Skelfileg upplifun í bíl

  Bíllinn minn er 14 ára.  Reyndar eiginlega 13 ára.  Hann á 14 ára afmæli eftir nokkra daga.  Hann ber aldurinn frekar illa.  Hann hefur áráttu til að bila.  Það er eins og þráhyggja hjá honum að komast sem oftast á verkstæði.  Iðulega ljómar mælaborðið eins og jólasería.  Ljósin eru rauð og gul og appelsínugul. Aðallega rauð.  Það er flott yfir jól og áramót. 

  Í dag átti ég erindi í bílinn.  Um leið og ég startaði honum hentist hann til og frá.  Ég sannfærðist þegar í stað um að nú væri sá gamli að gefa upp öndina.  Mér var mjög brugðið.  Maður sem hefur atvinnu af því að selja sólkrem er ekki vel staðsettur í Covid-19 launamálum.

  Mér fannst hamagangurinn standa yfir í hálfa mínútu.  Kannski varði hann skemur.  Síðar kom í ljós að um jarðskjálfta var að ræða.  Þá tókum við bíllinn gleði á ný.  

bíll 

 

 

      


Illmenni

  Ég er fæddur og uppalinn í sveit,  Hrafnhóli í Hjaltadal,  í útjaðri Hóla.  Öll unglingsár vann ég í Sláturhúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki.  Það var gaman.  Við slátruðum hátt í sjö þúsund lömbum hvert haust.  Og slatta af öðrum dýrum.  Ég vann við að vigta skrokkana,  grysja þá og koma fyrir í frysti.  Í frystinum mátti maður bara vera í 25 mínútur í einu.  Á þeim tíma sturtaði ég í mig brennivíni.  Er komið var úr frystinum helltist víman hratt og skemmtilega yfir mann.  Það var gott "kikk".  .  

  Ég hef fullan skilning og umburðarlyndi gagnvart fólki sem drepur dýr sér til matar.  Mörg dýr gera það sjálf.  En sjaldnast sér til einskærrar skemmtunar.  Fólk sem drepur dýr sér til skemmtunar er vont fólk. 

dýradráp gdýradráp adýradráp bdýradráp ddýradráp edýradráp hdýradráp i


Bíll Önnu frænku á Hesteyri

  Góður frændi okkar Önnu Mörtu heitinnar á Hesteyri í Mjóafirði gaf henni bílpróf og bíl.  Þetta var á níunda áratugnum og Anna á sextugsaldri.  Bílprófið yrði hún að taka í Reykjavík.  Á ýmsu gekk.  Í sjálfu bilprófinu festist hún inni í hringtorgi.  Prófdómarinn sagðist ekki geta hleypt henni út í umferð þegar tæki hana 7 hringi að komast út úr hringtorgi.

  Anna var snögg að semja við hann.  Á Austfjörðum sé ekkert hringtorg.  Hún muni skuldbinda sig til að aka aldrei út fyrir Austfirði.  Þar með verði hringtorg ekkert flækjustig.  Eftir langar samningaviðræður keypti prófdómarinn rök Önnu.  Hún stóð við sitt. 

  Er hún var komin með bílpróf hringdi hún í mömmu.  Mamma hvatti hana til að heimsækja sig á Akureyri.  Anna spurði:  "Er hringtorg á Akureyri?"  Þegar mamma játaði því upplýsti Anna um heiðursmannasamkomulagið.

  Anna ók bílnum eins og dráttarvél.  Hún hélt sig við fyrstu tvo gírana.  Ók óvarlega yfir stokka og steina.  Að því kom að bíllinn pikkfestist í á.  Hún sagði mömmu tíðindin;  að bíllinn væri búinn að vera.  Mamma spurði hvort hann væri ekki bara fastur ofan á steini og mögulegt væri að draga hann af steininum.  Anna hafnaði því.  Sagðist oft hafa ekið bílnum yfir miklu stærri grjót.  Þetta væri alvarlegra.  Bíllinn væri dauður.  "Bílar endast ekki í mörg ár," útskýrði hún skilningsrík. 

  Anna sagði Gauja frænda okkar frá dauða bílsins.  Hún sagði:  "Hann er svo fastur að ég prófaði meira að segja að setja hann í kraftgírinn.  Samt haggaðist hann ekki."  Gauji frændi hefur í hálfa öld unnið með vélar af öllu tagi og átt marga bíla.  Hann veit ekki ennþá hvað kraftgír er.  Því síður ég. 

 

 


Smásaga um stefnumót

  Ný vinnuvika er að hefjast.  Tvær vinkonur og vinnufélagar ræða um helstu tíðindi helgarinnar.

  - Ég fór á dásamlegt stefnumót í gær,  upplýsir önnur.

  - Nú?  Segðu frá,  svarar hin forvitin.

  - Ég fór inn á stefnumótasíðu á netinu.  Hitti þar myndarlegan mann.  Eftir heilmikið spjall bauð hann mér á stefnumót.

  - Hvernig gekk það fyrir sig?

  - Hann sótti mig á slaginu klukkan sex.  Það veit á gott þegar karlmaður er stundvís.  Ekki síst af því að ég beið eftir honum úti á gangstétt og frekar kalt. 

  - Bölvað ógeðið.  Ég veit allt um svona perra.  Þeir nota öll fantabrögð til að komast að heimilisfangi konunnar.  Tilgangurinn er að geta njósnað um hana.  Jafnvel brjótast inn til hennar þegar hún er ekki heima og planta allskonar njósnabúnaði.

  - Róleg.  Þetta var allt mjög rómantískt.  Um leið og hann renndi í hlað þá stökk hann út úr bílnum,  rétti mér eina rós með orðunum "viltu þiggja þessa rós?"

  - Þvílíkur nirfill!  Ein ómerkileg rós!  Maðurinn er algjör aurapúki.

  - Þetta var tilvísun í bachelor-sjónvarpsþættina.  Svo sætt og rómantískt.  Við fórum á glæsilegt steikhús.  Hann stakk upp á því að við færum hægt yfir sögu.  Myndum verja góðum tíma í forrétti, aðalrétti,  eftirrétti og spjall. 

  - Karlhelvítið.  Þetta er aðferðin sem þeir nota;  sitja yfir konunum klukkutímum saman og endurtaka frasa.  Þetta er heilaþvottur.

 - Þetta var mjög notaleg stund.  Maturinn var algjör veisla og hann valdi handa mér besta rauðvín sem ég hef bragðað.  Sjálfur drekkur hann ekki áfenga drykki.

 - Dæmigerður óþverri;  hellir dömuna ofurölvi til að gera hana meðfærilegri.  Klárlega laumaði hann að auki nauðgunarlyfi í drykkinn.

  - Nei,  það voru engin vandræði.  Þvert á móti.  Stefnumótið var ljúft í alla staði.  Í miðju kafi stökk hann að píanói á sviðinu og söng og spilaði nokkra ljúfa íslenska ástarsöngva.

  - Helvítis ruddi.  Skildi þig eina eftir úti í sal eins og ódýra vændiskonu.  Neyddi þig samtímis til að sitja undir sóðalegum klámvísum.  Maðurinn er snargeggjaður og hættulegur.  Þú verður að kæra kvikindið til að forða öðrum konum frá því að lenda í klónum á skepnunni.

  - Allt stefnumótið var ævintýri.  Að vísu kom upp ágreiningur þegar ég krafðist þess að borga helminginn af matarreikningnum.  Hann tók það ekki í mál. 

  - Karlrembudjöfull.  Niðurlægir þig með skilaboðum um að þú sért honum óæðri.  Hann sé merkilegri en þú.  Hann sé með hærri tekjur og þú ekki borgunarmanneskja til jafns við hann.  Ef þú hittir hann aftur verður þú að hafa með þér piparsprey.  Ef hann reynir eitthvað þá spreyjar þú piparnum í augun á honum.

 - Ég gerði það í gær.  Þegar við gengum að bílnum hans þá spreyjaði ég piparnum í augun á honum.  Hann missti jafnvægi og skall í jörðina.  Ég sparkaði af alefli í hausinn á honum.  Rotaði hann.  Svo stal ég veskinu hans og bílnum.  Ég sel bílinn á eftir í partasölu.  

  - En hann veit nafn þitt og heimilisfang.

  - Nei,  ég var með falskt nafn á stefnumótasíðunni.  Ég er búin að eyða prófíl mínum þar.  Ég gaf honum aldrei upp heimilisfang mitt heldur heimilisfang næsta húss við hliðina.   


Breskir strompar

  Á dögunum þurfti ég að vera heimavið í nokkra daga.  Til að stytta mér stundir tók ég upp á því að horfa á sjónvarp úr hófi fram.  Meðal þess sem fyrir augu bar var breskur raunveruleikaþáttur,  Love island.  Hópi glæsilegra ungmenna á þrítugsaldri er komið fyrir i reisulegri villu á eyju.  Þar er dekrað við hópinn í mat og drykk.  Dömurnar spranga um á bikiní og drengirnir á sundskýlu.  Enda nýta þau sér sundlaugina.

  Leikurinn gengur út á að fólkið pari sig.  Þeim sem mistekst er sparkað af eyjunni.  Aðrir koma í staðinn.  Þeir þurfa að sprengja upp parasamband til að mynda nýtt par.  Nóg er að horfa á einn þátt.  Þeir eru allir eins.  Fátt ber til tíðinda.

  Eitt vekur athygli umfram annað.  Það er hvað hátt hlutfall þátttakenda keðjureykir.  Ég kannaði málið.  Í ljós kom að fjórðungur Breta reykir.  Til samanburðar eru Íslendingar ekki að standa sig.  Aðeins sjöundi hver reykir. 

lennonmccartneyharrisonringo starr

   


Afi landsfrægur til áratuga

  Afi var heljarmenni;  nautsterkur og fylginn sér.  Skapið hljóp iðalega með hann í gönur. Hann var varla kominn á unglingsár þegar hann var farinn að slást við fullorðna menn.  Þeir lömdu hann.  Pabbi hans brá á það ráð að koma honum til náms í hnefaleikum.  Eftir að hafa sótt tvo tíma gekk kennarinn á fund föðurins;  tjáði honum að ekki væri hægt að kenna afa.  Hann kynni ekki að taka leiðsögn.  Þegar taka ætti létta æfingu þá missti afi ætið stjórn á skapi sínu og færi að slást eins og upp á líf og dauða. 

  Eljan í afa dugði vel til bústarfa.  Hann breytti stórgrýttum melum í grösug tún.  Hann greip ótal misstórra steina í fangið og henti þeim út fyrir túnstæðið.  Sumum svo stórum að undrun sætir að hægt hafi verið að bifa þeim.  Þetta þótti svo mikið afrek að Kristján 10. Danakonungur verðlaunaði afa fyrir ótrúlegar jarðumbætur.  Verðlaunin voru fjármunir sem hjálpuðu afa að reisa glæsilegt íbúðarhús með samfastri hlöðu, fjósi og haughúsi 1937.  Það var fyrsta steinhúsið í Hjaltadal. 

  Þremur áratugum síðar bankaði farandsölumaður á dyr.  Hann var að selja stóla.  Mamma keypti af honum skrifstofustól og bauð honum í kaffi.  Í eldhúsinu sat afi.  Þeir sölumaðurinn kynntu sig með nafni.  Við að heyra nafn afa sagði sölumaðurinn:  "Stefán Guðmundsson á Hrafnhóli.  Þetta hljómar kunnuglegt.  Ég hef heyrt þetta nafn áður."

  Afi svaraði:  "Það er nú líkast til.  Það var sagt frá því í útvarpinu er ég fékk peningaverðlaun frá Kristjáni 10. Danakonungi."

kristján 10.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kristján 10.

Hrafnhóll

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hrafnhóll


Misgóð plötuumslög

  Breskur netmiðill heitir Loudersound.com.  Hann gerir þungu rokki af ýmsu tagi góð skil.  Á dögunum birti hann samantekt á misvel heppnuðum plötuumslögum.  Greinin heitir "Crap 80s Metal Art is our new favourite thing".  Það má hafa gaman af þessu.  Þungarokkið var í krísu á 8unni (níunda áratugnum).  Nýbylgjan fór mikinn,  einkum nýrómantíkin (sítt að aftan).  Í Bandaríkjunum börðust Verndarsamtök foreldra af hörku gegn þungarokki - meeð töluverðum árangri. 

  Útvarpsstöðvar veigruðu sér við að spila þungarokk af ótta við Vrndarsamtökin. 

  Þungarokksplötuumslög voru mörg hver heimagerð.  Drátthagur vinur eða vandamaður var fenginn til að henda saman umslagi - án þess að hann hefði skilning á "semilógíu" (táknmáli myndefnis).  Engu skárri var þekking og skilningur á leturfræði.  Útkoman var tilræði við dómgreind plötukaupandans.  Það var talað niður til hans eins og krakkakjána. 

umslag a

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er nafnið Sound vægast sagt illa og hallærislega handteiknað.  Að auki eru teiknuðu fígúrurnar litlu skárri.

albúm b

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nafn flytjandans er illlæsilegt og óþungarokkslegt.  Mér sýnist það vera Zarpa.  Myndin á að vekja óhug og tákna að hér sé "brútal" þungarokk á ferð.  Til þess ar hún aftur á móti alltof of aulaleg.  

umslag c

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Önnur teikning sem á að vekja óhug og tákna grimmt þungarokk en er einungis barnalega kjánalegt.

umslag d

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Teikningin er þokkaleg en gerir illt verra fyrir þungarokk.  Hún á heima í teiknimyndablaði fyrir krakka. 

umslag e

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Teikningin er ekki vond.  Bara asnaleg.

umslag f

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Teikningin er svo hrópandi and-þungarokksleg að það er vandræðalegt. 

umslag g


Plötuumsögn

Titill:  Seljan

Flytjandi:  Jóhanna Seljan

Einkunn: ****

  Reyðarfjörður hefur alið af sér fjölda tónlistarmanna - þó fram að álveri hafi þorpið verið fámennt.  Nefna má gítarleikarann Andra Frey (Bisund, Botnleðja, Fidel),  trommufeðgana snjöllu og söngvarann Birki Fjalar (Bisund, Stjörnukisi, I Adapt, Celestine, Hellvar) og Viðar Júlí Ingólfsson (Frostmark, Jarlar);  Einar Ágúst (Skítamórall) og fleiri.  Þar á meðal Jóhönnu Seljan Þóroddsdóttur.  Hún er dúndurgóð söngkona með sterka tilfinningu fyrir djassi og blús.  Sveiflast lipurlega á milli blíðra tóna og þaninna raddbanda.  

  Þessi fyrsta plata hennar geymir níu lög.  Sjö þeirra eftir hana sjálfa.  Hin tvö eru annarsvegar eftir Jón Hafliða Sigurjónsson og hinsvegar Bergstein Þórsson.  Allt saman flott lög. 

  Sjö textanna eru eftir Jóhönnu.  Hinir eru úr smiðju Helga Þórssonar og Halldórs Laxness.  Textarnir klæða lögin vel. Ég tel mig greina að lögin séu samin við textana.  Þeir eru ljóðrænir.  Fjalla um mannlegar tilfinningar:  Söknuð, vonir, þrár, einmanaleika, ástarsorg...  Þeir eru ýmist á íslensku eða ensku. 

  Jóhanna á ekki langt að sækja skáldagáfuna.  Afi hennar,  Helgi Seljan,  var landsfrægur hagyrðingur.  Hann skemmti áratugum saman með söng og frumsömdum gamanvísum. 

  Tónlistin á plötunni er blanda af blús og ljúfum djassi.  Góð blanda.  Hljóðfæraleikur er eðal.  Valinn maður í hverju rúmi:  Birgir Baldursson á trommur, Jón Hafliði Sigurjónsson á bassa,  Jón Hilmar Kárason á gítar og Kjartan Valdemarsson á hljómborð.  Þeir fá að njóta sín.  Þeir eru meira eins og hljómsveit heldur en "aðeins" undirleikarar.  Þegar gítarleikur er á hæsta flugi kemur Gary Moore upp í hugann.

  Platan er pínulítið seintekin.  Lögin eu ekki Ob-La-Di barnagælur.  Þau eru fullorðins og vinna bratt á við hverja spilun.  Ég elska að spila þessa plötu.  Vert er að geta að hljóðheimur hennar (sánd) er sérlega hreinn og tær.  Hlustandinn er nánast eins og staddur inni á stofugólfi hjá flytjendum.  Þetta er í alla staði afskaplega vel heppnuð, skemmtileg og notaleg plata.  Hún er fjölbreytt en jafnframt með sterkan heildarsvip.

    


Tjónaskýrslur

 Starfsfólk tryggingafélaga heyrir stundum einkennilegar skýringar á tjónum.  Sumar sprenghlægilegar - þó að tjón séu dapurleg fyrirbæri að öllu jafna.  Hér eru dæmi:

  "Ég var með kalkún í ofninum.  Ég ætlaði að pensla hann.  Þegar ég opnaði ofninn var kalkúninn þyngri en ég hélt.  Hann flaug út á gólf.  Sem betur fer var ég búin að ryksuga.  Ég setti hann aftur í ofninn og kláraði matreiðsluna.  Þetta var góð máltíð en teppið er ónýtt."

  "Ég var búinn að keyra bílinn minn í 40 ár þegar ég sofnaði fram á stýrið."

  "Ég gaf syni mínum 75 þúsund kall í jólagjöf sem ég henti í ógáti í ruslatunnuna."

  "Ósýnilegur bíll kom út úr buskanum,  skall á minn bíl og hvarf."

  "Kærastan kyssti mig,  ég missti stjórn á bílnum og vaknaði á sjúkrahúsi."

  "Ég hélt að bílrúðan væri niðri en komst að öðru þegar ég rak hnefann út um rúðuna."

  "Þegar ég kom heim þá keyrði ég inn í vitlaust hús og lenti í árekstri við tré sem ég á ekki."

 


Afmælisveisla aldarinnar

  Guddi ákvað að halda upp á sjötugsafmæli sitt með stæl.  Hann talaði um það sem afmælisveislu aldarinnar.  Hann bauð sínum bestu vinum.  Þeir voru foreldrar mínir og hjónin á Hólkoti í Unadal í Skagafirði.  Fleiri yrðu ekki í veislunni.  Þeir myndu bara flækjast fyrir.  Veislan yrði á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki.  Ekkert til sparað:  Dýrustu forréttir,  dýrustu aðalréttir,  dýrustu desertar,  dýrasta koníakið,  dýrustu vindlarnir.   

  Guddi stóð við sitt og stýrði veisluhöldum með glæsibrag. Eftir desertinn pantaði Guddi dýrustu vindla á línuna.  Gestirnir afþökkuðu vindlana.  Hann fékk sér hinsvegar rándýran vindil.  Þjónninn benti honum á að bannað væri að reykja vindil inni.  Guddi sýndi því skilning.  Sagðist bara bregða sér út og reykja vindilinn þar.  Sem hann og gerði.  Nema hann skilaði sér ekki aftur inn.  

  Þegar ekkert bólaði á Gudda í langan tíma tóku gestir að ókyrrast.  Að lokum fór pabbi út að leita að honum.   Þar var enginn Guddi. 

  Sem betur fer voru gestirnir með ávísanahefti og gátu gert upp við Mælifell.  Annað hefði orðið vandræðalegt. 

  Næstu misseri varð Gudda tíðrætt um veislu aldarinnar.  Sagði hverjum sem heyra vildi frá henni.  Ekki síst þótti honum gaman að rifja upp við gestina og spyrja hvort að þetta hafi ekki verið veisla aldarinnar.  Mamma spurði hvers vegna hann hafi stungið af úr veislunni.  Guddi svaraði:  "Veislan var búin og þá fóru náttúrulega allir heim til sin." 

veisla  

  

    


Kenning Gudda

  Guddi keðjureykti.  Sennilega áttu reykingarnar einhvern þátt í miklum hóstaköstum sem hann fékk í tíma og ótíma.  Oftar í ótíma.

  Guddi slóst í hóp með systkinum mínum er þau skelltu sér á dansleik í Varmahlíð.  Er dansleik lauk sýndu gestir á sér fararsnið.  Þar á meðal Guddi og systkinin.  Líka piltur sem sýndi systir minni áhuga.  Gudda þótti hann full ágengur.  Hann snöggreiddist,  greip þéttingsfast um hálsmálið á kauða og reiddi hnefann til höggs.  Í sama mund fékk hann langt og heiftarlegt hóstakast.  Hnefinn lak niður.  En Guddi sleppti ekki takinu á hálsmálinu.  Né heldur rauf hann augnsambandið.  Hann starði heiftúðlegum augum á drenginn á meðan hann hann hóstaði og hóstaði.  Gaurinn sýndi engin viðbrögð.  Starði bara í forundran á Gudda.  Hann var töluvert stærri og kraftalegri en Guddi.  

  Er hóstakastinu linnti var Guddi búinn á því.  Hann sleppti takinu og bað systkinin um eitthvað að drekka.  Hann yrði að væta kverkarnar eftir svona hóstakast.

  Guddi var alltaf eldfljótur til svars.  Hann, ég og pabbi vorum að stinga út úr fjárhúsum.  Guddi lét reykingar sinar ekki trufla vinnuna.  Hann hélt sígarettum á milli vara og hafði hendur lausar til athafna. 

  Bróðir minn,  4ra eða 5 ára,  spurði Gudda:  "Af hverju reykir þú svona mikið?"

  Guddi svaraði þegar í stað:  "Þeir sem vinna mikið þurfa að reykja mikið!"

   


Guddi í áflogum við mannýg naut

  Guddi hét maður.  Hann varð heimilisvinur foreldra minna á Hrafnhóli í Hjaltadal.  Kom og dvaldi þar dögum saman.  Ég var fluttur að heiman.  Hitti hann aðeins einu sinni er ég heimsótti foreldrana.

  Þegar ég hitti hann þá sagði hann mér margar grobbsögur af sér.  Þær líktust sögum Munchausens.  Ein var af því þegar nautahjörð réðist á hann.  Nautin komu hlaupandi í halarófu að honum með hausinn undir sig.  Hátt í tuttugu skepnur.  Hraðinn á þeim var svo mikill að Guddi sá að vonlaust væri að flýja.  Eina ráðið var að standa gleiður og takast á við nautin.  Hann greip um hornin á þeim og snéri svo hratt upp á þau að kvikindin urðu afvelta.  Hann snéri þeim til skiptis til vinstri og hægri.  Þegar atinu lauk var hjörðin í tveimur hrúgum.  Svo dösuð var hún að Guddi gat gengið í rólegheitum á braut.  En nokkuð móður.

  Hann sagðist hafa sagt fólki í - eða frá - Keflavík frá þessu.  Það hefði ekki trúað sér.  Ég svaraði því til að það væri afar dónalegt að rengja frásagnir fólks.  Guddi sagði:  "Þú ert góður maður.  Ég ætla að gefa þér skyrtuna mína."  Svo reif hann síg úr skyrtunni og rétti að mér.  Ég sagðist eiga alltof margar skyrtur og bað hann um að fara aftur í skyrtuna sína.  Enda dálítið kjánalegt að sjá hann sitja beran að ofan við eldhúsborðið.  

 

naut      

 


Afi tískufrumkvöðull

  Undir lok sexunnar (sjöunda áratugarins) datt afa í hug gott sparnaðarráð.  Í stað þess að fara til hárskera á Sauðárkróki - með tilheyrandi kostnaði - gæti ég klippt hann.  Ég var um það bil 12 - 13 ára.  Uppskriftin var sú að renna greiðu um hársvörð hans og klippa hárin sem stóðu upp úr greiðunni.  

  Til að gera þetta skemmtilegra þá brá ég á leik.  Ég fylgdi uppskriftinni að undanskildu því að ég lét afa safna skotti neðst í hnakkanum.  Afi vissi aldrei af þessu.  Lyftigeta handa hans náði ekki til hnakkans.  

  Klippingin vakti undrun og kátínu hvert sem afi fór.  Foreldrar mínir stóðu í þeirri trú að afa þætti þetta flott.  Sennilega laug ég því í þau.  Einhverra hluta vegna nefndi enginn þetta við afa.  Mér er minnisstætt er mágkona pabba tók mömmu afsíðis og spurði hvaða uppátæki þetta væri hjá afa að vera með skott.  Þær voru sammála um að þetta væri furðulegt uppátæki hjá tengdapabba þeirra en svo sem ekkert furðulegra en margt annað í hans fari.  

  Svo skemmtilega vildi til að um og uppúr 1980 komst svona skott í tísku.  Bæði hérlendis og erlendis.  Afi var fyrstur.  Hann var frumkvöðullinn.

skott í hnakka askott í hnakka bskott í hnakka  


Af hverju talar fólk um sig í þriðju persónu?

  Ég var að horfa á sjónvarpsþátt með bandarískum réttarsálfræðingi, Dr. Phil.  Hann talar ítrekað um sig í þriðju persónu.  Þetta er ósjálfráð aðferð til að upphefja sig.  Skrýtið að sálfræðingur átti sig ekki á þessu.  Hann hefur þó upplýst hvað liggur að baki.  Pabbi hans var sjálfhverfur alkahólisti.  Phil þráði viðurkenningu frá honum.  Þó ekki væri nema smá hrós.  Það kom aldrei.  Honum gekk vel í skóla.  En pabbinn lét það sig engu skipta.  Phil fékk aldrei neitt jákvætt frá honum.

  Kunningi minn átti erfiða æsku.  Ólst upp við ofbeldi.  Hann talar oftast um sig í þriðju persónu.  Og alltaf þegar hann hælir sér af einhverju.  Hann segir:  "Bjössi eldaði frábæran rétt í gær a la Björn"  og "Bjössi veit nú margt um þetta!

  Annan þekki ég sem bætir nafni sínu alltaf við þegar hann vitnar í samtöl sín.  Hann lætur viðmælandann hefja setningar á ávarpinu "Ólafur minn..." eða:  "Ég get sagt þér,  Ólafur minn..."

     


Söluhæstu lög og plötur í dag

  Sölutölur yfir vinsæl lög og plötur eru í dag dálítið flókið og margslungið dæmi.  Plötur í föstu formi (vinyl,  geisladisk,  kassettur...) hafa farið halloka fyrir streymisveitum á netinu.  Höfundaréttarskráning heldur utan um þetta flókna dæmi.

  Þetta eru söluhæstu tónlistarmenn fyrri helmings - fyrstu 6 mánuði - þessa árs:  

1.  Bítlarnir seldu um 1,1 milljón eintök af sinni afurð.

2.  The Queen koma næst með 780 þúsund eintök.  

3.  Imagine Dragons 600 þúsund eintök.

4.  Fleetwood Mac 565 þúsund eintök. 

5.  Metallica 550 þúsund eintök.

  Óendanlegar yfirburða vinsældir Bítlanna eru ekki óvæntar.  Samt.  Bítlarnir sendu frá sér plötur aðeins um sex ára skeið á sjöunda áratugnum (6-unni).  Síðan er liðin meira en hálf öld. 


Undarlegur leigjandi

  Nonni kunningi minn er á áttræðisaldri.  Hann leigir út 3 herbergi í íbúð sinni.  Sjálfur er hann í því 4ða. 

  Eitt sinn vantaði hann leigjanda.  Í auglýsingu í Fréttablaðinu óskaði fertugur Þjóðverji eftir herbergi.  Nonni lærði þýsku á unglingsárum.  Honum þótti spennandi að rifja hana upp.

  Honum til vonbrigða vildi sá þýski lítið með þýsku hafa.  Sagðist þess í stað þurfa að æfa sig í ensku.  Í Þýskalandi biði hans starf sem túlkur. 

  Fljótlega varð Nonni var við rýrnun í ísskáp sínum og brauðskúffu.  Hann leit framhjá því.  Þetta var ekki fjárhagstjón sem skipti máli.  Verra þótti honum þegar lækkaði í áfengisflöskum hans og leifarnar voru með vatnsbragði.  Fremur en gera veður út af þessu þá tók hann til bragðs að geyma áfengið úti í bíl.  

  Einn daginn var uppáhaldsjakki Nonna horfinn.  Þá gerði hann nokkuð sem hann annars gerði aldrei.  Hann notaði aukalykil til að kíkja inn í herbergi Þjóðverjans.  Þar var jakkinn á stólbaki.  Hann lét jakkann vera.  

  Seint um kvöldið skilaði leigjandinn sér í hús.  Nonni spurði hvort hann hefði séð jakkann.  Jú,  Þjóðverjinn kvaðst hafa fengið hann lánaðan.  Sagðist hafa þurft á áríðandi fund og ekki átt nógu fínan jakka sjálfur.  Svo snaraðist hann inn í herbergi og kom aftur fram í jakkanum.  Saman dáðust þeir Nonni að fegurð jakkans.  Skyndilega sagðist kauði þurfa að skjótast út.  Hann var enn í jakkanum og skilaði sér ekki fyrr en um miðja nótt.  

  Næsta dag var leigjandinn enn í jakkanum.  Nonni bað hann um að skila flíkinni.  Það var auðsótt. 

  Upp frá þessu tók Þjóðverjinn að ganga í fleiri fötum af Nonna.  Þegar hann gerði athugasemd við þetta þá útskýrði kauði að sínar skyrtur væru óhreinar,  einu almennilegu buxurnar hefðu rifnað og svo framvegis.  Nonni þurfti ávalt að biðja hann um að skila fötunum.  Annars gerði hann það ekki.

   Svo gerðist það að Nonni brá sér á skemmtistað.  Þar hitti hann konu.  Er vangadansi og dansleik lauk fylgdi hún honum heim.  Hann keypti nokkra bjóra í nesti.  Þar sem þau sátu í stofunni, keluðu og sötruðu veigarnar vaknaði leigjandinn við tal þeirra.  Hann kom fram og þáði bjór.  Síðan rakti hann fyrir konunni dapurlega ævi sína.  Foreldrar hans voru myrtir af nasistum.  Hann ólst upp við illan kost á munaðarleysingjahæli.  Minningarnar voru svo sárar að hann brast í grát.  Loks henti hann sér hágrátandi í faðm konunnar.  Hún reyndi hvað hún gat að róa hann og hugga.  

  Nonni brá sér á salerni.  Er hann snéri til baka voru konan og leigjandinn horfin.  Hann bankaði á dyr leiguherbergisins og kallaði.  Þjóðverjinn kallaði til baka að þau væru farin að sofa.  Bauð svo góða nótt.

  Það fauk í Nonna.  Hann rak leigjandann daginn eftir.  Konan bauð honum að flytja til sín til bráðabirgða.  Lauk þar með samneyti karlanna.

  Ári síðar hittust þeir á gangi.  Þjóðverjinn leiddi frænku hans.  Hún upplýsti að þau væru trúlofuð.  Nonni hringdi í foreldra hennar.  Sagði þeim frá kynnum sínum af manninnum.  Fékk hann þá að vita að tengdasonurinn væri ekki þýskur heldur Íslendingur í húð og hár.  En ekki hafði farið framhjá þeim að hann væri ósannsögull. 

 


Keypti í ógáti 28 bíla

  Eldri Þjóðverji hugðist uppfæra heimilisbílinn;  skipta gamla bensínsvolgraranum út fyrir lipran rafmagnsbíl.  Hann hélt sig innanhúss vegna Covid-19.  Nógur tími var aflögu til að kynna sér hver væru heppilegustu kaup.  Þegar hann var kominn með niðurstöðu vatt hann sér í að panta bílinn á netinu.  

  Tölvukunnátta er ekki sterkasta hlið karlsins.  Allt gekk þó vel til að byrja með.  En þegar kom að því að smella á "kaupa" gerðist ekkert.  Í taugaveiklun margsmellti hann.  Að lokum tókst þetta.  Eiginlega of vel.  Hann fékk staðfestingu á að hann væri búinn að kaupa bíl.  Ekki aðeins einn bíl heldur 28.  1,4 milljónir evra (220 milljónir ísl. kr.) voru straujaðar af kortinu hans.  

  Eðlilega hafði kauði ekkert að gera við 28 bíla.  Bílaumboðið sýndi því skilning og féllst á að endurgreiða honum verð 27 bíla.  Tók hann þá gleði sína á ný og staðan á korti hans hrökk í betra hrof.  

tesla 


Svínað á Lullu frænku

  Mín góða og skemmtilega frænka úr Skagafirðinum,  Lulla, var ekki alveg eins og fólk er flest.  Oft var erfitt að átta sig á því hvernig hún hugsaði.  Viðbrögð hennar við mörgu voru óvænt.  Samt jafnan tekin af yfirvegun og rólegheitum.  Henni gat þó mislíkað eitt og annað og lá þá ekki á skoðun sinni.

  Hún flutti ung til Reykjavíkur.  Þar dvaldi hún af og til á geðdeild Borgarspítala og á Kleppi í bland við verndaða vinnustaði.  Henni var alla tíð afar hlýtt til Skagafjarðar og Skagfirðinga.

  Aksturslag hennar var sérstætt.  Sem betur fer fór hún hægt yfir.  1. og 2. gír voru látnir duga.  Aðrir bílstjórar áttu erfitt með að aka í takt við hana.  

  Á áttunda áratugnum var mágur minn farþegi hjá henni.  Þá tróðst annar bíll glannalega fram úr henni.  Lulla var ósátt og sagði:  "Þessi er hættulegur í umferðinni.  Hann svínar á manni."

  Mágur minn benti henni á að bílnúmerið væri K.  Þetta væri skagfirskur ökuníðingur.  Lulla svaraði sallaróleg:  "Já, sástu hvað hann tók fimlega framúr?  Skagfirðingar eru liprir bílstjórar!"

Fleiri sögur af Lullu frænku:  HÉR

 


Svíi var svo fullur að lögreglan hélt að hann væri Dani

 Sænskur saksóknari hefur ákært 29 ára Svía.  Sakarefnið er ölvunarakstur, flótti frá árekstri og brot á vopnalögum.  Við yfirheyrslu kvaðst hann hafa drukkið romm, koníak,  brennivín og vatn.  Síðan hafi hann farið í göngutúr og mokað smávegis snjó fyrir utan hús föður síns.  Að því loknu vaknaði hann sér til undrunar upp af værum blund í fangaklefa.       

  Lögreglan kom auga á manninn flýja á hraðferð af vettvangi eftir að hafa klesst á tvo kyrrstæða bíla.  Hraðferðin endaði í snjóskafli.  Þar sat bíllinn fastur. 

  Þegar lögreglan opnaði bíldyrnar gus upp megn áfengislykt.  Á bílgólfinu blasti við vodkaflaska.  Jafnframt reyndist maðurinn vera vopnaður ólöglegum hníf. 

  Svo sauðdrukkinn var hann að lögreglan var lengst af sannfærð um að hann væri Dani.

  Honum er gert að borga sveitarfélaginu Trollhattan 21 þúsund kall fyrir að hafa ekið niður staur.  Að auki þarf hann að borga hálfa milljón fyrir bílana sem hann ók utan í.  Einhverja sekt fær hann fyrir ölvun undir stýri.    

 

 


Vinsælustu músíkhóparnir

  Á Facebook held ég úti fjölda músíkhópa;  hátt á þriðja tug.  Flestir voru stofnaðir um svipað leyti.  Þess vegna hefur verið áhugavert að fylgjast með þeim vaxa og þróast mishratt.  Þessir hópar einskorðast ekki við Ísland.  Það er dálítið spennandi.  Þeir sem skrá sig í hópana koma úr öllum heimshornum. 

  Margt sem póstað er í hópana er áhugavert og kynnir mann fyrir ýmsum tónlistarmönnum.  Faldir fjársjóðir kynntir til leiks.  Stundum fylgja með fjörlegar og fróðlegar umræður í athugasemdakerfinu.  Ég hef kynnst hellingi af skemmtilegri músík í þessum hópum.  Einnig eignast vini;  tónlistarfólk frá flestum nágrannalöndum.  Sumir eru lítt þekktir er þeir stimpluðu sig inn en eru í dag stór nöfn.   

  Af listanum yfir fjölmennustu hópana mína mætti ætla að ég sé fyrst og fremst kántrý-bolti.  Svo er ekki.  Samt kann ég vel við margt kántrý.  Sérstaklega frá fyrri hluta síðustu aldar. Líka americana og roots kántrý, svo ekki sé minnst á cow-pönk.

  Einn hópurinn minn var kominn með næstum því 60 þúsund félaga.  Þá stálu vondir menn honum.  Þeir virtust vera á Filippseyjum.  Þeir hökkuðu sig inn í hópinn og yfirtóku hann.  Síðan breyttu þeir nafni hans og eru eflaust að herja á liðsmenn hópsins með gylliboðum um peningalán og eitthvað svoleiðis.

  Þetta eru vinsælustu hóparnir.  Fyrir aftan er félagafjöldinn.

1.  The best country and western songs ever 19.904

2.  The best international country and western music 1559

3.  Country & western music 1069

4.  Alternative rock jukebox 941

5.  Færeyskir tónar - Faroese music 832

6.  Blues, jazz 701

7.  Country music, folk, blues 632

8.  Best of Icelandic rock music, jazz, reggae, country   584

9.  Classic rock 544

10. The Byrds family 461

  Félagafjöldinn segir ekki alla söguna.  Í sumun fámennari hópum er ekki síðra líf og fjör.  Í fjölmennustu hópum vill brenna við að innlegg séu kaffærð helst til fljótt af nýrri póstum.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband