Gamli einbúinn - páskasaga

hús í snjó1

  Gamli einbúinn á afskekkta afdalabýlinu er einn.  Alltaf einn.  Ţađ eru nćstum fjórir áratugir síđan hann bauđ eiginkonu sinni og börnum síđast í heimsókn.  Hann hefur ekkert heyrt frá ţeim síđan.  Reyndar heyrđi hann ekki í ţeim ţá.  Hann var uppi á fjöllum ađ eltast viđ ísbirni allan tímann sem ţau voru í heimsókn.  Hann fann engan ísbjörn og engin merki ţess ađ ísbjörn hafi veriđ uppi á fjöllum.

  Allir ađrir en gamli einbúinn eru fluttir burtu úr sveitinni fyrir löngu.  Ţađ liggur ekki almennilegur vegur til afdalabýlisins.  Bara hlykkjóttur hestatrođningur.  Ţess vegna kemur aldrei neinn lengur í heimsókn.  Einbúinn fer aldrei lengur af bć.  Hann á ekkert erindi annađ.  Á afdalabýlinu hefur hann allt til alls.  Hann er međ kindur,  kýr,  hćnur, hesta,  hund, kött og innrammađa ljósmynd af Davíđ Oddssyni klippta út úr Morgunblađinu.  Meira ţarf hann ekki.
  Póstur hefur ekki veriđ borinn út í sveitinni eftir ađ sveitungarnir fluttu burtu.  Einbúinn saknar ţess ekki.  Hann fékk aldrei annan póst en rukkanir.  Ţađ er gott ađ vera laus viđ ţćr.
.
  Einbúinn lćtur fara vel um sig í myrkrinu.  Hann liggur undir heyhrúgu og malar eins og köttur.  Úti gnauđar norđangarri.  Stórhríđin fyllir upp í hverja glufu.  Ţađ er brunagaddur.  Lífiđ er yndislegt.  Gćti ekki veriđ betra.
  En hvađ er ţetta?  Ţađ heyrist dauft vélarhljóđ í fjarska.  Gamli einbúinn trúir ekki sínum eigin eyrum.  Hann slćr ţéttingsfast á eyrun til ađ eyđa ţessari ofheyrn.  Mótorhljóđiđ ţagnar ekki.  Ţvert á móti.  Ţađ fćrist ört nćr og verđur hávćrra.  Ţetta er undarlegt.  Brátt bregđur fyrir birtu á hélađar rúđurnar.  Einbúinn sprettur upp eins og stálfjöđur og rýnir út um gluggann.  Í ţann mund leggur stór snjóbíll á beltum fyrir utan.  Stórir ljóskastarar lýsa upp hlađiđ.  Út úr bílnum snarast hópur einkennsiklćddra kappdúđađra manna.  Einn er međ járnkarl sem hann lemur kröftuglega ofan í frosna jörđina nokkrum sinnum.  Annar er međ vel yddađan tréstaur sem hann stingur ofan í holuna eftir járnkarlinn.  Sá ţriđji lemur međ sleggju ofan á staurinn uns staurinn er pikkfastur í jörđinni.  Fjórđi mađurinn spennir međ járnhring póstkassa á staurinn.  Fimmti mađurinn stingur stóru umslagi ofan í póstkassann.  Síđan stökkva mennirnir aftur upp í snjóbílinn.  Um leiđ og bílnum er ekiđ á brott í stórri sveigju á hlađinu fer hann yfir hćnsnakofann.  Kofinn brotnar í smátt undir bílnum.  
  Gamli einbúinn getur ekki varist hlátri.  Hann kallar á hundinn:  "Kisi,  nú eru hćnurnar hissa.  Ţćr vita ekki hvađan á sig stendur veđriđ ţegar ţćr fjúka yfir holt og hćđir.  Best gćti ég trúađ ađ ţćr snúist eins og vindhanar og séu ringlađar.  Kisi minn,  svona ćvintýri lenda hćnurnar ekki í á hverjum degi."
  Gamli einbúinn fćr hóstakast.  Ţađ eru mörg ár síđan hann hefur hlegiđ.  Hann er ryđgađur í ţví hvernig á ađ hlćja.  Hann er vanari ađ hósta.  Hann hóstar eins og unglamb.
.
  Gamla einbúanum verđur hugsađ til póstkassans.  Hvađ ćtli sé í umslaginu?  Gamli einbúinn er harđákveđinn í ađ sćkja umslagiđ einhvern daginn.  Jafnvel opna ţađ.  Gamla einbúanum líđur vel eftir ađ hafa tekiđ ţessa ákvörđun.  Hann er sáttur viđ sjálfan sig.  Reyndar ţykist hann vita hvađ sé í umslaginu.  Ţađ getur ekki veriđ annađ en ástarbréf.  Ţađ er enginn friđur fyrir stelpunum,  hugsar gamli einbúinn og hristir hausinn hneykslađur.  Ekki hausinn á sér heldur hausinn á hundinum.
.
  Tíminn líđur hratt á gervihnattaöld.  Vikur og mánuđir líđa.  Ekkert ber til tíđinda.  Gamli einbúinn gjóar stundum augum til póstkassans.  Einkum ţegar hann saknar ţess sárast ađ geta ekki fengiđ sér hrátt egg í matinn síđan hćnurnar fuku út í buskann.  
  Um haustiđ lćtur Gamli einbúinn til skarar skríđa.  Hann tekur umslagiđ úr póstkassanum.  Nafn hans og heimilsfang er prentađ á framhliđ umslagsins.  Á bakhliđinni stendur:  "Sendandi:  Jón Jónsson,  Hökuskarđi 526,  Hólum í Hjaltadal,  Skagafirđi."  Póststimpillinn er skýr og greinilegur.  Ţar stendur dagsetningin 29. febrúar 2152.  Dagsetningin vekur undrun gamla einbúans.  Forvitni hellist yfir hann.  Hann strengir ţess heit ađ skođa innihald umslagsins sem fyrst.  Ekki síđar en um áramótin.  Gamli einbúinn stingur umslaginu undir dautt lamb sem hann notar fyrir kodda og sefur á ţví nćstu mánuđi.       
  Áramótin líđa.  Gamli einbúinn er búinn ađ gleyma umslaginu.  Um voriđ ákveđur hann ađ snúa dauđa lambinu viđ ţví ţađ er morkiđ og komiđ hausfar í ţađ.  Ţá rekst hann á umslagiđ.  Nú dugir ekkert hangs.  Gamli einbúinn kallar á hundinn sinn:  "Kisi,  komdu hérna og opnađu umslagiđ."   Hundurinn svarar engu.  Hann ţykist ekki heyra í gamla einbúanum.  Ţađ er grundvallarregla hjá hundinum ađ hunsa hvern ţann sem kallar hann Kisa.  Ţetta er ekkert persónulegt gagnvart gamla einbúanum.  Reglan á viđ um alla.
  Fleira gerist ekki ţennan dag.  Morguninn eftir sćkir gamli einbúinn skóflu.  Fyrir aftan húsiđ grefur hann upp forláta sveđju.  Ţar gróf hann sveđjuna fyrir nokkrum árum til ađ enginn myndi meiđa sig á flugbeittri egg sveđjunnar.  Gamli einbúinn leggur umslagiđ á viđarbút.  Svo heggur hann međ sveđjunni bláendann af ţví.  Ţví nćst grefur hann sveđjuna niđur aftur.  Stutt frá grefur hann niđur uppáhaldsbein hundsins.  Ţađ er hrekkur.  
  Eftir ţetta leggur gamli einbúinn sig.  Hann er dauđţreyttur.  Hálftíma síđar vaknar hann upp viđ ađ hundurinn pissar framan í hann.  Kannski mýkir ţetta húđina og varđveitir ćskuljóma minn,  hugsar gamli einbúinn jákvćđur og hress.  Hann er í svo góđu stuđi ađ hann kíkir ofan í umslagiđ.  Ţar blasir bréf viđ.  Gamli einbúinn fiskar ţađ upp úr umslaginu eins og vanur veiđimađur.  Ţađ stendur ekkert á bréfinu.  Ţađ er skjannahvítt.  Enginn texti.  Engin mynd   Ekkert.  
  Ţetta er kjánalegt,  hugsar gamli einbúinn.  Öll ţessi fyrirhöfn út af óskrifađri og óprentađri pappírsörk.  Gamli einbúinn hendir pappírsörkinni frá sér.  Ţađ hvarflar ađ honum ađ spretta á fćtur og sparka í hundinn.  Til ađ gera eitthvađ.  Í ţann mund sér hann pappírsörkina snúast viđ áđur en hún lendir á gólfinu.  Ţá blasir prentađur texti viđ.  Gamli einbúinn áttar sig strax á ţví ađ hann hafđi horft vitlausu megin á pappírsörkina áđur en hann henti henni frá sér.  Hann teygir sig í bréfiđ og les ţađ sem í ţví stendur:
.
  Hólum 29. febrúar 2152
  Kćri langalangalangalang-afi.
  Viđ vorum ađ fá nýjan tímaflakkara í skólann.  Mér datt í hug ađ ţađ gćti veriđ gaman ađ skrifast á viđ ţig.  Láttu mig vita hvort ţú hefur fengiđ ţetta bréf.  Ţađ gerir ţú međ ţví ađ grafa snyrtilega X í einn fermetra á hlađinu hjá ţér.  Í X-iđ rađar ţú steinum.  Ţetta X get ég séđ í gegnum gervihnattarhnit.  Ef ţú mokar yfir X-iđ ţannig ađ ekkert sjáist verđur ekki hróflađ viđ X-inu nćstu aldir.  Ţá skal ég póstsenda ţér upplýsingar um ćttingja ţína.  Hvađ á daga ţeirra hefur drifiđ eftir ađ ţú er allur. Ég sé í ćttarskránni ađ ţú varst bóndi.  Ég hlakka til ađ senda ţér fleiri póstbréf.
  Jón Jónsson
.
  Gamli einbúinn horfir undrandi á bréfiđ.  Hann les ţađ aftur.  Svo klippir hann bréfiđ í ţrjá jafn stóra strimla.  Hann teygir sig í gamalt kökubox og dregur ţađan upp vćna tuggu af hassi.  Hassinu skiptir hann á milli strimlanna.  Hann vefur strimlana vönum handtökum upp í vindlinga.  Hann kveikir í einum og sýgur ţykkan reykinn ofan í lungun.  Gamli einbúinn kumrar af hamingju.  Mikiđ er ég alltaf heppinn,  hugsar hann.  Einmitt ţegar mig vantađi bréf kom ţađ í pósti.  Um leiđ og gamli einbúinn berst viđ ađ halda reyknum ofan í lungunum fćrist fyrirlitningarsvipur yfir andlitiđ.  Hann hugsar:  Jón Jónsson.  Ţvílíkt rugl.  Ţađ hefur aldrei veriđ neinn Jón í minni ćtt.
                        
---------------------------------
 Fleiri smásögur og leikrit:
 - Saga af systrum
.
 - Jólasaga
.
- Á rjúpnaveiđum:
.
- Ólétta nunnan:
.
- Gullfiskur:
.
- Flugvélamódel:
.
- Miđaldra mađur:
.
- Leyndarmál stráks:
.

Aldeilis frábćr pönkhátíđ

 

  Pönkhátíđin á Amsterdam í gćr heppnađist frábćrlega vel í alla stađi.  Lagaval var ekki alveg ţađ sama og á pönkhátíđinni í fyrra og hitteđfyrra.   Nokkur lög voru hvíld í ár og mörgum lögum bćtt viđ í stađinn.  Sú nýbreyttni var tekin upp ađ íslensk lög fengu ađ fljóta međ.  Ţau komu úr smiđju Frćbbblanna og Snillinganna.  Báđar hljómsveitirnar spiluđu ásamt fjölda hljóđfćraleikara og söngvara úr Taugadeildinni,  Vonbrigđum,  Svart-hvítum draumi,  Tappa tíkarrassi,  Silfurtónum og fleiri hljómsveitum sem ég man ekki eftir í augnablikinu.  

  Lögin međ Frćbbblunum og Snillingunum styrktu dagskrána.  Gáfu henni meira vćgi.  Ţó fyrri pönkhátíđir hafi veriđ frábćrar ţá var gaman ađ heyra íslensk pönklög í bland viđ ţau útlendu.

  Ólíkt fyrri pönkhátíđunum hófst ţessi ekki á helstu dćmigerđu pönklögunum.  Fyrsta lagiđ var frá Television (sjá eftsta myndbandiđ.  Ég biđst velvirđingar á hvađ lagiđ endar bratt.  Ţađ er ţó ekki mér ađ kenna).  Nćstu lög voru frá The Stranglers,  Blondie (ath.  hljóđiđ dettur ekki inn fyrr en 20 sek. eru liđnar af myndbandinu) og The Jam.   

  Ţađ kom vel út ađ byrja hljómleikana međ ţessum ekki-dćmigerđu pönklögum.  The Jam voru reyndar eins pönkađir og mörg eđal pönksveitin ţó músíkstíll Djammaranna félli undir hatt mod-rokks.  Stemmning pönkára áttunda áratugarins var ţannig ađ pönkiđ var ekki rígbundiđ viđ dćmigerđa pönkiđ.  Nýbylgjan var samheiti yfir ţá músík sem stóđ nćst pjúra pönkinu og ţetta var meira og minna sami hópurinn.  

  Fimmta lagiđ á hljómleikunum var ţjóđsöngur pönksins,  White Riot međ The Clash (afsakiđ vond hljómgćđi í myndbandinu.  Stemmningin er bara svo góđ ađ ţetta er skemmtilegra en myndbönd međ betra hljóđi).  Ţví var fylgt eftir međ  Bodies  frá Sex Pistols.  Skrítiđ ef ég man lagaröđina svona vel.  Gott ef sjöunda lagiđ var ekki frá Stiff Little Fingers.  Heildarlista yfir upprunaflytjendur laganna má sjá á:   www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1035319/

  Ţađ er ástćđulaust ađ tíunda frammistöđu hvers flytjanda á pönkhátíđinni.  Ţeir stóđu sig allir eins og best var á kosiđ.  Ég hef einstaklega gaman af ađ heyra hinn dagfarsprúđa sagnfrćđing Árna Daníel (Q4U,  Snillingarnir) öskra af öllum lífs og sálar kröftum.   Valli er sömuleiđis bráđskemmtilegur og kröftugur söngvari.  Ţá var mikill fengur af innleggi bassaleikarans Jakobs Smára Magnússonar (Tappi tíkarrass,  Das Kapital) og trommusnillingsins Birgis Baldurssonar (Svar-hvítur draumur).  Ţeir voru nýir í hópi flytjanda,  eins og fleiri.  

  Hafi allir sem fram komu á pönkhátíđinni hinar bestu ţakkir fyrir frábćra skemmtun.  Ég er strax farinn ađ hlakka til pönkhátíđarinnar 2011.

 


Kvikmyndarumsögn

 - Ttitill:  Kóngavegur

 - Höfundur og leikstjóri:  Valdís Óskarsdóttir

 - Leikarar:  Gísli Örn Garđarsson,  Daniel Brühl,  Ingvar E. Sigurđsson,  Kristbjörg Kjeld,  Nanna Kristín Magnúsdóttir,  Ólafur Darri Ólafsson,  Ólafur Egilssn...

 - Einkunn:  ** (af 5)

  Fyrst er ţess ađ geta ađ ferilsskrá Valdísar Óskarsdóttur er glćsileg.  Valdís er "klippari" á heimsmćlikvarđa.  Kvikmynd hennar  Sveitabrúđkaup  er fín.  Ţannig mćtti áfram telja.  Kvikmyndin  Kóngavegur gengur hinsvegar ekki alveg upp.  Hún er ósannfćrandi.  Stemmningu úr hjólahýsahverfi í suđurríkjum Bandaríkja Norđur-Ameríku er skellt hrárri niđur í útjarđar Kópavogs.  Íbúarnir eru ýmist eđa allt í senn nautheimskir,  snarklikkađir,  tilfinningabrenglađir,  fullir,  dópađir og illa vankađir.  Fjölskyldutengsl eru losaraleg í meira lagi og brengluđ.

  Gallinn er sá ađ heilt samfélag hjólhýsapakks af ţví tagi sem í Bandaríkjunum kallast "white trash" er ósannfćrandi í íslensku umhverfi.  Ţetta gengur jafn illa upp og ef eskimóasamfélagi međ snjóhúsum og sleđahundum vćri plantađ á sólarströndu á Spáni.  

  Ţađ má samt alveg brosa ađ sumum senum.  Jafnvel skella upp úr.  Ţetta er,  jú,  gamanmynd.  Og sitthvađ ber til tíđinda.  Sumt óvćnt.  Ţađ er engin lognmolla.  Músíkin er líka ljómandi:  Lay Low,  Utangarđsmenn,  Ham,  Ţeysarar,  Björk...


Rokkhátíđ ársins

  Ţađ verđur brjálađ stuđ á Kaffi Amsterdam í kvöld.  Um ţrjátíu manna hópur úr frumherjadeild íslensku pönksenunnar mun rifja upp helstu pönksöngva frá seinni hluta áttunda áratugarins og ţar sem nćst.  Bćđi erlenda og íslenska.  Međal ţeirra sem spila og syngja eru liđsmenn Frćbblanna,  Q4U,  Tappa tíkarrass,  Svart-hvíts draums,  Taugadeildarinnar,  Das Kapital,  Vonbrigđa o.fl. 

  58 lög verđa afgreidd úr smiđju eftirtalinna:

Sex Pistols
Ramones
Clash
Jam
Stranglers
Stiff Little Fingers
Blondie
Elvis Costello
Undertones
Buzzcocks
Damned
Television
Sham 69
PiL
Ruts
Specials
Saints
UK Subs
Magazine
Frćbbblarnir
Snillingarnir

  Fjöriđ hefst klukkan 23.00 (27. mars) og stendur til 2.35 (28. mars).  Ţetta er í ţriđja skipti á jafn mörgum árum sem gullaldarár pönksins eru rifjuđ upp á ţennan hátt.  Ţađ hefur veriđ geđveikt gaman á ţessum pönkhátíđum.  Allt stefnir í ađ ţessi verđi toppurinn.

  Lögin á myndböndunum sem hér fylgja verđa flutt á pönkhátíđinni.  Grunar mig.


Sprengja á bókamarkađi

  Í dag kom út bókin  Ekki lita út fyrir  eftir Evu Hauksdóttur og Ingólf Júlíusson.  Eva er ţekkt sem Eva norn.  Sumir telja ađ ţá nafngift megi rekja til nornabúđar sem hún rak fram í miđja búsáhaldabyltingu.  Eva var einmitt áberandi í búsáhaldabyltingunni.  Ingólfur Júlíusson er ţekktastur sem gítarleikari pönksveitarinnar Q4U.  Hann er líka kunnur sem ljósmyndari hinna ýmsu dagblađa og tímarita og höfundur margra heimsfrćgra músíkmyndbanda.

  Bókin  Ekki lita út fyrir  mun koma margri settlegri manneskjunni til ađ hrökkva viđ.  Jafnvel illilega.  Meira segi ég ekki.  Nema ađ Eva ćtlar ekki ađ fjölmenna međ mér í feministafélag Sjálfstćđisflokksins. 

Hér fyrir neđan er eitt af músíkmyndböndunum hans Ingólf Júlíussonar:


Skemmtileg úttekt á landsţingi Frjálsynda flokksins

  Sú ágćta,  frábćra og góđa kona,  fyrrum rokkstjarna,  Ásthildur Cesil Ţórđardóttir,  birti á bloggsíđu sinni ljósmyndir og texta um landsţing Frjálslynda flokksins.  Ţađ var haldiđ á Hótel Cabin um síđustu helgi.  Ásthildur er hugsjónamanneskja fram í fingurgóma og blogg hennar eru gullmolar á gullmola ofan.  Ljósmyndir frá Ísafirđi í hćsta gćđaflokki og hugleiđingar sem vekja til umhugsunar.  Hér er ljósmyndir hennar og frásögn af landsţingi Frjálslynda flokksins um helgina:   

http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/1033802/


Broslegar blađaauglýsingar

gömul auglýsing

  Ţađ er gaman ađ skođa gamlar auglýsingar.  Ţćr eru samt ekkert svo gamlar ţessar.  En tíđarandinn hefur breyst.  Heldur betur.  Ţess vegna eru ţessar auglýsingar grátbroslegar.  Hér fyrir ofan er veriđ ađ auglýsa nýjan skrúftappa á tómatsósuflösku.  Svo auđvelt er ađ rjúfa innsigli tappans ađ í auglýsingatextanum segir ađ jafnvel kona geti opnađ flöskuna.

gömul auglýsing1

   Svona fer fyrir eiginkonum sem standa sig ekki í ţví ađ bjóđa upp á ferskasta kaffiđ á markađnum.

gömul auglýsing4

   "Kokkurinn gerir allt nema baka.  Konur sjá um ţađ." 

   Ţetta er smá orđaleikur.  Matvinnsluvélin heitir "Kokkur" (Chef).

gömul auglýsing5

  "Ţađ er notalegt ađ hafa konu í húsinu."

gömul auglýsing9

  "Ţví harđar sem konan leggur ađ sér ţeim mun krúttlegri er hún."

  Hér er veriđ ađ auglýsa örvandi vítamínpillur.


Ónákvćm fréttamennska

  Mér barst ábending um vafasama frétt um mig á netsíđu sem heitir sannleikur.com.  Ţar er ég sagđur vera forsprakki hryđjuverkahóps Moggabloggara.  Ég hef grun um ađ ţarna sé fariđ rangt međ.  Einhver hafi misskiliđ eitthvađ eđa sögusagnir fariđ úr böndunum.  Ţetta er hiđ dularfyllsta.  Sjá:  http://sannleikurinn.com/heim/node/614 

Magnús Geir dreymdi fyrir eldgosinu

  6. mars dreymdi Magnús Geir Guđmundsson eftirfarandi draum og skráđi á Fésbókina.  Ég var eldsnöggur ađ ráđa drauminn: 

Magnús Geir Guđmundsson Dreymdi merkilegan draum í nótt. Eina af Fésvinkonum mínum, stutthćrđa fannst mér. m.a. sátum viđ saman í bíl, hún í ökumannssćtinu og ég fyrir aftan og strauk ég háls hennar létt! Man annađ ekki eins vel. Hvađ ćtli ţetta merki?  6. mars kl. 15:25

Jens Gud
Ţetta er augljós fyrirbođi um eldgos.  6. mars kl.  23:26
.
.
.


mbl.is Vaxandi hraunrennsli
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Vel heppnađ landsţing Frjálslynda flokksins

sigurjonástagretar_mar

  Um hundrađ manns sóttu vel heppnađ landsţing Frjálslynda flokksins um helgina.  Guđjón Arnar Kristjánsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.  Í hans stađ var Sigurjón Ţórđarson,  fyrrverandi alţingismađur,  kjörinn formađur.  Sigurjón er Hegranesgođi,  formađur Ungmennasambands Skagafjarđar,  sundmeistari Skagafjarđar,  landsmótskóngur í sjósundi,  framkvćmdastjóri Heilbrigđiseftirlits Norđurlands,  líffrćđingur,  nemi í stjórnsýslufrćđum og ţannig mćtti lengi áfram telja.

  Ţetta eru tíđindi.  Ţetta er í fyrsta skipti í heiminum sem formađur stjórnmálaflokks í heiminum er gođi og sundmeistari Skagafjarđar.

  Spenna ríkti um kosningu varaformanns.  Sitjandi varaformađur,  Kolbrún Stefánsdóttir,  gaf kost á sér til endurkjörs.  Ásta Hafberg gaf einnig kost á sér.  Leikar fóru ţannig ađ Ásta var kosin nýr varaformađur Frjálslyndra. 

  Grétar Mar Jónsson,  fyrrverandi alţingismađur,  var kjörinn ritari. 

  Guđjón Arnar Kristjánsson var kjörinn formađur fjármálaráđs.  Ađrir í fjármálaráđ voru kjörnir Benedikt Heiđdal,  Björgvin Vídalín,  Grétar Pétur Geirsson og Pétur Guđmundsson (kallađur Sela-Pétur).

  Ţessi voru kosin í miđstjórn

  Georg Eiđur Arnarson

  Grétar Pétur Geirsson

  Guđmundur Hagalínsson

  Hafsteinn Ţór Hafsteinsson

  Helga Ţórđardóttir

  Jóhann Berg

  Jóhanna Ólafsdóttir

  Pétur Guđmundsson

  Ragnheiđur Ólafsdóttir

  Rannveig Bjarnadóttir

  Valdís Steinarsdóttir

  Ţorsteinn Bjarnason

  Varamenn í miđstjórn eru:  Rannveig Höskuldsdóttir,  Magnús Reynir Guđmundsson og Björgvin Vídalín.

  Afskaplega léttur og skemmtilegur andi ríkti á landsţinginu.  Gaman var ađ sjá ţarna mćtt fólk sem hafđi hrökklast úr flokknum vegna ofríkis Kristins H.  Gunnarssonar og ađra sem yfirgáfu flokkinn međ Jóni Magnússyni.  Tíđindi bárust af fleirum úr ţessum hópum sem eru á leiđ í flokkinn á ný.  Ţađ er bjartsýni og mikill baráttuhugur í fólki.  Og ástćđa til.  Međal annars sýndi könnun á vísir.is í vikunni ađ 30% landsmanna telja Frjálslynda flokkinn eiga bráđnauđsynlegt erindi í íslensk stjórnmál í dag.  Öll helstu baráttumál flokksins njóta ađ auki stuđnings meirihluta landsmanna.   

    


Mađur giftist hćnu

  hćnur

  Í nóvember giftist Japani nokkur viđ hátíđlega athöfn internetkonu úr Nintendo tölvuleiknum "Ást Plús".  Á dögunum giftist mađur í Kóreu sćng međ mynd af konu.  Mig minnir ađ Indverji hafi um svipađ leyti einnig gifst kodda međ mynd af konu.  Rétt í ţessu var tćplega ţrítugur kóreanskur mađur ađ giftast hćnu.  Viđ athöfnina var hćnan klćdd brúđarslöri.  Mađurinn tekur hćnuna međ sér hvert sem hann fer:  Á veitingahús,  í kvikmyndahús,  í tívolí og og svo framvegis.  Hćnan situr í eigin sćti og á matsölustöđum fćr hún ađ snćđa af sínum diski og drekka úr sínu vatnsglasi. 

  Mađurinn heldur ţví fram ađ hćnan sé jafn ástfangin af honum og hann af henni.   Hćnan hefur ekki ţrćtt fyrir ţađ.

  Hćnurnar á ljósmyndinni hér fyrir ofan eru ógiftar.


Gríđarmikill áhugi á landsţingi

  Landsţing Frjálslynda flokksins verđur haldiđ um helgina á Hótel Cabin í Reykjavík.  Ţađ er spenna í loftinu.  Formađur síđustu 7 ára og ţingmađur síđan 1999,  Guđjón Arnar Kristjánsson,  gefur ekki kost á til áframhaldandi formennsku en sćkist eftir áframhaldandi setu í miđstjórn.  Sigurjón Ţórđarson,  fyrrverandi alţingismađur.  hefur látiđ undan gífurlegum ţrýstingi um ađ gefa kost á sér til formanns.  Svo virđist sem einhugur ríki um frambođ Sigurjóns.

  Ásta Hafberg gefur kost á sér til varaformanns.  Grétar Mar,  fyrrverandi alţingismađur,  gefur einnig kost á sér til varaformanns.  Ţađ er spurning hvađ sitjandi varaformađur,  Kolbrún Stefánsdóttir,  gerir.

  Formađur fjármálaráđs,  Helgi Helgason,  gefur ekki kost á sér til endurkjörs. 

  Ţađ er mikil stemmning fyrir landsţinginu.  Samkvćmt skođanakönnun á www.visir.is telja um 30% Frjálslynda flokkinn eiga brýnt erindi í íslenskri pólitík í dag.  Helstu stefnumál flokksins njóta stuđnings meirihluta landsmanna.  Sjá: www.xf.is.   

  Á annađ hundrađ manns (101) sóttu landsţing Frjálslynda flokksins á Stykkishólmi fyrir ári.  Mér segir svo hugur ađ ennţá fleiri sćki landsţingiđ á Hótel Cabin.


Áríđandi ađ leiđrétta

  Í fréttum sjónvarpsins af nýjustu tíđindum frá bandarísku  Frćgđarhöll rokksins  (Hall of Fame) var fullyrt ađ breska hljómsveitin The Hollies hefđi veriđ nefnd í höfuđiđ á rokksöngvaranum Buddy Holly.  Ţetta er ekki í fyrsta skipti sem ég heyri ţessu haldiđ fram.  Á Wikipedíu er Graham Nash borinn fyrir ţessari sögu.

  Hiđ rétta er ađ nafniđ Hollies var upphaflega sótt í greinar af jólatrjám.  Ţessar greinar eru hengdar upp hér og ţar yfir jól á heimilum í Manchester á Englandi og víđar.  Ţađ mćtti ţýđa orđiđ  hollies  sem hátíđarskraut.  Kannski.  Eđa eitthvađ í ţá áttina.

  Hitt má fylgja sögunni ađ liđsmenn The Hollies kunnu vel viđ rokk Buddys Hollys.  Eins og flestir ađrir sem tilheyrđu kynslóđ bítlarokkara sjöunda áratugarins.  Vel má vera ađ Graham Nash hafi einhversstađar sagt í hálfkćringi og galsa ađ nafn hljómsveitarinnar vćri tilvísun í Buddy Holly.  En Graham Nash er ţekktur lygari.   

  The Hollies voru aldrei sérlega građir rokkarar.  En reyndu sitt besta samt stundum.  Jamaíski reggípopparinn Jimmy Cliff hefur heldur aldrei veriđ mikill rokkari.  Hann var vígđur inn í  Frćgđarhöllina  á sama tíma og The Hollies:

  Bandaríska hljómsveitin The Stooges var einnig vígđ í  Frćgđarhöllina.  Sú hljómsveit rokkar:

 


Sparnađarráđ

  Núna á ţessum ţrengingartímum er áríđandi ađ hafa ráđ undir rifi hverju.  Eđa svoleiđis.  Beita öllum ráđum sem hugsast getur til ađ ná fram ýtrasta sparnađi.  Sýna samstöđu og skiptast á sparnađarráđum.  Hér er eitt sem getur sparađ heimili ţínu gífurlega háar upphćđir međ tíđ og tíma:

  Ţegar ţú átt leiđ í matvöruverslun er best ađ velja háannatíma.  Ţú vćflast eins og illa gerđ tuska svo lítiđ ber á í nálćgđ viđ útgöngudyrnar.  Ekki líđur á löngu ţangađ til kúnni gengur hjá og hendir í leiđinni kassakvittuninni.  Ţá er lag.  Ţú tekur kassakvittunina upp,  snarast inn í búđ og verslar allt ţađ sama og sá sem henti kvittuninni.  Góssinu stingurđu í góđan margnota innkaupapoka og ţvćlist međ ţetta út á leiđ.  Ţá pípar ţjófavarnarkerfiđ og starfsmađur kemur hlaupandi.  Ţú sýnir honum kvittunina og biđur hann um ađ fara yfir innihald pokans.  Allt stemmir eins og stafur á bók og ţú ert beđin/n afsökunar á ónćđinu.

  Ţetta sparnađarráđ er ekki frá mér komiđ og ég fordćmi ţađ.  Hér eru fleiri sparnađarráđ:

matvöruverslun1

 


mbl.is Dregiđ úr vćgi verđtryggingar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Grallaragangur á Fésbók

  Í gćr barst mér njósn af furđulegri síđu á Fésbók.  Síđan ber yfirskriftina  "Nei,  nú hringi ég í Jens".  Í  "haus"  hennar er ljósmynd af mér.  Sú sama og hér á ţessari bloggsíđu.  Í skilabođakerfi síđunnar fylgir myndin jafnframt skilabođum frá ţeim sem halda um stjórnvöl síđunnar:  http://www.facebook.com/#!/pages/Nei-nu-hringi-eg-i-Jens/287639844796?ref=nf .

  Síđan er mér algjörlega óviđkomandi.  Engu síđur hef ég gaman af.  Ekki síst vegna ţess ađ nokkrum klukkutímum eftir stofnun síđunnar voru skráđir ađdáendur hennar orđnir yfir 2300.  Sjálfur er ég ekki međ nema rúmlega 1300 skráđa Fésbókarvini sem hafa safnast á meira en hálfu ári.  Ţannig ađ ţetta er allt hiđ undarlegasta dćmi.

  Kann einhver hér á ţađ hvernig hćgt er ađ finna út hver stofnar svona síđu?

 


Sigurjón Ţórđarson gefur kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum

  sigurjon

  Frá ţví ađ Guđjón Arnar Kristjánsson,  núverandi formađur Frjálslynda flokksins,  upplýsti ađ hann ćtli ekki ađ gefa kost á sér til endurkjörs hefur veriđ gríđarlegur ţrýstingur á Sigurjón Ţórđarson,  fyrrum alţingismann,  ađ bjóđa sig fram til formennsku.  Hann hefur nú hlýtt kallinu.  Hér má sjá viđtal í Feyki í tilefni ţessa:  http://www.feykir.is/archives/21001

  Sigurjón er vinsćll og virtur utan sem innan Frjálslynda flokksins.  Flokkinn vantađi ađeins herslumun á ađ halda sjó í síđustu alţingiskosningum,  eftir ađ tveir ţingmenn höfđu yfirgefiđ hann,  Kristinn H.  Gunnarsson,  sem gekk í Framsóknarflokkinn,  og Jón Magnússon,  sem fór í Sjálfstćđisflokkinn.

  Frjálslyndi flokkurinn á fulltrúa í sveitastjórnum og er til alls líklegur í sveitastjórnarkosningunum í vor. 


mbl.is Sigurjón í formannskjör
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hvenćr byrja menn ađ neyta fíkniefna?

robbiewilliams

  Ég veit ekki af hverju síđustu fćrslur mínar fjalla um eiturlyf.  Kannski er undirmeđvitundin ađ búa mig undir ađ verđa dópisti.  Eđa ţá ađ ţetta er tilviljun.  Í Morgunblađinu er frétt af breska píkupopparanum leiđinlega,  Robbie Williams.  Ţar er sagt ađ hann hafi byrjađ ađ neyta fíkniefna 1993.  Jafnframt er upplýst ađ áđur en hann fór ađ neyta fíkniefna hafi hann veriđ í e-pillunni, spítti og sýru. 

  Einhverra hluta vegna rifjar ţetta upp dómsorđ í líkamsárásarmáli.  Ţar sagđi frá tveimur mönnum sem hittust á götu í Vestmannaeyjum.  Eftir rifrildi og hótanir fóru ţeir ađ kýla og sparka í hvorn annan.  Síđan stóđ í dómnum:  "Ţessu nćst fóru ţeir ađ slást". 


Sólbađslögga í uppsiglingu

löggan1

  Ţađ kitlar margan embćttismanninn ađ setja lög til ađ siđa skrílinn.  Stjórnsamur embćttismađur grípur hvert tćkifćri sem gefst til ađ stýra hegđun óţroskađri einstaklinga.  Oft er ákafinn slíkur ađ til vandrćđa horfir.  Dćmi um ţađ er ţegar mikil "móđursýki" greip um sig er tveir franskir vísindamenn skrifuđu grein í fagtímarit um tilraun sem ţeir gerđu á rottum.  Létu ţćr svamla vikum saman í tilteknum efnum sem finnast í sólvarnarkremum.  Međ tíđ og tíma greindu ţeir krabbameinsmyndun í rottunum.

  Heilbrigđisyfirvöld,  einkum á Norđurlöndunum,  brugđust skjótt viđ og fóru í gífurlega herferđ gegn sólkremum.  Svo rammt kvađ ađ ţessu ađ í Danmörku voru sólvarnarkrem tekin úr sölu.  Frönsku vísindamönnunum var brugđiđ.  Ţetta var kolvitlaus túlkun á rannsókn ţeirra.  Ţeir sendu frá sér yfirlýsingu ţar sem fólk var hvatt til ađ nota sólvarnarkrem.  Skammturinn af sólvarnarefnunum sem rotturnar svömluđu í var margmilljónfaldur á viđ ţađ sem manneskja notar ţegar hún ber á sig sólvarnarkrem.  Rann ţá móđur af embćttismönnum og sólkrem voru aftur tekin í sölu. 

  Ţetta var fyrir röskum áratug.  Aldarfjórđungi áđur greip um sig svipuđ taugaveiklun varđandi gosdrykkinn Fresca.  Hann var sagđur baneitrađur.  Ţegar betur var ađ gáđ ţurfti ađ drekka daglega 37 flöskur af honum áđur en ástćđa var til ađ hafa áhyggjur.

  Nú eru embćttismenn í kasti vegna sólbađa.  Hugmyndir eru uppi um ađ ungt fólk verđi ađ framvísa skírteini sem sannar ađ ţađ sé 18 ára eđa eldra til ađ fá ađ liggja í sólbađi.  Ţađ ţarf ađ stofna sérstaka sveit sólbađslögreglu til ađ fylgja eftir fyrirhuguđum lögum um ađ einungis fullorđnir einstaklingar megi njóta góđs af sólböđum.  Myndin hér fyrir ofan sýnir forvörn af ţessu tagi.  Ţarna var ekki víst ađ einstaklingur hefđi náđ 18 ára aldri er hann reyndi ađ fá sólarljós á kroppinn.

  Stađreyndin er sú ađ sólarljósiđ er forsenda lífs á jörđinni.  Áhrif sólarljóssins er okkur á Norđurhjara augljós.  Ţegar sól hćkkar á lofti ađ vori breytir náttúran um svip.  Tré laufgast,  blóm spretta út,  skordýr lifna viđ og mannlífiđ tekur á sig líflegan blć.

  Sólarljósiđ er bráđhollt.  Sólbökuđ húđ framleiđir D-vítamín sem kemur af stađ upptöku á kalki og styrkir bein,  tennur,  hár og húđ.  Ljósiđ vinnur gegn ýmsum húđsjúkdómum,  svo sem exemi,  sóríasis,  bólum o.s.frv.  Ljósiđ framkallar gleđibođefni í heilanum og vinnur ţannig gegn ţunglyndi.  Ljósiđ er einnig kynörvandi og dregur verulega úr líkum á krabbameini af flestu tagi.  Sólböđ eru holl.  Virkilega holl.

  Hitt er annađ mál ađ hćgt er ađ ofbjóđa sér međ sólarljósi.  Alveg eins og međ ofţambi á lýsi og inntöku á ýmsum vítamínum.  Ţađ er önnur saga.

ljósabekkur  

   

         


mbl.is D-vítamín mikilvćgara en taliđ var
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Eiturlyfjasalar grunađir um ólöglega starfshćtti

  Starfsmenn SÁÁ fylgjast glöggt međ ţróun verđlags á vinsćlustu eiturlyfjum.  Verđiđ er samviskusamlega uppfćrt á heimasíđu félagsins.  Verđsveiflurnar eru hinar fróđlegustu og vekja spurningar.  Ţannig kemur fram ađ verđ á amfetamíni var 6200 kr.  í desember en hefur lćkkađ niđur í 5470 kr.  Grasiđ hefur lćkkađ úr 4800 kr.  í 3710.  Kókaíniđ úr 18.300 í 12.420.  Ţannig mćtti áfram telja. 

  Athygli vekur ađ ţróun hefur orđiđ sú ađ verđ á eiturlyfjum er orđiđ nákvćmara.  Ţađ er ekki lengur "rúnnađ" viđ 100 kallinn heldur 10 kalla.  Bankastarfsmenn hafa orđiđ varir viđ ţetta.  Eiturlyfjasalarnir koma í hópum í bankana til ađ skipta 1000 köllum í 10 kalla.  Á skemmtistöđum má jafnframt ţekkja eiturlyfjasala úr vegna ţess ađ vasar ţeirra eru bólgnir af 10 köllum.

  Nákvćm verđlagning bendir sterklega til ţess ađ eiturlyfjasalar stundi verđsamráđ.  Ţađ er stranglega bannađ.  Samkeppnisstofnun verđur ađ taka snöfurlega á ţví.  Ţangađ til Samkeppnisstofnun hefur fellt dóm yfir eiturlyfjasölum og sektađ ţá fyrir ólöglegt verđsamráđ er brýnt fyrir eiturlyfjakaupendur ađ fá nótu fyrir öllum kaupum.  Svo getur fariđ ađ ţeir eigi skađabótarétt gagnvart eiturlyfjasölunum.  Verđlćkkun á eiturlyfjum vćri hugsanlega mun meiri ef ekki vćri um verđsamráđ ađ rćđa.  Einkum er líklegt ađ verđ á kókaíni vćri ennţá lćgra vegna ţess ađ flestir útrásarvillingarnir og fylgihnettir ţeirra eru fluttir til útlanda.  Eftirspurn er ţví lítil miđađ viđ ţađ sem áđur var.

kókaín

     


mbl.is Handtekinn á leiđ heim úr fangelsinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Rokkveisla á laugardaginn

wacken2010

Hljómsveitakeppnin  Wacken Metal Battle  verđur haldin á Sódóma Reykjavík
nćsta laugardag (13. mars).  Sjö íslenskar hljómsveitir berjast um heiđurinn af ţví ađ
komast út til ađ spila á  Wacken Open Air  í Ţýskalandi og taka ţátt í lokakeppni 
Wacken Metal Battle  ţar. Til mikils er ađ vinna, ţví sigurhljómsveitin
fćr plötusamning, heilan haug af hljóđfćrum og grćjum og verđur bókuđ
til ađ koma fram ári síđar á hátíđinni sem eitt af númerum hennar.

Sigurhljómsveitin í undankeppninni er valin af dómnefnd, en hvorki meira
né minna en 6 erlendir ađilar, blađamenn, umbođsmenn og tónleikahaldarar,
koma til landsins til ađ skipa 10 manna dómefnd, ţar á međal
yfirmađur keppninnar frá Ţýskalandi.

Sveitirnar sem munu bítast um hnossiđ í ár eru svo sannarlega međ ţví
besta sem landiđ hefur upp á ađ bjóđa í ţungarokkinu:

GONE POSTAL
CARPE NOCTEM
GRUESOME GLORY
WISTARIA
UNIVERSAL TRAGEDY
SEVERED CROTCH
ATRUM

Atrum byrjar og Gone Postal spila síđast.

Miđasalan er hafin á:

www.midi.is/tonleikar/1/5878/

  Einnig koma fram tvćr gestasveitir, BENEATH og MOMENTUM. Beneath fór
međ sigur af hólmi í íslensku keppninni í fyrra og Momentum eru ađ koma
fram í fyrsta sinn á ţessu ári.

Húsiđ opnar 20:00 og fer fyrsta sveit á sviđ 20:45
Miđaverđ er 1.300 kr.

Ţađ er ţví sannkölluđ ţungarokksveisla hér á ferđinni og tvímćlalaust
einn af stćrstu viđburđunum í ţessum geira í ár, enda verđur Sódóma
fćrđur í sérstakan búning, leigt inn auka lýsingarbúnađur og allt gert
til ađ viđburđurinn verđi sem flottastur.


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.