Loksins góðar fréttir frá Noregi

  Að undanförnu hafa fréttir frá Noregi verið leiðinlegar.  Bara leiðinlegar.  Aðallega hafa þær snúist um flandur tveggja framsóknarpésa til Noregs og fundarhöld þeirra með alræmdum bröskurum tengdum platfyrirtækjum.  Yfirvarp ferðarinnar var að framsóknarguttarnir væru að sækja til Noregs lán upp á 2000 milljarða evra.  Eins og allir áttu að vita var þetta sviðssetning og plat, "a la Framsóknarflokkurinn".

  Aðrar fréttir frá Noregi hafa verið af Rúnari vini mínum.  Hann flýði kreppuna á Íslandi og hélt til Noregs.  Þar hefur hann hvorki fengið vinnu né atvinnuleysisbætur.

  En nú berast gleðifréttir frá Noregi:  Hljómsveitin A-ha er hætt.

a-ha


mbl.is A-ha að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki eitthvað skrítið við þetta?

bacon með jarðarberjabragði

  Samkvæmt merkingu á umbúðum er þarna boðið upp á "kvoðukenndar beikonsneiðar".  Þær blasa við ansi girnilegar í glugganum.  Innan í stjörnunni er slegið upp að þær séu með jarðarberjabragði!  Ja...

dýramynd10

Ég sé þetta ekki glöggt en mér sýnist sem kvikindið næst lengst til hægri sé boðflenna.

nauðgari

Sjónvarpsréttamaðurinn les frétt um eftirlýstan nauðgara.  Í bakgrunni slær tæknideildin upp mynd af þeim eftirlýsta.  Ekki verður annað séð en myndin sé af fréttamanninum.

merking í s-afríku6

  Þarna á sennilega að standa "Take Away" (taka með sér).

furðumynd-íslensk

  Þessi mynd sýnir íslenska presta marsera til kirkju.  Restina rekur einhver furðufígúra.  Gott ef það er ekki Svarthöfði úr Stjörnustríði (Star Wars).  Þessi ljósmynd hefur farið eins og eldur um senu um heimsbyggðina.  Ég fékk hana senda frá kunningjafólki í Kanada sem hafði ekki hugmynd um að myndin væri frá Íslandi.

augl1

  Hér er spurt:  "Þreytt/ur á að sulla bjór niður á meðan þú keyrir?".  Þarna er verið að auglýsa ferðaútgáfu af mexíkanska bjórnum Corona.  Flaskan passar í staðlað bollastæði í bílum og tappinn er eins og á orkudrykkjum fyrir íþróttamenn;  hannaður þannig að litlar líkur eru á að sullist úr flöskunni.

  Í sumum ríkjum Bandaríkjanna liggur sekt við því að vera með opna bjórflösku í bíl.  Þar kemur sér vel að vera með svona tappa á bjórflöskunni.  Reyndar held ég að bjórdrykkja og akstur séu víðast illa liðin.


Hvers vegna...?

  Að undanförnu hafa stórmarkaðir,  hver á fætur öðrum,  hækkað verð á innkaupapokum úr 15 krónum í 20.  Þetta er svekkjandi fyrir þá sem safna innkaupapokum.  Öðrum þykir myndarskapur af þessu.  Enn aðrir telja að verðið á pokunum ætti að vera 50 kall til að draga úr óþörfu bruðli á þeim.

  Morgunblaðið hefur tekið afstöðu í málinu.  Þar er slegið upp frétt þess efnis að verð á innkaupapokum í Bónus hafi hækkað um þriðjung.  Fyrirsögnin er tvíræð:  "Hærra verð á plastpokunum í Bónus".  Fyrirsögnin vísar bæði til þess að verðið á pokunum hafi hækkað í Bónus og einnig til þess að verðið í Bónus sé hærra en í Krónunni.

  Hvers vegna er verðhækkunin í Bónus gerð að frétt en ekki minnst á aðra stórmarkaði sem einnig hafa hækkað verð á innkaupapokum í 20 krónur?  Hver er eiginlega ritstjóri Morgunblaðsins? 

  Eigandi Krónunnar,  Kaupás,  er stærsti auglýsandi Morgunblaðsins.  Það er skemmtileg tilviljun.  Enda er tilveran skemmtileg.

bónus


mbl.is Hærra verð á plastpokunum í Bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki kaupæði en...

verkfæri

  Einn kunningi minn er mjög fjarri því að vera með kaupæði.  Kona hans og krakkar saka hann um að vera nískan.  Það er ekkert keypt nema brýn nauðsyn kalli.  Undantekningin er þegar vinurinn á leið framhjá verkfæraverslunum.  Ég held að hann hafi aldrei farið framhjá verkfæraverslun án þess að kaupa verkfæri. 

  Oftast eru þetta ódýr verkfæri:  Skrúfjárn,  alur,  hamar eða eitthvað álíka.  Það sérkennilega er að hann notar þessi verkfæri ekki.  Ef eitthvað fer aflaga á heimilinu hringir hann í viðgerðarmann.  Í mesta lagi neglir hann nagla til að hengja upp myndir.  En fátt umfram það. 

  Bílskúr hans lítur út eins og lager í verslun:  Bílskúrinn er troðfullur af verkfærum sem eru ennþá í umbúðum:  Borvélar,  stingsagir og ótal smáverkfæri.

  Stundum hitti ég vininn og hann dregur þá ætíð fram eitthvað innpakkað verkfæri sem hann var að kaupa.  Og lýsir fjálglega kostum verkfærisins.  Mér til gamans spyr ég alltaf:  "Ætlarðu að fara að nota þetta?"

  Svarið er ætíð það sama:  "Kannski ekki núna.  En það getur verið gott að eiga þetta."


Tvífarar

jóhann haukssonlawandorder

  Myndin til vinstri er af Jóhanni Haukssyni,  blaðamanni á DV.  Hin myndin sýnir einn af aðalleikurunum í sjónvarpsþáttunum  Lög og regla  (Law and order) sem sýndir eru á Skjá 1.  Svo eru það James Hetfield,  söngvari Metallica,  á myndinni til vinstri hér fyrir neðan.  Á hinni myndinni er ljónið í kvikmynd er byggir á bókinni  Land of Oz.

tvífarar-12


Það er auðvelt að slá í gegn á dansgólfinu

  Hér kennir finnskur danskennari á einfaldan og auðlærðan hátt hversu auðvelt er að slá John Travolta út á dansgólfinu.  Þetta eru bara örfá trix sem lærast léttilega á örfáum sekúndum.  Kíkið á þetta og stelið senunni á dansgólfinu um helgina.  Jafnvel Sigurjón Þ.  Árnason gæti kallað þetta "tæra snilld",  rétt eins og Icesave.  Það hjálpar að vera í útvíðum buxum.  það er að segja á dansgólfinu en ekki varðandi neitt sem viðkemur Icesave.  Þar virkar best að borða gullflögur.


Færeyingar mega brúka píkur frá og með þarnæsta sunnudegi

  Margir Færeyingar eru spenntir og fullir tilhlökkunar.  Færeysk yfirvöld hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að daginn eftir að lögmaður Færeyja snýr heim úr Íslandsreisu megi Færeyingar brúka píkur.  Þannig hljómar tilkynningin:  "Frá sunnudegnum 15. oktober er aftur loyvt at brúka píkur.
Tað kann hugsast, at sumir verða freistaðir at seta píkurnar upp undir komandi vikuskiftið, en ikki ráðiligt at seta píkurnar undir til dømis fríggjadagin ella leygardagin, bara frá sunnudegnum."

