Af hverju keypti Bjarni Ármanns nammi í skóinn?

  Ég er alltaf ađ rekast á vikurit sem heitir Séđ og heyrt.  Ţađ er í lit og liggur frammi á öllum sólbađsstofum.  Ţetta blađ gerir lífiđ skemmtilegra,  ađ sögn.  Helstu hjónaskilnađir frćga fólksins eru tíundađir samviskusamlega.  Í nýjasta hefti Séđ og heyrt er fullyrt í frétt ađ Bjarni Ármannsson hafi birst á bensínstöđ og keypt ţar nammi í skóinn handa börnum sínum.

  Ţetta eru tíđindi sem vekja upp áleitnar spurningar:  Af hverju keypti Bjarni nammi í skóinn?  Sniđgengur jólasveinninn heimili hans?  Ef svo er hvers vegna?  Var Bjarni ađ kaupa nammi í skóinn handa sjálfum sér?  Jólasveinninn gefur fullorđnum ekki í skóinn.  Bjarni er nammigrís.  Svo mikill nammigrís ađ hann keypti í fyrra heila nammiverksmiđju.     

jólasveinn3    

  Ţađ varđ óhapp í jólahlaupinu í ár.  Kannski liggur ţar svar viđ spurningunum varđandi kaup Bjarna á nammi í skóinn.  Hljóp Bjarni á sig?  Eđa jólasveininn?


Af hverju leggja konur bílnum sínum svona?

kona_undir_styri_3.jpgkona_undir_styri_7.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Einhverra hluta vegna leggja sumar konur bílnum sínum allt öđru vísi en annađ fólk.  Og skilja ekkert í ţví ađ fólki ţyki bílnum einkennilega lagt.  Ţessar konur standa í ţeirri trú ađ ţeirra bíl sé lagt alveg eins og öđrum bílum.  kona_undir_styri_1_948172.jpgkona_undir_styri_9.jpgkona_undir_styri_10.jpgkona_undir_styri_8_948175.jpgkona_undir_styri_6_948180.jpg


Hvernig fannst ţér áramótaskaupiđ?

  Hvađ segiđ ţiđ um áramótaskaupiđ?  Mér ţótti ţađ ágćtt.  Ekki ţađ allra besta en samt ágćtt. Hrifnastur var ég af stuttu bröndurunum: Ţegar spurt var um kattatungur og starfsmađur vísađi á kjötborđiđ. Líka ţegar spurt var í verslun um drullusokka og vísađ á Landsbankann. Einnig ţegar "Bjarni Ármanns" ţakkađi ţjóđinni árangur í maraţonhlaupi hlaupandi undan reiđri ţjóđ. Svo og ţegar tölvupóstur var sendur á Alla Reynis = alli.r = allir@.  Ađ ógleymdu ţegar fálkaorđa fylgdi hverjum kassa af morgunkorni. 

  Ég veit ekki hversu snjallt var ađ leggja í skaupinu út af kvikmyndinni  The hangover.   Ég hef orđiđ var viđ ađ margir hafa ekki séđ ţá ágćtu grínmynd og föttuđu ţví ekki tilvísanir í hana.  En fyrir ţá sem hafa séđ ţessa mynd gaf ţađ skaupinu tiltekna vídd. 

  Halldór Einarsson,  ađalhöfundur skaupsins,  ţarf ekki ađ flýja land.  Ţetta var ágćtis skemmtun.  Hvađ fannst ţér?

  Smá upprifjun frá skaupinu í fyrra:


mbl.is Áriđ kvatt međ ljósum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Kvikmyndarumsögn

bjarnfređarson plakat

 - Titill:  Bjarnfređarson

 - Leikstjóri:  Ragnar Bragason

 - Handrit:  Ragnar Bragason,  Jón Gnarr,  Pétur Jóhann Sigfússon,  Jörundur Ragnarsson og Jóhann Ćvar Grímsson

 - Einkunn:  ****1/2 (af 5)

  Flestir kannast viđ sjónvarpsţćttina  Nćturvaktina,  Dagvaktina og Fangavaktina.  Ţetta eru einhverjir albestu gamanţćttir sem framleiddir hafa veriđ og sýndir í íslensku sjónvarpi (öfugt viđ  Martein  sem er versta "gaman"myndasería í íslensku sjónvarpi).  Kvikmyndin  Bjarnfređarson  er einskonar lokapunktur aftan viđ sjónvarpsţćttina.  Afskaplega vel heppnađur lokapunktur. 

  Kvikmyndin kemur á óvart.  Ţađ er mun meiri dýpt í henni en sjónvarpsţáttunum,  meira drama og hún er vandađri í alla stađi;  meira í hana lagt.  Framvindan tekur nokkra óvćnta vinkla,  sagan gengur vel upp og fćr farsćlan endi. 

  Eins og nafn myndarinnar gefur til kynna er sjónum einkum beint ađ Georgi Bjarnfređarsyni.  Viđ fáum ađ kynnast ćsku hans,  mömmu hans,  afa og ömmu.  Hćgt og bítandi fćr áhorfandinn skilning á ţví hvers vegna Georg hefur orđiđ ţessi brenglađi mađur sem hann er.  Áđur en myndin er á enda örlar jafnvel á ţví ađ mađur vorkenni Georg pínulítiđ.

  Góđkunningjar Georgs,  Ólafur Ragnar og Daníel,  úr vaktaseríunum eru í stórum hlutverkum sem fyrr.  Ţađ er ekki sanngjarnt ađ segja ađ neinn steli senunni en Ólafur Ragnar á fyndnustu senurnar.  Já,  ţetta er gamanmynd.  Mynd sem ég mćli međ fyrir alla aldurshópa sem virkilega góđri skemmtun.  Hún á eftir ađ verđa klassík.


Rokkarar láta gott af sér leiđa

  Sem kunnugt er varđ 17 ára gamall slagari,  Killing in the Name,  međ bandarísku ţungarokkshljómsveitinni Rage Against the Machine óvćnt jólalagiđ í Bretlandi í ár.  Yfir hálf milljón eintaka af laginu seldist síđustu vikuna fyrir jól,  meira en 50 ţúsund eintökum betur en lagiđ sem varđ í 2. sćti.  Sjá:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/994808/

  Liđsmenn Rage Against the Machine hafa sent frá sér yfirlýsingu ţess efnis ađ heildarinnkoma vegna sölunnar á laginu muni renna óskipt til neyđarskýla fyrir útigangsmenn í Bretlandi.

Rage Against The Machine wallpaper


mbl.is Bono og félagar búskuđu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sigurvegarar ársins

  Fćreysku tónlistarverđlaunin Planet Awards eru hápunktur ársins í fćreysku tónlistarlífi.  Síđustu vikur fyrir afhendingu verđlaunanna snýst umrćđan í Fćreyjum meira og minna um verđlaunin.  Söluhćsta dagblađ Fjáreyja,  Sósialurin,  lagđi 16 síđna kálf undir verđlaunin um jólin.  Ţau voru síđan afhent viđ hátíđlega athöfn í fyrradag.

  Svo skemmtilega vill til ađ viđ Íslendingar könnumst viđ flesta sigurvegarana.  Eivör,  Brandur Enni og Guđriđ Hansdóttir hafa til ađ mynda öll spilađ á Íslandi.  Eivör og Brandur hafa meira ađ segja notiđ mikilla vinsćlda hérlendis og átt lög og plötur í efstu sćtum íslenskra vinsćldalista. 

  Ţannig er stađiđ ađ fćreysku tónlistarverđlaununum ađ sérstök dómnefnd (mig minnir 8 manna; ţar af 2 útlendingar.  Ţađ er hernađarleyndarmál hverjir sitja í dómnefndinni) tínir saman 30 - 40 nöfn í hvern flokk.  Međ útilokunarađferđ er nöfnum fćkkađ í 5.  Almenningur greiđir síđan atkvćđi međ sms úr farsímum.  

  

Söngkona ársins:  Eivör

Söngvari ársins:  Brandur Enni

Hljómsveit ársins:  Páll Finnur Páll

Lag ársins:  Under the Sun  međ The Dreams

  The Dreams byrjađi sem pönksveit og gerđi út á gömul fćreysk lög.  Svo sló ţessi hljómsveit í gegn í Danmörku er hún tók ţátt í ţarlendri hljómsveitakeppni.  Mig minnir ađ The Dreams hafi hafnađ í 2. sćti en náđi 1. sćti danska vinsćldalistans aftur og aftur međ sitthverju laginu.  Međ tímanum hefur hljómsveitin poppast verulega,  söng á tímabili texta á dönsku en er byrjuđ ađ syngja á ensku til ađ ná út fyrir danska og fćreyska markađinn.

Plata ársins:  The Sky is Opening međ Guđriđ Hansdóttir

Guđriđ á vinsćldum ađ fagna í Danmörku.  Ég man ekki betur en hún hafi tekiđ ţátt í einhverri ţarlendri söngvarakeppni og lent í 2.  sćti.  Eins og ađrir sigurvegarar í fćreysku tónlistarverđlaununum Planet Awards 2009 semur hún sína söngva sjálf.

  


mbl.is Söngkona ársins í Fćreyjum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Rokkveisla ársins

Wacken Metal Battle

   Nú verđur í annađ sinn haldin á Íslandi undankeppni fyrir alţjóđlegu hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle. Wacken er nafniđ á smábć í Norđur-Ţýskalandi sem á hverju sumri umturnast í einn allsherjar risa ţungarokksbć ţegar Wacken : Open : Air hátíđin er haldin. Fyrstu helgina í ágúst ţjarka ţar inn fyrir bćjarmörkin 80.000 gestir hvađanćva úr heiminum til ađ hlusta á kanónur ţungarokksins spila. Hefur ţessi hátíđ veriđ haldin sleitulaust síđan 1991 og verđur ţví 2010 hátíđin sú 21. í röđinni en Wacken er af mörgum talin Mekka allra ţunga-rokkshátíđa.

  Á síđustu árum hafa skipuleggjendur hátíđarinnar gefiđ fjöldanum öllum af ungum og efnilegum hljómsveitum tćkifćri til ađ koma og spila á ţessari hátíđ. Í ţví skyni settu ţeir á laggirnar hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle áriđ 2004. Sigursveit keppninnar hlýtur m.a. ađ launum alţjóđlegan hljómplötusamning, fullt af grćjum og hljóđfćrum og auđvitađ heiđurinn af ţví ađ spila ađ ári fyrir mörg ţúsund manns á mun betri stađ í prógramminu á Wacken. Ţeim er auk ţess bođiđ ađ spila á hinum ýmsum undankeppnum nćstu Metal Battle keppni út um allan heim!

Í ár munu 26 ţjóđir halda undankeppnir í sínu landi. Sigursveit hvers lands fyrir sig fćr ţátttökurétt í lokakeppninni sjálfri á Wacken hátíđinni í ágúst.

Fyrirkomulag keppninnar - erlend ađkoma

  Hljómsveitir senda inn umsókn um ađ fá ađ vera međ, og fer sérstök nefnd yfir umsóknirnar og velur 6 sveitir til ađ taka ţátt í keppninni. Einungis eitt kvöld verđur haldiđ, ólíkt öđrum hljómsveitakeppnum sem fariđ hafa fram hér á landi. Í keppninni sjálfri mun dómnefnd sjá um ađ velja sigurvegara. Erlendir ađilar sitja í henni ásamt Íslendingum. Međal ţeirra sem koma er blađamađur frá einu stćrsta metal-tímariti Evrópu, Aardschok magazine. Hann er einnig međ sitt eigiđ bókunar- og umbođsskrifstofufyrirtćki, sem sér um ađ bóka tónleika fyrir fjöldann allan af hljómsveitum sem eiga leiđ um Benelux löndin á tónleikaferđalögum sínum og skipulagningu eins stćrsta metalfestivals Hollands, Eindhoven Metal Meeting. Frá sama fyrirtćki kemur líka annar ađili sem er burđarás hjá fyrirtćkinu.

  Sannarlega kanónur hér á ferđ og ţađ er ţví ekki annađ hćgt ađ segja en ađ vera ţessa manns hér er mikill fengur fyrir ţćr sveitir sem ţćr eiga eftir ađ berja augum. Möguleikar sveitanna til ađ láta á sér krćla á einum stćrsta markađi ţungarokks í heiminum, Evrópu, munu ekki gera neitt annađ en ađ aukast.

Wacken Open Air – Hópferđ Íslendinga

  Wacken er stórglćsileg hátíđ, ţar sem ađbúnađur, ađstađa, öryggi, almenn framkvćmd og utanumhald er til fyrirmyndar. Ţađ kom ţví ekki á óvart ađ hátíđin hlaut Live Entertainment Awards verđlaunin í flokknum Festival of the Year í Ţýskalandi 2008. Slíkt er sérlega eftirtektarvert í ljósi ţess ađ um 500 tónlistarhátíđir eru haldnar í landinu á ári hverju. Ţađ hefur veriđ uppselt á ţessa hátíđ síđan 2006 og fyrir síđustu hátíđ var svo komiđ ađ ţađ var ţegar orđiđ uppselt á hana heilum 7 mánuđum áđur en hátíđin er haldin.

  Síđan 2004 hefur hópur Íslendinga fjölmennt á ţessa hátíđ í sérstakri hópferđ sem danska fyrirtćkiđ Livescenen stendur fyrir međ sérstakri milligöngu Restingmind Concerts á Íslandi. Slíkt er ađ sjálfsögđu einnig tilfelliđ fyrir 2010 hátíđina og ćttu áhugasamir einmitt ađ setja sig í samband viđ Restingmind ef ţeir vilja skella sér međ.

Verđlaun keppninnar

Sveitin sem stendur uppi sem sigurvegari Metal Battle á Wacken hlýtur eftirfarandi:

* Fyrstu verđlaun: Hljómplötusamningur viđ Wacken Records sem gildir fyrir allan heiminn. Samiđ verđur viđ sigursveitina sérstaklega um ákvćđi samningsins.

* Eins árs stuđningssamning (endorsement) viđ Washburn gítarframleiđandann og Eden bassamagnararisann. Sveitin hlýtur ađ auki tvo gítara, Eden 2x440W bassamagnarahaus og tvö 4x10 bassabox. Hún hlýtur einnig Mapex Meridian Maple Go-Large trommusett, eitt stk Marshall JVM 210 H gítarmagnara og 5 stk symbala frá Paiste.

Sveitirnar sem vinna sína undankeppni og fara á Wacken hljóta einnig eftirfarandi:

* 1 stk Black Panther 14" x 5.5" sneriltrommu frá Mapex og sérstakan "Friends of Washburn" samning og "Friends of Eden" samning. Ţessir samningar gera sveitunum kleift ađ kaupa Washburn og Eden grćjur á alveg sérstökum kjörum í eitt ár.

* Íslenska sveitin fćr ađ ferđast frítt međ hópferđ Íslendinganna frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken í bođi Livescenen.

Umsóknarfrestur og skráning

  Ţćr sveitir sem hafa áhuga á ađ taka ţátt í ţessu skrá sig međ ţví ađ senda kynningarpakka á Restingmind Concerts. Ţćr samţykkja um leiđ reglur keppninnar sem má finna á www.metal-battle.com. Hćgt er ađ skrá sig á tvo vegu:

1) Međ ţví ađ senda:

* CD međ a.m.k. 3-4 lögum

* Mynd af sveitinni

* Upplýsingar um sveitina (bio)

* Contact info

á póstfangiđ:

WOA Metal Battle Ísland

c/o Ţorsteinn Kolbeinsson

Rafstöđvarvegur 33

110 Reykjavík

 2) Skráning á netinu: Sveitir senda epk (electronic press kit) í gegnum vefsvćđiđ sonicbids.com. Nánari upplýsingar um ţetta í netfanginu hér ađ neđan.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar međ innsendingarađferđ 1), en 8. janúar međ 2). Athugiđ ađ ekki komast allar sveitir ađ sem senda inn umsóknir, ţannig ađ ţađ borgar sig ađ vanda sig viđ gerđ umsóknanna.

Stćrsti ţungarokksviđburđur ársins

Ţađ er líklega ekki vanmat ađ segja ađ ţessi viđburđur sé einn stćrsti ţungarokksviđburđur ársins (sem ekki inniheldur erlenda artista), ef ekki sá stćrsti. Ţađ er ekki á hverjum degi sem íslenskar ţungarokkssveitir munu koma fram á Wacken Open Air, eins og verđur einmitt afleiđing ţessarar keppni.

Keppnin mun fara fram á
Sódóma Reykjavík, laugardaginn 13. mars 2010.

Óvćntustu krákur sögunnar

  Vefmiđillinn WeirdWorm hefur tekiđ saman lista yfir óvćntustu (eđa undarlegustu) krákur (cover songs) sögunnar.  Í inngangi segja ţeir ađ ţetta séu krákur sem fá hlustandann til ađ hrökkva viđ og hrópa furđu lostin/n:  "Hvurn djöfulinn eru ţeir eiginlega ađ pćla?"

  Hér er listinn:

1.  Raggi Bjarna:  Smells like Teen Spirit

  Ţeir hjá WeirdWorm völdu reyndar krákuna međ Paul Anka.  En afgreiđsla ţeirra Ragga og Pauls er á svipuđu róli.  Raggi ađ vísu alltaf flottari.  Hér fyrir neđan er upphaflega útgáfan af laginu međ höfundum ţess,  bandarísku grugg-sveitinni Nirvana.

2.  Sid Vicious:  My Way

  Sid var skráđur bassaleikari bresku pönksveitarinnar Sex Pistols.  Sjálfur hélt hann ađ hann vćri bassaleikari Kynhólkanna.  Hiđ rétta er ađ Chris Spedding spilađi á bassann án vitneskju Sids.  Sid kunni ekki á bassa en var hafđur á sviđinu af ţví ađ hann var svo klikkađur.  Sid sótti bassagítarnám hjá Lemmy (Motorhead).  Lemmy hefur aldrei kynnst nemanda sem var jafn gjörsneyddur skilningi á bassaleik.

  Hér syngur Sid sjálfur lagiđ  My Way.   Skömmu síđar stakk hann auga úr bróđir tónlistarkonunnar Patti Smith,  myrti kćrustu sína og dó af of stórum skammti af heróíni.

  My Way  er gamalt franskt lag en iđulega skráđ á Paul Anka sem samdi enska textann.  Paul ţann hinn sama og á krákuna í 1. sćtinu. My Way  er sennilega ţekktast í flutningi Geirs Ólafs eđa Franks Sinatra.  Fyrir neđan flytur Frank ţetta lag međ ađstođ Pavarotti(s):

3.  Rolf Harris:  Stairway to Heaven 

  Rolf Harris er ástralskur söngvari,  ţekktastur fyrir lagiđ  Walzing Mathilda (á Íslandi ţekktara sem  Ísland úr Nató!).  Fyrir neđan er lagiđ í flutningi höfundanna,  bresku folk-blús sveitarinnar Led Zeppelin.

4.  Pat Boone:  Enter Sandman

  Á myndbandinu fyrir ofan er búiđ ađ blanda saman frumflutningi dansk-bandarísku málmsveitarinnar Metallica,  höfunda lagsins,  og hörmulegum flutningi raularans Pat Boone.  Reyndar er hljóđfćraleikurinn fínn.  Lagiđ vćri áheyrilegt í ţessari útsetningu án söngs.

  Pat var á sjötta áratugnum ţekktur fyrir ađ misţyrma sprćkum rokk og ról lögum međ ţví ađ fletja ţau út í gelt skallapopp.

5.  Scissor Sisters:  Comfortably Numb

  Hommapopp er músíkstíll sem,  ja...  Sko,  ţađ er bara svona.  Scissor Sisters,  Bee Gees,  Village People,  Bronski Beat... Kynhneigđ fólks skiptir ekki máli frekar en húđlitur eđa... Andúđ á píkupoppi hefur ekkert ađ gera međ viđhorf til smástelpna eđa andúđ á skallapoppi til sköllóttra.  Fyrir neđan er frumútgáfa Pink Floyd á ţessu ágćta lagi.


Angurvćr og hátíđlegur jólasálmur

  Nú ţegar liđiđ er á jólasteikina hellist andagiftin yfir.  Áđur en ég vissi af var skáldagyđjan búin ađ fćra mér upp í hendur án fyrirhafnar ţennan hátíđlega jólasálm.  Hann verđur tekinn upp í kirkjum landsins ţegar Gunnar Ţórđarson og Atli Heimir verđa búnir ađ semja lag viđ hann.  Í allra síđustu línunni er bein tilvísun í kveđju jólasveinsins.

  Heims um ból halda menn jól;

heiđingjar,  kristnir og Tjallar.

  Uppi á stól stendur í kjól

stuttklipptur prestur og trallar:

  Tra-la-la-la-la,

tra-la-la-la-ló.

  Tra-la-la-la-la,

tra-la-la-hó-hó!

jólasveinn


mbl.is Steikinni brennt í rćktinni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fallegasta útgáfan af Heims um ból

  Fólk má alveg leyfa sér ađ vera töluvert vćmiđ á jólunum.  Leggjast til ađ mynda yfir hátíđlegan flutning á ţvćldustu jólasálmunum.  Jólin eru ekki komin fyrir alvöru fyrr en guđspjallasveitin ljúfa Testament fer í sinn fínasta skrúđa og afgreiđir notalega útgáfu af  Heims um ból.  Ţetta rifjar upp fyrir mér ćskuárin í dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal.  Ţar sat ég hverja einustu messu og heyrđi alltaf fyrir mér sálmana flutta á nákvćmlega ţennan hátt.  Ađ vísu hefđi ég viljađ heyra eitt bjölluslag úr Hólaturninum annađ hvort í upphafi eđa enda lagsins.  Ţađ vandamál leysi ég sjálfur međ ţví ađ slá hnífsblađi léttilega utan í bjórglasiđ mitt.  Bćđi í upphafi og enda lagsins.  

  Fegurđin í ţessum flutningi Testament birtist best ef hljóđstyrkur hátalaranna er ţaninn í botn.  Ţá umvefur fegurđin hlustandann í kćrleik og jólagleđi.

 

 


mbl.is Jólasveinninn í önnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bestu tónskáld sögunnar

  Tímaritiđ Listverse hefur birt ansi merkilegan lista yfir bestu tónskáld sögunnar.  Ţar tróna ekki efst John Lennon eđa Paul McCartney.  Ţetta er öđru vísi listi. Ţegar öllu er á botninn hvolft er ekki auđvelt ađ hrekja niđurstöđuna.  Listinn lítur ţannig út:

1.  Jóhann Sebastian Bach (ţýskur).  Fúgu meistari allra tíma.

 

2.  Wolfgang Amadeus Mozart (austurískur).  Melódíumeistarinn.  

3.  Lúđvík van Beethoven (ţýskur)

 

 

4.  Ríkharđur Wagner (ţýskur gyđingahatari).  Á myndbandinu flytja mormónar  Pílagríma kórinn  úr  Tannhauser.  Trúbrot kallađi kráku (cover) sína  Elskađu náungann.    Ćvintýri kallađi sína kráku  Frelsarinn.

 

5.  Franz Schubert (austurískur).  Hér flytur Kiri Te Kanawa  Nacht und Träume.  Umbođsmađur hennar heitir Einar Bárđarson.

6.  Róbert Schuman (ţýskur)

7.  Friđrik Chopin (pólskur)

8.  Franz Liszt (ungverskur)

9.  Jóhannes Brahms (ţýskur)

10. Giuseppe Verdi (ítalskur)

 


Útdráttur úr bókinni Allir í leik - annar hluti

alliríleik

  Í gćr birti ég útdrátt úr bókinni frábćru  Allir í leik  eftir Unu Margréti Jónsdóttur.  Ţađ vakti svo mikla lukku ađ ég get ekki annađ gert en birta meira.  Enda er ţađ bara gaman. 

  Erlendis hafa sippleikir tíđkast lengur en hér og ţar hefur veriđ algengt ađ fara međ rím eđa taktfastan texta um leiđ og sippađ var, t.d. er til bandarísk bók sem heitir „101 sipprím“. Í samanburđi viđ ţađ er ekki um auđugan garđ ađ gresja hér á landi ţví ađ ég hef ađeins fundiđ ţessi tvö sipprím hér sem auk ţess eru nauđalík eins og tvö erindi í sama kvćđi. En ţađ ţýđir ekki ađ bera sig saman viđ stórţjóđir og íslensku sipprímin eru skemmtileg og sérstćđ. Ég hef ekkert fundiđ líkt ţeim hjá enskumćlandi ţjóđum.

  „Mamma segir“ er enn mjög vinsćll leikur sem flestar litlar stelpur ţekkja og líka margir strákar ţótt ţeir sippi sjaldnar. Seinna erindiđ, „Amma segir,“ er ekki eins algengt, en ţađ virđist hafa komiđ um svipađ leyti og „Mamma segir“ og ég man vel eftir ţví frá bernskuárum mínum 1970-80. Ég hef spurt Svend Nielsen, sem rannsakađ hefur danska leikjasöngva, um sipprím í Danmörku, en hann kannađist ekki viđ neitt slíkt ţar. Í Fćreyjum er hins vegar til mjög svipađ sipprím og er ţađ svohljóđandi:

Mamma rópar systir inn.

Tú skal fá ein slikkepind.

Kom so inn.

Pabbi rópar systir út.

Tú hefur brotiđ ein rút.

Kom so út.

(Mamma kallar á systu inn. „Ţú skalt fá sleikipinna, komdu inn.“ Pabbi kallar á systu út. „Ţú hefur brotiđ rúđu. Komdu út.“)

Heimild: Stúlka og drengur í Fćreyjum, fćdd 1991 og 1994. Hljóđritađ 2004 ţegar ţau voru 13 og 10 ára.

Fćreyjar: Bamse, bamse

Texti: Höfundur ókunnur.

Bamse, bamse, lřb nu ind.

Bamse, bamse, tag din sten.

Bamse, bamse, strćk dine arme.

Bamse, bamse, strćk dine ben.

Bamse, bamse, strćk dig ud.

Bamse bamse, tag din sten.

Bamse, bamse, lřb nu ud.

(Bangsi, bangsi, hlauptu inn. Bangsi, bangsi, taktu upp steininn ţinn. Bangsi, bangsi, teygđu úr handleggjunum. Bangsi, bangsi, teygđu úr fótunum. Bangsi, bangsi, teygđu úr ţér. Bangsi, bangsi, taktu upp steininn ţinn. Bangsi, bangsi, hlauptu út.)

Heimild: Stúlka og drengur (systkini) í Fćreyjum, fćdd 1991 og 1994. Hljóđritađ í ágúst 2004 ţegar ţau voru 13 og 10 ára.

Í ţessum snú-snú-leik, sem ég fann í Fćreyjum, er barniđ, sem hoppar, kallađ bangsi og ţví er sagt ađ gera alls konar kúnstir um leiđ og ţađ hoppar yfir snú-snú-bandiđ: teygja úr handleggjunum, taka upp stein og fleira slíkt. Leikurinn er ekki á fćreysku heldur dönsku, en krakkarnir báru hann ekki fram međ dönskum framburđi, ţetta er svokölluđ „götudanska,“ sögđu foreldrarnir mér. Leikurinn er líka til í Bandaríkjunum: Teddy Bear, Teddy Bear, og er ţar mjög svipađur. Ég hef einnig séđ hann í svissneskri leikjabók.


Bestu bílar ársins 2010

  59 blađamenn á bílatímaritum í 23 löndum tóku ţátt í vali á "Bíl ársins 2010".  Ég veit lítiđ um bíla og bílamarkađinn og ég fatta ekki hvernig menn geta úrskurđađ hvađa bílar verđa ţeir bestu á nćsta ári.  Fjölmiđlar leita ćtíđ álits míns á bestu plötum ársins sem er ađ líđa eđa fyrri ára.  En aldrei á bestu plötum komandi árs.  En ţetta urđu úrslitin í vali bíladellumanna á bestu bílum ársins 2010:  Opel Astra lenti í 3ja sćti međ 221 stig.  Toyota IQ í 2. sćti međ 337 stig.  Vinningshafinn reyndist vera VW Polo međ 347 stig. 

.   Pólóinn er ţá sennilega betri en VW Caddy-inn minn.  Annarri eins druslu hef ég ekki kynnst.  Alltaf ađ bila.  Og ef hann bilar ekki ţá dćldast hann viđ minnsta núning utan í ađra bíla eđa ljósastaura. 

Ja,  ţađ segir sig reyndar sjálft ađ VW hlýtur ađ vera betri en VW Caddy.  Annars hefđu báđir bílarnir hafnađ í 1. sćti međ jafn mörg stig.

23 danskir blađamenn á ţarlendum bílatímaritum stóđu einnig fyrir vali á "Bíl ársins 2010".  Sigurvegarinn ţar var sá sami.  Opel Astra lenti í 2. sćti og Citroen Picasso nr. 3.  Ekki veit ég hvađ danskir blađamenn hafa út á Toyota IQ ađ setja.  Kannski hefur ţađ eitthvađ ađ gera međ viđhorf til Ţyrlu-Manga frá Vestmannaeyjum?

bíll ársins 2009

mbl.is Schumacher gerir samning viđ Mercedes
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Verđsamanburđur á skötuveislum

skata4

  Í dag og á morgun snćđa flestir kćsta skötu í öll mál.  Ţađ er góđur og hollur siđur nú á sólstöđum og hátíđ ljóssins;  ţegar viđ fögnum hćkkandi sól.  Fjöldi veitingastađa býđur upp á skötuveislu,  ýmist í dag eđa morgun eđa báđa dagana.  Ég hef tekiđ saman verđiđ hjá ţeim veitingastöđum sem ég sćki á ţessum tíma ársins.  Sumir ţeirra hafa veriđ međ skötuna á bođstólum í nokkra daga.  Svona er listinn:

Sćgreifinn  viđ Reykjavíkurhöfn (Geirsgötu)  1700 kr.

Hafberg, Gnođavogi  1890 kr.

Sjávarbarinn,  Grandagarđi  2400 kr.

Catalína,  Hamraborg  2700 kr.

Múlakaffi  2950 kr.

Skútan,  Hólshrauni,  Hafnarfirđi  3000 kr.

Lionsklúbbur Kópavogs  og Coctail veisluţjónusta Auđbrekku (Lundur)  3500 kr.

Turninn, Kópavogi  3500 kr.

Kringlukráin  3950 kr. 

Grand Hótel  4400 kr.
.
  Fljótt og gott á Umferđamiđstöđinni býđur upp á skötu á morgun.  Síđast ţegar ég vissi var ekki búiđ ađ ákveđa verđiđ en skotiđ á ađ ţađ yrđi á bilinu 2500 - 2700 kr.  Potturinn og pannanFjörukráinHafiđ Hlíđarsmára, og Gallerí fiskur bjóđa einnig upp á skötuveislu.  Ég hef ekki kíkt til ţeirra í ár og veit ţví ekki verđiđ.  Ţau eru heldur ekki gefin upp á heimasíđum ţeirra.  Ef ţiđ vitiđ verđiđ ţar eđa vitiđ um fleiri stađi sem eru međ skötuveislu vćri gaman ađ fá ţćr upplýsingar í pottinn.  Mér og ykkur til gagns.
.
  Ţađ er ađ sjálfsögđu misjafnt hvađ veislan er fjölbreytt og vegleg eftir stöđum.  Glćsilegasta skötuveislan er hjá Sjávarbarnum.  Ţar er um alvöru hlađborđ ađ rćđa međ margvíslegri útfćrslu á skötunni,  auk ýmissa annarra sjávarrétta og međlćti.
  Ţar fyrir utan slćr ekkert út skötuveislunni hjá Rannveigu Höskuldsdóttur síđasta laugardag.  Hafi hún bestu ţökk fyrir.  Verst ađ myndavél var fjarri góđu gamni.  Annars hefđi veriđ gaman ađ sýna ykkur frá fjörinu.

 


Útdráttur úr bókinni Allir í leik

alliríleik

  Í gćr sagđi ég frá leikjabókinni bráđskemmtilegu  Allir í leik  eftir Unu Margréti Jónsdóttur (sjá síđustu fćrslu).  Fólk er gríđarlega spennt fyrir ţessari bók.  Mér rennur blóđiđ til skyldunnar ađ gefa frekari sýn inn í bókina.  Ţví miđur hef ég ekki yfir "skanner" ađ ráđa og af ţeim gögnum sem ég kemst yfir í netheimum tekst mér ekki ađ afrita og skeyta nótur af laglínunni á međfylgjandi lagi.  En ţađ er allt í lagi.  Nóturnar eru í bókinni.  Međfylgjandi sýnishorni er fyrst og fremst ćtlađ ađ leyfa ykkur ađ sjá efnistök.  Eftirfarandi er leikur sem Fćreyingar syngja ţegar vel liggur á ţeim (til gamans má geta ađ Fćreyingar geta ekki sagt orđ sem byrjar á hr.  Ţess vegna tala ţeir um  ring  ţar sem átt er viđ  hring):

Kráka situr á steini

Lag: Fćreyskt ţjóđlag. Texti: Höfundur ókunnur.

Heimild: Páll Danielsen, f. 1964, ćskustöđvar Ţórshöfn og Eiđi, Fćreyjum, og Vár B. Danielsen, f. 1965, alin upp

í Húsavík á Sandoy og í Ţórshöfn. Einnig börn ţeirra, Bára Berghamar Danielsen, f. 1991, og Ári Berghamar

Danielsen, f. 1991. Hljóđritađ í Ţórshöfn í Fćreyjum sumariđ 2004.

(Einnig Johannesen, bls. 90, og Alfagurt ljóđar mín tunga, bls. 74.)

.

Kráka situr á steini

hakkar í beiniđ

fyrsta var eitt pottabrot,

annađ var eitt útskot í ringi,

triđja var ein rövari á tingi.

Nú skal (Bára) venda sćr í ringi.

.

Ţýđing: Kráka situr á steini, kroppar í beiniđ. Fyrst var brot úr potti. Annar var

auladansari (útskot – rćfill; ringi – fćreyskur dans (hringur)). Ţriđji var rćningi á

ţingi. Nú skal (Bára) snúa sér í hringnum.

.

  Ţegar ég var á ferđ í Fćreyjum sumariđ 2004 rakst ég á fćreyskan dans: „Kráka situr

á steini“ – sem er í sama anda og „Vindum, vindum, vefjum band,“ en allt annađ lag

og texti. Fćreysk fjölskylda dansađi hann fyrir mig í stofunni heima hjá sér. Hann er í

fćreyskum ţjóđdansastíl, en sá sem er nefndur á nafn í síđustu hendingunni snýr sér viđ.

Í lokin er sagt ađ nú skuli allir snúa sér viđ og er ţađ gert.

Í fćreyskri leikjabók má sjá ađ dans ţessi var vinsćll međal barnanna ţar á árum

fyrri heimsstyrjaldar og hugsanlega fyrr.1)

.  Ljóst er ađ textinn er gamall ţví í bók Jóns Samsonarsonar, Kvćđi og dansleikir, kemur fram ađ hluti úr honum var notađur í íslenska ţulu fyrr á öldum. Ţulan er höfđ eftir sr. Friđriki Eggerz (1802-1894) og brotiđ, sem líkist fćreyska textanum, er á ţessa leiđ:

Einn pottur var brotinn,

annar útskotinn,

ţriđji var ţar ryđgađur viđ síđu.

Og síđar segir:

Hvör er sá á ţinginu sem bjóđa skal? 2)

Tilvísanir:

1. Johannesen, bls. 90.

2. Jón Samsonarson I, bls. ccxvi-ccxvii. Vitnađ er í handrit Lbs. 936 4to, bls. 316-317.


Flottasta bókin á jólamarkađnum

alliríleik

  Ein lang flottasta bókin á jólamarkađnum heitir  Allir í leik.  Í henni er lýst fjölda sunginni leikja og birtar nótur laglínanna.  Ţetta eru leikir sem ömmur og afar,  mömmur og pabbar og börn eldri en sex ára ţekkja.  Óvíst er ađ allir ţekki alla leikina.  Ţeim mun skemmtilegra er ađ lćra ţá.  Nokkrir leikir eru frá Fćreyjum og Grćnlandi.  Ţeir eru frábćrir.  Ţađ er Una Margrét Jónsdóttir sem safnađi leikjunum saman.   

  Ţetta er bók sem passar flestum bókum betur í jólapakka handa fólki á öllum aldri yfir sex ára.


Risa kjaftshögg á X-factor

  Undur og stórmerki hafa átt sér stađ í Bretlandi.  17 ára gamalt bandarískt ţungarokkslag,  Killing in the Name  međ Rage Against the Machine,   valtađi yfir splunkunýtt lag međ nýkrýndum X-factor sigurvegara á breska vinsćldalistanum.  Síđarnefnda lagiđ seldist í 450.838 eintökum í liđinni viku.  Killing in the Name  seldist 51.834 eintökum betur,  eđa samtals í 502.672 eintökum.  Ţar međ er  Killing in the Name  jólalagiđ 2009 í Bretlandi,  ţađ er ađ segja prýđir toppsćti breska vinsćldalistans um jólin.

  Í Bretlandi er mikiđ gert úr jólalagi hvers árs.  Ţví er hossađ í ţarlendum fjölmiđum og spilađ út í eitt í útvarpi og sjónavarpi yfir jólin.  Simon Cowell,  mađurinn á bak viđ söngvarakeppnina X-factor var búinn ađ lýsa ţví yfir ađ ef lagiđ međ X-factor sigurvegaranum yrđi jólalagiđ í ár myndi ţađ breyta öllu til frambúđar.  Nú hafa ţćr vonir orđiđ ađ engu.  Sigur  Killing in the Name  yfir X-factor laginu hefur einnig afgerandi ţýđingu.  Hann er sigur rokkunnenda yfir verksmiđjuframleiddu skallapoppi í niđursuđudósum og atburđarás hannađri samkvćmt uppskrift markađsfrćđinnar um hjarđhegđun;  ţar sem hjörđinni er stýrt í réttirnar eins og uppvakningum.´

  Hundruđ milljónum króna var variđ í ađ tryggja X-factor laginu 1. sćtiđ.  Ekki ein króna var sett í ađ bakka  Killing in the Name  upp.   

  Í netheimum loga breskar bloggsíđur í umrćđu um jólalagiđ í ár.  Sumir eru ósáttir en flestir afar ánćgđir.  Sigur  Killing in the Name  er ein ađalfréttin í breskum ljósvaka- og netmiđlum í dag og verđur á forsíđum dagblađanna á morgun.  Breska ríkisútvarpiđ BBC er í vandrćđum vegna jólalagsins í ár.  Einhverra hluta vegna er bannađ ađ segja vinalega orđiđ "fuck" í BBC.  Í viđlagi  Killing in the Name  segir  "Fuck you,  I won´t do what you tell me".  Í morgun áttađi tćknimađur BBC sig ekki nógu fljótt á hvađ sagt er í texta lagsins.  4 "fuck" sluppu í loftiđ áđur en tćknimađurinn skrúfađi niđur í laginu.  BBC sendi í kjölfar frá sér yfirlýsingu ţar sem beđist er afsökunar á ţessu.

  Síđar í dag hafa ađrir bútar úr laginu en ţeir sem innihalda "fuck" veriđ spilađir í BBC og Sky.  Reyndar er vandamáliđ varđandi ţetta ekki stćrra en svo ađ yfir 4 mínútur eru liđnar af laginu áđur en kemur ađ "fuck-unum". 

  Killing in the Name var vinsćlasta lagiđ á mörgum breskum pöbbum í kvöld.  Ţar sungu gestir hástöfum međ í "Fuck you" kaflanum.  Á fréttasíđum breskra netmiđla hefur fréttin af jólalaginu veriđ ein mest lesna og oftast áframsenda fréttin í dag.  Margir Bretar segja ađ međ ţessum úrslitum hafi jólin í raun gengiđ í garđ.

  Jólalagiđ í fyrra var  Hallelujah  međ Alexöndru Burke.

  Sigur  Killing in the Name  hefur vakiđ athygli víđa um heim.  Ekki síst í Bandaríkjunum,  Enda er Rage Against the Machine frá Los Angeles og ein vinsćlasta hljómsveit Bandaríkjanna.  Plötur hennar hafa veriđ í áskrift ađ 1. sćti bandaríska vinsćldalistans.

  Meira um ţetta hér:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/994066/

  Hér er  Killing in the Name  í flutningi Audioslave međ Chris Cornell viđ hljóđnemann:

   

 


mbl.is R.A.T.M. náđi fyrsta sćti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Smá spaug

grín

  Íslensk ţýđing fyrir ţá sem kunna ekki sćnsku:

1  Fyrst ţarf ađ láta víniđ anda.

2  Ţađ andar ekki.  Hvađ er til ráđa?

3  Ţá er nćrtćkast ađ grípa til björgunarađgerđa og beita "munn viđ munn" lífgunarađferđinni!


Dúndur skemmtileg bíómynd - kvikmyndarumsögn

 -  Titill:  Anvil! The Story of Anvil

 -  Einkunn:  ***** (af 5)

 -  Sýningarstađur:  Háskólabíó
.
  Ţetta er grátbrosleg heimildarmynd um tvo vini í Toronto í Kanada.  Ţeir byrjuđu ađ spila ţungarokk saman sem unglingar 1973.  Í dag eru ţeir komnir á sextugsaldurinn og eru enn á fullu.  Ţeir hafa fengiđ fleiri og stćrri tćkifćri en flestir tónlistarmenn til ađ slá í gegn á alţjóđavettvangi.  Hljómsveit vinanna,  Anvil,  var frumkvöđull hrađkeyrslu- og ţrass-málmsins (speed/thrash) og fyrirmynd hljómsveita á borđ viđ Metallica,  Megadeath,  Slayer,  Pantera og Overkill.  Einnig má nefna Anthrax sem hefur krákađ (cover) lög frá Anvil.   Liđsmenn ţessara hljómsveita eru einlćgir ađdáendur Anvil,  eins og fjöldi annarra frćgra ţungarokkara.
      
  Myndin hefst á ţví ađ margar af helstu rokkstjörnum heims hlađa hrósyrđum á Anvil í bak og fyrir.  Síđan tekur alvaran viđ.  Hljómsveitin hefur túrađ međ flestum stćrstu nöfnum ţungarokksins,  svo sem Iron Maiden,  Whitesnake,  Motörhead,  Scorpions,  Bon Jovi og ţeim sveitum sem áđur eru nefndar.  Hún hefur spilađ á mörgum heimsins stćrstu ţungarokkshátíđum,  sem eru umsetnar rokkmúsíkblađamönnum,  öđru fjölmiđlafólki,  plötuútgefendum og umbođsmönnum.  
.
  Allt kemur fyrir ekki.  Anvil hefur aldrei náđ ađ "meika ţađ".  Plötur hljómsveitarinnar eru orđnar 13.  Ţćr seljast ekkert.  Anvil er ekki nógu stórt nafn til ađ halda sjálfstćđa hljómleika nema á litlum pöbbum.  Ţađ er "happa og glappa" hvort hljómsveitin fćr borgađ fyrir ađ trođa upp.  Liđsmenn hennar eru sífellt staurblankir.  Ţeir eru í óţrifalegri dagvinnu til ađ sjá sér farborđa.  Hljómsveitin er bara útgjaldaliđur og hobbý.
.  
  Ţađ er dagamunur á ţví hvort vinirnir eru fullir bjartsýni eđa hvort örvćntingin er viđ völd.  Tíminn vinnur gegn ţeim.  En ţeir neita ađ gefa drauminn um ađ "meika ţađ" og verđa alvöru rokkstjörnur upp á bátinn.  Fjölskyldur ţeirra hafa mismikinn skilning á ţráhyggjunni.  Ein konan segir eitthvađ á ţessa leiđ:  30 ára ferill og 13 plötur án ţess ađ nokkuđ gerist eru sterk skilabođ um hver stađan er.  Sumir eru ekki raunhćfir.
.
  Forsendur fyrir ţví ađ "meika ţađ" voru fyrir hendi framan af ferlinum.  Svo sannarlega.  Fyrstu plötur ţeirra eru fínar og voru spennandi er ţćr komu út.  En vinirnir eru lúđar.  Ţeim sást ekki fyrir í ţránni eftir ađ verđa alvöru rokkstjörnur.  Ţeir klćddu sig kjánaleg á sviđi.  Líktust léttpoppuđum stelpulegum glam-rokkurum í hár-metal deildinni (Posion,  Mötley Crue,  Hanoi Rocks...) og rökuđu sig undir höndum og bringuna.  Máliđ er ađ ađdáendur ţyngra og harđara rokks ţola illa hár-metal poppiđ og stelpulegt útlit hár-metalistanna.  Öđrum vinanna ţótti líka vođa flott ađ spila á gítarinn međ gervityppi.  Hörmulega hallćrislegt.
.
  Aulaháttur vinanna er svo mikill ađ um tíma voru ţeir međ umbođsmann,  konu frá A-Evrópu,  sem kunni varla ensku.  Ţađ litla sem hún kunni kom ekki ađ gagni vegna illskiljanlegs framburđar.  
  Myndin kemur ţessu öllu vel til skila á hlýlegan hátt,  virđingu fyrir viđfangsefninu og nćmu auga fyrir spaugilegu hliđinni.  Vinirnir eru óhemju ánćgđir međ kvikmyndina.  Ţeir átta sig áreiđanlega ekki á ţví hvađ ţeir eru kjánalegir. 
 .
   Ađ mörgu leyti svipar myndin til fyndnu leiknu grínmyndarinnar The Spinal Tap.  Vegna ţess ađ "Anvil! The Story of Anvil" er heimildarmynd um raunverulega tónlistarmenn er hún miklu fyndnari.  Hún snertir líka áhorfandann.  Ţađ er ekki hćgt annađ en vorkenna vesalingunum. 
  Ég mćli eindregiđ međ ţessari mynd.  Frábćr kvöldskemmtun.  Hún er jafn skemmtileg hvort sem fólk "fílar" á ţungarokk eđa ekki.  Ţađ eru aldrei spilađir nema örstuttir bútar af músík hljómsveitarinnar.  Mér ţótti ţađ galli ţví ég kann vel viđ músík hennar.  En átta mig á ađ ţessi háttur er hafđur á til ađ allir hafi gaman af myndinni.  Ég er dálítiđ fyrir ţennan músíkstíl og kannađist viđ nafniđ Anvil en hafđi aldrei heyrt í ţessari hljómsveit svo ég muni eftir.  Ţykir ţó líklegt ađ ég eigi lag međ henni á safndisk/um án ţess ađ gefa ţví gaum.  Nenni ekki ganga úr skugga um ţađ.  Hinsvegar kannast ég viđ hljómsveitina Overkill sem fyrrum gítarleikari Anvil fór í.  Hún er töluvert betur ţekkt.  Hvađ um ţađ.  Ţetta er ein besta mynd ársins sem er liđiđ í aldanna skaut eftir örfáa daga.   
.
      
                  

Allt á suđupunkti í Bretlandi - gífurleg spenna

  Fyrir viku sagđi ég frá undarlegu stríđi í Bretlandi.  Ţađ snýst um jólalagiđ í ár.  Ţá er ekki veriđ ađ tala um eiginlegt jólalag ţar sem sungiđ er um jólin heldur hvađa lag verđur í 1.  sćti breska vinsćldalistans yfir jólin.  Samkvćmt áćtlun ađstandenda X-factors söngvarakeppninnar á sigurvegari hennar í ár ađ eiga jólalagiđ og undirstrika ţannig vinsćldir og áhrifamátt ţáttarins.  Ţetta lagđist illa í andstćđinga X-factors.  Ţeir hófu herferđ fyrir ţví ađ 17 ára gamalt bandarískt ţungarokkslag,  Killing in the Name  međ Rage Against the Machine myndi bregđa fćti fyrir X-factor lagiđ. 

  Ástćđan fyrir valinu á  Killing in the Name  er ađ í viđlagi er sungiđ:  Farđu til fjandans,  ég vil ekki gera eins og ţú segir!  (Fuck you,  I won´t do what you tell me).  Mjög óvćnt brást breskur almenningur einstaklega vel viđ.  600 ţúsund manns skráđu sig á lista undir slagorđi viđlagsins.  Fjölmiđlar hafa velt sér upp úr ţessum slag,  poppstjörnur tjáđ sig um hann og ađstandendur X-factors leggja allt undir til ađ ná sínu fram.

  Jólalagiđ rćđst af sölu yfir tímabiliđ frá ađfaranótt síđasta sunnudags til miđnćttis annađ kvöld.  Eins og stađan er hefur  Killing in the Name  17% forskot á X-factor lagiđ.  Ţađ hefur selst í 254 ţúsund eintökum en X-factor lagiđ í 217 ţúsund eintökum.  Morgundagurinn verđur hinsvegar stćrsti söludagur vikunnar og allt getur gerst.  Ađstandendur X-factors voru međ 500 ţúsund eintök tilbúin á lager til ađ ekkert gćti klikkađ.  Ţađ er allt á útopnu hjá ţeim í ađ koma laginu út.  X-factor batteríiđ hefur yfir miklu meiri fjármunum ađ spila.  Forskot  Killing in the Name  hefur komiđ ađstandendum X-factors úr jafnvćgi.  Mađurinn á bak viđ X-factor,  Simon Cowell,  frođufellir af reiđi í fjölmiđlum og á Fésbók.  Ţađ verđur hvergi gefiđ eftir.  Mikiđ er í húfi fyrir ţáttinn.  Ţađ yrđi hrikalegt kjaftshögg ađ lúta í lćgra hald fyrir 17 ára gömlu bandarísku ţungarokkslagi.

  Úrslitin liggja fyrir á sunnudaginn.

  Hér má heyra  Killing in the Name  og lesa nánar um ţennan slag:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/991842/

simon cowell

 


mbl.is Sir Paul styđur Rage í jólaslagnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.