100 bestu plötur Íslandssögunnar

  Í dag var hringt í mig frá Senu og ég beđinn um ađ taka sćti í dómnefnd sem velur 100 bestu plötur Íslandssögunnar.  Félag íslenskra tónlistarmanna,  rás 2 og Tónlist.is standa ađ ţessu ágćta framtaki.  Á www.tonlist.is/100bestu má sjá lista yfir ţćr plötur sem ţegar hafa veriđ tilnefndar og ţar er óskađ eftir tillögum um plötur sem mönnum ţykir vanta á listann.

  Til gamans má geta ađ 1983 stóđ ég fyrir könnun um bestu íslensku plöturnar og birti í Poppbókinni.  Niđurstađan varđ ţessi:

1.  Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk ţjóđanna

2.  Ísbjarnarblús - Bubbi

3.  Sumar á Sýrlandi - Stuđmenn

4.  Lifun - Trúbrot

5.  Fingraför - Bubbi

6.  Plágan - Bubbi

7.  Geilsavirkir - Utangarđsmenn

8.  As Above - Ţeyr

9.  Sturla - Ţeyr

10. Mjötviđur mćr - Ţeyr

11. Gćti eins veriđ - Ţursaflokkurinn

12. Breyttir tímar - Egó

13. Rokk í Reykjavík - Ýmsir

14. Drög ađ sjálfsmorđi - Megas

15. Iđur til fóta - Ţeyr

  18 árum síđar endurtók Dr. Gunni leikinn og birti í bókinni frábćru  Eru ekki allir í stuđi?.  Ţar var ég ađ sjálfsögđu í dómnefnd svo öllu sé til haga haldiđ.  Dr.  Gunni kallađi listann "Plötur aldarinnar".  Niđurstađan varđ:

1.  Ágćtis byrjun - Sigur Rós

2.  Debut - Björk

3.  Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk ţjóđanna

4.  Sumar á Sýrlandi - Stuđmenn

5.  Lifun - Trúbrot

6.  Ísbjarnarblús - Bubbi

7.  Geislavirkir - Utangarđsmenn

8.  Međ allt á hreinu - Stuđmenn og Grýlurnar

9.  Kona - Bubbi

10. Life´s too too Good - Sykurmolarnir

11. Sturla - Spilverk ţjóđanna

12. Hinn íslenski ţursaflokkur - Ţursaflokkurinn

13. Gling gló - Björk og Tríó Guđmundar Ingólfssonar

14. Lengi lifi - Ham

15. Homogenic - Björk

  Athygli vekur ađ 5 af ţeim plötum (feitletrađar) sem voru í efstu sćtum Poppbókarinnar héldu sćtum frá #3 - #7 ţessum 18 árum síđar.  Kíkiđ á ofangreinda netslóđ og takiđ ţátt međ ţví ađ tilnefna plötur sem ykkur ţykir vanta á listann.


Arđgreiđslur - brosleg saga

  límir mynd á bílskúrshurđ

  Eftirfarandi frásögn fékk ég senda.  Hún á erindi í umrćđuna um arđgreiđslur til eigenda HB Granda og fleiri fyrirtćkja.  Ţađ fylgdi ekki sögunni hvort hún er sönn.  En hún hljómar kunnugleg:

  Simmi, eigandi Söluturns Simma, reiknar ekki međ ađ arđgreiđslur fyrir áriđ 2009 verđi nema kannski helmingur af útgreiddum arđi ársins 2008.

 Simma greiddi sjálfum sér arđ af rekstri félagsins á síđasta ári, 10 milljarđa króna, ţrátt fyrir ađ söluturninn hafi veriđ og sé í vanskilum viđ helstu lánadrottna.

 „Ţetta var tala sem ég fann út miđađ viđ veltu án ţess ađ reikna máliđ í drep. Ég hafđi rosalega góđa tilfinningu fyrir rekstrinum,  var međ margar mjög sterkar spólur í leigu, Spćdermann ţrjú og svona  – ţannig ađ ég ákvađ ađ gefa mér smá klapp á bakiđ,“ segir Simmi, en  viđurkennir um leiđ ađ eftir á ađ hyggja hafi hann sennilega fariđ ađeins fram úr sér. Hann bendir samt á ađ hann hafi bara gert eins og allir ađrir. 

 „Ég treysti á ađ stjórnvöld sýni ţessu skilning, afskrifi lán og komi međ pening inn í reksturinn. Ţađ hefur aldrei veriđ jafn mikilvćgt og nú ađ halda ţessum litlu vídeóleigum gangandi. Ef vídeóleigurnar fara á hausinn er einungis veriđ ađ fjölga atvinnulausum, draga úr ţjónustu viđ fólkiđ í landinu og refsa duglegum mönnum fyrir heimskreppuna. Hrun húsnćđislánakerfisins í Bandaríkjunum er ekki okkur ađ kenna.“


Skúbb! Íslendingur semur músík fyrir James Bond auglýsingu

  Ţađ er alltaf gaman ţegar Íslendingar hasla sér völl úti í hinum stóra heimi.  Ekki síst ţegar um tónlistarfólk er ađ rćđa.  Ţađ hefur fariđ hljótt ađ japanska fyrirtćkiđ Sony fékk íslenskan tónlistarmann til ađ semja músík fyrir auglýsingu er byggir á leiknu James Bond atriđi.  Nýjasti leikarinn sem túlkar hlutverk James Bond er ţar í ađalhlutverki.  Í fljótu bragđi man ég ekki hvađ hann heitir og nenni ekki ađ "gúgla" ţađ upp.  Ţađ vita allir hver sá náungi er ţó ađ ég muni ekki nafniđ.  Enda auli í ađ muna nöfn kvikmyndaleikara.  En ég man nafn Íslendingsins sem var fenginn til ađ semja tónlistina.  Hann heitir Ólafur Arnalds.  Athugiđ ađ hann er ekki sama manneskja og Ólöf Arnalds.  Samt eru ţau náskyld.

  Athugasemd bćtt viđ klukkan 20.15: Smávćgileg ónákvćmni er í fćrslunni.  Ţađ hefur nefnilega veriđ hćtt viđ ađ nota músík í auglýsingunni og hún hefur ţegar veriđ tekin til sýningar.  Eftir stendur ađ Ólafur Arnalds var fenginn til verksins og skilađi ţví af sér.

 


Hatrömm og illvíg deila, skemmdarverk og eignaspjöll

leitisvatn1Lívsins-vatn

  Í Vogum er stćrsta og fallegasta vatn Fćreyja (jú,  vatn getur víst veriđ mis fallegt.  Ţađ fer eftir umgjörđ ţess).  Flestir kalla ţađ í daglegu tali einfaldlega Vatniđ.  Ađrir kalla ţađ Leitisvatn.  Enn ađrir kalla ţađ Sörvogsvatn.  Vegna sívaxandi straums erlendra ferđamanna til Fćreyja var fyrir ári síđan gripiđ til ţess ráđs ađ merkja vegvísi međ nafninu Leitisvatn og setja upp skammt frá flugstöđinni í Vogum. 

  Íbúar í Sörvogi brugđust ókvćđa viđ.  Ţeir eru harđir á ţví ađ ef vatniđ heiti eitthvađ annađ en Vatniđ ţá sé ţađ Sörvogsvatn.  Ţeir áköfustu ganga svo langt ađ ţeir hafa ítrekađ fjarlćgt vegvísinn.  Hann er jafnharđan settur upp aftur og hafđur ţeim mun sterkbyggđari sem hann er oftar fjarlćgt.  Ekkert dugir samt skiltinu til verndar.  Skemmdarvargarnir nota greinilega öflugri tćkjabúnađ eftir ţví sem skiltiđ er stöndugra. 

  Svo rammt kveđur ađ ţessu ađ skiltiđ fćr aldrei ađ standa óáreitt lengur en í hćsta lagi viku.  Oftar er ţađ ţó horfiđ 3 - 4 dögum eftir ađ ţađ er sett upp.  Lögreglan sinnir málinu illa sem ekkert og liggur undir grun um ađ vera hlutdrćg.

  Íbúar Sörvogs vita hverjir standa ađ hvarfi skiltisins,  hverjir fjármagna vinnuna viđ ađ fjarlćgja ţađ og hverjir framkvćma.  En ţeir standa saman og kjafta ekki frá.  Ţeim verđur heitt í hamsi ţegar máliđ ber á góma.  Ţykir merkingin vera ófyrirgefanleg svívirđa. 

  Nafniđ Sörvogsvatn kemur fyrir í eldri heimildum en Leitisvatn.  Leitisvatn kemur fyrst fyrir í skráđum gögnum 1898.  Síđan hefur ţađ nafn notiđ stöđugt vaxandi vinsćlda í skráđum gögnum og menn vilja meina ađ sé í dag ráđandi nafn á vatninu,  hvort sem er á landakortum,  ferđabćklingum eđa öđru.

  Fćreyski ţjóđarsnapsinn heitir Lívsins vatn.  Ţar er um orđrétta ţýđingu á Ákavíti ađ rćđa.  Ţađ ţarf enginn ađ deila um Lífsins vatn.     


Fćreyjar 14 : Ísland 1

 kvennabolti

   Ég horfi aldrei á fótbolta.  Ţess vegna missti ég af leiknum Fćreyjar-Ísland í gćr.  Mér var hinsvegar sagt frá leiknum ásamt ţeim tíđindum ađ Fćreyingar vćru ađ bursta Íslendinga.  Ţá fór ég á stúfana ađ kanna máliđ.  Ţetta er mjög merkilegt mál og ekki allt sem sýnist.

  Fćreyingar vorkenna Íslendingum svo gífurlega vegna efnahagshrunsins ađ ţeir sendu hingađ liđ međ amatörum ađ uppistöđu til.  Menn sem fundust á rölti uppi í fćreyskum brekkum og höfđu aldrei spilađ alvöru fótboltaleik áđur.  Ţetta átti ađ tryggja ađ Íslendingar fengju ađ vinna leikinn.

  Í einhverjum galsa og kćruleysi skoruđu Fćreyingar fyrsta mark leiksins.  Nćst skoruđu Íslendingar,  eins og ráđ var fyrir gert.  Nema Íslendingar skoruđu sjálfsmark.  Ţá var stađan 2:0 fyrir Fćreyjar.  Fćreyingar urđu miđur sín.  Ţeim ţótti sem ţeir vćru orđnir ógeđslega ókurteisir viđ gestgjafa sína og brćđur er eiga um sárt ađ binda vegna frjálshyggjukreppunnar.

  Fćreyingar brugđu á ţađ ráđ í seinni hálfleik ađ standa allir mun aftar á leikvellinum til ađ leyfa Íslendingum ađ leika sér međ boltann nálćgt fćreyska markinu.  Áđur en yfir lauk tókst Íslendingum loks međ erfiđismunum ađ pota einum bolta í fćreyska markiđ.  Fćreyingum var gífurlega létt og réđu sér varla fyrir kćti.  Ţeir hefđu aldrei fyrirgefiđ sér ađ sigra Ísland 2:0.  Ţađ hefđi veriđ meiri ruddaskapur en Fćreyingar geta afboriđ ađ sýna Íslendingum.

  Ţar fyrir utan ţýđa ţessi úrslit í raun 14:1 ţegar tekiđ er miđ af höfđatölu.  Fćreyingar kunna ekki viđ ađ segja ţađ upphátt.


mbl.is „Möguleikarnir fyrir hendi“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hneyksli! Hrikalegt klúđur í Gettu betur!

  utangarđsmenn

  Ég er ađ horfa á spurningaţáttinn  Gettu betur  í sjónvarpinu.  Ţetta er einn skemmtilegasti ţáttur í sjónvarpi.  Og fróđlegur.  Hitt er verra ţegar ţađ gerist ađ fariđ er međ bölvađa dellu og rugl í spurningu.  Ţađ gerđist einmitt núna áđan og ég er alveg miđur mín vegna ţessa. 

  Spurt var um plötu sem sögđ var hafa komiđ út 1982.  Um er ađ rćđa  Geislavirkir  međ Utangarđsmönnum. 

  Hiđ rétta er ađ platan kom út 1980.  Hljómsveitin var löngu hćtt 1982. 

  Utangarđsmenn störfuđu ađeins í eitt ár.  Ţeir birtust eins og frelsandi englar voriđ 1980.  Skömmu síđar sendu ţeir frá sér Ep-plötuna Rćkjureggí (ha ha ha).  Ţví nćst var ţađ platan  Geislavirkir

  1981 komu tvćr plötur frá Utangarđsmönnum:  45 RPM  og  Í upphafi skyldi endinn skođa.

  Ţetta eiga allir ađ vita.  Ţađ er líka ágćtt ađ vita ađ löngu eftir ađ hljómsveitin hćtti fannst í Svíţjóđ upptaka af hljómleikum sem Utangarđsmenn héldu ţar í landi.  Ţeir hljómleikar voru umsvifalaust gefnir út á plötu.  Svo smalađi Óli Palli saman tvöfaldri safnplötu međ Utangarđsmönnum fyrir nokkrum árum. 


Skúbb! Leiđtogi Reykjavíkurkjördćmis valinn

kallimatt

  Stjórn kjördćmafélags Frjálslynda flokksins í Reykjavík norđur hélt langan og strangan fund fyrr í kvöld.  Fundarefniđ var uppstilling á frambođslista flokksins í kjördćminu í vor.  Vandamáliđ sem stjórnarmenn stóđu frammi fyrir var ađ mannval er svo gott ađ einungis tókst ađ komast ađ niđurstöđu međ hver skipar toppsćtiđ og verđur leiđtogi frambođsins. 

  Valiđ stóđ á milli 6 ađila er komu fyllilega til greina sem góđur kostur.  Eftir ađ hafa rćtt málin fram og til baka og skođađ frá öllum hliđum var ákveđiđ ađ Karl V.  Matthíasson verđi í 1.  sćti í Reykjavík norđur.

  Karl hefur setiđ á ţingi fyrir Samfylkinguna og veriđ einarđur baráttumađur gegn kvótakerfinu.  Ţađ baráttumál hefur ekki skipađ ţann sess innan Samfylkingarinnar sem Karl vonađist til.  Eftir ađ hafa fylgt Frjálslynda flokknum ađ málum í ţingfrumvörpum og allri umrćđu um sjávarútvegsmál steig Karl ţađ eđlilega skref ađ yfirgefa Samfylkinguna og ganga til liđs viđ Frjálslynda flokkinn. 

  Til gamans tengi ég ţessa fćrslu viđ frétt af fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur ţingkonu D-lista um krćklingarćkt.  Ţessi fyrirspurn er uppsláttarfrétt í málgögnum D-lista.  Karl V.  Matthíasson bar fram nákvćmlega sömu fyrirspurn á alţingi fyrir nokkrum árum.  Ţá ţótti ţessum sömu málgögnum ekki ástćđa til ađ flytja af ţví fréttir.  En ţađ eru kosningar á bakviđ nćsta horn. 

 


mbl.is Krćklingarćkt verđi efld
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Landsţing Frjálslynda flokksins variđ af lögreglu

 heiđursvörđur

   Ţađ bar til tíđinda á Landsţingi Frjálslynda flokksins - sem var haldiđ á Hótel Stykkishólmi - ađ skyndilega birtist her lögreglumanna í fullum skrúđa.  Yfir mig helltust minningar úr sjónvarpsfréttum og ég bjóst viđ ađ á nćstu sekúndum yrđi öskrađ:  "Gas! Gas!";  međ tilheyrandi piparúđa,  kylfum á lofti og handjárnum.

  Ekkert slíkt gerđist.  Lögreglumenn upplýstu okkur á hinn bóginn um ađ bođuđ hafi veriđ mótmćlastađa viđ hóteliđ.  Dreifibréf hafđi veriđ sent í hvert hús í Stykkishólmi og nágrenni.  Ţar var tilkynnt ađ rasistaţing yrđi haldiđ á Hótel Stykkishólmi um helgina.  Snćfellingar voru hvattir til ađ mćta í mótmćlastöđu fyrir utan hóteliđ.  Dreifibréfiđ var skreytt mynd af hakakrossinum í skástrikuđu bannmerki. 

  Snćfellingar almennt eru ţađ vel upplýstir - eins og ađrir landsmenn - ađ ţeir vita ađ Frjálslyndi flokkurinn er ekki rasistaflokkur.  Ţađ er auđvelt ađ fletta afstöđu FF til innflytjenda upp á www.xf.is.  Bođuđ mótmćlastađa varđ ţess vegna jafn fjölmenn og blysförin ađ heimili Jóhönnu Sigurđardóttur á dögunum. 


Gríđarlegt fjör á Landsţinginu

landsţingiđ

  Landsţing Frjálslynda flokksins var haldiđ um helgina í Stykkishólmi.  Á annađ hundrađ manns sótti ţingiđ.  Nánar tiltekiđ 101.  Ég man ekki eftir jafn góđri stemmningu á stćrri samkomum Frjálslynda flokksins.  Ţađ voru allir eitthvađ svo kátir og glađvćrir.  Menn og konur reittu af sér brandara út og suđur;  Guđjón Arnar brast á međ einsöng og hreif fólkiđ međ sér í fjöldasöng;  harmónikka gekk á milli manna;  ţađ var dansađ út um öll gólf og sungiđ og sprellađ.  Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel.  Og hlegiđ jafn mikiđ undir gamansögum.

  Guđjón Arnar var endurkjörinn formađur.  Ásgerđur Jóna var kosin varaformađur.  Hanna Birna ekki Kristjánsdóttir var sjálfkjörin ritari.  Helgi Helgason var kosinn formađur fjármálaráđs.  Eftirtalin voru kosin í miđstjórn (í ţessari röđ):

Grétar Pétur Geirsson

Kolbeinn Guđjónsson

Ásthildur Cesil

Ragnheiđur Ólafsdóttir

Helga Ţórđardóttir

Guđmundur Hagalín frá Flateyri

Pétur Bjarnason

Ólafía Herborg frá Egilsstöđum

Sturla Jónsson

  Mađur gekk undir manns hönd um ađ etja mér fram í frambođ til miđstjórnar.  Ég varđist fimlega međ ţeim rökum ađ ég vćri búinn ađ láta undan gífurlegum ţrýstingi í ađ gefa kost á mér til fjármálaráđs.  Vegna minna viđhorfa til lýđrćđis og ađ vald sé dreift taldi ég nćgja ađ vera í fjármálaráđi til viđbótar ađ vera í stjórn kjördćmafélags RN og ritari ţess.  Međ okkur Helga í fjármálaráđi voru kjörin Ragnheiđur Ólafsdóttir,  Benedikt Heiđdal Ţorbjörnsson og Grétar Pétur Geirsson.

  Magnús Ţór Hafsteinsson,  fráfarandi varaformađur FF,  bauđ sig fram gegn sitjandi formanni.  Ţegar úrslit lágu fyrir lýsti Magnús Ţór ţví yfir ađ hann vćri sáttur og ekki hvarflađi ađ honum ađ yfirgefa flokkinn.  Ţar vísađi hann sennilega til ţess ađ áđur höfđu ţeir sem urđu undir í frambođi til varaformanns í FF yfirgefiđ flokkinn í fýlukasti:  Gunnar Örlygsson og Margrét Sverrisdóttir.

  Yfirlýsingu Magnúsar Ţórs var tekiđ međ langvarandi lófaklappi.  Ţingheimur stóđ upp til ađ skerpa á lófaklappinu.

  Ljósmyndinni efst hnuplađi ég af bloggi Ásthildar Cesil.  Ţađ elska allir og dýrka ţá frábćru manneskju.  Ég líka.  Lengst til vinstri á myndinni eru Kristmann og Guđmundur Hagalínssynir.  Ţví nćst eru Magnús Reynir framkvćmdastjóri flokksins;  Kolbrún Stefánsdóttir sem leiđir frambođslistann í Kraganum;  gamli mađurinn;  Grétar Pétur Geirsson og Benedikt Heiđdal.  Viđ Benni unnum saman í álverinu í Straumsvík á áttunda áratug síđustu aldar,  ásamt brćđrum hans og föđur.  Benni var ljúfur og ţćgilegur vinnufélagi.  Frábćr náungi.

  Myndin hér fyrir neđan er af Sigga "ginseng" sem nú er ađ hjálpa okkur viđ ađ sniđganga kvef og smápestir međ Immiflex,  www.immiflex.is:

  siggi ginseng

  Fleiri skemmtilegar myndir frá Landsţinginu má finna á  http://www.asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/829320/

 

 

   

 


Höfundaréttur

siggi-valur

  Besti,  mesti og frábćrasti teiknari Íslands,  Sigurđur Valur Sigurđsson (www.siggivalur.blog.is) hefur höfđađ mál gegn Eddu-útgáfu vegna brota á höfundarrétti.  Forsaga máls er sú ađ Sigurđur Valur teiknađi yfir 500 myndir fyrir  Plöntuhandbókina  sem var gefin út af Erni & Örlygi bókaútgáfu 1986.   Sú útgáfa fór á hausinn.  Mál & Menning eignađist útgáfurétt (Björgólfs-feđgar) og bókin var endurútgefin af Eddu-forlagi.

  Ţetta er athyglisvert mál og vekur upp spurningar.  Fyrir 20 - 30 árum hannađi ég fjölda plötuumslaga.  Jafnframt sá ég um markađssetningu á viđkomandi plötum.  Ţetta var pakki.  Ég hannađi tiltekna heildarímynd fyrir viđkomandi plötur:  Forsíđu umslags,  bakhliđ,  innvols og auglýsingaherferđ.

  Ađ undanförnu hefur Morgunblađiđ bođiđ upp á áhugaverđa úttekt á ferli poppstjarna og hljómsveita.  Án undantekninga eru plöturnar sem ég markađssetti lang söluhćstu plöturnar á ferli viđkomandi.

  Ţessar plötur hafa margar hverjar veriđ endurútgefnar af öđrum forlögum en ţeim sem ég átti ađild ađ.  Í endurútgáfu hefur mín hönnun jafnan haldiđ sér ađ mestu á forsíđu en öđrum ţáttum útgáfunnar veriđ klúđrađ vegna skilningsleysis á heildarpakkanum.  Sumar plötur sem hafa veriđ endurútgefnar á geisladisk (en voru hannađar af mér fyrir 12" vinyl) hafa fengiđ yfirbragđ sem er frábrugđiđ ţví sem ég stillti upp.  Nafn mitt er ekki lengur á uimbúđum ţessara platna heldur ţeirra sem böđlast hafa á verri veg viđ geisladisksútgáfu platanna.  Ég nefni til ađ mynda "Loftmynd" Megasar sem dćmi og margar plötur Bubba Morthens (Das Kapital, Blús fyrir Rikka,  Kona,  Frelsi til sölu,  Dögun,  Skapar fegurđin hamningjuna?...).

  Ég hef svo sem ekkert veriđ ađ stressa mig á ţessu.  Lćt mér ţetta í léttu rúmi liggja.  Hinsvegar ćtla ég ađ fylgjast međ framvindu málaferla Sigurđar Vals gegn Eddu-útgáfu. 


Skúbb! Stórfrétt

 guđjonarnarkristj´´anssonsigurjon_mynd_patro

  Norđ-vestur kjördćmi hefur veriđ ţungavigtarvígi Frjálslynda flokksins.  Flokkurinn hefur jafnan landađ tveimur ţingmönnum í ţví kjördćmi.  Ţađ var ţess vegna ekki ađ undra ađ ásókn var í annađ sćtiđ á frambođslista flokksins í vor.  Talningu var ađ ljúka í prófkjöri flokksins í NV-kjördćmi.  Niđurstađan er ţessi:

1.  Guđjón Arnar Kristjánsson,  formađur

2.  Sigurjón Ţórđarson,  fyrrverandi ţingmađur

3.  Ragnheiđur Ólafsdóttir,  spámiđill og varaţingmađur

4.  Magnús Ţór Hafsteinsson,  varaformađur,  ađstođarmađur Guđjóns Arnars og fyrrverandi ţingmađur. 

  Sigurjón Ţórđarson virđist vera aftur á leiđ á ţing.  Ţađ kemur ekki á óvart.  Né heldur ađ kosning ţeirra Guđjóns var yfirgnćfandi.  Sigurjón hefur alltaf notiđ mikilla vinsćlda.  Ţegar hann rýmdi annađ sćti fyrir Kristni H.  Gunnarssyni í NV-kjördćmi fyrir síđustu kosningar tapađi flokkurinn hátt í 300 atkvćđum í ţví kjördćmi.  Á sama tíma bćtti flokkurinn viđ sig í öđrum kjördćmum.  

  Undrun vekur ađ varaformađurinn,  Magnús Ţór,  hafnar í 4.  sćti og spámiđillinn ofar.  Ég spáđi öđru.  Spáđu í ţađ.


Plötuumsögn

hare_hare_tumb

 - Titill:  Haré! Haré!

 - Flytjandi:  Högni

 - Einkunn:  ****1/2

  Haré! Haré! er ţriđja sólóplata fćreyska tónlistarmannsins Högna Lisberg.  Fyrsta sólóplata hans,  Most Beautiful Thing,  var lágstemmd kassagítarplata.  Öll lögin róleg,  látlaus og falleg.  Nćsta plata,  Morning Dew,  var mun fjölbreyttari.  Ţar voru ýmsir músíkstílar í gangi og sum lögin hröđ, kraftmikil og rokkuđ. Nokkur lög af  Morning Dew  urđu vinsćl hérlendis og Högni heimsótti okkur í tvígang og hélt nokkra hljómleika.  

  Áđur en Högni hóf sólóferil var hann trommuleikari fyrstu og einu alvöru súper-grúppu Fćreyja,  trip-hopp hljómsveitarinnar Clickhaze.  Sú hljómsveitin spilađi á nokkrum hljómleikum á Íslandi 2002 viđ góđar undirtektir.  Söngkonan,  Eivör,  varđ í kjölfariđ súperstjarna á Íslandi.   

  Haré! Haré!  er ólík fyrri plötum Högna.  Raddbeiting Högna er önnur og Prince-legri.    Hljóđheimurinn er sömuleiđis sérstćđur.  Ţađ er Prince-keimur af honum í bland viđ Beck eins og hann hljómađi í Looser  laginu.  Í sumum lögum merlar á funk-hrynjanda og öđrum trip-hoppinu sem kennt er viđ Bristol (Massive Attack,  Portishead,  Tricky...). Einnig er eins og örli á arabískri stemmningu.  Nafn plötunnar og letur undirstrikar austurlensku áhrifin.  Heildaráferđ plötunnar er sterk og samstćđ.  Lögin eru samt mishröđ og miságeng.  Ţađ skiptast á rokk og rólegheit.  Greinilega hefur veriđ nostrađ mjög viđ hljóđblöndun.  Sum lögin hljóma dálítiđ eins og "remix" fyrir plötusnúđa diskóteka međ hörđum og vélrćnum trommutakti.  

  Ţađ sveif fćreysk stemmning yfir fyrri plötum Högna.  Haré! Haré! er hinsvegar mjög "erlendis".  Sem fyrr er Högni höfundur laga og texta,  syngur og sér ađ mestu um allan hljóđfćraleik.

  Platan hljómar vel strax viđ fyrstu spilun.  Samt er hún frekar seintekin ađ ţví leyti ađ laglínur eru ekki grípandi né auđlćrđar.  Viđ fyrstu spilanir renna lögin dálítiđ saman í eitt.  Ţađ besta er ađ platan venst afskaplega vel.  Ţađ er hćgt ađ endurspila hana ótal sinnum án ţess ađ fá nóg af henni. 

  Enn sem komiđ er fćst  Haré! Haré!  ekki í íslenskum plötubúđum.  Fyrri plöturnar fást í Pier í Korputorgi og glerturninum viđ Smáratorg.  Hćgt er ađ panta  Haré! Haré!  í pósti á www.tutl.com.  Stutt er í ađ Kimi Records dreyfi  Haré! Haré!  hérlendis.

  Vert er ađ geta sérstćđrar umslagshönnunar.  Ţađ er allt úr pappa.  Ţegar ţađ er opnađ sprettur upp pappírsvöndull sem réttir manni diskinn.  Magnađ.

  Á ţessu myndbandi flytur Högni lagiđ  Been Out of Town.  Ţarna 2007 hljómar lagiđ afskaplega nakiđ í samanburđi viđ flutninginn á  Haré! Haré!:

www.hogni.com

www.myspace.com.hogni       

          


Stórkostlega skemmtilegar ljósmyndir

a-frábćr-mynd-3a-frábćr-mynd-1

   Ţessar bráđskemmtilegu ljósmyndir eiga ţađ sameiginlegt ađ ljósmyndarinn hefur náđ ađ smella af á hárréttu sekúndubroti. 

obama-mccainnauta-frábćr-mynd-12a-frábćr-mynd-6


Íslenskar hljómsveitir í alţjóđlegri hljómsveitakeppni

woa_09_metal_battle_Iceland-sm

  Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verđur haldin í Reykjavík laugardaginn 18. apríl í tónlistarţróunarmiđstöđinni, TŢM. Sérstök valnefnd hefur valiđ sveitir til ţátttöku úr hópi umsćkjenda og valdi 7 hljómsveitir áfram. Ein af ţeim mun komast áfram og spila í lokakeppni
Metal Battle keppninnar á Wacken Open Air hátíđinni í Ţýskalandi í lok júlí í sumar.

  Um 70.000 manns sćkja Wacken heim á hverju ári en Wacken fagnar einmitt 20 ára starfsemi í ár og ţví verđur mikiđ um dýrđir í ţessu litla samnefnda ţorpi í norđurhluta Ţýskalands.

Sveitirnar sem hlutu náđ fyrir valnefndinni eru í stafrófsröđ:


Beneath



Celestine


Diabolus


Gone Postal


Perla


Severed Crotch


Wistaria

Ţetta eru sannarlega ţungavigtarsveitir í íslensku ţungarokki og ţví verđur fróđlegt ađ sjá hver ţessara sveita verđur fulltrúi Íslands á Wacken 2009.

Hćgt er ađ finna myndir af hljómsveitunum á eftirfarandi slóđ:

http://www.hivenet.is/restingmind/pics/MetalBattle/

Frekari upplýsinga má leita hjá Ţorsteini Kolbeinssyni í síma 823 4830


Flott hjá Óla Palla

  óli palli

  Ţađ er eins og dćmalaus heppni elti rás 2.  Ţangađ hefur safnast úrval góđra útvarpsmanna.  Fólks međ yfirgripsmikla ţekkingu á poppmúsík og umburđarlynt gagnvart öllum dćgurmúsíkstílum.  Opiđ, jákvćtt og hvetjandi gagnvart íslenskri músík.  Ástríđufullt og áhugasamt gagnvart vinnu sinni.

  Nćgir ađ nefna Guđna Má,  Margréti Erlu,  Matta,  Andreu Jóns og Snorra Sturluson.  Bara til ađ nefna nokkra.  Ađ ógleymdum snillingnum Óla Palla.  Ég veit ekki hvort sá mađur á nokkurn tíma eiginlegt frí.  Hvort sem hann er í eđa utan vinnutíma er hann alltaf ađ gera eitthvađ sem verđur útvarpsefni.  Hann er meira ađ segja međ upptökustúdíó heima hjá sér.

  Ţađ er alltaf ástćđa til ađ hćla Óla Palla.  Í dag er sérstök ástćđa til ađ hćla honum.  Ţá var hann ađ kynna lag af plötu međ lögum eftir Ray Davis úr Kinks.  Óli Palli kynnti ţetta sem krákuplötu.  Á henni eru ýmsir flytjendur ađ heiđra Ray. 

  Ţađ er full ástćđa til ađ vekja athygli á ađ Óli Palli og fleiri dagskrárgerđarmönnum rásar 2 tala góđa íslensku.  Dagskrárgerđarmenn sumra annarra útvarpsstöđva gćtu margt af ţeim lćrt.  Vonandi er ţess stutt ađ bíđa ađ orđskrípin "cover-lög",   ábreiđulög  og  tökulög  víki fyrir  kráku.  Orđin  tökulög  og  ábreiđur  hafa ekki einu sinni sagnorđ yfir fyrirbćriđ.   Kráka  hefur hinsvegar ţá fínu sögn ađ menn  kráka  lög.  Ţađ ţarf heldur ekki ađ nota viđskeytiđ -lög međ  kráku.  Ţađ sem á ensku kallast "cover song" heitir einfaldlega  kráka  á góđri íslensku.        


Umtalađ myndband: Grunnskólakrakki veitist ađ rútubílstjóra

  Bloggheimur vestan hafs logar vegna ţessa myndbands.  Á ţví sést grunnskólakrakki í Michigan í Bandaríkjunum ráđast á kvenbílstjóra skólarútunnar.  Ađdragandi árásarinnar heyrist og sést ekki nógu vel á myndbandinu.  Hann er sá ađ konan skipar dregnum ađ setjast.  Ţegar hann hlýđir ekki ekur kerla út í kant og bremsar. 

  Strákurinn ber ţví viđ ađ konan hafi stofnađ lífi hans í hćttu međ ţví ađ bremsa á međan hann stóđ.  Viđbrögđ sín hafi veriđ ţau sömu og annarra sem verđa fyrir kaldrifjađri morđtilraun:  Ađ snöggreiđast og berja frá sér. 

  Sumir hallast ađ ţví ađ strákurinn hafi gengiđ of langt í sínum ósjálfráđu varnaviđbrögđum.  Konan fingurbrotnađi og er blá og marin á höfđi.  Auk ţess var henni illa brugđiđ.  Hún hefur ţekkt stráksa frá ţví hann var kornabarn.  Hann hefur aldrei áđur ráđist á hana.  En er ţekktur fyrir frekjulega framkomu og vera "wannabe gangsta" (langar ađ vera gangster).  Hann virđist ţó hafa tapađ allri ímynd sem harđur nagli međ ţví ađ ráđast á konuna.  Ţađ er engin reisn yfir ţví.  Ţvert á móti.  Uppátćkiđ ţykir sýna vćskilslega og lágkúrulega framkomu. 

  Svo eru ţađ sumir sem fullyrđa ađ konan hafi ekki snögghemlađ.  Alls ekki.  Hún hafi stöđvađ bílinn á mýktinni.  Enn ađrir segja ađ ţađ skipti engu máli.  Árás drengsins sé jafn óafsakanleg hvernig sem konan stöđvađi bílinn.

  Foreldrar drengsins hafa sagt í sjónvarpsviđtali ađ ţeim ţyki ţetta leitt.  Ţau óttast ađ litli strákurinn sinn fari í fangelsi ef konan heldur kćru til streitu.  Hann verđur fćrđur fyrir dómara 3. apríl.


Snilldar myndir! Einkum fyrir ţá sem leiđist í vinnunni

Tu te plains de ton boulot-01Tu te plains de ton boulot-02

  Ţessar bráđskemmtilegu ljósmyndir fékk ég sendar.  Og hló.  Sendingunni fylgdi ábending um ađ ef fólki leiđist í vinnunni ţá skuli ţađ hugsa til ţeirra sem eru í vinnunni sinni á myndunum.  Ţađ er á viđ töfrabragđ.  Skyndilega verđur fólk rosalega hamingjusamt í vinnunni.

Tu te plains de ton boulot-03Tu te plains de ton boulot-04Tu te plains de ton boulot-05Tu te plains de ton boulot-06ingibjörg-geir


Saga breska pönksins VIII

 

  Hróđur bresku pönkbylgjunnar fór ađ berast til annarra landa er leiđ á áriđ 1977.  The Damned fór í hljómleikaferđ til Bandaríkjanna um miđjan apríl.  Var ţar međ fyrst breskra pönkhljómsveita til ađ spila utanlands.  Ţrátt fyrir ítrekađ frumkvöđlastarf á upphafsárum pönksins stóđ The Damned alltaf í skugga The Sex Pistols og The Clash hvađ varđađi vinsćldir og áhrif.

  Í lok apríl var The Clash ađalnúmer á hljómleikahátíđ í París,  Nuites de Punk.  Um svipađ leyti sendi The Jam frá sér jómfrúarlag sitt,   In the City.  Ţađ er á myndbandinu hér ađ ofan.  Viku síđar kom út samnefnd stór plata frá The Jam.  Lagiđ fór í 40.  sćti breska vinsćldalistans og platan í 20.  sćti. 

  Nokkrum dögum síđar fór The Clash í vel sótta og stórbrotna hljómleikaferđ um Bretland,  White Riot Tour.  Međ í för voru The Jam,  Buzzcocks,  The Slits og Subway Sect.  Hljómleikaferđin bar nafn međ rentu.  Strax á fyrstu hljómleikunum,  í The Rainbow Theatre í London,  varđ allt brjálađ.  Í hamagangnum voru 200 sćti eyđilögđ. 

  The Jam skar sig frá öđrum pönksveitum.  Bćđi tónlist og klćđaburđur drógu dám af mod-rokki (frćgasta mod-sveit sögunnar er The Who).  Eins og í tilfelli The Stranglers gaf ţađ pönkbyltingunni aukiđ vćgi og dýpt ađ ţessar hljómsveitir voru ekki alveg eins og The Sex Pistols og The Clash.

 

  Í júlí sendi The Jam frá sér smáskífuna  All around the World / Carnaby Street.  Hvorugt lagiđ var á stóru plötunni  In The City.  Smáskífan fór í 13.  sćti breska vinsćldalistans.  Ţar međ var The Jam komin í hóp ţeirra stćrstu í pönkinu ásamt The Sex Pistols,  The Clash og The Stranglers.  Mest áberandi fylgihnettir voru The Damned og Buzzcocks.  Pönkiđ var orđiđ stórveldi sem óx jafnt og ţétt.  Hér flytur The Jam  Carnaby Street.

-------


Furđulegt samtal

omg2

  Ég var ađ borđa á matsölustađ.  Viđ nćsta borđ sat hópur vinnufélaga.  Í ţann hóp bćttist síđan mađur sem greinilega hafđi ekki hitt ţau hin í einhvern tíma.  Manninum var fagnađ eins og týnda syninum.  Hann fór fljótlega ađ spyrja frétta.  Ţá átti sér stađ eftirfarandi samtal (nöfnum breytt):

  - Er Jói ennţá ađ dinglast međ konunni hans Gumma?

  - Já, já.  Hún er flutt inn til Jóa.

  - Nú?  Og skilin viđ Gumma?

  - Nei,  hún er ekki búin ađ afskrifa hjónabandiđ. 

  - Hvernig gengur ţađ fyrir sig?

  - Ja,  hún fór til dćmis í helgarferđ norđur á skíđi međ Gumma um ţar síđustu helgi.  Ţau ćtluđu ađ láta reyna á hjónabandiđ.  Hún heldur samt áfram ađ búa međ Jóa.

  - Hvađ segja ţeir kallarnir um ţetta?

  - Ţađ er stirt á milli ţeirra.  Jói er ósáttur viđ ađ konan skilji ekki viđ Gumma. 


Bráđskemmtilegt myndband

  Hann Siggi "ginseng" vinur minn - og í kvöld nýkjörinn formađur kjördćmafélags Frjálslynda flokksins í kjördćmi Reykjavíkur norđur - setti saman ţessa klippu.  Er ţetta ekki bara flott hjá honum?  Tekiđ skal fram ađ Siggi er ekki ţulur í klippunni heldur kona sem heitir Ţuríđur.


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.