22.5.2022 | 03:58
Félagsfærni Bítlanna
Félagsfærni er hæfileiki til að eiga samskipti við aðra. Það er lærð hegðun. Börn herma eftir öðrum. Félagslynt fólk á öllum aldri speglar annað fólk. Góðir vinir og vinkonur tileinka sér ósjálfrátt talsmáta hvers annars, hegðun, ýmsa takta, húmor, smekk á fatnaði, músík og allskonar.
Á upphafsárum Bítlanna voru þeir snyrtilega klipptir; stutt í hliðum og hnakka en dálítill lubbi að ofan greiddur upp. Svo fóru þeir að spila í Þýskalandi. Þar eignaðist bassaleikarinn, Stu Sutcliffe, kærustu. Hún fékk hann til að greiða hárið fram á enni. Hinir Bítlarnir sprungu úr hlátri er þeir sáu útkomuna. Þeir vöndust hárgreiðslunni. Innan skamms tóku þeir, einn af öðrum, upp sömu greiðslu. Nema trommarinn, Pete Best. Hann hefur alla tíð skort félags- og trommuhæfileika. Öfugt við arftakann, Ringo.
Þegar fram liðu stundir leyfðu Bítlarnir hártoppnum að síkka meira. Að því kom að hárið óx yfir eyru og síkkaði í hnakka. Svo tóku þeir - tímabundið - upp á því að safna yfirvaraskeggi. Þegar það fékk að fjúka söfnuðu þeir börtum. Um leið síkkaði hárið niður á herðar.
Áður en ferli hljómsveitarinnar lauk voru allir komnir með alskegg. Hártíska Bítlanna var aldrei samantekin ráð. Þeir bara spegluðu hvern annan. Á mörgum öðrum sviðum einnig.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
15.5.2022 | 04:02
Geggjuð rúm
Allflest rúm eru hvert öðru lík. Þau eru íburðarlitlar ljósar ferkantaðar dýnur ofan á grind. Þessi einfalda útfærsla hefur gefist vel í gegnum tíðina. En eins og með svo margt annað þá sjá einhverjir ástæðu til að gera þetta öðruvísi.
Hvað með líkamslaga dýnu? Eða vera vel varinn í jarðskjálfta í svo háu rúmi að stíga þarf upp tröppur til að komast í það og klöngrast ofan í það umlukið traustum veggjum.
Svo er það hreiðrið. Í það þarf marga púða til að herma eftir ungum og eggjum.
Bókaástríða er plássfrek. En hún getur sparað kaup á rúmi.
Sjómenn komnir á aldur geta upplifað góða tíma í bátsrúmi.
Að sofa í líkkistu er varla þægilegt. Samt er vel bókað í gistihús sem býður upp á Dracúla-þema.
Kóngafólki hættir stundum við að fara hamförum í prjáli. Það fylgir stöðu þess.
Í Suðurríkjunum í USA taka margir ástfóstri við pallbílinn sinn. Svo mjög að þeir breyta honum í rúm.
Vatnsrúm eru allavega.
Þegar barn hefur horft á kvikmyndina Jaws er freistandi að hræða það með því að hátta það í hákarlsrúm.
Smellið á mynd til að hún verði skýrari og stærri.
Lífstíll | Breytt 16.5.2022 kl. 06:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.5.2022 | 01:30
Minningarorð
Söngvari Baraflokksins, Ásgeir Jónsson, féll frá núna 3ja maí. Hann var 59 ára. Baraflokkurinn stimplaði Akureyri rækilega inn í rokksöguna á nýbylgjuárunum upp úr 1980. Árunum sem kennd eru við "Rokk í Reykjavík".
Geiri var laga- og textahöfundur hljómsveitarinnar og allt í öllu. Frábær söngvari og frábær tónlistarmaður. Hann vissi allt og kunni í músík. Hljómsveitin átti sinn auðþekkjanlega hljóm; blöndu af pönkuðu nýróman-kuldarokki.
Ég kynntist Geira þegar hann var hljóðmaður Broadway á Hótel Íslandi um aldamótin (þekkti hann reyndar lítillega áður til margra ára). Ég bjó í næsta húsi. Þar á milli var hverfispöbbinn Wall Street. Þegar færi gafst frá hljóðstjórn brá Ásgeir sér yfir á Wall Street. Þar var bjórinn ódýrari og félagsskapurinn skemmtilegri.
Vegna sameiginlegrar músíkástríðu varð okkur vel til vina. Stundum slæddist Ásgeir heim til mín eftir lokun skemmtistaða. Þá hélt skemmtidagskrá áfram. Það var sungið og spilað. Einnig spjölluðum við um músík tímunum saman. Einstaka sinnum fékk Ásgeir að leggja sig heima hjá mér þegar stutt var á milli vinnutarna hjá honum, skjótast í sturtu og raka sig.
Geiri var snillingur í röddun. Sem slíkur kom hann við á mörgum hljómplötum. Hann var einnig snillingur í að túlka aðra söngvara. Það var merkilegt. Talrödd hans var hás (að hans sögn "House of the Rising Sun"). Engu að síður gat hann léttilega sungið nákvæmlega eins og "ædolin" David Bowie og Freddie Mercury.
Eitt sinn fór Bubbi Morthens í meðferð. Upptaka af hluta úr söng hans á plötunni "Konu" glataðist. Búið var að bóka pressu í Englandi en ekki mátti ræsa Bubba út. Geiri hljóp í skarðið. Söng það sem á vantaði. Það er ekki séns að heyra mun á söngvurunum. Þetta er leyndarmál.
Geiri var einstaklega ljúfur og þægilegur náungi. Eftir að Broadway lokaði vann hann á Bítlapöbbnum Ob-La-Di. Það var gaman að heimsækja hann þar. Hann lék ætíð við hvurn sinn fingur.
Fyrir nokkrum árum urðum við samferða í geislameðferð vegna krabbameins. Ég vegna blöðruhálskirtils. Hann vegna krabbameins í raddböndum og síðar einnig í eitlum. Við kipptum okkur lítið upp við það. Við töluðum bara um músík. Ekki um veikindi. Enda skemmtilegra umræðuefni.
Tónlist | Breytt 9.5.2022 kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.5.2022 | 08:31
Hrakfarir
Sumir eru heppnir. Þeir eru lukkunnar pamfílar. Aðrir eru óheppnir. Þeir eru hrakfallabálkar. Flestir eru sitt lítið af hvoru.
Nokkra þekki ég sem eru eins og áskrifendur að óhöppum. Til að mynda drengurinn sem brá sér á skemmtistað. Þar var stappað af fólki. Allir sátu við borð hjá öllum óháð því hvort þeir þekktust áður.
Drengurinn kom auga á gullfallega stúlku. Hún þáði dans. Hann var í þykkum ódansvænum leðurjakka, fór því úr honum og setti á stólbak. Hann bað borðfélaga að gefa honum auga. Stúlkan setti tösku sína á jakkann.
Er skötuhjúin snéru af dansgólfinu til að kasta mæðunni kom babb í bátinn. Borðfélagarnir voru á bak og burt. Sömuleiðis jakkinn og veskið. Hvorutveggja geymdi kort, skilríki og peninga. Sem betur fer var drengurinn með lyklakippu sína festa við beltið. Hann bauðst til að skutla dömunni heim.
Daginn eftir ætlaði hann að kíkja á sandspyrnu. Hann bauð dömunni með.
Á leiðinni varð bíllinn bensínlaus. Stúlkan settist undir stýr á meðan hann ýtti bílnum. Það gekk hægt og erfiðlega. Alltof langt í næstu bensínstöð. Að lokum gafst hann upp, hringdi í föður sinn, bað hann um að kaupa dráttartaug og draga bílinn að bensínstöð.
Allt tók þetta langan tíma og stutt eftir af sandspyrnunni. Allir héldu því bara heim til sín. Til að bæta fyrir klúðrið bauð kauði stelpunni út að borða næsta kvöld. Veitingastaðurinn var í göngufæri frá heimili hennar. Þau ákváðu að hittast klukkan sex á staðnum.
Drengurinn lagði sig fyrir kvöldmat. Er hann vaknaði gleymdi hann matarboðinu og fór í tölvuleik. Hann lifði sig inn í leikinn. Seint og síðar meir kíkti hann á símann sinn. Þá sá hann sms og "missed call" frá stelpunni. Hún var pirruð er hann hringdi í hana. Sagðist hafa setið eins og illa gerður hlutur í heilan klukkutíma á veitingastaðnum.
Til að gera gott úr þessu bauð hann henni í bíó. Kvöldið var ungt. Með semingi féllst hún á þetta.
Drengsi stríddi við bólur í andliti. Hann faldi þær daglega með húðlitum farða. Bíómyndin var hryllings-spennumynd. Í taugaveiklun fiktaði hann ósjálfrátt við bólurnar án þess að taka eftir því. Hann klæjaði líka smávegis í þær. Það var svo heitt í salnum. Hann nuddaði farðann af bólunum, reif ofan af sumum þeirra. Blóð sem vætlaði úr þeim dreifði hann um húðina.
Er ljós kviknuðu í hléi rak stelpan upp óp. Hún horfði með hryllingi á blóðrisa andlitið. Skipaði honum reiðilega að þvo ndlitið. Þegar hann snéri aftur var hún farin. Síðan hafa þau ekki verið í neinu samandi og hún eyddi honum af vinalista á Facebook.
Spil og leikir | Breytt 3.5.2022 kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.4.2022 | 02:12
Veitingaumsögn
- Réttur: Beikon ostborgari
- Staður: TGI Fridays í Smáralind
- Verð: 2895 kr.
- Einkunn: ****
TGI Fridays er fjölþjóðleg matsölukeðja með bar. Fyrsti staðurinn var opnaður í New York á sjötta áratugnum. Staðirnir eru mjög bandarískir, hvort heldur sem eru innréttingar, veggskreytingar, matseðill eða matreiðsla.
Beikon ostborgarinn (World Famous Bacon Cheeseburger) er matmikill hlunkur. Sjálfur borgarinn er 175 gr nautakjöt. Ofan á hann er hlaðið stökku beikoni, hálfbráðnum bragðgóðum bandarískum osti, tómatsneiðum, rauðlauk og salatblaði. Á kantinum eru franskar (úr alvöru kartöflum) og hunangs-sinnepssósa. Sú er sælgæti.
Bæði borgarinn og frönskurnar eru frekar bragðmild. Það var ekkert vandamál. Á borðinu voru staukar með salti og pipar. Ég bað um kartöflukrydd sem var auðsótt mál.
Ég er ekki mikill hamborgarakall en get með ánægju mælt með þessum.
17.4.2022 | 03:30
Brosleg fjölbreyttni á flugvöllum
Mannfólkið er (næstum því) eins misjafnt og það er margt. Það sést oft á skemmtilegan hátt á flugvöllum. Þar birtist fjölbreytt mannlíf í öllum hornum. Ekki síst þegar kemur að því að hvílast vel og lengi fyrir langt flug; nýta tímann sem best. Þá kemur sér vel að hafa hengirúm í farangrinum.
Háaldraðir flugfarþegar gera sér ekki alltaf grein fyrir því hver staða þeirra er á rennibeltinu. Þeir taka sér plássið sem þarf og hafa ekki hugmynd um að þeir séu að stífla beltið. Palli er einn í heiminum.
Mörgum flugfarþegum reynist kúnst að hafa ung börn með í för. Börn sem eru á ókunnugum slóðum og langar til að fara út um allt.
Önnur börn leyfa sér að sofna á ferðatöskunni. Enn önnur dunda sér við að líma miða á sofandi pabba. Gott á hann. Það er óábyrgt að halda sér ekki vakandi þegar ferðast er með ung börn.
Út um glugga á flugstöðvum má stundum sjá vonda meðferð á flugvélum. Svona eins og þegar rennihurð slær flugvél niður.
Árlega kemst upp um flugfarþega sem tíma ekki að borga fargjald heldur lauma sér í tösku og borga yfirvigt fyrir miklu lægri upphæð.
Að venju eru myndirnar skýrari og skilmerkilegri ef smellt er á þær.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 06:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.4.2022 | 03:51
Íslenskt hugvit vekur heimsathygli
Í Danmörku er starfrækt ein fullkomnasta og afkastamesta vinyl-plötupressa heims, RPM Records. Þar er meðal annars boðið upp á hágæða grafíska hönnun og tónlistarmyndbönd fyrir youtube. Eigandinn er grafískur hönnuður að mennt og lærður kvikmyndagerðarmaður. Hann kemur úr Svarfaðardal og heitir Guðmundur Örn Ísfeld.
Afurðir RPM Records hafa margar hverjar ratað í heimspressuna. Núna síðast segir bandaríska tímaritið Rolling Stone frá nýjustu plötu kanadísku poppstjörnunnar Weeknd, margfalds Grammy-verðlaunahafa auk fjölda annarra verðlauna og viðurkenninga.
The Weeknds Newest Record Could Destroy Your Turntable Or Your Extremities
Out of Time available as a vinyl record pressed into an actual, working saw blade.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 07:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.4.2022 | 06:43
Ofsahræðsla
Um síðustu helgi keypti erlendur ferðamaður í Færeyjum sér nesti og nýja gönguskó. Tilefnið var að hann hugðist rölta upp fjallshlíð nyrst í Norðureyjum. Fjallið heitir Borgarinn og er á Kalsey. Það nýtur vinsælda meðal útivistarfólks. Útsýni er stórfenglegt og hlíðin ekki brött en lögð þægilegum göngustíg. Enda var leiðin greið upp hana.
Er karlinn hugðist hreykja sér í miðri hlíð brá svo við að hann var gripinn ofsahræðslu. Þegar hann horfði niður hlíðina sundlaði hann af lofthræðslu. Í taugaveiklun tók hann að góla tryllingslega og baða út höndum ótt og títt. Nærstaddir skildu ekki hvað hann kallaði af því að hann gólaði á útlensku. Svo fór þó að einn maður áttaði sig á vandamálinu. Hann greip fjallgöngugarpinn föstum tökum og rölti með hann niður á jafnsléttu. Þar jafnaði hann sig hægt og bítandi, Náði úr sér skjálftanum að mestu og fékk aftur lit í kinnar.
Til að hlífa samborgurum mannsins við háði og spotti er þjóðernið ekki gefið upp.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.3.2022 | 07:10
Logið um dýr
Mannskepnan er eina lífveran í heiminum sem lýgur. Lýgur og lýgur. Lýgur upp á aðrar manneskjur. Lýgur um aðrar manneskjur. Lýgur öllu steini léttara. Þar á meðal um dýr. Sumar lygar eru svo útbreiddar og rótgrónar að í huga margra eru þær sannleikur. Dæmi:
- Gullfiskar eru sagðir vera nánast minnislausir. Þeir muni aðeins í 3 sek. Þeir syndi fram og aftur um fiskabúr og telji sig alltaf sjá nýtt og framandi umhverfi. Hið rétta er að minni gullfiska spannar margar vikur.
- Hákarlar eru sagðir sökkva til botns ef þeir eru ekki á stöðugri hreyfingu. Þetta á við um fæsta hákarla. Örfáar tegundir þurfa hreyfingu til að ná súrefni.
- Kvikmyndir hafa sýnt hákarla sem banvæna mönnum. Allt að því árlega berast fréttir af hákarli sem hefur bitið manneskju. Þetta ratar í8 fréttir vegna þess hvað það er fátítt. Af 350 tegundum hákarla eru 75% ófærir um að drepa manneskju. Þeir eru það smáir. Ennfremur komast fæstir hákarlar í kynni við fólk. Hákarlar hafa ekki lyst á mannakjöti. Í þau skipti sem þeir bíta í manneskju er það vegna þess að þeir halda að um sel sé að ræða. Selir eru þeirra uppáhaldsfæða. Líkur á að vera lostinn af eldingu er miklu meiri en að verða fyrir árás hákarls.
- Mörgum er illa við að hrísgrjónum sé hent yfir nýbökuð brúðhjón. Þau eru sögð vera étin af fuglum sem drepast í kjölfarið. Þetta er lygi. Hrísgrjón eru fuglunum hættulaus.
- Rakt hundstrýni á að votta heilbrigði en þurrt boða óheilbrigði. Rakt eða þurrt trýni hefur ekkert með heilbrigði að gera. Ef hinsvegar rennur úr því er næsta víst að eitthvað er að.
- Í nautaati ögrar nautabaninn dýrinu með rauðri dulu. Nautið bregst við. En það hefur ekkert með lit að gera. Naut bregst á sama hátt við dulu í hvaða lit sem er.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 08:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
18.3.2022 | 03:49
Hámark letinnar
Leti er listgrein út af fyrir sig. Það þarf skipulag til að gera ekki neitt. Eða sem allra minnst. Skipulag og skapandi hugsun. Margar af bestu uppfinningum mannsins urðu til vegna leti. Líka margt spaugilegt.
Ástæða getur verið að smella á myndirnar til að átta sig betur á hvað er í gangi.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
9.3.2022 | 07:47
Afi og flugur
Börnum er hollt að alast upp í góðum samskiptum við afa sinn og ömmu. Rannsóknir staðfesta það. Ég og mín fimm systkini vorum svo heppin að alast upp við afa á heimilinu. Hann var skemmtilegur. Reyndar oftar án þess að ætla sér það.
Afi hafði til siðs að vera með hálffullt vatnsglas á náttborðinu. Ofan á glasinu hafði hann pappírsblað til að verja það ryki. Stríðin yngsta systir mín tók upp á því að lauma flugu ofan í glasið. Ekki daglega. Bara af og til.
Þetta vakti undrun afa. Honum þótti einkennilegt að flugan sækti í vatnið. Ennþá furðulegra þótti honum að hún kæmist undir pappírsblaðið. Afi sagði hverjum sem heyra vildi frá uppátæki flugunnar. Allir undruðust þetta jafn mikið og afi.
Aldrei varð afi eins furðu lostinn og þegar könguló var komin í glasið.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 07:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
1.3.2022 | 07:53
Hlálegur misskilningur
Miðaldra íslensk kona var búsett erlendis. Einn góðan veðurdag ákvað hún að fljúga til Íslands til að heimsækja vini og ættingja. Það hafði hún vanrækt í alltof langan tíma. Aldraður faðir hennar skutlaðist út á flugvöll til að sækja hana. Hún var varla fyrr komin í gegnum toll og heilsa honum er hún áttaði sig á klaufaskap.
"Bölvað vesen," kallaði hún upp yfir sig. "Ég gleymdi tollinum!"
"Hvað var það?" spurði pabbinn.
"Sígarettur og Jack Daniels," upplýsti hún.
"Ég næ í það," svaraði hann, snérist á hæl og stormaði valdmannslegur á móti straumi komufarþega og framhjá tollvörðum. Hann var áberandi, næstum tveir metrar á hæð, íklæddur stífpressuðum jakkafötum, með bindi og gyllta bindisnælu.
Nokkru síðar stikaði hann sömu leið til baka. Í annarri hendi hélt hann á sígarettukartoni. Í hinni bar hann Jack Daniels.
Er feðginin héldu af stað til Reykjavíkur sagði konan: "Ég skipti gjaldeyri á morgun og borga þér tollinn."
"Borga mér?" spurði öldungurinn alveg ringlaður.
Í ljós kom misskilningur. Hann hélt að dóttir sín hefði keypt tollvarninginn en gleymt að taka hann með sér. Gamli var svo viss um þetta að hann borgaði ekkert.
Ferðalög | Breytt 9.4.2022 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.2.2022 | 06:04
Bráðskemmtileg svör barna
Eftirfarandi svör barna við spurningum eru sögð vera úr raunverulegum prófum. Kannski er það ekki sannleikanum samkvæmt. Og þó. Börn koma oft á óvart með skapandi hugsun. Þau sjá hlutina fyrir sér frá fleiri sjónarhornum en kassalaga hugsun fullorðna fólksins.
- Hvar var sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna undirrituð?
- Neðst á blaðsíðunni
- Hver er megin ástæða fyrir hjónaskilnuðum?
- Hjónaband
- Hvað getur þú aldrei borðað í morgunmat?
- Hádegismat og kvöldmat
- Hvað hefur sömu lögun og hálft epli?
- Hinn helmingurinn
- Hvað gerist ef þú hendir rauðum steini í bláahaf?
- Hann blotnar
- Hvernig getur manneskja vakað samfleytt í 8 daga?
- Með því að sofa á nóttunni
- Hvernig er hægt að lyfta fíl með einni hendi?
- Þú finnur ekki fíl með eina hönd
5.2.2022 | 03:17
Áhrifamestu plötuumslögin
Plötuumslög gegna veigamiklu hlutverki. Þau móta að nokkru leyti viðhorf plötuhlustandans til tónlistarinnar og flytjandans. Þegar best lætur renna umslag og tónlistin saman í eitt. Gamlar rannsóknir leiddu í ljós að "rétt" umslag hefur áhrif á sölu plötunnar. Til lengri tíma getur umslag orðið þátttakandi í nýjum straumum og stefnum í tónlist.
American Express Essentials hefur tekið saman lista yfir áhrifamestu plötuumslögin. Hér er ekki verið að tala um bestu eða flottustu umslögin - þó að það geti alveg farið saman í einhverjum tilfelllum. Árlega koma á markað margar milljónir plötuumslaga. Aðeins 0,0000000% þeirra verða almenningi minnisstæð.
Stiklum hér á stóru í rjóma niðurstöðu AEE:
- Elvis Presley. Fyrsta stóra plata hans og samnefnd honum. Kom út 1956. Stimplaði gítarinn inn sem tákn rokksins. Á þessum tímapunkti var það brakandi ný og fersk blanda bandarískra músíkstíla á borð við blús og rokkabilly.
- The Clash: London Calling. 3ja plata Clash sem var önnur tveggja framvarðasveita bresku pönkbyltingarinnar (hin var Sex Pistols). Útgáfuárið er 1979 og pönkið búið að slíta barnsskónum. Clash var ekki lengur "bara" pönk heldur eitthvað miklu meira; stórveldi sem sló í gegn í Ameríku umfram aðrar pönksveitir. Umslagið kallast skemmtilega á við upphaf rokksins. Ljósmyndin var ekki tekin fyrir umslagið. Hún var eldri og fangaði augnablik þar sem bassaleikarinn, Paul Simonon, fékk útrás fyrir pirring. "London Calling" var af amerískum fjölmiðlum - með Rolling Stone í fararbroddi - útnefnd besta plata níunda áratugarins.
- Bítlarnir: Revolver. "Sgt. Peppers...", "Hvíta albúmið", "Abbey Road" og "Revolver" togast á um áhrifamestu Bítla-umslögin. "Revolver" kom út 1966 og var fyrst Bítlaplatna til að skarta "allt öðruvísi" umslagi: teiknimynd af Bítlunum í bland við ljósmyndir. Umslagið rammaði glæsilega inn að hljómsveitin var komin á kaf í nýstárlega tónlist á borð við sýrurokk, indverskt raga og allskonar. Höfundur þess var góðvinur Bítlanna frá Hamborg, bassaleikarinn og myndlistamaðurinn Klaus Voorman.
- Velvet Underground & Nicole. Platan samnefnd hljómsveitinni kom út 1967 undir forystu Lou Reeds. Umslagið hannaði Andy Warhol. Platan og sérkennilegt umslag þóttu ómerkileg á sínum tíma. En unnu þeim mun betur á með tímanum.
- The Rolling Stones: Let it Bleed. Önnur 2ja bestu platna Stones (hin er Beggars Banquet). Kom út 1969. Þarna er stofnandi hljómsveitarinnar, Brian Jones, næstum dottinn út úr henni og arftakinn, Mick Taylor, að taka við. Umslagið er af raunverulegri tertu og plötu. Þetta var löngu fyrir daga tæknibrellna á borð við fótoshop.
- Patti Smith: Horses. AEE telur "Horses" vera bestu jómfrúarplötu sögunnar. Útgáfuárið er 1975. Umslagið rammar inn látlausa ímynd alvörugefna bandaríska pönk-ljóðskáldsins.
- Pink Floyd: Wish You Were Here. Valið stendur á milli þessarar plötu frá 1975 og "Dark Side of the Moon". Ljósmyndin á þeirri fyrrnefndu hefur vinninginn. Hún sýnir tvo jakkalakka takast í hendur. Annar stendur í ljósum logum í alvörunni. Hér er ekkert fótoshop.
- Sex Pistols: Never Mind the Bollocks Heres the Sex Pistols. Eina alvöru plata Sex Pistols. Platan og hljómsveitin gerðu allt brjálað í bresku músíksenunni 1977. Umslagið er vel pönkað en um leið er klassi yfir hönnunni og skæru litavalinu.
- Bruce Springsteen: Born in the USA. 1984 vísuðu umslagið og titillinn í þverbandarísk blæbrigði. Undirstrikuðu að þetta var hrátt verkalýðsrokk; bandarískt verkalýðsrokk sem kallaði á ótal túlkanir. Þarna varð Brúsi frændi sú ofurstjarna sem hann er enn í dag.
- Nirvana: Nevermind. 1991 innleiddi platan Seattle-gruggbylgjuna. Forsprakkinn, Kurt Cobain, fékk hugmyndina að umslaginu eftir að hafa séð heimildarmynd um vatnsfæðingu. Hugmyndin um agnið, peningaseðilinn, var ekki djúphugsuð en má skoðast sem háð á græðgi.
- Björk: Homogenic. AEE segir þetta vera bestu tekno-plötu allra tíma. Titillinn endurspegli leit Íslendingsins að hinum eina rétta tóni plötunnar 1997.
- Sigur Rós: (). Fyrir íslenska hljómsveit sem syngur aðallega á bullmáli en semur fallega og áleitna tónlist er umslagið óvenjulegt og vel við hæfi. Svo segir AEE og áttar sig ekki á að söngur Sigur Rósar er aðallega á íslensku. Reyndar á bullmáli á (). Platan kom út 2002.
Menning og listir | Breytt 8.2.2022 kl. 04:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
29.1.2022 | 00:41
Töfrar úðans
Ég var að selja snyrtivörur, alnáttúrulegar heilsusnyrtivörur úr Aloe Vera plöntunni að uppistöðu til. Aldraður maður á Egilsstöðum hringdi í mig. Hann bað mig um að senda sér í póstkröfu sólarolíu sem heitir Dark Tanning Oil Spray. Ástæðuna sagði hann vera þreytu í augum. Hann grunaði að úðaspreyið gæti gert sér gott. Einkum vegna þess að Aloe Vera var uppistöðuhráefnið.
Nokkrum vikum síðar hringdi maðurinn aftur til að fá fleiri úðabrúsa. Hann sagði að reynslan væri svo góð við að spreyja í augun að hann væri byrjaður að spreyja í eyrun líka. Með jafn góðum árangri. Eyrun hvíldust vel útspreyjuð.
Nokkrum vikum síðar hringdi hann enn í mig. Hann vantaði fleiri úðabrúsa. Nú var hann byrjaður að spreyja upp í munninn á sér undir svefninn. Allt annað líf. Hann svæfi eins og kornabarn. Að auki væru draumfarir ljúfari.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.1.2022 | 05:31
Oft ratast kjöftugum satt á munn. Eða ekki.
Rokkið er lífstíll. Yfirlýsingagleði, dramb og gaspur eru órjúfanlegur hluti af lífstílnum. Alveg eins og "sex and drugs and rock and roll". Þess vegna er oft gaman að lesa eða heyra viðtöl við rokkstjörnur þegar þær reyna að trompa allar hinar.
- Little Richard: "Ég er frumkvöðullinn. Ég er upphafsmaðurinn. Ég er frelsarinn. Ég er arkitekt rokksins!"
- Richard Ashcroft (The Verve): Frumkvöðull er ofnotað hugtak, en í mínu tilfelli er það alveg viðeigandi."
- Jim Morrison (The Doors): "Ég lít á sjálfan mig sem risastóra, eldheita halastjörnu, stjörnuhrap. Allir stoppa, benda upp og taka andköf: "Ó, sjáðu þetta!" Síðan vá, og ég er farinn og þeir sjá aldrei neitt þessu líkt aftur. Þeir munu ekki geta gleymt mér - aldrei."
- Thom Yorke (Radiohead): "Mig langar að bjóða mig fram til forseta. Eða forsætisráðherra. Ég held að ég myndi standa mig betur."
- Courtney Love (Hole): "Ég vildi að ég stjórnaði heiminum - ég held að hann væri betri."
- Brian Molko (Placebo): Ef Placebo væri eiturlyf værum við klárlega hreint heróín hættulegt, dularfullt og algjörlega ávanabindandi."
- Pete Townsend (The Who): Stundum trúi ég því virkilega að við séum eina rokkhljómsveitin á þessari plánetu sem veit um hvað rokk n roll snýst."
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
12.1.2022 | 00:03
Elvis bannar lag með sjálfum sér
Tímarnir líða og breytast. Ósæmileg hegðun sem fékk að viðgangast óátalin fyrir örfáum árum er nú fordæmd. Dónakallar sitja uppi með skít og skömm. Þeirra tími er liðinn. Hetjur dagsins eru stúlkurnar sem stíga fram - hver á fætur annarri - og afhjúpa þá.
Kynþáttahatur er annað dæmi á hraðri útleið. Tónlistarfólk - sem og aðrir - er æ meðvitaðra um hvað má og hvað er ekki við hæfi.
Eitt af stóru nöfnunum í nýbylgjunni á seinni hluta áttunda áratugarins var Elvis Costello. Hans vinsælasta lag heitir Oliver´s Army. Það kom út 1979 á plötunni Armed Forces. Þar syngur hann um vandamál Norður-Írlands. Kaþólikkar og mótmælendatrúar tókust á með sprengjum, drápum og allskonar.
Í textanum segir: "Only takes one itchy trigger / One more widow, one less white nigger."
Á sínum tíma hljómaði þetta saklaust. Gælunafn afa hans í breska hernum var White nigger. Það þótti ekki niðrandi. Í dag hljómar það hræðilega. Þess vegna hefur Elvis gefið útvarpsstöðvum fyrirmæli um að setja lagið umsvifalaust á bannlista. Sjálfur hefur hann tekið þetta sígræna lag af tónleikaprógrammi sínu. Hann ætlar aldrei að spila það aftur.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 03:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
5.1.2022 | 00:06
Spaugilegar sjálfur
Fyrir daga myndsímanna voru ljósmyndir dýrt sport. Kaupa þurfti filmur og spandera í framköllun. Þess vegna vönduðu menn sig við verkefnið.
Í dag kostar ekkert að smella mynd af hverju sem er. Ungt fólk er duglegt að taka myndir af sjálfum sér og birta á samfélagsmiðlum. Í hamaganginum er ekki alltaf aðgætt hvað er í bakgrunni. Enda skjárinn lítill. Þegar ljósmyndarinn uppgötvar slysið er vinahópurinn búinn að gera myndirnar ódauðlegar á netinu. Hér eru nokkur sýnishorn:
- Strákur kvartar undan því að kærastan sé alltaf að laumast til að mynda hann. Í bílrúðunni fyrir aftan sést að stráksi tók myndina sjálfur.
- Einn montar sig af kúluvöðva. Í spegli fyrir aftan sést að hann er að "feika".
- Kauði smellir á mynd af ömmu og og glæsilegu hátíðarveisluborði hennar. Hann áttar sig ekki á að í spegli sést hvar hann stendur á brókinni einni fata.
- Stúlka heimsækir aldraðan afa. Það er fallegt af henni. Hún notar tækifærið og tekur sjálfu á meðan kallinn dottar.
- Önnur dama telur sig vera óhulta í mynd á bak við sturtuhengi. Ef vel er að gáð sést efst á myndinni í gægjudóna. Þetta sést betur ef smellt er á myndina.
- Enn ein er upptekin af sjálfu á meðan barn hennar berst fyrir lífi sínu í baðkari.
- Pabbi tekur mynd af feðgunum. Snati sleppur inn á sem staðgengill hárbrúsks.
- Myndarlegur gutti tekur sjálfu. Ekkert athugavert við það. Nema ef vel er rýnt í bakgrunninn. Þar speglast í rúðu að töffarinn er buxnalaus.
Spaugilegt | Breytt 8.1.2022 kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.12.2021 | 09:07
Jólakveðja
Heims um ból höldum við jól;
heiðingjar, kristnir og Tjallar.
Uppi í stól stendur í kjól
stuttklipptur prestur og trallar.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)