Vandræði vegna veðurofsa á G!Festivali

  Hundruð Íslendinga hafa sótt G!Festival í Götu síðustu ár.  Þetta er stærsta árlega tónlistarhátíðin í Færeyjum.  Fram til þessa hefur veðrið alla jafna leikið við flest alla 5000 - 6000 gesti hátíðarinnar.  Myndin í "hausi" þessa bloggs er frá G!Festivali. 

  G!Festivalið í ár hófst í dag (15. júlí) í ágætu veðri.  Er líða fór á kvöld opnuðust flóðgáttir himins.  Regnið gusaðist yfir gesti.  Kári fór að blása og náði 20 metrum á sek.  Tjöld sliguðust undan rigningunni og / eða fuku á haf út. 

  Uppistaðan af dagskránni á G!Festivali fer fram á útisviðum.  Um kvöldmatarleyti var dagskrá kvöldsins aflýst.  Meðal hljómsveita sem áttu að spila í kvöld var íslenska teknósveitin FM Belfast. 

  Ef veður leyfir verður haldið áfram með dagskrána á morgun þar sem frá var horfið.  Gestir - sem hafa aldrei kynnst öðru eins - eru ekki eins ósáttir og halda mætti.  Þeim þykir þetta hið mesta og óvæntasta ævintýri.  Þeir sem enn hafa uppistandandi tjöld hafa opnað þau fyrir þeim sem eru orðnir tjaldlausir.  Færeyingar eru svo jákvæðir og glaðværir að fátt kemur þeim úr jafnvægi.  Þeir gera ekki veður út af þessu.

F-festival

Svona leit tjaldstæðið út síðdegis.  Fyrir neðan eru myndir af tjaldstæðinu er líða tók að kveldi.

g-festival AG-festival B 


Bráðskemmtilegt viðtal við Michael Jackson

  Viðtöl fjölmiðla við Michael Jackson voru fæst merkileg eða skemmtileg.  Að minnsta kosti þau þekktustu.  Á dögunum rakst ég hinsvegar á meðfylgjandi sjónvarpsviðtal þar sem kappinn fer á kostum.  Ekki síst í "tunglgöngunni".  Algjör snilld! 


Elton John hættur í poppinu

  Fyrir nokkrum dögum hélt breski popparinn Elton John hljómleika í Færeyjum.  Hátt í sex þúsund manns sóttu hljómleikana.  Það er gríðarlega hátt hlutfall af færeysku þjóðinni,  sem telur 49 þúsund manns.  Miðað við höfðatölu jafngildir þetta því að hátt í 40 þúsund manns myndu kaupa sig inn á eina hljómleika á Íslandi.  Slíkt hefur aldrei gerst.  Lang fjölmennustu hljómleikar sem haldnir hafa verið hérlendis voru með Metallica.  Á þá hljómleika mættu 18 þúsund hausar. 

  Elton John lét þess getið að hann sé orðinn hundleiður á poppmúsík.  Það er að segja vinsældalistapoppi.  Héðan í frá hefur hann sagt skilið við poppjukkið.  Hann verður löggilt gamalmenni eftir 2 ár og telur sig ekki hafa lengur þörf á að selja lög og plötur í stóru upplagi.  Þess í stað ætlar Elton John að snúa sér að þungarokkinu.  Næsta plata hans,  The Union,  kemur út 25.  október og inniheldur þungarokk að hætti Guns N´ Roses.   

  Þetta hljómar einkennilegt.  Enda er það einkennilegt.  Og ekki alveg nákvæmt.  Elton ætlar meira að fara út í músík eins og Bob Dylan og Neil Young hafa verið að gera.  Nema í tilfelli Eltons verður píanóið í aðalhlutverki.  Svona dálítið eins og myndbandinu hér að ofan.


Kvótakóngur eyðilagði sjóvarnargarð

  kleifarbergið

  Siglingastofnun og bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa skikkað Guðmund Kristjánsson,  aðaleiganda Brims hf.,  til að endurreisa sjóvarnargarð sem Guðmundur lét fjarlægja úr fjörunni við Nesveg.  Garðurinn var reistur á sínum tíma til að afstýra hættu af flóðum.   Flóðavarnagildi garðsins skipti kvótakónginn engu máli.  "Mér fannst hann ljótur," útskýrir kóngurinn uppátæki sitt.

  Það eru fleiri en sá er stendur gegn því að blind kona fái hjálparhund sem hugsa bara um naflann á sjálfum sér.


Bókarumsögn

Bráðar eru blóðnæturþórarinn Gunnarsson

Titill:  Bráðar eru blóðnætur
Höfundur:  Þórarinn Gunnarsson
Flokkur:  Sakamál,  spenna
Útgefandi:  Tölvuland ehf.
  Bráðar eru blóðnætur  er þriðja skáldsaga Þórarins Gunnarssonar.  Þær fyrri eru  Ógn  (2007) og  Svartar sálir  (2008).  Ég hef ekki lesið eldri bækurnar.  Eftir að hafa lesið  Bráðar eru blóðnætur  er freistandi að komast í eldri bækurnar.
  Megin sögusvið  Bráðar eru blóðnætur  er höfuðborgarsvæðið.  Sagan byrjar bratt.  Það er strax allt að gerast.  Raðmorðingi slátrar horuðum fyrirsætum út og suður.  Tvær dömur láta sitt ekki eftir liggja.  Þær slátra öldruðum barnaníðingum hverjum á fætur öðrum.
  Við fylgjumst með lögreglunni átta sig hægt og bítandi á hvað er í gangi.  Sagan er sögð frá mörgum sjónarhornum til skiptis.  Það er klippt snöggt á milli þessara sjónarhorna.  
  Til að byrja með eru þessar hröðu skiptingar örlítið ruglingslegar.  Fljótlega venjast þær vel og verða ómissandi hluti af andrúmslofti hraðans og spennunnar.
  Yfirleitt les ég bækur í áföngum.  Það gekk ekki með  Bráðar eru blóðnætur.  Ég byrjaði í þrígang á henni.  Þegar ég ætlaði nokkrum dögum síðar að taka upp þráðinn gekk það ekki upp.  Stemmningin er þannig að það verður að lesa bókina á einni striklotu.  Bæði til að halda þræðinum og muna það sem gengið hefur á í fyrri hluta sögunnar en einnig til að fylgja dampi framvindunnar.
  Bókin er hörkuspennandi.  Þrátt fyrir að mikið gangi á er sagan nokkuð trúverðug.  Hún hefði ekki verið það á síðustu öld.  En í alþjóðumhverfi á Íslands í dag,  mansals,  barnaníðs og allskonar annars ofbeldis er þetta trúverðugt - þó ýkt sé. 
  Þórarinn Gunnarsson er pennafær.  Samtöl eru eðlileg og margir endar flækjunnar haganlega saman hnýttir.  Það er hvergi dauðan punkt að finna  Fyrst og síðast er bókin spennandi og skemmtileg þrátt fyrir að vera óhugnanleg á köflum.  Hún vekur jafnframt lesandann til umhugsunar um óhugnað barnaníðs.  Bókarkápa Kristjönu Albertsdóttur er við hæfi.
.
      .
 

Af hverju vilja Íslendingar ekki Burger King, McDonalds og Metró?

  hamborgarj2

  Sú var tíðin að Íslendingum þótti fátt flottara en láta sjá sig með þýska kjöthakksbollu í höndum matreidda í hnausþykku samlokubrauði að hætti bandarískra.  Heilu fjölskyldurnar hrúguðust í McDonalds og Burger King vopnaðar ljósmyndavélum og myndbandsupptökutækjum.  Doddsson mætti einn á McDonalds.  Ekkert vantaði samt upp á að hann væri ljósmyndaður í bak og fyrir á meðan hann slafraði í sig fátækrafæði.

  Nú er öldin önnur.  Glansinn fór af Doddssyni og bandarísku hamborgarakeðjunum.  Öllum útibúum Burger King á Íslandi hefur verið lokað.  McDonalds var lokað í Austurstræti.  Síðan var merki McDonalds fjarlægt af veitingastöðunum í Kringlunni og Skeifunni.  Í staðinn voru staðirnir merktir nafninu Metró.  Þar með urðu Íslendingar fyrstir allra þjóða heims til að henda McDonalds á haugana án þess að um pólitíska aðgerð væri að ræða.

  Nú hefur rekstur Metrós verið seldur.  Starfsfólk fær ekki borgað.  Það er gjaldþrot í pakkanum.  Ekki nóg með það.  Í vikunni skokkaði ég léttfættur um ganga Kringlunnar.  Þar á meðal tók ég nettan rúnt um Stjörnutorgið.  Mikil varð undrun mín er við mér blasti að Metró er horfinn á braut úr Kringlunni.  Ég var svo hissa að ég stökk yfir stól.  Og hélt síðan skokkinu áfram eins og ekkert hefði í skorist. 

  Þó McDonalds og Burger King fáist ekki lengur á Íslandi og Metró hafi lokað í Kringlunni er það ekki merki um að Íslendingar fúlsi við hamborgurum.  Það er hinsvegar eins og Íslendingar vilji heldur "íslenskari" útfærslu á þessum samlokum.  Búllan og Hamborgarafabrikkan blómstra.

hamborgari4


mbl.is Skyndibitastaðurinn Metró seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aulalegustu músíkmyndböndin

  Netsíðan www.toptenz.net heldur utan um "Topp 10" lista af öllu mögulegu og ómögulegu tagi.  Bara nefna það:  Stjórnmál,  mat,  trúarbrögð,  kynlíf,  músík...  Nú hefur verið settur þar inn listi yfir 10 aulalegustu músíkmyndböndin.  Íslendingar eiga þar fulltrúa.  Og ekki nóg með það.  Íslenski fulltrúinn trónir í toppsætinu.  Enda sættum við okkur ekki við neitt minna.

  Hér eru næst aulalegustu myndböndin:

Númer 3:  Mark Gormley og lagið "Little Wing".  Þetta er aðal töffarinn í Pensacola í Florida (þar sem ég bjó einu sinni í hjólhýsahverfi).  Hér er töffaranum stillt upp fyrir framan bakgrunn (green screen) og þetta er,  jú,  virkilega illa unnið og kjánalegt.

Númer 2:  Kevin Ayers og lagið "Carabbian Moon".  Kevin Ayers hefur gert margt flott.  Hann var í bresku hljómsveitinni (stundum) mögnuðu og framsæknu Soft Machine.  Jakob Magnússon spilaði með Kevin Ayers um tíma.  En hefði aldrei sætt sig við svona aulalegt myndband.  Jafnvel ekki 1973 þegar músíkmyndbönd voru rétt svo í burðarliðnum.

  Og sigurvegarinn er:  Leoncie og lagið "Ást á pöbbnum".  Skammirnar á toptenz.net vita greinilega ekkert um hina stórkostlegu Leoncie.  Þær lýsa þessu sem hámarki samspils vonds lags og vonds myndbands.  Þær geta sér þess til að þegar persónurnar í myndbandinu hafi séð útkomuna hljóti þær að hafa gengið berserksgang.

  Ég get ekki látið Kevin Ayers liggja óbættan hjá garði - þrátt fyrir aulalega myndbandið.  Hér er syrpa með honum og hljómsveitinni Soft Machine.  Bútar úr ýmsum lögum og mikið "prog",  frábær trommuleikur og verulega vont sánd.  Til gamans (ja,  ekki rétta orðið) má geta að trommusnillingurinn Robert Wyatt flaug út um glugga á 3ju hæð og ætlaði að fljúga - í LSD partýi - yfir London í góðu veðri.  Flugferðin varð ekki lengri en niður á gangstétt.  Síðan hefur hann verið bundinn við hjólastól.  Sem er frekar óheppileg staða fyrir mann sem var ítrekað sigurvegari í kosningum hinna ýmsu poppfjölmiðla um besta trommara heims.

 

Hér er Robert Wyatt í þessum líka fína hjólastól.  Síðar söng hann inn á Medúllu  plötu Bjarkar.

 


Vilt þú 100 þúsund kall beint í vasann?

  Kuklarar eða skottulæknar (þeir sem stunda "óhefðbundnar" lækningar) og (mis heiðarlegir eða mis óheiðarlegir) lyfjaframleiðendur togast á um veika fólkið.  Þessi markaður er stór.  Það getur verið góður peningur í honum.  Umræða um allt sem snýr að veika fólkinu er oftast af hinu góða.  Nema þegar hún er af hinu vonda.

  Flest lyf sem boðin eru til sölu á netinu - í svokölluðum "spam" pósti - eru plat.  Eins og svo margt annað.  Til að mynda fyrirbæri sem kallast heilun,  höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,  smáskammtalækningar og fugladansinn.

  Félagsskapurinn Vantrú býður nú 100 þúsund kr.  hverjum þeim sem getur sýnt fram á að lithimnulestur sé annað en bull.  Þetta er auðunninn peningur fyrir allan þann fjölda sem hefur árum saman stundað nám við lithimnulestur og vinnur sem lithimnufræðingar.  Forvitnilegt verður að fylgjast með biðröðinni.  Eða hvað?  

  James Randi hefur í mörg ár boðið eina milljón dollara þeim sem getur sýnt fram á "yfirnáttúrulega" hæfileika.  Ótrúlega fáir miðlar,  hugsanalesarar eða aðrir slíkir hafa spreytt sig.  Ekki einu sinni Þórhallur miðill hefur lagt í að reyna við milljón dollarana.  Eins og þetta ætti að vera létt og fyrirhafnarlítið að ná í þennan aur.  

 


mbl.is Græddi milljónir á sviknum lyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeysk hljómsveit slær í gegn í Þýskalandi

  Fyrir nokkrum árum kom fram á sjónarsviðið í Færeyjum pönkuð rokksveit,  The Dreams,  sem spilaði gömul færeysk lög í nútímalegum búningi.  Svo tók hljómsveitin þátt í dönsku Músíktilraunum.  Þar náði hún 2.  sæti en stal senunni í dönskum fjölmiðlum.   Sigurhljómsveitin er gleymd og tröllum gefin.  The Dreams fór hinsvegar að raða lögum í 1.  sæti danska vinsældalistans,  eins og fylgjast hefur mátt með í sjónvarpsstöðinni DR1.

  Nýverið fékk The Dreams tilboð frá umboðsmanni bandarísku rokksveitarinnar Linkin Park.  Hann vill gerast umboðsmaður The Dreams og telur sig geta auðveldlega markaðssett hljómsveitina í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

  Síðast þegar ég vissi voru liðsmenn The Dreams að lesa - ásamt lögfræðingum - yfir tilboðið.  Eins og algengt er með bandarísk tilboð og samninga er um að ræða lesefni sem slagar í rannsóknarskýrslu Alþingis að umfangi.

  Þá gerðist það á dögunum að nýjasta lag The Dreams,  Revolt,  sló skyndilega í gegn í Þýskalandi.  Það situr nú í 2.  sæti vinsældalista MTV, Rockzone.  Vinsældunum í Þýskalandi fylgja The Dreams eftir með því að fara í hljómleikaferð til stærstu borga Þjóðverja.  Með því er næsta víst að þessi spræka færeyska hljómsveit innsigli vinsældir sínar í Þýskalandi til lengri tíma.  Hljómsveitin er vel undir það búin að leggja Þýskaland að fótum sér eftir að hafa verið ein allra vinsælasta hljómsveitin í Danmörku og Færeyjum í tvö ár eða svo.   


Ný og spennandi útvarpsstöð, Nálin

  Í fjölmiðlapistli í Morgunblaðinu í dag er kvartað undan einsleitu,  ja,  effemmteknóprumpi held ég að það sé kallað,  í íslenskum útvarpsstöðvum.  Undir þau orð má taka.  Því er fagnaðarefni að eftir örfáa daga hefur göngu sína ný og spennandi músíkútvarpsstöð,  Nálin.   Þar verða við dagskrárgerð þungavigtarmenn á borð við Karl Sigurðsson (áður á rás 2 og Útvarp Suðurlands),  Gunni "Byrds" (áður poppfréttaritari Tímans) og þar fyrir utan kannski gamli maðurinn sem hér bloggar.   Svo og ýmsir fleiri.

  Ef svo vindur fram sem horfir verð ég með vikulegan þátt á Nálinni.  Spila annars vegar klassískt rokk sjöunda og áttunda áratugarins (60´s og 70´s) og hinsvegar íslensk dægurlög í bland við popp frá löndum utan engilsaxneska málsvæðisins.  Þetta er allt ennþá til skoðunar.  Ég læt ykkur fylgjast með framvindu mála.

   


Íslandsvinurinn Yoko kemur enn rækilega á óvart

john&yoko

  Bandaríska nýlista- og tónlistarkonan frá Japan,  Yoko Ono,  kom heimsbyggðinni oft á óvart á sjöunda og áttunda áratugnum.  Fyrst með frumlegum og furðulegum myndlistaverkum.  Síðan með því að taka saman við bítilinn John Lennon og virkja hann með sér í allskonar uppátæki.  Þar á meðal að vera nakin/n á forsíðumynd plötuumslags,  mæta á blaðamannafundi í svörtum pokum og verja hveitibrauðsdögum í rúminu þar sem þau skötuhjú tóku á móti gestum og gangandi.

