20.8.2012 | 17:13
Heimsþekktur húsgagnaframleiðandi nefnir vörulínu í höfuðið á Eivöru
Nafn færeysku söngkonunnar Eivarar verður sífellt stærra og fyrirferðarmeira á heimsmarkaði. Hróður þess tekur á sig ýmsar myndir.
Nýverið upplýsti ég á þessum vettvangi að heimsþekktur hárvöruframleiðandi hefði gert samning við Eivöru. Samningurinn kveður á um að Eivör verði fyrirsæta og andlit fyrirtækisins. Um þetta má lesa með því að smella á þennan hlekk:
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1249827/ .
Nú hefur sænskur húsgagnaframleiðandi, IKEA, sett á markað vandaða og nútímalega vörulínu og kennir hana við Eivöru. Þetta eru gluggatjöld, teppi, koddar og sitthvað fleira hlýlegt og notalegt. Línuna má sjá á heimasíðu IKEA:
http://www.ikea.com/us/en/catalog/products/40210925/ .
IKEA er sennilega stærsti húsgagnaframleiðandi heims.
Ofan á þetta eru sífellt fleiri og fleiri að syngja um Eivöru, eins og Tim Hardin sem hér syngur "If EIVÖR a carpenter".
Sjálf sendir Eivör frá sér nýja plötu á morgun (þriðjudag), Room.
Síðan tekur við hljómleikaferð:
24. ágúst: Eivør (trio) @ Gæran 2012
Borgarmýri 5, Sauðárkróki
22:00
25. ágúst: Eivør (trio) @ Græni Hatturinn
Göngugatan, Akureyri
20:00
26. ágúst: Eivør (trio) @ Græni Hatturinn
Göngugatan, Akureyri
20:00
28. ágúst: Eivør (trio) @ Sjóræningahúsið
Patriksfirði
21:00
29. ágúst: Eivør (trio) - Útgáfuhljómleikar @ Hotel Stykkishólmur
Borgarbraut 8, Stykkishólmi
21:00
31. ágúst: Eivør - Útgáfuhljómleikar (hljómsveit) @ Harpa
Ingólfsgarði, Reykjavik,
20:00
Tónlist | Breytt 21.8.2012 kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.8.2012 | 21:48
Færeyska innrásin
Færeyskir listamenn verða áberandi á Menningarnótt í Reykjavík á morgun (laugardag). Þeir eru misþekktir hérlendis en allir stórkostlegir og hátt skrifaðir heimafyrir - og víðar. Fyrst skal frægasta nefna Eivöru. Hún kemur fram á TÓNAFLÓÐI 2012 - stórhljómleikum rásar 2, Vodafone og Exton. Þar eru flytjendur kynntir sem "margir af dáðustu og vinsælustu listamönnum þjóðarinnar".
Vissulega er Eivör einn dáðasti og vinsælasti listamaður þjóðarinnar. Orðalagið hljómar eins og Eivör tilheyri íslensku þjóðinni. Hún gerir það í raun - þrátt fyrir að hún sé færeysk. Hún hefur enda verið ein af Íslensku dívunum, sem svo eru kallaðar á hljómleikum og plötum Frostrósa. Íslenska þjóðin hefur tekið þvílíku ástfóstri við Eivöru að í huga Íslendinga er hún ein af okkur. Eivöru þykir vænt um það.
Aðrir af dáðustu og vinsælustu listamönnum þjóðarinnar sem koma fram á Tónaflóði 2012 eru KK, Jónas Sigurðsson & Ritvélar framtíðarinnar, svo og Retro Stefán. Þetta er spennandi pakki.
Í Hörpu treður upp færeyski trúbadorinn Hanus G. Hann hefur verið að í hálfa öld eða svo. Semur afskaplega falleg lög. Eivör hefur sungið ýmis lög hans inn á plötur og á hljómleikum. Til að mynda Á Kundi Á Tíðarhavi (á fyrstu sólóplötu Eivarar).
Takið eftir að allir syngja með. Þannig er það alltaf á hljómleikum Hanusar. Allir syngja með. Hanus hefur stundum verið kallaður færeyskur Megas. Ekki vegna þess að söngstíll þeirra sé líkur. Hann er það ekki. Það er frekar út af því að þeir eru á svipuðum aldri og njóta álíka virðingar/dýrkunar meðal yngri tónlistarmanna jafnt sem annarra. Hanus er að sumu leyti einfari í músík. Hann hefur sent frá sér örfáar plötur. Ég held aðeins tvær eða svo og eina kassettu.
Hljómleikar Hanusar eru einstæð upplifun. Þar ríkir einlægur og hrífandi flutningur á gullfallegum söngvum. Það er í stíl Hanusar að hann er á myndbandinu í bol merktum hljómsveitinni Sic. Hún er ein þyngsta þungarokkshljómsveit Færeyja. Á færeyskum þungarokkshljómleikum má jafnan sjá Hanus í hópi áhorfenda. Þó að músík hans í dag sé ljúf vísnamúsík þá var hann endur fyrir löngu í rokkhljómsveitum.
Hljómleikar Hanusar eru klukkan 17.00 í Kaldalóni í Hörpu.
Lena Andersen kemur einnig fram í Hörpu. Áður en Eivör sló í gegn á Íslandi, á hinum Norðurlöndunum og út um allt var Lena þekktasti færeyski tónlistarmaður utan Færeyja. Hún er þokkalega vel þekkt í Danmörku, Kanada og víðar. Hún er magnaður lagahöfundur. Plötur hennar eru fínar en hún er ennþá betri á sviði. Með henni spilar Niclas á gítar. Ég veit ekki af hverju mér finnst að strengjasveit spili sömuleiðis undir hjá Lenu. Ég hlýt að hafa lesið það eða heyrt einhvers staðar. Kannski dreymdi mig það.
Hér spilar Lena í eldhúsinu heima hjá sér á meðan hún bíður eftir að suðan komi upp á kartöflunum.
Hljómleikarnir með Lenu eru í Kaldalóni í Hörpu klukkan 19.00. Það er ókeypis inn á alla þessa hljómleika.
Hanus hélt vel heppnaða hljómleika í Austurbæ í Reykjavík 2002. Lena hefur einnig haldið hljómleika hérlendis. Ég man eftir henni á Grand Rokk og á Nasa. Ég er ekki klár á ártölunum.
Hanus og Lena skemmta jafnframt í Sendistofu Færeyja í Austurstræti. Þar er opið hús frá klukkan 14.00 til 18.00. Boðið er upp á smakk á færeyskum mat, glerlistasýningu, málverkasýningu, kvikmyndasýningu og sitthvað annað.
Tónlist | Breytt 18.8.2012 kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.8.2012 | 01:24
Af ókurteisi og skapofsaköstum gistihússeiganda
Í gær skrifaði ég bloggfærslu um verulega dónalegan eiganda gistiheimilisins Travel-Inn á Sóleyjargötu 31 í Reykjavík. Bloggfærslan vakti mikla athygli. Hún var lesin upp í útvarpi og henni var deilt út og suðar á fésbók. Margir lögðu orð í belg. Ýmsir könnuðust við kauða og allar umsagnir voru á einn veg: Þarna er stórt vandamál á ferð.
Bloggfærsluna frá í gær má lesa með því að smella á: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1253128/
Meðal þeirra sem tjáðu sig um vandamálið var Dr. Gunni. Hann hafði þetta um málið að segja:
"Þegar ég var að skrifa ferðahandbókina Top 10 Reykjavík & Iceland hringdi ég einmitt í þetta gistiheimili til að spyrja um prísana og karlinn svoleiðis ærðist og sagði að mér kæmi það ekki við. Greinilega algjör Mr. Fawlty á hestasterum hér á ferð."
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.8.2012 | 20:59
Ruddaleg ógestrisni og grófur dónaskapur
Nýverið átti kanadískur tónlistarmaður leið um Ísland. Það er engin frétt út af fyrir sig. Þessi maður hefur í hálfan annan áratug ferðast þvers og kruss um heiminn. Hann hefur ekki tölu á gististöðunum sem hafa hýst hann. Þeir nema fjögurra stafa tölu.
Þessi kanadíski er afskaplega þægilegur og kurteis. Einstaklega þægilegur og kurteis. Hann gerir ekki kröfur til gististaða. Aðbúnaður skiptir hann litlu sem engu máli. Hann er hvort sem er sofandi þegar hann sefur og á meðan ómeðvitaður um umhverfið.
Hingað kom hann að nóttu til og fór snemma að morgni þar næsta dags. Fyrir utan svefntíma var hann aðeins í nokkra klukkutíma á gistiheimili í Reykjavík fyrri hluta dags. Gistiheimilið, Travel-Inn, varð fyrir valinu vegna góðrar staðsetningar. Það er alveg við Umferðarmiðstöðina. Aðeins örfáa metra til og frá flugrútunni.
Maðurinn átti tvívegis erindi við eiganda Travel-Inn. Í annað skipti leitaði hann eftir því hvort möguleiki væri á að komast í síma. Aðeins til að láta sækja sig á staðinn. Í hitt skiptið spurði hann um lykilnúmer fyrir þráðlausa netið. Viðbrögð eigandans voru óvænt. Sá, eldri maður, hellti sér yfir þann kanadíska. Ávarpaði hann "Kanaskrattinn þinn" (you bloody American). Sagði honum að snáfa til sendiráðs síns til að komast í síma. Bölv og ragn fylgdu með. Erindinu um þráðlausa netið var svarað á svipaðan hátt. Og aftur ávarpaði eigandinn þann kanadíska með orðunum "Kanaskrattinn þinn".
Tónlistarmanninum var verulega brugðið við ruddalega og ofsafengna framkomu eigandans. Hann var miður sín. Hann hefur aldrei á sínu flakki um heiminn kynnst öðrum eins dónaskap.
Þarna er eitthvað stórt vandamál á ferðinni. Ekki aðeins á eigandi Travel-Inn við stórt vandamál að stríða. Vandamál hans er einnig stórt vandamál fyrir íslenska ferðamannaþjónustu. Framkoma hans er skaðleg fyrir ímynd Íslands. Hann er Íslendingum til skammar.
![]() |
Greiða engan virðisaukaskatt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt 15.8.2012 kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (51)
14.8.2012 | 03:42
Ókeypis lag (til niðurhals)
Sólstafir eru þessa stundina á hljómleikaferðalagi um Evrópu og koma fram á mörgum af helstu þungarokkshátíðum heims. Bandið hefur spilað á yfir 40 hljómleikum á meginlandinu síðan í mars, auk nokkura vel valdra tónleika á Íslandi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 03:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2012 | 20:10
Foringjarnir
Það er margt skemmtilegt og áhugavert við þútúpuna. Þar á meðal að þar dúkka iðulega upp gömul og sjaldheyrð lög. Lög af plötum sem ekki hafa fengist í plötubúðum eða annars staðar til fjölda ára og áratuga. Fyrir örfáum dögum birtist á þútúpunni lagið hér fyrir ofan, Get ekki vakað lengur. Það er með hljómsveitinni Foringjunum.
Foringjarnir nutu töluverðra vinsælda um og upp úr miðjum níunda áratugnum. Til að mynda náði lagið Komdu í partý með Foringjunum góðri útvarpsspilun og myndband við það var margoft sýnt í sjónvarpinu.
Hljómsveitin þótti góð í að rífa upp stuð, hvort sem var á dansleikjum eða á hljómleikum. Fyrir bragðið var hún eftirsótt til að hita upp fyrir aðrar hljómsveitir. Ein þeirra var Kiss, svo dæmi sé nefnt.
Foringjarnir voru Þórður Bogason (söngur), Einar Jónsson (gítar), Jósep Sigurðsson (hljómborð), Oddur F. Sigurbjörnsson (trommur) og Steingrímur Erlingsson (bassi).
Höfundar Get ekki vakað lengur eru Þórður og Einar. Þórður hefur sungið með fjölda annara hljómsveita, svo sem Þreki, Skyttunum, Rickshaw, Þrymi, Warning, Þukli, DBD, Rokkhljómsveit Reykjavíkur og Mazza.
Tónlist | Breytt 14.8.2012 kl. 04:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.8.2012 | 00:02
Meiriháttar rokkabillý-hljómleikar
Í gærkvöldi hélt kanadíski rokkabillý-stuðboltinn Bloodshot Bill hljómaleika á Gamla Gauknum á viðburðinum Rockabillý-sprengja aldarinnar!. Langi Seli og Skuggarnir hituðu upp. Áheyrendur voru sammála um að sjaldan eða svo gott sem aldrei áður hafi þeir skemmt sér jafn vel. Langi Seli og Skuggarnir eru ofur svöl hljómsveit. Rokkaðir töffarar með góð frumsamin lög, skemmtilega texta á íslensku og "cool" sviðsframkomu. Langi Seli er góður og yfirvegaður söngvari og hljóðfæraleikararnir í hæsta gæðaflokki. Jón Skuggi afgreiðir kontrabassann flestum öðrum betur. Eric Quick er trommusnillingur. Þannig mætti áfram telja. Frábær hljómsveit. Bloodshot Bill varð aðdáandi með það sama, sem og sumir aðrir sem voru að heyra í hljómsveitinni í fyrsta sinn. Þar á meðal tveir kanadískir túristar á Íslandi sem rak í rogastans er þeir sáu götuauglýsingu um hljómleika rokkabillý-hetju Kanada, Bloodshot Bill, í Reykjavík. Þeim þótti heldur betur ævintýrin gerast er þeir komust í persónulegt návígi við goðið sitt og samlanda.
Einnig slæddist inn á hljómleikana rauðháls (redneck) frá Suðurríkjum Bandaríkjanna, aðdáandi Bloodshots Bills. Rauðhálsinn sté villtan dans á dansgólfinu sveipaður stórum Suðurríkjafána, allt að því teppi. Ósk hans um að Suðurríkin næðu aftur fyrri stöðu (The South Will Rise Again) var kannski pínulítið fjarlægari möguleiki en ósk hans - sem þarna rættist - um að komast á hljómleika með Bloodshot Bill.
Fánadans rauðhálsins setti skemmtilegan svip á hljómleikana. Rokkabillý á rætur og uppruna í Suðurríkjunum í Bandaríkjunum. Er sprottið úr fjölmenningarsamfélagi Suðurríkjanna þar sem mættist blús blökkumanna og keltnesk ættuð dansmúsík fjallalalla (hillbilly).
Bloodshot Bill tók áhorfendur í bóli, eins og Færeyingar orða það. Hann var þvílíkt flottur að unun var að fylgjast með og hlýða á. Hann gaf allt í flutninginn. Er magnaður söngvari, gítarleikari og bakkaði dæmið upp með kraftmiklum trommuleik. Hann er eins-manns-hljómsveit (one man band) og hljómar eins og fjölmenn hljómsveit.
Það segir margt að Bloodshot Bill var klappaður upp í tvígang. Eftir að hljómleikum lauk mokseldi hann af Lp-plötum sínum og geisladiskum.
Nú rignir yfir okkur aðstandendur hljómleikanna óskum um að Bloodshot Bill komi aftur til Íslands og haldi fleiri hljómleika. Líklegt er að við látum það eftir.
Bloodshot Bill er mjög skemmtilegur náungi í viðkynningu. Mikill grallari, fyndinn og hress og afar þægilegur í samskiptum. Af honum fara miklar sögur um óvænt og "sjokkerandi" uppátæki sem hafa stundum gengið fram af áhorfendum. Hann var til að mynda bannaður í Bandaríkjunum í nokkur ár. Hér var hann ljúfur sem lamb. En með afbrigðum hress og fjörmikill. Jafnt á sviði sem utan.
Ég færi Bloodshot Bill og Langa Sela og Skuggunum bestu þakkir fyrir frábæra skemmtun. Svo og afskaplega þægilegu og lipru starfsfólki Gamla Gauksins.
Langi Seli og Bloodshot Bill.
Bloodshot Bill og Smutty Smiff.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.8.2012 | 13:29
Spennandi og ævintýraleg öðruvísi hús
Í mörgum hverfum borga og bæja eru flest eða öll húsin alveg eins. Það er ljótt - sama hversu flott hvert einstakt hús er út af fyrir sig. Þar fyrir utan er það ruglingslegt. Það er erfitt að þekkja húsin í sundur og rata á rétt hús. Þetta hefur oft skapað vandræði. Einkum þegar mjög ölvað fólk er á rölti að nóttu til.
Á Grænlandi og víðar er til siðs að greina hús að með skærlitaðri málningu. Ef líkt hús eins nágranna er skærrautt og annars nágranna skærblátt þá málar þú þitt hús skærgrænt eða fjólublátt eða appaelsínugult.
Skemmtilegast fyrir alla er samt að hús hvers og eins sé frábrugðið öllum öðrum húsum. Það gleður augað.
Takið eftir því að á milli húss og meginlands hangir kláfur í bandi. Þannig komast gestir og heimilisfólk heim og að heiman.
Blokk þarf ekki að vera einn ljótur ferkantaður kassi. Það er enn ríkari ástæða til að hleypa sköpunargleðinni á skeið þegar blokk er hönnuð ein einbýlishús.
Ef vel er að gáð sést glitta í stiga undir húsinu. Hann er einungis hægt að nota í stilltu veðri. Hann sveiflast of mikið í hvassviðri. En útsýnið er stórfenglegt.
Ef svo óheppilega vill til að þú býrð í ófrumlegu húsi þá er upplagt að skreyta það með því sem hendi er næst. Til að mynda með bíl. Þar með eignast þú líka húsbíl.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.8.2012 | 22:09
Blóðhlaupni Bjarni
Það hefur ekki farið framhjá neinum - sem á annað borð fylgist vel með - að heitasta nafnið í rokkabillý-senunni, Bloodshot Bill, er á leið til landsins. Þessi kanadíski stuðbolti treður upp á Gamla Gauknum á laugardaginn. Húsið opnar klukkan 21.00. Í boði verður 2 fyrir 1 (sælustund, "happy hour") á barnum þangað til Langi Seli & Skuggarnir stíga á stokk um klukkan 22.00.
Þeir eru þekktir fyrir að rífa fjörið upp á rassgatinu. Áhorfendur verða komnir í hæsta gír þegar Bloodshot Bill tekur við. Og sá kann nú aldeilis trylla lýðinn.
Með því að smella á þennan hlekk fást nánari upplýsingar um viðburðinn: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1251813/
Með því að smella á eftirfarandi hlekk og stilla á mín 31.30 má heyra umfjöllun Andreu Jóns á rás 2 um Bloodshot Bill: http://www.ruv.is/sarpurinn/popppressan/08082012-0 Það er reyndar gaman að hlusta þáttinn hennar frá byrjun til enda.
Eins og þar kemur fram syngur Bloodshot Bill og spilar samtímis á trommur og gítar. Fyrir hljómleikana hér þarf að redda honum ýmsum græjum að hans óskum. Hann kemur þó með bassatrommuna sjálfur.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.8.2012 | 22:10
Sumarbústaðaæði - mikilvægt að hafa í huga við val á sumarbústaði
Það er skollið á sumarbústaðaæði. Það er togast á um hvern einasta sumarbústað á landinu. Í fljótu bragði má virðast einkennilegt að ásókn í sumarbústaði sé svona mikil á þessum árstíma. Eins og nafnið bendir til hangir fólk helst í sumarbústað yfir sumartímann. Nú er vetur að ganga í garð.
Kosturinn við að kaupa sumarbústað að hausti er margþættur. Til að mynda losnar kaupandinn alveg við viðhald fyrsta hálfa árið. Það er aðeins á sumrin sem fólk dútlar allar helgar við að dytta að sumarbústaðnum: Bæsa, lakka, mála, smíða...
Í öðru lagi losnar kaupandinn við stöðugan gestagang fyrsta hálfa árið. Nóg er að hafa ekki stundlegan frið fyrir honum yfir sumartímann.
Að öðru leyti er flest ákjósanlegt við að eiga sumarbústað. Það er yndislegt að geta slitið sig frá erli dagsins í bænum, kúplað sig frá öllu og slappa af í sumarbústaðabyggð úti á landi. Oft vill svo skemmtilega til að nágrannarnir eiga bústað við hliðina. Þá er málið að reyna að gera sinn sumarbústað flottari.
Áður fyrr var ekki símasamband í sumarbústöðum. Ekkert sjónvarp og engin tölva. Eiginlega ekki neitt utan borðs, stóla og rúma. Þá greip fólk í spil eða tafl og náði að kynnast hvert öðru. Núna sitja allir hver með sína tölvu eða snjallsíma og hanga inni á fésbók.
Það er vandasamt að velja sér sumarbústað. Mikilvægt er að hann skarti sem mestu timbri. Það er alvöru sumarbústaðastemmning í því. Einnig er nauðsynlegt að hann sé með gluggum.
Gott er að hafa yfirbyggðan sólpall. Það rignir oft í sumarbústaðabyggðum.
Fátt er betra en sitja í heitum potti eða í sundlaug við sumarbústað. Það er jafn ómissandi og kældur bjór.
Sumarbústaður á stultum dregur úr líkum á að hagamýs og villikanínur slæðist inn í bústaðinn.
Ef lítið er af trjám á svæðinu er lag að stinga upp nokkrar hríslur og raða þeim við og á bústaðinn. Það er mikil sumarbústaðastemmning í því.
Upplagt er að nota sumarbústaðinn til að skerpa á áhugamálinu. Til dæmis má undirstrika bíladellu með því að láta bústaðinn bera svip af bíl.
Svipaða aðferð geta sjómenn notað: Látið bústaðinn bera einkenni báts.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
7.8.2012 | 20:57
Einkennilegt þref í Þorlákshöfn
Ég átti leið um Þorlákshöfn. Þar rakst ég á lítinn sætan matsölustað. Hann heitir Viking Pizza. Af innréttingum má ráða að staðurinn sé einnig rekinn sem bar. Afgreiðsluborðið er barborð. Fyrir framan það eru háir barstólar. Fyrir innan er úrval af vínflöskum.
Ég bað um matseðil. Það var auðsótt mál. Fátt freistaði þar. Þrautalending var að panta rétt sem samanstóð af tveimur úrbeinuðum kjúklingaleggjum með frönskum kartöflum og fersku salati. Kjúklingaleggirnir voru ágætir þegar á reyndi.
Á matseðlinum stóð að verðið væri 1590 kr. Ég setti á afgreiðsluborðið 1000 kall, 500 kall og 100 kall. Í kjölfarið hófst hið skemmtilegasta spjall.
Afgreiðsludaman (ákveðin): "Það vantar 90 kall."
Ég (bendi á 100 kallinn): "Hann er hér."
Hún: "Þetta er bara einn 100 kall."
Ég: "Einmitt. Ég á að fá 10 krónur til baka."
Hún: "Það vantar annan 100 kall."
Ég: "Rétturinn kostar 1590. Það er einn hundrað kall plús seðlarnir og tíkall til baka."
Hún: "Rétturinn kostar 1690."
Ég (bendi á verðið á matseðlinum): "Það stendur á matseðlinum að hann kosti 1590."
Hún: "Hann kostar 1690."
Ég: "En af hverju stendur á matseðlinum að hann kosti 1590?"
Hún: "Af því að hann kostaði 1590. Það er búið að hækka hann í 1690."
Ég: "Hvers vegna stendur þá ekki á matseðlinum að hann kosti 1690?"
Hún: "Af því að það á eftir að breyta því."
Matur og drykkur | Breytt 8.8.2012 kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
6.8.2012 | 23:41
Veitingahússumsögn
- Veitingastaður: Fjöruborðið, Stokkseyri
- Réttur: Humarsúpa
- Verð: 2050 kr.
- Einkunn: ***** (af 5)
Ég var plötusnúður á Stokkseyri um helgina. Nánar tiltekið á Draugabarnum í Lista- og menningarmiðstöðinni. Það er önnur saga. Þessi saga snýr að veitingahúsinu Fjöruborðinu á Stokkseyri. Þegar maður er í nágrenni þess þá er nauðsyn að koma þar við. Þetta er einn besti veitingastaður landsins. Enda troðið út úr dyrum flesta daga. Útlend frægðarmenni eiga varla leið um Ísland öðru vísi en birtast í Fjöruborðinu. Stúlka sem vann þarna um tíma sagði mér að starfsfólkið kippi sér ekki upp við að afgreiða Clint Eastwood eða aðrar ámóta heimsþekktar stórstjörnur.
Næstum daglega lenda þyrlur á þyrlupalli þarna með útlenda auðmenn. Á dögunum var brosað að sádí-arabískri prinsessu sem kom í þyrlu og spurði hvort möguleiki væri á "Take away" nestispakka í Fjöruborðinu. Það er ekki siður þarna en var auðsótt mál.
Húsakynni Fjöruborðsins eru gamaldags timburhús með mörgum misstórum borðstofum. Það er "sjarmi" yfir þessu. Staðurinn er mitt á milli þess að vera fínn og millifínn. Þjónar eru á þönum í sérmerktum klæðnaði. Það er sama hvað mikið er að gera. Gesturinn finnur lítið fyrir því. Allt gengur hratt og örugglega fyrir sig. Ég hef reyndar lent í því að svo gestkvæmt sé að bið eftir lausu borði taki upp í 2 - 3 tíma. Þá er lag að panta borð og mæta aftur á tilsettum tíma. Þegar annríki er mest er verið að afgreiða upp í 800 gesti á einni helgi.
Ef þolinmæði er af skornum skammti er einnig hægt að skjótast á Eyrarbakka. Þar er frábær veitingastaður sem heitir Rauða húsið.
Góð humarsúpa er besta súpa í heimi. Toppurinn er humarsúpan í Fjöruborðinu. Gesturinn er varla fyrr sestur en hann fær á borð óumbeðið klakavatn. Því næst er komið með brauð ásamt þremur sósum. Ein er sæt. Önnur er hvít, fersk og bragðlítil. Sú þriðja er einhverskonar hvítlauks tómat-hummus.
Munnþurrkan er þykk tau-servíetta. Það er stæll. Borð eru svört og ódúkuð. Stólar eru ódekkaðir í stíl við svart timburhúsið.
Humarsúpan kemur í fullum djúpum diski. Ábót er í meðfylgjandi potti og er sama skammtastærð. Meðal manneskja getur varla torgað nema hluta af brauði og ábótinni er svo gott sem ofaukið. Nema til að veiða upp úr henni humarinn.
Það er reisn yfir því að hafa skammta svona ríflega. Það er blóðugt að geta ekki gert þeim öllum skil. Á móti vegur að hver biti og hver súpuskeið er lostæti.
3.8.2012 | 18:47
Rockabillysprengja aldarinnar!
Sjóðheitur frá Kanada rokkabilly-stuðboltinn Bloodshot Bill.
Langi Seli & Skuggarnir keyra upp stuðið og þegar allt verður komið á suðupunkt tekur Bloodshot Bill við.
http://midi.is/tonleikar/1/7106
https://www.facebook.com/events/487868717892605/
Tónlist | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2012 | 01:42
Bítladrengirnir blíðu og stórkostlegu
Ég skrapp á skemmtistaðinn Ob-La-Di. Þar skemmta Bítladrengirnir blíðu á fimmtudögum. Þetta er stórkostleg hljómsveit. Hún spilar Bítlalög með sínum hætti. Stælir ekki nákvæmlega útsetningar Bítlanna á þeirra lögum heldur snýr þeim í allar áttir. Þetta er allt að því djamm og spuni á köflum. Samt svífur andi Bítlanna yfir vötnum. Lögin eru Bítlanna en framvindan tekur á sig ýmsar myndir.
Þannig getur lag á borð við Eleanor Rigby þróast yfir í hávært rokk áður en yfir lýkur. Bara svo að dæmi sé nefnt.
Kjarninn í Bítladrengjunum blíðu eru Tómas M. Tómasson á bassa, Eðvarð Lárusson á sólógítar, Magnús R. Einarsson syngur og spilar á gítar. Ásgeir Óskarsson trommar. Iðulega mæta gestir til leiks. Í kvöld voru það óperusöngvarinn Þór Breiðfjörð og ásláttarleikarinn Karl (ég er ekki með fullt nafn hans á hreinu).
Magnús hefur þægilega söngrödd og er fínn gítarleikari. Eðvarð er dúndur góður sólógítarleikari. Viðar Júlí vinur minn telur sig merkja áhrif frá Pat Metheny í sólógítarleik hans. Gítarleikur Eðvarðs er frjáls, lipur og oft ófyrirsjáanlegur og æsilegur á köflum. Tómas er traustur bassaleikari. Einn sá besti. Ásgeir er sjaldan eins kröftugur á trommusettinu og í Bítlalögunum þegar leikar "tjúnast upp". Frábær trommari.
Frekar lítið bar á Karli ásláttarleikara. Þeim mun sterkari var innkoma Þórs Breiðfjörð. Það var ekki að heyra að þetta væri þjálfaður óperusöngvari. Hann var í alvöru rokkgír. Söngröddin sterk og jafnan stutt í öskursöngstílinn.
Það er virkilega gaman fyrir Bítlaunnendur og hverja sem er að heyra Bítladrengina ljúfu á Ob-La-Di. Spilagleðin ræður ríkjum, ásamt því hvað hljómsveitin er góð. Liðsmenn hennar þekkja hvern annan út í eitt. Þeir geta leyft sér að fara á flug vitandi hvað hinir í hljómsveitinni muni gera.
Hverjir tveir hljómleikar með Bítladrengjunum blíðu eru ólíkir. Enginn veit hvert framvindan leiðir þá. Ekki heldur þeir sjálfir. Þetta er góð skemmtun. Virkilega góð skemmtun.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2012 | 21:51
Bráðskemmtileg hjólhýsi og áríðandi ábendingar
Hjólhýsi og húsbílar eru í tísku hjá Íslendingum. Það er sprengisala í þessum fyrirbærum. Hún nær hámarki núna fyrir verslunarmannahelgina. Yfir köldustu og snjóþyngstu vetrarmánuðina er dræm sala í hjólhýsum, húsbílum og fellihýsum. Sala á fellihýsum er reyndar dræm allt árið. Hjólhýsi og húsbílar eru málið.
Fellihýsi er hallærisleg. Þau eru ljót, óstöðug í roki og það er fyrirhöfn að setja þau upp og taka þau niður. Það er út í hött að vera með fellihýsi þegar hægt er að fá glæsileg hjólhýsi fyrir 7 milljónir og varla það. Húsbílar kosta aðeins örfáum milljónum meira.
Margir byrjendur og fúskarar halda að munurinn á húsbíl og hjólhýsi sé sá að húsbíllinn sé blanda af bíl og húsi en hjólhýsið blanda af reiðhjóli og húsi. Þessi munur þarf ekki að vera svona. Hjólhýsi getur verið húsvagn. Það er að segja yfirbyggður vagn á hjólum. Algengast er að hjólhýsið sé fest aftan á bíl. En það má líka draga það á fjórhjóli, traktor og ýmsu öðru - ef fjölskyldunni liggur ekkert á.
Fjölmennar fjölskyldur þurfa 2ja hæða hjólhýsi.
Hjólhýsin eru flottust og náttúrulegust eftir því sem þau eru nettari, timbrið fær að njóta sín betur og þau falla að landslaginu.
Þegar ferðast er með hænur er gott að hafa nettan stiga fyrir þær með í för. Hænur eiga erfitt með flug en þeim gengur vel að rölta.
Mikilvægt er að skorða hjólhýsi vel þegar það er ekki í notkun.
![]() |
Íslendingar velja hjólhýsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.8.2012 | 01:39
Besta sjómannaplata sögunnar
Ein merkasta hljómsveit rokksögunnar var bandaríska The Byrds. Hún sameinaði það sem hæst bar í bandarískri þjóðlagamúsík á fyrri hluta sjötta áratugarins (Bob Dylan, Joan Baez, Peter, Paul & Mary...) og breska Bítlarokkið. Frábær hljómsveit sem síðar leiddi framsækið Bítlarokk yfir í raga (indverskt popp), kántrý, space-rokk og sitthvað fleira.
Forsprakki The Byrds var alla tíð Roger McGuinn. Magnaður gítarleikari sem fór meðal annars á kostum í Eight Miles High.
Margir telja þetta vera einn af hápunktum hipparokks sjöunda áratugarins. Hljómsveitin The Byrds hafði djúpstæð áhrif á samtímahljómsveitir. Ekki síst Bítlana. En hún tók einnig mörg óvænt hliðarspor sem á þeim tíma ollu hneykslan. Ekki síst með kántrý-plötunni Sweetheart of the Rodeo.
Á undaförnum árum hefur forsprakki The Byrds, Roger McGuinn, sett sig í það hlutverk að varðveita og kynna gömul bresk og bandarísk þjóðlög. Nýjasta plata hans heitir CCD. Það er orðaleikur með enska orðið "sea" (sjór). Þar flytur hann gamla enska, írska og bandaríska sjómannaslagara.
Fáir vita að Roger McGuinn er af dönskum ættum. Amma hans er dönsk og hann heldur samskiptum við danska ættingja. Það er önnur saga.
Á plötunni "CCD" flytur Roger McGuinn 23 sjómannaslagara. Hann raddar af lagni með sjálfum sér. Tenórsöngrödd hans er ljúf í aðalrödd. Hann heldur tryggð við þjóðlagastemmningu laganna. Þetta er notaleg plata. Falleg lög og hlýlegur órafmagnaður flutningur. Alveg dúndur góð plata. Besta sjómannalagaplata sögunnar.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2012 | 21:19
Miðborgin dó í dag
Miðbærinn í Reykjavík dó í dag. Ástæðan er tvíþætt: Annarsvegar hækkuðu gjöld í stöðumæla. Hinsvegar tilkynntu forsvarsmenn Dressmann um þá ákvörðun útlendra eigenda verslunarkeðjunnar að búðinni á Laugaveginum verði skellt í lás. Og aldrei opnuð aftur. Vegna yfirvofandi gjaldskrárhækkunar í stöðumæla hefur búðin á Laugaveginum verið rekin með bullandi tapi til margra ára.
Það er þyngra en tárum taki að þurfa að borga 12 og hálfri krónu meira en áður í gjaldmæli fyrir að skjótast í búð á Laugaveginum. Nógu erfitt er að nurla saman 12 milljónum fyrir báðum litlu nýju heimilisbílunum á 3ja ára fresti þó að þessi ósköp bætist ekki við.
Aðeins einn bíll og ein manneskja sáust á Laugaveginum í dag. Manneskjan var útlensk og kom á bílnum í miðborgina til að kaupa sér ullarvettlinga og húfu. Manneskjunni var ekki kunnugt um gjaldskrárhækkunina. Hún ætlaði að slóra í 10 mínútur við kaupin og setti 3750 krónur í stöðumælinn í staðinn fyrir 37.50 kr. Hún áttaði sig ekki í tæka tíð á því hvað bílastæðisgjöldin hér eru mikið lægri en í útlöndum. Fyrir vikið sat hún uppi með næstum 17 klukkutíma bílastæði. Til að sóa því ekki í vitleysu hélt útlendingurinn til í miðborginni í allan dag. Kíkti inn í hverja einustu búð, öll veitingahús og bara hvar sem dyr voru ólæstar.
Þó að útlendingurinn hafi eytt hundrað þúsundköllum á bæjarröltinu dugði það ekki til að bjarga miðborginni frá dauða. Hún dó, eins og sést á þessari mynd sem var tekin á háannatíma í dag. Það á aldrei aftur eftir að sjást manneskja eða bíll í miðbænum. Aldrei.
![]() |
Loka Dressmann á Laugavegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 31.7.2012 kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
29.7.2012 | 23:56
Hellvar fór á kostum! Meiriháttar kostum!
Tónlist | Breytt 30.7.2012 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2012 | 19:04
Árangursrík heimsókn borgarstjórans í Reykjavík til Færeyja
Fyrir nokkrum dögum skrifaði ég bloggfærslu um þá fyrirhugaða Gleðigöngu í Færeyjum, Faroe Pride. Þar fullyrti ég meðal annars eftirfarandi: "Það er alveg klárt að nærvera og þátttaka borgarstjórans í Reykjavík og Eivöru mun reynast Faroe Pride þungt lóð á vogarskálina; gefa göngunni alvöru vigt og verða Færeyingum hvatning til að fjölmenna í hana. Það er næsta víst að með þátttöku sinni tryggja þau að Föroya Pride 2012 verði fjölmenn gleðiganga."
Þetta gekk svo sannarlega eftir. Hér má sjá mynd af fyrri færeyskri Gleðigöngu:
Aðeins örfáir tugir þátttakenda. Þar af komu flestir frá Danmörku og Íslandi. Á föstudaginn mætti hinsvegar á sjötta þúsund manns í gönguna í Þórshöfn. Íbúar Þórshafnar eru rétt um 20 þúsund. Önnur eins þátttaka í skrúðgöngu hefur aldrei áður sést í Færeyjum.
Fyrir og eftir gönguna var kvartað undan vondri tímasetningu. Það er að segja að gengið var á föstudegi á meðan fjöldi manns er fastur í vinnu. Margir sem ólmir vildu vera með komust ekki frá.
Það fór ekki á milli mála hvað Jón Gnarr lék stórt hlutverk í Gleðigöngunni. Í Færeyskum fjölmiðlum var stóri punkturinn í fréttum af göngunni stuðningur borgarstjórans í Reykjavík við málstað samkynhneigðra. Hér má sjá dæmigerða frétt (úr færeyska útvarpinu):
http://www.kringvarp.fo/Archive_Articles/2012/07/27/borgarstjori-studlar-samkynd-i-foroyum
Fréttir íslenskra fjölmiðla af Faroe Pride hafa einnig snúist um þátttöku Jóns Gnarrs. Ég minnist þess ekki að íslenskir fjölmiðlar hafi gefið Gleðigöngu í Færeyjum gaum áður. Færeyskir fjölmiðlar voru reyndar líka áhugalitlir þangað til nú.
Jón stóð vel að málum. Mætti í bleikum jakkafötum og las upp góða ræðu. Henni var síðan dreift á færeysku til göngumanna.
Það er gaman þegar framfarir eru í mannréttindum, umburðarlyndi, kærleika og gleði, hvar sem er í heiminum.
![]() |
Skrifaði ræðuna á iPad |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt 29.7.2012 kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
26.7.2012 | 19:01
Veitingahússumsögn
- Staður: Hrói höttur, Hringbraut
- Réttur: Hádegishlaðborð
- Verð: 1590 kr.
- Einkunn: *** (af 5)
Á netsíðu Hróa hattar stendur að hádegishlaðborð kosti 1390 kr. Hið rétta er að það kostar 1590 kr. Að minnsta kosti á staðnum við Hringbraut. Hrói höttur er víðar. Meðal annars í Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Selfossi.
Af heitum réttum á hlaðborðinu má nefna fiskibollur í karrýsósu, grillaðar svínasneiðar með bbq-sósu, lambakjöt og kjúklingaréttur. Ýmsar útgáfur af pizzum eru á hlaðborðinu og brauðstangir. Svo og kaldur djúpsteiktur fiskur.
Af meðlæti má nefna grænar baunir, rauðkál, maísbaunir og allskonar salöt. Ekki má gleyma heitu piparsósunni. Né heldur þremur köldum sósum auk kokteilsósu. Þegar mig bar að garði um klukkan 13.00 voru engar skeiðar í köldu sósunum. Þær virtust vera ósnertar þrátt fyrir að obbinn af hádegisgestum væri kominn og farinn.
Karrýsósan á fiskibollunum var af skornum skammti. Það þurfti að kafa neðst í skálina til að ná einhverju af henni. Bæði sósan og bollurnar brögðuðust vel. Lambakjötið var aftur á móti of þurrt. Kjúklingaréttinum svipaði til asískra rétta: Smáir kjötbitar en þeim mun meira af lauki og grænmeti.
Hlaðborð er heppilegast að afgreiða með því að taka sér í fyrstu umferð sitt lítið af hverju. Það er gaman að smakka marga ólíka rétti. Svo er sótt viðbót af því sem best reynist.
Grilluðu svínasneiðarnar voru bestar. Það hefði mátt hafa örfáar þeirra skornar í tvennt. Heil sneið er of stór skammtur með smakki af öðrum réttum.
Stærsti ókosturinn við hlaðborðið er að einungis er boðið upp á franskar kartöflur. Það er til of mikils mælst að biðja um grillaðar kartöflur með svínasneiðinni. En frönsku kartöflurnar draga hlaðborðið ansi langt niður - þegar ekki er kostur á öðrum kartöflum.
Súpa (og kaffi að ég held) fylgir með í pakkanum.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)