Varhugavert að versla á netinu

 Margir versla á netinu.  Oft með viðunandi útkomu.  En ekki alltaf.  Stundum er varan í raun ekki alveg eins og ljósmyndin af henni.  Einkum á þetta við um fatnað og glingur.  Hér eru nokkur dæmi:

  - Ungur maður hugðist kaupa léttan ermalausan bol.  Þegar til kastanna kom reyndist hann vera kjóll.  

  - Útikór sem bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West hannaði (eða lánaði nafn sitt við) njóta vinsælda.  Margir hugðu gott til glóðarinnar;  eftirlíkingar fóru á flug.  En mega ekki vera nákvæmlega eins.  Þessi kaupandi fékk óvænt inniskó þegar hann pantaði eftirlíkingu.  Kannski gott á hann?

  - Hjón hrifust af stóru fjölskylduteppi;  kósí kúruteppi.  Það sem þau fengu var bara garn.  Ekki teppi.  Þeim var ætlað að prjóna teppið sjálf,  Do-It-Yourself (gerið það sjálf)!

  -  Apple-armbandsúr þykja flott og eru dýr.  Einhverjar viðvörunarbjöllur ættu að hringja þegar í boði eru ódýr Apple úr.  Í meðfylgjandi dæmi er er í raun ekki um úr að ræða heldur armband með mynd af epli á skjá.

  - Andlitsmaskar njóta vinsælda meðal kvenna.  Í besta falli eiga þeir að soga óhreinindi úr húðinni og nær húðina af hollefnum.  Kona sem pantaði á netinu slatta af maska fékk þá í stærð sem passar ofursmáum dverg eða dúkku. 

 - Eitt algengnasta svindl í netsölu er að varan er ofursmá.  Til að mynda að sokkar passi ekki á fót heldur tær. 

  - Foreldrar heilluðust af kodda í risaeðlulíki.  Þegar til kom var um að ræða venjulegan kodda með mynd af eðlu. 

 

net - bolur

net - teppinet - skórnet - eplinet - maskarnet - sokkar

net - koddi


Hver er uppáhalds Bítlaplatan?

  Hér til vinstri á bloggsíðunni hef ég stillt upp nýrri skoðanakönnun.  Hún mun standa þangað til 1000 atkvæði hafa skilað sér í hús.  Reynslan hefur þó kennt að línur skýrast strax með fyrstu 100 - 200 atkvæðum.  Samt.  1000 atkvæði eru trúverðugri.

  Varast ber að taka svona skoðanakönnun of hátíðlega.  Þetta er fyrst og fremst skemmtilegur samkvæmisleikur.  Úrslitin  mæla ekki smekk þverskurðar af þjóðfélaginu.  Þau túlka einungis smekk lesenda bloggsíðunnar.  Þeir eru að uppistöðu til karlmenn komnir af léttasta skeiði og nokkrar konur á sama aldri.  

  Takið endilega þátt í könnuninni.  Spurt er um uppáhalds Bítlaplötu.  Ekki bestu Bítlaplötu.  Á þessu er munur.  Pavarotti er betri söngvari en Megas.  Megas er skemmtilegri.   

 

 

 


Afi hótar bónda - framhald

  Hvort bróðir minn braut rúðuna i skólanum er óvíst.  Aldrei hefur fengist úr því skorið.  Hann hélt fram sakleysi sínu.  Og gerir enn.  Þó er eins og hann verði pínulítið skömmustulegur á svipinn þegar þetta ber á góma.  Bróðir húsbóndans hélt því fram að hann hafi séð bróðir minn brjóta rúðuna. 

  Afi trúði engu upp á sonarson sinn.  Hann sór þess eið að ná fram hefndum.  Tækifærið kom næst er hann fékk far með mjólkurbílnum að skólanum. Ekki var von á skólabílnum á allra næstu mínútum.  Bóndinn bauð afa í kaffi.  Á borð voru bornar kökur og tertur af ýmsu tagi.  Segja má að afa hafi verið haldin veisla.  

  Afi sat gegnt bóndanum við eldhúsborðið.  Þeir spjölluðu um heima og geima.  Virtist fara vel á með þeim;  uns bóndinn spurði:  "Hvað er Mundi með margar ær í hverri kró í vetur?"

  Afi brá við skjótt.  Eldsnöggt teygði hann sig yfir borðið.  Lætin voru svo mikil að gusaðist úr kaffibollanum hans.  Hann lagði krepptan hnefa að kinn bóndans.  Hann kýldi ekki.  Lagði bara hnefann að kinn,  skók hann og hrópaði reiðilega:  "Sonur minn heitir Guðmundur.  Ekki Mundi!"

  Bóndanum dauðbrá.  Hann hikstaði og stamaði:  "Já,  ég hérna...já, meina Guðmundur."

  Afi róaðist þegar í stað og fékk sér síðasta kaffisopann um leið og hann svaraði sallarólegur:  "Það eru ýmist 20 eða 21."

  Næstu daga hældi afi sér aftur og aftur fyrir að hafa hrellt bóndann svo rækilega að hann myndi dreyma martraðir næstu nætur.

  


Afi hótar bónda

  Afi var mikill flakkari.  Alveg til dauðadags. Hann lét gönguerfiðleika ekki aftra sér.  Vegna brjóskeyðingar í mjöðmum var hann skakkur og skældur;  gat ekki rétt úr sér og staulaðist áfram með tvo stafi.  Hann var seigur að snapa far,  hvort heldur sem var til og frá Sauðárkróki,  Svarfaðardal,  Reykjavík eða eitthvert annað.   

  Þegar ég var 7 eða 8 ára var ég í fámennum barnaskóla í Hjaltadal.  Skólastofan var rúmgóð stofa á bóndabæ.  Það hentaði afa.  Hann fékk far með mjólkurbílnum frá Sauðárkróki til skólans.  Þaðan fékk hann far með skólabílnum heim í Hrafnhól.  Þar bjuggum við.

  Eitt sinn í lok skóladags stóðum við krakkarnir og afi úti á hlaði og biðum eftir bílnum. Skyndilega birtist bóndinn á bænum,  gekk að eldri bróður mínum og sakaði hann um að hafa brotið rúðu.  Strákur neitaði sök.  Bóndinn greip um hálsmál hans,  felldi hann á bakið,  settist yfir honum með hnefa á lofti.  Hótaði að berja úr honum játningu.  Afi brá við skjótt;  hóf annan staf sinn á loft og hrópaði:  "Slepptu drengnum eða ég læt stafinn vaða af fullu afli í hausinn á þér!"

  Bóndanum brá.  Hann þaut eins og eldibrandur inn í hús.  Lengi á eftir hældi afi sér af því við hvern sem heyra vildi hvað bóndinn varð hræddur við hann.  Bætti svo við:  "Verst hvað kvikindið var snöggt að flýja.  Ég hefði vilja dúndra í hausinn á honum!

 


Hártískan

  Í dægurlagaheimi er algengt að poppstjörnur veki athygli á sér með sérstakri hárgreiðslu.  Í sumum tilfellum smitast þetta út til almennings og verður almenn tíska.  Stærsta dæmið er þegar Bítlarnir tóku upp á því að greiða hárið niður á enni.  Einnig síðar þegar þeir leyfðu hárinu að vaxa niður á herðar og skiptu í miðju.  Svo voru það pönkararnir sem skörtuðu móhíkanakambi.  Ekki má gleyma "sítt að aftan" á 8-unni. 

  Í upphafi 20. aldar voru tískustraumar í hárgreiðslu.  Að minnsta kosti í Bandaríkjunum.  Sérlega virðist hafa verið vinsælt að koma sér upp töluverðri hárhrúgu hægra megin á kollinum. Eða til beggja hliða. Hér eru sýnishorn:

hár bhár chár dhár ehár fhár ghár hhár i 


Ferðagjafarvandræði

  Ég vaknaði upp með andfælum þegar í útvarpinu glumdi auglýsing um ferðagjöfina.  Þar var upplýst að hún væri alveg við það að renna út.  Ég hafði ekki leist mína út.  Nú voru góð ráð dýr.  Ég var ekki á leið í ferðalag eitt né neitt.  Ég var bara á leið í Kringluna.  Ég brá mér í Hamborgarafabrekkuna sem þar er staðsett.

  Ég tilkynnti afgreiðsludömu að ég hefði hug á að virkja ferðagjöfina.  Ég dró upp takkasímann minn.  Hann hefur þjónað mér dyggilega frá síðustu öld.  Hún spurði hvort ég væri ekki með snjallsíma.  Nei,  bara þennan.  Ég veit ekki einu sinni hvað snjallsími er.  Daman fórnaði höndum og skipaði mér að hinkra.  Ég hlýddi möglunarlaust.  Hún brá sér frá og sótti aðra afgreiðsludömu.  Sú reyndi að virkja gjöfina.  Án árangurs.  Ég bað hana að reyna aftur.  Hún fórnaði höndum og sagði að þetta virkaði ekki.  

  Næst átti ég erindi í Hamraborg í Kópavogi.  Þar er Subway.  Ég þangað.  Afgreiðslumanneskjan komst ekki lengra en sú í Kringlunni.  Hún reyndi samt aftur og aftur.  Ungur karlmaður blandaði sér í málið.  Hann var allur af vilja gerður að hjálpa.  Eftir nokkrar atrennur áttaði hann sig á því hvernig hlutirnir virkuðu.  Hann er greinilega tölvusnjall.  Hann var allt í einu kominn með strikamerki í símann sinn.  Hann gaf dömunni fyrirmæli um að taka mynd af því og þá væri dæmið í höfn.  Það gekk eftir.

  Til að klára inneignina gerði ég mér ferð í Pítuna í Skipholti.  Afgreiðsludaman sagðist þurfa að gúggla hvernig hún gæti afgreitt dæmið.  Eftir smástund sagði hún:  "Þetta virkar ekki í tölvunni.  En ég get græjað þetta í snjallsímanum mínum."  Það gekk eins og í sögu.

   Á meðan ég beið eftir matnum varð ég vitni að eftirfarandi:  Ung kona fékk máltíð sína.  Skömmu síðar stormaði hún með diskinn sinn að afgreiðsluborðinu.  Spurði hvort að hún hefði pantað þennan rétt.  Afgreiðsludaman játti því og benti á að það stæði á kvittun hennar.  Konan sagði:  "Ég ætlaði ekki að panta þetta.  Ég ætlaði að panta..."  Ég náði ekki hvað hún nefndi.  

  Afgreiðsludaman tók erindinu vel.  Sagði eitthvað á þessa leið:  Ekkert mál.  Ég afskrifa pöntun þína og læt þig fá máltíðina sem þú ætlaðir að panta.

  Þetta er þjónustulund til fyrirmyndar.       

 

kótilettur 


Hvað ef...?

  Ef John, Paul,  George og Ringo hefðu aldrei hist væri margt öðruvísi en það er í dag.  Ekki aðeins tónlistin.  Fjórmenningarnir frá Liverpool breyttu mörgu öðru.  Allt frá hártísku til almennra viðhorfa til margs.  Sprengikrafturinn lá í liðsheild kvartettsins.  Hvað hefði orðið um einstaklingana ef þeir hefðu aldrei hist?

  Fyrsta ályktum um John Lennon gæti verið að hann hefði orðið myndlistamaður.  Hann var í myndlistaskóla.  Fyrri eiginkona hans og barnsmóðir,  Cynthia,  var skólasystir hans.  John var efnilegur myndlistamaður.  Hinsvegar lauk hann aldrei námi í skólanum.  Hann var rekinn úr honum fyrir ítrekuð agabrot og árekstra við kennara og samnemendur.  Það einkenndi einnig grunnskólagöngu hans.  Hann átti erfitt með að fylgja reglum,  hafði ekki reiðistjórn og var ofbeldismaður.  Það þurfti sérstakar manngerðir til að umbera skapofsaköst hans og ofbeldishneigð.

  Líklegra er að John hefði orðið rithöfundur.  Hann skrifaði frábærlega fyndnar og frumlegar smásögur sem voru gefnar út í bókarformi.  Þorsteinn Eggertsson þýddi sumar þeirra og birti í dagblaðinu Tímanum.  Gaman væri ef hann þýddi þær allar og gæfi út á íslensku í heilu lagi.  

  Sem tónlistarmaður hefði John ekki náð langt án Pauls,  Georges og Ringos.  Hann stofnaði hljómsveitina The Quarrymen sem varð undanfari Bítlanna.  Þó að þetta væri hans hljómsveit,  sem söngvara og allsráðandi,  þá tókst ekki betur til en svo að hann spilaði banjóhljóma á gítarinn.   Báðir foreldrar hans voru banjóleikarar og spiluðu að auki á ukoleli.  Mamma hans var einnig píanóleikari.  Pabbi hans var söngvari og lagahöfundur.  John var með tónlistargen í blóðinu.  Án Pauls hefðu þau gen aðeins gert John að glamrara og gutlara í hljóðfæraleik.  Eins og foreldrana.  

  Hljómsveitin The Quarrymen er starfandi enn í dag.  En er ekki að skora hátt.  Fjarri því góð hljómsveit.  Næstum 70 árum síðar stenst hún ekki samanburð við frumútgáfu af Bítlunum með John,  Paul og George.  Það er hrópandi munur á "karakterunum" í músíkinni.

.  Vegna skapofsa Johns og ofbeldishneigðar er lílegt að hann hefði skrifað sínar sögur í fangelsi. 

   Þegar Paul kynntist John var hann á leið í háskólanám í læknisfræði og ensku.  John stillti honum upp við vegg:  Annað hvort velur þú skólann eða The Quarrymen.  Það er ekkert bæði.  Bara annað hvort.  Paul valdi rétt.  Ef hann hefði valið annað hefði hann orðið gutlari á pöbbum eins og pabbi sinn.  

  George var byrjaður að spila með Bítlunum þegar hann skráði sig í nám sem ratvirki.  George drepleiddist námið.  Kolféll á fyrsta prófi. Erfitt er að reikna út hvað hann hefði tekið sér fyrir hendur án Bítlanna.  Sjálfur giskaði hann á garðyrkju eða grænmetisveitingastað.           

    John Lennon sagði eitt sinn að Ringo væri eini Bítillinn sem hefði "meikað það" án Bítlanna.  Hann hefði gert það gott sem trommari og ennfremur orðið góður kvikmyndaleikari.  Hann var í góðum málum sem trommari í vinsælli hljómsveit í Liverpool,  áður en hann gekk til liðs við Bítlana.  Hann tók niður fyrir sig með því.  En honum þótti Bítlarnir svo brjálæðislega skemmtilegir að hann lét slag standa.  Sá aldrei eftir því.  Hann var eini Bítillinn sem John lamdi aldrei.  Eru þá fyrsti bassalerikari Bítlanna,  Stu,  og trommuleikari The Quarrymen meðtaldir,  svo og Cynthia. 

 


Fyndin dýr

  Mörg dýr hafa persónuleika.  Ekki síður en mannfólkið.  Hér eru ljósmyndir sem sanna það. 

fyndin dýr sfyndin dýr bfyndin dýr cfyndin dýr dfyndin dýr ffyndin dýr gfyndin dýr ifyndin dýr jfyndin dýr kfyndin dýr lfyndin dýr mfyndin dýr nfyndin dýr ofyndin dýr pfyndin dýr q


Smásaga um glaðvakandi mann

  Jónsi er í kvöldheimsókn hjá Binna vini sínum.  Þeir hafa ekki hist síðan þeir voru saman í skóla.  Það eru meira en tvær vikur síðan.  Þeir hafa því frá mörgu að segja og draga hvergi undan.  Mikið er hlegið og tíminn er fljótur að líða.  Fyrr en varir slær stofuklukkan tíu.  

  Ella,  kona Binna,  rekur nefið inn um stofugættina.  Hún segir honum að drífa sig í háttinn.  

  "Róleg, kona,"  svarar hann.  "Þú sérð að ég er með gest."

  Það snöggfýkur í Ellu.  Hún hleypur að Binna og sparkar í fótinn á honum.  Hann rekur upp sársaukavein.  Ella forðar sér úr stofunni.

  Skömmu síðar er barið harkalega á dyr.  Ella opnar dyrnar.  Fyrir utan standa tveir lögregluþjónar gráir fyrir járnum.  Annar er tröllvaxinn rumur.  Hinn er nett dama.  Hún spyr valdmannslega:  "Hvar er pésinn sem vill ekki fara að sofa?"

  Ella bendir á Binna.  Löggurnar ganga að honum.  Þær skella honum með látum í gólfið.  Hann berst um á hæl og hnakka.  En er ofurliði borinn.  Löggurnar tæta utan af honum fötin.  Svo mikill er atgangurinn að tölurnar slitna af skyrtunni hans og spýtast í allar áttir.  Jónsi notar tækifærið og læðist óséður úr húsi.  

  Binni róast þegar hann er aðeins á nærbuxunum.  Löggudaman kallar til Ellu:  "Á hann náttföt?"  Hún kannast ekki við það.  En segist geta lánað honum náttkjól.  Löggurnar troða honum í kjólinn.  Troða í bókstaflegri merkingu.  Hann er nefnilega of lítill.  Í honum svipar Binna til lundabagga. 

  Binna er dröslað inn í rúm.  Ella er komin undir sæng.  Rumurinn spyr:  "Eigum við ekki að sekta kvikindið?"  Daman svarar:  "Nei,  ég veiti honum bara skriflega áminningu.

  Hún dregur upp áminningablokk og fyllir út formið.  Rumurinn spyr:  "En má ég ekki rásskella hann?"  Hún samþykkir það en tekur fram:  "Aðeins eitt högg."

  Hann lætur ekki segja sér það tvisvar.  Hann hendir Binna á magann og slær hann kröftuglega á bossann svo smellur hátt í.  Því næst snýr hann honum á bakið og skorðar þétt við Ellu.  Hann breiðir sængina yfir þau.  Alveg upp að höku.  Hann hvíslar:  "Góða nótt" og kyssir hjúin á ennið.  Svo hverfur hann út í náttmyrkrið ásamt dömunni.     


Uppáhalds tónlistarstílar

Fyrir nokkru efndi ég á þessum vettvangi - minni bloggsíðu - til skoðanakönnunar um uppáhalds tónlistarstíla lesenda.  Þetta er ekki skoðanakönnun sem mælir músíksmekk almennings - vel að merkja.  Einungis músíksmekk lesenda bloggsíðunnar.  Niðurstaðan speglar að lesendur séu komnir af léttasta skeiði eða þar í grennd.  Það gerir könnunina áhugaverðari fyrir minn smekk.  Mér kemur ekkert við hvaða músík börn og unglingar aðhyllast. 

  Nú hafa 1000 atkvæði skilað sér í hús.  Stöðuna má sjá hér til vinstri á síðunni.  Niðurstaðan kemur að mörgu leyti á óvart.  Og þó.  Hún er þessi:

1. Þungarokk 16.1%

2. Djass 15.5%

3. Pönk/nýbylgja 15%

4.  Reggae (world music)  13,2%

5.  Þjóðlagatónlist (órafmögnuð)  10,8%

6.  Blús  7,6%

 

7  Rapp/hipp-hopp  6,2%

8  Skallapopp/píkupopp  6,1%

9  Sítt að aftan/80´s  5,8%

10  Kántrý  3,8%

  


Smásaga um fót

  Bænastund er að hefjast.  Bænahringurinn raðar sér í kringum stóra bænaborðið.  Óvænt haltrar ókunnugur gestur inn á gólf.  "Ég er með mislanga fætur," segir hann.  "Getið þið beðið fyrir kraftaverki um að þeir verði jafn langir?"

  "Ekki málið," svarar forstöðumaðurinn. "Leggstu á bakið hér ofan á borðið.  Við græjum þetta."

Sá halti hlýðir.  Forstöðumaðurinn leiðir bæn. Svo sprettur hann á fætur og grípur um fót gestsins,  hristir hann kröftuglega og hrópar:  "Í Jesú-nafni skipa ég þér fótur að lengjast!"

  Þetta endurtekur hann nokkrum sinnum.  Að lokum hrópar hann sigri hrósandi:  "Ég fann fótinn lengjast!  Þú ert heill, félagi."

  Hann hjálpar gestinum að renna sér niður af borðinu.  Þar fellur hann í gólfið en bröltir á fætur og fellur jafnharðan aftur í gólfið.  Það fýkur í hann.  Hann hrópar:  "Helvítis fúskarar!  Þið lengduð vitlausan fót!"

  Forstöðumaðurinn reiðist líka.  Hann hvæsir:  "Það má ekki á milli sjá hvor fóturinn er vitlausari.  Báðir snarvitlausir!"

  Hann grípur um axlir gestsins og dregur hann að útidyrunum.  Gesturinn er á fjórum fótum og spyrnir við.  Hann minnir á kind í réttum sem þráast við að vera dregin í dilk. 

  Forstöðumaðurinn nær að henda honum út á hlað.  Þar sparkar hann kröftulega í rassinn og hrópar:  "Þakkirnar fyrir hjálp okkar eru ekkert nema vanþakklæti.  Nú er munurinn á fótunum sá sami og þykkt gangstéttarhellu.  Þú getur ólað hana á þig og gengið óhaltur."

  Gesturinn fylgir ráðinu.  Það reynist heillaráð. 

 


Skammaður í búð

  Ég átti erindi í verslun.  Keypti fyrir 2000 kall.  Borgaði með hundraðköllum.  Pirraður afgreiðslumaður:  "Af hverju ferðu ekki í banka og færð seðla?"  Ég:   "Bankarnir eru lokaðir út af Covid-19"  Hann:  "Þá bíður þú með klinkið þangað til þeir opna."  Ég:  "Hvað er málið?"  Hann:  "Bara djöfulsins ruddaskapur að henda í mann hrúgu af 100 köllum."

 


Samherjasvindlið

Eftir að ég tók virkan þátt í starfsemi Frjálslynda flokksins skipti ég um hest í miðri á;  kúplaði mig út úr pólitískri umræðu.  Hinsvegar brá svo við í gær að vinur minn bað mig um að snara fyrir sig yfir á íslensku yfirlýsingu frá Anfin Olsen,  nánum samstarfsmanni Samherja í Færeyjum.  Þetta á erindi í umræðuna:  Reyndar treysti ég ekki minni lélegu færeysku til að þýða allt rétt. Þú skalt ekki heldur treysta henni.  Ég á líka eftir að umorða þetta almennilega. Ég hef fengið flogakast af minna tilefni.

Hefst þá málsvörn Anfinns:

Ég hef ítrekað sagt frá eignarviðskiptum í félaginu Framherja en útlitið verður stöðugt svartara um þessi viðskipti. Ég og konan eigum 67% hlut í Sp/f Framherja sem er móðurfélag félagsins. Hin 33% eiga Sp/f Framinvest. Í þessu félagi á Samherji 73% og ég og konan 27%. Samanlagður eignarhlutur Samherja í félaginu Framherja er 24%. Ég er forstjórinn og hef fullan ákvörðunarrétt ásamt nefndum í móðurfélaginu og dótturfélögunum sem eru P/F Akraberg, P/F Eysturoy og P/F Regn.

Í sjónvarpsþættinum var vísað til skjala um 16 peningaflutninga til og frá Framherja og Framinvest frá 2010. Allir flutningarnir voru vegna kaupa og sölu á skipum. 2011 var færeyski makrílkvótinn hækkaður úr 85000 tonnum í 150000 tonn. Aðeins eitt uppsjávarfyrirtæki var þá í Færeyjum sem gat tekið á móti makríl til matvinnslu. Vegna makrílstríðsins gátum við ekki landað erlendis. Okkur var nauðugur einn kostur að útvega frystiskip sem gat veitt og verkað eins og móðurskip, svo mest verðmæti fengjust úr þessum stóra makrílkvóta.

Høgaberg

2011 og 2012 Í samstarfi við Samherja gátum við útvegað eitt slíkt skip með hraði. 2011 keyptum við trollarann Geysir frá Katla Seafood sem hafði bækistöðvar í Las Palmas í Kanaríeyjum. Það er dótturfyrirtæki Samherja. Við settum skilyrði fyrir því að Katla Seafood myndi kaupa skipið aftur á sömu upphæð að vertíð lokinni. Þetta var endurtekið 2012. Þá var það systurskipið Alina. Skipin voru formlega kaypt, því þau þurfti að skrásetja í Færeyjum til að geta farið á veiðar. Hluti af áhöfninni var útlendingar. Samið var um að laun þeirra væru gerð upp samkvæmt montøravtaluni (ég held að þetta orð standi fyrir að umreikna) í dönskum krónum. Þrír fjárflutningar voru gerðir samtals upp á 4,9 milljónir króna. Katla Seafót fór frammá að annar kostnaður við skipin báðar vertíðirnar yrði greiddur í dollurum og evrum, til að losna við kostnað vegna gjaldeyrisskipta. Flutningarnir voru gerðir upp í gegnum Framinvest vegna þess að það félag hafði gjaldeyrisreikning til að gjalda Katla Seafood. Framherji gerði svo upp við Framinvest sömu upphæð í dönskum krónum. Gerðir voru upp fjórir fjárflutningar upp á til samans 6,1 milljón dollara og 38,047 evrur.

Fríðborg

2010 samdi Samherji við útgerðarfyrirtækið sem átti rækjuskipið Friðborg um kaup á skipinu. Samherji fór með kaupin í gegnum Framinvest sem er dótturfélag í Færeyjum. Kaupandinn var Katla Seafood á Akureyri, dótturfyrirtæki Samherja. Kaupverðið var millifært í gegnum Framinvest. Þegar allt var upp gert reyndist kaupverðið vera lægra og var mismunurinn endurgreiddur til Katla Seafood á Akureyri.

Akraberg

Sex fjárflutningar voru vegna kaupa P/F Akraberg á trollara frá þýska félaginu DFFU - Deutsche Fischfang Union, dótturfyrirtækis Samherja. Skipinu var breytt til að geta heilfryst slægðan og afhausaðan fisk, uppsjávarfisk og rækjur. Breytingin varð dýrari en reiknað var með. Bankarnir sem höfðu samþykkt að fjármagna kaupin, Realurin og Arion banki, vildu sjá skipið áður en endanlegt lán yrði veitt. Þá þurfti að fá millifjármögnun frá Esja Seafood, dótturfyrirtæki Samherja á Kýpur. Það lán var afgreitt í febrúar 2014, uppá 2,6 milljón evrur. Það var endurgreitt í fernu lagi síðar 2014. Sjötti fjárflutningurinn vegna milligreiðslunnar var í maí 2015. Hann var vegna vaxta og endanlegs uppgjörs vegna lánsins. Þetta var í evrum og var afgreitt í gegnum Framherja sem nú hafði fengið gjaldeyrisreikning. Síðar var gert upp við P/F Akraberg.

  KVF (færeyska sjónvarpið) telur grunsamlegt að ég hafi í útvarpi sagt að kostnaðurinn væri 140-150 milljónir er Akraberg kom til Færeyja þegar hið rétta var að kostnaðurinn varð 160 milljónir. Kaupverðið á Akraberg var 111,8 milljónir. Breytingin kostaði 51,2 milljónir. Lögfræðikostnaður, skráning og fleira var 2,0 milljónir. Það komu upp vandamál með skipið, og útgreiðslur fóru til færeyskrar þjónustu vegna breytinga og umbóta. Þetta skýrir muninn á upphæðinni sem ég gaf upp og endanlegum kostnaði.

Faroe Origin

16. og síðasti fjárflutningurinn sem KVF vísar til er vegna Faroe Origin. Þegar hlutafélagið Faroe Origin var stofnað með því fororði að kaupa hlut af aktivunum frá búnum (ég,veit ekki hvað þetta þýðir. Kannski eitthvasð um þá sem verða virkir í búinu?) frá Faroe Sedafood þá kom Samherji með 25% hlutafjársins. Starfsemin gekk illa. 2015 var hlutafé fært niður í 0. Síðan var nýtt hlutafjárútboð og hlutur Samherja varð 3,5 milljónir. Þá upphæð lagði Framherji til. Það var endurgreitt með einni millifærslu frá Esja Seafood á Kýpur í desember 2015.

Það eru forréttindi að vera í samstarfi við sterkt útlent fyrirtæki. Við höfum starfað með Samherja síðan 1994. Innanhúss viðskipti Samherja eru okkur óviðkomandi. Það er þungt fyrir mig, fjölskyldu mína og okkur öll í Framherja að vera sakaður um þátttöku í ólöglegum og óvanalegum viðskiptum sem ég á enga aðild að.

 


Furðuhlutir

  Fólk er alltaf að fá hugmyndir.  Sérstaklega fá margir hugmyndir um allskonar hluti og matvæli.  Stundum mætti uppfinningarfólkið hafa taumhald á sér í stað þess að hefja framleiðslu á uppfinningunni.  Til að mynda er stundum ástæða til að ráðast í markaðskönnun.  Hún gæti bjargað mörgum frá því að missa aleiguna í stóru gjaldþroti.  Hér má sjá nokkur dæmi sem markaðurinn hafnaði.

  Blátt sýróp var ekki að gera gott mót.  Né heldur augnhár fyrir bíla.  Hvað með gosdrykki með bragði á borð við beikon, hnetusmjör og buffaló-vængi?  Svo var það snilldin að sameina buxur og strigaskó.  Hárgreiða með tönnum og lautarferðarbuxur?  Hvað var þessi að pæla sem ætlaði að slá í gegn með barnapúða sem veldur martröð?  Eða sykurfrauð með pizza-bragði?

blátt syrópaugnhár á aðalljósumgosdrykkir með skrýtnu bragðisameinaðar buxur og skóhárgreiður með tennurbuxur fyrir lautarferðmartraðafígúra fyrir börncandy-flos með pizza-bragði  


Reglur eru reglur

  Stundum á ég erindi í pósthús.  Oftast vegna þess að ég er að senda eitthvað áhugavert út á land.  Landsbyggðin þarf á mörgu að halda.  Ég styð þjónustu við hana.  Enda er ég dreifbýlistútta úr Skagafirði.  Margt þykir mér skrýtið,  svo skilningssljór sem ég er.  Ekki síst þegar eitthvað hefur með tölvur að gera. 

  Þegar pakki er sendur út á land þarf að fylla út í tölvu fylgibréf.  Þar þarf í tvígang að skrá inn póstnúmer sendanda og póstnúmer viðtakanda.  Þegar allt hefur verið skráð samviskusamlega þarf að prenta það út á pappír,  klippa hann niður og líma yfir með þykku límbandi.  Ódýrara og handhægara væri að prenta það út á límmiða.  

  Á dögunum var ég að senda vörur til verslunarkeðju út á landi.  Ég kann kennitölu þess utanbókar.  En í þetta sinn komu elliglöp í veg fyrir að ég myndi kennitöluna.  Ég bað afgreiðslumann um að fletta kennitölunni upp fyrir mig.  Hann neitaði.  Sagði sér vera óheimilt að gefa upp kennitölur.  Það væri brot á persónuvernd. 

  Við hlið hans var tölva sem ég hafði aðgang að til að fylla út fylgibréf.  Sem ég og gerði.  Þetta var spurning um hálfa mínútu eða svo.  Ég spurði hver væri munurinn á því að ég fletti upp fyrir framan hann kennitölu eða hann gerði það.  Svarið var:  Þú ert í rétti til þess en ekki ég. 

  Já,  reglur eru reglur. 


Færeyingar skara framúr

  Í fréttum af erlendum vettvangi er iðulega tíundað hvernig norrænu þjóðunum vegnar í baráttunni við kóróna-vírusinn.  Gallinn við þennan fréttaflutning er að Færeyingar eru taldir með Dönum.  Fyrir bragðið fer glæsilegur árangur Færeyinga framhjá flestum.  Nú skal bætt úr því:

  Í Færeyjum er enginn smitaður.  Enginn er að bíða eftir niðurstöðu úr skimun.  Enginn er í innlögn.  Enginn er í sóttkví.  

  Færeyingar hafa skimað um 240 þúsund manns.  Það er mikið fyrir þjóð sem telur 53 þúsund.  Skýringin er margþætt.  Meðal annars hafa margir Færeyingar búsettir erlendis átt erindi til Færeyja oftar en einu sinni frá því að Covid gekk í garð fyrir tveimur árum. Sama er að segja um marga útlendinga sem þurfa að bregða sér til Færeyja vinnutengt.  Einnig hefur verið töluvert um að Íslendingar og Danir sæki Færeyjar heim í sumar- og vetrarfríum.  Erlend skip og togarar (þar af íslenskir) kaupa vistir í Færeyjum og landa þar.  Svo eru það erlendu skemmtiferðaskipin.  

  Sjálfir gera Færeyingar út glæsilegt skemmtiferðaskip,  Norrænu,  sem siglir til og frá Færeyjum,  Íslandi og Danmörku.  Í þessum skrifuðu orðum er tveir Danir í sóttkví um borð í Norrænu.  

  Færeyingar hafa gefið 10 þúsund bólusprautur.  Þar af hafa 11% af þjóðinni fengið fyrri sprautuna og 7,7% seinni sprautuna. 

  Danskur ráðherra, að mig minnir Mette Frederiksen,  sagði í viðtali að Danir gætu lært margt af Færeyingum í baráttunni við Covid-19.  Íslendingar geta það líka.  Og reyndar lært margt annað af Færeyingum.

   


Undarlegt samtal í banka

  Ég var að bruðla með peninga í bankaútibúi.  Það var tuttugu mínútna bið.  Allt í góðu með það.  Enginn var að flýta sér.  Öldruð kona gekk hægum skrefum að gjaldkera.  Hún tilkynnti gjaldkeranum undanbragðalaust hvert erindið var.  "Ég ætla að kaupa peysu hjá þér,"  sagði hún.  Gjaldkerinn svaraði:  "Við seljum ekki peysur.  Þetta er banki."  Konan mælti áður en hún snérist á hæl og gekk burt:  "Já,  ég veit það.  Ég hélt samt að þið selduð peysur." 

peysa


Hártískan

  Tískan er harður húsbóndi.  Ekki síst hártískan.  Oft veldur lítil þúfa þungu hlassi.  Eins og þegar fjórir guttar í Liverpool tóku upp á því að greiða hárið fram á enni og láta það vaxa yfir eyrun á fyrri hluta sjöunda áratugarins (6-unni).  Þetta kallaðist bítlahár.  Það fór eins og eldur um sinu um heimsbyggðina.  Svo leyfðu þeir hárinu að síkka.  Síða hárið varð einkenni ungra manna.  Svo sítt að það óx niður á bak og var skipt í miðju. 

  Löngu síðar komu til sögunnar aðrar hártískur.  Svo sem pönkara hanakambur og þar á eftir "sítt að aftan". 

  Margt af því sem um hríð þótti flottast í hártísku hefur elst mis vel.  Skoðum nokkur dæmi:

hártískan 1hártískan 2hártískan 3hártískan 4 sítt að aftanhártískan 5 heysátahártískan 6 uppsett frá ennihártískan 8 - kústur      


Söluhrun - tekjutap

 

 Sala á geisladiskum hefur hrunið,  bæði hérlendis og erlendis.  Sala á geisladiskum hérlendis var 2019 aðeins 3,5% af sölunni tíu árum áður.   Sala á tónlist hefur þó ekki dalað.  Hún hefur að stærstum hluta færst yfir á netið.  

  98% af streymdri músík á Íslandi kemur frá sænska netfyrirtækinu Spotify.  Alveg merkilegt hvað litla fámenna 10 milljón manna þorp,  Svíþjóð,  er stórtækt á heimsmarkaði í tónlist.

  Tæpur þriðjungur Íslendinga er með áskrift að Spotify.  Þar fyrir utan er hægt að spila músík ókeypis á Spotify.  Þá er hún í lélegri hljómgæðum.  Jafnframt trufluð með auglýsingum. 

  Annar stór vettvangur til að spila ókeypis tónlist á netinu er youtube.com.  Þar eru hljómgæði allavega.    

  Höfundargreiðslur til rétthafa eru rýrar.  Það er ókostur.  Þetta þarf að laga.  

  Ókeypis músík hefur lengst af verið stórt dæmi.  Ég var í barnaskóla á Hólum í Hjaltadal á sjöunda áratugnum (6-unni).  Þar var líka Bændaskóli.  Nemendur í honum áttu svokölluð real-to-real segulbandstæki.  Einn keypti plötu og hinir kóperuðu hana yfir á segulbandið sitt.

  Nokkru síðar komu á markað lítið kassettusegulbandstæki.  Flest ungmenni eignuðust svoleiðis.   Einn kosturinn við þau var að hægt var að hljóðrita ókeypis músík úr útvarpinu.  Það gerðu ungmenni grimmt.  

  Með kassettunni varð til fyrirbærið "blandspólan".  Ástríðufullir músíkunnendur skiptust á safnspólum.  Þannig kynntu þeir fyrir hver öðrum nýja spennandi músík.  Síðar tóku skrifaðir geisladiskar við því hlutverki. 

  Sumir rétthafar tónlistar skilgreina ókeypis tónlistarspilun sem tekjumissi.  Það er rétt að sumu leyti.  Ekki öllu.   Þegar ég heyrði nemendur Bændaskólans á Hólum blasta Bítlaplötum þá blossaði upp löngun í Bítlaplötur.  Sem ég síðar keypti.  Allar.  Fyrst á vinyl.  Svo á geisla. 

  Ég veit ekki hvað litla kassettutækið sem hljóðritaði lög úr útvarpinu skilaði kaupum á mörgum plötum.  Þær voru margar.  Sem og blandspólurnar. 

  Stór hluti þeirra sem spilar músík á Spotify og youtube.com kynnist þar músík sem síðar leiðir til plötukaupa.  Eða mætingu á hljómleika flytjenda.  Á móti kemur að mörg lög sem menn spila á Spotify og youtube.com hefði hlustandinn aldrei keypt á plötu.  Fólk tékkar á ótal lögum og flytjendum án þess að heillast af öllu.  Þess vegna er rangt að reiknað tap á höfundargreiðslum sé alfarið vegna spilunar á öllum lögum.   

  Netveiturnar hafa ekki drepið tónlist í föstu formi.  Vinyllinn er í stórsókn.  Svo brattri að hérlendis hefur sala á honum átjánfaldast á níu árum.  Sér þar hvergi lát á. 

rpm    

   


Verða einhverntíma til nýir Bítlar?

 

  Bresku Bítlarnir,  The Beatles,  komu eins og stormsveipur,  fellibylur og 10 stiga jarðskjálfti inn á markaðinn á fyrri hluta sjöunda áratugarins (6-unni).  Þeir breyttu öllu.  Ekki bara tónlistinni.  Líka hugsunarhætti,  hártísku,  fatatísku...  Þeir opnuðu bandaríkjamarkað upp á gátt fyrir breskri tónlist.  Reyndar allan heimsmarkaðinn.  Rúlluðu honum upp.  Slógu hvert metið á fætur öðru.  Met sem mörg standa enn í dag.

  Um miðjan sjötta áratuginn var umboðsmaður þeirra í blaðaviðtali.  Hann fullyrti að Bítlarnir væru svo öflugir að ungt fólk myndi hlusta á tónlist þeirra árið 2000.  Hann hefði alveg eins getað nefnt árið 2021.  Hvergi sér fyrir enda á vinsældum þeirra og áhrifum.  

  Eitt sinn var John Lennon spurður hvor hljómsveitin væri betri,  The Rolling Stones eða Bítlarnir.  Hann svaraði eitthvað á þessa leið:  The Rolling Stones eru tæknilega betri.  Þeir eru fagmenn.  Við erum amatörar.  Enginn okkar hefur farið í tónlistarnám.  Við höfum bara fikrað okkur áfram sjálfir.  Engu að síður standast plötur okkar samanburð við hvaða plötur sem er. 

  Enn í dag eru Bítlaplötur í efstu sætum á listum yfir bestu plötur allra tíma.

  Fyrsta Bítlaplatan kom út 1963.  Síðasta platan sem þeir hljóðrituðu kom út 1969.  Ferillinn spannaði aðeins 6 ár.  Sterk staða þeirra allar götur síðan er þeim mun merkilegri.  Til þessa hefur engin hljómsveit komist með tær þar sem Bítlarnir hafa hæla.  Hverjar eru líkur á að fram komi hljómsveit sem jafnast á við Bítlana?  ENGAR!   

  Í Bítlunum hittust og sameinuðust tveir af bestu og frjóustu lagahöfundum sögunnar,  John Lennon og Paul McCartney.  John jafnframt einn albesti textahöfundurinn.  Paul á líka góða spretti.  Þeir tveir eru auk þess í hópi bestu söngvara rokksins.  Sömuleiðis flottir hljóðfæraleikarar.  Sérstaklega bassaleikarinn Paul. 

  Til liðs við þá komu frábær trommuleikari,  Ringo Starr,  og ljómandi góður og öruggur gítarleikari,  George Harrison.  Hann var fínn í að radda með þeim.  Þegar leið á ferilinn varð hann mjög góður lagahöfundur.  Svo mjög að á síðustu plötunni,  Abbey Road,  taldi John - og margir fleiri - hann eiga bestu lögin.

  Þetta allt skipti sköpum.  Ofan á bættist rík löngun Bítlanna til að fara nýjar leiðir.  Tilraunagleði þeirra gekk mjög langt.  Umfram margar aðrar hljómsveitir réðu þeir glæsilega vel við þau dæmi. Ennfremur vó þungt - afar þungt - að mikill kærleikur ríkti á milli þeirra.  Þeir voru áköfuðustu aðdáendur hvers annars.  Þeir voru sálufélagar og háðir hver öðrum.  Það hafði mikið að gera með erfiða lífsreynslu;  ótímabært fráfall mæðra og allskonar.  Bítlarnir voru á unglingsaldri þegar þeir kynntust og ólu hvern annan upp út ferilinn.  Fyrri eiginkona Johns,  Cynthia,  sagði að John og Paul hafi verið eins ástfangnir hvor af öðrum og tveir gagnkynhneigðir menn geta verið.   

  Margt fleira mætti nefna sem tromp Bítlanna.  Til að mynda háa greindarvísitölu þeirra allra, leiftrandi kímnigáfu og fjölhæfni.  Allir spiluðu þeir á fjölda hljóðfæra.  Þar af Paul á um 40 og þeir hinir á um 20. Á Bítlaárunum var sólógítarleikarinn George Harrison ágætur söngvari.  Trommarinn Ringo söng líka en söngrödd hans féll ekki að röddun hinna.  Rolling Stonsarinn Keith Richard hélt því fram í símtali við Paul að skilið hafi á milli hljómsveitanna að Bítlarnir skörtuðu 4 söngvurum en Stónsarar aðeins Mick Jagger.  Ágætt komment.  En margt fleira aðgreindi þessar hljómsveitir.             

bítlaæði 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.