.

ekki fyrir lofthrædda-veitingahús

  Þetta veitingahús í Kína er ekki heldur fyrir lofthrædda.  Gönguleiðin er eftir tágarbrú sem sveiflast til og frá þegar eftir henni er gengið.  Þunnt og gegnsætt tauefni tekur ekki fallið af ef menn hrasa.

ekki fyrir-lofthrædda-Hunan-kína

  Þessi gönguleið í Hunan í Kína er öruggari.  En samt ekki fyrir lofthrædda.  Þarna eru þó járnbent handrið sem hægt er að grípa í ef manni verður fótaskortur. Gönguleiðin er varasöm í frosti.  Þá eru tröppurnar nefnilega hálar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.