9.2.2011 | 01:20
Nú verður stuð! Það fer allt á annan endann!
.Það verður ekkert smá fjör á morgun (Óðinsdag, 9. febrúar). Og það í Salnum í Kópavogi. Fjörið hefst ekki seinna en á slaginu klukkan 18.00. Eða því sem næst. Það er sjálfur Óp-hópurinn sem mun með leikrænum tilþrifum flytja atriði úr óperum eftir Bellini (Norma), Bizet (Carmen) Donizetti, Gershwin (Porgy og Bess), Mozart og Tchaikovsky (Spaðadrottningin). Ýjað verður að búningum og sviðssetningu eins og kostur er. .
.Ég er ekki klár á því hvort Antonía Hevesí er skilgreind sem fullgild í Óp-hópnum eða hvort hún telst vera píanóleikari Óp-hópsins. Ef seinna tilfellið er nær sanni getum við talað um tónleika Óp-hópsins við píanóundirleik Antoníu Hevesí. Það hljómar vel í öllum skilningi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2011 | 13:24
Merkustu fyrirbæri rokksögunnar
Á fimmtugs afmæli rokks og róls, 2004, leitaði bandaríska poppmúsíkblaðið Rolling Stone til fjölmenns hóps starfandi poppstjarna heims. Erindið var tilraun Rolling Stone til að finna út hvaða hljómsveitir, sólósöngvarar og sólósöngkonur hafi haft mest áhrif á helstu poppstjörnur 21. aldarinnar. Niðurstaðan er sá listi sem hér er fyrir neðan. Það verður ekki annað sagt en að útkoman sé sannfærandi. Að vísu með þeim fyrirvara að þarna er um bandarískt blað að ræða og meirihluti þátttakenda er bandarískur.
Tónlist | Breytt 1.2.2011 kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
30.1.2011 | 17:37
Plötuumsögn
- Titill: Baldur
- Flytjandi: Skálmöld
Tónlist | Breytt 31.1.2011 kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.1.2011 | 23:13
Af hverju kalla útlendingar íslenska hestinn sinn þorsk?
Hvar sem íslenska hesta er að finna í útlöndum er nánast óskrifuð regla að einhverjir þeirra bera nafnið Þorskur. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi varaformaður Framsóknarflokksins, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi hitt og þetta, tæpir á þessu í blaðagrein í dag. Er ekki dálítið skrýtið að nefna hestinn sinn í höfuðið á annarri og fjarskyldri skepnu?
Mig minnir að Þráinn Bertelsson hafi eitt sinn átt hund sem bar nafnið Kisi. Það var einhvernveginn nærtækara. Eitt sinn gisti ég hjá fjölskyldu á Þingeyri. Vaknaði þar að morgni upp við að kallað var á Jimi Hendrix. Það þótti mér einkennilegt. En það var ekki svo einkennilegt þegar í ljós kom að heimilishundurinn hét Jimi Hendrix.
Góður vinur minn átti kött sem hét Emmylou Harris. Kisan var reyndar oftast bara kölluð Emma.
En þessi árátta útlendinga að kalla íslenska hestinn sinn Þorsk vekur upp spurningar. Útlendingar þekkja ekki stafinn Þ. Það virðist samt vera þeim sport að eiga hest með nafni sem byrjar á Þ. Eins þykir þeim sport að kalla íslenskar hryssur Blálöngur. Útlendingar eru svo furðulegir þegar kemur að því að nefna íslensku hestana sína.
Bandarískir hermenn á Miðnesheiði kölluðu Íslendinga iðulega "cods" eða þorskhausa. Það er önnur saga. Og meira við hæfi. In cod we trust.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.1.2011 | 01:52
Hvað heldur þú?
Ég stóð fyrir framan kjötborðið í Nóatúni í Nóatúni. Þar lengst til hægri er afgreiddur heitur matur úr borðinu. Seldur eftir vigt. Svo og franskar kartöflur. Þar við hliðina til vinstri er heitur matur í sjálfsafgreiðslu: Kjúklingar, svið, lifrarpylsa og svínarif.
Virðuleg og vel klædd miðaldra kona keypti franskar kartöflur sem voru afgreiddar í stórum hitapoka. Utan á pokann var settur límmiði með upphæðinni á þeim frönsku. Um leið og konan snéri frá kjötborðinu greip hún pakka af heitum svínarifjum. Með snörum handtökum skellti hún rifjunum ofan í kartöflupokann. Mér þótti þetta pínulítið skrýtið. En hugsaði ekki meira um það. Konan brunaði með þetta í innkaupakerru ásamt mjólkurvörum og fleiru að afgreiðslukassa. Ég fylgdist ekki meira með henni. Keypti bara sjálfur smávegis af þorramat.
Þegar út úr búðinni var komið fór ég að velta málinu fyrir mér. Var konan að ná sér þarna í ókeypis svínarif? Eða var hún að halda hita á svínarifjunum í hitapokanum svo þau myndu ekki kólna á leiðinni að afgreiðslukassanum? Svipti þeim þá úr hitapokanum og greiddi samviskusamlega fyrir þau? Hvað heldur þú? Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Takið eftir glæsilega töff trommuleik Halldórs Lárussonar (Spilafífl, Með nöktum, Q4U).
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.1.2011 | 00:53
Óvænt uppgötvun: Lítið þekkt íslensk hljómsveit í bandarískri plötubúð
Það er alltaf gaman og dálítið skrýtið að sjá íslenskar plötur í útlendum plötubúðum. Ekki síst í dag eftir að plötubúðir heimsins eru orðnar fátæklegri af "sjaldgæfari" plötum og gera meira út á það sem hæst ber á vinsældalistum. Það er hægt að ganga að plötum Bjarkar, Sykurmolanna, Sigur Rósar og Jónsa sem vísum í útlendum plötubúðum. Svo rekst maður á eina og eina íslenska plötu sem vekur undrun.
Fyrir áratug keypti ég plötuna "Saga rokksins" með Ham í plötubúð í Prag í Tékklandi. Það var óvænt og gaman. Í Berlín í Þýskalandi keypti ég plötu með I Adapt fyrir nokkrum árum. Þar var meira að segja verið að spila hana í hátölurum búðarinnar er ég gekk þar inn. Afgreiðslumennirnir sýndu mér að auki jákvæðan plötudóm um plötuna í þýsku blaði. Blaðið suðaði ég út úr þeim til að sýna strákunum í I Adapt.
Fyrir tveimur árum rakst ég á sömu plötu í plötubúðum í Póllandi. Það var einnig fjallað um hana í þarlendum rokkblöðum. Í ljós kom að um sjóræningjaútgáfu var að ræða. Síðast þegar ég frétti voru liðsmenn I Adapt komnir með lögfræðing í málið.
Á dögunum í New York fann ég í plötubúð plötu með íslensku hljómsveitinni Pascal Pinon, samnefnda hljómsveitinni. Í bandaríska rokkblaðinu Under the Radar er umfjöllun um þessa plötu. Hún fær þar einkunnina 6 (af 10).
Ég veit fátt um þessa hljómsveit. Nema þekki lagið ljúfa sem hér fylgir með. Hef heyrt Bubba spila það í "Færibandinu" á rás 2. Virkilega krúttlegt lag.
Í umsögn um plötuna í Under the Radar segir að hljómsveitin Pascal Pinon sé nefnd í höfuðin á tvíhöfða sirkus-fríki. Þar segir líka að tónlist hljómsveitarinnar sé samin af 14 ára tvíburasystrum. Um sé að ræða aðlaðandi lo-fi (lágstemmd naumhyggja) tónlist spilaða á kassagítar, flautu og klukknahljóm (mér heyrist sem þarna laumist líka lágvært hljómborð með. Mitt innskot). Það megi skilgreina þetta sem krúttlegt en sé um leið hrífandi og mildur hljóðheimur sem lofi bjartri framtíð.
Under the Radar fæst ekki hérlendis. Ef einhver hér þekkir til stelpnanna í Pascal Pinon skal ég senda þeim eintak af blaðinu með plötudómnum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.1.2011 | 21:23
Þetta verðið þið að sjá!
