Framhjáhald látinna

  Ţetta er snúiđ mál og ekki auđleyst.  Ţannig er ađ öldruđ kona,  nánar tiltekiđ hálf nírćđ,  uppgötvađi nýveriđ sér til skelfingar ađ látinn mađur hennar (eiginmađur frá unglingsárum ţeirra og barnsfađir) og látin systir hennar hvíla saman hliđ viđ hliđ í glćsilegum einskonar hjónagrafreit.  Ţarna er um mistök ađ rćđa hjá ţeim sem sáu um útförina.  Gamla konan,  Sandy,  er niđurbrotin út af ţessu.  Hún er afar kirkjurćkin og upptekin af trúmálum.  Samkvćmt hennar trúarsannfćringu má ekki hrófla viđ jarđneskum leifum ţessara ástvina hennar,  núna ţegar meira en ár er liđiđ frá útför systurinnar og ennţá lengra liđiđ frá útför eiginmannsins.  Ţađ sem verra er:  Samkvćmt sömu trúarsannfćringu Sandyar jafngildir ţađ framhjáhaldi ađ hjónaleysin,  eiginmađurinn og systirin,  skuli hvíla saman í gröf.  Og ţađ um alla eilífđ.  

  Á móti vegur ađ mágur Sandyar,  látinn eiginmađur systurinnar,  hvílir í nćstu gröf viđ hliđ konu sinnar.  Viđ hina hliđ hans bíđur pláss ćtlađ líki Sandyar.  Ţađ ţykir Sandy međ öllu óásćttanlegt af fyrrgreindum trúarástćđum.

  Forsaga ţessa snúna máls er sú ađ fyrir nokkrum árum keyptu Sandy og systir hennar sitthvorn hjónagrafreitinn hliđ viđ hliđ.  Eiginmenn ţeirra féllu frá međ stuttu millibili og allt gekk samkvćmt áćtlun.  Í ágúst 2009 dó systirin.  Hún var fyrir handvömm jörđuđ í gröfina hennar Sandyar. 

  Útfararstofan hefur bođist til ađ breyta um merkingu á legsteini systurinnar,  Sandy ađ kostnađarlausu.  Í stađ ţess ađ á legsteininum standi viđ hliđ nafns eiginmanns Sandyar "Ástkćr eiginkona" verđi textinn "Ástkćr mágkona". 

  Sandy ţykir sáttabođ útfararstofunnar móđgandi.  Sjálf hefur hún ekki komiđ auga á neina viđunandi lausn.  En ţangađ til henni dettur eitthvađ í hug hefur hún dregiđ útfararstofuna fyrir dómstól í New York og krefst 1700 milljóna ísl. kr.  í skađabćtur - til ađ létta sér lund eftir áfalliđ.  Nú vćri gott ef netverjum dettur í hug eitthvađ gott ráđ til ađ leysa hnútinn.


10.000 sinnum áhugaverđara en The Eagles - og 95% ódýrara!

 WACKEN2011 600x860

  Annađ kvöld (laugardagskvöld) fer fram hljómsveitakeppnin víđfrćga og vinsćla Wacken Metal Battle á Sódómu Reykjavík.  Sex íslenskar ţungarokkssveitir berjast um heiđurinn af ţví ađ komast út til Ţýskalands ađ spila á Wacken Open Air,  stćrstu árlegri ţungarokkshátíđ heims.  Hljómsveitirnar sem kjálst á Wacken Metal Battle í ár eru:

ANGIST - www.myspace.com/angisttheband (flott hjá ţeim ađ skarta íslensku nafni)
ATRUM - www.myspace.com/atrumiceland
GRUESOME GLORY - www.myspace.com/gruesomeglory
OPHIDIAN I - www.myspace.com/ophidiani
GONE POSTAL - www.myspace.com/gonepostalmetal
CARPE NOCTEM - www.myspace.com/carpenoctemiceland (ţeir syngja á íslensku.  Ţađ er til fyrirmyndar)

  Ađ auki koma fram ţrjár gestasveitir: Hljómsveitin SKÁLMÖLD (flottasta íslenska hljómsveitin.  Verđur eitt ađal númeriđ á Wacken í sumar) lokar kvöldinu; einnig spila WISTARIA, sigurvegararnir frá ţví í fyrra; og MOLDUN sem opna dagskrá kvöldsins.

  Ţrír erlendir dómarar og sex innlendir sjá um val á sigursveitinni:

- JONATHAN SELTZER frá Metal Hammer Magazine UK. Hann er ritstjóri "reviews and features" hluta blađsins og einnig ţess hluta sem kallast Subterranea.

- PIERRE SEIDEL frá Live Entertainment Award í Ţýskalandi.
LEA sér um ađ verđlauna framúrskarandi live viđburđi í Ţýskalandi af öllum stćrđum og gerđum. Wacken hátíđin fékk ţessi verđlaun 2008.

- JANNE LUNDQVIST frá Lunkan Music and Media í Svíţjóđ. Janne sér um Metal Battle keppnina ţar í landi og starfar einnig sem umbođsmađur.

- ARNAR EGGERT THORODDSEN frá Morgunblađinu
- ATLI FANNAR BJARKASON frá Fréttablađinu
- GUĐNÝ LÁRA THORARENSEN frá Eistnaflugi
- KRISTJÁN KRISTJÁNSSON frá Smekkleysu
- KRUMMI BJÖRGVINSSON úr Mínus
- SIGVALDI JÓNSSON frá Rás 2 / Dordingull.com


Miđaverđ er ađeins rćfileslegur 1000 kall.  Ţađ er heldur lćgra en 20 ţúsund kallinn sem kostar inn á gömlu ţreyttu kallana í The Eagles.


Miđasala: http://midi.is/tonleikar/1/6370/


Húsiđ opnar 19:45 - Moldun á sviđ 20:30 (stundvíslega)


Nánari upplýsingar veitir Ţorsteinn Kolbeinsson í síma 8234830.



Kallinn reddar ţessu - IV

  Um daginn birti ég nokkrar ljósmyndir af skemmtilegum reddingum kallsins sem bjargar hlutunum án ţess ađ vera međ óţarfa pjatt.  Ţćr vöktu kátínu.  Síđan hefur mađur gengiđ undir manns hönd í áskorunum til mín um ađ birta fleiri ljósmyndir af ţessu tagi.  Ekki stendur á mér.  Hér er gott dćmi um hvernig bjarga má stofuborđi frá ţví ađ brotna undan bóka- og blađabunka.  Kallinn teygđi sig bara í 4 niđursuđudósir og sitthvert eintakiđ af bók og tímariti:  Borđinu var bjargađ. 

kallinn reddar 19

  Hver kannast ekki viđ ţađ vandamál ađ útvarpsloftnetiđ á bílnum sé brotiđ og jafnvel ţjófstoliđ af steluţjófum?  Viđbrögđ flestra bíleigenda viđ ţeim tíđindum er ađ bruna á nćsta verkstćđi og fá nýtt loftnet á bílinn.  Kallinn sem reddar hlutunum eltist ekki viđ slíkt.  Ţess í stađ fiskar hann skrúfjárn upp úr rassvasanum og stingur í loftnetsgatiđ.  Og kántrýiđ í útvarpinu hljómar betur en nokkurn tíma áđur. 

kallinn reddar Á

  Ţađ er alltaf nóg ađ gera hjá körfubílunum.  Öll ţessi skilti efst á byggingum hinna ýmsu fyrirtćkja eru stöđugt ađ bila.  En körfubílar eru óţarfur lúxus ţegar kallinn sem reddar hlutunum er annars vegar.  Hann grípur vinnufélaga sinn,  sveiflar honum fram af ţakinu og málinu er kippt í lag á "nó tćm".

kallinn reddar A

  Ţađ er alltaf pirrandi ţegar bílrúđan farţegamegin brotnar í smátt.  Vandamáliđ er ţó ekki stćrra en svo ađ svartur ruslapoki og málningarteip geta gert sama gagn og rúđan.  Eđa ţví sem nćst.

 kallinn reddar B

  Snemma beygist krókurinn.  Sumir eru fćddir "kallinn sem reddar hlutunum".  Löngu fyrir eins árs afmćliđ má slíkur einstaklingur ekki heyra minnst á ađ eitthvađ ólag sé á mótorhjóli heimilisins án ţess ađ vinda sér umsvifalaust í ađ gera viđ tćkiđ.

krakkinn reddar


Hver er munurinn?

  Í fréttum dagblađa og ljósvakamiđla hefur margsinnis veriđ tuggin frétt af áframhaldandi gćsluvarđhaldi yfir manni sem grunađur er um ađ taka viđ og stunda veglega og huggulega verslun međ  ţjófstolna  muni.  Orđiđ skýrir sig ljómandi vel sjálft.  Steluţjófar hafa veriđ ađ verki.  Ţeir hafa stoliđ hlutunum. 

  Hverjir ađrir en ţjófar stela hlutum - fyrst ađ tekiđ er fram ađ um ţjófstolna hluti sé ađ rćđa en ekki bara stolna?  Ţađ er brýnt ađ fá upplýsingar um ţađ svo hćgt sé ađ vara sig á ţví fólki.  Ćtli ţađ séu einhverjir međ ţýfi faliđ í útlendum bönkum?  Og hvađa hlutir eru stolnir af öđrum en ţjófum?  Peningar í bönkum?   

.


mbl.is Talinn versla međ ţjófstolna muni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bjargiđ lífi ykkar og annarra á einfaldan og ódýran hátt

sítrónur og lime

  Hvers vegna fer fólk í rándýrar lyfjameđferđir međ ömurlegum aukaverkunum af öllu tagi ţegar svo auđvelt er ađ verjast allskonar sjúkdómum,  ţar á međal krabbameini,  á ódýran og einfaldan hátt?  Svariđ er einfalt:  Ţađ eru lyfjafyrirtćkin sem standa fyrir rannsóknum á virkni hinna ýmsu lyfja og grćđa trilljónir ţegar lyfin eru keypt af heilbrigđisstofnunum.  Lyfjafyrirtćkin grćđa ekki neitt ef fólk fćr upplýsingar á borđ viđ eftirfarandi:

  - Sítrusávextir (sítróna, lime) eru 10.000 sinnum kröftugri í ađ hćgja á og stöđva vöxt krabbameinsfruma en ţau krabbameinslyf sem mest eru notuđ.

  - Sítrusávextir ráđast ađeins gegn illkynja frumum.  Ekki heilbrigđum.  Ţess vegna eru engar aukaverkanir.

  - Sítrusávextir vinna kröftuglega gegn óćskilegum sveppum,  bakteríum,  sníkjudýrum og jafnvel ormum.  

  - Sítrusávextir jafna blóđţrýsting,  draga úr ţunglyndi,  streitu og taugasjúkdómum. 

  - Safa úr sítrónum og lime má blanda út í allskonar ađra ávaxta- eđa grćnmetissafa og sterka áfenga drykki,  svo sem landa.  Ţađ er einnig ágćtt ađ setja sítrónusneiđ út í ískalt kranavatn. 

  - Ţađ er upplagt ađ úđa sítrónusafa yfir sjávarrétti.  Og reyndar rík ástćđa til vegna ţess ađ safinn kemur í veg fyrir matareitrun.  Skelfiskur og rćkjur eru viđkvćm vara og vandgeymd.  Margur hefur fengiđ í magann eftir ađ hafa snćtt blandađa sjávarrétti.          

  - Sítrónur og lime bragđbćta ýmsar kökur og ýmsa rétti.  Til ađ mynda er gott ađ úđa sítrónusafa yfir kótelettur og kartöflusalat.

  - Góđur vani er ađ vera alltaf međ sítrónu og lime í sitthvorum buxnavasanum. 

  Uppistöđuna af ţessum upplýsingum hef ég frá Institute of Health Sciences í Baltimore.  Ţar á bć segjast menn geta vitnađ í 20 rannsóknir máli sínu til stuđnings.  Og fara létt međ ţađ.  Ég hvet ykkur til ađ leita frekari upplýsinga um ţetta á netinu og bera síđan undir lćkna.  Kannski geta ţessar upplýsingar bjargađ lífi.


Bestu plötur tíunda áratugarins

  Tíminn hefur ţann kost ađ hann sorterar hćgt og bítandi ofmetnar plötur frá ţeim bitastćđari.  Ég á ekki viđ dagblađiđ Tímann heldur ţennan međ tönnina sem plötur ţurfa ađ standast.  Sumar plötur verđa svo hallćrislegar ţegar frá líđur ađ ţćr standast engan veginn tímans tönn.
.
  Um síđustu helgi fékk bandaríska poppblađiđ Rolling Stone lesendur sína til ađ velja bestu plötur tíunda áratugarins.  Ţađ var vel til fundiđ.  Ţessar plötur röđuđust í efstu sćtin (útgáfuáriđ er innan sviga):
.
1   NirvanaNevermind  (1991)
.
.
2   RadioheadOK Computer  (1997)
.
.
.
3   Pearl JamTen  (1991)  
.
4   U2Achtung Baby (1991)
.
.
5   Oasis (What´s The Story) Morning Glory?  (1995)
.
.
6   The Smashing PumpkinsSiamese Dream (1993)
.
.
7   MetallicaMetallica (Svarta albúmiđ) (1991)
.
.
8   Jeff BuckleyGrace (1994) 
.
 
.
9   The Smashing PumpkinsMellon Collie & The Infinite Sadness (1995) 
.
.
10  Guns N´ RosesUse Your Illusion 1 & II (1991)
.
.
  Fátt kemur ţarna virkilega á óvart.  Nema kannski sterk stađa Oasis.  Hljómsveitin hefur ađ sönnu veriđ ofurvinsćl í Bretlandi og náđi inn á bandaríska markađinn.  En hefur aldrei tröllriđiđ efstu sćtum bandarískra vinsćldalista.  Oasis er önnur tveggja enskra hljómsveita á listanum.  Hin er Radiohead.  U2 er írsk en ađrir flytjendur eru bandarískir.  Kannski ekki skrýtiđ.  Rolling Stone er söluhćsta bandaríska poppblađiđ.  Ţađ vćri gaman ađ sjá plötu međ Björk á svona lista.  Debut  kom út 1993.  Ćtli hafi ekki komiđ út nein virkilega góđ plata í Frakklandi á tíunda áratugnum?
.
  Athyglisvert er ađ 5 plötur á listanum komu út 1991 og sitthver frá árunum ´93,  ´94 og ´97.  Tvćr komu út 1995.  Engin ´92,  ´96,  ´98 og ´99.  Af ţessu má ráđa ađ eldri plöturnar séu ađ festa sig betur í sessi á međan yngri plötur eru í lausara lofti.  
.
  Ég er nokkuđ sáttur viđ ţennan lista.  Ţannig lagađ.  Hann kemur ekki eins og ţruma úr heiđskýru lofti.  Efstu 4 sćtin eru afar fyrirsjáanleg.  Fáir hefđu ađ óreyndu veđjađ á ađ Smashing Pumpkins yrđu međ 2 plötur á listanum.  Eđa hvađ?  Ţađ er merkilegt afrek. 
  Ég hef löngum látiđ Jeff Buckley pirra mig.  Ţegar ég var ađ leita ađ einhverju öđru lagi af plötunni en hiđ ofur leiđinlega  Hallelúja!  uppgötvađi ég ţessa dúndurfínu kráku kappans á  Kick Out the Jams  (MC5).  Ţetta er löngu áđur en Rage Against the Machine krákuđu lagiđ.  Til ađ fyrirbyggja misskilning ţá skal tekiđ fram ađ ég hef ekkert á móti ţví ađ músíkantar "hallelúji"  út og suđur. 
Hvađ finnst ţér?

Ölţyrstur ţorskur

ţorskur

  "Ég sá ađ ţađ var eitthvađ óvenjulegt í maga ţorsksins.  Mér datt helst í hug ađ ţađ vćri krabbi,"  segir 12 ára hnátan sem var á línuveiđum ásamt afa sínum ţegar ţorskurinn umrćddi hljóp á snćriđ hjá henni.  Er stelpan gerđi ađ fiskinum var hvorki meira né minna en 330 ml Slotts Gold bjórdós í maga ţorsksins.  Ţorskurinn hafđi rifiđ gat á dósina.  Til ađ tryggja ađ ekkert af 5,9% sterku ölinu fćri til spillist kokgleypti hann allt heila klabbiđ.  Međ ţessum afleiđingum:  Ađ hann gćtti ekki varúđar sem skyldi og beit á öngulinn hjá Söru Fönis Asparhaug.  Frá ţessu er greint í norskum fjölmiđlum. 

  Af ţessu má draga lćrdóm.  Ađallega fyrir ţorskinn sem getur látiđ sér ţetta ađ kenningu verđa.  Hann hefur nú veriđ snćddur djúpsteiktur međ frönskum kartöflum.  Í tilefni dagsins skolađi afinn honum niđur međ Slotts Gold öli.

  Ljósmyndin er ekki af ölţyrsta ţorskinum.


Bráđskemmtileg spurningakeppni

  Fyrir nokkrum árum slćddist ég inn á skemmtistađ í miđborginni ásamt Sigga Lee Lewis.  Erindiđ var ađ spreyta okkur í poppspurningakeppni,  svokallađri "poppquest".  Ég man ekki nafn skemmtistađarins.  Hann er ekki lengur starfrćktur en var rekinn af Ingu Sóley,  ljósmyndara.  Spurningahöfundur var Valgeir Guđjónsson,  tónlistarmađur.  Leikar fóru ţannig ađ viđ Siggi enduđum í jafntefli viđ einhverja ađra.  Ţá var fariđ í bráđabana.  Viđ Siggi enduđum í 2. sćti.  Ţađ var ekkert nema gaman.  Sigurliđiđ var hljómsveit sem ég man ekki lengur hver var.

  Ég hef ekki aftur tekiđ ţátt í svona spurningaleik.  Fyrr en í kvöld.  Hreiđar og Danni úr Gyllinćđ plötuđu mig međ sér í rokkquest á Dillon.  Ég veit ekki hver spurningahöfundur var.  Hann er kallađur Addi (heyrđist mér) og ku vera trúbador.  Spurningarnar voru flestar leiddar út frá flutningi Adda á hinum ýmsu dćgurlögum.  Ţađ er líflegt og skemmtilegt fyrirkomulag.  Spurningarnar voru fjölbreyttar,  bćđi varđandi tímatal og músíkstíla.  Ţćr voru 15 talsins.  Hver spurning var í nokkrum liđum og gat gefiđ 2 og allt upp í 4 stig.      

  Ţegar stig voru saman talin reyndist sigurliđiđ vera međ 37 stig.  Mitt liđ var međ 36 stig.  Liđiđ í 3ja sćti náđi 35 stigum. 

  Í ljós kom ađ sigurliđiđ var skipađ valinkunnum tónlistarmönnum:  Adda söngvara og gítarleikara hinna frábćru Sólstafa;  Hróa bassaleikara Atomstöđvarinnar og Páls Rósinkrans;  svo og Bergi bassaleikara - ađ ég held - Buffs og Dúndurfrétta. 

  Ţetta var hin besta skemmtun og hellingur af bjór í verđlaun. 


Plötuumsögn

hamferd_500

 - Titill:  Vilst er síđsta fet
 - Flytjandi:  Hljómsveitin Hamferđ
 - Útgefandi:  Tutl (framboriđ Tútl)
 - Einkunn: **** (af 5)
  Hamferđ sigrađi í fćreysku "Músíktilraununum" Sementi í fyrra.  Hún var vel ađ sigrinum komin.  Fyrsta og eina dúm-metal hljómsveitin í Fćreyjum.  Síđan hefur mikiđ vatn runniđ til sjávar og Hamferđ eflst til muna.  Komin međ nýjan og öflugan söngvara,  Jón Hansen.  Viđ bassaleik hefur tekiđ Tóra,  stjúpdóttir Kára Sverrissonar.  Kári er hátt skrifađur söngvari og tónlistarmađur í Fćreyjum.  Einhverjir muna eftir honum á hljómleikum í Austurbć 2002.  Hann hefur jafnframt skipst á viđ Eivöru ađ syngja međ djasshljómsveit Kristians Blaks,  Yggdrasil,  og tilraunahljómsveit bassaleikarans Jens L. Thompsen,  Orku. 
  Međ núverandi liđsskipan sendi Hamferđ frá sér í fyrra fjögurra laga plötuna  Vilst er síđsta fet.  Nafn plötunnar getur á íslensku útlagst (Átta)villt í síđasta skrefi.
  Yfirbragđ plötunnar er mýkra og mildara en lifandi flutningur Hamferđar á sviđi.  Hljómsveitin mun spila á Íslandi í sumar.  Of snemmt er ađ tiltaka nákvćmlega hvar og hvenćr.  Frá ţví mun ég skýra um leiđ og ţađ hefur veriđ neglt niđur.  Ţó er óhćtt ađ upplýsa ađ hljómsveitin verđur í samfloti međ Skálmöld,  einni flottustu íslensku hljómsveitinni í dag.  Ég mćli eindregiđ međ plötu Skálmaldar,  Baldri.  Ég mćli einnig međ  Vilst er síđsta fet.  Lögin eru söngrćn (melódísk) og ljúf.  Ađgengileg og dáldiđ poppuđ.  Hljóđfćraleikur er ţéttur,  yfirvegađur og blessunarlega laus viđ alla stćla (engin "hetjugítarsóló" eđa slíkar klisjur).  Söngvarinn hefur breitt raddsviđ og er jafnvígur á ađ rymja og syngja settlegar. 
  Ţađ gefur plötunni heillandi blć ađ allir söngtextar eru á ylhýrri fćreysku.
  Enn sem komiđ er fćst platan ekki í íslenskum plötubúđum.  Ţangađ til úr ţví verđur bćtt má panta hana á www.tutl.com  (http://www.tutl.com/index.php?id=16&tx_ttnews[tt_news]=13&cHash=cae6597bfcfb9b9fe226042251478b2f) og sennilega fljótlega hala henni niđur á www.tonlist.is
  Hér er sýnishorn af framlagi Hamferđar á Sementi í fyrra.  Núna er hljómsveitin tvöfalt betri.

Dagur elskenda og konudagurinn

  Í Fréttatímanum segir svo:  "Raunar fylgir konudagurinn í kjölfar svokallađs Valentínusardags,  eđa dags elskenda,  sem var á mánudaginn síđasta,  14.  febrúar.  Sá mun vera innfluttur frá Bandaríkjunum af kunnri útvarpskonu."

  Ţetta er útbreiddur misskilningur.  Mađur gengur undir manns hönd á hverju ári til ađ leiđrétta ţetta.  Fólk gleymir leiđréttingunum jafn óđum og heldur áfram ađ hampa rangfćrslunum.

dagur elskenda

  Rétt er ađ konudagurinn fylgir í kjölfar dags elskenda.  Hinsvegar er dagur elskenda hvorki bandarískur ađ uppruna né innfluttur af kunnri útvarpskonu.  Dagur elskenda er kominn úr heiđni.  Dagurinn markađi upphaf vors og frjósemishátíđar í Róm.  Hátíđin var helguđ frjósemisguđinum Lupercalia (Lupercus) og dagurinn helgađur guđi landbúnađar, Faunus. 

  Á kvöldi elskenda settu ólofađar dömur miđa međ nafni sínu á í stóran leirpott.  Drengir drógu miđa og völdu ţannig fylgdardömu á hátíđina.  Á ţessum tíma voru öll ástarvellulög dćgurlagaheimsins ósungin.  Leikurinn međ miđana gegndi hlutverki einskonar hjónabandsmiđlunar.  Enginn gekk samt til leiksins skuldbundinn af reglum hans.  Ţrátt fyrir ţađ urđu flest pörin hjón.    

  Vinsćldir dags elskenda leiddu til ţess ađ kristna kirkjan ágirntist hann,  eins og ađra heiđna hátíđisdaga (jól,  páska o.s.frv.).  Kristna kirkjan tók daginn inn í sitt dagatal og kenndi viđ Valentínus (3 slíka ţegar mest lét).  Ţess ber ađ geta ađ 1969 var dagurinn fjarlćgđur úr dagatali kaţólsku kirkjunnar.  Sögurnar af ţessum Valentínusum voru skilgreindar sem skröksögur.  Víđa um heim andar köldu ađ degi elskenda.  Hann er talinn stuđla ađ lauslćti og kynlífi fyrir hjónaband.

  Til Bandaríkjanna barst dagur elskenda sennilega frá Bretlandi og / eđa Frakklandi.  Eđa kannski frá Hollandi.  Dagurinn hefur notiđ vinsćlda í ţessum löndum. 

  Íslenskar konur kynntust yrst degi elskenda af samskiptum viđ bandaríska hermenn.  Fyrir bragđiđ héldu ţćr ađ um sérstakan bandarískan hátíđisdag vćri ađ rćđa.  Vissulega gerir Kaninn mikiđ úr deginum.  Jafnvel í fyrstu bekkjum grunnskóla í Bandaríkjunum ţekkist ađ nemendur skiptist á Valentínusarkortum og fleiru slíku. 

DAGUR ELSKENDA a

  Eini ekta (orginal) bandaríski hátíđisdagurinn sem skotiđ hefur rótum hérlendis er Ţakkargjörđarhátíđin.  Hún spannar reyndar rösklega heila helgi.  Hún er ađ uppruna ekki alfariđ bundin viđ Bandaríkin heldur einnig Kanada.  Ţar er hún ađ vísu haldin nokkrum dögum fyrr.   

  Íslenskir blómasalar sáu snemma viđskiptatćkifćri í degi elskenda.  Á sjötta áratugnum (og kannski fyrr) buđu ţeir upp á Valentínusarblómvendi.  Síđan hefur ţessi dagur sótt í sig veđriđ hérlendis.  Innspýting í ţá ţróun kom frá útvarpskonunni Valdísi Gunnarsdóttur.  Hún rak árum saman áróđur fyrir honum,  ađ mig minnir á Bylgjunni (og / eđa á rás 2).  En hún innleiddi hann ekki hérlendis.  Hann var ţegar kominn til sögunnar og naut vaxandi vinsćlda.      


Ćđislegur lögreglubíll

  Ítalska lögreglan var ađ springa úr spenningi eftir ađ hún fékk heimild til ađ kaupa og taka í notkun glćsilegustu bifreiđ sem sést hefur í bílaflota ítölsku lögreglunnar frá upphafi vega.  Ţađ var stór dagur ţegar bíllinn var afhjúpađur viđ hátíđlega athöfn.  

ítalski löggub A

  Hann var ljósmyndađur í bak og fyrir undir hávćrum hrifningarandköfum lögregluţjónanna.

ítalski löggub Bítalski löggub Cítalski löggub Dítalski löggub Eítalski löggub Fítalski löggub G

  Ćđislegur lögreglubíll.  Međ öllum búnađi kostađi hann 46 milljónir ísl. kr.  Allir vildu fá ađ vera fyrstir til ađ keyra bílinn á sinni vakt.  Máliđ var leyst međ ţví ađ dregiđ var um ţađ.  En ekki reyndist öllum gefiđ ađ ráđa viđ lang kraftmesta lögreglubílinn.  Bíllinn entist ekki fram ađ morgunkaffinu.  Vegna ţess hvađ húddiđ er lágt og sporöskjulaga tókst ađ smeygja bílnum - á ofsahrađa - undir jeppa.

ítalski löggub Iítalski löggub J   


Jónsi á lista hjá Spin

  Ţađ er alltaf eitthvađ rosalega gaman viđ ađ sjá íslenska tónlistarmenn skora mark í útlöndum.  Rétt eins og ţađ er gaman ađ sjá íslenskar plötur í útlendum plötubúđum.  Jafnvel ţó ţađ sé ađ verđa hversdagsleg sjón ađ sjá plötur Bjarkar,  Sigur Rósar,  Emilíönu Torríni og Jónsa í útlendu plötubúđunum.  Extra gaman var ađ sjá plötu unglingsstelpnanna Pascal Pinon í stćrstu plötubúđ New York í síđasta mánuđi og lesa lofsamlegan dóm um ţá plötu í bandaríska rokkblađinu Under the Radar.  Svo ekki sé minnst á plötur I Adapt í ţýskum og pólskum plötubúđum.

  Nćst söluhćsta poppblađ Bandaríkjanna (á eftir Rolling Stone) er Spin.  Í nýjasta heftinu upplýsa 25 poppstjörnur hverjar eru ţeirra uppáhaldsplötur og uppáhaldslög frá síđasta ári.  Tilnefningar ţeirra eru rökstuddar.  Ţar á međal tilnefnir Haylay Williams í Paramore lagiđ  Month of May  međ Arcade Fire;  Ezra Koenig ađ uppáhaldsalagiđ sé  Zebra  međ Beach House;  Wayne Cone í Flaming Lips ađ uppáhalds lag sitt sé  Born Free  međ M.I.A.

  Randy Randall í No Age tilnefnir plötuna  Le Noise  međ Neil Young. 

  Og Michael Angelakos í Passion Pit tilnefnir plötuna  Go  međ Jónsa.  Rökin eru ţau ađ hann hafđi lesiđ um ađ platan ćtti ađ vera órafmögnuđ.  Hún hafi hinsvegar ţróast í ađ verđa hamingjulega himnesk.  Plötur Sigur Rósar séu myrkar og ţunglyndislegar en auđheyrt sé ađ Jónsi hafi skemmt sér viđ ađ gera  Go.


Stórfurđulegt dómsmál

  Fyrir nokkrum dögum féll dómur í afar einkennilegu máli.  Ţetta er vandrćđamál vegna ţess hvađ afbrotiđ var framandi og án fordćma.  Ţannig er ađ í Fćreyjum sinnađist tveimur mönnum á dansleik.  Til ađ byrja međ tókust mennirnir á í orđaskaki.  Ţađ leiddi til ţess ađ hitna tók í kolunum.  Skyndilega og óvćnt og upp úr ţurru slćmdi annar mannanna hendi í andlit hins.  Öllum til furđu.  Ekki varđ undrunin minni ţegar árásinni var fylgt eftir međ höggi á brjóstkassa.
  Sá sem fyrir árásinni varđ vissi eđlilega ekki hvađan á sig stóđ veđriđ.  Hann hafđi aldrei kynnst annarri eins framkomu.  Frekar en vitni ađ ţessu furđulega uppátćki.  Lögreglan í Fćreyjum gerđi sér lítiđ fyrir og kćrđi uppátćkiđ.  Í óţökk fórnarlambsins sem vildi enga eftirmála.  Honum ţótti ţetta allt eitthvađ svo kjánalegt og súrrealískt.
.
  Dómaranum var vandi á höndum.  Hann varđ ađ leita ráđa í dómum í útlöndum til ađ finna út hvort svona tilfelli hefđi áđur komiđ upp einhversstađar í heiminum.  Svo reyndist vera.  Í Danmörku fannst dćmi um slíkt.
  Dómarinn tók snöfurlega á ţessu.  Til ađ fyrirbyggja ađ ţetta komi aftur upp í Fćreyjum dćmdi hann árásarmanninn í 30 daga skilorđsbundiđ fangelsi.  Haldi árásarmađurinn skilorđ í 2 ár fellur dómurinn niđur.  Eftir stendur skömm árásarmannsins og allra hans ćttingja fyrir ađ mađurinn hafi ekki kunnađ mannasiđi og sýnt af sér hegđun lćgra settra dýrategunda sem beita ađra af sömu dýrategund ofbeldi.  Ţađ er skammarlegt og á ekki ađ ţekkjast í mannlegum samskiptum.  Vonandi gerist svona lagađ ekki aftur. 

Hvađ er ţetta međ Íslendinga í Noregi?

  Ég hef miklar,  stórar og langar áhyggjur af Íslendingum í Noregi.  Ţar er eitt fjölmennasta samfélag Íslendinga utan Vestmannaeyja.  Nú í ţorramánuđi berast fréttir af ţví hingađ upp á meginland Íslands ađ Íslendingar í Noregi blóti Ţorra viđ hátíđlega athöfn undir spilaríi hljómsveitarinnar Skítamórals. 

  Látum vera ef Íslendingar í Noregi vćru ađ álpast til ţess ađ lenda í slagtogi međ Skítamórali vegna ţekkingarleysis á íslensku músíkflórunnar.  Allir geta lent í ţví ađ ţekkingarleysi verđi ţeim fjötur um fót.  Ég lenti til ađ mynda eitt sinn í ţví í Skotlandi ađ kaupa blóđmörskepp í pylsubrauđi ţegar ég hélt mig vera ađ kaupa matmikla og digra pylsu úr pylsuvagni.

  Samkvćmt fréttunum af ţorrablóti Íslendinga í Noregi er ţetta í annađ skipti sem ţeir fá Skítamóral međ í gleđskapinn.  Hvađ er í gangi ţarna úti?  Drekka Íslendingar frá sér ráđ og rćnu á ţorrablótum?  Eru ţeir sýktir af slćmri eyrnabólgu?  Hefur norsk músík fariđ svona illa međ ţá?

  Ţetta er alvarlegt.  Hvađ er til ráđa?  Ţetta er bráđatilfelli.     

  

  


Dýr og ljósmyndavélar - krúttlegar myndir

  Í augum dýra er eitthvađ rosalega forvitnilegt og dularfullt viđ ljósmyndavélar.  Dýrin sjá fólk bera ţetta undarlega tćki ítrekađ upp ađ andlitinu.  Ţar glampar á tćkiđ.  Ţađ gerir tćkiđ ennţá meira spennandi.  Dýr sem öllu jafna halda sig í hćfilegri fjarlćgđ frá fólki láta forvitnina bera tortryggni og hrćđslu i garđ fólks ofurliđi:

myndavel_fugl.jpg 

 

 

 

 

 

myndavél & íkorni

  Hundurinn kemur ţví ekki viđ ađ skođa ljósmyndavélina.  Hann ţarf ađ einbeita sér ađ ţví ađ láta pylsuna halda jafnvćgi á nefinu. 

 myndavél & hundur


Ljósmyndir af Ópi

  Um síđustu helgi gerđi ég góđ skil frábćrum tónleikum Óp-hópsins í Salnum í Kópavogi.  Ţađ má međal annars lesa međ ţví ađ smella á ţessa slóđ:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1141979/#comments .  Eđa fletta smávegis niđur ţessa síđu.  Ţarna vakti ég bjartar vonir um ađ á ţessum vettvangi yrđu birtar ljósmyndir af fjörinu.  Ţađ er ekki venja ađ valda vonbrigđum ţegar svona hlutir eru til umrćđu.  Hér birtast myndirnar,  teknar af verđlaunaljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni:

óp Eóp Dóp Cóp Fóp Aóp Bóp


Olli skelfingu

  Fćreyingar fylgdust spenntir međ sjónvarpsútsendingu á forkeppninni hérlendis í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöđva í gćrkvöldi.  Enda hinn vinsćli fćreyski söngvari og söngvahöfundur,  Jógvan Hansen,  í fremstu víglínu.  Gallinn var sá ađ ţađ hafđi alveg gleymst ađ vara Fćreyinga viđ laginu  Eldgosi.  Á fésbókar- og bloggsíđum hefur í dag mátt sjá fjölda einhćfra ljósmynda af viđbrögđum skelfingu lostinna fćreyskra sjónvarpsáhorfenda ţegar flutningurinn á  Eldgosi  hófst:

horft á Eldgos Hhorft á Eldgos Dhorft á Eldgos Ehorft á Eldgos Ahorft á Eldgos Ohorft á Eldgos Jhorft á Eldgos K 

  Sumir leituđu skjóls undir bók eđa á bakviđ húsgögn.

horft á Eldgos M

  Verst fór ţetta međ blessuđ börnin.  Ţađ fórst fyrir ađ setja aldurstakmörk á sýninguna.  Börnin urđu miđur sín og áttu erfitt međ svefn í nótt.  Voru tryllt af myrkfćlni.  Ţegar ţeim loks kom dúr á auga undir morgun tóku martrađir viđ. 

horft á Eldgoshorft á Eldgos Ihorft á Eldgos Lhorft á Eldgos N

   Í dag ţjást margir af slćmum eyrnaverk,  sem hefur varađ alveg frá fyrstu tónum lagsins.  Ţeir hafa ekki tekiđ hendur frá eyrum síđan.

horft á Eldgos P

  Á elliheimilum hefur veriđ reynt á slá á viđvarandi hrćđslu međ kvíđastillandi lyfjum.  Án árangurs.

horft á Eldgos R

   Einn hefur vakiđ athygli og ađdáun fyrir ađ láta sér hvergi bregđa.  Ţađ er Hansi heyrnalausi.  Sumir rekja stillingu hans til rauđvínskúta sem hann gerđi góđ skil fyrir og eftir útsendingu Söngvakeppninnar.   

horft á Eldgos gamall mađuir

  Um viđbrögđ viđ sigurlaginu fara fćrri sögum.  Ţađ er eins og athygli á ţví hafi fariđ framhjá fólki.  Sjálfur held ég ađ ég hafi ekki ennţá heyrt ţađ.  En nćsta víst er ađ ţađ er hiđ vćnsta lag. 


mbl.is „Aftur heim“ sigrađi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sement - Hamferđ

   Um helgina fóru fram í Fćreyjum ţađ sem viđ getum kallađ fćreyskar "Músíktilraunir".  Hliđstćđa viđ íslensku "Músíktilraunir".  Ţessar fćreysku kallast Sement.  Ţćr eru arftaki Prix Föroyar.  Prix Föroyar var haldin á 2ja ára fresti.  Allar fćreyskar hljómsveitir voru gjaldgengar.  Rótgrónar vinsćlar fćreyskar hljómsveitir höfđu ţar forskot á nýliđa.  Ţetta fyrirkomulag olli stöđugum deilum ţrátt fyrir ađ til ađ mynda - ţá nýja hljómsveitin - Clickhaze hafi rúllađ Prix Föroyar upp 2001. 

  Nú hefur fyrirkomulagi veriđ breytt.  Sement er árleg hljómsveitakeppni međ sömu skilyrđum og íslensku Músíktilraunir:  Gjaldgengnar eru ţćr einar hljómsveitir sem ekki hafa sent frá sér plötu.  Ţetta gerir dćmiđ ađ mörgu leyti sanngjarnara og meira spennandi.  Í fyrra sigrađi dúm-metal sveitin Hamferđ.  Frábćr hljómsveit.  Hún var gestahljómsveit á Sementi núna um helgina.  Ţađ var meiriháttar gaman ađ sjá og heyra ţá hljómsveit á sviđi.  Ég var búinn ađ heyra margt um Hamferđ og fylgjast međ henni á myspace.  Töluverđ breyting hefur orđiđ á Hamferđ frá ţví ađ hún sigrađi í fyrra. Til ađ mynda er kominn til leiks meiriháttar góđur og ţróttmikill söngvari,  Jón Hansen,  og bassaleikarinn Tinna Tórudóttir.  Hún er stjúpdóttir söngvarans Kára Sverrissonar.  Margir Íslendingar muna eftir Kára á hljómleikum í Austurbć 2002.  Hann hefur sömuleiđis skipst á sönghlutverki viđ Eivöru í djasshljómsveit Kristians Blaks,  Yggdrasil (sem margoft hefur spilađ á Íslandi) og framsćknu tilraunahljómsveitinni Orku (hélt hljómleika međ Eivöru í Norrćna húsinu í fyrra). 
.
  Hamferđ sendi frá sér dúndurgóđa Ep-plötu (4ra laga smáskífu) í fyrra,  Vilst er síđsta fet.  Ţađ leyndi sér ekki á Sementi um helgina ađ Hamferđ á harđsnúinn hóp ađdáenda.  Fyrir framan sviđiđ veifađi hópurinn ţungarokkstákni (Brúskur,  fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, átti til ađ veifa ţví áđur en hann fattađi ađ ţađ er líka kallađ djöflatákn):  Krepptum hnefa međ vísifingri og litla putta á lofti.  Jafnframt stunduđu síđhćrđir ađdáendur flösuţeyting í takt viđ músíkana.  Meira um Hamferđ síđar.  Miklu meira.  Ţessi hljómsveit mun sćkja Ísland heim á árinu.  Of snemmt er ađ skýra nánar frá ţví.  Eitt af mörgu flottu viđ Hamferđ er ađ allir söngtextar eru á fćreysku.
.
  Sigurvegarar Sements í ár var dúettinn Guđrún og Bartal.  Hann spilar á rafgítar.  Hún syngur og spilar einfalda bassalínu á pínulítiđ hljómborđ.  Ljúft dćmi.
 .
hamferđ

Ţess vegna er saksóknari sérstakur

ólafur ţór hauksson

   Margir hafa velt ţví fyrir sér hvers vegna saksóknarinn Ólafur Ţór Hauksson sé jafnan kallađur sérstakur ţegar nafn hans ber á góma.  Í blöđum og útvarpi er hann iđulega kynntur til sögunnar sem sérstakur saksóknari.  Ţetta hefur stundum veriđ útskýrt međ getgátu um ađ ađrir saksóknarar séu ekkert "spes".  Jafnvel hálfgerđir aular.

 . Ţarna er um misskilning ađ rćđa.  Ástćđan fyrir ţví ađ ţeir sem umgangast Ólaf dags daglega kalla hann sérstakan er sú ađ hann víkur aldrei framhjá hindrunum.  Sama hvort ţćr eru grindverk,  auglýsingatrönur,  reiđhjól,  bílar eđa annađ sem á vegi hans verđur:  Hann skríđur undir ţessar hindranir,  klifrar yfir ţćr eđa tređur sér lipurlega í gegnum ţćr.  Nágrönnum og öđrum til undrunar og kátínu.  Ekki síst ţeim sem vinna nálćgt skrifstofu saksóknarans. Ţađ eru til sögur af honum ađ klífa ţverhnípta veggi eins og fjallageit. 
.
 olispes

Glćsilegir tónleikar Óp-hópsins

o-h antoniahevesi2o-h bylgja-profile2o-h Bragi-minnio-h Erla2o-h horn_profile2o-h Johanna-profo-h Magnus-minnio-h Rosalind_passi2

   Ekki brást hún mér,  spádómsgáfan,  í gćr fremur en fyrri daginn.. Alveg nákvćmlega eins og ég hafđi spáđ var gífurlegt fjör í Salnum í Kópavogi í gćr (Óđinsdag).  Óp-hópurinn var ţar međ tónleika sem tókust glćsilega í alla stađi.  Ţarna mátti heyra á einu bretti í öllum bestu íslensku söngvurum framtíđarinnar:  Braga Jónssyni,  Bylgju Dís Gunnarsdóttur,  Erlu Björgu Káradóttur,  Hörn Hrafnsdóttur,  Magnúsi Guđmundssyni (ekki má rugla honum saman viđ nafna hans kenndum viđ Ţey.  Sem er líka frábćr) og Rósalindi Gísladóttur.  Jóhanna Héđinsdóttir er einnig í Óp-hópnum en ég varđ ekki var viđ hana á sviđinu.  Kannski var hún bara úti í sal.  Eđa baksviđs.  

  Um undirleik sá píanóleikarinn Antonía Hevesi.  
.
  Allt var ţetta hiđ tignarlegasta.  Söngvararnir brugđu á leikrćn tilţrif og skiptu oft um föt.  Ţarna sáust margir flottir og glitrandi kjólar.  Miklu smartari en ţeir sem prestar klćđast á sunnudögum og síđkvöldum og hvenćr sem ţeir vilja vera flottir í kjólum.  Antonía var eina manneskjan á sviđinu sem hafđi ekki fataskipti tónleikana út í gegn.  Enda bundin viđ stöđugt píanóspil og óhćgt um vik ađ hafa fataskipti undir ţeim kringumstćđum.  Hún hefđi ţó mátt vippa sér úr kjólnum í lokalaginu og henda honum út í sal.  Kannski eitthvađ sem ţarf ađ skođa fyrir nćstu tónleika.  Nćsta víst ađ ţađ myndi setja skemmtilegan stíl á tónleikana.  
.
  Dagskráin samanstóđ af söngvum eftir Mozart,  Offenbach,  Donizetti,  Puccini,  Bizet,  Gershwin og fleiri.  Skemmtilegast ţótti mér  Mira o Norma  eftir Bellini.  Iđulega voru 2 - 3 söngvarar á sviđi í einu.  Samsöngur er vel ćfđur og frábćr.  Hvergi hnökra ađ finna nema í uppklappslagi.  Ţađ var grallaralag.  Einskonar hliđstćđa viđ sönglag Ómars Ragnarssonar:   Hćnurnar ćptu:  Gagg, gagg, gagg.  Samt ekki sama lag.  En söngvararnir hermdu eftir hćnu,  svíni,  hestum,  gćs o.s.frv.  Ţetta lag virtist ekki vera alveg nógu vel ćft.  Eđa kannski voru hnökrar á flutningi ţess hluti af ćfđum fjörlegum flutningi lagsins. 
.
  Karlsöngvararnir eru bassi og barítón.  Kvensöngvararnir sópran og mezzósópran.  Raddirnar liggja vel saman.  Leikmunir voru einfaldir:  Stólar og borđ.  Leikstjóri var Sibylle Koell. 
   Dömurnar skreyttu undirleik međ ásláttarhljóđfćrum á borđ viđ tamborínu,  Helenustokki og einhverju ţess háttar.  Ţungarokk (heavy metal) var í lágmarki. 
.
  Áheyrendur voru vel á annađ hundrađ.  Ţađ var vonum framar.  Hćgđarleikur er ađ fylgjast međ nćstu tónleikum Óp-hópsins á www.op-hopurinn.is.  Ég reikna međ ađ geta á nćstu dögum birt ljósmyndir verđlaunaljósmyndarans Ingólfs Júlíussonar (gítarleikara Q4U) frá tónleikunum.   

Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband