Kostir útstrikana

  Nöfn tiltölulega fárra frambjóðenda eru strikuð út á kjörseðli í kosningum.  Ástæðan er sú að almenningur þekkir lítið sem ekkert til frambjóðenda.  Í nýafstöðnum alþingiskosningum voru hátt í 1300 manns í framboði.  Hvorki ég né aðrir þekkja haus né sporð á sumum sem skipuðu efsta sæti á framboðslistum.  Hvað þá þeirra sem skipuðu önnur sæti.  

  Fyrir bragðið er eðlilegt að útstrikaðir frambjóðendur séu upp með sér.  Kjósendur vita á þeim deili.  Þekkja meira að segja nógu vel til verka þeirra til að krota yfir nafn þeirra.  

  Montnastur allra í dag er Sigmundur Davíð Gunnlaugssonar.  Hann er kóngur -  útstrikanakóngur á eyðibýli.  Svo gott sem fimmti hluti kjósenda Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi krassaði yfir nafn hans.  Það hefur verið skálað í kampavíni af minna tilefni.     


mbl.is Rúm 8% strikuðu Þorgerði Katrínu út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hugsa að það sé rétt hjá honum að hann hefði getað rifið upp fylgi flokksins, hefði hann verið formaður.

Fólkið hefði slegist um það að kjósa flokkinn einungis til þess að fá að strika hann út.

Grrr (IP-tala skráð) 4.11.2016 kl. 15:25

2 Smámynd: Jens Guð

Grrr,  þú ert sannspár!

Jens Guð, 4.11.2016 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband