16.10.2022 | 00:02
Skemmtileg bók
- Titill: Glađlega leikur skugginn í sólskininu
- Höfundur: Steinn Kárason
Sögusviđiđ er Skagafjörđur á sjöunda áratugnum. Segir ţar frá ungum dreng - 10 - 11 ára - á Sauđárkróki. Bakgrunnurinn er sjórinn, sjómennska og sveitin í ţroskasögunni. Inn í hana blandast kaldastríđiđ, Kúbudeilan og Bítlarnir. Steinn kemur andrúmslofti ţessara ára vel til skila.
Ég ćtla ađ stór hluti sögunnar byggi á raunverulegri upplifun höfundar. Ég kannast viđ suma atburđi sem sagt er frá. Ég var barn í Skagafirđi á ţessum tíma. Fyrir bragđiđ var sérlega gaman fyrir mig ađ rifja upp bernskubrekin. Bókin er ţar fyrir utan líka skemmtileg og fróđleg fyrir fólk sem veit ekki einu sinni hvar Skagafjörđur er. Mörg brosleg atvik eru dregin fram. En ţađ skiptast á skin og skúrir. Ógeđfelldir atburđir henda sem og mannlegur breyskleiki í ýmsum myndum.
Ţetta er stór og mikil bók. Hún spannar 238 blađsíđur. Káputeikning Hlífar Unu Bárudóttur er flott.
Steinn Kárason er ţekktur fyrir frćđibćkur, blađagreinar, tónlist og dagskrárgerđ í ljósvakamiđlum.
Bćkur | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
8.10.2022 | 23:34
Frjósemi Bítlanna
Frjósemi vesturlandabúa hefur aldrei veriđ jafn bágborin og nú. Ađ međaltali eignast evrópskar konur innan viđ tvö börn hver um sig. Nema í Fćreyjum. Ţar býr hamingjusamasta ţjóđ heims. Og ástríkasta. Fćreysk kona eignast ađ međaltali hálft ţriđja barn.
Frjósemi Bítlanna skiptist í tvö horn. Sólógítarleikarinn, George heitinn Harrison, eignađist ađeins eitt barn, gítarleikarann Dhani Harrison. Dhani er hálffimmtugur. Eđa ţví sem nćst. Hann var til fjögurra ára giftur íslenskri konu, Sólu Káradóttur (Stefánssonar). Ţau eignuđust ekki barn. Ef Dhani fer ekki ađ drífa sig deyja gen George Harrison út međ honum. Sú stađa virđist eiginlega blasa viđ. Hvers vegna?
Ekkja Georges, Olivia, er jafnan mćtt í Viđey ţegar kveikt er á friđarsúlunni.
Forsprakki Bítlanna, John heitinn Lennon, var tvígiftur. Hann eignađist soninn Julian Lennon, međ fyrri konu sinni, Cyntheu, og Sean Lennon međ Yoko Ono. Ţau síđarnefndu eru dugleg ađ heimsćkja Ísland.
Julian og Sean eiga engin börn. Einhverjir sálfrćđingar rekja barnleysi Julians til ţess ađ John var ekki góđur pabbi. Hann vanrćkti sambandiđ viđ soninn.
Eins og stađan er í dag má ćtla ađ gen Johns og George berist ekki til nćstu kynslóđa.
Trommuleikarinn Ringo Starr eignađist 3 syni međ fyrri konu sinni, Maurice. Litlu munađi ađ George barnađi hana líka.
Besta barnagćla Bítlanna var og er Paul McCartney. Julian segir hann hafa veriđ miklu meiri pabba sinn en John. Ótal ljósmyndir stađfesta ţađ.
Paul McCartney á fimm börn. Hann er ekki líffrćđilegur fađir elstu dótturinnar, Heather. Hann bregst hinn versti viđ ef einhver kallar hana stjúpdóttur eđa fósturdóttur. "Hún er jafn mikil dóttir mín og hin börn mín," segir hann.
Tónlist | Breytt 16.10.2022 kl. 12:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
2.10.2022 | 03:45
Hćttulegar skepnur
Öll vitum viđ ađ margar skepnur eru manninum hćttulegar. Viđ vitum af allskonar eiturslöngum, ljónum, krókódílum, hákörlum, ísbjörnum, tígrisdýrum og svo framvegis. Fleiri dýr eru varhugaverđ ţó viđ séum ekki sérlega međvituđ um ţađ. Einkum dýr sem eru í öđrum löndum en Íslandi.
- Keilusnigill er umvafinn fagurri skel. En kvikindiđ bítur og spúir eitri. Ţađ skemmir taugafrumur og getur valdiđ lömun.
- Tsetse flugan sýgur blóđ úr dýrum og skilur eftir ssig efni sem veldur svefnsýki. Veikindunum fylgir hiti, liđverkir, höfuđverkur og kláđi. Oft leiđir ţađ til dauđa.
- Sporđdrekar forđast fólk. Stundum koma upp ađstćđur ţar sem sporđdreki verđur á vegi fólks. Ţá stingur hann og spúir eitri. Versta eitriđ gefur svokallađur "deathstalker". Ţađ veldur gríđarlegum sársauka en drepur ekki heilbrigđa og hrausta fullorđna manneskju. En ţađ drepur börn og veikburđa.
- Eiturpílufroskurinn er baneitrađur. Snerting viđ hann er banvćn.
- Portúgölsku Man O´War er iđulega ruglađ saman viđ marglyttu. Enda er útlitiđ svipađ. Stunga frá ţeirri portúgölsku veldur háum hita og sjokki.
- Í Víetnam drepa villisvín árlega fleiri manneskjur en önnur dýr. Venjuleg alisvín eiga til ađ drepa líka. Í gegnum tíđina haf margir svínabćndur veriđ drepnir og étnir af svínunum sínum.
- Hćttulegasta skepna jarđarinnar er mannskepnan. Hún drepur fleira fólk og ađrar skepnur en nokkur önnur dýrategund.
Vísindi og frćđi | Breytt s.d. kl. 04:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
25.9.2022 | 06:38
Hryllingur
Ég mćli ekki međ dvöl í rússnesku fangelsi. Ţađ er ekkert gaman ţar. Fangaverđir og stjórnendur fangelsanna eru ekkert ađ dekra viđ fangana. Ţađ geta úkraínskir stríđsfangar stađfest.
Á dögunum skiptust Rússar og Úkraínumenn á stríđsföngum. 215 úkraínskir fangar fengu frelsi og 55 rússneskir. Hér eru ljósmyndir af einum úkraínskum. Hann var tekinn til fanga í Maríupól ftrir nihhrun vikun,. Ţannig leit hann ţá út. Á hćgri myndinni sést hvernig fangelsisdvölin fór međ hann.
![]() |
Erna Ýr ekki allslaus í Úkraínu |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 06:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
18.9.2022 | 09:04
Bestu hljómplötur allra tíma
Bandaríski netmiđillinn Consequence hefur tekiđ saman og birt lista yfir bestu hljómplötur allra tíma. Listinn ber ţess ađ nokkru merki ađ vera tekinn saman af Bandaríkjamönnum. Ég er alveg sáttur viđ valiđ á plötunum. Aftur á móti er ég ekki eins sammála röđinni á ţeim. Til ađ mynda set ég "Abbey Road" í toppsćtiđ. "London Calling" međ The Clash set ég ofar "Rumours". Gaman vćri ađ heyra álit ykkar.
Svona er listinn:
1 Prince - Purple Rain
2 Fleetwood Mac - Rumours
3 Bítlarnir - Abbey Road
4 The Clash - London Calling
5 Joni Mitchell - Blue
6 The Beach Boys - Pet Sounds
7 Kendrick Lamar - To Pimp a Butterfly
8 Radiohead - OK Computer
9 Marvin Gaye - What´s Going On
10 Nirvana - Nevermind
11 Lauryn Hill - The Miseducation of Lauryn Hill
12 Bob Dylan - Blonde on Blonde
13 The Velvet Underground - The Velvet Underground & Nico
14 Bítlarnir - Sgt, Pepper´s Lonely Hearts Club Band
15 David Bowie - The Rise and Fall of Ziggy Stardust
16 Bruce Springsteen - Born to Run
17 Patti Smith - Horses
18 Beyoncé - Lemonade
19 Talking Heads - Remain in Light
20 Kate Bush - Hounds of Love
21 Led Zeppelin - IV
22 Stevie Wonder - Songs in the Key of Life
23 Rolling Stones - Let it Bleed
24 Black Sabbath - Paranoid
25 Public Enemy - It takes a Nation of Millions to Hold Us Back
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
11.9.2022 | 05:01
Drykkfeldustu ţjóđir heims
Ţjóđir heims eru misduglegar - eđa duglausar - viđ ađ sötra áfenga drykki. Ţetta hefur veriđ reiknađ út og rađađ upp af netmiđli í Vín. Vín er viđ hćfi í ţessu tilfelli.
Til ađ einfalda dćmiđ er reiknađ út frá hreinu alkahóli á mann á ári. Eins og listinn hér sýnir ţá er sigurvegarinn 100 ţúsund manna örţjóđ í Austur-Afríku; í eyjaklasa sem kallast Seychelles-eyjar. Ţađ merkilega er ađ ţar eru ţađ nánast einungis karlmenn sem drekka áfengi.
Talan fyrir aftan sýnir lítrafjöldann. Athygli vekur ađ asískar, amerískar og norrćnar ţjóđir eru ekki ađ standa sig.
4.9.2022 | 01:43
Hvenćr hlćja hundar?
Hundar hafa brenglađ tímaskyn. Ţeir kunna ekki á klukku. Ţeir eiga ekki einu sinni klukku. Ţegar hundur er skilinn eftir einn heima ţá gerir hann sér ekki grein fyrir ţví hvađ tímanum líđur. Hann áttar sig ekkert á ţví hvort heimilisfólkiđ er fjarverandi í fimm mínútur eđa fimm klukkutíma. Oft dottar hann ţegar hann er einn.
Hundar hafa kímnigáfu. Ţegar ţeim ţykir eitthvađ verulega fyndiđ ţá anda ţeir eldsnöggt frá sér. Ţađ hljómar eins og ţeir séu ađ snýta sér. Húmor hunda er ekki upp á marga fiska. Hundur hlćr ađ ýmsu sem er ekki sérlega fyndiđ. Sömuleiđis er hćgt ađ segja hundi bráđfyndinn brandara án ţess ađ hann sýni viđbrögđ. Setur bara upp hundshaus og horfir sljór á mann. "Pönslínan" fer fyrir ofan garđ og neđan. Engu ađ síđur er góđ skemmtun ađ vita ţetta og kannast viđ ţegar hundur hlćr. Eitt sinn missteig ég mig heima fyrir framan símborđ og féll viđ. Ţá hló heimilishundurinn tvisvar.
Ţegar hundur horfir neikvćđur á mann ţá leitar skott hans til vinstri. Ţegar hann er jákvćđur leitar ţađ til hćgri.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
28.8.2022 | 01:35
Ađeins í Japan
Í Japan er margt öđruvísi en viđ eigum ađ venjast. Til ađ mynda hvetja ţarlend yfirvöld ungt fólk til ađ neyta meira áfengis. Ţađ er til ađ örva hagkerfiđ. Fá meiri veltuhrađa. Ástćđan fyrir ţví ađ vöruflokkurinn áfengi er notađur í ţetta er sú ađ ölvađir unglingar eyđa meiri peningum í skemmtanir, leigubíla, snyrtivörur, fín föt og allskonar óţarfa. Líka á ţetta ađ hćkka fćđingartíđni.
Í Japan fćst áfengi í allskonar umbúđum. Ţar á međal litlum fernum sem líta út eins og ávaxtasafafernur međ sogröri og allt.
Japanir eru einnig í hollustu. Eđa ţannig. Kóladrykkir eru ekki hollir út af fyrir sig. En ef ţeir innihalda hvítlauk og eru međ hvítlauksbragđi?
Annađ dćmi um hollustu í Japan eru rafmagnsprjónar. Matprjónar. Ţeir gefa frá sér vćgt rafstuđ af og til. Ţađ er sársaukalaust en framkallar salt bragđ af matnum. Salt er óhollt.
Mörg japönsk hótel, mótel og gistiheimili bjóđa upp á ódýra svefnađstöđu. Ekki er um eiginlegt herbergi ađ rćđa. Ţetta er meira eins og ţröngur skápur sem skriđiđ er inn í án ţess ađ geta stađiđ upp.
Japanir elska karaókí. Ţađ er eiginlega ţjóđarsport. Vinnufélagar fara iđulega á skemmtistađi til ađ syngja í karaókí. Ţá er reglan ađ hver og einn taki lag óháđ sönghćfileikum. Mörgum ţykir líka gaman ađ syngja heima eđa út af fyrir sig á vinnustađ. Til ađ ţađ trufli engan brúka söngfuglarnir hljóđhelda hljóđnema. Međ heyrnartćki í eyra heyra ţeir ţó í sjálfum sér.
Eitt af ţví sem víđast ţykir lýti en í Japan ţykir flott eru skakkar tennur. Sérstaklega ef um er ađ rćđa tvöfaldar tennur. Ţar sem ein tönn stendur fyrir framan ađra. Ţetta ţykir svo flott ađ efnađ fólk fćr sér aukatennur hjá tannlćknum.
Tónlist | Breytt 29.8.2022 kl. 11:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
21.8.2022 | 00:01
Furđufluga
Ég var ađ stússa í borđtölvunni minni. Skyndilega flaug pínulítil fluga á milli mín og skjásins. Ég hélt ađ hún fćri strax. Ţađ gerđist ekki. Hún flögrađi fyrir framan mig í augnhćđ. Ţađ var eins og hún vćri ađ kanna hvort hún hefđi séđ mig áđur. Ţetta truflađi mig. Ég sló hana utanundir. Hún hentist eitthvađ í burtu.
Nokkrum sekúndum síđar var hún aftur komin á milli mín og skjásins. Ég endurtók leikinn međ sama árangri. Hún lét sér ekki segjast. Í ţriđja skipti var hún komin fyrir framan mig. Ég gómađi hana međ ţví ađ smella saman lófum og henti henni vankađri út á stétt.
Háttalag hennar veldur mér umhugsun. Helst grunar mig ađ henni hafi ţótt ţetta skemmtilegt. Í hennar huga hafi viđ, ég og hún, veriđ ađ leika okkur.
13.8.2022 | 23:16
Magnađar myndir
Fátt er skemmtilegra ađ skođa en sláandi flottar ljósmyndir. Einkum ljósmyndir sem hafa orđiđ til ţegar óvart er smellt af á réttu augnabliki og útkoman verđur spaugileg. Tekiđ skal fram ađ ekkert hefur veriđ átt viđ međfylgjandi ljósmyndir. Ekkert "fótóshopp" eđa neitt slíkt.
Myndirnar stćkka og verđa áhrifameiri ef smellt er á ţćr.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
7.8.2022 | 04:13
Buxnalaus
Fyrir nokkrum árum bjó ég í Ármúla 5. Ţađ var góđ stađsetning. Múlakaffi á neđstu hćđ og hverfispöbbinn í Ármúla 7. Hann hét ţví einkennilega nafni Wall Street. Skýringin var sú ađ í götunni voru mörg fjármálafyrirtćki. Fyrir daga bankahrunsins, vel ađ merkja. Áđur hét stađurinn Jensen. Síđar var hann kenndur viđ rússneska kafbátaskýliđ Pentagon. Ţađ var ennţá undarlegra nafn.
Ţetta var vinalegur stađur. Ekki síst vegna frábćrra eigenda og starfsfólks. En líka vegna ţess ađ stađurinn var lítill og flestir ţekktust. Ekki endilega í fyrsta skipti sem ţeir mćttu á barinn. Hinsvegar sátu allir viđ borđ hjá öllum og voru fljótir ađ kynnast.
Eitt kvöldiđ brá svo viđ ađ inn gekk ókunnugur mađur. Ţađ var sláttur á honum. Hann var flottari en flestir; klćddur glćsilegum jakka, hvítri skyrtu međ gullslegnum ermahnöppum, rauđu hálsbindi og gylltri bindisnćlu. Hann var í dýrum gljáburstuđum spariskóm.
Undrun vakti ađ hann var á brókinni, skjannahvítri og ţví áberandi. Hann bađ eigandann um krít. Hann gćti sett giftingarhring í pant. Sem var samţykkt en athugasemd gerđ viđ buxnaleysiđ. Útskýringin var ţessi: Honum hafđi sinnast viđ eiginkonu sína. Hún sparkađi honum út. Ţá tók hann leigubíl í Ármúlann. Á leiđarenda uppgötvađist ađ hann var án peninga og korts. Úr varđ ađ leigubílstjórinn tók buxur hans í pant.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
30.7.2022 | 20:11
Bindindismótiđ í Galtalćk
Til nokkurra ára vann ég viđ Bindindismótiđ í Galtalćk um verslunarmannahelgina. Ţetta var á árunum í kringum 1990. Ţessi mót voru fjölmenn. Gestir voru tíu til tólf ţúsund. Álíka fjöldi og í Vestmannaeyjum. Stundum fjölmennari.
Sérstađa Bindindismótsins var ađ ţar fór allt friđsamlega fram. Aldrei neitt vesen. Aldrei nauđganir eđa ađrar líkamsárásir. Aldrei ţjófnađir eđa illdeilur.
Uppistađan af gestum var fjölskyldufólk. Ţarna voru börn og unglingar í öruggu umhverfi.
Öll neysla áfengis var bönnuđ á svćđinu. Ég vann sem vörđur í hliđinu inn á svćđiđ. Allir bílar voru stöđvađir. Ökumönnum og farţegum var bođiđ ađ geyma fyrir ţá áfengi fram yfir mót. Ađ öđrum kosti yrđi leitađ í bílnum og áfengi hellt niđur ef ţađ finnist.
Einhverra hluta vegna reyndu sumir ađ smygla áfengi inn á svćđiđ. Ţví var skipt út fyrir rúđupiss, sprautađ inn í appelsínur, faliđ inn í varadekki... Á skömmum tíma lćrđist hverjir reyndu smygl. Margir litlir taktar einkenndu ţá. Til ađ mynda ađ gjóa augum snöggt í átt ađ smyglinu, hika smá áđur en neitađ var o.s.frv.
Fyrir margt löngu hitti ég mann sem sagđist hafa sem unglingur fundiđ pottţétta leiđ til ađ smygla áfengi inn á mótiđ. Hann mćtti á svćđiđ nokkrum dögum áđur og gróf áfengiđ ofan í árbakka á svćđinu. Ţegar hann svo mćtti á mótiđ sá hann sér til skelfingar ađ búiđ var ađ hlađa margra metra háum bálkesti ofan á felustađinn. Í honum var ekki kveikt fyrr en á sunnudagskvöldinu.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
24.7.2022 | 00:29
Rekinn og blómstrađi sem aldrei fyrr
Rokksagan geymir mörg dćmi ţess ađ liđsmađur hljómsveitar hafi veriđ rekinn; í kjölfariđ fundiđ sína fjöl og skiniđ skćrar en hljómsveitin. Nei, ég er ekki ađ tala um trommuleikarann Pete Best sem var rekinn úr Bítlunum. Hans ferill varđ klúđur á klúđur ofan.
Eitt frćgasta dćmiđ í íslenskri rokksögu er ţegar söngvarinn Pétur Kristjánsson var rekinn úr Pelican. Ţetta var um miđjan áttunda áratuginn. Pelican var vinsćlasta hljómsveit landsins. Pétur brá viđ snöggt; hafđi samband viđ fjölmiđla sem slógu upp fyrirsögnum um brottreksturinn. Samtímis stofnađi Pétur eldsnöggur nýja og ferska rokksveit, Paradís, međ ungum hljóđfćraleikurum. Ţađ var kýlt á spilirí út og suđur og hent í plötu. Sá sem stýrđi fjölmiđlaumrćđunni var góđvinur okkar, Smári Valgeirsson. Sá hinn sami og á sínum tíma tók sögufrćgt viđtal viđ Hörđ Torfason. Smári spilađi á fjölmiđla eins og á fiđlu. Ég kom smá ponsu viđ sögu; teiknađi myndir af Pétri í auglýsingar, málađi nafn hljómsveitarinnar á bassatrommuna og eitthvađ svoleiđis.
Pétur fékk samúđarbylgju. Rosa öfluga samúđarbylgju. Pelican var allt í einu runnin út á tíma.
Af erlendum dćmum má nefna Jimi Hendrix. Hann var gítarleikari bandarískrar hljómsveitar, The Isle Brothers, undirleikara Little Richard um miđjan sjöunda áratuginn. Rikki var ofurstjarna áratug áđur en mátti á ţessum árum muna sinn fífil fegri. Hendrix rakst illa í hljómsveit. Hann var afar óstundvís og notađi vímuefni. Rikki rak hann. Ári síđar sló Hendrix í gegn međ "Hey Joe" og varđ í kjölfar stćrsta gítarhetja rokksögunnar.
Í fljótu bragđi man ég líka eftir Lemmy. Hann var söngvari og bassaleikari ensku hljómsveitarinnar Hawkwind á fyrri hluta áttunda áratugarins. Allt gekk vel. Nema dópneysla Lemmy ţótti um of. Hann var rekinn. Stofnađi ţá tríóiđ Motörhead. Spilađi ţar á gítar og hljómsveitin sló rćkilega í gegn.
Einnig má nefna enska söngvarann Ozzy Osbourne. Dópneysla hans gekk fram af félögum hans í Black Sabbath. Seint og síđar meir gáfust ţeir upp og spörkuđu honum. Međ dyggri ađstođ konu sinnar snéri hann vörn í sókn og náđi ađ trompa Black Sabbath á mörgum sviđum.
Hér fyrir neđan má heyra Hendrix og Rikka litla spila lag frćnda ţess fyrrnefnda, Woody Guthrie, "Belle Star".
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (17)
17.7.2022 | 05:52
Raunverulegt skrímsli
Víđa um heim er ađ finna frćg vatnaskrímsli. Reyndar er erfitt ađ finna ţau. Ennţá erfiđara er ađ ná af ţeim trúverđugum ljósmyndum eđa myndböndum. Sama hvort um er ađ rćđa Lagarfljótsorminn eđa Loch Ness skrímsliđ í Skotlandi. Svo er ţađ Kleppsskrímsliđ í Rogalandi í Noregi. Í aldir hafa sögusagnir varađ fólk viđ ţví ađ busla í Kleppsvatninu. Ţar búi langur og ţykkur ormur međ hringlaga munn alsettan oddhvössum tönnum.
Margir afskrifa sögurnar sem óáreiđanlegar ţjóđsögur. En ekki lengur. Á dögunum voru tvćr ungar vinkonur á rölti um Boresströndina. Ţćr voru ađ viđra hund. Hann fann skrímsliđ dautt; meterslangan hryggleysingja, 5 punda. Samkvćmt prófessor í sjávarlíffrćđi er ţetta sníkjudýr. Ţađ sýgur sig fast á önnur dýr, sýgur úr ţeim blóđ og hold. Óhugnanlegt skrímsli. Eins gott ađ hundurinn var ekki ađ busla í vatninu.
Ef smellt er á myndina sést kvikindiđ betur.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
10.7.2022 | 06:43
Furđulegar upplifanir á veitingastöđum
Hvers vegna borđar fólk á veitingastöđum? Ein ástćđan getur veriđ ađ ţađ sé svangt. Mallakúturinn gargi á nćringu. Önnur ástćđa getur veriđ ađ upplifa eitthvađ öđruvísi. Eitthvađ framandi og meira spennandi en viđ eldhúsborđiđ heima. Ţó ađ pepperóni-sneiđar séu hversdaglegar má hressa ţćr viđ međ ţví ađ ţrćđa ţćr á skrítna grind.
Forréttur ţarf ekki ađ vera matarmikill. En hann getur orđiđ ćvintýralegur sé honum stillt upp eins og hnöttum himins.
Nokkru skiptir hvernig ţjónninn ber matinn fram. Til dćmis međ ţví ađ skottast međ hann á stórri snjóskóflu.
Sumt fólk er međ klósettblćti. Ţađ fćr "kikk" út úr ţví ađ borđa súkkulađidesert upp úr klósetti.
Annađ fólk er međ skóblćti. Ţá er upplagt ađ snćđa djúpsteiktan ost úr skó.
Hvernig geta beikonsneiđar sýnt á sér nýja hliđ? Til dćmis međ ţví ađ vera hengdar upp á snúru.
Smjörklípa er óspennandi. Nema henni sé klesst á lófastóran stein.
Ţađ er eins og maturinn sé lifandi ţegar hann er stađsettur ofan á fiskabúri.
Međ ţví ađ smella á mynd stćkkar hún.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
3.7.2022 | 00:07
Litli trommuleikarinn
Fá hljóđfćri veita spilaranum jafn mikla eđa meiri útrás en hefđbundiđ trommusett. Hann hamast á settinu međ öllum útlimum. Hitaeiningabrennslan er eins og mesti hamagangur á líkamsrćktarstöđvum. Trommuleikarinn ţarf ađ vera taktfastur, nćmur á nákvćmar tímasetningar og samhćfa sig öđrum hljóđfćraleikurum. Einkum bassaleikaranum. Trommuleikur er góđur bakgrunnur fyrir annan hljóđfćraleik eđa söng. Margir af fremstu tónlistarmönnum landsins hófu sinn feril sem trommuleikarar. Í fljótu bragđi man ég eftir ţessum:
Ragnar Bjarnason
Skapti Ólafsson
Óđinn Valdimarsson
Gunnar Ţórđarson
Laddi (Ţórhallur Sigurđsson)
Rúnar Ţór Pétursson
Hilmar Örn Hilmarsson
Geir Ólafs
Friđrik Ómar
Ólafur Arnalds
Bjartmar Guđlaugsson
Jónas Sigurđsson
Smári Tarfur
Krummi Björgvinsson
Friđrik Dór
Tónlist | Breytt 1.11.2022 kl. 11:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
26.6.2022 | 02:27
Bönnuđ lög
Embćttismönnum međ vald ţykir fátt skemmtilegra en ađ banna eitthvađ. Banniđ kitlar og embćttismađurinn fćr ađ ţreifa á valdi sínu. Tilfallandi bönn eldast illa ađ öllu jöfnu. Eitt af ţví sem útvarpsstjórnendur víđa um heim hafa skemmt sér viđ er ađ banna spilun á lögum og jafnvel heilum plötum.
Upp úr miđri síđustu öld urđu íslenskir útvarpsstjórnendur duglegir ađ banna lög. Ţeir héldu ţví áfram alveg fram á miđjan níunda áratuginn.
Međal - á annan tug - bannađra laga var fyrsta íslenska rokklagiđ, "Vagg og velta" (illa ortur texti), svo og "Allt á floti allsstađar" (klám) og "Ég er kokkur á kútter frá Sandi" (heimilisofbeldi). Tvö lög á fyrstu plötu Trúbrots voru bönnuđ. Annađ vegna ţess ađ illa ţótti fariđ međ lag eftir Wagner. Hitt út af ţví ađ orđiđ kýr var rangt fallbeygt. Eins gott ađ Sálin söng ekki fyrr en löngu síđar: "Haltu ekki ađ ţér hönd!".
Fróđlegt er ađ rifja upp nokkur lög sem voru ýmist bönnuđ í Bretlandi eđa Bandaríkjunum:
Mörg Bítlalög voru bönnuđ í Bretlandi. Ţar á međal "Lucy In Sky With Diamonds" (LSD dóp), "A Day In The Life" (hassreykingar), "Happiness Is A Warm Gun" (klám), "I´m The Walrus" (klám), "Back In The USSR" (Sovétáróđur) og "Come together" (Coca Cola auglýsing. "Lola" međ The Kinks var bannađ af sömu ástćđu).
Eftir ađ Bítlarnir héldu í sólóferil var enn veriđ ađ banna lög ţeirra. "Imagine" međ John Lennon (áróđur gegn hernađi) og "Give Ireland Back To The Irish" međ Paul McCartney (áróđur fyrir ađskilnađi Norđur-Írlands og Bretlandi).
Lagiđ "Puff The Magic Dragon" međ Peter, Paul & Mary var bannađ samkvćmt skipun frá ţáverandi varaforseta Bandaríkjanna, Spiro Agnew. Hann sagđi ţetta vera dóplag. Banniđ margfaldađi sölu á laginu. Höfundarnir, Peter og Paul, hafa alltaf fullyrt ađ textinn hafi ekkert međ dóp ađ gera. Hann lýsi bara uppvexti unglings.
"My Generation" međ The Who var bannađ vegna ţess ađ söngvarinn leikur sér ađ ţví ađ stama. Ţađ var skilgreint sem árás á fólk međ talgalla. Ég stamađi mjög sem barn og geri töluvert af ţví enn. Samt í mildari útgáfu međ aldrinum. Ég afgreiđi stamiđ meira eins og hik í dag. Mér ţykir gaman ađ stama og elska lög eins og "My Generation" og "You Ain´t See Nothing Yet".
Upphaflega kom stamiđ hjá söngvaranum, Roger Daltey, óviljandi til af ţví ađ hann kunni ekki textann almennilega. Öđrum ţótti stamiđ setja skemmtilegan svip á flutninginn.
Bandarísku ljúflingarnir í Blondie máttu sćta ţví ađ lagiđ "Atomic" var bannađ. Ţótti vera gegn hernađi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
19.6.2022 | 02:59
Ţetta vissir ţú ekki um Paul McCartney
Tónlist | Breytt s.d. kl. 03:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
12.6.2022 | 05:02
Ríkir og snauđir
Allskonar nefndir og stofnanir innan Evrópusambandsins elska ađ taka saman lista yfir allt milli himins og jarđar innan sambandsins og jafnvel utan ţess líka ţegar sá gállinn er á ţeim. Ástćđulaust ađ kvarta undan ţví. Ţetta veitir fjölda manns vinnu sem annars vćri ekki ađ gera neitt merkilegt.
Nú var Evrópusambandiđ ađ birta lista yfir bil á ríkum og fátćkum í Evrópu. Byggt er á fjölţćttum stađli sem kallast GIN. Í ljós kom ađ minnsta bil er í Fćreyjum. Sem ég svo sem vissi fyrir. Dáldiđ broslegt ađ Fćreyjar eru ekki í Evrópusambandinu.
Annar og skyldur listi Evrópusambandsins sýnir ađ fátćkt er minnst i Fćreyjum af öllum Evrópulöndum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
5.6.2022 | 01:40
Aldrei aftur Olís
Ég átti leiđ um Mjóddina. Í hitamollunni langađi mig skyndilega - en ekki óvćnt - í ískalt Malt og íspinna. Til ađ komast í ţćr krćsingar renndi ég ađ bensínstöđ Olís, eins og svo oft áđur í svipuđum erindagjörđum. Um leiđ og ég sté inn um dyrnar ákvađ ég ađ byrja á ţví ađ skjótast á salerni til ađ pissa - vitandi ađ Maltiđ rennur hratt í gegn. Líka afgreiddur krabbameinssjúklingur í blöđruhálskirtli. Ţađ kallar á tíđ ţvaglát.
Ég bađ afgreiđsludömuna um lykilinn ađ salerninu. Hún svarađi međ ţjósti: "Salerniđ er bara fyrir viđskiptavini. Ţú hefur ekki verslađ neitt. Ţú ert ekki viđskiptavinur!"
Hún strunsađi í burtu og fór ađ sinna einhverju verkefni; svona eins og til ađ undirstrika ađ samskiptum okkar vćri lokiđ. Sem og var raunin. Samskiptum mínum viđ Olís er lokiđ - til frambúđar.
Uppfćrt 7.6.
Fulltrúi Olís hringdi í mig áđan. Hann bađst ítrekađ afsökunar á móttökunum sem ég fékk. Hann er búinn ađ funda međ starfsfólkinu í Mjódd og útskýrđi fyrir mér hvernig á ţessum mistökum stóđ. Í stuttu máli var um einskonar misskilning ađ rćđa; eđa réttara sagt ţá oftúlkađi afgreiđsludaman fyrirmćli sem henni voru gefin skömmu áđur en mig bar ađ garđi. Ég ţáđi afsökunarbeiđnina og hef tekiđ Olís í sátt.
Viđskipti og fjármál | Breytt 7.6.2022 kl. 21:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (30)