Getur svona harmleikur gerst hér?

oslóarmorðinginn 

  Eins og flestum var mér illilega brugðið við tíðindin af hryðjuverkunum í Noregi.  Ekki aðeins vegna fréttanna af þessum hörmungaratburði heldur einnig vegna viðbragða íslenskra bloggara og fésbókarritara.  Hver á fætur öðrum geystust þeir fram á ritvöllinn með stóryrtar yfirlýsingar um að nærri "fullvíst" væri að þarna væri greinilega um verk múslima að ræða.  Yfitlýsingum fylgdi jafnan formælingar um fjölmenningarsamfélag og einkum sýndi þetta mannvonsku múslima.  

  Þeir sem þarna fengu útrás fyrir rasisma sinn fóru á flug þegar þeim var - af betur meðvituðum - bent á að slátrun á ungliðum jafnaðarmanna benti til þess að fullyrðingar rasistanna stæðust ekki skoðun. 

  Nú liggur fyrir að fjöldamorðinginn er kristinn hægri maður,  hávaxinn,  ljóshærður frímúrari,  hernaðarsinni og byssudýrkandi.  Það veltir upp spurningu um hvort að svona gæti gerst á Íslandi.  Málflutningur norska rasistans er algjörlega samhljóða málflutningi íslenskra rasista.  Algjörlega.  Málflutningurinn rifjar upp nýleg ákall fyrrverandi frambjóðanda til formanns í Sjálfstæðisflokknum um að íslenskur ráðherra verði drepinn með skordýraeitri og að forsætisráðherrann verði líflátinn á sama hátt og Mússolíni;  hengdur á haus.  Bara svo þekkt dæmi séu nefnd.  

  Út af fyrir sig er fátt að því að vera ljóshærður og kristinn,  hægri sinnaður,  hávaxinn frímúrari og jafnvel hernaðarsinnaður byssudýrkandi.  Öllu verra er þegar inn í dæmið blandast útlendingahatur og mannvonska.  Og þetta síðast nefnda er ekkert skárra þó viðkomandi sé eitthvað annað en kristinn eða hægri sinnaður og ljóshærður frímúrari.  Hinsvegar er ljóst að Anders Behring Breivik á skoðanasystkini á Íslandi.  En vonandi ekki neitt sem gengur jafn langt í að fylgja eftir sínum skoðunum.

  Valdimar H.  Jónannesson er einn þeirra sem hefur fjarlægt bloggfærslu sína um þennan atburð og viðbrögð hans við fyrstu fréttum.  Þrátt fyrir hans fyrstu afleitu viðbrögð ber að virða að hann hefur séð að sér og brugðist rétt við framhaldinu.  Hann er maður að meiri og hefur beðist afsökunar.  Það er til fyrirmyndar.  Hugsanlega hefur hann líka lært eitthvað á mistökum sínum.  Það væri gott.

oslóarmorðinginn A   

  


mbl.is „Hann skaut og skaut“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andri á flandri - lofar góðu

  Íslenskt efni í sjónvarpsdagskrá RÚV hefur sveiflast öfga á milli upp á síðkastið.  Það hefur einkennst af hæstu hæðum (Popppunktur og kvikmyndir Friðriks Þórs) og hörmung (Tríó).  Ég tek fram að síðara dæmið er ekki tiltekið sem árás á höfund Tríós heldur stjórnendur RÚV. 

  Vegna þess að ég var í útlöndum þá hef ég núna verið að fletta upp á síðustu helgarþáttum á RÚV á "vodinu".  Hér á landi á,  eins og skagastrandarskáldið sagði.  Fyrsti þáttur  Andra á flandri  lofar góðu.  Virkilega góðu.  Ég horfði á hann tvisvar í beit.  Og skemmti mér jafn vel í bæði skiptin. 

  Flestir kannast við Andra Frey Viðarsson sem hressan og skemmtilegan útvarpsmann.  Fyrst á X-inu og síðan á rás 2.  Lýsingarorðið hress hefur reyndar verið gengisfellt af dagskrárgerðarmönnum útvarpsstöðva heimska fólksins,  FM957 og Kanans,  og er orðið neikvætt.  Andri er öðru vísi hress.  Í hans tilfelli er orðið hress jákvætt. 

  Það er ekki sjálfgefið að góður útvarpsmaður sé einnig góður í sjónvarpi.  Andri er hinsvegar aldeilis frábær sjónvarpsmaður.  Hann tekur sig ekki hátíðlega.  Gerir grín að sjálfum sér og nær að laða fram það besta hjá viðmælendum.

  Miðillinn Hilmar Guðmundsson fór á kostum.  Hjá honum dúkkuðu upp draugar með algengustu íslenskum mannanöfnum:  Þórarinn,  Tóti,  Sigríður,  Sigurður,  Siggi,  Bjarni,  Margrét,  Jói,  Guðmundur,  Gunna,  "hefur þú verið í sveit?",  pönnukökur...  Það er verulega merkilegt að draugar með sjaldgæf nöfn kíkja aldrei í heimsókn til miðla.

  Andri á flandri  er topp sjónvarpsefni.  Ég hlakka til að fylgjast með næstu þáttum.

  Meðfylgjandi myndbönd eru ekki úr þættinum  Andri á flandri  heldur gamlar klippur úr Kastljósi.

  Í gamla daga var Andri Freyr gítarleikari hljómsveita á borð við Bisund (2. sæti í Músíktilraunum),  Botnleðju (1. sæti í Músíktilraunum) og Fidel.

  Birkir Fjalar bróðir hans var trommuleikari og söngvari hljómsveita á borð við Döðlurnar,  Stjörnukisa (1. sæti í Músíktilraunum),  I Adapt og Celestine. 

  Viðar faðir þeirra var trommuleikari hinnar margumtöluðu hljómsveitar Frostmarks og Jarla.  Undir lok ferils Frostmarks var þar söngvari að nafni Jón Rúnar Halldórsson,  faðir Friðriks Dórs og Jóns Jónssonar.  Þeir eru að gera það gott þessa dagana.  Það voru einhver fleiri frægðarmenni í Frostmarki.  Galdrakallinn Villi Guðjóns hélt utan um það dæmi.  Gott ef ég kom ekki líka við sögu.


Færeyska álfadísin á afmæli í dag

  Það er skammt stórra högga á milli.  Sæunn systir mín átti afmæli í gær.  Eivör á afmæli í dag.  Hún fæddist í Götu 1983.  Það liggur því nærri að hún sé orðin 28 ára.  Þess vegna er kominn tími til að út komi bók um hana.  Bókin kemur út í október.  Það er spennandi dæmi.  Hún inniheldur meðal annars fjölda ljósmynda af Eivöru alveg frá því að hún var kornabarn og fram til dagsins í dag.  28 ára ljósmyndasafn ásamt fróðleiksmolum.

  Hjartaliga tillukku við föðingardegnum,  kæra Eivör!

 


DV er að standa sig: Opnugrein um G!Festival

skalmold 

  Í DV í dag er heil opna lögð undir ljósmyndir og grein um G!Festival.  Það er til fyrirmyndar.  Ljósmyndir Ingólfs Júlíussonar eru hver annarri glæsilegri.  Hann er snillingur,  sá drengur.  Það er augnkonfekt að skoða ljósmyndirnar hans af Tý,  Skálmöld og fleirum þarna á G!Festivalinu,  stærstu árlegri rokkhátíð í Færeyjum.  Hún fór fram um liðna helgi í Götu á Austurey. 

  Hér eru fleiri myndir úr ljósmyndavél Ingólfs, teknar á G!Festivali:

Týr

  Heri gítarleikari og söngvari Týs

hanus

  Hanus G.  Hann er stundum kallaður færeyskur Megas.  Eivör hefur sungið lög eftir hann inn á plötur.  Hann semur fallega vísnasöngva.  En kann einnig að meta þungt rokk því hann lét sig ekki vanta á hljómleika Skálmaldar og Týs.

vest-trans

  Einhverjir vinnuþjarkar voru með þessa merkingu á gallanum sínum.  Hún vakti upp spurningar.  Helst datt mönnum í hug að þarna hafi orð vígslast.

Brennivín

  Þessi fallega flaska stóð ofan á þaki húsbíls.  Hún kom kunnuglega fyrir sjónir.

palma og Atli fannar

  Það var altalað að sterkur hjónasvipur væri með þessu fjölmiðlapari.  Hún heitir Palma Jacobsen og er ljósmyndari hjá færeyska vikublaðinu Norðurlýsið.  Hann heitir Atli Fannar og er blaðamaður hjá Fréttablaðinu og dagskrárgerðarmaður á X-inu.


Björk með eitt af umdeildustu myndböndum rokksögunnar

Söluhæsta breska poppblaðið New Musical Express hefur tekið saman lista yfir umdeildustu myndbönd rokksögunnar.  Þessi listi er tekinn saman í tilefni af því að New Musical Express hefur hleypt á stokkum sérstakri músíkmyndbandanetsíðu.  Þannig er listinn yfir umdeildustu myndböndin (þau má finna á þútúpunni,  www.youtube.com)  Sum þessara myndbanda eru reyndar bönnuð á þútúbunni en kannski hægt að finna þau með því að skrá sig þar inn sem 18 ára eða eldri:

1.   Aphex Twin:  Come To Daddy
2.   Madonna:  Like A Prayer
3.   The Cribs:  Men's Needs
4.   Serge and Charlotte Gainsbourg:  Lemon Incest
5.   The Prodigy:  Smack My Bitch Up
6.   Erykah Badu:  Window Seat
7.   Neil Young:  This Note´s For You
  Njáll Ungi deilir skemmtilega á stéttarsystkini sín í músíkbransanum sem ganga erinda auglýsingaskrums.
8.   Nirvana:  Heart Shape Box
9.   George Michael:  I Want Your Sex
10.  MIA:  Born Free
11.  Smashing Pumpkins:  Try Try Try
12.  Nine Inch Nails:  Closer
13.  Simian Mobile Disco:  Hustler
14.  Nas:  Hate Me Now
15.  Korn:  A.D.I.D.A.S.
16.  Björk:  Pagan Poetry
  Rökin fyrir því að þetta myndband sé umdeilt eru kynlífsdæmið og húðgataflúrið.  Það er sagt vera ógnvekjandi.
  Það er ekki umdeilt að þetta er heiðið (ásatrúar) kvæði:

Pedalling through
The dark currents
I find
An accurate copy
A blueprint
Of the pleasure
In me

Swirling black lilies totally ripe
A secret code carved
Swirling black lilies totally ripe
A secret code carved

He offers
A handshake
Crooked
Five fingers
They form a pattern
Yet to be matched

On the surface simplicity
But the darkest pit in me
It's pagan poetry
Pagan poetry

Morsecoding signals (signals)
They pulsate (wake me up) and wake me up
(pulsate) from my hibernating

On the surface simplicity
Swirling black lilies totally ripe
But the darkest pit in me
It's pagan poetry
Swirling black lilies totally ripe
Pagan poetry

Swirling black lilies totally ripe

I love him, I love him
I love him, I love him
I love him, I love him
I love him, I love him
She loves him, she loves him

This time
She loves him, she loves him
I'm gonna keep it to myself
She loves him, she loves him
She loves him, she loves him
This time
I'm gonna keep me all to myself
She loves him, she loves him
And he makes me want to hand myself over
She loves him, she loves him
She loves him, she loves him
And he makes me want to hand myself over
.
  Til gamans má geta að hinn kanadíski Vestur-Íslendingur Njáll Ungi sem á 7.  umdeildasta myndbandið er einnig ásatrúar.  Hann fer aldrei í hljóðver nema þegar himintungl eru hagstæð.  Þá virkjar hann krafta Þórs og Óðins til að gera flotta músík.  Það samstarf virkar að öllu jöfnu hið besta.  Perlusultan er á svipuðu róli.  Nema að þar eru guðir Cherokee indíána með í leiknum.
  1995 sameinuðu Njáll Ungi og Perlusultan krafta þessara guða í plötunni "Mirror Ball".   Guðirnir náðu ekki alveg saman að öllu leyti.  Enda kannski ekki gruggið (grunge) þeirra deild.  En samt alveg ágæt plata.  Þannig lagað.  En ekki það besta á ferli Njáls eða Perlusultu.
.
 
17.  Pearl Jam:  Jeremy

mbl.is Sala á Bjarkartónleika hefst á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðmæli meindýraeyða?

  Það var viðtal við meindýraeyði á Bylgjunni.  Hann tiltók að viðskiptavinir sínir væru svo ánægðir með árangurinn af þjónustunni að þeir panti hann aftur og aftur.  Við þessi ummæli eða meðmæli vakna spurningar um árangurinn.  Þetta hljómar í fljótu bragði ekki sem góð meðmæli.  Eða hvað?

  Rifjast þá upp fyrir mér þegar þekktur pönkari vann nokkur sumur við að "úða skordýraeitri í garða".  Þetta set ég innan gæsalappa vegna þess að hann úðaði aðeins vatni á garðana.  En hafði fínar tekjur af.  Var með marga ánægða fasta viðskiptavini.

  Ástæða er til að hvetja fólk til að ganga eftir því að meindýraeyðar sýni tilskilin leyfi og vottorð.


Útvarp Saga á fljúgandi siglingu

  Tvær hlustendakannanir,  framkvæmdar af sitt hvoru fyrirtækinu,  hafa staðfest að Útvarp Saga er ein þriggja vinsælustu útvarpsstöðva landsins.  Hinar eru rás 2 og Bylgjan.  Hlustendakannanirnar voru framkvæmdar með stuttu millibili eftir að Eiður Guðnason hætti að hlusta á Útvarp Sögu.  Þannig að hann er ekki skekkjumörk í þessum könnunum.

  Þetta er glæsilegur árangur hjá lítilli einkastöð sem hefur hvorki ríkissjóð á bak við sig né fjölmiðlaveldi í eigu auðmanna.  Hins vegar kemur þetta ekki á óvart.  Hvar sem tvær manneskjur eru saman komnar þar er farið að vitna í Útvarp Sögu áður en langt um líður. 

  Útvarp Saga er alþýðuútvarp.  Það er að segja lýðræðislegt útvarp þar sem almenningur fær að segja skoðun sína.  Fyrir bragðið eru símatímar stöðvarinnar sérlega vinsælir.  Þar hitnar stundum í kolunum og margvísleg sjónarmið fá að takast á. 

  Fastir pistlahöfundar Útvarps Sögu eru hver öðrum skemmtilegri.  Að öllum ólöstuðum er Eiríkur Stefánsson þar fremstur meðal jafningja.  Hann talar kjarnyrta íslensku og segir pólitískum samherjum til syndanna ekki síður en öðrum þegar honum mislíkar vinnubrögð þeirra.  En Eiríkur er líka óspar á hrósið til þeirra sem eiga það skilið.

  Þáttastjórnendur Útvarps Sögu eru sömuleiðis einvalalið.  Þeir liggja sjaldnast á skoðun sinni.  Og þær eru ekki einsleitar.  Val á viðmælendum er fjölbreytt og jafnan áhugavert.  Til að mynda fóru þeir Ólafur Helgi Kjartansson og Höskuldur Höskuldsson á kostum í þáttasyrpu um hljómsveitina The Rolling Stones á dögunum.  Bara svo dæmi sé nefnt.  Það kæmi mér ekki á óvart þó ég verði í viðtali á Útvarpi Sögu á morgun (þriðjudag) klukkan 8.

  Útvarp Saga er fyrst og fremst talmálsútvarp.  Engu að síður er dagskráin skreytt með einu og einu lagi inn á milli.  Blessunarlega verða oft fyrir valinu lög sem ekki heyrast í öðrum útvarpsstöðvum.  Þar á meðal fjörleg færeysk músík,  sænsk,  dönsk og þessi gamla góða íslenska með Óðni Valdimars,  Ragga Bjarna,  Skafta Ólafs,  Þorvaldi Halldórs og þeim öllum.  Þetta er til fyrirmyndar. 


Metallica drengirnir eru ekki alltaf vondir

  Margir hafa borið liðsmönnum dönsk-bandarísku þungarokkssveitarinnar Metallicu illa söguna.  Einkum trommaranum Larsi Ulrich og söngvaranum James Hetfield.  Gamli bassaleikarinn þeirra,  Jason Newsted,  segir þá hafa lagt sig í einelti með barsmíðum og öðrum leiðinlegheitum.  Þeir þykja sjálfhverfir,  frekir,  ofbeldisfullir og hrokafullir.

  En fáir eru svo með öllu illir að ekki leynist í þeim eitthvað gott.  Um daginn fékk 11 ára gamall færeyskur drengur óvænta upphringingu frá Larsi Ulrich.  Ekki bara einu sinni heldur var nánast símaónæði vegna upphringinga frá Larsi.  Erindið sem hann átti við Færeyinginn var að bjóða honum ásamt foreldrum hans á hljómleika Metallicu í Svíþjóð.   

  Forsagan er sú að færeyski drengurinn,  Ási Hilbertsson,  er illa haldinn vegna krabbameins.  Hann þarf að styðjast við hækjur vegna þess að bein hans eru illa farin.  Sömuleiðis er hann orðinn sjóndapur.  Bara svo fátt eitt sé nefnt.

  Um heilsuleysi Ása hefur verið fjallað í færeyskum fjölmiðlum.  Líkast til hefur einnig verið sagt frá því í dönskum fjölmiðli.  Einhvern veginn að minnsta kosti frétti Lars hinn danski af drengnum.  Í frásögnum af Ása kom fram að hann linar þjáningar sínar með því að hlusta á Metallicu.  Það snart Lars.

  Í boði Metallicu flaug Ási ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar og hitti Lars í hljómleikahöll sem tekur næstum 60 þúsund áhorfendur.  Þrátt fyrir að danskir ættingjar Lars mættu einnig á svæðið til að heilsa upp á trommarann átti Ási athygli hans óskipta.  Hann kynnti Ása fyrir hinum í hljómsveitinni,  sýndi honum hin ýmsu tæki og tól hljómsveitarinnar og bauð Ása að velja hvaða lög Metallica spilaði í hljóðprufunni. 

  Á sjálfum hljómleikunum var Ása og foreldrum hans komið fyrir í sérstakri stúku á sviðinu skáhalt fyrir aftan Lars.  Hvenær sem minnsta hlé varð á trommuleiknum spratt Lars upp eins og stálfjöður til að ganga úr skugga um að Ási og foreldrarnir hefðu nóg að borða og drekka og allt væri eins og best væri á kosið.

  Ási hefur verið í skýjunum eftir þennan höfðinglega gjörning Lars Ulrichs.  Foreldrarnir ekki síður.  Þau hafa ekki séð drenginn jafn hamingjusaman síðan krabbameinið lét á sér kræla.  Það fer ekki af honum gleðisvipurinn og brosið allan hringinn.  Foreldrunum þykir sérlega vænt um hvað Lars stóð vel að heimsókninni og var virkilega hugulsamur um að Ási fengi sem mest út úr henni.  

ási

  Ási og Lars Ulrich


Skúbb! Andrea Gylfa syngur kvikmyndasöngva

  Undanfarna daga hafa staðið yfir stífar æfingar á þekktum íslenskum og útlendum lögum úr kvikmyndum.  Það eru söngdívan af Skaganum,  Andrea Gylfadóttir,  og hljómsveit sem ætla að bjóða upp á þetta spennandi prógramm í kvöld (laugardag).  Og hvar annars staðar en á Obladí á Laugavegi 45 (gengið inn frá Frakkastíg)?  Þar er fjörið.  Sviðið hefur verið stækkað sérstaklega fyrir þennan viðburð.


Hvað er hægt að gefa stefnuljós í margar áttir?

  Í meðfylgjandi frétt er ökumaður sagður hafa gefið stefnuljós í allar áttir.  Hvað er hægt að gefa stefnuljós í margar áttir?  Á mínum bíl er aðeins hægt að gefa stefnuljós til hægri eða vinstri.  En það er ekkert að marka.  Ég ek á gömlum bíl.  Ég þekki ekki til nýjustu bíla. 

bíll


mbl.is Gaf stefnuljós í allar áttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnilegir

  Mig langaði í malt.  Þess vegna lagði ég leið mína í Nóatún.  Þar í anddyri stóðu tveir ungir drengir.  Líklega um tíu ára eða svo.  Kannski aðeins yngri.  Annar hélt á Fréttatímanum.  Hinn hélt á Finni,  fríblaði Morgunblaðsins.  Þegar ég gekk framhjá kölluðu drengirnir til mín.  Spurðu hvort ég vildi kaupa dagblað.  Ég benti þeim á að þetta séu fríblöð og fólk borgi ekki fyrir ókeypis blöð.

  Strákarnir svöruðu eitthvað á þá leið að fólk sem komi úr sveitinni til Reykjavíkur viti ekki að þetta séu fríblöð.

  Lengra varð samtalið ekki.  Ég settist inn í bíl og dreypti á maltinu.  Á meðan varð ég vitni að því er aldraður maður stoppaði hjá drengjunum og keypti af þeim eintak af Fréttatímanum.

  Ég hugsaði með mér:  Þessir guttar eiga eftir að verða formenn VR.

oryggisvor_ur_sefur_1096396.jpg


mbl.is Háar sektir fyrir fölsun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skúbb! Eiríkur Hauksson og félagar með rosa Bítlahljómleika á Obladí

  Nú verður heldur betur tekið á því á Bítlabarnum Obladí á fimmtudagskvöldið og rokkað feitt sem aldrei fyrr.  Það er sjálft rokktröllið Eiríkur Hauksson sem þenur raddböndin í kröftugustu rokklögum Bítlanna - og ljúfum Bítlaballöðum í bland.  Eiríki til halds og trausts verða trommarinn Ásgeir Óskarsson,  bassaleikarinn Tómas M. Tómasson og gítarsnillingarnir Eðvarð Lárusson og Magnús Einarsson.  Þvílíkt dúndur!  Og það merkilegasta er að það er frítt inn á meðan húsrúm leyfir.

  Bítlabarinn Obladí er skráður til húsa að Laugavegi 45.  Hann er þó eiginlega frekar á Frakkastíg á milli Laugavegar og Hverfisgötu.  Eða réttara sagt þá er gengið inn í hann frá Frakkastíg.


Íslendingar skora hátt á lista yfir bestu músíkmyndbönd sögunnar

  Söluhæsta breska rokkblaðið New Musical Express hefur birt lista yfir 100 bestu músíkmyndbönd sögunnar.  Íslenskir tónlistarmenn tróna þar í efstu sætum.  New Musical Express er áhrifamikið rokkblað.  Er meðal annars selt í helstu blaðastöndum í Bandaríkjunum.  Þessi músíkmyndbönd eru í efstu sætum á listanum yfir þau 100 bestu:

 

1   Johnny Cash:  Hurt
2   Radiohead:  Just
3   Chris Isaak:  Wicked Game
4   Soundgarden:  Black Hole Sun
5   Björk:  All Is Full of Love
6   Foo Fighters:  Everlong
7   Weezer:  Buddy Holly (eftir Spike Jones)
8   Beastie Boys:  Sabotage (eftir Spike Jones)
9    Sigur Rós:  Viðrar vel til loftárása (eftir Árna & Kinski)
10  The Prodigy:  Smack My Bitch Up (eftir Jónas Äkerlund)
11  Hole:  Doll Parts
12  The Horrors:  Sheena Is A Parasite
13  M.I.A.:  Born Free
  Myndbandið við "Born Free" hefur verið bannað.  Hægt er að finna útþynntar útgáfur af því á þútúbunni.  Í myndbandinu eru rauðhærðir ofsóttir,  sem tákn fyrir þá sem eru ofsóttir vegna kynþáttar,  trúar,  skoðana og svo framvegis.  Lagið er flott og töluvert Bjarkar-legt (Declare Indipendence).
14  Vampire Weekend:  A-Punk
15  OK Go:  This Too Pass
76  Björk: It´s Oh So Quiet (eftir Spike Jones)
  Svo fann ég þetta furðulega myndband á netsíðu New Musical Express:
  Það útskýrir hvers vegna ég hef verið að fá fyrirspurnir héðan og þaðan frá útlöndum.  Einhverra hluta vegna er þetta ekki á lista NME yfir bestu myndböndin.
  Spike Jones á til viðbótar myndband #16,  Praise You með Fatboy Slim,  og nokkur önnur.  Annar áberandi er sænski trommuleikarinn Jónas Åkerlund.  Eins og Spike Jones er hann margverðlaunaður á Grammy og út um allt.

Hefði John Lennon stutt og kosið Ronald Reagan?

 

  Í splunkunýrri heimildamynd,  Beatles Stories,  er breska hljómsveitin Bítlarnir (The Beatles) viðfangsefnið.  Það tók leikstjórann,  Seth Swirsky,  5 ár að vinna þessa mynd.  Það sem gerir myndina sérlega áhugaverða er að hún geymir að uppistöðu til upplýsingar sem ekki hafa áður komið fram.  Upplýsingar sem jafnvel hörðustu Bítlaunnendur hafa ekki heyrt um.

  Þegar er risin upp deila um myndina.  Hún snýst um fullyrðingu Freds Seamans þess efnis að John Lennon hefði stutt forsetaframboð Ronalds Reagans 1981 ef Lennon hefði ekki verið myrtur í New York 1980.  Fred þessi var starfsmaður Lennons.  Fred segir John Lennon áranna 1979 - 1980 hafa verið allt annan mann en þann herskáa og kjaftfora Lennon sem Richard Nixon taldi vera sinn hættulegasta óvin næstum áratug áður.  Að sögn Freds hafði Lennon horn í síðu Jimmys Carters.

  Bandaríski söguprófessorinn og Lennon-fræðingurinn,  John Wiener,  bloggar á síðu The Nationals.  Hann efast um áreiðanleika Freds og bendir á að Fred sé fyrst og fremst þekktur fyrir að vera þjófur og lygari.  Meðal annars varð hann uppvís af því að stela fjölda hluta af heimili Lennons og selja.

  Viðtal sem Lennon veitti tímaritinu Rolling Stone skömmu áður en hann var myrtur styðja ekki kenningu Freds.  Þar fyrir utan kaus Lennon aðeins einu sinni á ævinni.  Það var þegar hann var nýkominn með kosningarétt.   

  Hinsvegar er skemmtilegur samkvæmisleikur að spá fyrir um hvaða afstöðu löngu látið fólk hefði haft til hinna ýmsu mála hefði þeim elst aldur til.  Á 200 ára afmælisdegi Jóns Sívertsen var hann sakaður um að hafa stutt aðild Íslands að ESB væri hann sprelllifandi,  hress og kátur,  200 ára í dag.

  Á unglingsárum leigði ég herbergi hjá gömlum húmorslausum manni.  Sá fullyrti í fullri alvöru að Jesú hefði alltaf kosið Alþýðuflokkinn.  Sá gamli bar nafngreindan prest fyrir því.

  Þar fyrir utan er eðlilegt að fólk skipti um skoðanir á hinu og þessu fram eftir öllum aldri.   Hver hefðu verið næstu skref Jimis Hendrix,  Jims Morrisons og Janis Joplin í músík ef þau hefðu orðið eldri en 27 ára?  Kurt Cobain hafði uppi áform um að verða nútíma Leadbelly áður en hann (Cobain) skaut sig.  Það gæti hafa orðið spennandi dæmi.

 


Húfa úr naflaló

 

maður með húfu

  Neyðin kennir nakinni konu að spinna,  segir gamalt máltæki.  Þetta má heimfæra að hluta upp á ungan mann,  töluvert loðinn á bringu og maga en ekkert loðinn um lófana.  Einhverra hluta vegna safnast daglega í nafla hans vænn hnykill af ló.  Kauða þótti blóðugt að henda nafnaló á hverju kvöldi.  Hann var viss um að hægt væri að nýta hana til góðs.  Þess vegna tók hann að safna naflaló.

  Einn dag heimsótti hann ömmu sína á elliheimili.  Hún var að dunda sér við einhverskonar prjónavél (hvort það heitir hekluvél?).  Drenginn vantaði húfu og spurði kellu hvort hún gæti græjað eina slíka.  Það var auðsótt mál.  Þá sá hann ljósið.  Naflalóna mátti nota í húfuna.  Ömmunni tókst að spinna naflalóna saman við húfugarnið.  Útkoman varð hin laglegasta húfa. 

  Næst vildi hann fá sams konar húfu handa kærustunni sinni.  Hún vill ekki svoleiðis húfu.  Enda sérvitur stelpa í Kent á Englandi.


Gríðarlegur metnaður hjá Iceland Express

flugvél -IE

  Það er gott að flugfélagið Iceland Express bjóði upp á flug til útlanda.  Og stundum til baka líka.  Það veitir Icelandair aðhald.  Heldur því flugfélagi á tánum.  Vonandi með þeim árangri að verð á flugmiðum sé eins lágt og hægt er.  Þess vegna er ástæða til að ferðast með Iceland Express (og einstaka sinnum með Icelandair til að það fari ekki heldur á hausinn).  Ég veit ekki hverjir eiga þessi flugfélög í dag.  Vonandi eru það ekki (miklir) glæpamenn.  

  Hitt veit ég:  Það er gríðarlegur metnaður í gangi hjá Iceland Express þessa dagana.  Talsmenn flugfélagsins hafa tilkynnt um nýja kappsfulla stefnu.  Hún gengur út á það að í nánustu framtíð verði flugvélar fyrirtækisins á eftir áætlun í 25% tilfella. 

  Samskonar stefnu ætti að taka víðar upp.  Til að mynda hjá strætisvögnum og öðrum áætlunarferðum.  Þetta er alvöru áskorun fyrir starfsfólkið.  Og fyrir viðskiptavini er þetta eins og gestaþraut.  Eða kannski rússnesk rúlletta öllu heldur:  Að vita aldrei hvaða ferðir verða á eftir áætlun en vita að líkurnar séu 1 á móti 4.


Reglur fyrir konur

  Eftirfarandi texta fékk ég sendan.  Höfundur hans ku vera raðkvæntur.  Hjónaböndin entust jafnan stutt.  Til að enn eitt hjónabandið fari ekki út um þúfur settist hann niður, fór skipulega yfir þá atburði sem leiddu til flestra árekstra og reyndi að finna lausn á því hvernig komast má hjá þeim árekstrum.  Niðurstöðuna hefur hann tekið saman og kallar "MIKILVÆGAR REGLUR FYRIR KONUR!"  Kannski getur Anna & útlitið fléttað þessu inn í prinsessunámskeið sín: 
.
REGLA NR. 1.  Karlmenn horfa á brjóst.  Til þess eru brjóst.  Ekki reyna að breyta því.
REGLA NR. 1.  Ef að klósettsetan er uppi skal setja hana niður þegjandi og hljóðalaust.  Ef að setan er niðri setja karlmenn hana upp þegjandi og hljóðalaust.  Þannig er það og þannig á það að vera.  Karlar setja hana upp.  Konur setja hana niður.     
REGLA NR. 1.  Laugardagur - íþróttir.  Þetta er eins og með gang himintungla,  flóð og fjöru.  Ekki reyna að breyta því.
REGLA NR. 1.  Verslunarferðir eru EKKI íþrótt.
REGLA NR. 1.  Grátur er fjárkúgun.  Fjárkúgun er glæpur.  Það kemur aldrei til greina að taka þátt í fjárkúgun.
REGLA NR. 1.  Ef þig vantar eitthvað skal segja það á auðskilinn hátt.  Vísbendingar duga ekki.  Lúmskar vísbendingar duga ekki.  Miklar vísbendingar duga ekki.  "Augljósar" vísbendingar duga ekki. 
REGLA NR. 1.  Ef þér finnst þú hafa fitnað þá hefur þú áreiðanlega fitnað.  Ekki spyrja um það.
REGLA NR. 1.  "Já" og "nei" eru fullgild svör við öllum spurningum.
REGLA NR. 1.  Ef þú þarft hjálp við eitthvað þá er bara að nefna það.  Ég leysi öll vandamál.  Til þess er ég.  Meðaumkun færðu hjá vinkonum þínum.  Til þess eru þær.
REGLA NR. 1.  Mánaðarlangur höfuðverkur er óásættanlegur.  Leitaðu til læknis strax eftir 2ja daga hausverk.
REGLA NR. 1.  Eitthvað sem ég hef sagt fyrir löngu síðan er ónothæft í deilum.  Öll ummæli eru ógild eftir 7 daga og skulu að engu höfð.
REGLA NR. 1.  Allt sem ég segi og geri má túlka á tvenna vegu.  Ef önnur túlkunin gerir þig dapra eða reiða þá gildir hin túlkunin.
REGLA NR. 1.  Þú getur annað hvort beðið mig um að gera eitthvað EÐA sagt mér hvernig eigi að gera það.  Ekki hvoru tveggja.  Ef þú veist hvernig best er að gera það skaltu gera það sjálf.
REGLA NR. 1.  Ef ég spyr hvort eitthvað sé að og þú segir "nei" þá er það þannig.  Málið er þar með útrætt.
REGLA NR. 1.  Ef þú þarft að segja eitthvað skaltu gera það á meðan auglýsingar eru í sjónvarpinu
REGLA NR. 1.  Ég þekki 16 liti og þarf ekki að þekkja fleiri liti.  Ljóspurpurarauður er eitthvað sem ég veit ekki hvað er. 
REGLA NR. 1.  Ef mig klæjar þá klóra ég mér.
REGLA NR. 1.  Þegar við förum eitthvað út þá er allt sem þú ferð í flott og við hæfi.  Í alvöru.  Það þarf ekki að ræða það.
REGLA NR. 1.  Ekki spyrja um hvað ég sé að hugsa nema þú sért til í að ræða kynlíf,  íþróttir eða bíla.
REGLA NR. 1.  Ekki segja að ég sé ekki í fínu formi.  Kringlótt er form.
REGLA NR. 1.  Þú átt nógu marga skó.

Hvað þýða þessar innihaldslýsingar?

ávaxtasafi

  Í arma mér barst lítil og sæt rammíslensk ferna merkt sem jarðaberjasafi.  Á framhlið hennar er slegið upp á áberandi hátt að innihaldið sé án rotvarnarefna og án viðbættra gervibragðefna.  Þegar innihaldslýsing á fernunni er skoðuð kemur í ljós að jarðaberjasafinn inniheldur þráavarnarefni og ótilgreint bragðefni. 

  Hver er munur á rotvarnarefni og þráavarnarefnis?  Er rotvarnarefni eitthvað sem hægt er að bera á sig og hindrar að maður verði rotaður í fólskulegum líkamsárásum?  En þráavarnarefni dragi úr líkum á að drykkurinn þráni?

  Hver er munur á bragðefni og gervibragðefni?


Leyndarmál borðstofustólsins

borðstofa Aborðstofa Bborðstofa C

  Vestræn börn hafa þyngst undanfarin ár.  Ástæðan er ekki aðeins áköf og aukin sókn í ruslfæði (pizzur,  hamborgara,  djúpsteikta kjúklingabita,  franskar kartöflur og þess háttar viðbjóð) og gosdrykki.  Önnur ástæða vegur einnig þungt í bókstaflegri merkingu.  Það skiptir nefnilega máli á hverju blessuð börnin sitja þegar þau slafra í sig gumsinu.  Mjúkar sessur eru óvinur í þessu tilfelli.  Verst er þegar matast er í stofusófanum. 
.
  Börn og fullorðnir eiga að matast á grjóthörðum eldhússtólum.  Það er galdurinn.  Þar situr fólk stíft og beint í baki.  Þetta hefur með meltinguna að gera.
.
  Fólk er almennt ekki meðvitað um þetta mikilvæga atriði.  Samt hefur fólk - ómeðvitað - alla tíð sótt í harða borðstofustóla.  Heimsendingar á pizzum og öðrum óþverra hafa hinsvegar fært allt of marga matmálstíma inn í stofusófann.  Manneskjan er ekki bara það sem hún borðar.  Manneskjan er einnig það sem hún situr á er hún matast.
  Nýverið bloggaði ég um nýendurinnréttað húsnæði breska þungarokkarans Ozzy Osbournes.  Þar er allt kalt og hart og eiginlega óvistlegt.  En eldhússtólarnir eru til fyrirmyndar.  Sjá:
.
borðstofa Ozzy

Svona er auðvelt að gera vinnuna rosalega skemmtilega

  Stundum heyrist fólk segja að það hlakki til frídaga frá vinnu.  Það er eins og sumum leiðist í vinnunni.  Einkum þeim sem vinna einhæfa vinnu.  Þetta er óþarfi.  Það er svo auðvelt að þykja gaman í vinnunni.  Hér er gott ráð sem hefur þann kost að það endist og endist.

  Flestum þykir mánudagurinn leiðinlegasti dagur vikunnar.  Þess vegna er upplagt að fjörga upp á fyrsta virkan mánudag hvers mánaðar (sem er til að mynda annar mánudagur ágústsmánaðar).  Leikurinn gengur út á það að þann mánudag klæðist ALLIR starfsmenn einhverju sem þeir annars klæðast ekki að öllu jafnaði. 

  Einn kaldan vetrarmánudag mæta allir með húfu.  Það má vera hvernig húfa sem er en ekki hattur eða derhúfa.

  Heitan sumarmánudag mæta allir í stuttbuxum.  Einnig er upplagt á sólríkum degi að allir beri röðulskyggjur (sólgleraugu).

  Einn mánudaginn setja allir upp hálsbindi,  konur jafnt sem karlar.

  Annan mánudag til eru allir með grifflur.  Það er hægt að kaupa ódýra vettlinga og klippa framan af þeim.

  Þannig mætti áfram telja.  Það má líka útfæra þetta þannig að einn mánudag næli allir á sig glaðlegt barmmerki:  Broskall, eða merki með glaðlegum boðskap af hvaða tagi sem er. 

  Til að þetta gangi upp og veki skemmtun er að ganga ekki of langt í fíflagangi.  Þetta sé eitthvað sem allir geti sætt sig við.  Þetta má ekki kosta mikla fyrirhöfn né fjárhagsleg útgjöld.  Upplagt er að miða við að hægt sé að kaupa eitthvað svona í ódýrum verslunum á borð við Megastore eða Tiger.  Þar kosta hlutir bara 200-og-eitthvað kall eða svo.  Að minnsta kosti í Megastore.  Tiger er kannski örlítið dýriari svo litlu munar.

  Svona uppátæki krydda vinnuna rækilega 12 sinnum á ári.  Til að allir séu virkir þátttakendur skiptast vinnufélagar á uppástungu um næsta mánudagssprell.  Heppilegt getur verið að röðin ráðist af nöfnum viðkomandi eftir stafrófsröð. 

  Ég get lofað ykkur því að þetta mun breyta mánudögum í tilhlökkunarefni og hressa rækilega upp á vinnuandann.

  Ef einhver skorast undan má leggja hann í nett einelti þann daginn.  Bara gæta þess að það sé ekki kynferðisleg einelti.  Reyndar er lítil hætta á því að fýlupokar taki ekki þátt í leiknum.  Þetta er svo gaman.  Líka fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.  Þegar fram í sækir getur þetta bætt móralinn á þann hátt að það vinni gegn einelti á vinnustað.  Jafnframt brúar þetta bil á milli yfirmanna og undirmanna á vinnustað.

menn með loðhúfur

    


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.