Þetta stórfenglega snjólistaverk er eitthvað sem allir verða að sjá. Það fylgir ekki sögunni hvar það er. Málið er bara að leita það uppi. Kannski með því að fara sjóleiðina til útlanda:
Ef veðurfar leyfir það ekki þá er gripið til flugsamgangna:
Svo framarlega sem fuglinn gerir ekki árás. Þetta á að sleppa ef flugvélin er öflug og ræður við dæmið. Því næst er að fá sér reiðhjól og hjóla á áfangastað. Verra er þegar undirlendi er ekki eins og Danmörku og Hollandi: Lárétt og slétt. Það þarf lagni til að hjóla um holt og hæðir:
Mestu skiptir þó að vera bólusettur gegn óværum í útlöndum:
26.1.2011 | 02:44
Það er hægt að drekka þorramat
Ég á ekki við að þorramatnum sé skellt í blandara ásamt hálfum lítra af Brennivíni eða einum lítra af bjór. Svoleiðis er bara subbulegt og út í hött. Það er engin reisn eða stæll yfir því. Þorramat á aldrei að blanda eða hræra saman við eitthvað utanaðkomandi. Það er grundvallaratriði.
Til að drekka þorramat þarf að velja súrsaða sviðasultu, svínasultu, hrútspunga og þess háttar með háu hlutfalli af bindiefni (hlaupi). Þessu er komið fyrir snyrtilega á undirskálar. Þeim er síðan raðar með jöfnu millibili ofan á snarkandi heitan stofuofn.
Hægt og bítandi bráðnar hlaupið og súrmaturinn verður eins og litlir bitar í þunnri súpu. Á meðan þetta gerist er upplagt að laga þunnan jafning. Þegar jafningurinn er til er honum ásamt súrmetinu hellt í glös. Svo er þorramaturinn drukkinn hægt og virðulega.
Þetta er góð tilbreyting frá því að snæða daglega þorramat með hnífi og gaffli.
25.1.2011 | 01:29
Flott sjónvarpsstöð
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.1.2011 | 16:07
Gátan leyst!
Gríðarmiklar vangaveltur og bollaleggingar hafa verið í gangi alveg frá því að bandarísk leikkona, Halle Berry, varð ólétt um árið. Fólk hefur spáð og spekúlerað og reynt að átta sig á því hvernig í ósköpunum þessi frænka rokkarans Chucks Berrys hafi farið að því að verða ólétt. Var þetta glasafrjóvgun? Var þetta kraftaverk? Var göldrum beitt? Hvað gerðist?
Nú hefur hulunni verið svipt af leyndardómnum og er slegið upp með stríðsfyrirsagnarletri í Fréttablaðinu og á visir.is.:
Vísindi og fræði | Breytt 25.1.2011 kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.1.2011 | 23:13
Hrun í miðasölu á hljómleika
Almenningi bauðst líka að mæta vikulega í Nasa, Laugardalshöll eða Egilshöll á hljómleika með stjörnum á borð við Bob Dylan, Morrisey, Lou Reed, Patti Smith, Roberti Plant, Megadeath, Harum Scarum og bara eiginlega öllum öðrum af þessum helstu.
Frá haustmánuðum 2008 hefur lítið orðið vart við hljómleika útlendra stórstjarna hérlendis. Nema Eivarar. Hún er reyndar eiginlega fósturdóttir Íslands. Og jafnan uppselt á hljómleika með henni. Líka eftir bankahrun. Íslenskir tónlistarmenn hafa sömuleiðis átt góðri aðsókn á hljómleika að fagna. Nægir í því sambandi að benda á jólahljómleika Frostrósa og Björgvins Halldórssonar.
Þessu er ekki þannig farið í Bandaríkjum Norður-Ameríkubankahrun quilera var aflýst vegna dræmrar miðasölu (gott mál). Hljómleikaferð írsku risanna í U2 var frestað til 2011. Lilith Fair hélt sinni hljómleikaferð til streitu þrátt fyrir hálftóma hljómleikasali. Miðaverð á hljómleika Rihönnu, American Idol Live!, Warped Tour og margra annarra var lækkað niður í 10 dollara (1200 kall) úr nokkur þúsund kalli.
Á móti vegur lítillega að söluaukning varð á miðum á helstu árlega rokkhátíð framsækins rokks í Bandaríkjunum, Lollapalooza. 2009 voru 225 þúsund miðar seldir á Lollapalooza. 2010 seldust 238 þúsund miðar á Lollapalooza.
Svo virðist sem bandarískir hljómleikagestir séu orðnir vandlátari varðandi hljómleika. Þeir vilja frekar borga hærri upphæð fyrir tónlistarhátíðir með 30 hljómsveitum en helmingi lægri upphæð fyrir hljómleika með 2 - 3 nöfnum. Þetta má kannski líka merkja af aðsókn á áðurnefnda jólahljómleika hérlendis, svo og Iceland Airwaves.
Perry Farell, forsprakki Porno for Pyros, er forsprakki Lollapalooza. Aðalnúmer Lollapalooza 2010 var Soundgarden:
Tónlist | Breytt 23.1.2011 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.1.2011 | 19:55
Kominn inn á Ameríkumarkað
Bandaríski músíkmarkaðurinn er sá stærsti í heimi. Ekki aðeins er Kaninn liðtækur neytandi músíkur í öllu formi (plötukaup, aðsókn á hljómleika, útvarpshlustun, gláp á tónlistarefni í sjónvarpi og svo framvegis) heldur er bandaríski markaðurinn gegnum gangandi verulega ráðandi í músíkmarkaði heimsins. Sá sem slær í gegn í bandaríska skemmtiiðnaðinum er sjálfkrafa kominn inn á heimili heimsbyggðarinnar: Í gegnum sjónvarpsþætti, slúðurdálka blaða og annað í þá veru.
Heimsbyggðin fylgist með bandarískum vinsældalistum (músík, kvikmyndir, bækur...), verðlaunahátíðum á borð við Óskarinn, Grammy, Golden Globe, Golden Dildo, Frægðarhöll rokksins og hvað þetta heitir allt.
Nú er Íslandsvinurinn Högni Lisberg frá Færeyjum kominn inn fyrir þröskuldinn í Bandaríkjunum. Síðasta haust kom lag með honum út í hljóðrás tölvuleiks sem heitir NBA 2K II. Þetta er körfuboltaleikur sem selst í milljónaupplagi. Lagið sem um ræðir heitir Bow Down. Myndbönd með Högna (og úr tölvuleiknum) þar sem þetta lag er flutt hafa til samans fengið næstum 200 þúsund innlit á þútupunni. Það er heldur betur stökk frá því sem áður var. Önnur myndbönd með Högna hafa fengið 2 - 3 þúsund innlit. Hans vinsælasta lag fram að útkomu NBA 2K II, Morning Dew, er komið með 10 þúsund innlit. Það lag sat vikum saman á íslenska og færeyska vinsældalistanum og fékk fína spilun í útvarpi í Sviss, Danmörku og víðar fyrir nokkrum árum. Samnefnd plata náði jafnframt 1. sætinu á Íslandi og í Færeyjum. Í Færeyjum var Morning Dew plata ársins 2005 í færeysku tónlistarverðlaununum.
Í kjölfar útgáfu NBA 2K II tölvuleiksins hafa bandarískar útvarpsstöðvar byrjað að spila Bow Down. Bandaríska plötufyrirtækið Spectra Records brá við skjótt og bauð Högna útgáfusamning. Hafði samband við hann að fyrra bragði. Högni skrifaði undir samninginn á dögunum. Samningurinn kveður á um að Spectrum gefi út og dreifi plötu Högna, Haré Haré, í bandarískar og kanadískar plötuverslanir. Haré, Haré kom ut í Evrópu fyrir þremur árum og inniheldur lagið Bow Down.
Spectra Records er þekktast fyrir að gefa út plötur með svokölluðum sívinsælum rokkurum og poppurum (classic rock / pop). Má þar nefna Paul Young, T. Rex, Cutting Crew, Lou Gramm, Rock Star (súper-grúppan (Metallica/Guns 'N´Roses/Mötley Crue-dæmið sem Magni keppti um að verða söngvari í) og fleiri slíka. Fyrir bragðið er dreifingakerfi fyrirtækisins til plötuverslana þétt og sívirkt.
Högni sló upphaflega í gegn sem trommuleikari færeysku súper-grúppunnar Clickhaze. Með henni spilaði hann á nokkrum hljómleikum hérlendis 2003 (þegar færeyska bylgjan skall á). Síðar hefur Högni m.a. spilað sitthvort árið á Iceland Airwaves. Þá sem gítarleikari og söngvari. Einnig hefur hann sungið hérlendis við undirleik hljómsveitar á Atlantic Music Event, svo og spilað á trommur á hljómleikaferðum hennar um Ísland í fyrra.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2011 | 13:56
Íslendingar tapa vitinu
Þær hlaðast upp sögurnar af Íslendingum sem halda ekki andlegu jafnvægi við að fylgjast með öðrum Íslendingum leika sér í dönskum boltaleik við útlendinga. Eftirfarandi frásögn af Húnvetningi sem sturlaðist er úr héraðsfréttablaðinu Feyki:
Ærðist við sigur Íslands á Noregi
Karlmaður í Húnvatnssýslu ærðist gjörsamlega þegar Ísland lagði Noreg í handboltanum í gær. Gekk maðurinn berserksgang í sveitinni, hljóp klæðalítill um túnin og endaði berrassaður ofan í á þaðan sem honum var bjargað.
Lögreglan var kölluð á svæðið til að fjarlægja manninn, en hún naut aðstoðar björgunarsveitarinnar þar sem maðurinn neitaði að koma upp úr ánni, þar sem einn lögreglumaðurinn á ættir sínar að rekja til Noregs. Lét hann fúkyrðin dynja á lögreglumanninum á meðan björgunarsveitarmennirnir brugðu á hann böndum og drógu upp úr ánni. Var maðurinn þá orðinn talsvert kaldur, eftir að hafa hlaupið fatalítill um sveitina í talsverðan tíma.
Á leið sinni braut maðurinn rúðu í tveimur dráttarvélum, reif niður girðingu, klifraði upp í rafmagnsstaur, reið berbakt talsverðan spotta og skelfdi hænur í hænsnakofa á nágrannabæ svo nokkrar þeirra báru vart sitt barr á eftir.
Af manninum er það að frétta að hann var fluttur til aðhlynningar á heilsugæslunni á Hvammstanga og í kjölfarið bannað að horfa á fleiri leiki á HM.
![]() |
Of glaður Íslendingur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 22.1.2011 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.1.2011 | 23:15
15 ára systir Eivarar fetar í fótspor stóru systur
Einn af fallegustu söngvum færeysku álfadísarinnar Eivarar er um yngri systur hennar tvær, Elínborgu og Elísabetu. Nú er Elínborg orðin 15 ára og farin að hasla sér völl sem tónlistarkona; söngkona, gítarleikari og söngvahöfundur. Hér er sýnishorn af því sem hún hefur fram að færa:
Stelpan fer vel af stað. Hún segist ekki finna fyrir neinum þrýstingi varðandi samanburð við farsælan feril stóru systur. Þvert á móti sé velgengni Eivarar sér hvatning. Elínborg segir: "Ég hef minn eigin stíl og reyni ekki að eltast við það sem aðrir ætlast til af mér."
Sama viðhorf er einmitt eðall Eivarar og að mörgu leyti lykillinn að velgengni hennar.
Tónlist | Breytt 20.1.2011 kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.1.2011 | 20:44
Bráðskemmtilegar tillögur um öðruvísi sumarfrí
Nú er sá tími runninn upp að fólk fer að velta fyrir sér hvert eigi að fara og hvað skuli gera í sumarfríinu. Eða páskafríinu. Það er ekkert gaman að gera alltaf nákvæmlega það sama. Hér eru nokkrar tillögur um smá öðruvísi upplifun í fríinu:
Það er rosalega hressandi að sofa utan í þverhníptum hamri í 2ja - 3ja kílómetra hæð yfir jörðu og anda að sér fersku og súrefnisríku fjallalofti. Við þessar aðstæður er hræðsla óþörf við að vakna upp með svöng og grimm rándýr að éta mann um miðja nótt. Engir úlfar. Engir ísbirnir. Það eina sem þarf að passa upp á er að velta sér ekki um of í svefni. Það gæti orðið slæm bylta.
Nú er byrjað að framleiða kajaka á Íslandi. Vandamálið er að íslenskir fossar eru ekki nógu reisulegir fyrir þetta ævintýri: Að stökkva í kajaka fram af klettasnös ofan í freyðandi fosshylinn. Til að þetta sé virkilega gaman þarf stökkið að vera minnsta kosti 500 metrar.
Það er eitthvað rosalega heillandi við að trítla upp eftir snjórönd sem nær nokkurra kílómetra hæð. Kikkið fær maður af því að þræða sjálfa snjóröndina þannig að útsýni sé gott yfir báðar hliðar. Það er upplagt að byrja daginn á þessu. Fara svo í kajak um kvöldið og sofa í hengirúminu á nóttunni.
Það þarf að vera með þokkalega jafnvægistilfinningu til að klifra upp þessa steinahrúgu. Ef klaufalega er að farið veltur hún á hliðina. Þannig er hún ekki eins tignarleg. En það er skemmtileg áskorun að halda jafnvægi á henni eins og hún er þarna.
Þegar tvær manneskjur ferðast saman er sanngjarnt að þær þrengi ekki hvor að annarri. Gefi gott olnbogarými og sýni fyllstu tillitssemi í hvívetna.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.1.2011 | 14:51
Útlent stórblað hvetur til Íslandsferða
Í sunnudagsblaði The New York Times er að finna fjögurra blaðsíðna grein sem ber yfirskriftina "41 staður til að heimsækja árið 2011". Staðirnir 41 eru taldir upp í númeraðri röð eftir því hvað þeir þykja spennandi að sækja heim. Ítarleg greinargerð fylgir upptalningunni á hverjum stað fyrir sig (hér er textinn mikið styttur).
Í fyrsta sæti er Santiago. Þessi höfuðborg Chile er sögð vera í mikilli uppbyggingu og uppsveiflu eftir 2 jarðskjálfta á innan við ári. Annar upp á 8,8 á Richter. Veitingastaðir, söfn, hótel og annað slíkt hafa verið nútímavædd. Þarna hefur verið tekin í notkun 200.000 fermetra tónlistarhöll. Helsta árlega rokkhátíðin í Bandaríkjunum síðustu tvo áratugi, Lollapalooza, verður í fyrsta skipti haldin utanlands. Einmitt í Santiago. Ýmislegt fleira er upp talið Santiago til ágætis sem fyrsta vali á utanlandsferð í ár.
Í öðru sæti eru San Juan eyjar í Washington ríki í Bandaríkjunum. Það eru veitingastaðir, ósnortin náttúra og fleira sem gerir eyjarnar áhugaverðar.
Í 3ja sæti er Koh Samui á Tælandi. Aðdráttarafl þessarar eyju samanstendur af hvítri strönd, kóralrifum, pálmatrjám, spennandi veitingastöðum og detox-heilsusetri.
Í 4ða sæti er Ísland. Hrun íslensku krónunnar 2008 hefur gert þessa ótrúlega fallegu eyju mun ákjósanlegri áfangastað en áður. Þjónusta sem áður kostaði 200 dollara á Íslandi kostar aðeins 130 dollara í dag. Um leið og náttúruunnendur ferðast til Íslands vegna heitu vatnslindanna. jökla, eldfjallalandslags og Norðurljósanna þá hafa Íslendingar stigið stórt menningarskref með byggingu tónlistar- og ráðstefnuhallarinnar Hörpu, sinfóníu- og óperuhús. Opnunardagskrá Hörpu í maí hefst á hljómleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og íslenskra rokkhljómsveita. Í mars verður 3ja íslenska tískufestivalið haldið, DesignMarch. Í október ár hvert er hin svala Iceland Airwaves popphátíð haldin.
Það er ástæðulaust að þylja hér upp staðina í næstu 37 sætum sem The New York Times mælir með að verði heimsóttir í ár. Fæstir ná að ferðast til fleiri en þessara fjögurra staða í ár. En ef það gengur rúmlega upp á er Mílan á Ítalíu í fimmta sæti.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2011 | 20:17
Íslendingar gengu á land í Ameríku á undan indíánum
Einhverra hluta vegna hef ég alltaf staðið í þeirri trú að indíánar séu frumbyggjar Ameríku. Jæja, það er kannski ofmælt að ég hafi alltaf staðið í þessari trú. Sennilega byrjaði ég ekki að velta þessu fyrir mér fyrr en á unglingsárum. Frá þeim tíma hef ég frekar styrkst í þessari trú en hitt.
Nú hefur virtur dómari, Charles E. Ramos, í New York hinsvegar kollvarpað þessari kenningu. Hann telur sennilegast að Íslendingar hafi fyrstir manna stígið á ameríska grund.
Charles þessi er enginn vitleysingur. Hann veit hvað hann syngur þó hann sé laglaus. Þetta er dómarinn sem vísaði frá máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannssyni og félögum.
Charles fullyrðir jafnframt að Ísland hafi orðið land á undan Ameríku. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt í jarðeðlisfræði.
![]() |
Íslensku nöfnin erfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
18.1.2011 | 00:53
Misnotkun á Neyðarlínunni - brosleg og neyðarleg dæmi
Neyðarlínan á Íslandi er 112. Er það ekki annars? Í vikunni var broslegt að lesa um - eða kannski öllu heldur neyðarlegt - hverjir nota Neyðarlínuna 911 í New York. Þar á meðal var neyðarkall frá örvæntingafullum foreldrum í Brooklyn sem áttu í erfiðleikum með að fá son sinn til að læra helgarverkefni fyrir skólann á mánudegi. Foreldrarnir kröfðust þess af starfsmönnum Neyðarlínunnar að sitja yfir heimaverkefni ódæla stráksins. Það fylgdi ekki sögunni hver voru viðbrögð starfsmanna Neyöarlínunnar við þessu útkalli.
Annar hringdi í Neyðarlína frá Bronx. Honum var illt í maganum. 20 mínútum áður snæddi hann 16" pizzu með "öllu" og var bumbult. Hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Var bara illt í maganum. Starfsmenn Neyðarlínunnar biðu hjá honum þangað til hann þurfti að fara á klósettið og leið betur á eftir.
Útkall kom frá Brooklyn. Það blæddi úr tanngómi á 2ja ára stelpu þegar hún tannburstaði sig. Við athugun kom í ljós að hún var með sprungna vör.
Það kom útkall frá Staten Island. Viðkomandi hafði beðið - á vitlausum stað - eftir strætisvagni í 2 tima. Honum var kalt. Það amaði ekkert að drengnum. Hann vildi aðeins fá að sitja inni í hlýjum Neyðarbíl í smástund þangað til strætó kæmi. Starfsmenn Neyðarlínunnar buðust til að skutla honum á sjúkrahús. En, nei, honum var bara kalt og vildi bíða áfram eftir strætó. Svo kom strætóinn og málið var leyst.
Enn annar hringdi af því að hann hafði rekið tá í og var illt í tánni. "Mér er búið að vera illt í tánni í heilan klukkutíma," sagði hann en sársaukinn fjaraði út á meðan hann ræddi við starfsmenn Neyðarlínunnar.
Náungi í Brooklyn hringdi vegna þess að hann átti erfitt með andardrátt. Í ljós kom að hann var kvefaður og önnur nösin stífluð. Hann þurfti aðeins að snýta sér hraustlega og vandamálið var úr sögunni.
Þetta eru aðeins örfá dæmi af 1300 útköllum 911 um síðustu helgi í New York. Þess á milli voru að sjálfsögðu morð, morðtilræði og fleira svona "alvöru". Þar á meðal eitt skrýtið dæmi: Óeinkennisklæddur lögreglumaður á frívakt var stunginn í bakið á bílastæði fyrir utan stripp-stað. Sá sór og sárt við lagði í yfirheyrslu hjá lögreglu að hafa aldrei stigið fæti inn á stripp-stað. Hann hafi bara verið staddur fyrir tilvilkjun á bílaplaninu og ekki haft hugmynd um að þar í nágrenni væri stripp-staður.
Innanhússmyndavélar á stripp-staðnum sýndu hinsvegar að lögreglumaðurinn var þar greinilega heimavanur. Hann sást lenda í deilum við annan mann. Deilurnar leiddu til slagsmála. Við nánari rannsókn var upplýst að lögreglumaðurinn hljóp út til að sækja byssu - sem hann var með í bílnum úti á plani - til að skjóta hinn náungann. Sá elti hann út, náði honum við bílinn og stakk í bakið með hnífi. Það sem verra var fyrir lögreglumanninn stungna var að hann var undir eftirliti, grunaður um að gera út ólöglega leigubíla.
Ég er ekki alveg klár á því hvort ég er að rugla saman tveimur aðskildum málum eða hvort sá sem stakk lögreglumanninn með hnífi er grunaður um að hafa einnig verið óeinkennisklæddur lögreglumaður. Eða hvort það var annað mál á öðrum stað. Hvort heldur sem var sagði lögteglustjórinn að stungni lögreglumaðurinn myndi fá stranga áminningu fyrir að hafa verið á stripp-stað. Ekkert má.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2011 | 22:08
Vörusvik
Fyrir nokkrum árum var farið að bjóða hérlendis upp á eitthvað sem virtist vera rautt ginseng. Fyrir á markaðnum var Rautt Eðal Ginseng frá Kóreu. Nýja "rauða ginsengið" var í nánast eins pakkningum og Rautt Eðal Ginseng og með samskonar lýsingu á eiginleikum ginsengsins. Neytendur rugluðust eðlilega á þessum vörum. En voru fljótir að átta sig að ekki var allt með felldu.
Neytendasamtökunum bárust fljótt kvartanir því vanir ginseng-neytendur töldu sig vera með svikna vöru í höndunum. NS brugðust skjótt við og hófu rannsókn á málinu. Niðurstaðan var ótvíræð: Þarna var um svikna vöru að ræða: Hvítt ginseng unnið úr rótarendum, ódýrustu afurð ginsengjurtarinnar. Í Kóreu er það gefið fátæklingum.
Svikna varan er ennþá seld hérlendis. Söluaðilinn, Eggert Kristjánsson hf. (Fæði fyrir alla), hefur að vísu orðið að breyta umbúðum í kjölfar málaferla. Um þetta allt má lesa á: http://www.heilsuhringurinn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=619:ginseng-hvernig-a-ad-greina-hismid-fra-kjarnanum-&catid=1:greinar-og-vietoel&Itemid=26
Þessi mynd sýnir ósvikið Rautt Eðal Ginseng.
17.1.2011 | 19:45
Kvikmyndarumsögn
- Titill: Little Fockers
- Flokkur: Gamanmynd
- Leikarar: Ben Stiller, Robert De Niro, Barbra Streisand, Dustin Hoffman, Owen Wilson...
- Einkunn: ** (af 5)
Þetta er þriðja myndin í myndaflokknum um hinn seinheppna Greg Focker (Ben Stiller) og brösuleg samskipti hans við tengdaföðurinn (Robert De Niro). Fyrsta myndin, Meet the Parents, var og er alveg ágæt sem léttvæg skemmtun. Aðra myndina, Meet the Fockers, hef ég ekki séð svo ég muni.
Söguþráðurinn í Little Fockers gengur út á að börn Gregs og konu hans (Teri Polo), tvíburar, eiga 5 ára afmæli. Amman og afinn í báðar ættir mæta í afmælið. Grínið gengur að mestu út á að Greg leggur sig í líma við að standa sig í augum tengdaföðurins. Sá er hinsvegar fullur efasemda um Greg. Grunar hann meðal annars um framhjáhald.
Eins og algengt er með farsa úir og grúir framvindan af pukri og misskilningi á misskilning ofan. Vandamálið er að brandararnir eru lúnir, margþvældir og fyrirsjáanlegir. Ég hló ekki að einum einasta brandara. En brosti að tvisvar eða þrisvar. Samt sat ég í kvikmyndasal í New York þar sem ekkert lát varð á smitandi hláturgusunum. Kaninn kunni vel að meta aulahúmorinn.
Stórleikarastóðið í myndinni tekur niður fyrir sig með þátttöku í þessari mynd. Það er reyndar í erfiðri stöðu. Eftir góðar viðtökur fyrstu myndarinnar var hópurinn eiginlega nauðabeygður til að halda áfram í framhaldsmyndunum. Annað hvort allir eða enginn.
Robert De Niro er ósannfærandi. Ben Stiller stendur sig betur. Eini leikarinn sem "geislar" er Owen Wilson.
Því miður get ég ekki mælt með Little Fockers. Ég mæli frekar með því að fólk leigi sér Meet the Parents. Að minnsta kosti til að byrja með.
Gaman væri að heyra frá einhverjum sem hefur séð miðmyndina.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)