17.5.2010 | 22:33
Ekki búnir að gera upp við sig hvort þeir kjósa F eða H
Í umræðunni um skoðanakönnun Sjálfstæðisflokksins um fylgi við flokkana sem bjóða fram í Reykjavík í ár virðist sem aðal fréttapunkturinn hafi farið framhjá mörgum. Þar á meðal í fréttinni sem þessi færsla er tengd við. Í henni er ekki stafkrók að finna um að 16% aðspurðra voru ekki búin að gera upp við sig hvort þeir muni kjósa F-lista Frjálslynda flokksins eða H-lista Ólafs F. Magnússonar, framboð um Heiðarleika og almannahagsmuni.
Annað umhugsunarvert: Þessi könnun er gerð áður en kosningamyndband Æ-listans fór í umferð. Myndbandið mun klárlega breyta miklu um hver kýs hvað. En óvíst er á hvaða veg.
![]() |
Besti flokkurinn stærstur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt 18.5.2010 kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
17.5.2010 | 03:55
Hjálpið! Nú verða allir að leggjast á eitt!
Næstu daga mun öskuský þekja Bretland. Það eru góðar fréttir fyrir Sigurð Einarsson flóttamann. Það auðveldar honum að felast í öskugráu skýinu. Hann getur sett á sig lambhúshettu og rykgrímu til að þekkjast ekki. Í skýfallinu vekur það enga tortryggni. Þegar öskustróknum frá Eyjafjallajökli slotar eftir nokkra daga þarf flóttamaðurinn að finna aðrar leiðir til að dulbúast. Það er brýnt að maðurinn finnist hið fyrsta og verði látinn svara til saka og upplýsa undanbragðalaust um skjalafals, markaðsmisnotkun, sýndarviðskipti og annað slíkt. Nú verða allir að hjálpast að og skima eftir durgnum; velta við hverjum steini og gá undir hverja þúfu.
Til að auðvelda leitina hef ég tekið saman helstu búninga sem kauði mun fela sig í. Hans aðal sérkenni eru hálflokuð augun. Því er sýnt að hann þarf að fela þau ásamt hársverðinum sem einkennist af dökkri eyju fyrir ofan ennið. Svona gæti hann litið út kominn með ljósa hárkollu og búinn að setja upp sólgleraugu. Látið vita ef þið rekist á mann í þessari múnderingu:
Delinn er einnig líklegur til að fela hársvörðinn undir hatti og þekja andlitið með skósvertu. Þá heldur fólk að þetta sé blökkumaður. Trixið er að setja upp gleraugu og teikna á þau uppglennt augu. Þá fattar enginn að þar fer eftirlýstur píreygður fölhvítur flóttamaður.
Svo er það búrka. Þá heldur fólk að hann sé kona.
Það er hugsanlegt að flóttamaðurinn hylji sig ennþá betur - til að augun komi ekki upp um hann.
Ef heitt er í veðri er svartur felubúningur óþægilegur. Þá skiptir gaurinn yfir í hvítan búning og þykist vera draugur.
Trúðabúningur virkar alltaf. Og klæðir Sigurð einstaklega vel.
Það virkar sömuleiðis oft vel að þykjast vera hermaður. Þá er trixið að halda byssunni fyrir andlitinu til að flóttalegt augnráðið sjáist ekki. Loka meira að segja öðru auga eða báðum og láta sem verið sé að miða á hryðjuverkamann. Það felast engin dulin skilaboð í því að maðurinn er á asna.
Svei mér þá, er þetta ekki Sigurður Einarsson sjálfur í uppáhalds Batman búningnum sínum?
Annars er ekki víst að alveg sé að marka þetta. Maðurinn er sagður geta brugðið sér í allra kvikinda líki. Þess vegna gæti hann litið svona út. Það er líklegt.
![]() |
Heathrow og Gatwick lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt 3.8.2010 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.5.2010 | 14:23
Skúbb! Ómar Ragnarsson og Andri Freyr í samstarf
Samkvæmt þokkalega áreiðanlegum heimildum hafa tveir af helstu skemmtikröftum og sprelligosum þjóðarinnar, Ómar Ragnarsson og Andri Freyr Viðarsson, ákveðið að stilla saman strengi sína í sumar. Þetta hljómar virkilega spennandi. Það fylgir reyndar ekki sögunni í hverju samstarfið mun nákvæmlega felast. Áreiðanlega verður það annað hvort eða bæði á sviði tónlistar og ljósvakamiðlunar.
Eftir Ómar liggja sennilega á annan tug hljómplatna og Andri Freyr hefur spilað á gítar með hljómsveitum á borð við Bisund, Botnleðju og Fidel. Ómar hefur til fjölda ára verið einn vinsælasti sjónvarpsmaður landsins og Andri Freyr einn vinsælasti útvarpsmaðurinn; núna síðast sem umsjónarmaður Litlu hafmeyjarinnar á rás 2 - ásamt Dodda litla.
Það hlýtur fljótlega að koma eitthvað fram um þetta væntanlega samstarf Ómars og Andra Freys. Á hvaða sviði sem það verður þá er þetta tilhlökkunarefni. Þó Ómar sé sennilega um sjötugt og Andri Freyr 20-og-eitthvað ára þá er næsta víst að þessir æringjar geta náð vel saman og spilað hvorn annan upp í allskonar sprell.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2010 | 20:43
Passið ykkur á þjófum
Nýverið vaknaði ung fyrirsæta eða fegurðardrottning eða listdansari, Bryndís Jónsdóttir, upp við það að hún kom ekki upp orði. Hún brá við skjótt, lagði saman tvo og tvo. Niðurstaðan varð sú að önnur fyrirsæta eða poppstjarna eða listdansari, Ásdís Rán, hafi stolið röddinni hennar. Síðan hafa þær ekki rætt saman. Enda Bryndísi stirt um mál eftir að röddinni hennar var stolið.
Ásdís Rán þvertekur fyrir að hafa rænt röddinni frá Bryndísi. Rán á rödd annarrar manneskju er alvarlegt mál. Ásökun um slíkt rán er sömuleiðis alvarlegt mál. Ekki síst þegar sú sakborna heitir Ásdís RÁN.
![]() |
Leigubílstjóri rændur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.5.2010 | 22:46
Heilaþveginn bankaræningi
Hvers vegna er búið að sleppa Magnúsi úr gæsluvarðhaldi en ekki Hreiðari Má? Komið hefur fram að málflutningur þeirra stangist á í veigamiklum atriðum. Má leiða getum að því að Magnúsi sé trúað. En ekki Hreiðari Má. Svo virðist sem Hreiðar Már hafi heilaþvegist. Eftir að hafa heyrt daginn út og inn árum saman fólk tala um Hreiðar Má hefur undirmeðvitundin meðtekið það án þess að gera greinarmun á stóru M og litlu m: Hreiðar má. Hreiðar má þetta. Hreiðar má hitt. Hreiðar má ljúga. Hreiðar má allt.
![]() |
Mun sýna fullan samstarfsvilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
13.5.2010 | 23:42
Skótískan á Litla-Hrauni
Hér fyrir ofan er sýnishorn af þeim skóm sem algengastir hafa verið á Litla-Hrauni. Þetta eru hlýir, notalegir, lystugir, ódýrir og hagkvæmir skór; matreiddir ýmist af föngunum sjálfum eða ættingjum þeirra. Eftir að bankaræningjar eru farnir að fjölmenna á Litla-Hraun hefur skótískan þar á bæ tekið stakkaskiptum, ef svo má til orða taka um skó. Hér fyrir neðan má sjá nýju skótískuna á Litla-Hrauni:
![]() |
Jón Ásgeir í The Times |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2010 | 02:09
Sérkennileg dómsmál - sérkennilegir dómar
Stelluverðlaunin eru kennd við konu sem hellti sjálf niður á sig kaffi á MacDonalds og fékk ríflegar bætur fyrir. Nýlega voru Stelluverðlaunin fyrir atburði síðustu missera veitt í Bandaríkjunum.
5. verðlaun hlutu tveir dómar:
a) Kathleen Robertsson frá Texas fékk 780 þúsund dollara (um 100 milljónir ísl. kr.) í bætur vegna þess að hún hrasaði um ungbarn sem var að skríða á gólfinu. Verslunareigandinn, sem var dæmdur til að borga bæturnar undrast dóminn, einkum vegna þess að Kathleen átti sjálf barnið á gólfinu.b) Terence Dickson frá Pennsylvaníu var að ræna bílskúr. Sjálfvirki opnarinn bilaði. Terence varð að dúsa í bílskúrnum í átta daga af því eigendurnir voru í fríi. Hann fann kassa af Pepsí-kóla og poka af hundamat. Á þessum kræsingum dró hann fram lífið. Eftir að hann losnaði úr prísundinni var fyrsta verk að höfða mál gegn húseigendum. Ákæruefnið var að vondar aðstæður í bílskúrnum hefðu skaðað hann verulega andlega. Dómarinn féllst á að hann fengi 500 þúsund dollara (65 milljónir ísl. kr.) í bætur.
4. sæti:
19 ára Carl Truman frá Los Angeles fékk 74 þúsund dollara (10 milljónir ísl. kr.) og sjúkrakostnað vegna þess að nágranni hans ók yfir hönd hans. Kauði hafði ekki veitt því athygli að nágranninn sat undir stýri á bílnum sem Carl var að reyna að stela hjólkoppunum af.3. sæti:
Veitingahús í Fíladelfíu varð að greiða Amber Carson 113.500 dollara (15 milljónir ísl. kr.) eftir að hún rann í kók-polli og braut rófubeinið. Ástæðan fyrir bleytunni á gólfinu var sú að 30 sekúndum áður hafði Amber skvett úr glasinu sínu á kærasta sinn í rifrildi við hann.2. verðlaun:
Kara Walton frá Ohio lögsótti veitingahússeiganda eftir að hún féll ofan úr glugga á snyrtingunni og braut úr sér tvær framtennur. Þetta gerðist þegar Kara reyndi að troða sér út um gluggann til að komast hjá því að greiða 3 dollara og 50 cent (ísl 388 krónur) í fatahenginu. Henni voru dæmdir 12.000 dollarar (1,5 milljónir ísl. kr.) og tannlæknakostnaður að auki.
1. verðlaun:Frú Gravinski keypti sér glænýjan 10 metra húsbíl. Í jómfrúarferðinni, þegar hún var komin út á hraðbrautina, setti hún "krúskontrolið" á. Bíllinn var á 100 kílómetra hraða. Frúin skellti sér aftur í til að smyrja sér samloku. Bíllinn lenti í árekstri og endaði á hvolfi utan vegar. Frú Gravinski lögsótti framleiðandann fyrir að hafa ekki útskýrt í leiðarvísi að "krúskontrolið" væri ekki sjálfstýring. Dómarinn taldi hæfilegar bætur vera 1.750.000 dollara (227 milljónir ísl.kr.) og nýjan húsbíl.
----------------------
Eftirskrift: Reynslan segir að margar af þeim sögum sem kenndar eru við Stelluverðlaunin séu færðar í stílinn og jafnvel upplognar. Einskonar flökkusögur. En góð saga má ekki gjalda sannleikans.
Spaugilegt | Breytt 17.5.2010 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
11.5.2010 | 22:34
Hafið augun hjá ykkur!
Hvar sem þú um heiminn fer er samfélagsleg skylda að láta lögregluna vita ef einhver þessara skúrka ber fyrir augu. Óvíst er að þeir haldi hópinn. Það er alveg eins líklegt að þeir séu einir á ferð. Ekki reyna borgaralega handtöku. Hringdu þess í stað strax í neyðarlínuna og fylgdust með glæpamönnunum úr fjarlægð. Gættu þess að þeir verði þín ekki varir.
Þessi glæpamaður heitir Usama bin Laden. Hann fæddist 1957 í Saudi-Arabíu. Ekki er vitað til að hann sé með nein áberandi ör eða önnur kennimörk. Hann er jafnan með sítt alskegg. Hár hans og augu eru dökkbrún. Hann hefur lýst á hendur sér hryðjuverkum í Tansaníu, Nairobi, Bandaríkjum Norður-Ameríku, Kenýa og víðar. Auk skemmda á dýrum mannvirkjum hefur fólk látist í sprengjutilræðum sem Usama er ábyrgur fyrir.
Þessi glæpamaður heitir Seva Moguilevich. Hann fæddist 1946 í Úkraínu. Hann er sköllóttur með gráan kraga. Hann er iðulega með eitthvað skegg. Oftast yfirvararskegg. Hann keðjureykir. Augun eru græn. Hann setti upp fjárfestingafyrirtæki í Bandaríkjunum með útibú í Kanada. Hann lofaði fólki "save" ávöxtun. Sparifé fólksins gufaði upp, eða réttara sagt fór beint í vasa Seva. Síðan gufaði hann upp.
Þessi glæpamaður heitir Sigurður Einarsson. Hann fæddist 1960 á Íslandi. Hann er með hátt enni. Svo hátt að það nær hringinn aftur fyrir ennistoppinn. Hárið er grásprengt. Augun eru næstum lokuð. Það litla sem stundum sést glitta í augun bendir til þess að augasteinarnir séu eins og dollaramerki að lögun. Sigurður er bankaræningi og hefur stundað margvíslegar bókhaldsbrellur, sýndarviðskipti, afléttingar ábyrgða, markaðsmistnotkun, skjalfafals og annað í þeim dúr sem átti stóran þátt í því að íslenska bankakerfið hrundi.
Þessi glæpamaður heitir Victor Ortiz. Hann fæddist 1958 í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Hárið er brúnt og augun græn. Hann er með einnar tommu langt ör og fæðingarblett á hægra herðablaðinu. Hann rændi næstum einum milljarði frá tryggingarfélagi.
.
![]() |
Interpol lýsir eftir Sigurði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt 13.5.2010 kl. 01:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.5.2010 | 01:13
Íslenska er málið
Það er vel til fundið hjá Samtökum móðurmálskennara að veita Samfési og Söngkeppni framhaldsskólanna viðurkenningu fyrir að keppendur í Söngkeppni Samfés og Söngkeppni framhaldsskólanna syngja á íslensku. Næst mega Samtök móðurmálskennara gjarnan veita "þorskastríði" plötufyrirtækisins Cod Music viðurkenningu. Jú, vissulega er nafn plötufyrirtækisins dálítið útlenskulegt. Enda starfar það á alþjóðamarkaði. En það er reisn yfir þeim skilyrðum sem fyrirtækið setti í árlegri hljómsveitakeppni í ár. Þau gengu út á að þátttakendur myndu syngja á íslensku.
Að öllu jöfnu er virkilega hallærislegt að heyra íslenska söngvara syngja á útlensku. Nema brýn ástæða sé til. Jú, jú, einhverjir hafa rök fyrir því að þeir séu að gera út á engilsaxneskan markað. Það er ekki fráleitt. Aðrir tala um alþjóðamarkað. Þá er nærtækara að syngja á kínversku. Hlutfallslega flestir jarðarbúa skilja kínversku.
Sigur Rós hefur sannað að það virkar fyrir íslenska poppara að syngja á íslensku. Sigur Rós selur fleiri plötur á alþjóðamarkaði en nánast allar þær íslenskar hljómsveitir sem bögglast með lélega ensku.
Í lang flestum tilfellum er aulalegt að heyra íslenskar hljómsveitir syngja á ensku fyrir Íslendinga.
![]() |
Fengu viðurkenningu fyrir að syngja á íslensku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.5.2010 | 11:10
Mikilvægt að leiðrétta
Í helgarblaði Fréttablaðsins er hið ágætasta viðtal við færeysku álfadísina, tónlistarkonuna Eivöru. Fyrirsögnin er "Eldgos hægir á Eivöru Pálsdóttur". Þar kemur fram að Eivör var föst á Kastrup flugvelli í Danmörku vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Annars er tilefni viðtalsins hljómleikar sem Eivör býður upp á 28. maí í Íslensku óperunni.
Það hefst á innganginum: "Eivör Pálsdóttir heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í lok maí. Eivör hefur ekkert heyrt í ævisöguritara sínum og er orðin pínulítið stressuð."
Niðurlagið er: "Komið hefur fram í fjölmiðlum að tónlistarbloggarinn Jens Guð sé að skrifa ævisögu Eivarar. Hún kannast við málið en hefur ekkert heyrt í Jens vegna bókarinnar.
Eins lengi og maður má lesa þetta áður og vera með í þessu þá er þetta fínt. Ég er kannski pínulítið stressuð ef það kemur eitthvað út sem ég er ekki sátt við," segir hún. Hann er búinn að tala við fólk sem þekkir mig en er ekki búinn að tala við mig."
Þetta hljómar dálítið eins og bókin sé skrifuð að Eivöru forspurðri og að hún hafi aðeins frétt af vinnslu bókarinnar úti í bæ. Þannig er það ekki. Það kæmi aldrei til greina af minni hálfu að skrifa bók um Eivöru í óþökk hennar. Vinna við bókina hófst ekki fyrr en ég var kominn með grænt ljós á það frá Eivöru. Hinsvegar fjallar bókin UM Eivöru en byggist ekki á einu löngu viðtali við hana. Þess vegna hef ég tekið viðtöl - meðal annars - við ættingja og æskuvini Eivarar. En ekkert viðtal við hana. Það er því út af fyrir sig rétt eftir Eivöru haft; að ég sé búinn að tala við fólk sem þekkir hana en ekki búinn að tala við hana sjálfa. Engu að síður hefur Eivör alveg verið upplýst um gang mála. Og þegar texti bókarinnar hefur smollið saman mun Eivör lesa hann yfir, fylla upp í eyður, bæta við og ganga úr skugga um að allt sé eins og best verður á kosið. Það verður ekkert í bókinni annað en það sem Eivör er 100% sátt við. Höfum það á hreinu.
Annað - en þó þessu skylt: Evöru þykir bók um sig vera algjörlega ótímabær. Í Færeyjum eru ekki skrifaðar bækur um fólk á meðan það er á lifi. Eivöru þykir þess vegna skrýtið að verið sé að skrifa bók um hana, rétt 26 ára og rétt að hefja sinn tónlistarferil fyrir alvöru. Á móti kemur að ég er að nálgast sextugs aldur og nýbúinn að ná þeim andlega þroska að geta skrifað bók um Eivöru. Það er að segja bók sem verður Eivöru til sóma.
Viðtalið í Fréttablaðinu má sjá á: http://www.visir.is/article/2010444573694
![]() |
Flugvellir að opnast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.5.2010 | 21:54
Frábærar skopmyndir - Ísland í dag
Þessar skemmtilegu myndir fékk ég sendar. Þær varpa skoplegu ljósi á landsmálin í dag.
![]() |
Ríkisstjórnin fundar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2010 | 10:23
Snjöll kráka
Krákur eru þokkalega vel gefnar; sjálfbjarga og útsjónarsamir fuglar. Krákunni þykir fátt betra en hnetukjarnar. Vandamálið er að hnetuskeljar geta verið illbrjótanlegar fyrir litla kráku. Þá er gripið til þess ráðs sem hér sést: Krákan kemur sér fyrir beint fyrir ofan gangbraut þar sem umferðarþungi er mikill. Krákan lætur hnetuna falla á gangbrautina. Þegar þungir vörubílar aka þar um "smassa" þeir hnetuskelina. Krákan þarf þá aðeins að bíða eftir grænu gönguljósi. Þegar kviknar á því röltir hún út á gangbrautina og gæðir sér á hnetukjarnanum í flýti áður en kviknar á rauða umferðarljósinu.
4.5.2010 | 21:36
Stórmerkilegar upplýsingar
Fundi borgarstjórnar í dag var að venju útvarpað á stuttbylgju (fm) 98,3. Hann var hinn fjörlegasti og fróðlegur um margt. Einkum vekja athygli háar skuldir borgarinnar (deilt á hvern íbúa borgarinnar). Hér fyrir neðan er það helsta sem bar til tíðinda á fundinum. Þegar þið hafið lesið það er upplagt að kíkja á www.utvarpsaga.is. Þar til hægri er skoðanakönnunum um hvort þið ætlið að kjósa H eða F eða eitthvað annað framboð til borgarstjórnar eftir tæpan mánuð.
1. Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009. Jafnframt lögð fram endurskoðunarskýrsla Pricewaterhouse Coopers hf., ásamt skýrslu fjármálaskrifstofu og skýrslu mannvirkjaskrifstofu um framvindu nýframkvæmda 2009.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Þær 2,5 milljónir króna sem hver einasti borgarbúi skuldar í dag eru að langmestu leyti tilkomnar vegna glórulítilla fjárfestinga og framkvæmda í orkumálum og takmarkalítillar þjónkunar við erlend málmbræðslufyrirtæki.
Samþykkt með samhljóða atkvæðum að vísa ársreikningi Reykjavíkurborgar ásamt endurskoðunarskýrslu til síðari umræðu.
2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar:
Borgarstjórn samþykkir að endurvekja 10 mínútna tíðni Strætó á stofnleiðum innan Reykjavíkur. Í því skyni að fjármagna þá þjónustuaukningu verði m.a. teknar upp viðræður við ríkisstjórnina um endurgreiðslu á olíugjaldi á almenningssamgöngur, sbr. nýframlagða samgönguáætlun til fjögurra ára.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Um leið og fagnað er tillögum um bættar almenningssamgöngur er minnt á að fulltrúar fjórflokksins hafa um langt árabil ekki stutt tillögur mína þar að lútandi. Bætt aðgengi almennings og niðurfelling gjaldtöku vegna almennings-samgangna er brýnt samgöngu og umhverfismál, sem gæti leitt til mikils sparnaðar og betra mannlífs í borginni þegar upp er staðið.
Samþykkt er með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til umhverfis- og samgönguráðs.
3. Fram fer umræða um hámarkshraða á götum í Reykjavík.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Það er ófrávíkjanleg krafa mín og þess framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni sem býður fram til borgarstjórnarkosninganna 29. maí nk. að hvergi verði gefið eftir varðandi 30 km hámarkshraða í öllum hverfum borgarinnar, sem og í miðborginni. Umferðarslysum í borginni verður að útrýma með stífum hraðahindrandi aðgerðum og mislægum tengslum gangandi og akandi umferðar.
![]() |
Sammála um að auka tíðni strætóferða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.5.2010 | 00:28
Að baki frábærra barna eru frábærir foreldrar
Eða ungur nemur, gamall temur. Eða þannig. Myndirnar segja meira en mörg orð.
![]() |
Gott að vera móðir á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.5.2010 | 01:16
Kallinn með hattinn. Broslegar myndir af Svíakonungi
Öll þekkjum við fólk sem kann ekki við sig öðru vísi en með hatt, klút eða einhverskonar húfu á höfði. Jafnvel þó það sé ekki nema gyðingalegt pottlok. Sænski kóngurinn, Karl XVI Gústaf, er friðlaus nema hann sé með eitthvað á hausnum. Illar tungur segja það vera til að bæta upp að lítið sé í hausnum. Kalli er glysgjarn eins og hrafninn. Hann sækir í skraut, gull og sterka liti. Ekki þykir honum verra að dúskar, eyru, horn, fánar eða eitthvað svoleiðis dúllerí fylgi með
"Vinna" sænska kóngsins felst aðallega í því að vera viðstaddur tiltekna atburði. Kalli segist ekki upplifa sig sem alvöru þátttakanda í þeim atburðum nema bera höfuðfat sem hæfir tilefninu. Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir af kallinum með hattinn (neðsta myndin útskýrir kannski hvers vegna kappinn sækir í höfuðföt):
![]() |
Belgar banna búrkur á almannafæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 7.5.2010 kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
30.4.2010 | 14:58
Stærsti viðburður apríl-loka!
Sterkar vísbendingar eru um að rokk muni heyrast á skemmtistaðnum Sódómu Reykjavík á Tryggvagötu 22 í kvöld og fram eftir nóttu. Þarna munu nefnilega stíga á stokk tvær af þeim hljómsveitum sem báru fána pönkrokksins hæst á árunum um og upp úr 1980: Fræbbblarnir og Q4U. Báðar hljómsveitirnar áttu á sínum tíma fjöldann allan af vinsælum lögum sem í dag teljast vera klassísk. Nægir að nefna Bjór með Fræbbblunum og Böring með Q4U.
Hljómleikarnir hefjast klukkan 12.45 og fjörið stendur næstu þrjá klukkutímana.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2010 | 21:50
Gífurlegur ávinningur af eldgosinu
Einhverra hluta vegna hefur verið ólund í mörgum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Svokallaðir farþegar á flugvöllum hérlendis, erlendis og víðar hafa vælt eins og bandarískir hnefaleikarar undan eldgosinu.
Stjórnmálamenn og hagsmunafólk í túrhestaiðnaði hafa vælt undan því að forseti Íslands svari spurningum erlendra fréttamanna um eldgos á Íslandi án þess að ljúga einhverju sniðugu í anda 2007. Annað eftir því.
Það sem gleymst hefur í umræðunni um eldgosið er góða hliðin á málinu. Út frá umhverfisverndarsjónarmiði er eldgosið happdrættisvinningur. Flugvélar eru einhver mesti skaðvaldur gagnvart ósonlaginu rétt fyrir neðan himininn og gróðurhúsaáhrifin eru flugvélum að kenna. Þær menga svo svakalega. Að auki eru þær frekar á takmarkaðar bensínbirgðir heimsins.
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur kyrrsett flugvélarnar þvers og kruss um heim dögum og vikum saman. Þannig hefur eldgosið dregið stórlega úr mengun, bensínbruðli og allskonar. Betra gerist það ekki.
.
![]() |
Sami gangur í gosinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
29.4.2010 | 13:21
Áróður sem virkar ekki
Til fjölda ára hefur allskonar áróður verið prentaður á sígarettupakka. Þar er fullyrt að reykingar geti valdið hægfara og kvalafullum dauða, valdið lungnasjúkdómum, séu mjög skaðlegar fyrir þig og þá sem eru nálægt þér og svo framvegis. Þessi háttur er ekki aðeins hafður á hérlendis heldur líka í útlöndum og víðar.
Rannsóknir sýna að þessar merkingar hafa ekkert varnargildi. Þvert á móti. Þær hafa hvetjandi áhrif í þá átt að fleiri vilja reykja og þeir sem þegar reykja vilja reykja meira. Sálfræðingar kunna skil á ástæðum þess. Ég ætla ekki að fara út í það heldur undrast að þessum merkingum sé haldið áfram eftir að umrædd vitneskja liggur fyrir. Og þó. Rannsóknir hafa sömuleiðis sýnt fram á að það er enginn munur á aksturshæfni bílstjóra eftir því hvort hann heldur á farsíma eða hvort hann notar handfrjálsan búnað. Samt er stranglega bannað - að viðlögðum háum fjársektum - að ökumaður tali í farsíma án handfrjáls búnaðar.
Aftur á móti er refsilaust fyrir ökumenn að halda á og tala í talstöð. Jafnvel einhverja bölvaða vitleysu. Eðli málsins samkvæmt er enginn munur á því hvort ökumenn halda á talstöð eða farsíma. Nema: Annað er bannað. Ekki hitt.
Sumum finnst rosalega gaman að setja lög. Banna hitt og þetta. Hvort sem einhver glóra er í því eða ekki. Núna síðast var Álfheiður Ingadóttir að banna fólki undir 18 ára aldri að fara í sólbað. Lögreglan er að skipuleggja eftirlit með sólböðum í sumar. Gestir á Ylströndinni í Nauthólsvík verða að hafa meðferðis nafnskírteini á sólríkum dögum. Annars verða þeir sektaðir. Sú hugmynd hefur þó einnig komið upp að loka Ylströndinni á sólardögum vegna þessa.
![]() |
Ómerktir sígarettupakkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
28.4.2010 | 23:26
Stórfurðulegt myndband við verulega kjánalegt lag
Í tilefni þess að Erna Kettler hefur verið ráðin dagskrárstjóri sjónvarpsins er upplagt að rifja upp þetta myndband. Pabbi hennar vann það 1997. Samt er það ekki honum að kenna hvað myndbandið er klikkað. Alls ekki. Ernst vann myndbandið af mikilli snilld og vandvirkni samkvæmt nákvæmu handriti. Kengrugluðu. Lagið er svo kjánalegt að annað kom ekki til greina.
Til gamans má geta að það var óvænt ótrúlega auðvelt að fá svanina til að dansa í takt við lagið. Þeir eru reyndar ekkert flinkir eða taktvísir. En viljinn var einbeittur.
Tónlist | Breytt 29.4.2010 kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
26.4.2010 | 21:50
Sérðu andlitið í skýstróknum?
Það er fullyrt að ekkert hafi verið átt við þessa mynd. Hún er reyndar ekki alveg ný. Og ekki frá Eyjafjallajökli heldur frá Surtsey. En hún er jafn skemmtileg fyrir því. Og ennþá skemmtilegri ef rétt er að hún sé ófölsuð.
![]() |
Gígur í sigkatlinum stækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |