Spennandi plata á leiðinni

 

  Það er ekki aðeins gjóskuryk og öskufall sem setur svip á mannlíf í Vestmannaeyjum.  Eyjatröllið Árni Johnsen "í kartöflugörðunum heima" hefur lagt sitt af mörkum við að bjarga því sem bjargað verður undir Eyjafjöllum.  Í Vestmannaeyjum hefur hljómsveitin Momentun einnig farið mikinn.  Hljóðritað sína 3ju plötu í  Ísland Studios  í Vestmannaeyjum.  Þetta er jafnframt fyrsta alvöru plata Momentum. 

  Platan var tekin upp, hljóðblönduð og "masteruð" af Axel "Flex" Árnasyni. Hún er farin í pressun og kemur til landsins í byrjun maí - svo framarlega sem eldgosið verði til friðs.  Platan verður gefin út af  Molestin Records  á Íslandi.
.
  Hljómsveitin Momentum hóf störf 2003 og hefur gefið út plöturnar The Requiem (2006) og Your Side Of The Triangle (2008).   Nýja platan ber titilinn 'Fixation, at Rest'.  Hún inniheldur 10 lög og er tæpur klukkutími að lengd. Mikil vinna liggur að baki þessarar plötu.  13 manns koma að gerð hennar:  Gestasöngvarar, fiðlu- sello- og píanóleikari.  Söngvar plötunnar byggja á hugmyndafræði sem er túlkuð í myndlistarverki fyrir hvert lag. Verkin eru unnin af Herði Ólafssyni,  söngvara og bassaleikara hljómsveitarinnar.  Hann gengur undir nafninu Holaf í verkum sínum. 

Momentum er:

Kristján Einar Guðmundsson - Trommur og slagverk
Erling Orri Baldursson - Gítar
Ingvar Sæmundsson - Gítar og söngur
Hörður Ólafsson - Söngur og Bassi

Fixation, at Rest
01.Intro
02.Metamorphose
03.Holding Back
04.Red Silence
05.The Conduits Lead
06.As The Skies Break
07.Prosthetic Sea
08.The Eye That Leads The Way
09.Inspiration
10.Fixation, at Rest

  2 lög eru komin á netið ásamt myndbandinu hér að ofan er Momentum var í Vestmannaeyjum að taka upp. Þar gefur einnig að líta texta og myndir við lögin.

'The Conduits Lead'



'Holding Back'


 
  Kannski truflar einhverja að í upphafi myndbandsins er dálítill hávaði þegar verið er að vekja þungarokkara.  Þá er málið að spóla yfir fyrstu mínútu myndbandsins. 

 

mbl.is Einn kom með veghefil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gos í Færeyjum

  Mikið hefur verið rætt um gos á Íslandi í dag og undanfarna daga.  Sem kannski er skiljanlegt ef betur er að gáð.  Minna hefur farið fyrir umræðu um gosið í Færeyjum.  Það er eins og Íslendingar viti ekki neitt um gosið í Færeyjum.  Hér er ný ljósmynd af gosinu í Færeyjum.  Þetta er aðeins örlítið brot af því gosi sem er framleitt í Færeyjum.   

  Myndina tók Ingólfur Júlíusson.  Sá hinn sami og á eina flottustu gosmyndina á www.boston.com og vann bókina frábæru  Ekki lita út fyrir  með Evu "norn".  

færeyjar - gos


mbl.is Engin merki um goslok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurkoma Gildrunnar

  Hljómsveitir hætta aldrei.  Þessu heldur Óli Palli stundum fram á rás 2.  Og víst er að í sumum tilfellum er meiri ástæða til að halda hljómsveitum á lífi en setja punkt fyrir aftan feril þeirra.  Þó ekki sé nema til að húrra hljómsveitinni saman einu sinni enn í tilefni einhvers viðburðar.  Það þarf svo sem ekki endilega tilefnið.  Bara upp á fjörið að gera.

  Gildran í Mosfellsbæ á þrítugs afmæli í ár.  Þeim tímamótum er fagnað með endurkomu Gildrunnar.  Hljómsveitin heldur stórhljómleika í Hlégarði 1. maí.  Forsala aðgöngumiða er þegar hafin.  Nú kætast margir.    

  Gildran var til fjölda ára ein helsta rokkhljómsveit landsins.  Framan af var rokkið þokkalega hart.  Með árunum mýktist það.  Lögin urðu ljúfari og rafmagnsreikningurinn lækkaði.  En samt alltaf stutt í rokkgírinn.


Bráðskemmtileg frétt í færeysku blaði

  Þessa ljómandi skemmtilegu frétt rakst ég á í færeyska dagblaðinu Sósíalnum.  Hana má einnig sjá á:  http://www.portal.fo/?lg=70425.  Hinsvegar veit ég ekki hvers vegna þetta stóra auða bil er á milli þessa texta hér og fréttarinnar fyrir neðan.  Ég reyndi að laga það.  Án árangurs.    

 

  
Mynd: Jens Guð avmyndaður saman við Eivør (Savnsmynd)

. 

Íslendsk bók um Eivør

ávegis

.

13 Apr 10 (22:08)

.Í november í ár kemur út bók í Íslandi um Eivør Pálsdóttir. Tað er íslendingurin og Føroyavinurin Jens Guð, ið er biðin at skriva bókina.

Jens Guð hevur í mong ár fylgt føroyskum tónleiki, og hann hevur eisini verið heimildarmaður hjá Sosialinum og Portal.fo í Íslandi. Nú skrivar hann bók um Eivør.
Jens Guð hevur í mong ár skrivað um tónleik og longu í 1983 skrivaði hann bók, Poppbókin, um íslendskakan tónleik. Bókin varð stórliga fagnað. Umframt at skriva um tónleik, hevur hann eisini verið vertur á íslendskum útvarpsstøðum í mong ár. Seinnu árini hevur hann eisini bloggað á netinum, og er hann millum mest lisnu netskrivarar, bloggarar, í Íslandi.
Jens Guð sigur, at tað er forlagið Æskan, ið hevur heitt á hann um at skriva bók um Eivør. Jens Guð er longu byrjaður at skriva bókina, sum ætlandi kemur út í novenber.
Jens Guð hevur lagt dent á, at hetta verður ein bók UM Eivør, og ikki ein bók, ið er grundað á eina langa samrøðu við Eivør.
Á páskum var Jens Guð saman við einum myndamanni í Gøtu, og hitti hann har fleiri fólk, sum hann gjørdi samrøðu við um Eivør, umframt at hann eisini prátaði við Eivør.
- Hóast Eivør heldur tað er heldur fjákut, at bók verður skrivað um hana, so er tað so, at hon enn er ung, og á fyrstu fetunum í stiganum á tónleikaleiðini, og íslendingar vilja fegnir vit alt um Eivør, tí hon er av størstu stjørnum í Íslandi, saman við eittnú Bubba Mortens, sigur Jens Guð.
Jens Guð er – sum nevnt – millum fremstu blogguskrivarar Íslands, og hevur hann eini 30-40.000 vitjandi á síðu síni um mánaðin. Síðan nevnist www.jensgud.blog.is , skuldi onkur havt hug at vitja síðuna.

Meiriháttar flottar ljósmyndir af eldgosinu

  Fyrir tveimur árum (júní 2008) skrapp ég til Boston í Bandaríkjunum.  Svo einkennilega vildi til að á þeim tímapunkti fór þar á hausinn fríblað í eigu Íslendinga.  Mig minnir að það hafi heitið Boston News.  Það var í eigu Baugsfeðga.  Það kom mér á óvart að hljótt hafði farið um þetta blað í íslenskum fjölmiðlum.  Einnig þegar það fór á hausinn.  En í Boston gerðu "lókal"fjölmiðlar mikið úr örlögum þessa fríblaðs.

  Bostonbúar skildu hvorki upp né niður í þessu uppátæki Íslendinga að ryðjast inn á dagblaðamarkað í Boston.  Sögðu það ganga brjálæði næst.  Dæmið væri svo vonlaust. 

  Svo undarlega vildi til að í Boston rakst ég á fjölda Íslendinga.  Ég þekkti þá ekki alla með nafni.  En kannaðist við menn eins og Kára Stefánsson,  Geir Haaarde og Lúðvík Bergsveinsson (eða hvað hann heitir samfylkingargaurinn með öll bankalánin).  Þetta lið rölti um aðal verslunargötuna í Boston ásamt fjölda annarra Íslendinga.

  Áður en ég fór til Boston hef ég aðallega verið í suðurríkjum Bandaríkjanna.  Ólíkt suðurríkjamönnum eru Bostonbúar mjög evrópskir og fylgjast vel með heimsmálum.  Ég held að ég hafi ekki hitt neinn Bostonbúa sem var ekki neikvæður í garð Bush.  Jafnframt kom mér á óvart hvað margir þekktu til Íslands,  áttu plötur með Björk og Sigur Rós og voru bara vel á nótunum.  Töluvert annað en þegar rætt er við suðurríkjamenn.

  Hér er safn frábærra ljósmynda af eldgosunum á Íslandi birtar á boston.com (smelltu á slóðina):    http://www.boston.com/bigpicture/2010/04/more_from_eyjafjallajokull.html


mbl.is Mun stærra íslenskt eldfjall „við það að springa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumardagsgrín

kona-1

  Eftirfarandi texta fékk ég sendan.  Mér er ljúft og skylt að deila honum með ykkur um leið og ég sendi öllum hlýjar sumarkveðjur.  Jafnframt vek ég athygli á því að klukkan 15.00 í dag verður afhjúpaður og vígður í Öskjuhlíð minnisvarði um Sveinbjörn Beinteinsson,  fyrsta allsherjargoða Ásatrúarfélagsins og kvæðamann. 

Hvernig þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur
: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það assgoti pirrandi.


Fínar dömur
: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur ekki, en þér verður alveg sama.


Fínar dömur
: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.


Fínar dömur
: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.


Fínar dömur
: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara
.

Fínar dömur
: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip..
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!


Fínar dömur
: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?


Ólafur F. fór á kostum

  ólafur f

  Það var áhugavert að fylgjast með umræðum í borgarstjórn í fyrradag.  Ekki síst þann hluta fundarins er snérist um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.  Ólafur F. Magnússon,  fyrrverandi borgarstjóri,  fór á kostum,  eins og oft áður.  Hér er fundargerðin,  nokkuð stytt.  Fundurinn stóð í 7 klukkutíma.


Ár 2010, þriðjudaginn 20. apríl, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna:

Borgarstjórn samþykkir að veita kr. 20.000.000 til eflingar á skapandi sumarstörfum á vegum Hins hússins sumarið 2010. Þannig skapist svigrúm fyrir fleiri einstaklinga í þessum eftirsóttu og mikilvægu störfum fyrir ungt fólk í Reykjavík. Að sama skapi verði fjármagnið nýtt til að lengja starfstíma þeirra verkefna sem þörf er á, til að efla og styrkja ferðamannaþjónustu í Reykjavík.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Framkominni tillögu er fagnað en jafnframt vakin athygli á því, að allur fjórflokkurinn, þ.ám. Vinstri grænir, hefur sýnt mikið óréttlæti í forgangsröðun sinni. Um það vitna m.a. tugmilljarða framlög til tónlistar- og ráðstefnuhúss við höfnina á meðan skorið er niður í velferðar- og mennntakerfi borgarinnar.

Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundasviðs til umsagnar.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna:

Lagt er til að þeir íbúar borgarinnar sem eru atvinnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð fái frítt á sundstaði borgarinnar og frí notendakort að þjónustu Borgarbókasafns út árið 2010. Borgarstjóri útfæri nánar framkvæmd tillögunnar.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Á tuttugu ára borgarstjórnarferli mínum hef ég flutt fjölda tillagna í borgarstjórn um lækkun eða niðurfellingu gjalds hjá borginni fyrir börn, unglinga, aldraða, öryrkja og þá sem lakar standa í fjárhagslegu og atvinnulegu tilliti. Þó að tillagan sem hér er borin fram varði aðeins lítið brot af þeim tillögum sem ég hef flutt um þessi mál þá fagna ég engu að síður framkominni tillögu. Ég minni enn og aftur á alvarlegan skort á því að fjórflokkurinn forgangsraði til velferðar- og öryggismála í borginni.

Tillagan er samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:

3. Fram fer umræða um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Ólafur F. Magnússon óskar bókað:

Í 16. passíusálmi séra Hallgríms Péturssonar, 8. versi, sem ritað var fyrir meira en 350 árum er undirrót þess ástands sem nú ríkir meðal þjóðarinnar lýst með eftirfarandi orðum:

Undirrót allra lasta/ ágirndin kölluð er./ Frómleika frá sér kasta/ fjárplógsmenn ágjarnir,/ sem freklega elska féð,/ auði með okri safna,/ andlegri blessun hafna,/ en setja sál í veð.

Á borgarstjórnarfundi fyrr á þessu ári lagði ég fram fjárhags- og eignastöðu mína. Enn stendur á því að aðrir borgarfulltrúar geri slíkt hið sama. Rannsóknarskýrsla Alþingis beinlínis æpir á það að kjörnir fulltrúar almennings geri hreint fyrir sínum dyrum.


Eivör á norskri metsöluplötu

 Eivör & Vamp

   Færeyska álfadrottningin Eivör mun syngja á næstu plötu norsku hljómsveitarinnar Vamp.  Þetta er rosaleg kynning fyrir Eivöru.  Vamp nýtur gífurlegra vinsælda og virðingar í Noregi.  Síðasta plata hljómsveitarinnar seldist í 150.000 eintökum.  Hljómsveitin fagnar 20 ára afmæli á næsta ári.  Eftir hana liggja 11 plötur og einhverjir DVD.   

  Ég er ekki vel heima í norskri músíksenu - ef frá er talinn svartmálmurinn.  Þó ég hafi oft rekist á nafnið Vamp í skandínavískum músíkblöðum þekki ég ekki plötur hljómsveitarinnar.  Það sem ég finn með Vamp á Þútúpunni hljómar vel.  Þetta er þjóðlegt vísnapopp með smá rokkívafi.  

  Hljómsveitarstjóri Vamp segist hafa orðið gjörsamlega bergnuminn (eða tröllabundinn,  eins og Færeyingar myndu orða það) þegar hann heyrði Eivör syngja á norskri tónlistarhátíð í fyrra.  Nema hvað.  Við Íslendingar þekkjum það.   

http://vamp.no/english/index.php

 

  


Áríðandi upplýsingar um svefn bænda

  Hér fyrir neðan er póstur sem mér barst í gestabókina á blogginu mínu fyrr í dag.  Í stað þess að bregðast við bóninni með því að endurskrifa athugasemdina tel ég heppilegast að birta póstinn í heilu lagi hér.  Þannig kemst erindið best til skila.  Ljósmyndinni hnupplaði ég af bloggsíðu Ómars Inga.  Hún er þar sögð vera tekin af Ólafi Thorissyni. 

Svefn bændanna !!

Jens vegna þess hve lipur penni þú ert vil ég biðja þig að blogga um pistil einn sem birtist í fréttablaðinu í dag 19.4 er á bls 24 eftir Söru Mcmahon. Þar stendur meðal annars. Ég vona að flóðið í Markafljóti hætti fljótt svo að bændurnir þar í kring fái svefnfrið.!!!! Ekki er skilningurinn mikill á því að það eru bændur yndir Eyjafjöllum Þorvaldseyri og nágrenni sem standa verst vegna ofnakomu ösku sem engu eyrir hvorki skepnunum eða gróðri,eyðileggur jarðirnar ræktað land og bithagann. Eins þarf að kenna blaðamönnum að nota vitræn orð sem gilda til sveita um fénað búsmala gripi úthaga og margt fleira. Mér er hreinlega misboðið að lesa pistil sem þennan. Kveðja margrét.

Margrét Sig (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 19. apr. 2010

sprengigos


mbl.is „Verstu morgnar sem ég hef lifað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sambúð með látinni konu

  Aldraður Dani hefur orðið uppvís af því að búa áfram með eiginkonu sinni sem lést fyrir fjórum mánuðum.  Karlinum þótti þetta vera eitt besta tímabil hjónabandsins.  Á þessum fjórum mánuðum nöldraði konan aldrei yfir bjórdrykkju mannsins, vindlareykingum né öðru sem hún var vön að kvarta undan í fari hans.  Þess í stað sat hún þæg við hlið hans á meðan hann fylgdist með fótbolta í sjónvarpinu sötrandi sinn bjór og reykjandi vindla.  Hann sagði henni grobbsögur af sér án þess að hún gripi fram í og reyndi að gera lítið úr sögunum.  Annað eftir því.

  Þau eiga enga nána ættingja á lífi.  Það voru nágrannar sem tilkynntu lögreglu um að ekkert hafi til konunnar sést í fjóra mánuði.  Þeir óttuðust að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað því að fyrir þann tíma mátti oft heyra til öldruðu hjónanna rífast.  Niðurstaðan er sú að konan dó eðlilegum dauða.  


Hvað á maðurinn við?

steik með frönskum 

  Einn allra skemmtilegasti þáttur í íslensku útvarpi heitir  Harmageddon.  Hann er á dagskrá X-ins (fm 97,7) klukkan 15.00 til 17.30 alla virka daga.  Í þættinum fara Frosti Logason og Máni Pétursson á kostum.  Meðal viðmælanda í þættinum í gær var talsmaður steikhúss að nafni Austur.  Það er að segja nafn veitingastaðarins er Austur.  Ég náði ekki nafni talsmannsins.  Austur ku vera nýr veitingastaður.  Nafnið vísar til þess að hann er í Austurstræti.  Það er lán.  Ef staðurinn væri á Túngötu héti hann sennilega Tún.  Það er ekki flott nafn á veitingastað.

  Sitthvað áhugavert er á matseðli Austurs.  Þar á meðal kolagrilluð kengúra,  kolklikkuð sebrahestasteik,  krókódílasteik,  hægeldaðir þorskahnakkar og margt fleira.  Talsmaðurinn hefur kynnt sér önnur íslensk steikhús og fullyrðir að Austur njóti sérstöðu.  Bæði hvað varðar verð og matreiðslu.  Hann sagðist jafnframt hafa kíkt inn á mörg steikhús erlendis og víðar.  

   


Af hverju er Geir svona hræddur við Davíð?

  Fæddur og uppalinn í sveit kannast ég við svipinn á lúbörðum hundum.  Þeir bera höfuð lágt og gjóa augum hræðslulega upp á við.  Þessi svipbrigði birtast á Geir Haaarde þegar minnst er á Davíð Oddsson.  Þetta vekur spurningu:  Hvers vegna er Geir svona hræddur við Davíð?  Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur ítrekað fram hvað Geir var hræddur við Davíð.  Meðal annars er haft eftir Davíð sjálfum að Geir hafi skolfið eins og lauf í vindi og ekkert vitað hvað hann átti eða mátti gera.

  Þetta er ekki eðlilegt.  Geir var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.  Geir var sá sem valdið hafði í raun.  Af hverju var hann þá eins og lúbarinn hundur í samskiptum við óhæfan bankastjóra Seðlabankans? 

  Ég er ekki nógu vel að mér í sálfræðinni sem snýr að heimilisofbeldi.  DOddsson hefur sagt frá því að hann notaði sérstaka aðferð til að tukta nemendur í,  ja,  var það ekki Verslunarskólanum?  DOddsson sló þá eldsnöggt í höfuðið með priki eða reglustriku.  Þá limpuðust ódælir nemendur niður.  Einhvernvegin á ég erfitt með að trúa því að DOddsson hafi lamið Geir með priki.  Ég held að hann hafi ekki einu sinni þurft að sparka í Geir til að framkalla þessa hræðslu og ráðaleysi.  Ráðaleysið er Geir sennilega í blóð borið.  Það er spurning með þessa ofurhræðslu við DOddsson.  

  Ekki voru kúlúlánadrottningin,  Þorgerður Katrín,  varaformaður Sjálfstæðisflokksins,  og Tryggvi Þór Herbertsson,  sérlegur efnahagsráðgjafi Geirs,  hrædd við DOddsson.  Þrátt fyrir tryllingskastið sem DOddsson tók á Tryggva.  Ég veit að gamla pönkarnum,  Tryggvi Þór,  hefur fremur þótt kast DOddssonar fyndið og súrrealískt.  Dáldið pönk.

   Verra er að í skýrslunni er haft eftir DOddssyni að Geir sé "idót".  Það er virkilega osmekklegt.  DOddsson hefur gott vald á íslensku máli þegar hann vill svo við hafa.  Það fer honum ekki að nota svona útlendar slettur.  Íslenskan býður upp á mörg rammíslensk orð "sem gera sama gagn".

  traust efnahagsstjórn Geirs


mbl.is „Skynjuðu að dansinum var að ljúka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skúbb! Bók um Eivöru

  Það er fastur liður á þessu bloggi að ég "skúbbi" af og til (skúbb = fyrstur með fréttirnar).  Nú er enn einu sinni komið að því.  Að þessu sinni slæ ég hér upp frétt af því að Bókaútgáfan Æskan mun í haust gefa út bók um færeysku álfadísina Eivöru.  Bókin er þegar langt komin í vinnslu.  Hún verður meira UM Eivöru en eitt langt viðtal við hana.  Svo skemmtilega vill til að ég hef verið ráðinn til að skrifa bókina.  Hugsanlega er það þess vegna sem ég veit allt um þessa bók.  Þó þarf það ekki að vera.  Ég mun samt geta skýrt frekar frá bókinni þegar nær útgáfu dregur.  Það er rosalega gaman að skrifa hana.  Mér segir svo hugur að hún verði skemmtileg.  Að minnsta kosti er viðfangsefnið rosalega skemmtilegt.  Eivör er frábær.

 


Smásaga um þjón

kyssir tígrisdýr

  Íbúar kaupstaðarins eru ekki á einu máli um þjónninn að sunnan.  Hann vinnur langar vaktir á vinsælasta veitingastaðnum.  Stelpunum þykir hann sætur.  Líka eldri konunum.  Þær viðurkenna það samt ekki allar.  Að minnsta kosti ekki svo karlinn þeirra heyri.  Karlinn er svo svakalega afbrýðisamur.  Og dyndóttur.
  Strákarnir eru ekki eins hrifnir af þjóninum.  Með nokkrum undantekningum.  Það sem strákarnir setja út á þjóninn er að hann kveður alla gesti með kossi.  Alla.  Ekki síst Alla Jóns. 
  Þetta er ekki mömmukoss á kinnina.  Nema þegar börn eiga hlut að máli.  Þjónninn er enginn perri.  Þeim mun meira leggur hann sig fram í kossaflensi við þá sem komnir eru af unglingsárum.  Hann fer í hörkusleik við þá.  Og fer ekki í manngreinaálit.  Hann gerir ekki upp á milli tvítugra stelpna og karla á níræðisaldri.  Að því frátöldu að hann leyfir öllum yfir áttrætt að borða frítt ef þeir eru í fylgd með foreldrum sínum.  Bara sínum.  Þess er vandlega gætt að þeir séu ekki í fylgd með foreldrum einhvers annars.
  Öldruðu gestunum þykir gaman að fara í sleik við þjóninn.  Eða ekki beinlínis gaman heldur þykir þeim kostur að í sleiknum þrífur hann allar matarleifar af gervigómunum þeirra.  Gamla fólkið veit ekki að þjóninum þykir þetta einnig hagkvæmt fyrir sig.  Hann fer aldrei svangur í rúmið og fær að smakka á helstu réttum veitingastaðarins hvern dag.  Hann skilgreinir þetta sem lið í gæðaeftirliti með kokkum staðarins.
  Þá sjaldan sem þjónninn lyftir sér upp og heimsækir íbúa kaupstaðarins fer hann einnig í sleik við gæludýrin er hann kveður.  Aðallega hunda og ketti.  Skiptir ekki máli.  Hann stendur sína plikt.  Samviskusemi er honum í blóð borin.  Þetta er góður þjónn. 
  Sumum þykir skrítið að út úr enni þjónsins stendur loftnet af gömlu útvarpstæki.  Þar hefur loftnetið verið síðan honum skrikaði eitt sinn fótur í ælu á gólfinu eftir matvandan gest.  Þjónninn flaug þá eins og sperrtur hani.  Því næst flaug hann beint á hausinn á útvarpstæki staðarins.  Í lendingunni stakkst loftnetið á kaf inn í ennið.  Um leið brotnaði það af útvarpstækin. 
  Þjóninum þykir flott að hafa loftnet á enninu.  Hann hefur alltaf hrifist af hyrndum kindum og kúm.  Honum þykir reisn yfir þeim.
  Í desember setur þjónninn jólaskraut á loftnetið.
-------------------------------------------------------------------------------------------
.
Fleiri smásögur og leikrit:
 - Gamall einbúi:
- Systur:
 - Jólasaga:
.
- Á rjúpnaveiðum:
.
- Ólétt nunna:
.
- Gullfiskur:
.
- Flugvélamódel:
.
- Miðaldra maður:
.
- Leyndarmál stráks:
.

Magnaður texti sigurvegarans

  Ég fylgdist með seinni hluta Söngkeppni framhaldsskólanna í sjónvarpinu áðan.  Ég minnist ekki að hafa gert það áður.  Hvorki fylgst með fyrri eða seinni hluta Söngkeppni framhaldsskólanna.  Á árum áður hef ég stundum dottið inn í útsendingu frá keppninni.  En verið fljótur að skipta yfir á aðra stöð.  Ég veit ekki alveg hvers vegna ég skipti ekki um stöð núna er ég datt inn í útsendinguna.  Kannski var það af því að kynnarnir voru í góðum gír og skemmtilegir þegar ég byrjaði að horfa.  Kannski voru lögin hlustendavænni fyrir mín eyru en á fyrri árum.  Kannski er ég að eldast illa.  Kannski var þetta allt í bland.

  Nema hvað.  Sigurlagið,  flutt af nemendum í Borgarholtsskóla,  vakti aðdáun mína.  Ekki lagið samt heldur magnaður texti annars söngvarans.  Textinn var ávarp höfundarins til föður síns, eiturlyfjafíkils.  Það var hrífandi að heyra hvað textahöfundurinn er opinskár með tilfinningar sínar,  einlægur og beinskeyttur.  Framsetningin var einföld og hnitmiðuð.  Og túlkun söngvarans sem rappara einnig.  Ég heyrði ekki lögin í fyrri hluta keppninnar.  En sigur Borgarholtsskóla var verðskuldaður.  Það er alveg klárt.  Það hefur enginn toppað framlag þessara drengja.  


mbl.is Borgarholtsskóli sigraði í söngkeppninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er tækifæri að ganga í ameríska herinn

greenlandic

  Nú er lag.  Láttu drauminn rætast!  Alvöru byssur og allt.


Ný mynd af Jesú

  Það hafa ekki margar myndir náðst af Jesú frá Arabíu,  söguhetju Nýja testamentisins.  Sumar af þekktustu myndum af kappanum eru sannanlega falsaðar.  Jafnvel þó aðrir telji manninn á myndunum vera sláandi líkan fyrirmyndinni.  Á föstudaginn langa gerðust þau undur og stórmerki í Bretlandi að nákvæm andlitsmynd af Jesú þessum birtist í tyggjóklessu:

jesú-tyggjó-klessa

  Fyrir óvana er ráð að píra augu þangað til rétt glittir í tyggjóklessuna.  Síðan skal bakka aftur á bak þangað til andlitsfallið í klessunni er farið að líkjast Jesú.   

  Til samanburðar er hér fyrir neðan mynd sem fræðimenn telja gefa betri vísbendingu um útlit Jesú en tyggjóklessan.  Fjölskyldusvipurinn leynir sér ekki.  

jesú-orginal


Ljúf rokkveisla annað kvöld

solstafir1

Lengi lifir í gömlum glæðum!

Hljómsveitirnar Sororicide og Sólstafir blása til heljarinnar þungarokksveislu á Sódómu Reykjavík föstudagskvöldið 9. apríl ásamt In Memoriam og Bastard.  Þetta eru tíðindi.  Langafar íslenzks dauðarokks eru risnir uppúr óvígðum gröfum sínum!
Sororicide og In Memoriam snéru til baka frá dauðum til dauðarokks á seinasta ári og hafa aldrei verið sterkari.
Bastard er ungt band sem hefur risið hratt í íslensku neðanjarðarsenunni og gaf út plötu seint á seinasta ári á merki Cave Music útgáfunnar.
Vor- og sumarvertíð Sólstafa byrjar með þessum hljómleikum á Sódómu.  Viku síðar spilar bandið í London á tónleikum skipulögðum af JA JA JA Music og Metal Hammer, sem er stærsta þungarokkstímarit í heimi.  Sólstafir voru sérvaldir af ritstjóra blaðsins til að koma þar fram. Í apríl og maí er förinni haldið til Þýskalands til að spila á einni tónlistarhátíð og einum sértónleikum.  Í júní, júlí og ágúst spilar bandið svo víðsvegar um Evrópu á ýmsum tónlistarhátíðum á borð við Hróarskeldu og Wacken Open Air.

  Á Sódómu fer fyrsta band á svið á slaginu 22:30.  Öll fjögur böndin frumflytja nýtt efni í bland við gamalt, sumt sem hefur ekki heyrst á sviði í meira en 15 ár.

Afsakið hvað endirinn er brattur.  Svona endir er í tísku á Þútúpunni.


Nýtt og flott húðflúr

færeyjar-kort

  Í fyrra lét ég húðflúra yfir allan hægri framhandlegg minn landakort af Færeyjunum.  Kortið hefur heldur betur komið sér vel í ófá skipti.  Einkum þegar farið hefur verið um staði á eyjunum sem ég hef aldrei komið til áður.  Í gær bætti ég um betur svo um munar.  Yfir allan vinstri framhandlegg lét ég húðflúra merki Föroya Bjór.  Næsta víst er að það húðflúr á eftir að koma sér ennþá betur en landakortið.

færeyskibjórinn 


mbl.is Starfsmenn vilja meiri bjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er kominn heim í heiðardalinn

  Ég er búinn að stunda á fullu Götu í Færeyjum undanfarna daga.  Hef farið þangað á hverjum degi og heilsað upp á Færeyinga.  Svo skemmtilega vildi til að ég átti brýnt erindi við þetta fólk.  Með í för var ljósmyndarinn knái Ingólfur Júlíusson,  gítarleikari Q4U.  Í dag er Ingólfur þekktastur fyrir ljósmyndir í nýútkominni bók Evu "nornar" Hauksdóttur,  Ekki lita út fyrir - sjálfshjálparbók handa sjálfri mér og öðrum ýlandi dræsum.  Dúndur bók.  Ég mæli með henni fyrir aðra en teprur. 

  Færeyingarnir sem ég heimsótti í Götu eru allir gamlir kunningjar og vinir mínir.  Þess vegna var gaman að eiga erindi við þá vegna bókar sem ég hef verið ráðinn til að skrifa.  Meira um bókina síðar.  Hún er skemmtilegt verkefni.

  Meðal þeirra sem ég heilsaði upp á var styttan af Þrándi í Götu.  Vegna þess hvað Þrándur var þver fyrir og stóð fast á sínu er styttan af honum lárétt. 

færeyjar - jens og þrándur 

   Þessi túlkun á Þrándi er snilld.  Hverjum öðrum en Færeyingum dytti í hug að heiðra frumkvöðul í menntun og baráttu gegn skattgreiðslum til Noregs og kristnitöku á þennan hátt? 

  Það var frekar rólegt í Götu og nágrannabyggðum á Austurey undanfarna daga.  Verslanir meira og minna lokaðar.  Einnig veitingastaðir,  pöbbar og svo framvegis.  Kannski hafði þetta eitthvað með frjósemishátíðina Páska að gera.  Eða extra langa föstudaginn,  skyrdaginn og hvað þeir heita þessir skrítnu dagar.  Hitt veit ég að Færeyingar fjölmenntu í kirkju dag eftir dag.  Ekki veit ég hvað þeir voru að gera þar.  Ég hafði öðrum hnöppum að hneppa en fylgjast með því. 

  Að venju var rosalega gaman í Færeyjum.  Það þarf ekki að nefna það.  Þó ég geri það.  Gestrisni slík að í heimsókn á sitthvort heimilið vorum við Ingólfur nestaðir er við kvöddum.  Verra var að í flugvélinni á leiðinni heim lentum við í einelti af hálfu flugfreyjanna.  Sem annars voru frábærar. 

færeyjar - flugfreyjur

  Þannig var að við sátum aftast í troðfullri vél.  Drykkir,  samlokur og sælgæti var borið í farþega.  Það var byrjað að dekstra við þá sem fremstir sátu.  Síðan þeir sem næst fremst sátu.  Og þannig koll af kolli.  Þegar röðin var komin að okkur Ingólfi var bakkað aftur fremst í vélina og fyllt á glös hjá þeim sem fremstir sátu.  Þannig gekk það um hríð.  Loks þegar kom að okkur í annarri atrennu lentu flugfreyjurnar á kjaftatörn við þá sem sátu í næstu sætaröð fyrir framan okkur.  Liðið er svo skemmtilega afslappað og ljúft.  Áður en yfir lauk var samt ekki hjá því komist að eineltinu linnti.  Allir voru glaðir þegar upp var staðið.

  Við hlið mér í flugvélinni sat "næstum" 10 ára strákur (eins og hann orðaði það).  Hann var hjá færeyskum föður sínum yfir páskana og á íslenska mömmu á Akureyri.  Í klifri upp í heiðloftið blátt var ókyrrð.  Nokkuð hressileg.  Stráksi varð verulega hræddur.  Fullyrti að flugvélin myndi hrapa.  Hann bar færeyska ömmu sína fyrir því.  Hún hafði kvatt hann sérlega hlýlega vegna þess að illa veðraði og flugvél hrapaði í Danmörku nokkrum dögum áður.  Rifjaðist þá upp vögguvísa eftir Halldór Laxness:

  Sofnaðu svínið þitt

svartur í augum.

  Farðu í fúlan pytt

fullan af draugum.

  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband