30.6.2012 | 21:13
Margir eru með orm í auga
Það er algengt að fólk ali orm í auga sér. Miklu algengara en flestir halda. Fæstir eru þó að hafa orð á því. Síst af öllu hýsill ormsins. Ástæðan fyrir þögguninni er margþætt. Ein er sú að menn skammast sín afskaplega mikið fyrir að vera með orm í auga. Þeir reyna að leyna aðra því. Hafa þetta út af fyrir sig sem vandræðalegt leyndarmál.
Önnur ástæða er sú að margur maðurinn með orm í auga veit ekki af því. Það fer svo lítið fyrir orminum. Þessi kvikyndi hafa rebbavit. Þau vita hvænær brýn ástæða er til að hafa hægt um sig og láta lítið á sér bera.
Grennstu og rauðleitustu ormarnir fela sig innan um blóðfylltar æðar í auganu. Eigandi augans virðist þá vera aðeins rauðeygari en áður. En ekki sem neinu nemur.
Aðrir ormar eru eiginlega litlausir. Nánast glærir. Það er erfitt að koma auga á þá.
Í enn öðrum tilfellum kemur ormurinn sér fyrir neðan við augað. Hýsillinn virðist þá vera með smá baug undir auganu. Það er ekkert óvenjulegt við það. Flestir eru með bauga undir augum í kjölfar langs fyllerís. Ef baugur undir öðru auga er örlítið stærri en baugur undir hinu auga er næsta víst að í þeim stærri leynist ormur.
Hvaðan koma ormarnir? Hvert fara þeir? Hvað heita þeir? Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Einn möguleikinn - kannski - er að ormarnir berist úr dýrum. Augu í dýrum eru sum hver löðrandi í ormum. Þetta þurfa dýraeigendur að vita. Á myndunum af kattaraugunum má greina orm í auganu neðst til vinstri.
![]() |
Var með 13 cm orm í auganu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.6.2012 | 01:46
Söngvari Led Zeppelin syngur um Eivöru
Enski söngvarinn Robert Plant var í bestu rokkhljómsveit sögunnar, Led Zeppelin. Með henni kom hann fyrst til Íslands 1970. Hljómsveitin hélt hljómleika í Laugardalshöll. Skömmu síðar sendi Led Zeppelin frá sér plötuna Led Zeppelin III. Þar syngur Robert lag um Ísland, Immigrant Song. Textinn hefst á þessum orðum:
We come from the land of the ice and snow
from the midnight sun where the hot springs blow
The hammer of the gods will drive our ships to new lands
To fight the horde and sing and cry, Valhalla, I am coming
Þarna er tilvísun í ásatrú. Robert Plant er heiðursfélagi í íslenska Ásatrúarfélaginu. Hann fær reyndar ekki að vera skráður formlega hjá Hagstofunni í félagið. Það geta aðeins íslenskir ríkisborgarar.
Fyrir nokkrum árum mætti Robert óvænt á blót hjá Ásatrúarfélaginu í þáverandi félagsheimili þess á Grandagarði. Á miðju blóti kvaddi hann sér hljóðs. Hann lýsti gleði sinni sem ásatrúarmaður yfir því að á Íslandi sé starfandi og skráð Ásatrúarfélag.
Robert Plant hefur oftar heimsótt Ísland. Ekki veit ég hvenær hann hefur uppgötvað færeysku söngkonuna Eivöru, sem Íslendingar hafa slegið eign sinni á. Ef grannt er hlustað má heyra hann hér syngja um hana strax í upphafi lags: If Eivör a Carpenter...
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2012 | 21:29
Einkennilegt samtal við afgreiðslukassa
Mig langaði í Malt og skrapp í Nóatún. Á undan mér við afgreiðslukassann voru þrjár aldraðar konur. Ég held að þær hafi þekkst. Þó er ég ekki viss. Þær voru að versla hver fyrir sig. Sú fremsta í röðinni gerði töluverð innkaup, staðgreiddi með seðlum og klinki, vatt sér fram fyrir færibandið og fór að hlaða í innkaupapoka. Hún fékk ekkert til baka því að hún var með rétta upphæð handa afgreiðsludömunni. Afgreiðsludaman lét aftur á móti kassastrimilinn á litla borðið á færibandinu þar sem penni liggur og form er fyrir peninga til baka og eitthvað svoleiðis.
Kona númer tvö tók strimilinn, snéri sér með hann til konu númer þrjú og spurði: "Hvað geri ég við þetta?"
Sú svaraði: "Þú átt að kvitta á þetta."
Hún lét sér ekki segja það tvisvar heldur tók pennann og skrifaði nafn sitt snyrtilega neðst á kassastrimilinn og rétti hann afgreiðsludömunni. Daman var byrjuð að renna í gegnum skannann vörum konu númer tvö og fylgdist ekkert með samtölum þeirra gömlu en spurði: "Á ég að henda miðanum?"
Sú gamla neitaði því: "Nei, ég var að kvitta á hann fyrir þig."
Afgreiðsludaman: "Þetta er ykkar strimill."
Sú gamla spurði hálf ringluð: "Nú? Á ég þennan miða?"
Afgreiðsludaman játti því. Sú gamla braut strimilinn vandlega saman og stakk ofan í veskið sitt. Eftir þetta gekk afgreiðslan eðlilega fyrir sig.
Tækninýjungar eru svo örar og síbreytilegar að eldra fólk er í vandræðum. Sumt. Þar á meðal ég. Það er samt alveg til eldra fólk sem er eldsnöggt að tileinka sér nýjungar.
Viðskipti og fjármál | Breytt 30.6.2012 kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
28.6.2012 | 11:30
Áríðandi að vita um dans
Dans er listform. Listform á tjáningu sem lýtur lögmálum strangs aga. Það má ekki undir neinum kringumstæðum umgangast dans af kæruleysi eða með galgopahætti. Slíkt er gróf móðgun við listagyðjuna. Mikilvægt er að undirstrika alvöruna á dansgólfinu með því að setja upp svip einbeitingar, innlifunar og ákveðni, í stíl við þann sem konan á myndinni hefur náð fullkomnum tökum á.
27.6.2012 | 00:35
Ávextir eru ruslfæði
í samanburði við súkkulaði. Þetta hef ég eftir hjartalækni á sjúkrahúsinu Lonex Hill í Manhattan í Nýju Jórvík. Hann - eða öllu heldur hún vegna þess að þetta er kona, Susan Steinbaum - segir að súkkulaði innihaldi miklu meira af andoxunarefnum en ávextir. Og jafnframt efni sem heitir polyfenól. Þessi efni koma í veg fyrir hjartasjúkdóma, háan blóðþrýsting, hægja á öldrun og sitthvað fleira. Susan ráðleggur fólki að fá sér frekar nokkra súkkulaðimola heldur en ávexti til að maula á. Kannski er ágætt að blanda þessu saman? Mér dettur það í hug. Svona ef það er einhver ágreiningur um þetta. Skella til að mynda einu kirsuberi ofan á súkkulaðið.
Heilbrigðismál | Breytt 28.6.2012 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.6.2012 | 21:01
Nýtt, snoturt og grípandi lag með færeyskri söngkonu
Þetta lag heitir "Hey Candy" og er sungið af færeysku söngkonunni Dortheu Höjgaard Dam. Höfundur þess er eiginmaður hennar, William Silverthorn. Þau eru búsett á Íslandi - þrátt fyrir að eiga tvö hús í Færeyjum. Dorthea Höjgaard hefur komið fram á nokkrum hljómleikum hérlendis, meðal annars með Peter Pólson (Clickhaze). Dorthea Höjgaard Dam er virkilega góð söngkona með fallega söngrödd.
"Hey Candy" er spilað í færeysku útvarpi og líklegt til að verða sumarsmellurinn þar í ár. Ég er sannfærður um að ef spilun á laginu hefst í íslensku útvarpi þá verði það sama upp á teningnum.
Tónlist | Breytt 26.6.2012 kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2012 | 19:21
Stigar geta verið góð skemmtun
Stigar eru leiðinlegir. Þeir eru ekki til óþurftar en þeir eru til leiðinda. Hver hefur ekki dottið niður stiga og verið allur lurkum laminn á eftir? Jafnvel hrasað alveg efst í stiga og rúllað niður hann allan og langt út á gólf og rekið þar hausinn í hillustæðu. Góðu fréttirnar eru þær að auðvelt er að hafa stiga í þannig útfærslu að þeir veiti góða skemmtun. Einkum þegar farið er af efri hæði niður á neðri hæð. Þá er fjör og þá er gaman. Þetta sparar einnig tíma. Mikinn tíma til lengri tíma litið.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.6.2012 | 00:43
Glæsilegur fótboltavöllur
Ég fylgist ekkert með fótboltaleikjum. Hef eiginlega óþol gagnvart þannig sprikli og þessari perrastemmningu þar sem kynferðislega brenglaðir fá útrás fyrir hvatir sínar við að flengja nýliða á beran bossa. Iðulega með þeim afleiðingum að nýliðinn á um sárt að binda dögum saman.
En það er stöðugt verið að sýna í sjónvarpi frá fótboltaleikjum. Völlurinn er jafnan sléttur og flottur. Það virðast vera til nógir peningar þegar kemur að fótboltavöllum. Nema í Póllandi. Þetta er aðal fótboltavöllurinn þar.
![]() |
Kyssir nú karlmann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
23.6.2012 | 15:26
Bestu lög síðustu 6 áratuga
Breska popptónlistarblaðið New Musical Express er sextíu ára. Til hamingju með það. Þetta er vikublað. Það hefur náð að hrista af sér alla keppinauta í áranna rás. Um hríð atti það kappi við fjölda annarra popptónlistarvikublaða (Melody Maker, Sounds, Record Mirror...) sem öll lognuðust út af, hægt og bítandi.
New Musical Express er næst söluhæsta popptónlistarblað heims (á eftir bandaríska Rolling Stone). Það mokselst í Bandaríkjunum og út um alla Evrópu. Í Bandaríkjunum er NME selt í öllum blaðsölustöndum úti á gangstéttum. Bandarísk poppblöð, önnur en Rolling Stone, eru ekki til sölu í þessum blaðsölustöndum. Þau fást aðeins í bókabúðum. NME hefur mikil áhrif í popptónlistarbransanum og er breskri popptónlist ómetanlegur sendiherra.
Í tilefni afmælisins hefur New Musical Express leitað til fjölda rokkstjarna til að setja saman lista yfir bestu lög sem komið hafa á markað á líftíma New Musical Express. Ég er sjaldan verulega óánægður með svona lista. En þeir eru samt aldrei alveg eftir mínu höfði. Þessi listi er meira á skjön við mín viðhorf en flestir aðrir listar. Engu að síður er ég sáttur við toppsætið. Þar fyrir utan lít ég svo á að eiginleg sætaröð skipti ekki miklu máli. Mikilvægara er að viðkomandi lag sé á listanum. Svo er þetta nú bara léttur samkvæmisleikur. Engin ástæða til að taka hann of alvarlega. Þetta er líka góð ástæða til að rifja upp kynni við mörg frábær lög.
1. Joy Division 'Love Will Tear Us Apart'
2. Pulp 'Common People'
3. David Bowie '"Heroes"'
4. The Beach Boys 'Good Vibratons'
5. New Order 'Blue Monday'
6. The Stone Roses 'She Bangs The Drums'
7. The Smiths 'There Is A Light That Never Goes Out'
8. The Specials 'Ghost Town'
9. Dizzee Rascal 'Fix Up, Look Sharp'
10. Oasis 'Wonderwall'
11. The Rolling Stones 'Sympathy For The Devil'
12. The Ronettes 'Be My Baby'
13. Michael Jackson 'Billie Jean'
14. Sex Pistols 'God Save The Queen'
15. The Beatles 'A Day In The Life'
16. The Cure 'Boys Don't Cry'
17. Bob Dylan 'Like A Rolling Stone'
18. The Beach Boys 'God Only Knows'
19. Madonna 'Like A Prayer'
20. The Stone Roses 'I Am The Resurrection'
Lesendum var boðið upp á að setja saman samskonar lista. Hann er glettilega líkur. Svo kannski er þetta bara dálítið eins og staðan er.
Tónlist | Breytt 24.6.2012 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.6.2012 | 15:26
Brenndu 800 hitaeiningum á hálftíma!
Svona getur þú auðveldlega brennt 800 hitaeiningum - án þess að leggja á þig óþægilega mikla hreyfingu - á aðeins 30 mínútum. Það eina sem til þarf er gott pizzudeig (fæst úti í næstu matvöruverslun eða bakaríi) sem þú fletur út í um það bil 41 centimetra hringlaga skífu. Ofan á þessa skífu makar þú vænum skammti af pizzasósu. Þar ofan á er raðað pepperoni, beikonbitum og allskonar. Efst er hrúgað niðurrifnum osti yfir allt.
Þetta er sett í snarpheitan ofn (lágmark 200 gráðu heitan) og látið bakast í 30 mínútur. Þá ættu hitaeiningarnar í og á pizzunni að hafa skaðbrunnið.
![]() |
Gengur hræðilega illa að léttast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
21.6.2012 | 20:46
Bestu hljómsveitanöfnin
Spin er næst söluhæsta bandaríska tónlistarblaðið á eftir Rolling Stone. Í nýjasta heftinu hafa Spin-verjar tekið saman áhugaverðan lista yfir bestu hljómsveitarnöfnin. Listinn er unninn út frá mörgum sjónarhornum. Meðal annars hvað nafnið gerir fyrir ímynd hljómsveitarinnar, hvernig samspil nafnsins og hönnun vörumerkisins (logo) virkar, hvernig nafnið hljómar á alþjóðamarkaði og sitthvað fleira. Vægi hvers þáttar varðandi nafnið fær tiltekin stig og samtalan raðar nöfnunum í sæti á listanum. Niðurstaðan er þessi:
1 Motorhead
Nafnið var upphaflega heiti á sönglagi um spítthausa (dópista). Lagi sem Lemmy, forsprakki ensku Motorhead, samdi og gaf út með hljómsveitinni Hawkwind. Motorhead-tríóið spilar hrátt, hart og "röff" 3ja mín rokk. Lemmy var rekinn úr Hawkwind vegna dópneyslu. Nafnið hljómar eins og yfirlýsing á einhverju vondu. Sú er einmitt ástæðan fyrir því að embættismenn ÁTVR (vínsölu á Íslandi) settu bjór með samnefndu heiti á bannlista. Í forsjárhyggju sinni telja þeir vera hættu á að þeir sem komist í tæri við mjöðinn verði dópistar og glæpamenn. Með því að banna drykkinn á Íslandi er Íslendingum forðað frá slíkum örlögum.
2 MC5
Nafnið hljómar eins og raðnúmer fyrir eitthvað sem hefur verið stimplað út úr bílaiðnaði í bílaiðnaðarborginni Detroit (Motor City). Númerið 1 stendur þar fyrir sportbíla og vopn. Númerið 2 stendur fyrir kraftmikla bíla. Og svo framvegis. Númer 5 er tilvísun í lag blúsjöfursins Johns Less Hookers Motor City is Burning. Það fjallar um mannréttindabaráttu blökkumanna. Talan 5 hefur skírskotun til margra annarra hluta. Til að mynda bresku hljómsveitina Dave Clark Five, hljómsveitar sem liðsmenn MC5 skilgreindu sem Bítla-wanna-be. Já, hlómsveitin MC5 er frá Detroit. Herská hljómsveit sem spilaði pönk mörgum árum áður en pönkið varð til sem skilgreindur músíkstíll. Þekktasta lag MC5, Kick Out The Jams, hefur verið krákað (cover song) af ótal seinni tíma spámönnum, allt frá Rage Against the Machine til ótal pönksveita.
3 NWA
Skammstöfun fyrir Niggaz With Attitude (Negrar með afstöðu). Bandarísk rapp hipp-hopp hljómsveit sem reif kjaft og gerði grín. Einstakir liðsmenn NWA áttu síðar farsælan sólóferil. Frægastur þeirra er Ice Cube.
4 Big Star
Táningapoppsveit sem ég veit fátt um annað en að hún var leiðinleg. En nafnið er öflugt fyrir þannig hljómsveit.
5 Joy Division
All svakalegt og óhugnanlegt nafn á enskri nýrokkssveit. Nafnið er sótt í fangabúðir þýskra nasista sem hýstu kynlífsþræla.
6 Dead Kenndys
Bandarísk pönksveit sem hélt á lofti dauðaslysi er þingmaðurinn Ted Kenndy ók blindfullur út af brú. Kærasta hans drukknaði og hann flúði af vettvangi. Nafnið vísaði jafnframt til þess að fleiri úr Kennedy-fjölskyldunni féllu frá langt fyrir aldur fram. John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, var myrtur. Einnig dómsmálaráðherrann Robert Kennedy. Afar ósmekklegt nafn á hljómsveit en þetta var, jú, ruddaleg pönkhljómsveit.
Þegar ég gerði út pönkplötubúðina Stuð á Laugavegi fór meðeigandi minn í innkaupaferð til New York. Hann mætti á plötuheildsölu og hugðist kaupa plötur með Dead Kennedys. Afgreiðslumaðurinn þekkti ekki hljómsveitina og trylltist. Reiddi hnefa til höggs og spurði hvaða ósmekklegi brandari þetta væri um dauðsföll Kennedy-manna.
Nokkru síðar var ég staddur í Florida og keypti þá nýútkomna plötu með Dead Kenndys. Afgreiðslumaðurinn lagði hart að mér að vera á varðbergi gagnvart þessari hljómsveit. Hún væri klámfengin og orðljót. Það væri alfarið á mína ábyrgð að kaupa plötu með svo óforskammaðri hljómsveit. Ég yrði að taka ábyrgð á þeim gjörðum sjálfur. Nokkru síðar var unglingur dæmdur í fangelsi í Florida fyrir að kaupa dónaplötu með rapphljómsveitinni 2 Live Crew.
Sumir halda því fram að Jello Biafra, söngvari Dead Kenndys, sé samkynhneigður. Það skiptir svo sem engu máli. Ég tel þó líklegra að ef svo væri þá myndi hann vera opinskár um það. Hann er þannig náungi.
7 Brian Jonestown Massacre
Mig rámar í að þessi hljómsveit sé Íslandsvinir. Ég átta mig ekki á nafninu. Það er einhver tilvísun í dópneyslu og öfga-Jesú-trúaruppátæki.
8 Devo
Nafnið er stytting á de-evolution (þróunarkenningu). Stutt og töff nafn fyrir bandaríska nýbylgjuhljómsveit nýbylgjuáranna. Söngvahöfundar The Rolling Stones, Richards/jagger hafa ströng skilyrði fyrir höfundarrétti sínum. Það má ekki flytja söngva þeirra nema í þeirra útsetningum og það má ekki þýða texta þeirra yfir á annað tungumál. Til að mynda leyfðu þeir ekki að gefinn yrði út á plötu flutningur Bjarkar og PJ Harvey á þessu lagi. En þeir lögðu blessun sína yfir þessa kráku (cover song) Devo.
Í óleyfi The Rolling Stones gáfu Sniglarnir út í sinni útgáfu lagið Honky Tonk Woman (Himpi gimpi gella) og Megas um Jonna Sig. Uss, látum Stónsarana ekki vita af því.
9 AC/DC
Skammstöfun fyrir háspennu rafmagn. Einnig slangur yfir bi-sexual. Nafnið vísar þó frekar til þess að þetta sé ástölsk harð-rokk metal hljómsveit.
10 Slayer
Ég átta mig ekki á nafninu. Það hefur eitthvað að gera með blóðþyrst ungmenni sem leiðist. Nafnið er stytting á orðinu dragonslayer. Það hefur einnig eitthvað að gera með Jesú-börn.
Fyrir nokkrum árum stóð ég á þessum vettvangi fyrir vali á besta íslenska hljómsveitarnafninu. Spilverk þjóðanna sigraði með yfirburðum. Síðar stóð - að mig minnir Fréttablaðið - fyrir samskonar skoðanakönnun og fékk sömu niðurstöðu.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.6.2012 | 16:05
Grænlenski þjóðhátíðardagurinn
Nú, 21. júní, er þjóðhátíðardagur Grænlands haldinn hátíðlegur um allt Grænland. Jafnframt halda Grænlendingar búsettir utan Grænlands upp á daginn þar sem þeir eru staddir. Einmitt líka í dag, 21. júní. Af því tilefni syngur og spilar margur góður Grænlendingurinn óðinn um sólina, Seqineq. Magnað sönglag úr smiðju þungarokkssveitarinnar Piitsukkut. Það var hljóðritað "live" í hljóðveri í einu rennsli. Ég setti það á v-norræna safnplötu, Rock from the Cold Seas, sem ég tók saman á tíunda áratugnum. Það er um að gera að syngja hraustlega með. Textinn er einfaldur:
Takuat seqineq nuisoq,
takuat aput aattoq,
takuat siku peeruttoq, takuat aasalersoruna.
Isivit takuai ilulissat immami,
isivit takuai imaq qillarissoq,
tassa illit nammineq
aamma uanga nunarput,
allanit tamanit kusanarnerusoq,
asanarnerusoq.
Hægt er að hlusta á fleiri spennandi lög (fyrstu 30 sek af hverju lagi) á Rock from the Cold Seas með því að smella á þessa slóð: http://www.emusic.com/listen/#/album/various-artists/rock-from-the-cold-seas/10825291/ (eða: http://music.ovi.com/in/en/pc/Product/Various-Artist-TUTL/Rock-from-the-Cold-Seas/3284076 ).
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.6.2012 | 23:27
Stórfenglegir færeyskir hljómleikar í Hörpu
Færeyska álfadrottningin, Eivör, og færeyska heimspoppshljómsveitin Yggdrasil héldu óvænt hljómleika í kyrrþey í Hörpu í kvöld. Í kyrrþey segi ég vegna þess að hljómleikarnir voru ekki auglýstir. Ég held að miðasala hafi ekki einu sinni verið á midi.is. Færeyingarnir sáu enga ástæðu til að gera eitthvað mál úr þessu. Þetta var aðeins til gamans gert.
Hljómleikunum var "riggað" upp með hraði. Eivör og Yggdrasil hefja nefnilega hljómleikaferð um Bandaríkin og Kanada á morgun. Það er ekki beint flug frá Færeyjum til Ameríku. Þess vegna fljúga þau frá Færeyjum til Íslands og héðan til Ameríku. Komu til Íslands í dag og fara á morgun. Þeim þótti upplagt að nota kvöldið til að spila í Hörpu, frekar en að gera ekki neitt.
Hljómleikarnir spurðust út. Mæting var góð. Svo gott sem fullur salur.
Yggdrasil er rösklega fertug heimspoppshljómsveit (world music) með sterkum djasskeim. Músík hennar mætti einnig kalla frjálsan þjóðlegan djass (ethno-jazz). Píanóleikarinn og tónskáldið Kristian Blak er forsprakki Yggdrasil. Hugmynd hans var sú að Yggdrasil yrði sam-norræn hljómsveit. Þannig skipuð var hljómsveitin framan af ferli. Með tímanum hafa Færeyingar þó orðið ráðandi í henni. En jafnan þó einhver útlendingur með. Að þessu sinni er það sænski blásarinn Anders Hagberg.
Eivör var söngkona Yggdrasil um 2ja ára skeið á fyrri hluta þessarar aldar. Þetta var í fyrsta skipti sem hún syngur aftur með Yggdrasil. Það var rosalega gaman á að hlýða. Það var eins og Eivör og sextettinn hefðu ekki tekið sér svo mikið sem dags hlé, svo vel smullu þau saman.
Að tveimur lögum afgreiddum hvarf sextettinn af sviði. Eivör söng þá og spilaði við eigin undirleik, m.a. nokkur splunkuný lög sem verða á plötu með henni er kemur út í lok ágúst. Í þeim lögum naut Eivör aðstoðar bassa- og hljómborðsleikarans Mikaels Blaks. Þetta var frumflutningur á þessum lögum á sviði. Þau eru ljúf, falleg og gefa góð fyrirheit um plötuna.
Liðsmenn Yggdrasil fjölmenntu aftur á svið. Eivör söng þá með þeim nokkur gömul færeysk lög. Áheyrendur kunnu svo vel að meta að hljómsveitin var klöppuð ákaft upp. Er hljómleikunum lauk tróðust gestir að söluborði með færeyskum plötum. Þeir toguðust á um plötur með lögunum sem Eivör og Yggdrasil höfðu flutt. Það staðfesti hversu mjög gestir höfðu heillast upp úr skóm.
Tónlist | Breytt 21.6.2012 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.6.2012 | 21:16
Bjargaðu lífi þínu með þessari vitneskju!
Ljón getur verið hættulegt. Einkum getur það verið manneskjunni hættulegt. Miklu hættulegra en til að mynda hæna. Það sem gerir ljón hættulegt er að í þess huga er manneskjan aðeins matur. Þokkalega vel úti látinn hádegis- eða kvöldverður (fer eftir því hvað klukkan er hjá því). Á ferðalögum erlendis er veruleg hætta á að rekast á ljón. Þau eru út um allt: Í Afríku, Asíu og Ameríku. Kannski víðar.
Ljón í veiðihug gerir leifturárás (blitzkrieg, kalla Þjóðverjar það). Ljónið sprettir úr spori, reynir að snúa bráðina niður með fólskubrögðum og bítur hana á barkann.
Til að verjast slíkri árás er eitt til ráða: Um leið og ljónið stekkur á þig er lag að skutla sér eldsnöggt til hliðar og aftur eftir ljóninu, grípa neðst í annan afturfót þess og hefja þegar í stað að nudda fótinn. Á augabragði - á einu augabragði (eins og Sigmundur Ernir myndi orða það) - hættir ljónið að hugsa um þig sem matarbita og tekur að hugsa hlýlega til þín sem notalegs fótanuddstækis.
Lífstíll | Breytt 20.6.2012 kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.6.2012 | 00:42
Vel heppnaðir afmælishljómleikar til heiðurs Paul McCartney
- Viðburður: Paul McCartney 70 ára afmælistónleikar
- Flytjendur: Ýmsir
- Staðsetning: Eldborg, Hörpu
- Einkunn: ****1/2 (af 5)
Það var tími til kominn að settir væru upp hérlendis alvöru stórhljómleikar til heiðurs bítlinum Paul McCartney, farsælasta tónlistarmanni sögunnar. Enda tengsl Bítlanna við Ísland margháttuð og náin. Gunnar Þórðarson á til að mynda jakka af Paul McCartney, bara svo eitt dæmi sé tekið.
Hljómleikarnir hófust á því að Björgvin Gíslason spilaði á sítar við undirleik ásláttarhljóðfæra. Það gaf tóninn aftur til ársins 1965 er indverska hljóðfærið sítar var fyrst brúkað í tveimur lögum á Bítlaplötunni Rubber Soul. Það þótti framandi, spennandi og sýrt. Sítar setti svip á fleiri Bítlaplötur og hippaárin.
Næst gekk barnung stúlka á svið. Hún settist við píanó og söng afmælissöng fyrir Pál McCartney, eða Palla eins og hún kallaði hann. Undirleikinn afgreiddi hún með einum putta. Þetta var krúttlegt, skapaði skemmtilega stemmningu og gaf tóninn fyrir það að menn voru ekki í of hátíðlegum stellingum heldur að skemmta sér og öðrum á léttu nótunum.
Svo fór hljómsveitin að tínast inn. Magnús R. Einarsson (gítar, söngur) hafði orð fyrir henni. Kynningar hans voru launfyndnar. Aðrir gítarleikarar voru Gunnar Þórðarson, Eðvarð Lárusson og Þórður Árnason, auk Björgvins Gíslasonar. Ásgeir Óskarsson og Karl (ég náði ekki eftirnafni hans) trommuðu. Pálmi Sigurhjartarson og Jakob Frímann Magnússon sáu um hljómborð. Tómas M. Tómason var á bassa og Gísli Helgason blés í flautu.
Fyrir utan Magnús R. Einarsson skiptu á milli sín söngnum þau Labbi í Mánum, Baddi í Jeff Who, Gunnar Þórðarson, Andrea Gylfadóttir, Egill Ólafsson, Eyþór Ingi og nafni hans Kristjánsson.
Iðulega voru 10 - 12 manns á sviði í einu. Stundum færri og allt niður í það að Gunnar Þórðarson flutti Blackbird einn og óstuddur (söngur, kassagítar). Að óreyndu hefði ég haldið að vanur öskursöngvari fengi það hlutverk að syngja Oh Darling. En Gunnar Þórðarson afgreiddi það með sóma. Hann beitti öskursöngstílnum aðeins til spari en söng kröftuglega að öðru leyti.
Valið á Gunnari í sönghlutverkið í Oh Darling er ágætt dæmi um það að enginn reyndi að herma eftir Paul, hvorki í söng né hljóðfæraleik hans eða meðspilara hans. Það var besti kostur. Öll tónlistin var lausbeislaðri, hrárri, líflegri og kraftmeiri fyrir bragðið. Jafnvel djammstemmning á köflum. Oftast fékk samt upprunastemmning lagsins að halda sér að einhverju leyti. En það var einnig brugðið á leik. I Wanna Be Your Man, lagið sem Paul McCartney og John Lennon sömdu fyrir The Rolling Stones 1963, var hér afgreitt í léttri kántrýblússveiflu. Rokklag Johns Lennons, Help, var flutt í hægagangi og verulega frábrugðið Bítlaútgáfunni. Þannig uppátæki krydduðu dagskrána og juku á fjölbreytileikann, sem er ærinn í lagasafni Pauls McCartneys.
Það kom vel út að lauma með í pakkann nokkrum Lennon-lögum. Þeir Paul og John fluttu á sólóferli sínum á hljómleikum lög hvors annars og Paul er enn að syngja Lennon-lög. Þar fyrir utan sömdu þeir fjölda laga í sameiningu.
Lagavalið á afmælishljómleikunum spannaði allan feril Pauls frá fyrstu Bítlaplötu til nýjustu sólóplötu. Ég fékk að heyra öll mín uppáhalds McCartney-lög: Helter Skelter, Let Me Roll It, Live And Let Die, Birthday, Why Don´t We Do It In The Road... Að ógleymdu því þrekvirki að taka löngu lagasyrpuna af B-hlið Abbey Road plötunnar. Það þarf virkilega góða hljómsveit og góða söngvara til að gera henni eins góð skil og þessi hópur, glæsilegt úrval afburðarfólks.
Lokalag hljómleikanna (eftir uppklapp) var Hey Jude. Þá stóð salurinn upp og klappaði og söng með. Ljós voru kveikt og allir gengu yfir sig ánægðir út í nóttina. Þetta var frábært. Hafi Davíð Steingrímsson bestu þakkir fyrir að standa fyrir þessari góðu skemmtun. Hann rekur Bítlabarinn Ob-La-Di Ob-La-Da á Frakkastíg. Þar er spiluð lifandi Bítlamúsík á fimmtudögum og Andrea Jónsdóttir er plötusnúður á sunnudögum. Um þessar mundir standa yfir sérstakir Bítladagar á Ob-La-Di Ob-La-Da.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2012 | 22:25
Leikið sér með matinn
Sem barn fékk ég stundum að heyra það að maður ætti ekki að leika sér með matinn. Matinn eigi að borða en ekki leika sér með. Fleiri en ég kannast við að hafa heyrt eitthvað þessu líkt. Svo rækilega situr þetta í sumum komnum á fullorðinsár að þeir geta ekki hugsað sér að hafa hesta að leikfangi. Það eru öfgar. Það má alveg leika sér með matinn. Til að mynda til að fá erfið börn til að borða eitthvað hollt.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.6.2012 | 22:13
Falskar játningar og staðföst neitun
Dóms- og réttarkerfið á Íslandi er um margt eins og í vanþróuðum og frumstæðum ríkjum. Í fjölda mála stendur ekki steinn yfir steini varðandi sök þeirra sem dæmdir eru í fangelsi. Nægir að benda á Geirfinns- og Guðmundarmálið. Ruglið í kringum það er eins og fáránlegasti farsi - ef ekki væri vegna þess harmleiks sem snýr að öllu er þessu tengdist. Pyntingum var beitt, lygum, hroka og ósvífni af öllu tagi. Meira að segja kynferðisofbeldi. Hópur saklausra ungmenna var dæmdur sem morðingjagengi út á eintómt bull.
Þetta vita flestir sem vilja vita og kynna sér málið. "Íslendingar kunnu ekkert á svona sakamál á þessum tíma," er algengt viðkvæði þegar þetta ber á góma. Málið er þó ekki eldra en svo að réttarkerfið getur ennþá leiðrétt sig. En gerir það ekki.
Í dag er algengt að eldri afbrotamenn séu búnir að læra inn á brotalamirnar í sakamálum. Þeir "kaupa" nýliða, yngra fólk, til að taka á sig sakir fyrir þá. Það gengur lipurt fyrir sig. Í annan stað þá gildir í ófáum málum að gegn staðfastri neitun þá komast menn upp með að fá málum vísað frá eða vera sýknaðir.
Eitt dæmi sem ég þekki (nokkurra ára gamalt að vísu): Tvær konur áttu sökótt við fyrirtæki úti í bæ. Önnur var í slagtogi með lögreglumanni. Hann tók upp á því að brjótast inn í fyrirtækið og valda þar spjöllum sem lömuðu fyrirtækið. Önnur konan var handtekin og sett í gæsluvarðhald. Hún var á lyfjum en var neitað um þau á meðan á varðhaldi stóð. Til að komast í lyfin sín játaði hún á sig allt sem á hana var borið. Það er að segja að hún hafi brotist þarna inn og valdið þessum skemmdum. Hún reiknaði með því að þegar á reyndi myndi koma í ljós að sök hennar stæðist ekki. Meðal annars voru skóför á vettvangi af skóm nr. 46 en hún notaði skó nr. 38. Til viðbótar þurfti líkamlega hreysti til að standa að innbrotinu eins og gert var. Líkamlega hreysti sem hún hafði ekki. En það var játning hennar sem allt byggði á og hún fékk dóm.
Ég gæti þulið upp fleiri dæmi. Eftir stendur að það vantar mikið upp á að réttarkerfið komist að réttri niðurstöðu í mörgum málum. Ég veit ekki hvernig hægt er að koma lagi á svona mál. Kannski með því að taka lygamæla í gagnið? Eða með því að fá til liðs menn sem þekkja inn á falskar játningar. Kannski er öllum sama?
![]() |
Taka á sig sök vegna skuldar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.6.2012 | 21:55
Undirbúningur á fullu
Landsmót hestamanna hefst í þar næstu viku og stendur fram í næsta mánuð. Þvílkt fjör. Já, og uppgrip fyrir bjórframleiðendur. Það þarf ekki að aka langt út fyrir 101 Reykjavík til að sjá að hestamenn eru byrjaðir að æfa sig á fullu fyrir hestamannamótið (eða "ríðingarfund", eins og Færeyingar segja).
Reyndar er einstaka maður að æfa sig í 101:
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2012 | 01:41
Bankaræningjar
Myndin hér fyrir neðan gengur ljósum logum í netheimum. Hún er póstuð út og suður, þvers og kruss. Ég var ekki fyrr búinn að setja hana inn á Fésbókarsíðuna mína en 54 deildu henni með hraði inn á sína síðu. Öllu gamni fylgir einhver alvara. Jafnvel sannleikskorn. Það er samhljómur með þessum brandara og þeim upplýsingum sem eru að koma æ betur fram um það hvernig bankarnir voru og eru rændir.
![]() |
Bankamaður fær 110 ára dóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 02:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.6.2012 | 22:09
Munum eftir trjánum
Erlendis er til siðs, þegar kólnar í veðri, að þá eru tré klædd í þar til gerðan fatnað. Þetta er góður siður. Tré kunna vel að meta hann. Nú er hlýtt í veðri hérlendis. En næsta víst er að veður á eftir að kólna þegar líður á veturinn. Því er upplagt að nota núna tímann og góða veðrið til að prjóna flíkur á tré áður en vetrarhörkur skella á.
Tré eru hrifnust af litríkum og röndóttum fötum.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)