  Síðustu áratugi hefur lítið farið fyrir Yoko.  Hún hefur mest verið í því að taka á móti verðlaunum og viðurkenningum fyrir hönd Johns Lennons (og einstaka sinnum sín),  kveikja á friðarsúlunni í Viðey og hvetja heimsbyggðina til að ferðast til Íslands.

  Á dögunum var Yoko stödd í Cannes í Frakklandi.  Þar uppi á sviði gerði sú næstum áttræða bítlaekkja sér lítið fyrir og henti sér óvænt eldnöggt aftur á bak í kollhnís.  Áhorfendum til mikillar furðu.

yokogoco

  Til gamans má geta að þegar ég var í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á áttunda áratugnum var þar á bókasafni bók um nýlistahópinn Flux í New York.  Bókin var gefin út áður en Yoko tók saman við Lennon.  Yoko var hugmyndaríkasti og flottasti nýlistamaður Flux-hópsins.  

  Löngu síðar fór ég á myndlistasýningu Yokoar á Kjarvalsstöðum.  Það var virkilega flott og fersk sýning.  Dæmi:  Þarna var herbergi þar sem allir hlutir voru bara hálfir:  Hefðbundin stofa að öðru leyti.

  Annað dæmi:  Maður fór inn í myrkvað herbergi.  Við fyrstu sýn virtist þar vera eins og jólatré í kóka kóla auglýsingu.  Þegar betur var að gáð og maður vandist myrkrinu var það sem maður hélt að væri kertaljós logandi augu grimmra katta.  Mjög áhrifaríkt.

  Þriðja dæmið:  Maður fór inn í þröngan gang sem var þakinn speglum.  Kominn inn í þann gang blasti við spegilmynd af manni sjálfum sem speglaðist í ótal myndir.  Þetta var eins og að vera staddur inn í risasal með óendanlegri speglamynd af sjálfum sér.  Líka mjög áhrifaríkt.

  Fjórða dæmi:  Heilt og fallegt epli var fyrir framan það sem virtist vera spegill.  Nema að spegilmyndin sýndi rotið epli sem bitið hafði verið í.  Þegar farið var "bak við spegilmyndina" var þetta öfugt.  Maður sá rotið epli en "spegilmyndin" sýndi heilt og flott epli.


Eivör, Högni, Kristian Blak og fleiri á færeyskri tónlistarhátíð um verslunarmannahelgina

  Um verslunarmannahelgina verður haldin á Stokkseyri glæsileg færeysk tónlistarhátíð,  Atlantic 2010.  Margir af helstu tónlistarmönnum Færeyja koma þar fram.  Þar á meðal margir sem hafa notið og njóta vinsælda hérlendis.  Hæst bera nöfn á borð við Eivöru,  Högna Lisberg,  Kristian Blak,  Angelika Nielsen,  Ívar Bærentsen,  Sharon Weiss,  Mikael Blak og fleiri.  Samtals hátt í tuttugu manns. 

  Um verslunarmannahelgina í fyrra var svona færeysk tónlistarhátíð sett upp á Stokkseyri í fyrsta skipti.  Hún tókst afskaplega vel í alla staði.  Gestir höfðu sjaldan skemmt sér eins vel.  Dagskrá var töluvert meiri en "bara" færeysk tónlist.  Til að mynda var varðeldur,  fjöldasöngur og allskonar.  Jafnframt voru Draugasetrið og Álfasafnið opin ásamt ýmsu öðru spennandi og áhugaverðu á Stokkseyri.

  Ég mun nánar segja frá Atlantic 2010 þegar nær dregur.

     


Gátan með hvarf býflugna leyst

  Eins og kunnugt er af fréttum hafa býflugur horfið að mestu í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Líka víða í Evrópu.  Þetta hefur verið hið dularfyllsta mál.  Margar tilgátur hafa verið á lofti.  Nú hafa vísindamenn leyst þessa gátu.  Frá því var greint í frétt á CNN.  Ég undrast að sú frétt hafi ekki ratað í íslenska fjölmiðla.  Farsíminn er orsök vandamálsins.  Rafbylgjur farsímans gera býflugurnar ófrjóar.  Þá stendur eftir spurning hvaða skaða þessar sömu bylgjur valda manninum. 

Hverjir valda umferðaróhöppum?

  Að undanförnu hefur verið - og er um þessar mundir - í gangi herferð gegn ölvunarakstri.  Það er hið besta mál.  Aldeilis ágætt að koma af stað umræðu og vangaveltum um hvaðeina sem má verða til þess að draga úr umferðaróhöppum.  Það er óhrekjanleg staðreynd að ölvaðir ökumenn hafa valdið umferðaróhöppum.  

  Hinu má ekki gleyma:  Að langflestir sem valda umferðaróhöppum eru edrú.  Það þarf að taka á því vandamáli af festu.  Koma því liði úr umferðinni.  


mbl.is Kona kennir vampýru um bílslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlega sniðugt hagræðisráð - sparar tíma og allskonar

  Eins og allir vita er bráðnauðsynlegt að hafa smávegis af hráum fínt söxuðum lauki með þegar túnfiskssalat er lagað.  Annað þarf ekki.  Nema,  jú,  túnfisk,  egg og majónes.  Til spari má bæta við örlitlu karrý.  Svo litlu að enginn taki eftir því.

  Þessa uppskrift má með útsjónarsemi einfalda svo um munar.  Það er gert þannig að hænunum er ekki gefið neitt að éta nema lauk í nokkra daga.  Þá kemur milt og gott laukbragð af eggjunum.  Þar með losnar fólk gjörsamlega við alla fyrirhöfn af að saxa niður lauk í túnfiskssalatið.  Tímann sem sparast má nota til að þurrka af húsgögnum og vökva blóm með lituðu sykurvatni.
.
    . 

Íslendingar eru að rúlla upp Evrópumóti

  Ég veit ekkert um brids.  Ég veit ekkert hvernig spilin eiga að snúa eða út á hvað þessi spilaleikur gengur.  Ég fatta ekkert hvað fréttir af brids snúast um.  Eftir því sem ég best veit er íslenska landsliðið í brids búið að rúlla upp Evrópumóti í brids.  Það er búið að sigra 15 lönd af 18.  Eitt tap var nánast jafntefli.  Það eru stig sem telja.  Íslenska liðið er öruggt með forystu inn í heimsmeistarakeppni í brids.  Ekki í fyrsta sinn.  Margir muna eftir því þegar Doddsson mætti út á Keflavíkurflugvöll og skálaði í Bermudaskál.  Nú stefnir í að heilög Jóhanna muni endurtaka leikinn.  Mæti ofurölvi út á Keflavíkurflugvöll,  nýgift og spræk.     

  


mbl.is Þrír sigrar á EM í brids
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannakjötsát fyrir misskilning

  Í bílalúgu við hliðina á Skeljungi í Ártúnsbrekkunni kaupa menn "Akureyring" til að snæða.  Þar er um að ræða hamborgara matreiddan að hætti Akureyringa.  Hann er þannig að frönskum kartöflum er raðað beint ofan á kjötið.  Við það sjúga þær í sig safa og krydd úr kjötinu.  Þetta þykir Akureyringum vera eina rétta matreiðslan á hamborgara.  Hinsvegar eru íbúar Akureyrar mis ánægðir með að utan Akureyrar sé svona hamborgari kallaður "Akureyringur".  Þeim þykir það bera keim af mannáti.  Á móti vegur gleði yfir því að þegar ferðast er til Reykjavíkur sé hægt að fá rétt matreiddan hamborgara.

skrýtið nafn á veitingahúsi.- Skoti

  Ekki veit ég hvar veitingahúsið á myndinni er staðsett.  Af merkingu þess má ráða að þar sé boðið upp á djúpsteikta Skota.  Reyndar má einnig (með einbeittum vilja) lesa út úr nafninu að þarna standi Skoti við djúpsteikingargræjurnar og afgreiði fisk og franskar.

skrýtið nafn á veitingahúsi

  Kínverjinn Soon Fatt hefur sett upp lítinn skyndibitastað þar sem viðskiptavinurinn tekur matinn með sér.  Nafnið á Soon Fatt er kannski ekki það heppilegasta fyrir veitingastað.  Nafnið hljómar eins og yfirlýsing um að viðskiptavinurinn hlaupi í spik innan tíðar.  


Bassaleikari The Kinks fallinn frá

  Í fyrradag lést Pete Quaife,  bassaleikari einnar þekktustu hljómsveitar rokksögunnar,  The Kinks.  Pési spilaði í öllum vinsælustu lögum hljómsveitarinnar.  Hinsvegar hætti hann tvívegis í hljómsveitinni.  Fyrst í nokkra mánuði 1966 og aftur í lok áratugarins.  Hann spilaði síðast með The Kinks 1990 er hljómsveitin var vígð inn í Frægðarhöll rokksins (Rock and Roll Hall of Fame) í Bandaríkjunum.

  Pési stofnaði The Kinks 1961 með Davis-bræðrunum,  Ray og Dave.  Framan af var æskuvinur Pésa á trommunum.  Síðar leysti trommuleikari The Rolling Stones,  Mike Avory,  hann af. 

  Fyrstu árin var hljómsveitin iðulega bókuð undir nafninu The Pete Quaife Quintet.  1963 var nafnið The Kinks tekið í gagnið.  Það er stundum ranglega þýtt í íslensku útvarpi sem Kóngarnir.  Nafnið er dregið af afbrigðilegu kynlífi (kinký) jafnframt því að vera stafaleikur að hætti Bítlanna,  The Beatles.

  Pési spilaði á 8 hljómleikum með The Kinks á Íslandi 1965.  Þá var hljómsveitin á hápunkti frægðar sinnar.

  Pésa leiddist að vera í The Kinks utan sviðs.  Hann upplýsti að þó liðsmenn hljómsveitarinnar hafi virst góðir vinir á sviði hafi þeir utan sviðs rifist og slegist eins og hundar og kettir.  Ekki einstaka sinnum heldur alltaf.  Illkvitni, kvikindisskapur og ofbeldishneigð réðu ríkjum.  Jafnframt var ofríki Rays sem söngvahöfundar og útsetjara algjört.  Ef undan er skilinn slaki hvað þetta varðar á plötunni Village Green Preservation Society.  Hún kom út 1968.

  Síðustu áratugi bjó Pési í Kanada og starfaði þar sem teiknari.


Fróðleiksmolar um Blondie og Debbie Harry

  Ég er ekki sérlegur aðdáandi bandarísku hljómsveitarinnar Blondie.  Hún er aðeins of poppuð fyrir minn smekk.  En þessi hljómsveit var hluti af stemmningu pönkbyltingarinnar,  reggí- og nýbylgjunni sem fylgdi með.  Jafnframt tengdist Blondie bandarísku pönksenunni sem einskorðaðist ekki við músíkstíl.  Bandaríska pönkið fyrir daga bresku pönkbyltingarinnar samanstóð af hópi tónlistarfólks sem stóð fyrir utan hippasenu fyrri hluta áttunda áratugarins og keppti ekki í tæknilegri færni hljóðfæraleikara né langdregnum gítar- eða trommusólóum.  Þessi hópur átti athvarf í fyrrum djassklúbbi í New York,  CBGB´s (Ramones,  Patti Smith,  Television,  Talking Heads,  Dead Boys...).
  Áður en Blondie sló í gegn starfaði söngkonan,  Debbie Harry,  meðal annars sem dansari og Playboy kanína.  Hún var einnig áður í þjóðlagahljómsveit og stelpnatríói.
.
blondieplayboy
  2007 var Debbie Harry á lista People Magazine yfir 100 fegurstu manneskjur yfir sextugt.
  1999 var Debbie Harry elsti kvensöngvari sem átt hafði lag í 1.  sæti breska vinsældalistans.  Þá 53j ára.  Hún er 64 ára í dag.  Vera Lynn trompaði þetta met 2009,  92ja ára.  Debbie á aðeins 3 ár í að verða löggilt gamalmenni.
  Bandaríski myndlistamaðurinn frægi Andy Warhol gerði frægt tölvuunnið grafíkmyndverk af Debbie 1985.  Þau voru nánir vinir.  Nei,  ekki kærustupar.  Debbie var gift gítarleikaranum og lagahöfundinum Chris Stein.
Debbie_Harry
  Annar góður vinur Debbiar er Iggy Pop.  Hún söng lag eftir hann inn á plötu og dúettaði með honum í kráku (cover song) eftir Cole Porter. 
  Náin vinkona Debbiar,  Nancy Spungen,  var myrt af laglausum bassaleikara ensku pönksveitarinnar Sex Pistols,  Sid Vicious.  Áður stakk hann auga úr bróðir annarrar vinkonu Debbiar,  bandaríska ljóðskáldinu Patti Smith.  Þær deildu um tíma sama gítarleikara.  Sid lést úr óþarflega stórum skammti af dópi.  Fólk verður að kunna sér hóf í dópinu.  Líka kók-ólfar íslenska bankaræningjakerfisins.  Annars fer illa.  Allt fer í klessu.
 
  Á árlegum pönkhátíðum Fræbbblanna hefur lag Blondie,  Denise,  verið á dagskrá.  Ég finn það ekki á þútúpunni í flutningi þeirra. En margt annað skemmtilegt með Fræbbblunum.  Reyndar er allt skemmtilegt með Fræbbblunum.  Hljómsveitinni sem eldist betur en bestu vín.
    

...Þá var hringt í Hólakirkju öllum jólabjöllunum

hólar

  Hólar í Hjaltadal eru (einn) fallegasti staður landsins.  Fátt er ánægjulegra en keyra heim til Hóla eftir löngum beinum vegi og beygja síðan upp með skógarrjóðrinu,  kirkjunni og turninum og hringspóla á hlaðinu við skólann.  Nei,  annars.  Það á að aka varlega þarna í svona fögru umhverfi.  Um Hóla í Hjaltadal hafa verið ort mörg góð kvæði.  Þar á meðal þetta bráðskemmtilega eftir Kristján Runólfsson.

Þegar lít ég heim til Hóla,
horfi ég á marga póla,
biskupinn og bændaskóla,
ber við sjónir nútímans.
Flæðir saga um minni manns.
Garður fylltur grænum njóla,
Guðbrands staðinn skreytir,   (þar sem prentsmiðjan stóð)
Þetta eru þankar sundurleitir.

Þarna bjuggu bændur góðir,
betri en gerðust hér um slóðir,
margir voru menntafróðir,
mörg eru áhrif búskólans.
Flæðir saga um minni manns.
Vaxa af því viskuglóðir,
víða hér um sveitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Stöndug kirkja staðinn prýðir,
stóðu að henni bændalýðir.
Sóknarprestar sungu tíðir,
sinntu boði frelsarans.
Flæðir saga um minni manns.
Maður sá er messu hlýðir,
meira um lífið skeytir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Tíminn líður, flest á Fróni,
fyrnist þó að nýtt við prjóni,
það sannaðist á séra Jóni,
og seinni tíma nafna hans.   (Jóni Bjarnasyni)
Flæðir saga um minni manns.
Varla þetta telst með tjóni,
og tæpast nokkru breytir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Fylla loftið fornar sögur,
fram í dali og ystu gjögur,
löngum voru ljóðin fögur,
lofuð á vörum almúgans.
Flæðir saga um minni manns.
Hér var Óðins hornalögur,
handa þeim sem neytir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Sér í hylling Guðmund góða,
ganga um með hökulslóða,
Galdra-Loft hinn galna og óða,
Guðbrand prenta bókafans.
Flæðir saga um minni manns.
Yfir sumu er algjör móða,
á því minnið steytir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Taumlaus áfram tíminn rennur,
tifar hratt sem eldur brennur,
víst hann gerir mörgum glennur,
gefur aldrei nokkurn sjans.
Flæðir saga um minni manns.
Birtist hann með beittar tennur,
brögðin mögnuð þreytir.
þetta eru þankar sundurleitir.

Heilladísir Hólastaðar,
höndum tóku saman glaðar,
að setja allt sem sálu laðar,
saman þar sem gullinn krans.
Flæðir saga um minni manns.
Gleðisólin geislum baðar,
grænka hugans reitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Sé ég Biskup Gottskálk grimma,
og Guðmund upp í skálar trimma,
þeir fara á stjá er fer að dimma,
og förlar sjónum horfandans.
Flæðir saga um minni manns.
Löng var forðum Rauðskinns rimma,
rifust andar heitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Líkaböng er löngu brotin,
lenti í Köben sundur rotin,
öll voru kathólsk áhrif þrotin,
endanlega um sveitir lands.
Flæðir saga um minni manns.
Herra Jón var herðalotinn,
og hálsvöðvarnir feitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Allir vita að Auðunn Rauði,
einnig sat í þessu brauði,
reisti múr af rýrum auði,
ríkt var eðli mannsandans.
Flæðir saga um minni manns.
Hann var ansi klár sá kauði,
klókur sverðabeitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Lít ég yfir sögusviðið,
sumt er nýtt og annað liðið,
hér hafa ýmsar skepnur skriðið,
og skrefað tímans villta dans.
Flæðir saga um minni manns.
Hafa oft um hérað riðið,
höfðingjarnir feitir.
Þetta eru þankar sundurleitir.

Núna mun ég ljúka ljóði,
og linna þessu kvæðaflóði,
klára það með köldu blóði,
kveð nú sagnir frónbúans.
Flæðir saga um minni manns.
Er ég talinn orðasóði,
sem órum frá sér hreytir.
Þetta eru þankar sundurleitir


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.