Enn er lag

faereyskt kantry
faereyskt kantry
  Þarna eru þrjár helstu kántrý-stjörnur Færeyja á ferð:  Hallur Joensen,  Evi Tausen og Kristina Skoubo Baerendsen.  Einnig íslenskir gestir.  Í annarri færslu hér fyrir neðan má heyra músiksýnishorn og upplýsingar um tónlistarhátíðina HEIMA.   
   
heima
 

Bókin "Gata, Austurey, Færeyjar, Eivör og færeysk tónlist"

  Nýverið kom á markað bók.  Hún heitir "Gata,  Austurey,  Færeyjar,  Eivör og færeysk tónlist".  Svo einkennilega vill til að hún hefur hvarvetna fengið lofsamlega dóma og umsagnir.  Það er gaman.  Verulega gaman.  Eðlilega hefur líka verið bent á örfáa hnökra.  Fyrst og fremst tæknilega.  Engin stórslys.  Stærsti gallinn er að 3 orð duttu aftan af einum kafla.  Það kemur ekki að sök.  Þau skipta ekki máli.  Engu að síður skrítið vegna þess að orðin voru með í endanlegu umbroti sem sent var til prentsmiðjunnar. 

  Almennt virðist sem fólk finni sitthvað áhugavert og skemmtilegt í bókinni.  Færeysk-íslenska orðabókin í bókinni vekur alltaf kátínu.  Einhverjir hafa prófað með lystugum árangri mataruppskriftir Eivarar.  Aðrir skemmta sér konunglega við að skoða allar myndirnar.  Enn öðrum þykir gaman að lesa fróðleik um Færeyjar.  Margt kemur mörgum á óvart.  Áhugasamir um tónlist Eivarar fá endalausar vangaveltur og upplýsingar um hana.

  Bókin er ekki bundin við neinn aldurshóp.  Ég hef orðið var við unglinga sem lesa hana sér til gamans og alveg upp í fólk á níræðisaldri.  Á Fésbók hef ég rekist á nokkur skemmtileg "komment" um bókina og vísanir í hana. 

  Þessa mynd rakst ég á.  Hún er á Fésbókarsíðu Færeyings,  Eiler Fagraklett.  Ég þekki hann ekki en kannast við bókina á myndinni.  Textinn við myndina er:  The Icelandic invasion of all things Faroese continues...     

Litli Íslandstúrinn 

  Á Fésbókarsíðu færeysku tónlistarkonunnar og fatahönnuðarins Laila av Reyni er þessa mynd að finna undir textanum "Kul bók":

kul bók 

  Þetta "kommentaði" Margrét Traustadóttir á Fésbók:

  Átti rólega morgunstund eftir útivist og las bókina Eivor sem mér áskotnaðist í jólagjöf og var röðin komin henni og hún var kláruð. Hef alltaf dáðst þessari söngkonu. Takk Jens Gud góð lesning og gaman hvernig þú tvinnaðir meðfram inn Færeyskum fróðleik  

  Þetta "kommentaði"  Ásdís Kristjánsdóttir á Fésbók:

Get mælt með bókinni Eyvör,Gata,Austurey,Færeyjar. Stórskemmtileg bók, fróðleg og með flottum myndum. Er nú byrjuð á Ég man þig eftir Yrsu og hún lofar góðu  ég hef aldrei verið mikill lestrarhestur en það er að breytast 

  Hér er ítarleg umsögn Bubba um bókina:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1356456/ (copy/paste)

 http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1356456/

  Þannig var bókin afgreidd í héraðsfréttablaði norð-vesturlands:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1338804/

  Og í vikublaðinu Reykjavík:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1337565/

  Bara svo fátt eitt sé tínt til.  Mér skilst að bókin sé ódýrust í verslun Smekkleysu á Laugarvegi 35. 

gata_austurey_eivor_1223572


HEIMA - Stórkostleg tónlistarveisla í Hafnarfirði

  23. apríl verður boðið upp á glæsilega tónlistarveislu í Hafnarfirði.  Menningar- og listafélag Hafnafjarðar blæs til fjörsins.  Fyrirmyndin er sótt til Götu í Færeyjum.  Þarlendir segjast hafa sótt hugmyndina til Íslands.  Þá væntanlega til Menningarnætur.  Uppskriftin er sú að boðið er upp á fjölda hljómleika í heimahúsum.  

  Samtals er boðið upp á 13 tónlistaratriði í 13 heimahúsum í miðbæ Hafnarfjarðar,  svo og Fjörukránni og Gaflaraleikhúsinu.  Öll hvert öðru meira spennandi.  Flest tónlistaratriðin spanna 40 mínútur.  Flest eru þau flutt á að minnsta kosti tveimur stöðum um kvöldið.   Vel skipulagðir tónleikagestir geta náð hljómleikum margra flytjenda um kvöldið.       

  Fjörið hefst klukkan 20.00.  

 

Eftirtaldir stíga á stokk:

 - Hallur Joensen & félagar 

 - Steindór Andersen & Hilmar Örn Hilmarsson

 

 - Bjartmar Guðlaugsson

 

 - Vök (sigurhljómsveit Músíktilrauna í fyrra)

 

 - Fjallabræður

 

 - Snorri Helgason & Silla

 

 - Jónas Sigurðsson

 

 - Elíza Newman og Anna Magga 

 

 - Mono Town

 

 - Hot Eskimos

 

 - DossBaraDjamm (Steinn Ármann,  Davíð Þór Jónsson o.fl.)

 

 - Kátir piltar 

 

 - Ylja

 

  Hallur Joensen er heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Heima.  Hann er stærsta nafn í færeyskri kántrý-músík.  Hann er vel kynntur í kántrý-senunni víða um heim.  Hann hefur meðal annars sungið inn á plötu með Kris Kristofferson,  Charley Pride,  Bellamy Brothers og Katarínu Bærendsen.  Bara svo fá af mörgum nöfnum séu nefnd.  Eitthvað af þessu fólki fylgir Halli til Íslands.  

  Eftir að stofuhljómleikum í heimahúsum lýkur,  um klukkan 23.00,  treður Hallur upp í Gaflaraleikhúsinu.  Þar verður sömuleiðis "opinn hljóðnemi" og eitthvað fleira sprell.  Um svipað leyti hefst í Fjörukránni dansleikur með hafnfirsku stuðboltunum í Kátum piltum.   

  Miðasala á Heima hefst í dag (mánudaginn 14. apríl) á Súfistanum í Hafnarfirði.  Miðinn inn á öll herlegheitin kostar aðeins 4500 kall.  Vegna þess að heimahús rúma í besta falli aðeins örfáa tugi gesta eru fáir miðar í boði.  Fyrstir koma fyrstir fá.  

  Fleiri miðar eru í boði inn á einungis dansleik Kátra pilta í Fjörukránni og dagskrá Halls Joensen í Gaflaraleikhúsinu á 2500 kall.  

 

  Nánar á:  www.mlh.is 


Lulla frænka og jólaöl

  Þegar ég var í Myndlista- og handíðaskólanum á áttunda áratugnum var stranglega bannað að selja bjór á Íslandi (nema á Keflavíkurvelli).  Þingheimur taldi bjór vera stórhættulegan drykk sem myndi tortíma mannkyninu.  Ég hafði efasemdir og bruggaði dökkan bjór.  Líka vegna þess að námslánin dugðu ekki til að ég gæti styrkt ríkiskassann með myndarlegum fjárframlögum í gegnum vínbúðir ÁTVR.  Þrautalending var að brugga bjór.  

  Svo bar við eitt sunnudagskvöld að ég tappaði bjórnum á flöskur.  Allt var á kafi í snjó (úti,  vel að merkja) og ófærð.  Þá birtist Lulla frænka skyndilega í útidyrunum hjá mér.  Hún var alveg ónæm fyrir muni á færð og ófærð.  Það vissi enginn til þess að hún hefði einhvertíma lent í vandræðum á Skodanum sínum vegna ófærðar.  Þó hlýtur það að hafa gerst.  Ég hef áður sagt frá því þegar öll umferð lá niðri í Reykjavík vegna brjálaðs veðurs.  Allt lamaðist.  Fólk komst hvorki til vinnu né í skóla.  Öryrkjabíllinn fór hvergi.  En Lulla brunaði á sínum bíl frá Skúlagötu til Hvíta bandsins efst á Skólavörðustíg.  Og aftur til baka um kvöldið.  Eins og ekkert væri.

  Jæja,  nema það að komin inn á gólf hjá mér rak Lulla augu í bjórinn.  Það hýrnaði heldur betur yfir kellu.  Hún klappaði saman höndum og hrópaði í fögnuði:  "Þetta lýst mér á!  Húrra!  Ég hef ekki fengið jólaöl frá því að ég var krakki.  Nú ber vel í veiði.  Ég verð að fá glas af jólaöli hjá ykkur."

  Ég vildi ekki upplýsa Lullu um að þetta væri bjór.  Lögreglan hafði alltaf töluverð afskipti af Lullu og aldrei að vita hvað hún segði laganna vörðum í ógáti.  Það var,  jú,  ólöglegt að brugga áfengan bjór.  Ég brá á það ráð að segja Lullu að ölið væri ókælt og ekki tilbúið til drykkjar.   En Lulla var viðþolslaus af löngun og sagði að það gerði ekkert til.  Jólaöl væri það besta sem hún fengi hvort sem það væri kælt eða ókælt.

  Ég hellti í hálft glas.  Lulla skellti því í sig í einum teyg og ískraði af ánægju:  "Helltu almennilega í glasið,  drengur!   Þú átt nóg af þessu.  Þetta er sælgæti."   Lulla var ekki vön að vera frek.  Nú lá rosalega vel á henni.  Ég hlýddi.  En hafði nettar áhyggjur af þessu.  Lulla hafði aldrei bragðað áfengi.  Hún hafði óbeit á því.  

  Lulla drakk frekar hratt úr fulla glasinu og vildi meira.  Hún fékk aftur í glasið.  Drakk heldur hægar úr því.  Að því loknu sagði hún:  "Ég er kominn með svima."  Hún var orðin þvoglumælt.  Ég notaði tækifærið og sagði:  "Það borgar sig ekki að drekka meira af ölinu.  Það er ekki alveg tilbúið til drykkjar."  

  Lulla féllst á það.  Sagðist ætla að koma sér heim.  "Þetta er ekkert óþægilegur svimi," útskýrði hún.  "En ég ætla samt heim og leggja mig."  

  Eftir að hafa kvatt heimilisfólkið og þakkað fyrir sig fór Lulla fram í forstofu og tróð sér í stígvél.  Það gekk brösulega.  Lulla vaggaði óstöðug yfir stígvélunum og slagaði utan í vegg.  "Þetta er furðulegt,"  tautaði hún.  "Það er eins og fæturnir hitti ekki í stígvélin.  Ég vona að ég sé ekki að fá matareitrun." 

  Áhyggjur mínar jukust.  Það hvarflaði að mér að hvetja Lullu til að taka leigubíl.  Jafnharðan vissi ég að enga leigubíla var að fá í þessari ófærð.  Að lokum komst Lulla í bæði stígvélin eftir heilmikið puð.  Hún slagaði út í bílinn sinn.  Ég fylgdist með út um glugga.  Lulla kveikti sér í sígarettu um leið og hún settist inn í bílinn.  Hún setti bílinn ekki í gang næstu 40 mínútur.  Keðjureykti bara inni í bílnum.  Loks ræsti hún bílinn og brunaði af stað í gegnum snjóskaflana.

  Þegar ég áætlaði að Lulla væri komin heim til sín hringdi ég í hana.  Mér til óblandinnar gleði svaraði hún í heimasímann.  Heimförin hafði gengið vel.  Ég spurði hvernig sviminn væri.  Lulla svaraði:  "Hann er notalegur.  Ég ætla að leggjast en ekki sofna strax."  

--------------------------------------- 

   Fleiri sögur af Lullu frænku:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1371568/

--------------------------------------- 

   Hans klaufi

    

--------------------------------------

  Fyrir þremur áratugum eða svo stýrði Bryndís Schram ofur vinsælum barnatíma Sjónvarpsins.  Fjölmiðlakannanir mældu mjög gott áhorf.  Það einkennilega var að uppistaðan af áhorfendum voru miðaldra og eldri karlmenn. 

  Líkt þessu er hlustendakönnun á vinsælum barnatíma í færeyska útvarpinu.

100& hlustenda barnatímans eru fullorðnir

 


Fellir dægurlag morðingjann?

  Það hefur ekki farið hátt í íslenskum fjölmiðlum að illræmt dægurlag spilar hlutverk í réttarhöldunum yfir s-afríska hlauparanum og morðingjanum Óskari Pistorius.  Hlauparinn er sakaður um að hafa viljandi myrt kærustu sína í frekju- og afbrýðiskasti.  Hans vörn felst í því að þvert á móti hafi hann ætlað að vernda kærustuna fyrir hættulegum innbrotsþjófi.  Hann hafi fellt hinn meinta innbrotsþjóf með því að skjóta hann fjórum sinnum.  Síðar kom í ljós að ekki var um innbrotsþjóf að ræða heldur hafði hlauparinn skotið og myrt kærustuna.  Haldið að hún væri innbrotsþjófurinn.

  Í réttarhöldum yfir morðingjanum er dregin upp mynd af honum sem sjálfselskum,  stjórnsömum,  frekum,  afbrýðisömum,  ógnandi og byssudýrkandi skapofsamanni.  Sem dæmi um persónuleika hans og ógnandi framkomu er vísað í ökuferð kærustuparsins í kjölfar heiftarlegs rifrildis.  Þar á Óskar að hafa "blastað" á fullu illræmdu dægurlagi með hótandi texta,  Bitch, Don´t Kill My Vibe.  Í honum er viðmælandinn,  kona,  ítrekað ávörpuð með orðinu tík (bitch).  Í textanum er henni hótað dauða.  Þar segir meðal annars:  "Ég veit að þú verður að deyja á sársaukafullan hátt" (I Know You Had to Die in a Pitiful pain).

  Með því að spila þetta fyrir kærustuna í uppnámi er hlauparinn sakaður um að hafa notað texta lagsins sem hótun.  Hótun sem morðinginn stóð við.  Og hann hefur vondan músíksmekk.  

.  

--------------------------------------

 

  Allt annað:  Minnir þetta ekki einhvernvegin á hefðbundið viðtal við SDG? 

sdg

 


mbl.is „Öskraði hún þegar þú skaust hana?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsmyndir afhjúpa geðheilsu

  Sjálfsmyndir,  svokallaðar sjálfur eða "selfies",  eru tískufyrirbæri.  Í fyrra var þetta "orð ársins" í Bretlandi.  Algengasta orðið á samfélagsmiðlum í netheimum.  Og kannski víðar.  Eðlilega eru sálfræðingar og geðlæknar farnir að gefa fyrirbærinu gaum.  Niðurstaða skoðunar og greiningar á fyrirbærinu er þessi:  Það er eðlilegt og ekkert athugavert við að fólk taki sjálfsmynd og deili á fésbók og instigram.  Vandamálið er að þegar fólk verður upptekið af sjálfsmyndum þá sé andleg heilsa í ólagi.  Það er sterkt samband þarna á milli.  Þeim mun fleiri sjálfsmyndir því verri er andlega heilsan.  Sjálfhverf hugsun,  sjálfsdýrkun og þráhyggja.

  Frægasta fjölmiðlafígúra sem er uppteknust af sjálfsmyndum er kanadíski klikkhausinn Justin Bieber.     

  Þegar slegið er inn í "gúggl" orðin "selfies and mental illness" skilar leitin 50 milljón síðum.   Reyndar er þetta svo augljóst að engin þörf er á að bera málið undir sálfræðinga og geðlækna.  Ekki frekar en að hómópata-bullið eða smáskammtalækningar standast auðvitað engar alvöru vísindalegar rannsóknir.  Né heldur höfuðbeina- og spjaldhryggsruglið og það allt.  Svo ekki sé nú minnst á óþolsprófið sem nú er í tísku.

  Fólk elskar að láta plata sig og plokka af sér aura fyrir allskonar dellu.  Sumir ganga svo langt að kjósa Framsóknarflokkinn.     

----------------------------------------------------------

  Í Póllandi er fagmennska í gerð músíkmyndbanda á sama stigi.  Hér er gott dæmi um myndband ofurvinsæls lags.  Lagið er spilað sem "playback";  söngur og hljóðfæraleikur "mæmuð".  Gítarleikarinn í myndbandinu kann greinilega ekkert á gítar.  Sömu sögu er að segja um bassaleikarann.  Hann kann ekkert á bassa.  Hefur það fram yfir gítarleikarann að vera í buxum.  Bæði snúa hljóðfærinu í vitlausa átt.  Bassaleikarinn er "splæstur" inn í myndbandið eftir á.  Pólskir sjónvarpsáhorfendur eru gagnrýnislausir og halda að þetta sé "live" í hljóðveri.  

 


mbl.is Tók sjálfsmynd eftir árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málað hár og bakaðar baunir besti mælikvarði

litað hár 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ég hitti ágætan mann í gær,  pylsusala á miðjum aldri.  Konan hans vinnur í banka.  Er bankastjóri eða eitthvað svoleiðis.  Þau voru búin að selja flugvélina sína og stóra Hummer-jeppann.  Núna eiga þau bara minni jeppana.  Þau standa í skilum með gullkortið sitt en berjast um á hæl og hnakka við að halda einbýlishúsinu og tveimur öðrum íbúðum sem þau leigja út svart.  Þau urðu að skera húshjálpina niður við nögl.  Núna kemur hún aðeins á virkum dögum.  

  Kallinn sagði:  "Ég hlakka til þess dags þegar konan fær kaupauka,  bónusgreiðslu sem nemur fernum árslaunum.  Þá get ég hætt að mála á mér hárið og neglurnar sjálfur.  Þá get ég farið á réttinga- og sprautuverkstæði og látið aðra mála á mér hárið og neglurnar.  Við sem viljum fá strípur í hárið úti í bæ og lakkaðar neglur,  líka táneglur,  þurfum að stofna þrýstihóp.  Jafnvel tvo.  Einn fyrir strípur og annan fyrir neglur.  Það verður að ríkisvæða skuldir tekjuhæstu einstaklinga svo við geti um frjálst og litað höfuð strokið."

  Þetta er í hnotskurn lýsing á því hvar skóinn kreppir sárast.  Einnig sá kompás sem mælir nákvæmast kreppu í efnahagslífi.  Kreppu er ekki lokið fyrr en menn hætta að mála á sér hárið sjálfir og gjaldeyrishöftum hefur verið aflétt.  Forstjóri Ikea í Garðabæ varði gríðarlega verðhækkun á baunasúpu fyrirtækisins með fullyrðingu um að kreppan sé að baki.  Hið rétta er að kreppunni er lokið í Ikea en ekki utan Ikea.  Ástæðan fyrir kreppulokum í Ikea er sú að lögfræðingar eru að mestu hættir að skipta um verðmiða á húsgögnum þar á bæ. 

  Næst besti mælikvarði á kreppu og góðæri felst í því að telja byggingakrana.  Í kreppu sjást fáir kranar.  Í þenslu snarfjölgar þeim.  Þegar þeir eru orðnir fleiri en tölu verður komið á er stutt í hrun.  

  Í Bretlandi eru bakaðar baunir nákvæmasti mælikvarðinn.  Þegar þrengist um efnahag Breta eykst sala á bökuðum baunum svo um munar.  Í dýpstu kreppu nemur sala á Heinz bökuðum baunum 4 milljörðum fleiri kr.  en í góðæri.   Í góðæri gráta eigendur Heinz sáran.  Eins dauði er annars vínarbrauð.      

  Engu að síður borða Bretar af miklum móð bakaðar baunir alla morgna,  jafnt í góðæri sem í efnahagsþrengingum.  Það sem gerist í kreppu er að bakaðar baunir sækja inn í aðra málsverði.  Þá er þeim smurt ofan á brauð í hádegi og verða uppistaða í kvöldverðarkássu.  

bakaðar baunir á brauðibaunaréttur 

litaðar augabrúnir
mbl.is Fyrir fólk sem litar sjálft á sér hárið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klaufalega uppstoppuð dýr

  Að stoppa upp dýr er list.  Að mörgu þarf að hyggja.  Til að mynda þarf listamaðurinn að þekkja vel til dýrsins.  Þekkja svipbrigði þess,  augnsvip,  munn og tennur og hreyfingar og stellingar dýrsins.  Til viðbótar felst listin í því að koma þessu öllu til skila.  Þegar vel tekst til er uppstoppað dýr nánast alveg eins og lifandi dýr.  Áhorfandinn upplifir uppstokkaða dýrið eiginlega eins og raunverulegt dýr.

  Í fámennum þjóðfélögum,  eins og því íslenska,  komast fúskarar í faginu ekki langt.  Í fjölmennum þjóðfélögum,  aðallega í útlöndum,  eru kröfurnar ekki allsstaðar miklar.  Fúskarar komast upp með að skila af sér verulega gölluðu verki.  Hér er þekkir fúskarinn ekki tanngarð rándýrsins.  Rándýr eru með vígtennur en ekki sléttan tanngarð. 

 uppstoppaður ísbjörn

  Þessi hundur er óþægilega tileygur.  Munnsvipurinn er algjört klúður.  Búkurinn er alltof smár í samanburði við höfuð og háls.  Höfuðið virðist vera bólgið og hálsinn í yfirstærð.

uppstoppaður hundur 

  Munnsvipur hreindýrsins er gallaður.  Hugsanlega hefur eitthvað dottið af snoppunni.  Nefið og hakan benda til þess. 

uppstoppað hreindýr 

  Fætur hlébarðans eru einskonar staurfætur.  Þær eru beinar og að því er virðist liðamótalausar.  Þær eru líka útskeifar.  Læri vantar á afturfætur.  Búkurinn er allur úr lagi.  Og höfuðið einnig.   

uppstoppaður hlébarði 

  Kálfurinn er eiginlega líkari hundi en kálfi.  Eyrun lafa og eru síð eins og á hundi.  Kálfar liggja heldur ekki með fætur beina eins og hundar.  Kálfar beygja hné og setja fætur undir sig

uppstoppaður kálfur 

  Refir sitja ekki með upprétt bak.  Nefið er of flatt.  Munnur skrítinn og augnsvipur ótrúverðugur. 

 

uppstoppaður refur


Ný og öflug aðferð til að endurheimta æskuljóma andlitsins

 

  Í aldanna rás hefur flestum þótt í aðra röndina gott að eldast.  Hvert einast ár færir okkur haug af meiri þekkingu á mörgum sviðum.  Það er endalaust hægt að læra eitthvað nýtt í landafræði.  Víða um heim er elsta kynslóðin í mestu metum.  Öldungar eru þeir sem kunna og vita.  Viska þeirra er í hávegum.  Viska er sambland af gáfum og hæfileikanum til að kunna að nota þær.  Öldungar gefa unga fávísa fólkinu ráð,  vel þegna gullmola.

  Á sjötta áratug síðustu aldar varð til á vesturlöndum unglingamenning.  Áður skiptist fólk í börn og fullorðna.  Unglingamenningin varð til í gegnum bandarískar kvikmyndir með Marlon Brando og síðar fleirum og enn frekar í gegnum rokkið (Presley,  Chuck Berry,  Jerry Lee Lewis,  Little Richard). 

 

  Hratt og bítandi þróaðist unglingamenning yfir í æskudýrkun.  Orðið æskudýrkun er villandi.  Það vísar til barnsaldurs en á frekar við um að eldra fólk sæki í að halda í unglingslegt útlit.  Ellilífeyrisþegar vilja líta út eins og miðaldra.  Miðaldra vilja líta út eins eins og aðeins yngri. 

  Á síðustu 20 - 30 árum hefur orðið til stór iðnaður í kringum það að hægja á eða snúa við öldrunareinkennum í andliti eldra fólks.  Svokallaðar fegrunaraðgerðir eða yngingaraðgerðir tröllríða skemmtiiðnaðinum í Bandaríkjunum og teygir anga sína víða.  Stóra vandamálið er að margir sem hella sér út í svoleiðis dæmi kunna sér ekki hóf.  Ríku kvikmynda- og poppstjörnurnar eru umkringdar já-fólki sem klappar fyrir hverri "fegrunaraðgerð" og bendir aldrei á að aðgerðin geri viðkomandi ekkert nema kjánalega/n.   

  Frægasta "fegrunar" klúðrið er Mikjáll Jackson.  Hann var huggulegur blökkudrengur sem lét breyta sér með "lýtalækningum" í afskræmda hvíta konu sem átti að líkjast ítalskri leikkonu,  Sófíu Lóren.

botox - mjbotox klúður - MJ 

  Mikjáll Jackson lét nánast endurhanna andlit sitt.  Breitt nefið var fjarlægt og annað örmjótt sett í staðinn.  Umhverfis augun var húðflúruð svört lína og augnpokar fjarlægðir til að augun yrðu stór.  Varir voru litaðar rauðar (ekki með annarri aðferð en daglegri varalitun).  Toppurinn var þegar hann mætti á lýtalæknistofuna með ljósmynda af leikaranum Kirk Douglas og bað um að fá sett á sig samskonar Pétursspor (hökuskarð).     

  Mikjáll lét framkvæma svo margar breytingar á andliti sínu að andlitsbein morknuðu.  Hann þurfti á stöðugum viðgerðum að halda.  Til að mynda voru brjósk og bein í nefinu orðin óvirk.  Hætt að ná tengingu við önnur brjósk og bein. 

  Annað frægt dæmi er svokölluð Kattakona.  Hún var um tíma gift lýtalækni.  Þau fóru hamförum í breyta andliti hennar í humátt að andliti kattar.

botox klúður - kattakonanbotox klúður - fyrir og eftir - kattakonan

  Leikkonan Daryl Hanna þótti falleg.  Hún var gift tónlistarmanninum Jackson Brown.  Hann lamdi hana.  Óþokki.  Eftir skilnað þeirra fór hún í andlitsstrekkingu og eitthvað svoleiðis.  Er nánast óþekkjanleg síðan.

botox klúður - Daryl Hannah 

  Víkur þá sögu að splunkunýrri yngingaraðferð.  Hingað til hefur svokallað botox leikið stóra hlutverkið í baráttu við Elli kerlingu.  Botoxi er sprautað inn í húðina.  Það lamar andlitsvöðva og viðkomandi verður eins og sviplaust vélmenni.  Nú er komin á markað önnur og miklu betri aðferð.  Hún kallast Frotox.  Andlitið er snöggfryst í 20 mínútur.  Við það strekkist á húðinni og allar hrukkur hverfa eins og dögg fyrir sólu.  Ólíkt Botox þarf ekki að sprauta með nál neinu í húðina.  Frystingin er svo öflug að andlitið er hrukkulaust í 4 mánuði.   Aðgerðin gengur eldsnöggt fyrir sig.  Viðskiptavinurinn finnur aðeins þægilegan þrýsting á andlitið.  Ekkert sárt eða óþægilegt.

  Ég veit ekki hvort að þetta sé í boði hérlendis.  Í Bretlandi og í Bandaríkjunum kostar svona frysting aðeins um 75 þúsund kall. 

  Ég veit reyndar ekki af hverju einhver vill losna við virðulegan svip eldra fólks og líta þess í stað út eins og einhver unglingsgalgopi.  En Frotox er byltingarkennd nýjung í boði fyrir skrítið fólk með æskudýrkun.   

botox klúður - fyrir og eftirbotox klúður - jackie_stallonebotox klúður - söngvarinn í Dead or Alive

 


Tómt rugl í umferðarmerkingum

Auðskildar umferðamerkingar eru vandfundnar.  Einkum er ruglið áberandi þegar menn frumsemja umferðarmerkingar.  Fáir þurfa nauðsynlegar á skýrum lögum og reglum að halda en þeir sem sjá um umferðarmerkingum.  Skýringin kann að vera sú að í þeim bransa eru menn iðulega fullir í vinnunni,  dómgreindarlausir og éta hamborgara.  Í verstu tilfellum fikta þeir við eiturlyf.

  Í enskumælandi löndum eru nánast allir ólæsir sem vinna við vegamerkingar.  Fyrir bragðið er ekki þverfótað fyrir rangri stafsetningu á orði eins og SCHOOL (skóli).

scholl - shcool Aschool - shoolschool - scoholschool - sohoolshcool 

  Svo ekki sé minnst á klúðrin með orðið STOP:

stop sotpstop sotp astop sotp bstop - bus sotp 

  Þegar svo ólíklega vill til að orðið STOP sé rétt stafsett þá er næsta víst að BUS í BUS STOP sé vitlaust.

stop - sus stop 

  Það væri aðeins til að æra óstöðugan að hlaða hér inn ljósmyndum af vegamerkingum með orðinu CLEAR eða öðrum sem eru stafsett á allan ómögulegan máta.

  Svo eru það hin skiltin.  Hvernig á að skilja þetta.  Önnur örin vísar til hægri.  Í texta er áréttað að halda til hægri.  Hin örin vísar til vinstri.  Vegurinn virðist jafnframt sveigja til hægri. 

skilti - beygja til hægri 

  Textann má skilja á tvo vegu:  "Dragið úr hraða -  Börn á ferð"  eða "Hægfara börn".  Sennilega er átt við fyrrnefndu túlkunina.  Til að allrar sanngirni sé gætt þá hef ég séð svona skilti og get vottað að átt hefur verið við táknmyndina af barninu.  Bakspiki hefur verið bætt við.  Sennilega á sjálfu skiltinu (það er auðvelt ef maður á svart kontakt-plast) frekar en í fótósjoppi.  Bakspikinu er þá ætlað að laða fram túlkun á að skiltið vari við hægfara börnum.  Enda býður textinn upp á það.       

skilti - hæg börn 

.

     


mbl.is Lögleysa í umferðarmerkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður

  Það er ekki öllum gefið að komast klakklaust í gegnum einföldustu líkamsræktartæki.  

20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time

20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time20 Reasons Why Going To The Gym Is A Huge Waste Of Time


Lulla frænka fann upp nýja aðferð

  Síðustu árin bjó Lulla frænka á Skúlagötu.  Hún var tíður gestur á heimili vinafólks á Leifsgötu.  Það er ekki löng akstursleið þar á milli.  Eitt sinn hringdi Lulla í mig.  Hún var dálítið drjúg yfir því að vera búin að finna upp aðferð til að keyra þessa leið án þess að þurfa að stoppa á leiðinni:  "Ég keyri bara mjög hægt alla leið," sagði hún.  "Stoppa aldrei.  Keyri á jöfnum hraða.  Þannig kemst ég alla leið án þess að stoppa."

  Ég spurði:  "En þegar kemur að ljósunum á Hverfisgötu?  Þú verður að stoppa þar ef að það er rautt ljós."

  Lulla hélt nú ekki:  "Nei, ég keyri löturhægt yfir á rauðu ljósi.  Ef að bílar eru fyrir og stopp þá beygi ég framhjá þeim og held áfram.  Bílarnir sem keyra upp og niður Hverfisgötuna stoppa þegar þeir sjá að ég held mínu striki yfir götuna. "

--------------------------------

  Fleiri sögur af Lullu frænku:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1369024/


Óhollur matur sem er hollur

  Fátt tekur meiri breytingum í áranna rás en kenningar um hollustu og óhollustu hinna ýmsu matvæla og drykkjar.  Margt sem var hollt í gær er óhollt í dag.  Annað sem var óhollt í gær er hollt í dag.  Inn í umræðuna blandast kenningar á borð við það að litlu máli skipti hvernig hádegisverður er samsettur.  Ennþá minna máli skipti hvernig morgunmatur er samsettur.  Öllu skipti hvað sé í kvöldmatinn.  Líkaminn vinni léttilega úr öllu sem neytt er fyrir klukkan 15.00 á daginn.  Það þurfi hinsvegar að gæta að því sem látið er inn fyrir varir um kvöldið. 

  Af matvælum sem áður voru talin óholl en eru í dag holl má nefna:  Egg,  beikon,  kartöflur,  súrdeigsbrauð,  mjólkur-jógúrt,  heitt kakó og kaffi. 

  Tökum dæmi:  Egg innihalda mikið af kólesteróli.  Fyrir það hafa þau verið hædd og smánuð.  Kölluð lífshættulegar kólesteról-sprengjur sem beri ábyrgð á fjölda hjartasjúkdóma.

  Í dag liggur fyrir að kólesteról skiptist í vont kólesteról og gott kólesteról.  Eggið inniheldur góða kólesterólið.  Það styrkir hjartað og margt fleira.  Stútfullt af vítamínum,  steinefnum og allskonar.   Öflug vísbending um hollust eggs er að það getur breyst í unga.  Heilbrigðan unga með gott hjarta.

  Það má líka nota spælt egg fyrir húfu.

egg á hundshöfði

  Lengi hefur því verið haldið á lofti að matvæli tapi öllum vítamínum,  steinefnum og næringarefnum við hitun í örbylgjuofni.  Hvert fara þessi efni?  Nú er búið að komast að því.  Þau safnast saman í neðra vinstra hornið í ofninum.  Það eina sem þarf að gera er að grípa með lúkunni utan um ósýnilega hrúguna og strá næringarefnunum yfir matinn. 


Hrátt sjávarfang er lífshættulegt

  Á uppvaxtarárum mínum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar var fiskmeti ánægjulega oft á borðum.  Allra handa fiskur og silungur.  Ýsa og þorskur voru oftast í matinn.  Stundum var þorskurinn saltaður vel og lengi,  vikum saman.  Það var ekkert nætursaltað.  Þetta var alvöru saltfiskur.  Ýsan var stundum látin hanga.  Sigin ýsa er meiriháttar sælgæti.  Af og til var lúða,  rauðspretta eða rauðmagi.  

  Allur var fiskurinn soðinn í langan tíma.  Látinn malla í korter eða 20 mínútur.  Eða steiktur í drjúga stund.   

  Síðari tíma kenningar ganga út á að best sé að snöggsjóða eða snöggsteikja fisk.  Þær má til sanns vegar færa.  Þannig er fiskurinn þéttari, bragðmeiri og hollari.  Gallinn við þetta er að hringormurinn stendur af sér svona stuttan hita.  Að vísu dasast hann og verður töluvert ringlaður.  En það er ekki lystugt að borða iðandi orm.  Hann getur lifað um tíma í maganum.  Síðan borar hann sig í gegnum allskonar líffæri.  Það er ekki þægilegt þegar um kannski 3ja - 4ra cm langt kvikindi er að ræða.  

  Á allra síðustu árum hefur færst í vöxt að fólk snæði hrátt sjávarfang.  Japanski þjóðarrétturinn suchi er í ört vaxandi hávegum hafður.  Tískufyrirbæri.  Bæði sem veisluréttur og partýsnakk.  Svo eru það hráar ostrur,  laxatartar,  hörpuskel og sashimi.  

  Vandamálið með hrátt sjávarfang er að það er löðrandi í spriklandi ormum,  flóm,  lús og allskonar óþverra.  Sumum finnst "töff" að snæða þannig mat.  Vandamálið er að þetta veldur magakveisum,  matareitrun og bráðaofnæmi.  Sá sem eitt sinn fær bráðaofnæmi við að snæða hrátt sjávarfang verður að sniðganga sjávarrétti það sem eftir er ævinnar.  Um líf og dauða er að tefla.    

  Ostrur eru iðulega á glæsilegustu veisluborðum.  Þær eru ofan á ísklakahrúgu og snæddar hráar.  Kokkur sagði mér að það sé ólystugt að sjá vatnið eftir að veisluhöldum lýkur,  ostrurnar uppétnar og ísklakarnir bráðnaðir.  Aðeins vatn eftir.  Yfirborð þess er allt á hreyfingu,  krökkt af lús.      

  Ef að ég man rétt eru einhversstaðar í Gamla testamentinu fyrirmæli um að einungis skuli borða sjávardýr með hreistur og ugga.  Eða eins og Bítillinn Ringo Starr orðaði það í Atlavík:  "Ekkert sem skríður." 

  Í splunku-Nýja testamentinu fjölfaldar Jesús nokkra fiska og mettar fjöldann.  Ágreiningur er um hvort að fiskurinn var hrár,  marineraður,  soðinn eða steiktur.  Maður sem hefur rannsakað þetta útilokar að fiskurinn hafi verið djúpsteiktur.  

Blobmannaspoluormurhringormur

  Ormalausir hoppa hátt

og hendast yfir slána.

  Fyrr var oft í koti kátt 

og klofað yfir rána.

.

 


mbl.is Hringormur veldur bráðaofnæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld ókeypis leið til bæta heilsuna svo um munar

  Hvað er að hrjá þig?  Streita?  Lungnasjúkdómar?  Bronkitis?  Lungnaþemba?  Ég man ekki hvað það heitir þegar fólk er andstutt.  Þegar það nær ekki því sem kallast djúpöndun.  Kannski andnauð?  Það er til einföld,  auðveld og ókeypis aðferð til að ráða léttilega niðurlögum allra þessara vandamála.

  Það eina sem þarf að gera er að syngja.  Syngja oft á dag og mikið.  Ræfilslegt humm og raul hjálpar.  Einkum til að losa um spennu/streitu.  En að þenja sig og syngja kröftuglega gerir gæfumun.  Hóflegur söngur hjálpar hóflega.  Gróflegur söngur hjálpar gróflega.  Honum fylgir öflug súrefnisinntaka.  Þegar best tekst til tæmast lungun og fyllast aftur af súrefni sem nærir frumur líkamans.  Frumur sem fá góðan skammt af súrefni eiga auðveldar með að verjast krabbameini.  Bara svo að eitt dæmi af mörgum sé nefnt.  Eftir góðan söngsprett andar söngvarinn dýpra í töluverðan tíma.  Lungun herðast og nýta súrefnið betur.  

 


Skemmtilegar öðruvísi brúðkaupsmyndir

  Brúðkaupsmyndir eru í föstum skorðum.  Þær eru yfirleitt teknar af atvinnuljósmyndara.  Fagmennska og hefð ráða för.  Brúðhjónin stilla sér upp hlið við hlið - eða að konan situr en maðurinn stendur hjá - og eru í sínum fínasta skrúða.  Karlar í jakkafötum og skartar blómi í hnappagati á kraganum.  Konur í brúðarkjóli og oft með slör.  Þau brosa breitt. 

  Vegna þess hve hefðin er rótgróin og ráðandi þá stinga undantekningarnar skemmtilega í stúf.  Þarna er greinilega um utanhússuppstillingu að ræða.  Af regnhlífinni að ráða hefur byrjað að rigna.  Gretta mannsins og hvernig hann eins og stendur í kút styðja þá kenningu.  Konan nær hinsvegar að brosa sínu breiðasta.  En hann heldur pönk-kúlinu.  

brúðk.mynd 1 

  Það er ekkert pönk í hefðbundnu brúðkaupi og hefðbundinni brúðkaupsmynd.  Þessi pönkari stígur hálft skref.  Hann hefur ekki tímt að fórna hanakambinum heldur flaggar honum með ýktum gulum og grænum lit.  Hann er með lokk í neðrivör,  hundaól um hálsinn og þar fyrir utan hengilás í grófri keðju.  Þó að daman laðist að pönkaranum þá heldur hún sig við borgaralegu hefðina í klæðaburði og brosi. 

brúðk.mynd 3 

  Þarna er allt samkvæmt hefðinni.  Nema þessi Vandetta-gríma sem karlinn ber ásamt sleggju.  Ég held að Vandettu-gríman standi fyrir uppreisn og einhverskonar anarkisma.  Það er engin uppreisn og enginn anarkismi í hefðbundnu brúðkaupi og hefðbundinni brúðkaupsmynd. 

brúðk.mynd 4 

  Það er ekki gott að ráða í þetta.  Kallinn hampar tveimur rifflum.   Konan hylur andlitið algjörlega með slæðu.  Ég reyndi að grafast fyrir um uppruna myndarinnar.  Án árangurs.  Enda með ótrúlega takmarkaða tölvukunnáttu.  Mig grunar að myndin sé frá Mið-Austurlöndum - eða þar í grennd.  Þar um slóðir er hefð að skjóta úr rifflum upp í loftið í brúðkaupsveislum.  Bandarískir hermenn á þessum slóðum eru ekki upplýstir um þessa hefð.  Fyrir bragðið slátra þeir heilu brúðkaupsveislunum á einu bretti:  Brúðhjónum og gestum þeirra.  Í bókhaldi Bandaríkjahers og í fréttatilkynningum er uppátækið skráð sem vel heppnuð árás á skæruliða.  Eftir ítrekaðar slátranir á brúðhjónum og gestum þeirra fá bandarískir hermenn orðu,  Purple Haze,  fyrir djarflega slátrun á skæruliðum.      

brúðk.mynd 5

  Algengt er að aukabrúðkaupsmynd sýni brúðhjón skera í sameiningu sneið af brúðkaupstertu.  Oftast undir breiðu brosi.  Þarna setur konan aftur á móti upp hryllingssvip og karlinn er krítískur á svip. 

brúðk.mynd 6 

  Algengt er að brúðkaupsmynd sýni brúðhjón kyssast.  Ég átta mig ekki á hvað er í gangi með konuna lengst til hægri.  Hún heldur á opinni öskju í vinstri hendi og treður með hægri hendi einhverju niður á milli brjósta nýgiftu konunnar.   

brúðk.mynd 7

  Sérkennilegustu brúðkaupsmyndir sem ég hef séð eru af parinu sem hafði ekki efni á að kaupa sér föt.  Brúðkaupsveislan var svo dýr.  Þau létu bara vaða klæðalaus.  

brúðk.mynd 2

 


Boltaleikir eru hættulegir

boltaleikir 16boltaleikir 12boltaleikir 10boltaleikir 8boltaleikir 6boltaleikir 2boltaleikir 3boltaleikir 15 guðjón þórðarsonboltaleikir 4boltaleikir 5boltaleikir 1

  Um daginn var sýnt í sjónvarpi frá blönduðum bardagaíþróttum.  Íslendingur,  Gunnar Nelson,  tuskaðist við útlending.  Viðureignin stóð í örfáar mínútur.  Á þeim stutta tíma bankaði Gunnar olnboga í andlit útlendingsins.  Einhverjir töldu sig sjá örla fyrir blóði á andliti útlendingsins.  Mörgum var illa brugðið.  Þótti ofbeldið yfirgengilegt og ekki til fyrirmyndar.  Sumir gengu svo langt að vilja banna sjónvarpsútsendingar af bardagaíþróttum af þessu tagi.  Aðrir töldu nóg að útsendingin væri stranglega bönnuð börnum og unglingum.  Einungis rígfullorðið fólk hefði þroska til að virða fyrir sér ofbeldið.   

  Út af fyrir sig er gott að fólk sé gagnrýnið á ofbeldi.  Ofbeldi er ekki til eftirbreytni fyrir leikmenn,  fremur en áhættuatriði í kvikmyndum. 

  Einu íþróttir sem ég fylgist með eru bardagaíþróttir,  bæði box og blandaðar.  Vissulega eru átök á milli keppenda.  En það eru strangar leikreglur.  Til að mynda má ekki sparka í pung eða pota í augu.  Keppendur virða það.  Líka áhorfendur. 

  Því er ólíkt farið með boltaleiki.  Að vísu fylgist ég ekkert með þeim.  Hinsvegar kemst ég ekki hjá því að verða var við gríðarlegt ofbeldi í boltaleikjum og í kringum þá.  Það er ekki þverfótað fyrir myndum og myndbrotum af blóðugum boltaleikmönnum og áhangendum,  öskrandi þjálfurum,  slagsmálum,  punghöggum og svo framvegis.  Ósjaldan enda boltaleikir í allsherjar óeirðum,  brotnum stólum og öðrum bareflum.  Boltaleikir eru hættulegir.  Þeir eru hættuleg ofbeldisíþrótt.  Ekki aðeins fyrir óharðnaða áhorfendur sem þurfa að horfa upp á ofbeldið heldur enn fremur fyrir leikmenn.  Ef þeim er ekki sparkað út og suður á leikvellinum,  lamdir í svaðið og það allt þá eru þeir myrtir ef þeir standa ekki undir væntingum.  Þannig er farið að afgreiða þá í Lýbíu og fleiri löndum.  Í N-Kóreu eru þeir hýddir.  Er mér sagt.  Reyndar þrætti s-kóreskur hermaður sem ég hitti í Noregi fyrir það.  En hann er ekkert endilega áreiðanleg heimild.  

boltaleikir 11lboltaleikir 14boltaleikir 13boltaleikir 9

boltaleikirA

Fjörið hefst á þriðjudaginn

 

   Laila av Reyni er færeysk tónlistarkona,  fatahönnuður,  stílist og innanhúsarkítekt.  Hún er hátt skrifuð á öllum þessum sviðum.  Til að mynda hefur hún ítrekað hannað fatnað á fulltrúa Danmerkur í Miss World;  einnig á Eivöru og fleiri stjörnur.  Á undanförnum árum hefur Laila verið þekkt bakraddasöngkona í Færeyjum.  Á síðasta ári sendi hún frá sér plötu með frumsömdu efni.  Platan fékk afskaplega lofsamlega dóma og var tilnefnd til færeysku tónlistarverðlaunanna FMA 2014. 

  Núna er Laila stödd á Íslandi,  meðal annars til að fylgjast með tískusýningu í Hörpu.  Hún ætlar líka að stíga á stokk og syngja fyrir Íslendinga.  Hljómleikarnir bera yfirskriftina "Litli Íslandstúrinn 2014 * 1. - 5. apríl".  Með í för er færeysk-íslenski dúettinn Sometime.  Hann er skipaður Rósu Ísfeld oog Danna,  kenndum við Maus.

  Fjörið hefst þriðjudaginn 1. apríl í Lucky Records á Rauðarárstíg.  Það er ekki aprílgabb.  Hljómleikarnir byrja klukkan 16.30 og standa til klukkan 18.00.  Ókeypis aðgangur.  

  Næstu hljómleikar eru fimmtudaginn 3. apríl í Café Rosenberg við Klapparstíg.  Þeir byrja klukkan 21.00.  Miðaverð er 2000 kr.

  Daginn eftir,  föstudaginn 4. apríl,  fá Akranesingar að njóta skemmtunar.  Þá eru hljómleikar í Gamla Kaupfélaginu.  Þeir standa frá klukkan 23.00 til 03.00.  Miðaverð er 2000 kr. í forsölu en 2500 við hurð.

  5. apríl er "Langur laugardagur" í miðbæ Hafnarfjarðar.  Þá er opið hús í Fjörukránni á milli klukkan 13.00 til 17.00.  Margt er þar um að vera á vegum Menningar & listafélags Hafnarfjarðar,  Norrænu Ferðaskrifstofunnar,  Hönnunar í Hafnarfirði o.fl.  Boðið verður upp á ýmsar uppákomur,  færeyskt smakk,  glaðning fyrir börn og sitthvað fleira,  ásamt því sem seldar verða nýbakaðar vöfflur og kaffisopi.  

  Klukkan 18.30 er í boði,  fyrir aðeins 5000 kr.,  færeysk veislumáltíð og lokahljómleikar "Litla Íslandstúrsins".  Heimsfrægur færeyskur stjörnukokkur,  Birgir Enni,  töfrar fram bestu fiskisúpu í heimi,  matreiðir lamb og fleira góðgæti.  Í leiðinni fræðir hann gesti um leyndarmálið á bakvið veisluna.  

  Hljómleikarnir hefjast klukkan 21.30.  Ef einungis þeir eru sóttir er miðaverð 2000 kr.      

 

litli Íslandstúrinn 1.-5. 2014


Lulla frænka um fallega hárið á sér

  Lullu föðursystur minni datt margt í hug.  Hana rangminnti um suma atburði.  Aðra atburði túlkaði hún á sinn hátt.  Oft töluvert fjarri raunveruleika.  Fáir urðu til að leiðrétta hana.  Lulla átti það til að vera sjálfhælin.  Samt án rembings eða hroka.  Það var einhvernvegin frekar eins og hreinskilni og einlægni.

  Þegar ég hóf nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands kom Lulla því að við hvern sem heyra vildi að ég hefði erft teiknihæfileika frá henni.  Hún sýndi fólki teikningar eftir sig því til sönnunar.  Teikningar Lullu voru líkastar teikningum fjögurra ára barna af Óla priki (punktur, punktur, komma, strik).  Teikningarnar áttu að vera af tilteknu frægu fólki.  Það var ekki séns að geta sér til um hver var hvaða Óli prik.

  Systir Lullu var eiginlega eina manneskjan sem leiðrétti hana og benti á villur.  Þær systur voru gestkomandi ásamt mér og fleirum heima hjá systurdóttur mömmu.   Systurnar fóru að rifja upp atburði frá æskuárum sínum.  Lulla sagði:  "Ég var með óvenju fallegt hár sem barn og unglingur.  Ég var með fallegasta hár af öllum í sveitinni.  Ég var með þykkasta hárið og lengsta hárið.  Það var tinnusvart og liðað.  Það stirndi á það.  Allir dáðust að hárinu á mér."

  Lóa systir hennar gerði athugasemd:  "Dæmalaus della.  Það voru allar stelpur í sveitinni með þykkt og sítt hár.  Þitt hár var ekkert öðruvísi en þeirra hár."

  Lulla bakkaði ekki.  Hún kom með óverjandi gullmola:  "Þú getur nú barasta spurt pabba heitinn að þessu.  Sumarið áður en hann dó viðurkenndi hann að ég hafi verið með einstaklega fallegt hár sem barn og unglingur.

--------------------------------------------------

Fleiri sögur af Lullu frænku:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1366492/

--------------------------------------------------

   

  Það er skelfilegt að heyra þennan 5 ára gutta segja frá sinni stuttu ævi.  Hann segist vera fastur í fangelsi eftir að hafa skotið mann,  til þess eins að sjá hann deyja.  Það er svo langt síðan guttinn sá til sólar að hann man ekki eftir því.  


Fór með lungnabólgu inn á spítala, vaknaði án handa og án fóta

norska konan

 

  56 ára kona var lögð inn á sjúkrahús vegna lungnabólgu.  Til að byrja með hafði hún það bara alveg gott.  Hún þambaði að venju - eins og ekkert hefði í skorist - sinn kóladrykk og maulaði sitt sælgæti,  nokkuð sátt við tilveruna.  Lífið gekk sinn vanagang.  Þetta var ekkert mál út af fyrir sig.  Engin ástæða til að kippa sér neitt sérstaklega upp við.  

  Skyndilega fann konan fyrir sérkennilegum fótakulda.  Svo leið yfir hana.  Þegar hún vaknaði upp uppgötvaði hún sér til skelfingar að búið var að fjarlægja af henni hendur og fætur.  

  Við eftirgrennslan komst konan, hin norska Anniken Kvaal,  að því að baktería úr lungunum hafði komist út í blóðið.  Bakterían olli blóðeitrun með þessum afleiðingum.  Til að bjarga lífi konunnar dugði ekki minna en höggva af henni alla útlimi.   

  Vitaskuld var henni töluvert brugðið.  Engu að síður er hún þakklát læknunum fyrir lífsbjörgina.  Þeir gerðu það sem þurfti að gera.   

vaknaði án útlima

 

 

 

 

 

 

 

---------------------------------------

  Eitt af þekktustu lögum hljómsveitarinnar Nirvana frá 16 þúsund manna þorpinu Aberdeen í Bandaríkjunum heitir  Come As You Are.   Nú hafa gömul (auglýsinga-) póstkort frá hóteli í Aberdeen skyndilega orðið eftirsótt.  Slagorð hótelsins var Come as you are.  Það þykir næsta víst að slagorð hótelsins hafi orðið höfundi sönglagsins,  Kurt Cobain,  beint eða óbeint innblástur.  Þegar smellt er á myndina stækkar póstkortið og slagorðið verður læsilegra.  

come as you are

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband