Höfundur geisladisksins fallinn frá

geisladiskur

  Norio Ohga var söngvari og starfsmađur japanska fyrirtćkisins Sony,  eins og rithöfundurinn Ólafur Jóhann Ólafsson.  Norio ól međ sér ţann draum ađ hanna plötu,  geisladisk,  sem myndi aldrei eyđast viđ núning plötunálar eins og vinylplötur.  Diskurinn vćri jafn nýr eftir ađ hafa veriđ spilađur 100 sinnum og ţegar hann vćri spilađur í fyrsta skipti.  Geislar myndu lesa af honum músík án ţess ađ snerta diskinn.  1979 fékk hann hollenska fyrirtćkiđ Philips í liđ međ sér til ađ hanna ţetta fyrirbćri.  Svo ótrúlegt sem ţađ hljómar mćtti uppátćkiđ gríđarlegu andstreymi.  Gömlu rótgrónu plötufyrirtćkin fundu ţessu uppátćki allt til foráttu. 

  Fyrstu geisladiskarnir komu á markađ 1982.  Bandaríski plötuiđnađurinn barđist á móti ţessari nýjung á hćl og hnakka.  Um svipađ leyti tókst honum ađ knésetja DAT segulbandsspólur sem voru ađ sumu leyti fyrirrennari geisladisksins.  Ţađ er lásu af segulböndunum án ţess ađ um núning viđ lesarann vćri ađ rćđa.

  Mig minnir ađ ţađ hafi veriđ um 1985 sem bandaríski plötuiđnađurinn gafst upp á baráttu gegn geisladisknum.  Ég var ţá staddur í Bandaríkjunum og fylgdist međ baráttunni gegn geisladisknum ţar.  Fyrstu ár á eftir voru geisladiskar í Bandaríkjunum pakkađir í umbúđir sem voru tvöfalt stćrri en sjálfur geisladiskurinn.  Hugmyndafrćđin var sú ađ stćrđ geisladisksins sem var ađeins fjórđungur af stćrđ vinylplötu myndi slátra plötunni sem heppilegri stćrđ í gjafaumbúđum til jólagjafa. 

  Í mörg ár voru geisladiskar í Bandaríkjunum ađeins framleiddir í ţessum stóru umbúđum.

  Fyrsta geislaplata á almennum alţjóđamarkađi var "The Visitors" međ Abba-viđbjóđnum.  Hinsvegar man ég ađ einn af fyrstu íslenskum geisladiskum var "Frelsi til sölu" međ Bubba.  Ég sá um markađssetningu ţeirrar plötu.  Hún seldist í nćstum 20 ţúsund eintökum međ öllum ţeim markađssetningarráđum sem ég kunni best á ţeim tíma.

  Norio féll frá í vikunni 81 árs gamall.   


Níđingslegt athćfi

  Í fjölmiđlum helgarinnar hefur ekkert lát veriđ á fréttum af tveimur mönnum sem sćta ákćru fyrir sölu á marijúana.  Meginţunginn í fréttunum snýr ađ ţeirri stađreynd ađ glćpamennirnir seldu Akureyringum marijúana.  Af fréttaflutningnum verđur ekki annađ ráđiđ en ađ ákćruvaldinu ţyki ţađ einstaklega níđingslegt og ósvífiđ ađ selja Akureyringum marijúana; ţađ verđi metiđ glćpamönnunum til refsiţyngingar ađ hafa ekki frekar selt Dalvíkingum tóbak.
.
mrjúana

Furđulegt uppátćki í plötuverslun

 

  Ţađ getur veriđ assgoti gaman ađ skođa sig um í plötubúđum.  Ekki síst í plötubúđum ţar sem starfsfólkiđ ţekkir illa til ţeirra platna sem á bođstólum eru.  Í ónefndri plötubúđ í Stóru hryllingsbúđinni (eins og Pétur Ţorsteinsson,  prestur Háóđa safnađarins,  kallar Kringluna) er rekki undir ţungarokksplötur.  Hann er kyrfilega merktur "Ţungarokk".  Úrvaliđ er frekar fátćklegt.  Fremst í röđ platna međ flytjendum hvers nafn byrjar á E trónir ljúf kántrý-plata međ bandaríska kántrý-boltanum og heróín-fíklinum Steve Earle. 

  Ţessi plata,  Copperhead Road,  er frá níunda áratugnum og vel kunn flestum sem fylgjast eitthvađ međ dćgurlagamúsík.  Međal annars er platan frćg vegna ţess ađ breska ţjóđlagahljómsveitin frábćra The Pogues sér ađ hluta um undirleik.  Ţađ örlar ţess vegna á írskum keim á plötunni.  Einnig er platan ţekkt fyrir ţađ ađ Jón Reiđufé (Johnny Cash) krákađi (cover song) af henni lagiđ  The Devil´s Right Hand.  Sama lag skreytti kúrekamyndina  Brokeback Mountain.

  Grunur leikur á ađ starfsfólk plötubúđarinnar í Kringlunni ţekki lítiđ sem ekkert til helstu nafna í kántrýi og ţungarokki.  Annars myndi ţađ stađsetja vinsćla kántrýplötu annarsstađar en í ţungarokksrekka.  Til dćmis í kántrý-rekkann.

  Ef smellt er á myndbandiđ ađ ofan birtist hugsanleg vísbending um ástćđu ţess ađ kántrý-plata sé flokkuđ sem ţungarokk.  Ţarna sést framhliđ umslagsins.  Hvađ dettur fáfróđum í hug ţegar ţeir sjá hauskúpu og leggi glenna sig á plötuumslagi?  Aha,  ţetta hlýtur ađ vera ţungarokk.  Aftan á umslaginu er ljósmynd af síđhćrđum Steve Earle.  Ţađ ţarf ekki frekar vitnanna viđ.  Ţađ ţarf ekki einu sinni ađ hlusta á plötuna né "gúgla" hana eđa flytjandann. 

  Steve Earle er lunkinn söngvahöfundur og mikiđ krákađur í bandarísku kántrý-deildinni.  En ekki í ţungarokksdeildinni.  Ţar er frekar sótt í Slayer.  Og ţar bregđur ósjaldan fyrir hauskúpum og síđu hári.

  Ef ţiđ smelliđ á ţessi myndbönd til skiptist má heyra ađ ţađ er blćbrigđamunur á kántrýi og ţungarokki.  Afsakiđ hvađ fyrra Slayer-lagiđ endar bratt.  Ţađ er ekki mér ađ kenna. 


Óvenjulegt töfrabragđ

  Ég kom viđ í Melabúđinni í dag til ađ kaupa mér Malt.  Ţegar ég yfirgaf búđina stóđ háaldrađur mađur aleinn međ staf á gangstéttinni og virtist eiga erindi yfir Hofsvallagötuna.  Hann stóđ viđ gangbrautina.  Bílaumferđ var ţung í báđar áttir.  Enda hádegistími.  Sá gamli skipađi höstuglega međ hásri og kraftlítilli gamalmannsröddu:  "Stoppiđ!  Leggiđ bílunum!  Hleypiđ mér yfir götuna!  Stoppiđ!  Leggiđ bílunum!  Ég krefst ţess ađ ţiđ stoppiđ ţegar í stađ!  Leggiđ bílunum,  segi ég!"
  Ţađ var eins og viđ manninn mćlt.  Ţó bílstjórarnir í bílunum hafi áreiđanlega ekki heyrt í ţeim gamla ţá stoppuđu ţeir.  Allir sem einn.  Ţetta voru töfrabrögđ.
  Kannski hjálpađi ađ ţarna eru umferđarljós sem skiptu um lit í sama mund.  Ađ minnsta kosti virtist ţađ ekki skemma fyrir.  

Eivör í toppsćti danska vinsćldalistans?

  Í dag kom á markađ ný plata,  Engle Eller Dćmoner,  međ vinsćlasta rappdúett Danmerkur,  Nik & Jay.  Titillagiđ er ađ hluta lag Eivarar,  Tröllabundin.  Nik & Jay eru í hópi allra vinsćlustu poppara í Danmörku.  Ţarlendir poppfrćđingar ganga út frá ţví sem vísu ađ platan fari í 1. sćti danska vinćldalistans.  Plötudómar ţarlendra eru sammála um ađ titillagiđ sé ţađ bitastćđasta á plötunni.  Ef spár ganga eftir verđur ţetta í fyrsta skipti sem fćreyskur söngtexti toppar danska vinsćldalistann.  Ţetta er spennandi dćmi.

  


Gott og einfalt ráđ til ađ kýla niđur rafmagnsreikninginn

kartöflur

  Á flestum íslenskum bćjum fer drjúgur hluti orkunotkunar heimilisins í ađ sjóđa kartöflur.  Kartöflur eru sođnar fyrir hádegisverđ og annar skammtur fyrir kvöldmat flesta daga.  Á sumum bćjum eru kartöflur reyndar ađeins sođnar einu sinni á dag.  Ţessi stöđuga suđa á kartöflum telur sig saman í háa upphćđ fyrir rafmagn á ársgrundvelli.  Hefđin er sú ađ sjóđa kartöflurnar í 43 mínútur.

  Ţessum kostnađi má auđveldlega ná verulega niđur á eftirfarandi hátt:  Helltu fyrst sjóđandi heitu vatni úr rafmagnskatlinum yfir kartöflurnar í pottinum.  Kveiktu síđan á hellunni undir pottinum.  Suđan kemur fljótlega upp.  Leyfđu henni ađ halda sér í 16 mínútur.  Ţá slekkur ţú á hellunni en lćtur pottinn standa ţar óhreyfđan međ loki á í 32 mínútur.  Ţá eru kartöflurnar snyrtilega sođnar,  ferskar og góđar.  Ţađ sem mestu máli skiptir er ađ hýđiđ er ósprungiđ.

  Eitt ţađ vitlausasta sem nokkur manneskja gerir er ađ salta kartöflur fyrir suđu.  Saltiđ nćr ekkert ađ smjúga inn í kartöflurnar nema saltmagniđ sé nánast til jafns viđ kartöflurnar og hýđiđ springi.

  Til gamans má geta ađ á fćreysku heita kartöflur epli.  Ţađ sem Íslendingar kalla epli heitir á fćreysku súr epli.  Fólk reynir ađ ruglast ekki á ţessu.

 


Sérkennileg nýlunda

  Ţađ er furđuleg lenska hjá íslenskum matsölustöđum ađ afgreiđa vín og bjór undir borđiđ.  Kannski er ţetta arfleifđ frá bannárunum svokölluđu.  Í lyftunni i Perlunni er auglýsing frá veitingastađ á fjórđu hćđ.  Ţar er tekiđ fram - ađ gefnu tilefni - ađ bjór og vín séu einungis seld yfir borđiđ.  Mér varđ svo um ađ ég keypti nokkrar geislaplötur á neđstu hćđ.        

Kynningarmyndbandiđ međ Eivöru, Nik & Jay

  Í síđustu viku upplýsti ég kátur og hress á ţessum vettvangi ađ vinsćlustu rapparar Danmerkur,  Nik & Jay,  hafi óskađ eftir liđsinni fćreysku álfadrottningarinnar,  Eivöru,  viđ gerđ titillags vćntanlegrar plötu dúettsins.  Ţá fćrslu má lesa međ ţví ađ smella á ţessa slóđ:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1160277/ 

  Nú er komiđ á Ţútúpuna kynningarmyndband fyrir plötuna.  Ţar má heyra hvernig lag Eivarar,  Tröllabundin,  er fléttađ saman viđ lag Niks & Jay,  Engle eller Dćmoner.  Poppfrćđingar í Danaveldi reikna međ ţví ađ lagiđ fái gríđargóđa útvarpsspilun og platan fari á topp danska vinsćldalistans.  Gangi ţađ eftir verđur ţađ í fyrsta skipti sem fćreyska hljómar á metsöluplötu í Danmörku. 

  Hér er kynningarmyndbandiđ:


Bestu hljómsveitirnar leiđa saman hesta sína

  Ţađ verđur heldur betur hátíđ og fjör á Freyjudaginn í nćstu viku (Frjádag 29. apríl) á Nasa viđ Austurvöll.  Topparnir í rokkinu taka ţar saman höndum og halda STÓR-hljómleika međ ţjóđlegu og kraftmiklu rokki sem snertir taugar hins venjulega Íslendings ekki síđur en hörđustu ţungarokkara.  Ţetta eru hljómsveitirnar Skálmöld og Sólstafir.

  Skálmöld ruddist fram á sjónarsviđiđ á síđasta ári og hafđi ţá veriđ ađ í rúmlega ár. Fyrsta plata ţeirra, Baldur, hefur nú ţegar selst í ţúsundum eintaka hér heima og heillađ ólíklegasta fólk upp úr skónum. Platan segir sögu víkings sem missir allt sitt í árás, hvernig hann ferđast yfir ófćrur til ađ hefna og allt fram yfir dauđa. Textar Skálmaldar hafa vakiđ sérstaka athygli, kjarnyrtir og dýrt kveđnir, og sćkja innblástur í ţjóđararfinn.

  Sólstafir hafa vakiđ mikla athygli fyrir frumlegt indí-skotiđ og epískt síđ-ţungarokk á seinustu árum. Síđasta plata ţeirra, Köld  frá árinu 2009, hlaut hvarvetna mikiđ lof gagnrýnenda.  Í kjölfariđ túruđu Sólstafir um gjörvalla Evrópu nokkrum sinnum og spiluđu á flestum af stćrstu rokkútihátíđum Evrópu, svo sem Hróaskeldu og Wacken, en Skálmöld mun einmitt spila á ţeirri síđarnefndu í ár. Sólstafir eru ţekktir fyrir sveitta og kraftmikla en ţó um leiđ tilfinningaţrungna og yfirţyrmandi tónleikaframkomu. Sólstafir munu hefja upptökur á nýrri plötu í maí.

  Báđar hljómsveitirnar hafa nýlega skrifađ undir plötusamninga erlendis og er heilmikil spilamennska framundan ţađ sem eftir lifir ári hér heima og utan. Velgengninni ţykir ţví rétt ađ fagna međ ţessum stórtónleikum ţar sem ekkert verđur til sparađ.

  Miđasala fer fram á www.midi.is og miđinn kostar ađeins 2.500 kall.


Einkennilegt samtal á fésbók

  Í gćrkvöldi kíkti ég rétt sem snöggvast á fésbók,  eftir ađ hafa skemmt mér konunglega í fermingarveislu (nei,  ţađ var ekki veriđ ađ ferma mig heldur frćnku mína).  Ég var ekki fyrr búinn ađ skrá mig inn á fésbókina en góđkunningi minn kastađi á mig kveđju á lokuđu spjallrásinni.  Hann var blindfullur,  eins og gengur.  Og langdrukkinn ađ auki.  Ţađ er ađ segja var búinn ađ hella hraustlega í sig alveg frá ţví ađ vinnudegi lauk á föstudaginn.  Ţannig ađ hann var orđinn töluvert ringlađur.

  Eftir ađ hafa kastađ á mig kveđju og taliđ upp ţćr vínflöskur og bjórdósir sem hann var búinn ađ slátra sagđist hann vera ađ spjalla viđ tiltekna manneskju á fésbók.  Og bćtir viđ:  "Viđ erum búin ađ rćđa heilmikiđ um ţig."

  Ég spurđi:  "Hvađ í ósköpunum getiđ ţiđ rćtt um mig?"

  Hann svarađi:  "Ég er nú eiginlega ekki alveg klár á ţví ennţá.  Viđ tölum nefnilega undir rós.  Viđ höfum ekki nefnt ţig á nafn.  Ţađ getur veriđ ađ viđ séum ađ tala um einhvern annan.  Ég held samt ađ viđ séum ađ tala um ţig." 


Skúbb! Íslensk hljómsveit á Brasilíumarkađ

  Brasilía er eitt stćrsta markađssvćđi rokkmúsíkur í heiminum á eftir Bandaríkjunum,  Indlandi,  Evrópu og Kína.  Kínverjar eru 1400 milljónir.  Indverjar röskar 1000 milljónir.  Kanar 310 milljónir.  Gott ef íbúar Brasilíu eru ekki einhversstađar ţar í grennd.  200 milljónir eđa svo.

  Fyrir tveimur árum fékk einn af helstu plötuútgefendum Brasilíu ofur áhuga á íslensku pönksveitinni Q4U.  Hann fann ekki netfang Q4U eđa ađrar upplýsingar um hljómsveitina í tvö ár.  Q4U er nefnilega ekki í símaskránni.  Nú hefur kauđi loks náđ sambandi viđ Q4U og vill ólmur gefa út plötu međ Q4U í Brasilíu.  Hann vill hafa á plötunni ný lög í bland viđ eldri lög hljómsveitarinnar.

  Kappinni kemur til Íslands í vor til ađ taka upp myndbönd međ Q4U í samhengi viđ plötuútgáfuna í Brasilíu.

  Til gamans má geta ađ Q4U er nafn í Ţýskalandi.  Ţar á hún harđsnúinn hóp dyggra ađdáenda.  Útgáfa á plötu međ Q4U í Brasilíu ţýđir sölu upp á tugţúsunda upplag.  Brasilíski markađurinn nćr jafnframt yfir til nágrannalanda og Portúgals.


Skúbb! Eivör á rappplötu

  Síđustu árin hefur dúettinn Nik & Jay veriđ stćrsta nafniđ í dönsku rappsenunni.  Og reyndar eitt stćrsta nafniđ í dönsku músíkflórunni í ţađ heila,  ásamt rokksveitinni Nephew.  Nik & Jay hafa átt fjölda laga og platna í efstu sćtum danska vinsćldalistans og fariđ heim međ verđlaunagripi frá Dönsku tónlistarverđlaununum.  Alveg eins og fćreyska álfadrottningin Eivör.  Ţađ er skemmtileg tilviljun.  Fyrir mánuđi fékk Eivör nefnilega beiđni um ađ gera lag međ Nik & Jay.  Um er ađ rćđa titillag nćstu plötu drengjanna,  Engle eller Dćmoner

  Ekki nóg međ ţađ.  Hugmyndin er ađ flétta lagi Eivarar,  Tröllabundin,  inn í  Engle eller Dćmoner.  Samstarfiđ verđur á jafnréttisgrundvelli.  Eivör hefur jafn mikiđ ađ segja um útfćrsluna og drengirnir.  Ţetta er samvinnuverkefni fremur en ađ Eivör sé gestasöngvari í lagi hjá Nik & Jay. 

  Eivör tók erindi Nik & Jay vel.  Ţegar hefur veriđ ákveđiđ ađ fara lengra međ samstarfiđ.  Til ađ mynda er áhugi fyrir ţví ađ Eivör taki ţátt í hljómleikum Niks & Jays í sumar. 

  Í fyrra kom Eivör fram á fjölda hljómleika vinsćlustu hljómsveitar Danmerkur,  Nephew,  og einnig vinsćlustu vísnahljómsveit Noregs,  Vamp.  Ađ auki söng Eivör á plötu Vamp.  Hvorutveggja vakti mikla athygli og var góđ kynning fyrir Eivöru.  Nćsta víst er ađ svo mun einnig verđa međ samstarf hennar og Niks & Jays. 


Ótrúlega kurteisir og ţolinmóđir Svíar

  Ţegar komiđ er til Svíţjóđar vekur strax athygli hvađ allir eru kurteisir og tillitssamir.  Hvergi sést trođningur eđa annarskonar frekjuleg framkoma.  Ţess í stađ mega engir tveir koma á sama stađ í sömu erindagjörđum á sama tíma án ţess ađ mynda röđ.  Báđir ađilar leggja sig ţá fram um ađ bjóđa hinum ađ vera á undan sér í röđinni.  Ţađ hefur stundum leitt til stimpinga og jafnvel slagsmála.

  Sá sem endar aftar í röđinni gćtir ţess síđan vandlega ađ sýna engin merki um óţolinmćđi og haggast hvergi fyrr en sá framar í röđinni hefur örugglega lokiđ sínu erindi og horfiđ á braut.  Ţetta er ekki síst áberandi međal hunda í Svíţjóđ.

sćnskir hundar


Broslegt úr fermingarfrćđslu

  Núna stendur fermingarundirbúningur barna sem hćst.  Liđur í honum er svokölluđ fermingarfrćđsla.  Á dögunum var einn tími fermingarfrćđslunnar lagđur undir fyrirlestur um skađsemi áfengis og ólöglegra vímuefna.  Foreldri eins fermingarbarnsins beiđ frammi á međan en lagđi jafnframt viđ hlustir.  Fyrirlesturinn var nefnilega áhugaverđur.  Fulltrúi frá fíkniefnadeild lögreglunnar fór skipulega og ítarlega yfir skađsemi og hćttur hvers vímuefnis fyrir sig.  Börnin hlustuđu hljóđ á. 

  Er fyrirlestrinum lauk sté presturinn fram og spurđi börnin:  "Náđuđ ţiđ ţessu öllu?  Spyrjiđ endilega ef eitthvađ er óljóst."

  Einu viđbrögđin voru ađ drengjarödd í mútum heyrđist kalla:  "Ţađ er nú ekki eins og ţetta séu einhver geimvísindi!" 


Ósvífiđ svindl

  Ég átti erindi til Hafnarfjarđar í dag.  Í nágrenni viđ Fjarđarkaup rak ég augu í skilti međ merkingunni "Ódýrt bensín".  Bensíniđ sem ég hef keypt undanfarin ár hefur veriđ okurdýrt.  Ég hugsađi mér gott til glóđarinnar.  Ég hef ekki rekist á ódýrt bensín í árarađir.  En nú var lag.  Ţannig ađ ég brá viđ skjótt og fyllti á bílinn ţetta sem var auglýst ódýrt bensín.  Ţegar á reyndi kom í ljós ađ hiđ svokallađa "ódýrt bensín" kostađi um 230 kall lítrinn. 

  Er ţađ ódýrt bensín?  Í minni brengluđu verđvitund er ţađ dýrt bensín.  Rándýrt.  Er ţetta Hafnarfjarđarbrandari?


mbl.is Álagiđ hiđ lćgsta frá hruni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Einn léttur

  Ljóskan vann 600 milljónir í lottói.  Á mánudeginum mćtti hún á skrifstofu lottósins til ađ sćkja vinninginn.  Henni var tjáđ ađ áđur en hún fengi vinning greiddan út yrđi hún ađ sćkja sérstakt námskeiđ fyrir vinningshafa svo stórrar upphćđar.  Ţar myndu fjármálaráđgjafar,  sálfrćđingar og ađrir slíkir fara yfir málin međ henni.  Jafnframt vćri ţetta hár vinningur ekki greiddur út á einu bretti heldur myndi hún fá 100 milljónir afhentar 1. maí nćstu sex ár.

  Viđbrögđ hennar urđu ţau ađ segja:  "Ţetta er svindl.  Ef ég fć ekki mínar 600 milljónir afhentar strax ţá mun ég slíta hér og nú öllum viđskiptum viđ fyrirtćkiđ,  skipta aldrei viđ ţađ framar,  og stefna ykkur til ađ endurgreiđa mér lottómiđann undir eins!"


Góđ úrslit í Söngkeppni framhaldsskólanna

  Ég var svo heppinn ađ sjá fyrir tilviljun í Stöđ 2 síđasta hluta Söngkeppni framhaldsskólanna.  Ég er ekki međ áskrift ađ Stöđ 2 og vissi ekki af keppninni.  Ennţá síđur vissi ég ađ hún vćri send út í opinni dagskrá.  Ég hef ekki lagt mig eftir ađ fylgjast međ Söngkeppni framhaldsskólanna undanfarin ár.  Ţađ er eins og mig minni ađ vinningslögin séu yfirleitt einhverjir vćmnir vellusöngvar.  Kannski er ţađ rangminni.  Hvort sem er ţá er ég ánćgđur međ vinningshafann í ár.  Sá heitir ţví flotta nafni Dagur Sigurđsson og keppti fyrir hönd Tćkniskólans međ uppáhalds Bítlalaginu mínu,  Helter Skelter.

  Samkvćmt reglum keppninnar eru einungis söngtextar á íslensku gjaldgengir.  Ţađ er góđ regla.  Hana mćtti endilega taka upp í Músíktilraunum.  Íslenski textinn hans Dags kallast  Vitskert vera.  Međ Degi er kominn fram á sjónarsviđ ţróttmikill rokksöngvari sem er til alls vís.  Hljómsveitin ađ baki honum var hinsvegar full session-leg.  En fín út af fyrir sig.  Vantađi bara smá greddu í rokkiđ hjá ţeim. 

http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP3381


mbl.is Dagur vann Söngkeppnina
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Spennandi te-leginn ufsi

15_punda_ufsiufsi

  Fyrir nokkrum dögum birti ég hér uppskrift af grćnlenskum rćkjupönnukökum.  Ţađ vakti mikla gleđi og hamingju.  Einkum međal ţeirra sem prófuđu uppskriftina.  Ţó ađ grćnlensku pönnukökurnar séu sćlgćti er hćtta á ađ ţćr verđi leiđigjarnar ţegar ţćr eru snćddar í öll mál alla daga.  Nú er svo komiđ ađ fólk er fariđ ađ biđja um ađra uppskrift til ađ fá ćskilega fjölbreytni í matarćđiđ.  Ţá er upplagt ađ fá sér fćreyskan te-leginn ufsa.

  Ţađ sem til ţarf er 211 gr ufsaflak,  rođlaust og beinlaust.  Síđan er blandađ saman 7 og hálfri matskeiđum af salti,  3 af sykri og 1 og hálfri af Earl Gray te-i (ekki í tepoka).  Blöndunni er nuddađ vel á allt ufsaflakiđ.  Afganginum er stráđ á fat sem rúmar flakiđ.  Flakiđ er lagt ţar ofan á.  Ţví nćst er sellofón-plastfilma strengd yfir fatiđ.  Ţađ er látiđ standa óhreyft í ísskáp í 14 klukkutíma og 7 mínútur.  Ţá er flakiđ skoriđ í ţunnar sneiđar og notađ sem álegg ofan á brauđ.  Ţađ er gott ađ setja smávegis af graflaxsósu međ.  Ufsinn bragđast nefnilega glettilega í humátt ađ graflaxi.   

  Einnig er viđ hćfi ađ setja međ á brauđiđ salatblöndu úr gulum baunum,  kjúklingabaunum,  papriku og púrrulauk.

ufsi


Vandrćđalegur misskilningur

escort

  Ég biđst velvirđingar á ađ textinn virkar ekki á íslensku.  Ţar fyrir utan á góđur brandari eitt sameiginlegt međ lifandi froski;  ef hann er krufinn ţá deyr hann.  En vegna ţess ađ lesendur hafa mismikla eđa -takmarkađa enskukunnáttu er ţó rétt ađ upplýsa ađ enska orđiđ "escort" er annarsvegar nafn á vinsćlli bílategund og hinsvegar heiti yfir fínni vćndiskonu (fylgdarkonu).

  Mađurinn á myndinni virđist vera ítalski folinn Berlusc-horny (Berlusconi).

berlusconiberlusconi Aberlusconi-hookerberlusconi-hooker Aberlusconi wife


Gott ráđ fyrir fólk í dreifbýlinu

  Undanfarna áratugi hef ég ferđast eins og jó-jó (nei, ekki söngvarinn sem spilar á gítar í Kolaportinu) ţvers og kruss um landiđ.  Ţađ er gaman.  En ţađ er ekki eins gaman ađ fylgjast međ íbúafćkkun í hinum ýmsu ţorpum og sveitum.  Einkum er dapurlegt ţegar brottfluttir ţurfa ađ yfirgefa verđlaus hús sín sem standa síđan auđ.  Ađ vísu eru ţessi hús börnum til skemmtunar.  Ţau grýta steinum í rúđurnar og skríđa síđar inn í húsiđ til ađ reykja marijúana.
 
  Ţađ kostar marga peninga,  svita og tár ađ byggja hús.  Ţađ er gríđarmikiđ fjárhagslegt tjón fyrir húseiganda ađ yfirgefa óselt hús.  Auđ hús setja ljótan blett á litlu ţorpin. 
  Viđ ţessu er til ráđ.  Ráđiđ felst í ţví ađ fólk úti á landi hćtti ađ byggja jarđföst hús. Ţess í stađ fái ţađ sér hjólhýsi eđa annarskonar fćranlegt hús.  Ţegar kvótinn er seldur úr ţorpinu ţá er minnsta mál í heimi ađ grípa húsiđ međ sér ţangađ sem atvinnu er ađ fá.  Fjármögnun á nýju húsi á nýjum stađ er úr sögunni.  Líka ađ pakka niđur búslóđinni.  Hún er á sínum stađ inni í húsinu.  Meira ađ segja mjólkurfernan í ísskápnum.  
  Annar kostur viđ fćranleg hús er ţegar hćtta er á snjóflóđi,  grjótskriđu eđa öđrum náttúruhamförum:  Ţá er bara ađ hóa krökkunum í götunni saman til ađ halda á húsinu í öruggt skjól.  Ţeir hafa gaman ađ ţví.  Ţađ ţarf einungis ađ gefa ţeim brjóstsykur eđa kandísmola fyrir.
húsflutningar 

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband