Jólakveđja

 

Eg ynskir řllum eini gleđilig jól! Vónandi fáa tit eitt gott nýtt ár og ég takka eisini fyri hugnaligar lötur í farna áriđ!

  Heims um ból höldum viđ jól;

heiđingjar, kristnir og Tjallar.

  Uppi í stól stendur í kjól

stuttklipptur prestur og trallar.


Bestu Bítlaplöturnar

  Breska hljómsveitin Bítlarnir (The Beatles) hćtti fyrir meira en hálfri öld.  Plötuferill hennar spannađi ađeins sex ár.  Samt er ekkert lát á vinsćldum hennar.  Ađdáendahópurinn endurnýjar sig stöđugt.  Í útvarpi má iđulega heyra spiluđ lög međ Bítlunum og umfjöllun um Bítlana.  Skammt er síđan Gunnar Salvarsson rakti sögu hljómsveitarinnar í ţáttaseríu á Rúv.  Gerđar hafa veriđ leiknar kvikmyndir um Bítlana,  sem og heimildarmyndir og sjónvarpsţćttir.  Núna síđast hefur Disney+ veriđ ađ sýna átta tíma heimildarţátt um gerđ plötunnar "Let it be".  

  Ţađ segir margt um stöđu Bítlanna ađ í hálfa öld hafa 3 plötur hennar veriđ ađ skiptast á ađ verma efstu sćti lista yfir bestu plötur allra tíma.  Ţađ eru "Sgt Pepper´s...",  "Revolver" og "Abbey Road".  

  Til gamans:  Hér til vinstri á ţessari síđu hef ég stillt upp skođanakönnun um uppáhalds Bítlaplötuna.  Vinsamlegast takiđ ţátt í leitinni ađ henni. 

  Breska tímaritiđ Classic Rock hefur tekiđ saman lista yfir bestu og áhrifamestu Bítlaplöturnar.  Stađa ţeirra er studd sannfćrandi rökum.  Ţannig er listinn:

1.  Revolver (1966)

  Ţarna voru Bítlarnir komnir á kaf í ofskynjunarsýruna LSD og indverska músík.  Ţađ tók almenning góđan tíma ađ melta ţessa nýju hliđ á Bítlunum.  Platan seldist hćgar en nćstu plötur á undan.  Hún sat "ađeins" í 8 vikur í 1. sćti breska vinsćldalistans.  Ţví áttu menn ekki ađ venjast.  Í dag hljóma lög plötunnar ósköp "venjuleg".  1966 voru ţau eitthvađ splunkunýtt og framandi. Plötuumslagiđ vakti mikla athygli.  Í stađ hefđbundinnar ljósmyndar skartađi ţađ teikningu af Bítlunum.  Hönnuđurinn var Klaus Woorman,  bassaleikari sem Bítlarnir kynntust í Ţýskalandi.  Hann spilađi síđar á sólóplötum Lennons.  Umslagiđ fékk Grammy-verđlaun.  

 

2.  Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band (1967)

  Bítlarnir gengu ennţá lengra í tilraunamennsku og frumlegheitum.  Gagnrýnendur voru á báđum áttum.  Sumir töldu Bítlana vera búna ađ missa sig.  Ţeir vćru komnir yfir strikiđ.  Tíminn vann ţó heldur betur međ Bítlunum. 

3.  Please Please Me (1963)

  Sem jómfrúarplata Bítlanna markađi hún upphaf Bítlaćđisins - sem varir enn.  Hún var byltingarkenndur stormsveipur inn á markađinn.  Ný og spennandi orkusprengja sem náđi hámarki í hömlulausum öskursöng Lennons í "Twist and Shout".  Ţvílík bomba!   

4.  Abbey Road (1969)

  Síđasta platan sem Bítlarnir hljóđrituđu.  Ţeir sönnuđu ađ nóg var eftir á tanknum.  George á bestu lög plötunnar.  Hin lögin eru ţó ekkert slor.    

 

5.   Magical Mistery Tour (1967)

 

6.  Rubber Soul (1965)

7.  Hvíta albúmiđ (1968)

8.  With The Beatles (1963)

9.  A Hard Day´s Night (1964)

  Ţrjár plötur ná ekki inn á ţennan lista:  Beatles for sale (1964),  Help (1965),  Yellow Submarine (1969).  Allt góđar plötur en skiptu ekki sköpum fyrir tónlistarţróun Bítlanna og heimsins.


Sprenghlćgilegar ljósmyndir af glćpamönnum

  Fá ljósmyndaalbúm eru spaugilegri en ţau sem hýsa myndir af bandarískum glćpamönnum.  Eflaust eru glćpamenn annarra ţjóđa líka broslegir.  Lögregluţjónar ţeirra eru bara ekki eins ljósmyndaglađir.  Síst af öllu íslenskir.  Hér eru nokkur skemmtileg dćmi:  

löggumynd alöggumynd blöggumynd hárgreiđsla clöggumynd - klipping clöggumynd - klipping d    


Bestu gítarleikarar rokksögunnar?

  Sumir halda ranglega ađ gćđi gítarleiks ráđist af hrađa og fingrafimi.  Ţetta á ekki síst viđ um gítarleikara sem ráđa yfir fćrni í hrađa.  Jú, jú.  Ţađ getur alveg veriđ gaman ađ heyra í ţannig flinkum gítarleikara.  En ađeins í hófi.  Miklu hófi.  Fátt er leiđinlegra en sólógítarleikari sem ţarf stöđugt ađ trana sér fram og sýna hvađ hann getur spilađ hratt.

  Bestu gítarleikarar eru ţeir sem upphefja lagiđ og međspilara sína óháđ fingrafimi og hrađa.  Einn gítartónn hjá BB King gerir meira fyrir lag en allir hrađskreiđustu sólógítarleikarar rokksins til saman.  Einhver orđađi ţađ á ţessa leiđ.  Man ekki hver. 

  Tímkaritiđ Woman Tales hefur tekiđ saman lista yfir bestu gítarleikara rokksögunnar.  Ég er glettilega sammála niđurstöđunni.  Hún er ţessi:

1.  Jimi Hendrix.  Rökin eru m.a. ţau ađ hann fullkomnađi áđur óţekktan leik međ enduróm (feedback).  Jafnframt spilađi hann hljóma sem fyrirrennarar hans vissu ekki ađ vćru til.  Margt fleira mćtti telja upp sem stimplar Hendrix inn sem besta gítarleikara rokksögunnar. 

Gott dćmi um ţađ hvernig Hendrix umbreytti góđu lagi í meiriháttar snilld er túlkun hans á "All Along the Watchtower".  

2.  Eric Clapton.  Hann kann öll trixin í bókinni.  En líka ađ kunna sér hófs án stćla. 

3.  Jimmy Page (Led Zeppelin).  Hann gerđi svo margt flott án ţess ađ trana sér. 

4.  Chuck Berry bjó til rokk og rolliđ. Og rokkgítarleikinn.

5.  Eddie Van Halen

6.  Keith Richards

7.  Jeff Back

8.  B. B. King

9.  Carlos Santana

10. Duane Allman

11. Prince

12. Stevie Ray Vaughn

13. Pete Townshend  (The Who)

14. Joe Walsh

15. Albert King .

16. George Harrison

17. John Lennon

18. Kurt Cobain

19. Freddie King

20. Dick Dale

21. Buddy Holly

22. Slash  (Guns N Roses)

23. Joe Perry  (Aerosmith)

24. David Gilmour  (Pink Floyd)

25. Neil Young

26. Frank Zappa

27. Tom Petty og Mike Campell  (Heartbreakers)

28. Muddy Waters

29. Scotty Moore

30. Billy Gibbons  (ZZ Top)

31. The Edge  (U2)

32. Bobby Krieger  (The Doors)

33. Brian May  (Queen)

34. Angus Young (AC/DC)

35. Tom Morello (Rage Against the Machine / Audioslave / Bruce Springsteen & the E-Street Band)


KSÍ í vanda

Mikill vandi og óvissa steđjar nú ađ KSÍ. Einkum varđandi fyrirhugađan flutning vínbúđar úr Austurstrćti í einhvern útkjálka sem kallar á akstur vélknúins ökutćkis. Í herbúđum KSÍ er horft vonaraugum til stađsetningar í göngufćri viđ Laugardalshöllina. Kirkjusandur kemur sterklega til greina.


Ríkustu tónlistarmenn heims

  Margir vinsćlir tónlistarmenn fengu ađ heyra ţađ á unglingsárum ađ ţeir ţyrftu ađ lćra eitthvađ nytsamlegt.  Eitthvađ sem opnađi ţeim leiđ ađ vel launuđu starfi.  Ţetta fengu ţeir ađ heyra ţegar hugur ţeirra snérist allur um hljóđfćragutl.  "Tónlistin gefur ekkert í ađra hönd," fullyrtu vel meinandi foreldrar. 

  Samkvćmt Geoworld Magazine virđast ýmsir tónlistarmenn hafa komist í álnir.  Ţar á međal ţessir (innan sviga er virđi ţeirra):

Paul McCartney ($ 1,28 milljarđar)

Andrew Lloyd Webber ($ 1,2 milljarđar)

  Ţessir tveir eru Bretar.  Í nćstu sex sćtum eru Bandíkjamenn.

3  Jay Z ($ 1 milljarđur)   

Herb Albert ($ 850 milljónir)

  Eitthvađ af ţessum aurum hefur Herb Albert fengiđ fyrir ađ spila og gefa út á plötu lagiđ "Garden Party" eftir Eyţór Gunnarsson (Mezzoforte).

Sean Combs - Diddy ($ 825 milljónir) 

Dr.Dre ($ 800 milljónir)

Madonna ($ 580 milljónir)

  Madonna er lang lang efnuđust tónlistarkvenna.  Sú eina sem er inn á topp 20.  

Emilio Estefan ($ 500 milljónir)

Elton John ($ 480 milljónir)

10 Coldplay (475 milljónir)

  Elton John og Coldplay eru breskir.  Jimmy Buffett er bandarískur, eins og Brúsi frćndi.  Í sćtum 12, 13 og 15 eru Bretar.  

11 Jimmy Buffett ($ 430 milljónir) 

12 Mick Jagger ($ 360 milljónir)

13 Ringo Starr ($ 350 milljónir)

14 Bruce Springsteen ($ 345 milljónir)

15 Keith Richards (340 milljónir)

16 Neil Sedaka ($ 300 milljónir)

17 Gene Simmons ($ 300 milljónir)

18 Jon Bon Jovi ($ 300 milljónir)

19 Sting ($ 300 milljónir)

20 L.A.Reid ($ 300 milljónir)

  Sting er breskur.  Hinir bandarískir.


Hljómplötuumsögn

 - Titill:  Prine

 - Flytjendur:  Grasasnar

 - Einkunn: ****

  Prine er önnur plata borgfirsku hljómsveitarinnar Grasasna.  Sú fyrri heitir Til í tuskiđ.  Nýja platan heiđrar minningu bandaríska söngvarans og söngvaskáldsins John Prine (1946 - 2020).  Hann var og er virtur, vinsćll og margverđlaunađur.

  Öll lögin eru eftir Prine.  9 af 11 textum yrkir Steinar Berg á íslensku.  Hann er söngvari og kassagítarleikari hljómsveitarinnar.  Bjartmar Hannesson á einn texta (ţekktastur fyrir 17. júní lagiđ međ Upplyftingu).  Einn texti eftir Prine heldur sér á ensku.  Hann er Let´s talk dirty in Hawaian.  Ţetta er lokalag plötunnar.  Ţađ virkar dálítiđ eins og bónuslag.  Bćđi vegna enska textans og líka vegna ţess ađ flutningurinn er frábrugđinn öđrum lögum.  Hljómar í humátt eins og ađ vera hljóđritađur í partýi;  sem skilur eftir sig gott eftirbragđ ţegar hliđ B lýkur.  Reyndar er partý-gleđi í fleiri lögum - ţó ađ ţetta sé ađal partý-lagiđ.    

  Lög Prines eru einföld,  auđlćrđ,  fjölbreytt og grípandi.  Mjög grípandi.  Viđ fyrstu hlustun ţarf ađeins ađ heyra upphafstóna til ađ geta trallađ međ öllu laginu. 

  Tónlistin er kántrý,  kántrý-rokk og kántrýskotnir vísnasöngvar.  Útsetningum Prines er ekki fylgt af nákvćmni.  Stemmningin fćr ađ halda sér.  Ađ öđru leyti afgreiđa Grasasnar útfćrsluna međ sínu nefi.  Fyrir bragđiđ skilar sér einlćgni í flutningi og innlifun.

  Hljómsveitin er vel spilandi.  Auk Steinars Bergs eru í Grasösnum Sigurţór Kristjánsson (trommur, slagverk, bakraddir),  Sigurđur Bachmann (gítarar) og Halldór Hólm Kristjánsson (bassi, bakraddir). Ađ auki skerpa gestaleikarar á litbrigđum međ fiđlu, munnhörpu, píanói,  harmonikku og fleiru.  Allt í smekklegu og snotru hófi.  

  Söngur Steinars Bergs er međ ágćtum; röddin sterk og einkennandi fyrir hljóđheim Grasasna.   

  Textarnir gefa tónlistinni heilmikla vigt.  Í ţeim eru sagđar sögur.  Sumar af búsi og grasi.  Margar blúsađar í bland viđ gleđi af ýmsu tagi.  Í dýpri textum er fjallađ um siđblind illmenni og lífeyrissjóđi.  Í Fiskum og flautum segir:

  Alla ćfi lífeyri lagđi ég í sjóđ

og lét mig hlakka til ađ eiga elliárin góđ.

  Nú étur kerfiđ sparnađinn upp af miklum móđ.

  Ţeir kalla ţetta krónu á móti krónu. 

  Textarnir eru í frjálsu formi en međ endarími.  Umslagiđ - hannađ af Steinari Berg - er harla gott,  mikiđ um sig (tvöfalt) og veglegt međ prentuđum textum og skemmtilegum ljósmyndum.  Ţćr keyra upp stemmninguna á Land Rover. 

  Prine er hlý og notaleg plata.  Hún hljómar vel viđ fyrstu hlustun.  Líka eftir ađ hafa veriđ margspiluđ. 

Grasasnar

 

           


Ósćtti út af kjúklingavćngjum

  Ofbeldi tíđkast víđar en í bandarískum skemmtiţáttaseríum.  Stundum ţarf ekki mikiđ til.  Jafnvel ađ gripiđ sé til skotvopna ţegar fólki mislíkar eitthvađ.  Ţađ hefur meira ađ segja hent á okkar annars friđsćla Íslandi;  ţar sem flestir sýna flestum takmarkalausa ást og kćrleika. 

  Í Vínlandinu góđa,  nánar tiltekiđ í Utah-ríki,  vildi umhyggjusamur fađir gera vel viđ ţrítugan son sinn.   Á heimleiđ úr vinnu keypti hann handa honum vćnan skammt af kjúklingavćngjum.  Viđtökurnar voru ekki jafn fagnandi og pabbinn bjóst viđ.  Stráksa mislíkađi ađ kallinn hafđi ekki keypt uppáhaldsvćngina hans heldur einhverja ađra tegund.  Mönnum getur sárnađ af minna tilefni.  Hann stormađi inn á bađherbergi.  Ţar var ein af byssum heimilisins geymd.  Kauđi nýtti sér ţađ.  Hann tók byssuna og skaut á kallinn.  Sem betur fer var hann ekki góđ skytta í geđshrćringunni.  Kúlan fór yfir í nćsta hús og hafnađi ţar í uppţvottavél. 

  Kallinn stökk á strákinn og náđi ađ afvopna hann.  Áđur tókst drengnum ađ hleypa af tveimur skotum til viđbótar.  Bćđi geiguđu ađ mestu en náđu samt ađ sćra kallinn. 

  Einhver biđ verđur á ađ gaurinn fái fleiri kjúklingavćngi.  Hann er í fangelsi.  

vćngir

           

  .    


Ofbeldi upphafiđ

  Ég horfi stundum á sjónvarp.  Í Sjónvarpi Símans hafa árum saman veriđ endursýndir bandarískir grínţćttir sem kallast The king of Queens.  Sömu ţćttirnir sýndir aftur og aftur.  Ţađ er í góđu lagi.  Ein ađalstjarnan í ţáttunum er virkilega vel heppnuđ og fyndin. Ţar er um ađ rćđa geđillan og kjaftforan náunga sem kallast Arthur.  Leikarinn heitir Jerry Stiller.  Hann ku vera fađir íslandsvinarins Bens Stillers.  

  Arthur býr heima hjá dóttur sinni og tengdasyni.  Eins og algengt er í svona gamanţáttum ţá er konan fögur, grönn og gáfuđ.  Kall hennar er feitur, undirförull og heimskur. Allt er ţetta međ ágćtum ef frá er taliđ ađ ofbeldi er fegrađ sem brandarar.  Hjónin eiga til ađ hrinda hvort öđru;  konan snýr upp á geirvörtur kauđa og kýlir hann međ hnefa í bringuna.  Ţetta er ekki til eftirbreytni og ber ađ fordćma.     


Smásaga um mann sem týndi sjálfum sér

  - Af hverju kemur ţú svona seint heim? spurđi konan ásakandi um leiđ og Raggi gekk inn um útidyrnar.

  - Ég týndi mér, svarađi hann skömmustulega.

  - Hvađ meinar ţú?

  - Ég var ađ ganga niđur Bankastrćti ţegar ég tók eftir ţví ađ ég var kominn fram úr mér.  Ég reyndi ađ halda í viđ mig en ţađ voru alltof margir ferđamenn sem flćktust fyrir.  Ađ lokum missti ég sjónir af mér.  

  - Hvađa kjaftćđi er ţetta?

  - Ég sver.  Ég varđ ađ ganga hús úr húsi í Austurstrćti í leit ađ mér.  Ţetta var rosalega seinlegt.  Sum húsin eru á meira en einni hćđ.  Ég var sannfćrđur um ađ ég vćri ţarna einhversstađar.  Ég var kominn alveg ađ Ingólfstorgi ţegar ég fann mig á austurlenskum veitingastađ.  Ég lét mig heyra ţađ óţvegiđ og dreif mig heim.

  -  Veistu,  ég trúi ţér.  Mamma kom áđan í heimsókn og spurđi hvar ţú vćrir.  Ég sagđi henni ađ ţú hefđir áreiđanlega týnt ţér í miđbćnum. 

  - Hvernig datt ţér ţađ í hug?

  - Ţađ var ekkert erfitt ađ giska á ţetta.  Ţetta hefur endurtekiđ sig á hverju kvöldi í tólf ár.

felur sig


Brýnt ađ halda til haga um Guđna Má Henningsson

  Ég heyrđi fyrst af Guđna Má er ég kíkti í Plötubúđina á Laugavegi 20.  Ţar réđi Halldór Ingi heitinn Andrésson ríkjum.  Hann sagđi mér frá ţessum náunga sem hlustađi á músík allan daginn alla daga.  Hlustađi og stúderađi flytjendur allan sinn vökutíma.

  Halldóri Inga ţótti áríđandi ađ stútfullur fróđleiksbrunnur Guđna Más yrđi virkjađur í útvarpi.  Mig minnir ađ hann hafi fyrst komiđ honum í útvarpsstöđina Sólina.  Ţar blómstrađi hann međ öđruvísi lagaval en ađrir dagskrárgerđarmenn.  Heillandi lagaval.

  Síđar hreppti Rás 2 Guđna Má.  Ţađ var happafengur.   

  2002 tók Guđni Már upp á ţví ađ spila á Rás 2 fćreyskt lag,  "Ormurin langi" međ víkingametalsveitinni Tý. Ţá hafđi fćreysk tónlist ekki áđur veriđ spiluđ á Rás 2. Vinnufélagarnir stukku ekki á vagninn til ađ byrja međ.  Hann ţurfti ađ hafa fyrir ţví ađ koma "Ormurin langi" í fasta spilun á Rás 2.  Međ harđfylgni tókst honum ađ landa ţví.

  "Ormurin langi" varđ mest spilađa lag á Íslandi 2002.  Platan seldist í 4000 eintökum.  Kiddi kanína var snöggur til ađ venju.  Hann bókađi Tý í hljómleikaferđ um Ísland.  Í leiđinni bjó hann til fćreyska tónlistarveislu,  Fairwaves.  Ţar kynnti hann til sögunnar fjölda fćreyskra tónlistarmanna,  svo sem Eivöru,  Högna Lisberg,  hljómsveitina Clickhaze,  pönksveitina 200,  djasssveitina Yggdrasil međ Kristian Blak í fararbroddi,  Lenu Anderssen,  Hanus G. og Guđriđ Hansdóttir, svo ađeins örfá nöfn séu nefnd.  

  Án Guđna Más hefđu Íslendingar aldrei kynnst frábćrri tónlist ţessa fólks. 

  Til gamans vitna ég í frásögn Guđna Más í bók minni Gata, Austurey,  Fćreyjar,  Eivör og fćreysk tónlist:  "Eivör spilađi í beinni útsendingu hjá mér í Útvarpshúsinu í Ţórshöfn.  Hún var mögnuđ stelpan ţar.  Á milli laga spjallađi ég viđ hana og eitt sinn ţegar ég reyndi ađ vera mjög gáfulegur og klár ţá kleip hún mig í rassinn - í beinni útsendingu!"

guđni már

        


Af hverju eru Debbie Harry og Blondie pönk?

  Vegna Íslandsheimsóknar bandarísku söngkonunnar Debbie Harry hefur margur fróđleiksfús spurt sig,  ćttingja og nágranna:  Af hverju var Blondie pönk?  Hljómsveitin hljómađi ekki eins og pönk.  Hún var meira eins og létt popp í bland viđ reggí.  

  Máliđ er ađ í Bandaríkjunum var pönk ekki einhver tiltekinn músíkstíll.  Ţađ var samheiti yfir viđhorf tónlistarfólks til tónlistarbransans.  1974-1975 ţótti prog (framsćkiđ rokk) flottast.  En átti ekki upp á pallborđ hjá vinahópi sem spilađi í New York skemmtistađnum CBGB.  Hann spilađi einfalda músík sem var ekkert flćkt međ flóknum sólóum og taktskiptum.  Máliđ var ađ kýla á hlutina óháđ fćrni á hljóđfćri.  Allir fengu ađ vera međ:  Blondie,  Patti Smith, Televison,  Ramones...  Ţetta var "gerđu ţađ sjálf/ur" (Do It Yourself) viđhorf.

  Ţetta tónlistarfólk var kallađ pönk međ tilvísun í fanga sem níđst er á í bandarískum fangelsum.  Aumast allra aumra.  

  Víkur ţá sögu til Bretlands.  1976 myndađist ţar bylgja hljómsveita sem spilađi svipađa rokktónlist (blöndu af glam rokki og pöbbarokki).  Ţetta voru Sex Pistols,  Clash,  Damned, Buzzcocks og fleiri.  Í ágúst 1976 skrifađi blađakona NME vikublađsins um ţessa bylgju.  Hún sá sterka samlíkingu viđ bandarísku pönkarana.  Hún fékk samţykki bylgjunnar til ađ kalla hana pönk.  

 


Höfrungar til vandrćđa

höfrungar

 

 

 

 

 

 

 

 Á dögunum rákust fćreyskir smábátaeigendur á höfrungavöđu.  Ţeir giskuđu á ađ um vćri ađ rćđa 200 kvikindi.  Ţađ er ágćtis magn af ljúffengu kjöti.  Ţeir ákváđu ađ smala kjötinu inn í Skálafjörđ.  Hann er lengstur fćreyskra fjarđa,  14,5 km.  Allt gekk vel.  Nema ađ höfrungunum fjölgađi á leiđinni.  Ađ auki varđ misbrestur á ađ ađ láta rétta menn í landi vita af tíđindunum.  Fyrir bragđiđ mćttu fáir til leiks.  Ţess vegna lenti ţađ á örfáum ađ slátra 1400 dýrum.  Ţađ tók tvo klukkutíma.  Einungis lćrđum og útskrifuđum mćnustungufrćđingum er heimilt ađ lóga hvölum í Fćreyjum.  

  Útlendir Sea Shepherd liđar í Fćreyjum notuđu dróna til ađ senda ađfarirnar út í beinni á netsíđum erlendra fjölmiđla.  Međal annars BBC. 

  Dýradráp er ekki fögur og ađlađandi sýn fyrir nútímafólk sem heldur ađ kjöt og fiskur verđi til í matvöruverslunum.  Ég vann í sláturhúsi á Sauđárkróki til margra ára sem unglingur.  Ţar rann ekki minna blóđ en ţegar dýrum er slátrađ í Fćreyjum (sjá myndina fyrir neđan úr sláturhúsi).

  Ef sláturhús vćru glerhús er nćsta víst ađ sömu viđbrögđ yrđu viđ slátrun á svínum, kindum, kjúklingum,  hestum og beljum og eru nú viđ höfrungadrápinu í Fćreyjum. 

  Samt.  Höfrungadrápiđ var klúđur.  Alltof mörg dýr.  Alltof fáir slátrarar.  Ţetta var of.  Á venjulegu ári slátra Fćreyingum um 600 marsvínum (grind).  Fram til ţessa eru skepnurnar reknar 2 - 3 km.  Í ţessu tilfelli voru höfrungarnir reknir 50 km.

  Stuđningur fćreysks almennings viđ hvalveiđar hefur hruniđ.  Ţingmenn tala um endurskođun á lögum um ţćr.  Sjávarútvegsfyrirtćki hafa opinberlega mótmćlt ţeim.  Líka fćreyska álfadrottningin Eivör.  Hún er ađ venju hörđ á sínu og hvikar hvergi í ritdeilum um máliđ.   

  Dráp á höfrungum ţykir verra en grindhvaladráp.  Höfrungarnir ţykja meira krútt.  Samt hef ég heyrt ađ höfrungur hafi nauđgađ liđsmanni bandaríska drengjabandsins Backstreet Boys.  

sláturhús 

 

 

 


Bestu lagahöfundarnir

  Bandaríska söngvaskáldiđ Paul Simon er í hópi bestu lagahöfunda síđustu aldar.  Af ţekktum lögum hans má nefna Bridge over trouble water,  The sound of silence,  Mrs Robinson,  Mother and child reunion.  Lengi mćtti áfram telja.  Ţegar ţáverandi forseti Bandaríkjanna,  Richard M. Nixon,  heimsótti Mao formann í Kína ţá fćrđi hann honum plötuna Bridge over trouble water međ Paul Simon og Garfunkel,  sem hápunktinn í bandarískri tónlist.  

  Paul Simon hefur sterkar skođanir á lagasmíđum.  Ţessa telur hann vera bestu lagahöfundar liđinnar aldar:  Gershwin,  Berlin og Hank Williams.  Hann telur ađ Paul McCartney megi hugsanlega vera í hópnum.  Richard Rodgers og Lorenz Hart geta ţá veriđ međ líka.

  Í annađ sćti setur hann John Lennon,  Bob Dylan,  Bob Marley og Stephen Soundheim.  Hann telur ekki fráleitt ađ sjálfur megi hann vera međ í öđru sćtinu. 

 

 


Unga fólkiđ gerir mig hissa

  Eftir ţví sem ég eldist hćrra upp ellilífeyrisaldurinn gengur mér verr ađ skilja hugsunarhátt ungs fólks.  Ţađ er skrítiđ fólk.  Áđan verslađi ég smávegis í matvöruverslun.  Ung stelpa á kassanum stóđ sig vel í ađ stimpla inn verđiđ á vörunum.  Ađ ţví búnu gaf hún mér fúslega upp heildarverđ innkaupanna.  Ég greiddi međ seđli sem nánast passađi viđ ţađ.  Ađeins 2 krónur umfram.  Ţá spurđi stúlkan:  "Viltu afganginn?"  Ég varđ eitt spurningarmerki:  "Af hverju ćtti ég ekki ađ vilja afganginn?"  Hún svarađi:  "Ţetta eru bara 2 krónur." 

 

 

   


Frábćr lögregla

  Í fyrradag missti tćplega fertugur mađur vitiđ.  Óvćnt.  Enginn ađdragandi.  Hann var bara allt í einu staddur á allt öđrum stađ en raunveruleikanum.  Ég hringdi í hérađslćkni.  Til mín komu tveir kvenlögregluţjónar sem hóuđu í sjúkrabíl.  

  Ţetta fólk afgreiddi vandamáliđ á einstaklega lipran hátt.  Minnsta mál í heimi hefđi veriđ ađ handjárna veika manninn og henda honum inn á geđdeild eđa löggustöđ.  Ţess í stađ var rćtt viđ hann á ljúfu nótunum.  Ađ hluta til fallist á ranghugmyndir hans en um leiđ fengiđ hann til ađ fara á fćtur og koma út í sjúkrabíl.  

  Ţetta tók alveg 2 klukkutíma.  Skref fyrir skref:  Ađ standa á fćtur,  ađ fara í skó og svo framvegis.

  Ađ lokum tókst ađ koma honum í sjúkrabílinn.  Hálftíma síđar hringdi önnur lögreglukonan í mig.  Vildi upplýsa mig um framhaldiđ frá ţví ađ mađurinn fór í sjúkrabílinn.  Sem var töluverđ dagskrá sem náđi alveg til dagsins í dag. 

  Ţvílíkt frábćr vinnubrögđ.  Ég hafđi ekki rćnu á ađ taka niđur nöfn.        


Líkamsóvirđing

  Sjónvarp Símans er skemmtilegt.  Ţar eru endursýndir ţćttir árum saman ţangađ til öruggt er ađ áhorfandinn kunni ţá utanađ.  Ţannig er haldiđ ţétt utan um hlutina. 

  Ein áhugaverđasta ţáttaserían heitir Love island.  Hún sýnir mannlegt eđli ungs fólks.  Ţćttirnir ganga út á ţađ ađ breskum ungmennum er holađ niđur í afskekkt hótel á Spáni.  Ţar býr ţađ í vellystingum.  Eina kvöđin er ađ para sig.  Sem er létt verk og löđurmannlegt. 

  Ýmsu er bryddađ upp á til ađ freista.  Viđ ţađ skapast drama, ótryggđ, afbrýđisemi og allskonar breskleiki.  Til ađ skerpa á hefur ţátttakandi möguleika á ađ eignast 20 milljón kall eđa álíka. 

  Strákarnir í hópnum eru hugguleg húđflúruđ líkamsrćktartröll.  Ţeir tala um stelpur á máli boltaleikja.  Ţeir tala um ađ skora.  Koss er fyrsta höfn,  kynlíf önnur höfn og eitthvađ svoleiđis.  Öllum ţreifingum er fagnađ sem sigri.

  Strákarnir eru íklćddir boxer sundskýlum.  Stelpurnar eru íklćddar efnislitlu bikini.  Ţćr farđa sig svo ríflega ađ ţćr eru nánast óţekkjanlegar hver frá annarri.  Sítt slétt hár niđur á bak er litađ ljóst.  Allar eru međ gerviaugnhár.  Allt í góđu međ ţađ.  Nema ađ ţćr eru međ ţrútnar botox-varir.  Ţađ er ekki flott.  Ég fordćmi ţađ sem vonda fyrirmynd ungra kvenna.  Mér ađ meinalausu mega konur á elliheimilum ţrykkja í ýktar botox-varir.  Ţađ er svo sem ekki margt annađ um ađ vera á elliheimilum.  Ef frá er talin harmónikkumúsík.    

varir avarir b       

          


Dónalega fólkiđ

  Örlög beggja voru ráđin ţegar prúđi unglingurinn í Liverpool á Englandi,  Paul McCartney, kynnti sig fyrir bćjarvillingnum,  John Lennon.  Eftir ţađ heimsóttu ţeir hvorn annan á hverjum degi.  Ýmist til ađ syngja og spila saman uppáhaldslög eđa semja sína eigin söngva eđa hlusta á nýjar rokkplötur. 

  Ţegar John gekk til og frá heimili Pauls fór hann framhjá hópi fólks sem stóđ úti í garđi.  Í hvert einasta skipti í öllum veđrum.  Hann kastađi ćtíđ á ţađ kveđju.  Fólkiđ var svo dónalegt ađ endurgjalda hana aldrei.

  John sagđi Paul frá ţessu dónalega fólki.  Hann varđ forvitinn.  Stormađi međ John ađ fólkinu.  Kom ţá í ljós ađ ţetta var garđskreyting sem sýndi fćđingu Jesúbarnsins.  Fólkiđ var Jósef smiđur,  María mey og vitfirringarnir ţrír frá Austurlöndum. 

  Misskilningurinn lá í ţví ađ John var afar sjóndapur.  Mun sjóndaprari en hann gerđi sér sjálfur grein fyrir.  Hann var í afneitun.  Hélt ađ allir ađrir hefđu samskonar sjón. Hann sá allt í ţoku en hafđi engan áhuga á gleraugum.  Ekki fyrr en mörgum árum síđar. 

 


Illa fariđ međ börn

  Sumt fólk kemur illa fram viđ börn.  Stundum svo undrum sćtir.  Ţađ fengu sjö tólf ára stelpur ađ sannreyna er ţćr brugđu sér af bć og hugđust horfa saman á kvikmynd,  Hungurgeimana, í ţar til gerđum bíósal. 

  Stelpurnar voru ekki búnar ađ sitja lengi undir myndinni er hávćrt sírenuvćl frá nokkrum lögreglubílum truflađi skemmtunina.  Ţetta var í Austur-Sussex í Englandi.  Laganna verđir stormuđu inn gráir fyrir járnum.  Ţeir smöluđu stelpunum út á hlađ og sökuđu ţćr um ađ brjóta höfundarrétt.  Ţćr vćru ađ taka myndina upp á síma og iPoda.  Skođun á tćkjum stelpnanna sannađi sakleysi ţeirra.  Ţar var ekkert höfundarvariđ efni ađ finna.  Ţrjár stelpnanna voru ekki einu sinni međ síma eđa ađrar grćjur til ađ taka neitt upp.

  Fyrir utan hímdu stelpurnar í grenjandi rigningu og skulfu úr kulda bađađar í bláum blikkljósum.  Fjórar ţeirra fengu taugaáfall hágrátandi og ţurftu ađ kalla á foreldra til ađ ferja sig heim.  Lögreglan meinađi stelpunum ađ halda hópinn.  Ţeim var haldiđ ađgreindum.  Ein stúlkan sagđi móđur sinni síđar ađ hún hafi veriđ svo hrćdd ađ henni hafi veriđ ómögulegt ađ gráta.  Hún var bara í losti.  Ţćr höfđu enga reynslu af samskiptum viđ lögregluna. 

  Eigendur kvikmyndahússins hafna sök.  Vísa alfariđ á lögregluna.  Segja ađ í kjölfar símtals viđ hana hafi hún boriđ alla ábyrgđ á framvindunni. Endurgreiđslu á miđum er hafnađ.  Nýjum miđum er hafnađ.  Stelpurnar eyddu um 20 ţúsund kalli í kaup á miđum,  poppkorni, gosdrykkjum og fleiru.  En ţćr hafa ekki ennţá séđ myndina.  Hvorki í kvikmyndahúsi né á netinu.  Lögreglan hefur beđist afsökunar.

  Góđu fréttirnar eru ađ svona gerist ekki á Íslandi. 

 

      


Ađdáunarverđur metnađur

  Á árum áđur voru Prince Polo og kók ţjóđarréttur Íslendinga - ţá sjaldan er ţeir gerđu sér dagamun.  Í dag er ţjóđarrétturinn pylsa og Kristall međ sítrónubragđi. 

  Ţangađ til nýveriđ samanstóđ pylsan af uppsópi af gólfi kjötiđnađarmannsins.  Ţađ eru breyttir tímar.  Nú til dags er eru meiri er meiri sérviska viđ framleiđsluna.

  Vinsćlustu sölustađir pylsunnar eru afgreiđslulúgur Bćjarins bestu.  Varast ber ađ rugla ţeim saman viđ samnefnt hérađsfréttablađ á norđanverđum Vestfjörđum.  Pylsan í Bćjarins bestu kostađi 430 kall uns verđiđ hćkkađi í 480 á dögunum.  Nokkru síđar skreiđ ţađ í 500 kall.  Núna er erlendir ferđamenn komu til landsins og hófu ađ hamstra pylsu var verđiđ snarlega hćkkađ í 550 kall.

  Ţetta er alvöru bisness.  Fyrst ađ ferđamađurinn er reiđubúinn ađ borga 550 kall međ bros á vör ţá um ađ gera ađ sćta lagi.  Hann hefur ekki hugmynd um ađ í bensínsjoppum á borđ viđ Kvikk kostar pylsan 349 kall.  Verđmunurinn er 201 króna. 

pylsa 


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.