  
 


mbl.is Lögmaður Færeyja í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvikmyndarumsögn

ólafur klemensson 

- Titill:  Guð blessi Ísland

- Leikstjóri:  Helgi Felixson

- Helstu "stjörnur":  Geir Haarde,  Bjarni Ármanns,  Björgólfur Thor,  Jón Ásgeir,  Dúni Geirsson,  Sturla Jónsson og Eva Hauksdóttir

- Tónlist:  Hilmar Örn Hilmarsson

- Einkunn: ***1/2 (af 5)

  Guð blessi Ísland  er heimildarmynd um efnahagshrunið og búsáhaldabyltinguna.  Ég var búinn að gleyma þeim gífurlega tilfinningahita,  reiði og æsingi sem einkenndi búsáhaldabyltinguna.  Hvernig allt var við að sjóða upp úr.  Lögreglan átti í vandræðum með að hemja hamslausan múginn.  Það var hættuástand og mesta mildi að enginn slasaðist alvarlega í hamaganginum. 

  Formenn stjórnmálaflokkanna urðu að flýja úr beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2.  Reyndar skemmdu mótmælendur tækjabúnað Stöðvar 2 þannig að útsending rofnaði.  Ingibjörg Sólrún kannaðist ekki við að mótmælendur væru þjóðin. Hún sá hvergi þjóðina.  Hafði orðið viðskila við hana.  Bíll forsætisráðherra,  Geirs Haarde,  var laminn að utan eins og harðfiskur.  Geir taldi sig og bílstjórann hafa verið í raunverulegri hættu.  Það kemur ekki fram í myndinni en eftir þetta fylgdu Geir nokkrir lífverðir hvert sem hann fór.  Einnig Davíð Oddssyni,  þáverandi seðlabankastjóra.  Heimili hans var jafnframt vaktað af lögreglunni.  Lögreglustöðin varð fyrir harkalegri árás vegna handtöku á ungum manni er hafði flaggað Bónus-fána á alþingishúsinu.

   Björgólfur Thor,  Jón Ásgeir og Bjarni Ármannsson koma ansi furðulega fyrir í myndinni.  Þeir virðast raunveruleikafirrtir og hugsunarháttur þeirra töluvert frábrugðinn þess fólks sem er að berjast í bökkum og missir að lokum allt sitt.  Bjarni kemur skást út.  Senurnar með þeim hinum eru skondnar.  Reyndar er margt fleira ljómandi fyndið í myndinni. 

  Feðgarnir í lögreglunni,  Geir Jón og Dúni,  eru stétt sinni til sóma.  Sýna aðstæðum og mótmælendum skilning og leggja sig fram um að gera gott úr öllu af yfirvegun.  Eru stjörnur myndarinnar.  Hlýlegar jákvæðar persónur,  velviljaðar og eiga aðdáunarvert auðvelt með að afgreiða allt sem lýtur að bestu mannlegum samskiptum.  Herskáustu mótmælendur geta ekki annað en borið réttilega virðingu fyrir þeim.  Aldeilis frábærir feðgar.

  Sama verður ekki sagt um nasistana Ólaf Klemensson (starfsmann Seðlabankans) og litla feita bróðir hans (svæfingarlækni hjá Landsspítalanum).  Þeir ryðjast með fúkyrðum inn í hóp mótmælenda og reyna að efna til slagsmála.  Ólafur,  sem er með húðflúraðan hakakross (sést samt ekki í myndinni), gengur svo langt að hrinda konu upp úr þurru.  Miðað við æsinginn á svæðinu er næsta undarlegt að þeim bræðrum mistókst ætlunarverkið:  Að efna til slagsmála.  Það kemur ekki fram í myndinni en kom fram í fjölmiðlum á sínum tíma að fólk hélt að þarna væru vesalingar í annarlegu ástandi á ferð.  Sem er skiljanlegt.  Og sennilega rétt mat hvað varðar Ólaf (sjá mynd).  Sá litli feiti var meira í því hlutverki að upphefja sig í augum gamla nasistans.  Það vaknar spurning varðandi traust sem skjólstæðingar Landsspítala þurfa að bera til svæfingarlækna að eiga sitt undir samskiptum við svona kexruglaðan svæfingarlækni.   Þessi bjáni er hættulegur umhverfi sínu.  Þvílík fífl sem þessir bræður eru.  En gefa lífinu lit með verstu formerkjum.  Það kæmi ekki á óvart að Baldur Hermannsson eigi eftir að mæra þá bræður.  Kjaftur hæfir skel.

  Í gegnum myndina er fylgst með Sturlu Jónssyni taka þátt í mótmælunum,  stefna á þing fyrir Frjálslynda flokkinn og tapa öllu sínu í hruninu.  Hann og hans fjölskylda voru í góðum málum.  Áttu tvær blokkaríbúðir,  byggðu sér hús af elju,  en svo dundu ósköpin yfir:  Sturla varð atvinnulaus og skuldir hrönnuðust upp.  Að lokum flutti Sturla til Noregs.  Draumur fjölskyldunnar um að flytja til Flórída verður að bíða betri tíma.

  Nornin Eva Hauksdóttir fer í gegnum svipað ferli.  Hún flutti til Danmerkur.  Það er áhrifaríkt að fylgjast með lífsbaráttu Evu og Sturlu til samanburðar við túlkun Björgólfs,  Jóns Ásgeirs og Bjarna Ármanns á ástandinu.  Kostulegust er sú skýring Björgólfs að peningar skipti ekki um eigendur heldur hverfi eins og jurt sem visnar og hverfur.  Þessa kenningu má kannski bera á borð fyrir þá sem töpuðu öllu sínu er þeir treystu Icesave fyrir ævisparnaði sínum.  Peningar þeirra hurfu eins og visnuð jurt.  Einnig er broslegt að sjá blaðafulltrúa Björgólfsfeðga burðast með tvö kaffiglös og fleira á eftir Björgólfi Thor sem heldur ekki á neinu.  Björgólfur er kóngurinn og Ásgeir Friðgeirsson,  ja,  hvuttinn sem er í því hlutverki að dekstra húsbóndanum.

  Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en þeir sem eru mér fróðari telja sig merkja augljós einkenni kókaínneytenda af töktum sumra.

  Tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar hefur öll bestu einkenni kvikmyndatónlistar.  Maður tekur varla eftir tónlistinni og áhrifaríkri beitingu hennar nema hlusta sérstaklega eftir henni.

  Galli myndarinnar er að sum skot eru of löng og þjóna ekki neinum tilgangi.  Það hefði mátt beita skærum grimmar.  Dæmi um þetta er löng sena af konu Sturlu þurrka hund og langt myndskeið tekið út um bílglugga er Sturla ekur eftir Reykjanesbraut á leið til Noregs. 

  Ég get mælt með myndinni sem skemmtilegri,  áhrifaríkri og góðri upprifjun á sérstæðum kafla í Íslandssögunni.


Dýr eru krútt - fyndnar ljósmyndir

a-frábær-mynd-4

   Dýr eru hrekkjusvín.  Þau eiga til að sýna skepnuskap.  En þau geta einnig verið krútt.  Það er eitthvað skemmtilega mannlegt við dýr.   

fuglfurðumynd024hundur7tvífarar-7dýramynd2dýramynd3dýramynd11lambasteik

  Þau eru líka góð með kartöflum og grænmeti.  En hvernig ætli standi á veru hunds og hjartar í lögreglubílnum?  Varla hafa þau verið HANDtekin?


Undarlegt svar

  supermarket1innkaupakerrafurðumynd001

  Ég var staddur fyrir utan Nóatún.  Út úr versluninni rogaðist yngri kona með tvo troðfulla innkaupapoka.  Á eftir konunni burðuðust tvö lítil börn með þriðja troðfulla pokann sem þau hálf drógu á eftir sér.  Krakkarnir kvörtuðu undan þyngd pokans.  Þá kallaði konan reiðilega og pirruð til þeirra:  "Já,  þetta er alveg ferlegt.  Ég ætlaði bara að kaupa eina mjólkurfernu!

  Athugið:  Myndin er ekki af umræddri konu.  Held ég.


Þetta þurfið þið að vita

 fræbbblarnir

   Í dag fenguð þið skilaboð frá Moggablogginu um að fjarlægja af bloggi ykkar höfundarréttarvarið efni.  Brot á höfundarrétti getur leitt til þess að bloggsíðum ykkar verði lokað.  Margir bloggarar hafa spurt mig út í þetta.  Þó mér komi þetta ekki beinlínis við er mér ljúft að útskýra hvað þetta þýðir. 

  Lög í tónspilara ykkar mega einungis vera þar með leyfi höfunda/r lagsins,  flytjanda og útgefanda.  Þetta þýðir að flest útlend lög eru ekki gjaldgeng í tónspilaranum.  Þið getið svo sem spurt rétthafa Bítla-,  Stóns- eða Led Zeppelin-laga um að gefa ykkur leyfi til að hafa þau í tónspilaranum.  Mér er til efa að fyrirspurn þess efnis verði svarað.  En ef þið fáið jákvætt svar þarf að gera STEF á Íslandi grein fyrir því.

  Þetta er auðveldara varðandi íslenska músík.  Íslenskir höfundar,  flytjendur og útgefendur taka erindinu sennilega vel.  Tónspilarinn getur verið ágæt kynning á þeirra lögum.

  Þess ber þó að geta að ef um útlenda kráku (cover) er að ræða þarf samþykki útlenda höfundarins.

  Höfundarréttur fyrnist á 70 árum frá dauða höfundar.  Gamla klassíkin getur því hljómað í tónspilurunum:  Beethoven,  Mozart og þeir allir. 

  Þið getið áfram sett inn youtube-myndbönd.  Þau eru með hlekk inn á youtube og þar hefur verið gengið frá höfundarréttarmálum.


Davíð Oddsson hundskammar bloggaraskrílinn - og veitir ekki af

 GissurarsonOddsson

   Bloggheimar eru iðulega stórundarlegir.  Af öngvu tilefni vitna lítilmenni í stjórnmálum til þess að "bloggheimar logi" og gefa þannig í skyn að tilfinningahiti sé í þjóðfélaginu.  Það eina sem hefur gerst er að orðljótustu bloggarar hafa þrútnað út örlítið meira en endranær og reyna að yfirbjóða hvern annan með uppspuna og munnsöfnuði.  Eldglæringar á blogginu hafa aldrei skipt neinu máli um nokkurn skapaðan hlut.  Kórstjórar bloggsóðanna hafa ekki áhrif á þjóðfélagsumræðuna.

  Ofangreint er stytt samantekt á fyrri hluta leiðara Davíðs Oddssonar í Mogganum í dag.  En það skiptast á skin og skúrir.  Þó Davíð telji margan bloggarann "bölmóðsins besta vin" þá býður tilveran á Íslandi í dag upp á fleira en bloggaraskríl til að ólundast út í.  Davíð hefur velþóknun á eftirtöldum:  Spaugstofuhópnum,  Ómari Ragnarssyni,  Ladda,  Ragnari Bjarnasyni,  Jóhannesi eftirhermu Kristjánssyni og Jens Guði.  Reyndar er ég ekki alveg viss með síðast nefndan.  Það skvettist dökkur bjór yfir niðurlag leiðarans svo ég þurfti eiginlega að giska á hvað stendur þar.   

  Ég held að Davíð eigi ekki sérstaklega við Hannes Hólmstein með lýsingunni á bloggurum.  Líklegra þykir mér að Davíð jafnvel undanskilji Hannes,  eins og Ómar Ragnarsson og mig.   


Stórfurðulegur göngumáti

  Þessi vesalingur ólst upp á óróleika jarðskjálftasvæði.  Fyrir bragðið lærði hann ekki að ganga eins og annað fólk.  Þess í stað færir hann sig um set með þeim furðulega hætti sem sjá má í meðfylgjandi myndbandi.  Þetta vekur kátínu hjá þeim sem á vegi hans verða.  Það er að segja öðrum en þeim sem hann bókstaflega hittir fyrir.  Þeir árekstrar geta orðið blóðugir og ljótir.  Af tillitssemi við börn og viðkvæma hafa þannig senur verið klipptar úr myndbandinu.  Maðurinn er stórhættulegur umhverfi sínu og ástæða til að vara fólk við að reyna að leika háttsemi hans eftir.     


Einföld aðferð til að afhjúpa óheiðarlega

bjór í ísskáp

  Mótel eða gistiheimili eru ódýr og ágætur kostur fyrir einhleypa.  Mánaðarleiga á herbergi er 20 - 40 þúsund kall (fer eftir stærð og staðsetningu).  Herbergin eru búin helstu húsgögnum.  Eldhús,  setustofa,  þvottavél,  baðherbergi,  sturtur og þess háttar eru sameiginleg.  Stundum myndar hópur leigjenda einskonar eina stjóra fjölskyldu.  Fólk hlustar saman á músík,  skiptist á tölvuleikjum,  fer saman í bíó eða á pöbbinn,  eldar saman;  kunningjahópar viðkomandi sameinast og svo framvegis.  Fólk lánar hvert öðru pening,  bjór,  DVD,  bíl og þess háttar.

  Inn á gistiheimilin slæðist einnig óheiðarlegt fólk.  Það stelur úr ísskápum,  stelur skóm,  tímaritum í áskrift og fleiru.  Það er til einfalt ráð sem afhjúpar óheiðarlega fólkið:  Margir geyma sjampóbrúsana sína í sturtuaðstöðunni.  Óheiðarlega fólkið stelst í sjampó annarra.  Trixið er að hræra háreyðingarkremi saman við sjampóið.  Ekki miklu háreyðingarkremi.  En nóg til þess að hár óheiðarlega fólksins þynnist frekar hratt.  Þá leynir sér ekki hver er óheiðarlegur.  Þetta er pottþétt og virkar alltaf.  Og mjög fyndið að auki.


Broslegar merkingar

merking í s-afríku4

  Þessi bráðfyndnu merki eru af raunverulegum merkingum og eru - að því er ætla má - sett upp af alvörugefnu fólki sem fattar ekki hvað þetta kemur spaugilega út.  Það er brandarinn út af fyrir sig.  Ég er ekki klár á því hver eru skilaboðin á merkinu hér fyrir ofan.  Mér dettur helst í hug að verið sé að vara fólk í hjólastól við að fara hratt niður brekku framundan.  Annars geti þeir lent í krókódílskjafti.

merking í s-afríku7

Varúð!  Spennið brjóstahaldara og takið út úr ykkur gervitannagóma;  mjög holóttur vegur.

Notalegt tjaldstæði á strandrunnasvæði.

augl4

Varúð vegna lágflugs!

merking í s-afríku2

Bavíanar

(er myndin af apa?)

merking í s-afríku5

Haldið ykkur lengst til vinstri

merking í s-afríku3

Hérna gerðist ekkert 1897

furðumynd26

Hugsanlega tákna þessar merkingar að vegurinn sé lokaður.  Það er að segja til hægri,  vinstri og beint áfram.  Merkinu sem bannar að ekið sé til baka hlýtur eiginlega að vera ofaukið.


Miðilsfundur

  einn athyglissjúkur með klemmur í andlitinu

  Fyrir nokkrum árum varð ég samferða vini mínum í flugvél út á land.  Við vorum báðir með námskeið í tilteknum kaupstað.  Af tillitssemi við þá sem þar voru nefni ég ekki staðinn.  Í flugvélinni ræddum við um miðilsfundi.  Vinur minn er grallari og ákvað að sprella.  Við bjuggum í heimavist framhaldsskóla.  Um kvöldið þóttist vinurinn falla í trans þar sem við sátum í sjónvarpssal með heimavistarbúum.  Vinurinn þóttist fá krampakast og náði að froðufella.  Ég tilkynnti viðstöddum að hann væri fallinn í miðilstrans.

  ALLIR viðstaddir keyptu grínið.  Vinurinn þuldi upp algengustu íslensk mannanöfn og viðstaddir gáfu sig fram sem ættingjar og aðstandendur framliðinna.  Vinurinn bar þeim skilaboð að hætti miðla.  Honum þótti þetta svo kjánalegt að hann fór að tiltaka sértækari og furðulegri dæmi.  Ekkert lát varð á viðbrögðum viðstaddra sem töldu sig kannast við skilaboðin.

  Vinurinn gekk ennþá lengra í sprellinu og gaf upp sjaldgæft íslenskt nafn.  Enginn kannaðist við það.  Þá sagði vinurinn:  "Fyrirgefið.  Viðkomandi ætlaði að mæta á miðilsfund á Hvammstanga en villtist."

  Enginn fattaði djókið.  Annað eftir þessu.  Vinurinn bullaði út í eitt og allir voru gagnrýnislausir á bullið.

  Daginn eftir kallaði einn heimavistardrengja vininn á eintal.  Sagðist hafa skýrt mömmu sinni frá miðilsfundinum og þau mæðgin væru tilbúin að borga vininum pening fyrir að setja upp einkamiðilsfund með þeim.  Faðir drengsins var nýlega fallinn frá og þau mæðgin langaði að ná sambandi við föðurinn.

  Þá var vini mínum nóg boðið.  Hann sagði:  "Undir þessum kringumstæðum skulið þið ekki koma nálægt miðilsfundum.  Alls ekki.  Forðist allt slíkt eins og þið mögulega getið."   


Hver er hvað og hver er hvurs?

Gísli Marteinn+Sigurður Kári Kristjánsson+gisli_marteinn_baldursson1+sigurður kári=ÓlafurÖ

  Sumum þykir Davíðs-æskan í Sjálfstæðisflokknum vera einsleitur hópur.  Jafnvel eins og klónuð eintök.  Það er ekkert að því.  Hver dregur dám af sínum sessunaut.  Ungir áhrifaríkir drengir samsama sig tilteknu normi.  "Það má þekkja þá sem drekka af þeim félögum sem þeir þekkja," segir í vinsælu lagi með Ríó tríói.  Þetta má til sannsvegar færa.  Berum hér að gamni saman ljósmyndir af: Gísla Marteini,  sem lenti undir Hönnu Birnu í kapphlaupi um borgarstjórastól í Reykjavík og fór til Skotlands í nám á launum borgarstjórnarmanns;  Sigurði Kára Kristjánssyni sem ólst upp hjá fátæku fólki,  komst inn á þing sviptur ökuskírteini vegna ölvunaraksturs og kolféll í síðustu alþingiskosningum (vonandi ekki vegna þess að hafa alist upp hjá fátæku fólki);  Og byltingarsinnanum Ólafi Erni Níelssyni sem steypti óvænt sitjandi formanni SUS með vel heppnuðu áhlaupi Davíðs-armsins á þingi SUS á Ísafirði.  Ólafs vegna verður framaganga hans vonandi farsælli en tvífaranna.  Vitandi ekkert um manninn óska ég honum góðs gengis og bjartrar framtíðar.


Einmitt námskeiðið sem vantaði

Tu te plains de ton boulot-05

  Kunningjakona mín er voðalega spennt fyrir námskeiði sem lítið hefur farið fyrir í fjölmiðlum - að ég held.  Það er útlendingur sem heldur námskeiðið.  Hann er búinn að fatta upp á aðferð fyrir fólk til að losna við verki.  Allt frá sinadrætti og hausverk til botnlangakasts og tannpínu.  Aðferðin er frekar einföld.  Að sögn eru verkir huglægir.  Fólk þarf bara að setja sig í spor verksins og ræða við hann.  Bjóða honum góðan dag og fara vel að honum.  Spyrja hann síðan lúmskra spurningu og veiða upp úr honum hvað sé í gangi.  Af hverju hann sé mættur.

  Á þennan hátt er hægt að komast til botns í vandamálinu.  Næsta skref er að semja í góðu við verkinn um að láta sig í friði.  Á námskeiðinu er þátttakendum kennt hvernig best er að standa að spjallinu við verkinn.  Ef vel tekst til hverfur verkurinn á 7 mínútum eða í síðasta lagi á innan við 12 árum.  Hafi verkurinn ekki horfið eftir 12 ár mun námskeiðsstjórnandinn endurgreiða námskeiðsgjaldið.  Það er rétt rúmur 10 þúsund kall,  eða 19.999 kr.

  Þeir sem komast ekki á námskeiðið geta í staðinn keypt plástra,  armbönd,  lukkusteina,  pendúla og annað slíkt sem einnig lætur verki hverfa.  Eða farið í heilun eða höfuðbeina- og spjaldhryggshnykk.  Jafnvel DNA heilun.  Eða horft á Fangavaktina.

  Á ljósmyndinni eru þátttakendur á námskeiði að koma sér í stuð og smá vímu með því að sniffa stæka svitalykt,  lím og bensín.  Það skerpir á liðsandanum og hristir þátttakendum saman.


Besta hjálpartæki ástarlífsins

ginseng-uppskera

  Í aldir hefur margþætt hollusta hinna ýmsu afurða jurtaríkisins verið þekkt,  svo sem að ginseng skerpir athygli og eykur þol.  Í sunnudagshefti Extrablaðsins segir frá nýrri rannsókn sem sýnir að ginseng er einnig kröftugt ástarmeðal.  Það eflir kynlífslöngun og styrkir alla þá líkamshluta sem helst koma við sögu þegar um kynmök er að ræða.  Um þetta má lesa nánar á http://ekstrabladet.dk/sex_og_samliv/article1227101.ece


Hversu heimskt er fólk?

furðumynd1 

 Sjónvarpsþáttur sem kallast "Lífsaugað" hefur verið settur á dagskrá Skjás 1.  Þar fer svokallaður miðill mikinn.  Hann þykist tengja sig við svokallaða framliðna (drauga).  Ruglið og bullið er með ólíkindum og ótrúlegt að nokkur manneskja taki þvæluna alvarlega.  Hvað þá að trúa því að kallinn sé að miðla skilaboðum frá alvöru draugum.

  Ef við göngum út frá því að dáið fólk sé að bulla í okkur er meiriháttar undarlegt hvað það fólk hefur lítið að segja.  Það er í vandræðum með að kynna sig með öðrum nöfnum en þeim allra algengustu:  Guðmundur og Kristín.  Kristínarnafnið breyttist reyndar í Kristjönu.  Svo ég tali bara fyrir sjálfan mig þá hét faðir minn Guðmundur og ég á nokkrar frænkur sem heita Kristín.  Ég heiti jafnframt Jens Kristján,  sem með sama vilja og Kristín breyttist í Kristjönu getur alveg eins orðið Kristján.  Hver einasti Íslendingur getur auðveldlega tengt sig við einhvern Guðmund,  Kristínu,  Sigurð og Jón.

  Hitt vekur meiri athygli hvað draugarnir velja sér ómerkilegt umræðuefni.  Þeir skila kveðjum og eru með óljós skilaboð um smákökur og neftóbak.  Draugarnir hafa aldrei neitt áhugavert fram að færa.  Virðast vera kjánar sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig.  Nema þegar kemur að almennum heilræðum.  Þá fara þeir á flug:  "Þú hugsar of lítið um sjálfa/n þig.  Ert alltaf að hugsa um aðra."  Eða:  "Þér er ekki alltaf þakkað eins og þú átt skilið fyrir að hjálpa öðrum."  

  Hversu heimskt er það fólk sem kaupir þetta bull?  Fífl er eiginlega of jákvætt orð. 

  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband