6.3.2010 | 23:43
Kvikmyndarumsögn
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.3.2010 | 01:38
Pálmi Haraldsson er fórnarlamb
Það er gífurlega fróðlegt að lesa í helgarblaði DV 5 blaðsíðna viðtal við Pálma Haraldsson, kenndan. Afsakið. Ég fékk óvænt hóstakast. Já, kenndan við Fons, Iceland Express, Skeljung, Securitas, Sterling, FL Group, matvörukeðjuna Iceland, Feng og Sölufélag garðyrkjumanna.
Pálmi iðrast:
"Ég iðrast þess að hafa verið þátttakandi."
"Ég axla mína ábyrgð... Ég var þátttakandi í þessu."
"Ég ætla ekki að draga úr minni ábyrgð... Ég var þátttakandi í þessu."
"Ég var drifinn áfram af græðgi."
"Auðvitað gerði ég mistök.""Eins og fáráðlingur keypti ég mér einkaþotu 2006."
"Við verðum að axla okkar ábyrgð."
"Við fórum fram úr okkur."
"Við hegðuðum okkur bara eins og fífl og ég tók þátt í því."
"Við höfum algjörlega misstigið okkur og orðið okkur til skammar."
"Það var ekkert sem stenst skoðun í því máli siðferðislega séð."
"Við hlupum fram úr okkur."
"Algjörlega fram úr hófi."
"Menn fóru fram úr sér."
"Það er alveg ljóst að við fórum fram úr okkur."
"Þetta var ekki heilbrigt."
"Það var algjörlega galið og engan veginn réttlætanlegt."
"Margföldunarstuðlarnir sem notaðir voru til að reikna virði fyrirtækja 2002 til 2008 standast ekki skoðun. Það var út úr kortinu hvernig fyrirtækin voru verðmetin."
"Sú eignabóla sem myndaðist stóðst ekki neina skoðun."
"Frá öllum sjónarhornum fór risna fyrirtækja algjörlega fram úr öllu hófi."
"Sé ég eftir mannorði mínu? Já, alveg gríðarlega."
Pálmi er þó ekki alveg til í taka á sig alla sök þegar betur er að gáð. Enda engin ástæða til:
"Ég er fórnarlamb."
"Ég fór eftir þeim siðferðisreglum sem voru í gildi. Þær voru galnar."
"Þú ert í viðskiptum og það er ákveðið siðferði í gangi."
"Ég var bara þátttakandi í því að fara út á miðin og veiða alveg upp að landhelgi því að það var ekkert sem bannaði það.""
"Ég braut engin lög."
"Ég var þátttakandi í leiknum."
"Ég var þátttakandi í útrásinni.
"Ég ber ekki ábyrgð á hruninu, en ég tók þátt í að tjakka upp blöðruna."
"Það voru einfaldlega gerð mistök."
"Þetta voru bara þeir tímar sem voru í gangi þá."Þetta voru þeir stuðlar sem voru í gangi þá."
"Þetta voru þær reglur sem voru í gildi."
"Þetta voru þær leikreglur sem voru í gangi, skrifaðar sem óskrifaðar."
"Við fórum eftir þeim reglum sem voru í gildi á þeim tíma."
"Við vorum bara að vinna eftir þeim reglum og lögum sem voru í gildi þá."
"Við tókum þátt í viðskiptalífinu eftir þeim reglum sem voru í gildi þá."
"Flestir í samfélaginu voru þátttakendur í kerfinu."
"Myndir þú ekki taka þátt ef bankinn kæmi til þín og biðja þig um að taka lánið gegn 5 milljón króna þóknun fyrirfram auk þess sem þú myndir fá helminginn af hækkun hlutabréfanna?"
Hverjum eru hinir raunverulegu sökudólgar? Pálmi er með það á hreinu:
"Stjórnvöld settu reglurnar."
"Ég er ekki í vafa um hverjir brugðust. Að sjálfsögðu eftirlitsstofnanirnar. Sá sem setur lög og reglu."
"Ráðandi aðilar í bönkunum og í atvinnulífinu höfðu langmest áhrif á hvernig staðan var orðin."
"Seðlabankinn og hið opinbera völdu langversta kostinn."
"Ég held að Davíð, Geir og Árni hafi engan veginn gert sér grein fyrir því hvaða afleiðingar þessi ákvörðun þeirra myndi hafa."
"Það er alveg ljóst hverjir bera ábyrgð á ástandinu. Það eru að sjálfsögðu þeir þingmenn sem voru í meirihluta á Alþingi þegar leikreglurnar í viðskiptalífinu voru búnar til. Það eru að sjálfsögðu eftirlitsaðilarnir, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið. Það eru eigendur og stjórnendur bankanna...Forystumenn í atvinnulífinu og samtök þeirra."
"Þetta var mjög öfgafullt hagkerfi sem orðið var til á Íslandi."
"Þetta var einfaldlega bara typpakeppni."
"Íslensku bankarnir voru engan veginn hæfir til að taka við þessu fjármagni og koma því í umferð."
"Allir eiga þar hlut að máli sem voru í viðskiptum."
![]() |
Ekki enn vor á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2010 | 01:04
Rugl í Fréttablaðinu
Nýráðinn ritstjóri, Ólafur Þ. Stephensen, skrifar leiðara í Fréttablaðið í dag. Góðan leiðara um margt. Þar fullyrðir hann að dægurtónlist sé ágætlega sinnt af öðrum útvarpsstöðvum en RÚV. Þetta er alrangt. Áður en farið er nánar út í það skal tekið fram að ég er afskaplega ánægður með X-ið 977. Ekki síst músíkina sem þar er spiluð: Lauflétt og glaðvært rokk í bland við skemmtilegar umræður í síðdegisþættinum Harmageddon. Þar fara Máni og Frosti á kostum.
Aðrar músíkútvarpsstöðvar gera út á píkupopp, hnakkarúnk og skallapopp. Það jukk er afskaplega einlitt. Mér er alveg sama um það. En því fer víðs fjarri að hægt sé að kvitta undir að dægurmúsík sé ágætlega sinnt með þeirri síbylju einhæfs léttpopps.
Íslensk grasrótardægurmúsík er afskipt í dagskrá þessara dægurmúsíkstöðva. Þær eru lokaðar fyrir því sem um er að vera í dægurmúsík utan léttpoppsins. Ég hef margoft tekið þátt í tónlistarviðburðum þar sem allar útvarpsstöðvar eru lok, lok og læs og allt úr stáli - aðrar en RÚV.
Ég nefni eitt dæmi: 2002 átti færeyska rokksveitin Týr vinsælasta lagið á Íslandi, Orminn langa. Platan með laginu, How Far to Aasgard, var söluhæsta platan á Íslandi. Týr fyllti hverja hljómleikahöllina á fætur annarri þvers og kruss um landið. Í Ölfusi komst rétt helmingur gesta inn. Hljómleikar Týs í Smáralind jöfnuðu aðsóknarmet Rottweilerhunda. Fyrir framan verslun Skífunnar í Smáralind myndaðist lengri röð eftir eiginhandaráritunum Týs-liða en áður hafði sést.
Aðeins ein útvarpsstöð spilaði Tý: Rás 2. Ég talaði við dagskrárgerðarmenn á öðrum útvarpsstöðvum. Svarið var: "Jú, það er mikið verið að biðja um Orminn langa sem óskalag en þetta lag passar ekki inn í þann músíkramma sem okkur er markaður."
Ég gæti talið upp mörg önnur dæmi. Jafnvel fráleitari. Á tímabili voru Megas og Bubbi hvergi spilaðir nema á rás 2. Það var þegar þessir tveir voru ekki á útgáfusamningi hjá plötufyrirtæki sömu eigenda og Bylgjunnar, FM957 og hvað þær heita þessar útvarpsstöðvar.
Sinna þær útvarpsstöðvar Músíktilraunum? Nei. Hvaða útvarpsstöðvar spiluðu Kukl, Sykurmola, Björk, Sigur Rós, Múm, Sólstafi, Mugison o.s.frv. áður en þessir tónlistarmenn náðu heimsfrægð? Ekki Bylgjan. Ekki FM957. Ekki Flash. Ekki Kaninn...
Sama er upp á teningnum þegar um minna þekktar íslenskar og erlendar hljómsveitir er að ræða sem halda hljómleika hér en falla utan ramma músíkstefnu útvarpsstöðvanna. Ég hef komið að lokuðum dyrum. Mætt samt velvilja og skilningi. En "því miður passar þetta ekki við okkar músíklínu." Nema hjá rás 2. Þar hef ég aldrei mætt frávísun á þessum forsendum. Þvert á móti. Algjörlega þvert á móti. Bara jákvæðni og opnum dyrum.
Og hvaða útvarpsstöðvar spila Þorraþrælinn hér efst til vinstri í tónspilaranum mínum? Ekki Bylgjan. Ekki Flash. Ekki Kaninn, Ekki FM957. Ónei. En rás 2. Og Útvarp Saga, sem reyndar er talmálsútvarp. Aldeilis ljómandi fínt sem slíkt. Og rúmlega það.
Ólafur Þ. Stephensen er klárlega fæddur og alinn upp á malbiki höfuðborgarinnar. Hans sýn á útvarpsmarkaðinn ber þess skýr merki. Þegar ekið er út fyrir miðborg Reykjavíkur byrja músíkstöðvarnar að detta út ein af annarri strax í Ártúnsbrekkunni. Þegar komið er að Hvalfjarðargöngunum er aðeins Bylgjan eftir. Rás 2 heyrist hinsvegar um land allt og miðin.
Fréttablaðið er í eigu 365 sem einnig rekur lungann af músíkútvarpsstöðvum landsins. Ólafur Þ. er að klappa þeim sem gefur honum að éta. Þetta er bisness. Sögufölsun í þágu húsbóndans.
Hér fyrir neðan er myndband við vinsælasta lag ársins 2002 á Íslandi. Lag sem einungis var spilað á rás 2.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
4.3.2010 | 17:30
Hressilegt rokk á Sódóma
Takið strax frá kvöldið 28. maí. Þá mætir hingað til lands kát
og spræk ein merkasta hljómsveit rokksögunnar. Hljómsveit sem
- ásamt Slayer, Death, Sepultura, Celtic Frost, Atheist, Venom...
- lagði grunninn að þeim hressilega rokkstíl sem kallast dauðarokk.
Við erum að tala um hollensku hljómsveitina Pestilence sem var
leiðandi í upphafsbylgju dauðarokksins í Evrópu. Hún spilar á Sódóma
í Reykjavík 28. maí.
Pestilence var stofnuð um miðjan níunda áratug síðustu aldar á upphafsárum dauðarokksins.Fyrsta plata sveitarinnar, Malleus Maleficarum, kom út 1988. Hún markaði djúpstæð spor í "metal"senunni og orðstír sveitarinnar breiddist út með hraði. Sveitinni tókst að blanda óbeisluðum krafti, hryllingslegu myndmáli og fullkomnum hljóðfæraleik saman í tónlistarlegan kokteil sem var óneitanlega brautryðjandi í tónlistarheiminum.
Plöturnar sem fylgdu í kjölfarið, meistaraverkin Consuming Impulse frá
1989 og Testimony of the Ancients frá 1991, var gríðarlega vel tekið á
alþjóðavísu og hjálpuðu til við að festa dauðarokkið kyrfilega í sessi
sem afgerandi stílbrigði innan þungarokksins. Stuttu eftir að fjórða plata sveitarinnar,
Spheres, kom út 1993, hvarf bandið hins vegar af sjónarsviðinu - e.t.v.
vegna misgóðra undirtekta þeirrar plötu en hún blandaði"fusion pælingum"
inn í dauðarokkið. Þrátt fyrir að hafa fallið í misgrýttan jarðveg á
þeim tíma hefur þessari plötu verið síðan lýst sem djörfu verki
langt á undan sinni samtíð.
Sveitin rauf 15 ára þögn sína þegar hún gaf út hina stórgóðu plötu
Resurrection Macabre í fyrra. Á henni sannar sveitin að hún hefur engu
gleymt og á fullt erindi í dauðarokk nútímans og var mjög vel tekið af
gagnrýnendum. Henni var í kjölfarið boðið að spila á m.a. Hellfest 2009,
þar sem hún fór á kostum. Sveitin hefur gengið í endurnýjun
lífdaga og hefur spilað útum allan heim síðan og mun koma við á Íslandi á leið sinni til Bandaríkjanna þar sem hún mun "co-headlæna" Maryland DeathFest tónlistarhátíðina og í
kjölfarið túra um Bandaríkin.
Miðasala hefst 15. mars á midi.is og í verslunum Skífunnar. Á næstu dögum verður upplýst um miðaverð og upphitunarhljómsveitir.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2010 | 12:28
Færeyskt rokk í 1. sæti danska vinsældalistans
Síðustu ár hafa færeyskir popparar verið áberandi í skemmtibransanum í Danmörku. Færeyskar söngkonur hafa hver á fætur annarri náð efstu sætum í söngvarakeppnum danska sjónvarpsins, þáttum á borð við X-factor og "Stjarna kvöldsins". Eivör, Teitur, hljómsveitin Týr, Högni Lisberg og fleiri færeyskir tónlistarmenn hafa fína markaðsstöðu í Danmörku. Eivör og Teitur hafa meðal annars landað verðlaunum í dönsku tónlistarverðlaununum.
Popp-pönkhljómsveitin The Dreams hefur náð ofurvinsældum í Danmörku. Upphaf þess má rekja til þess að hljómsveitin tók þátt í dönsku "Músíktilraununum" fyrir nokkrum árum. Þar náði hún 2. sæti en sló samstundis í gegn langt umfram vinningshljómsveitina. Síðan hefur The Dreams raðað lögum í toppsæti danska vinsældalistans. Lagið á myndbandinu hér fyrir ofan, Revolt, situr í 1. sæti danska vinsældalistans núna (eins og sjá og heyra má í sjónvarpsstöðinni DR1).
Á dögunum setti umboðsmaður bandarísku popp-metal sveitarinnar Linkin Park sig í samband við liðsmenn The Dreams. Erindið var að hann telur hljómsveitina smellpassa inn á bandaríska markaðinn núna. Kauði vill ólmur gerast umboðsmaður The Dreams og teppaleggja bandaríska markaðinn með færeysku pönkurunum. Þeir liggja nú undir feldi og eru að yfirfara ásamt lögfræðingum umboðssamninginn við þann bandaríska. Á meðan skulum við hlusta á færeysku víkingarokkarana í Tý flytja sönginn um Regin smið:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.2.2010 | 22:59
Þorraþrællinn
Tónlist | Breytt 21.2.2010 kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
20.2.2010 | 21:33
Hannes grét
Eftirfarandi er tekið af bloggi Valgerðar Bjarnadóttur á Eyjunni. Þetta er frásögn Hreins Loftssonar, fyrrum formanns einkavinavæðingarnefndar Davíðs Oddssonar á bönkum þjóðarinnar. Frásögnin er lítillega stytt af mér (einkennd með þrípunktum). Hún gefur skarpa mynd af stemmningunni:
"...þegar Falun Gong kom til landsins... til að vekja athygli á harðneskju kínverskra stjórnvalda gegn andófsmönnum í Kína í tilefni af opinberri heimsókn kínverska forsetans, Jiangs Zemin, til Íslands... Davíð Oddsson var forsætisráðherra...
Hannes H. Gissurarson... vildi setja nafn sitt á auglýsingu til að mótmæla framkomu íslenskra stjórnvalda gagnvart Falun Gong. ...þeir fengu ekki að koma til landsins og voru... settir í einhvers konar búðir í Njarðvík, áður en þeim var snúið til baka, þeim, sem á annað borð komust til landsins. Mótmæli Falun Gong felast í ákveðnum æfingum og eru án ofbeldis.
Hannes hringdi í mig vegna þess að hann óttaðist um sinn hag. Ef hann myndi setja nafn sitt á auglýsinguna myndi hann falla í ónáð hjá leiðtoga sínum, Davíð Oddssyni. Ég sagði honum, að Davíð gæti ekki og mætti ekki hafa þau áhrif á hann, þennan mikla andstæðing kommúnisma og fasisma, lærisvein Hayeks, að hann þyrði ekki að standa með sannfæringu sinni gegn ofríki kommúnismans. Okkur bæri skylda til að taka stöðu með andófsmönnum kommúnismans. Davíð hlyti að skilja þetta. Hannes væri einn helsti hugmyndafræðingur íslenskrar frjálshyggju... Ég hvatti hann eindregið til að setja nafn sitt á auglýsinguna. Hannes gerði það líka...
Nokkrum dögum síðar hringdi Hannes grátandi, ég meina ekki kjökrandi heldur háskælandi í mig vegna þess, að hann næði engu sambandi við Davíð... Davíð svaraði ekki skilaboðum, tæki ekki símann og virti hann ekki viðlits. Mér brá. Var þetta virkilega Hannes H. Gissurarson, vinur minn og félagi í baráttunni gegn hinum alþjóðlega kommúnisma? Maðurinn, sem ég hafði litið upp til öll þessi ár? Var þetta þá styrkurinn, sannfæringin? Grátandi af ótta við að missa stöðu hjá leiðtoga sínum?
Ég sagði Hannesi þá skoðun mína, að hann yrði að herða upp hugann og standa á sannfæringu sinni. Ef Davíð... væri ekki stærri maður en þetta, ef hann skyldi ekki stöðu Hannesar gagnvart svona einföldu máli, þá yrði hann að una því. Davíð væri þá einfaldlega ekki stuðnings okkar virði.
Ég heyrði ekki frá Hannesi í nokkra daga eftir þetta símtal... Það er erfitt að hlusta á fullorðinn mann gráta. Örfáum dögum síðar hringdi Hannes aftur og þá lá vel á honum. Hann sagði, að hann hefði loksins náð sambandi við Davíð, sem hefði skammað sig hraustlega fyrir að taka stöðu með andstæðingum sínum með því að mótmæla meðferðinni á Falun Gong. Það skyldi hann ekki gera aftur. Hann hefði hlaupið á sig. Að sjálfsögðu hefði verið nauðsynlegt að taka hart á þessu fólki... Íslensk stjórnvöld gætu ekki með öðrum hætti tekið á svona mótmælendum... Hannes(i)... leið... vel, að vera kominn í náðina á nýjan leik..."
![]() |
Svar komið vegna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt 21.2.2010 kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.2.2010 | 13:55
Suzuki bílar - ekki fyrir Íslendinga
Að undanförnu hef ég legið í vangaveltum. Þær hafa meðal annars snúist um hvaða bíl ég eigi að kaupa mér. Nú er rétti tíminn til að kaupa bíl, eins og margt annað. Eftir töluverða rannsóknarvinnu var ég kominn langleiðina með að kaupa Suzuki. Þegar það var svo gott sem afráðið fór ég að skoða heimasíðu Suzuki umboðsins. Þá komst ég að því að slóðin er Suzuki bilar (www.suzukibilar.is). Þetta hafði ég ekki áður hugleitt: Að Suzuki sé bílinn sem bilar. Ég brá við skjótt og ætlaði að hringja í umboðið til að spyrjast frekar um þetta vandamál með Suzuki. Hvort bilanir í Suzuki snúi að mótornum, ljósabúnaði eða hvort stöðug vandamál sé með dekkjabúnaðinn, spindla eða legur.
Í þann mund sem ég var að slá símanúmeri umboðsins inn heyrði ég hljóma í auglýsingatíma í útvarpinu: "Suzuki bílar - fyrir skynsamt fólk." Þetta tók af allan vafa: Suzuki er ekki fyrir Íslendinga.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
18.2.2010 | 22:03
Snúið að endurheimta góss úr undanskoti frá þrotabúi
Það getur verið snúið að ná aftur eignum sem skotið hefur verið undan þrotabúi. Nema viðkomandi tilheyri aðli útrásarvillinga. Fyrir aðra er eignin í raun stolið góss. Það er varlegt að treysta öðrum fyrir stolna góssinu. Það fékk fyrrverandi frambjóðandi kristilegra stjórnmálasamtaka, sem buðu fram til alþingis fyrir nokkrum árum, að reyna fyrir tveimur árum.
Náunginn rak verslun með húsgögn frá Spáni. Reksturinn gekk brösulega og endaði með gjaldþroti. Þegar að þeim tímapunkti kom hafði kauði laumað lagernum í felur hjá trúbróðir sínum, syngjandi sjónvarpstrúboða spilandi á gítar. Skiptastjóra var vísað á tómt lagerhúsnæði og fattaði ekki að húsgagnalager upp á margar milljónir króna var falinn í Hveragerði.
Að nokkrum mánuðum liðnum hugðist húsgagnasalinn ná í lagerinn. Sá syngjandi neitaði að afhenda lagerinn, var byrjaður að selja úr honum og hinn kátasti. Taldi það vera guðs vilja og blessun að lagerinn væri í sínum höndum. Sá sem upphaflega átti lagerinn gat ekkert gert - annað en slíta vinskap við trúfélaga sinn og ofbjóða óheiðarleiki hans.
![]() |
Krafði dótturson sinn um 9 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.2.2010 | 13:21
Gamanvísur um atburði vikunnar
Eftirfarandi gamanvísur, limrur, fékk ég sendar. Og hafði gaman af. Af góðmennsku ætla ég að leyfa ykkur að brosa glaðlega yfir þessum vísum einnig. Ekki fylgdi sögunni neinar upplýsingar um höfunda umfram þær sem hér fylgja með. Fyrsta limran er sögð vera eftir Hjálmar Freysteinsson á Akureyri. Ég hef engar forsendur fyrir efasemdir um að það sé rétt.
Bollur skal éta á bolludaginn,
baunir og saltkjöt á sprengidaginn,
en iðrast hann má
maðurinn sá
sem át konuna sína á konudaginn.
Ólafur Halldórsson bætti um betur:
Bollur skal éta á bolludaginn,
baunir og saltkjöt á sprengidaginn,
en þótt hugur sé á
ekki húsfreyjan má
hafa bóndann í matinn á bóndadaginn.
Björn Ingólfsson spurði:
Ef bollur skal éta á bolludaginn
og baunir og saltkjöt á sprengidaginn,
Þá er mér spurn
spekingar: Hvurn
andskotann étiði á öskudaginn?
Kristján Eiríksson svaraði:
Ég bollurnar ét á bolludaginn
og baunir og saltkjöt á sprengidaginn,
svo fæ ég mér bjór
og byrja mitt þjór
og verð öskufullur á öskudaginn.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.2.2010 | 17:35
Enn ein líkamsárás í útvarpi
Það er skammt stórra högga á milli í húsakynnum íslenskra útvarpsstöðva. Í fyrradag réðist rapparinn Móri á rapparann Blaz Roca (Erp Eyvindarson) í hljóðstofu útvarpsstöðvarinnar X-ins. Móri var vopnaður hnífi, byssu og hundi. Nú gerðist það fyrir nokkrum mínútum að dagskrárgerðarmaður á Útvarpi Sögu varð fyrir líkamsárás hlustanda.
Forsagan er sú að Guðmundur Franklín Jónsson var með gesti í hljóðstofu. Hlustendum bauðst að hringja inn og ræða við fyrsta gestinn, ungan útgerðarmann af Reykjanesskaga. Eiríkur Stefánsson, fyrrverandi verkalýðsforingi á Fáskrúðsfirði hringdi inn. Hann vildi ræða við Guðmund en ekki gest hans. Guðmundur sleit því símtalinu.
Þessi gestur hvarf á braut og tveir aðrir komu í staðinn. Þeir Illugi Gunnarsson, alþingismaður, og Grétar Mar, fyrrverandi alþingismaður og núverandi útgerðarmaður. Þá barst inn á borð til Guðmundar miði. Á honum stóð að Eiríkur Stefánsson væri mættur á staðinn og þyrfti að tala við hann. Guðmundur var bundinn við þáttarstjórn og hafði ekki svigrúm til að sinna boði Eiríks.
Þegar þættinum lauk og Guðmundur gekk út úr hljóðstofu kastaði hann kveðju á Eirík sem sat þar á stól. Guðmundur tilkynnti jafnframt að hann væri tímabundinn og gæti því ekki sest niður með Eiríki.
Við þessi tíðindi snöggfauk í Eirík. Hann spratt á fætur, sveif á Guðmund og keyrði hann á bakvið hurð. Grétar Mar, Illugi og Gunni "Byrds" brugðust skjótt við, náðu að losa Guðmund úr krumlum Eiríks og héldu Eiríki í föstum. Þeir eru allir þokkalega hraustir og Gunni að auki fyrrverandi dyravörður á skemmtistöðum.
Þegar móðurinn virtist runninn að mestu af Eiríki reiða var samið við hann um að haga sér vel. Eiríkur var fús til þess. Lofaði að verða ljúfur sem lamb ef honum yrði sleppt lausum. Það var ekki fyrr búið að sleppa honum en hann réðist aftur að Guðmundi. Í þetta sinn náði hann að grýta tölvu Guðmundar í gólfið áður en þremenningarnir yfirbuguðu Eirík á ný. Ekki þótti stætt á að sleppa Eiríki aftur fyrr en Guðmundur hafði forðað sér úr húsi.
Guðmundur ætlar ekki að kæra Eirík. Hinsvegar á eftir að koma í ljós hvert tjón hefur orðið á tölvunni.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
15.2.2010 | 18:54
Rappari með hníf, byssu og dopermanhund
Rapparinn Móri virðist taka "wannbe-gangsta" hlutverk sitt full alvarlega. Sem kunnugt er þykir það röppurum í Bandaríkjunum til framdráttar frekar en hitt að brúka byssur og hnífa, dópa og rífa stólpakjaft. Þetta síðastnefnda hefur fylgt íslensku rappsenunni. Þó þannig að það er í raun meira á léttum nótum en alvöru.
Móri er hörundssárari en aðrir í senunni. Hann sker sig einnig frá sem opinskár um sakaferil sinn, dópneyslu og baráttu fyrir því að dópneysla verði lögleg. Ekki þó þannig að fólk verði skyldað til að neyta eiturlyfja heldur verði dópneysla refsilaus.
Á dögunum nefndi rapparinn Blaz Roca, Erpur Eyvindarson, í útvarpsviðtali að hljómsveit sín, Rottweilerhundarnir, hafi komið Móra á framfæri. Móri brást hinn versti við. Sagðist í blaðaviðtali hafa verið byrjaður að rappa á meðan Erpur var í bleyju. Erpur mætti aftur í útvarpsviðtal og fór yfir staðreyndir málsins. Þær voru á þá leið að Móri hafi vissulega byrjað að rappa á undan Rottweilerhundunum. Fáir urðu hinsvegar varir við það. Móri var síðan gestur á plötu Rottweilerhunda. Sú plata seldist í yfir 10 þúsund eintökum og kom Móra á kortið.
Inn í deiluna blönduðust ásakanir Erps um að Móri væri sönnun þess að kannabisreykingar séu skaðlegar.
Í dag ætluðu stjórnendur útvarpsþáttarins Harmageddon á X-inu, Frosti og Máni, að sætta deiluaðila. Þá var það sem Móri mætti með doperman-hund og taser-byssu og reyndi að stinga Erp í andlitið með hnífi. Erpur náði að forða sér en kona Móra réðist einnig á Erp. Erpur kærði atvikið og Móri hefur gefið sig fram við lögregluna. Lokasena atviksins náðist að hluta á öryggismyndavélar. Meira fjörið. Þetta er kolgeggjað. Erpur virðist hafa eitthvað til síns máls um að kannabisneysla sé skaðleg. Ég reyndi að hringja í hann í kvöld en hann svaraði ekki. Enda í nógu að snúast. Hann hefur kært Móra fyrir líkamsárás.
![]() |
Móri réðist að Erpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt 17.2.2010 kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
14.2.2010 | 22:59
Uppsveifla hjá rás 2
Í árdaga rásar 2 fann ég henni flest til foráttu. Mér þótti sem þar væri léttpopp ráðandi og betur færi á að leyfa Bylgjunni að sprikla með það. Eða öðrum útvarpsstöðvum sem komu fram á sjónarsvið og gerðu einnig út á léttpoppið. Ég lenti í hatrömmum blaðadeilum vegna þessarar afstöðu minnar. Sem var bara hressandi og jaðraði við vinslit þegar hæst lét.
Léttpoppstöðvarnar komu og fóru: Stjarnan, Aðalstöðin, Sólin og hvað þær hétu allar. Er fram liðu tímar breyttust áherslur hjá rás 2. Þangað safnaðist rjómi dagskrárgerðarmanna með góða þekkingu á músík og metnað til að gera íslenskri músík góð skil. Ekki síst að virkja grasrótina, taka virkan þátt í Músíktilraunum og efla samskipti við erlendar útvarpsstöðvar og rokkhátíðir.
Þessi þróun hefur orðið á besta veg. Tónlistarfólkið sem rás 2 sinnti best og / eða ein íslenskra útvarpsstöðva hefur hvert á fætur öðru náð bærilegum árangri á heimsmarkaði: Björk, Sigur Rós, Emiliana Torrini, Lay Low, Bang Gang, Múm, Gus Gus, Mugison, Mínus og ég er áreiðanlega að gleyma mörgum.
Þessir nú heimsfrægu popparar eru farnir að skila góðum tekjum í ríkissjóð og eiga verulega mikinn þátt í aukningu á ferðamannastraumi til Íslands. Sem einnig skilar tekjum í ríkissjóð.
Að undanförnu hefur borið á kröfu um að rás 2 verði lögð niður. Rökin eru þau helst að þannig megi spara RÚV útgjöld. Þetta er rangt. Rás 2 er sjálfbær og meira en það. Niðurgreiðir aðra starfsemi RÚV.
Á dögunum var mikið gert úr því að Bylgjan væri komin með meiri hlustun en rás 2. Það var tiltekið sem önnur ástæða fyrir því að leggja eigi rás 2 niður. Mín skoðun er sú að vænlegra sé að bjóða upp á góða dagskrá, gera góða hluti, hlú að grasrót íslenskrar tónlistar en sigra í hlustendakönnunum. Hinsvegar er bara gott að Bylgjan sinni sínum hlustendahópi með ágætum.
Nú hefur rás 2 náð fyrri stöðu sem sú útvarpsstöð sem flestir hlusta á. Þar með eru fallin þau vondu rök að leggja eigi rás 2 niður á þeim forsendum að hún sé ekki vinsælasta útvarpsstöðin.
Hámarki náðu þessar fráleitu vangaveltur á dögunum þegar hryllingsstöðin, versta útvarp landsins, Kaninn, óskaði eftir því að fá að taka rás 2 yfir. Þetta var vitaskuld bara auglýsingatrix Einars Bárðarsonar. Hann kann auglýsingatrixin þó útvarpsstöð hans sé "horror". Þetta má ekki hljóma eins og mér sé illa við Einar. Útvarpsstöð hans er bara ömurleg, rétt eins og Skítmaórall, Nylon og það allt. En áreiðanlega fínn náungi þar fyrir utan.
Ég tek fram að margt er gott sem aðrar útvarpsstöðvar bjóða upp á en rás 2. Útvarp Saga er skemmtileg útvarpsstöð. Líka X-ið. Það breytir því ekki að rás 2 er í góðri uppsveiflu. Fyrir utan Poppland, Rokkland og ýmsa aðra ágæta klassíska þætti má nefna snilldarþáttinn Litlu hafmeyjuna (www.ruv.is/litla). Frábær þáttur; Skúrinn, þar sem ungar efnilegar íslenskar hljómsveitir eru sóttar heim; Streymi, þar sem Þossi afgreiðir glæsilega það nýjasta af netsíðum íslenskra rokksveita; Hið opinbera, þar sem Ágúst Bogason spilar íslenskar og erlendar hljómleikaupptökur; Dordingull, þar sem þunga rokkinu er gert skil; Luftgítar, þar sem Matti afgreiðir gamlar rokkperlur; Færibandið, þar sem Bubbi hefur farið á kostum ásamt gestum á borð við Ragga Bjarna og Ómar Ragnarsson; ég man ekki hvað spurningarþátturinn skemmtilegi með Villa Naglbít og Halldóri E. heitir...
Þar fyrir utan erum við að tala um Óla Palla, Guðna Má, Frey Eyjólfs, Ásgeir Eyþórsson, Matta Matt, Margréti Erlu, Heiðu...
Ég ætla ekki að telja upp alla dagskrá rásar 2. Bara benda á að rás 2 er í góðri uppsveiflu, bæði hvað varðar góða dagskrá og er með mesta hlustun íslenskra útvapsstöðva.
Takið eftir hvað Andri Freyr er ótrúlega sakleysislegur á myndinni efst. Hann getur brugðið fyrir sig englasvip. Doddi litli er ekki eins flinkur í því. Hrekkjótti púkasvipurinn fer ekki af honum. Þeir eru til samans toppur í íslensku útvarpi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
14.2.2010 | 13:58
Ósvífni í Vitaborgaranum
Fátt er betra í helgarþynnku en storma í Vitaborgarann í Ármúla og fá sér steikt svínaflesk (beikon) með spældum eggjum og ristuðum brauðsneiðum. Nýverið var verðið á þessum ágæta veislurétti hækkað úr 800 kalli í 900. Það er reisn yfir því. Verra er nú hefur verið tekið upp á því að afgreiða matinn með 8 beikonsneiðum í stað 12 áður. Það er hneyksli.
Að venju fylgja tvær brauðsneiðar í pakkanum. 6 beikonsneiðar smellpassa með hvorri brauðsneið. En 4 beikonsneiðar með einni brauðsneið er alveg vonlaust dæmi. Það er ekki um annað að ræða en finna annan veitingastað í snatri sem hefur metnað til að afgreiða 6 beikonsneiðar á móti hverri einni brauðsneið.
Hvar finn ég hann á höfuðborgarsvæðinu? Það er of langt að keyra í Fitjagrill í Njarðvík.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
12.2.2010 | 22:57
Ótrúleg framkoma Sophiu Hansen
Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með málaferlum Sophiu Hansen gegn Sigurði Pétri Harðarsyni. Málið teygir anga sína aftur til níunda áratugarins. Þá var Sophia gift ljúfmenninu Halim Al. Þau áttu tvær dætur. Að sögn Halims var Sophia leiðinleg við hann. Dró meðal annars Sigurð Pétur inn á heimilið. Eða eins og Halim orðaði það þá var Sigurður Pétur eins og köttur í húsi þeirra (frekar en að hann hafi bara verið eins og köttur. Man það ekki alveg).
Þetta leiddi til þess að kjarnafjölskyldan leystist upp. Halim flutti sunnar á hnöttinn. Dæturnar fóru þangað líka. Þá upphófst leiðinleg togstreita. Sigurður Pétur stóð undir nafni. Nafnið Sigurður þýðir verndari/vörður. Nafnið Pétur þýðir klettur.
Sigurður Pétur fórnaði næstu árum ævi sinnar í að styðja Sophiu í bak og fyrir. Hann fórnaði meðal annars sambandi við dætur sínar og fjölskyldu, fjármunum og öllum þeim tíma og fyrirhöfn sem hann gat í þágu Sophiu. Sendi henni meðal annars Prince Póló í ábyrgðarpósti til Tyrklands.
Sigurður Pétur stóð fyrir fjársöfnun meðal landsmanna til handa Sophiu. Hluti af söfnunarféinu fór í fataverslun sem Sophia rak en gekk illa. Annar hluti söfnunarfésins fór í tíð ferðalög Sophiu á milli Íslands og Tyrklands. Fötin í verslun Sophiu voru tyrknesk.
Þegar söfnunarfé þraut voru útbúin veðskuldabréf, skuldaviðurkenningar, viðskiptabréf og tryggingabréf upp á 42 milljónir sem voru undirrituð nafni Sophiu. Í stað þess að standa við skuldbindingar sínar kærði Sophia sinn dygga stuðningsmann, Sigurð Pétur, fyrir að hafa falsað undirskriftir hennar. Þetta gerði hún til að skuldir hennar myndu lenda óskiptar á Sigurði Pétri.
Sænskir rithandarsérfræðingar sáu glöggt að undirskriftir Sophiu eru ófalsaðar. Rithönd er nánast eins og fingraför.
Sophia kom kjánalega fyrir í réttarhöldunum. Reif kjaft og hagaði sér eins og illa uppalinn léttruglaður krakki í frekjukasti.
Nú hefur hún verið dæmd fyrir að bera rangar sakargiftir á Sigurð Pétur. Það er sérkennilegt að stinga hnífasetti í bak hans á þennan hátt eftir fórnfýsi hans og einarðan stuðning. En segir heilmikið um þá persónu sem Sophia hefur að geyma. Ég tek fram að ég þekki ekkert til neins af þessu fólki annað en það sem komið hefur fram í fjölmiðlum og fyrir dómstólum.
Halim Al, alltaf brosmildur og vinalegur Íslandsvinur. Fyrir neðan: Konan sem var ótrú og svikul í hjónabandi og einnig óþokkaleg gagnvart þeim sem ofaldi kálfinn. Þrátt fyrir að hún sé dæmd fyrir að bera rangar sakargiftir á sinn einlæga og fórnfúsa stuðningsmann er það henni refsilaust. Óskilorðsbundinn hálfs árs dómur snertir hana hvergi þar sem hún býr ljúfu lífi í Tyrklandi.
![]() |
Í skilorðsbundið fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt 13.2.2010 kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (46)
11.2.2010 | 13:07
Lögreglan verður að taka á þessu. Svona má alls ekki leggja bílnum
Það er hörmung að sjá hvernig sumir leggja bílnum sínum, eins og glöggt sést á meðfylgjandi myndum. Það er ekkert tillit tekið til annarra bíla. Menn - eða kannski aðallega konur? - leggja alveg hiklaust sínum bíl utan í bíl annarra. Jafnvel þannig að erfitt sé fyrir eiganda þess bíls að komast inn í hann. Eða þá að bílum er lagt þannig að ómögulegt er fyrir aðra bílstjóra að komast leiðar sinnar. Lögreglan verður að fara að taka á svona framkomu af röggsemi. Á meðan það er ekki gert færa bílstjórar sig stöðugt upp á skaftið.
Bílstjórinn á neðstu myndinni má eiga það að hann beið í bílnum á meðan konan hans skrapp inn í sjoppu. Hann var frekar snöggur að færa bílinn ef aðrir bílstjórar þurftu að komast framhjá.
![]() |
Lögreglumaður sýknaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2010 | 23:19
Smásaga um systur í sjávarþorpi
Myrkrið grúfir sig yfir litla sjávarþorpið hinumegin við fjallið. Allir þorpsbúar eru í fasta svefni. Samt er miður dagur. Komið langt fram yfir hádegi. Þorpsbúar hafa ruglað sólarhringnum. Ástæðan er sú að stóra útiklukkan á eina torgi þorpsins er vitlaus. Þorpsbúar stilla grunlausir sín úr og klukkur eftir torgklukkunni.
Það styttist í að þorpsbúar vakni. Í lágreistu timburhúsi býr gömul kona með sjal ásamt manni sínum og þremur dætrum. Þorpsbúar gera enga athugasemd við það. Systurnar eru ekki í neinni vinnu og eru tekjulausar. Foreldrarnir eru í vinnu, hafa þokkalegar tekjur og eiga húsið skuldlaust.
Systurnar vakna ein af annarri. Þær heita ekki neitt. Þess í stað eru þær kallaðar: Sú elsta. Hún er 7 ára; Miðsystirin. Hún er 6 ára; Og Yngsta barnið. Hún er 5 ára. Foreldrarnir eru kallaðir Pabbi og Mamma en heita Pétur og Páll. Foreldrarnir vakna líka.
Þegar fjölskyldan er í miðju kafi við að snæða smjörsteiktan hvítlauksristaðan humar með nýlöguðu og heitu Irish Coffie segir Mamma skyndilega skrækrómuð og taugaveikluð: "Stelpur, þið hafið kannski tekið eftir því að ég hef fitnað að undanförnu."
Yngsta barnið kannast við það og segir ávítandi: "Það er af því að þú drekkur mikið af bjór þegar enginn sér. Allir krakkarnir í leikskólanum segja að þú skolir honum niður með Einiberja-brennivíni og 8 ára Bacardi."
Mamma leiðréttir hana: "Nei, ég hef aldrei á ævi minni bragðað bjór eða neitt áfengi. Áfengi er óhollt. Ég sprauta mig bara einstaka sinnum með heróíni. Varla einu sinni tvisvar á dag. Ástæðan fyrir því að ég er orðin mikil um mig miðja er sú að ég er með barn í maganum. Ég veit ekki hvernig það hefur gerst. Læknirinn staðfesti þetta í gær og grunar Pabba um að hafa verið eitthvað að fíflast. Þið eruð að eignast nýtt Yngsta barn."
Yngsta barnið fölnar upp, fer að hágráta og spyr á milli ekkasoga: "Nýtt Yngsta barn? Hvað verður þá um mig?"
Mamma dæsir og segir sorgmædd og róandi: "Það þýðir að við verðum að henda þér í ruslið."
Pabbi grípur fram í blíðróma en ákveðinn: "Nei, elskan mín. Mamma er að bulla og dramatísera. Þér verður ekki hent í ruslatunnuna. Ég set þig í poka og hendi þér í sjóinn." Og það gerði hann.
Bækur | Breytt 31.3.2010 kl. 03:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.2.2010 | 20:19
Stærsti viðburður í íslensku rokki
Þá er komið í ljós hvaða sveitir hlutu náð fyrir dómnefnd og voru valdar til að etja kappi í íslensku undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Wacken Metal Battle 2010. Alls sóttu 16
hljómsveitir um að fá að spila í ár. Sveitirnar sem sluppu í gegnum nálaraugað eru (í stafrófsröð):
ATRUM - www. myspace.com/atrumiceland
CARPE NOCTEM - www.myspace.com/carpenoctemiceland
GONE POSTAL - www.myspace.com/gonepostalmetal
GRUESOME GLORY - www.myspace.com/gruesomeglory
SEVERED CROTCH - www.myspace.com/severedcrotch
UNIVERSAL TRAGEDY - www.myspace.com/universaltragedy
WISTARIA - www.myspace.com/wistariatheband
Dómnefndin sem sá um valið samanstóð af 5 aðilum frá erlendum tímaritum, bókunar-, umboðsskrifstofu- og tónleikafyrirtækjum og 3 innlendum aðilum.
Wacken Metal Battle fer fram laugardaginn 13. mars á Sódóma Reykjavík.
Sigurvegari kvöldsins hlýtur þátttökurétt í lokakeppni Metal Battle keppninnar á Wacken Open Air hátíðinni í Þýskalandi í ágúst. Verður þessi viðburður líklega einn sá stærsti fyrir íslenskt þungarokk í ár, því 6 erlendir dómarar koma til landsins gagngert fyrir hann. Meðal þeirra er háttsettur aðili frá Wacken hátíðinni sem einnig er yfirmaður Metal Battle keppninnar.
Það verður gaman að vera þungarokkari 13. mars nk.
Keppnin hefur vaxið jafnt og þétt frá 2004 og í ár munu 26 þjóðir halda undan‐keppnir í sínu landi og verður Ísland þar á meðal í annað sinn. Sigursveitin í hverju landi fyrir sig fyrir sig hlýtur að launum þátttökurétt í lokakeppninni á Wacken.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.2.2010 | 13:19
Bráðfyndin vöruheiti
Það er vandaverk í framleiðsluferli nýrrar vöru að finna henni gott nafn. Nú þegar heimurinn hefur skroppið saman er ástæða til að passa upp á að nafnið hljómi vel á algengustu tungumálum heims. Í Ghana er Coca-Cola ekki vinsælasti kóladrykkurinn heldur annar sem heitir upp á ensku Piss-Cola (Pee Cola). Ferðamenn í Ghana fá sér þó frekar Coca-Cola eða Pepsi. Enska er opinbera málið í Ghana en máltilfinning Ghanabúa er ekki í öllum tilfellum sú sama og í Bretlandi, Norður-Ameríku eða Ástralíu. Pee er nafn á verksmiðjunni sem framleiðir Pee Cola.
Umbúðir sumra vara bera þess merki að algengt slangur hefur ekki náð til afskekktra staða. Enska orðið "faggot" var lengst af notað yfir kjötbollur en á seinni áratugum hefur það verið notað í neikvæðri merkingu yfir homma. Pakkinn á myndinni inniheldur sennilega 4 svínakjötsbollur þó annað megi lesa út úr merkingunni.
Hér er um asískar pylsur að ræða. Til aðgreiningar frá dýrafóðri eru þær merktar upp á ensku sem "homma-pylsur" en merkingin hefur átt að upplýsa að þær séu fyrir manneskjur = homo (sapiens).
Þetta er ástralskur íspinni sem kallast "Gylltur gleðitími". Í dag er orðið "gay" aðallega notað yfir samkynhneigða, samanber "Gay Pride".
"Bimbó" er slangur yfir heimskar konur. Orðið "ljóska" hefur reyndar ýtt því til hliðar. Þarna virðist sem um sé að ræða samloku fyrir heimskar konur.
Það er varla hægt að þýða nafn þessa blandaða sælgætis öðruvísi en "Drullumall".
Dickmann er sennilega ættarnafn. Í ensku er "dick" slangur yfir kynfæri karla. Í íslenskri þýðingu heitir þessi vara "Smá-skaufar".
Hér er vísað til þess að poppkornið sé brakandi hamingja eða braki hamingjusamlega. Síðustu áratugi er orðið "krakk" aðallega notað yfir samnefnt eiturlyf. "Krakk" er líka notað yfir þá sem hafa klikkast. Þessu er slegið saman þegar talað er um fólk sem hefur steikt í sér heilann vegna dópneyslu. Þeir eru kallaðir "Krakk-hausar". Nafn poppkornsins má skilja sem "hamingju-dóp".
Þetta hljómar eins og eitthvað í nefið á Björgúlfi. "Ferskt 100% kókaín" má lesa út úr merkingunni á þessari ávaxtasafafernu. Einnig má lesa út úr þessu orðið "cock". Sjá hér'
"Cock" er algengast sem slangur yfir typpi. En þýðir einnig hani. Það er spurning um hvort átt er við á þessum pakka sem inniheldur súpuduft. Þetta er jamaísk framleiðsla.
Þetta er orkudrykkur. Nafnið þýðir "stinning" eða "holdris" (einnig má segja "upp-stúfur").
"Fingur Maríu"? Hljómar ekki lystugt.
Prump á flösku. Það fer ekki á milli mála. Varan heitir Prump (Fart).
Hér eru finnskar kartöfluflögur. Á finnsku þýðir orðið "megapussi" stór poki. En ekki ofurpíka, eins og enskumælandi skilja orðið.
![]() |
Coca Cola græðir á nýjum mörkuðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.2.2010 | 00:48
Færeyingar fylgdust náið með íslenska júrivisjóni
Færeyingar fylgdust spenntir með framgangi Jógvans í forkeppninni á Íslandi í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Ég held að sumir færeyskir fjölmiðlar hafi sent fréttamenn til Íslands til að fylgjast með. Svo snöggir voru færeyskri netmiðlar að birta úrslitin. Áður höfðu færeyskir fjölmiðlar haft samband við mig og spurt út í forkeppnina á Íslandi. Ég varð að segja þeim eins og er að hún væri fyrir utan mitt áhugasvið og ég fylgdist ekki með. Aldrei þessu vant var ég þess vegna ekki í gír til að tjá mig neitt eða gefa upplýsingar um það sem spurt var um. En ég varð var við keppnina út undan mér.
Nú liggur fyrir að lag Heru Bjarkar fékk 21.694 atkvæði og lagið sem Jógvan söng 21.471 atkvæði. Þarna munaði mjóu.
Sigurður Hreiðar bendir réttilega á í bloggi sínu að nafn Jógvans skuli rétt framborið Jeggvann. Við Íslendingar getum borið nafnið fram sem "Ég vann". Að vísu er örlítill framburðarmunur á þessu nafni á milli eyjanna í Fjáreyjum. Svo örlítill að við skulum halda okkur við "Ég vann". Jógvan kemur frá Akureyri Færeyja, Klaksvík. Þar er framburður aðeins harðari en á suðureyjum. Jógvan kom inn á kortið í Færeyjum á unglingsárum sem söngvari "sítt að aftan" hljómsveitarinnar Aria, sem var einskonar BARA-flokkur norðursins.
Í leiðinni er ágætt að árétta að nafn Eivarar er framborið Ævör. Ef smámuna semi er beitt eru sérhljóðar í færeysku jafnan bornir fram sem samhljóðar. Nákvæmur framburður er því Eavör.
Til gamans má geta að lagið sem Eivör syngur hér er eftir frábæran færeyskan söngvahöfund, Hanus G. Hann er einskonar færeysk útgáfa af Megasi og Gunnari Þórðarsyni. Hann er um sextugt; hefur aðeins sent frá sér 3 plötur (ein er kassetta). Hann sniðgengur hljóðver, er töluvert sérstakur og yndisleg persóna. Ungir færeyskir tónlistarmenn dýrka hann og kráka (cover songs) hans lög grimmt. Ég hef kynnst þessum snillingi og það er auðvelt að átta sig á hvers vegna ungir færeyskir tónlistarmenn og tónlistarunnendur hafa hann í hávegum. Til gamans má geta að á lagalista hans er "Fatlafól" Megasar. Þegar Hanus þá sjaldan kemur fram er söng hans jafnan drekkt í fjöldasöng áheyrenda. Þessi maður er goðsögn.
Færeyingar fylgdust einnig spenntir með danska júrivisjón. Þar keppti til úrslita Færeyingurinn Jens Marni. Sá hinn sami og heillaði Íslendinga upp úr skónum á Færeyskum dögum á Stokkseyri síðastliðna verslunarmannahelgi.
Ekki alveg mín bjórdós. En áreiðanlega einhverra.
-----------------------------------------------------
Jógvan gjørdist nummar tvey
Grand Prixið í Íslandi er nú av, og føroyski Jógvan Hansen megnaði heldur ikki hesaferð at vinna kappingina. Hann gjørdist nummar tvey.
Við einari frálíkari framførslu trein Jógvan Hansen í kvøld á pall í Íslendska Melodi Grand Prixinum við lagnum One more Day.
Hóast framførslan var sera góð eydnaðist tað ikki Jógvani Hansen at vinna kappingina.
Sostatt er greitt, at føroyingar onga umboðan fáa í Olso seinni í ár, hóast bæði Jens Marni Hansen og Jógvan Hansen í kvøld hava verið sera tætt við.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)