6.2.2010 | 23:07
Frábær útvarpsþáttur færður um set
Einn alskemmtilegasti þáttur í útvarpi í dag er Litla hafmeyjan á rás 2. Þar hafa snillingarnir Andri Freyr og Doddi litli farið á kostum á föstudagskvöldum. Nú hefur sú breyting orðið á að þátturinn er sendur út á milli klukkan 16.00 til 18.00 á laugardögum. Þetta hefur ruglað marga í ríminu. Mér er ljúft að reyna mitt besta til að vekja athygli á þessu. Þeir sem misstu óvart af þættinum í dag geta tekið gleði sína á ný með því að fletta honum upp á http://dagskra.ruv.is/ras2/4522424/2010/02/06/.
Vandamálið er ekki stærra en það að nú þarf fólk að rífa sig upp um eða fyrir klukkan 16.00 á laugardögum. Eða hitt: Að fletta þættinum upp á netinu. Kát/ir og hress.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.2.2010 | 16:10
Ákært vegna grófra ásakana um blýantsleysi
Ríkissaksóknari hefur ákært Odd Eystein Friðriksson fyrir ærumeiðandi móðganir og aðdróttanir í garð forstjóra Sláturfélags Suðurlands, Steinþórs Skúlasonar. Ummæli Odds eru tekin af heimasíðunni www.slaturfelagid.com. Þeirri skemmtilegu og fróðlegu síðu hefur nú verið lokað, einhverra hluta vegna.
Steinþór kærði síðuna til lögreglu. Rannsókn hennar (lögreglunnar. Ekki síðunnar) leiddi til ákæru á hendur Oddi Eysteini. Oddur þrætir fyrir aðkomu sína að síðunni. Segist aldrei hafa átt nein samskipti við Steinþór og vísar til þess að ekkert í tölvum sem hann hafi aðgang að bendi til neinna tengsla við síðuna góðu.
Ummælin, sem kannski verða dæmd ómerk, eru á þá leið að Steinþór sé húmorslaus og blýantslaus. Hið rétta mun vera að Steinþór hefur húmor - þó fáir átti sig á þeim húmor. Þá hefur hann aðeins einu sinni orðið blýantslaus. Blýantsleysið stóð bara í örfáa daga. Úr því var bætt rækilega. Síðan hefur Steinþór haft aðgang að tveimur blýöntum. Einum ómáluðum og öðrum gulum. Sá guli er með strokleðri.
Saklausari ummæli á síðunni fljóta með í ákærunni til að gefa henni meiri þyngd. Þar á meðal að Steinþór sé jafnan kallaður "forstjórafíflið" af starfsmönnum og sé sennilega leiðinlegasti maður í heimi - frá upphafi.
Það verður erfitt að meta að fullu þetta síðastnefnda. Bæði er að þar er varnagli á með orðinu "sennilega", svo og hitt að samanburður við forfeður okkar frá því maðurinn varð til er snúinn, hvað þetta varðar.
Steinþóri er kennt um vondan starfsanda innan fyrirtækisins. Til hans er rakið að starfsmenn slást á árshátíðum, þorrablótum og keilukvöldum fyrirtækisins. Þetta getur ekki talist forstjóranum til lasts. Það er alltaf gaman að sjá unga menn takast á og reyna sig í léttum áflogum. Það er heilbrigt og hressandi á meðan enginn slasast verulega. Að vísu hefur þetta leitt til nefbrots. En hver hefur ekki gott af nefbroti einu sinni á ævinni? Grétar á Goðdölum í Skagafirði nefbrotnaði tvisvar á ævinni og blés ekki úr nös eftir það. En fór að taka í nefið til að hafa eitthvert not af því.
Dómarar í þessu fjörlega meiðyrðamáli standa frammi fyrir fjölda vandamála. Sönnunarbyrði um það hvort ummælin skuli dæmd ómerk er harðsótt. Hvað ef ummælin reynast vera sönn og rétt? Þá verður málið fyrst strembið fyrir alvöru.
.
![]() |
Segist ekki bera ábyrgð á nafnlausum skrifum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt 7.2.2010 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
5.2.2010 | 23:00
Veitingahússumsögn
- Staður: Shalimar, Austurstræti 4
Matur og drykkur | Breytt 6.2.2010 kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.2.2010 | 21:12
Kvikmyndarumsögn
- Titill: Maybe I Should Have
- Höfundur og leikstjóri: Gunnar Sigurðsson
- Einkunn: ***1/2 (af 5)
Þetta er önnur heimildarmyndin um íslenska bankahrunið. efnahagskreppuna, búsáhaldabyltinguna og það allt. Sú fyrri var Guð blessi Ísland. Óneitanlega svipar myndunum saman hvað örfá atriði varðar. Eitthvað er um líkar eða sömu klippur úr sjónvarpsfréttum, frá borgarafundum, mótmælafundum og svo framvegis.
Maybe I Should Have segir sögu Gunnars Sigurðssonar, leikstjóra. Það fer vel á því. Hann var í góðum málum fyrir bankahrunið. Var með leiksýningu í útrás. Lífið gekk sinn vanagang. En efnahagskreppan, hrun krónunnar og uppskrúfun vaxta keyrði hann í gjaldþrot.
Hann sat ekki með hendur í skauti heldur blés til borgarafunda og tók þátt í stofnun nýs stjórnmálaflokks, Borgarahreyfingarinnar.
Í myndinni reynir Gunnar að finna út hvað varð um peningana sem soguðust út úr bönkunum. Sögulegra skýringa er leitað í spillingunni á Íslandi, helmingaskiptareglunni og því öllu. Síðan er farið til Englands, Lúxemborgar og Tortóla. Einnig er stofnunin í Þýskalandi heimsótt sem vottað hefur árum saman að Ísland sé eitt af minnst spilltu löndum heims.
Allt er þetta hið fróðlegasta. Það er létt yfir myndinni. Mörgu spaugilegu er velt upp. Meðal annars með skreytingum úr gömlum kvikmyndum. Það er grátbroslegt að rifja upp afneitun stjórnvalda í aðdraganda bankahrunsins og vandræðagangi. Ingibjörg Sólrún veruleikafirrt, Geir Haarde ráðalaus og hræddur, kúlulánadrottningin Þorgerður Katrín kotrösk er hún blæs á varnarorð útlends hagfræðings með þeim orðum að hann þurfi í endurhæfingu.
Ég sakna þess að ekki sé þjarmað að kókaín-sniffandi guttunum sem fóru fremstir í útrásinni. Björgólfur yngri gerir þó sitt besta til að útskýra stöðuna. Ja, kannski ekki alveg sitt besta. Og þó. Jú, kannski hans besta. Í Guð blessi Ísland sagði hann að gamla hagfræðin um að peningar skipti um hendur sé úrelt. Þess í stað visni þeir eins og blóm og hverfi.
Í Maybe I Should Have segir hann peningana fara til "peningahimna". Þegar hann er spurður hverju hann vilji svara þeim sem kalla hann glæpamann segist hann ekki vilja svara þeim. Svo sprettur hann á fætur, rífur af sér hljóðnemann og segist þurfa að hlaupa burt með hraði.
Tónlistin í Maybe I Should Have er eðal: Magnús Þór og Fjallabræður; KK, Hjálmar, Dikta...
Ég hvet fólk eindregið til að skella sér á Maybe I Should Have. Þetta er fróðleg mynd, "skemmtileg", góð upprifjun á atburðum og vekur til umhugsunar.
5.2.2010 | 10:30
Hvað varð um allar fréttirnar af gengisvísitölum?
Fyrir örfáum árum voru allir fréttatímar í útvarpi og sjónvarpi undirlagðir glóðvolgum fréttum af vísitölum og gengi á hinum ýmsu hlutabréfum, verðbréfum og öðru því tengdu. Aðrar fréttir voru hornreka á meðan þessar markaðsfréttir þóttu þær merkilegustu. Að sjálfsögðu gáfu dagblöðin ljósvakamiðlum hvergi eftir í fréttaflutningi af gengisvísitölum.
Almenningur var svo spenntur fyrir þessum fréttum að vinna lagðist niður í flestum fyrirtækjum á meðan í fréttatímum var þulin löng upptalning á því að gengi í FL-group, Glitni, De Code og hvað þetta heitir allt hafði hækkað eða lækkað um 0,1% frá því daginn áður eða fyrir lokun markaða. Minnisblokkir og pennar seldust eins og heitar lummur því fólk var viðþolslaust að skrifa hjá sér hverja hreyfingu á gengi hlutabréfa.
Einhverra hluta vegna eru þessar fréttir horfnar úr fréttatímum. Renningar með upplýsingum um gengi hlutabréfa sjást ekki lengur neðst á sjónvarpsskjá í fréttatímum. Í útvarpsfréttum er ekki lengur haldið úti sérstöku fréttahorni um gengisvísitölur. Hvert er farið blómið blátt? Fréttir eru ekki lengur svipur hjá sjón. Það er ekkert gaman að þeim lengur.
Hér er smá upprifjun til að ylja sér við:
Hlutabréf í deCODE genetics inc. hafa lækkað um 20% frá í gær á NASDAQ. Þetta er þvert á væntingar hluthafa. Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 0,13 prósent í Kauphöllinni í dag og Marel um 0,11 prósent. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,14 prósent í dag. Gengi hlutabréfa í Bakkavör ruku upp um 0,5 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Century Aluminum féll um 2,33 prósent í gær, gengi bréfa Færeyjabanka lækkaði um 0,83 prósent. Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) stendur óbreytt frá í gær. Hækkanir voru í Asíu í nótt. Í Evrópu hefur breska FTSE-vísitalan hækkað um 0,1%, franska CAC um 0,5% og þýska Dax hlutabréfavísitalan um 1%. Í Bandaríkjunum hefur Dow Jones og Nasdaq vísitölurnar hækkað um 0.06%
.
![]() |
Netherferð til að bjarga bankamanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
4.2.2010 | 02:36
Ragnheiður Elín Clausen ofsótt á Fésbók
Ragnheiður Elín Clausen er þekkt sem þula í sjónvarpinu. Hún er jafnframt virk á Fésbók. Tekur þar þátt í fjörlegri umræðu um stjórnmál og fleiri dægurefni. Í gær varð hún fyrir því að nýr Fésbókarvinur hennar fór að haga sér einkennilega. Meðal annars sakaði hann Ragnheiði að vera ekki sú manneskja sem hann taldi hana vera. Svo færði hann sig upp á skaptið og endaði með því að hóta henni morði. Hann skráði sig inn sem Ólaf Kristján, gaf upp fæðingarárið 1970 og á ljósmynd sem fylgdi skráningu hans var hann ljóshærður. Hann hefur núna skráð sig út af Fésbók.
Hér er viðtal við Ragnheiði vegna þessa: http://dagskra.ruv.is/ras2/4519053/2010/02/03/1/
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
3.2.2010 | 18:40
Gátlisti til að finna siðblinda
Þau eru hræðileg tíðindin sem Nanna Briem geðlæknir bar á borð í dag í fyrirlestri um siðblindu í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn fjallaði ekki um siðblindu í Háskólanum í Reykjavík sérstaklega heldur var fyrirlesturinn í Háskólanum. Tíðindin hræðilegu eru þau að siðblindir einstaklingar eru ekki alfarið einskorðaðir við banka og fjármálafyrirtæki. Samtals er um 1500 - 3000 Íslendinga að ræða.
Til að verjast samskiptum við siðblinda er brýnt að prenta út eftirfarandi gátlista. Síðan er listinn settur í ljósritunarvél og fjölfaldaður í 5 - 500 eintökum (ræðst af því hvað samskipti eru við marga einstaklinga). Þegar einhver samskipti eiga sér stað við aðra persónu er upplagt að bregða sér afsíðis í kjölfarið svo lítið beri á og merkja við hvort einhver einkenni um siðblindingja eigi við um viðkomandi.
Tekið skal fram að ekki er hægt að brúka gátlistann á sjálfan sig. Siðblindingi er svo siðblindur að hann blekkir sjálfan sig svo rækilega að hann hefur ekki hugmynd um siðblindu sína. Þvert á móti telur siðblindinginn sig vera með gott og heilbrigt siðferði.
Persónueinkenni siðblindingja (sækópata / border line):
_ Á auðvelt með að koma vel fyrir og gefa af sér góðan þokka
_ Er sjálfmiðaður og telur sig vera mikilvægan
_ Sækir í hvatningu og örvun. Annars leiðist honum.
_ Beitir blekkingum og lygum eins og ekkert sé eðlilegra
_ Svíkur og svindlar eins og það sé sjálfsagðasti hlutur í heimi
_ Iðrast varla eða einskis og finnur vart til samviskubits þegar gerðir hans bitna á öðrum
_ Sýnir lítil sem engin tilfinningaviðbrögð við óförum annarra
_ Er harðbrjósta og á erfitt með að finna til samúðar
_ Laginn við að notfæra sér annað fólk hvort sem er fjárhagslega eða á annan hátt
_ Hömlulaus á mörgum sviðum
_ Lauslátur og óábyrgur í kynferðismálum
_ Á einhver hegðunarvandamál að baki
_ Hefur ekki þolinmæði né skilning á langtímamarkmiðum. Hlutirnir verða að gerast strax.
_ Hvatvís lífstíll
_ Kennir öðrum um
_ Ástarsambönd endast ekki til lengri tíma
_ Lenti í vandræði á unglingsárum
_ Brýtur boð og bönn og skilorð þegar um slíkt er að ræða
_ Brot hans eru ekki bundin við eitthvað tiltekið svið. Þau spanna ýmis svið.
Við hvert atriði skal merkja tölustaf: 2 (algjörlega) eða 1 (að hluta) eða 0 (alls ekki). Síðan eru stigin talin saman.
0 - 10 stig = Það er allt í fínu með siðferðisvitund þína.
11 - 17 stig = Þú hefur persónuleikagalla en ert ekki siðblind/ur.
18 - 29 stig = Þú ert siðblind/ur og þarft að leita þér hjálpar.
30 - 36 stig = Þú ert fárveik/ur. Bullandi siðblind/ur og hættuleg/ur samfélaginu.
.
![]() |
Siðblinda finnst allsstaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt 14.2.2010 kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.2.2010 | 00:56
Spilling og barátta gegn spillingu
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur farið fremstur í flokki gegn spillingu í íslenskum stjórnmálum. Fyrir þá sem misstu af verulega áhugaverðri umræðum í borgarstjórn í dag birti ég hér fundargerð dagsins (örlítið stytta. Hlaupið yfir óþörf formlegheit):
Ár 2010, þriðjudaginn 2. febrúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Hermann Valsson, Þorleifur Gunnlaugsson, Dofri Hermannsson, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Ólafur F. Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon, Sif Sigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Óskar Bergsson og Marta Guðjónsdóttir.
Fundarritari var Ólafur Kr. Hjörleifsson.
1. Í upphafi fundar kveður Ólafur F. Magnússon sér hljóðs og ræðir fundarsköp.
2. Lögð fram tillaga að hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna óska bókað:
Með samþykkt fyrstu hjólreiðaáætlunar Reykjavíkurborgar, Hjólaborgin Reykjavík, eru stigin stór græn skref í átt að umhverfisvænni borg. Markmiðið er að gera fólki kleift að ferðast um borgina á þann hátt sem það kýs. Góð aðstaða til hjólreiða á að hvetja borgarbúa til að njóta útivistar jafnframt því að sinna erindum sínum á reiðhjólum. Þúsundir Reykvíkinga hjóla nú þegar á hverjum degi enda er Reykjavík að mörgu leyti mjög hentug hjólaborg. Reykjavíkurborg hefur það nú að leiðarljósi að huga að hjólreiðum við gerð allra umferðarmannvirkja. Það er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík að stórauka hlutdeild hjólreiða með því að leggja fleiri og betri hjólastíga og bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Áætlunin Hjólaborgin Reykjavík leggur drög að framkvæmdum fyrir næstu ár. Borgarstjórn samþykkti í september 2007 tillögu Árna Þórs Sigurðssonar fyrrverandi borgarfulltrúa um að vinna ætti sérstaka hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík til að gera hjólreiðar að fullgildum og viðurkenndum samgöngumáta fyrir Reykvíkinga. Hjólaborgin Reykjavík er afrakstur vinnu starfshóps meiri- og minnihluta, sem vann að áætluninni í samráði við hagsmunaaðila og fagfólk.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Tillaga um hjólreiðaáætlun í Reykjavík er í sjálfu sér hið besta mál. Um árabil hef ég barist einn á vettvangi Borgarstjórnar Reykjavíkur fyrir breyttri forgangsröðum, þar sem velferðar- og sérstaklega öryggismál eru höfð í öndvegi. Forgangsröðun fjórflokksins hefur ætíð verið önnur. Ég sit því hjá.
3. Fram fer umræða um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Að minni ósk fer hér fram umræða um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa, þar með talið eignastöðu þeirra og fjárhagsleg tengsl. Eins og segir í auglýsingu borgarmálafélags F-listans í Fréttablaðinu í dag þá mun ég gera ýtarlega grein fyrir eignastöðu minni á borgarstjórnarfundi í dag og krefjast þess að aðrir borgarfulltrúar geri slíkt hið sama. Mikill fjáraustur sumra sigursælla frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins rennir stoðum undir vísbendingar um að fjárhagsleg tengsl og eignastaða þeirra gerir þá vanhæfa til að gegna trúnaðarstörfum sem kjörnir fulltrúar Reykvíkinga. Um sl. áramót var eignastaða mín með eftirfarandi hætti:
1. Fasteignin Vogaland 5 í Reykjavík, helmingseignarhluti. Fasteignamat eignarinnar skv. mati sem tók gildi 31. desember sl. var kr. 71.250.000 og er helmingshluti þess 35.625.000. Á eigninni hvíla tvö lán, frá Lífeyrissjóði lækna annars vegar og frá Spron, síðar Kaupþing og Arionbanki hins vegar. Upphafleg staða lánanna við kaup á húsinu var kr. 3.800.000 en er nú um kr. 1.000.000 og verða lánin fullgreidd á þessu ári.
2. Bifreiðin KEK 56 sem er af gerðinni Toyota Rav 4, árgerð 2007. Kaupverð í nóvember 2007 var um kr. 3.300.000.
3. Launareikningur minn hjá Arionbanka nr. 554482 vegna borgarfulltrúastarfsins. inneign um sl áramót var kr. 583.000.
4. Viðskipta- og launareikningurinn hjá Arionbanka nr. 004482 vegna læknisstarfsins. Staða reikningsins um sl. áramót var kr. 277.000 að teknu tilliti til yfirdráttarheimildar, sem er kr. 1.500.000, þannig að raunstaða reikningsins var neikvæð um rösklega kr. 1.200.000.
Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að frambjóðendum til borgarstjórnar í vor ásamt sitjandi borgarfulltrúum sé gert skylt að gera grein fyrir eignastöðu sinni, bæði fasteignum, bifreiðaeign og bankainnistæðum.
Samþykkt með samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.
Tillögu Ólafs F. Magnússonar er vísað til forsætisnefndar með 15 samhljóða atkvæðum.
Að beiðni Ólafs F. Magnússonar ákveður forseti að fresta umræðu skv. 3. lið útsendrar dagskrár þar til í lok fundar og umræðu skv. 4. lið til næsta fundir.
4. Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 22. og 28. janúar.
5. Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 29. janúar, framkvæmda- og eignaráðs frá 25. janúar.
6. Fram fer umræða um ráðstöfun styrkja til stjórnmálasamtaka og upplýsingaskyldu þar um.
Ólafur F. Magnússon óskar bókað:
Árið 2007 lét fjórflokkurinn í Borgarstjórn Reykjavíkur hækka framlög til sín frá borginni úr kr. 13.900.000 í kr. 32.750.000 eða um 130% eða 2,3 földun. Á tímabilinu 2006-2010 ætlar fjórflokkurinn sér 90% af áætluðum framlögum borgarinnar til stjórnmálasamtaka, sem eru 90% af kr. 143.000.00 eða kr. 129.000.000. F-listinn í borgarstjórn hefur þegar lagt fram reikninga sína í borgarráði vegna einu greiðslunnar sem hann hefur fengið á kjörtímabilinu um kr. 3.400.000. Farið er fram á að önnur framboð taki borgarstjórnarflokk F-listans til fyrirmyndar á þessu sviði sem öðrum. F-listinn vill að framlög sem honum voru ætluð vegna árann 2009 og 2010 renni til líknar- og velferðarmála og skorar á hin framboðin að gera slíkt hið sama.
Ólafur F. Magnússon leggur fram svohljóðandi tillögu:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að öllum borgarstjórnarframboðum sé gert skylt að gera grein fyrir því hvernig framlögum borgarinnar til þeirra hefur verið varið á þessu kjörtímabili, nánar tiltekið framlög borgarinnar árin 2006-2009.
Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að taka tillöguna á dagskrá.
Borgarfulltrúar Vinstri grænna óska bókað:
Borgarfulltrúar VG lögðu það til við gerð fjárhagsáætlunar í desember að styrkir Reykjavíkurborgar til stjórnmálaflokka yrði lækkaðir um helming en þeir nema nú tæplega 30 milljónum. Tillagan er til afgreiðslu í forsætisnefnd. Fram hefur komið að greiðsla Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka hækkaði úr 13,9 milljónum króna árið 2006 í 32,75 milljónir árið 2007. Undanfari þessarar hækkunar var að árið 2006 var ákveðið að ýmis kostnaður sem áður féll á sveitarfélög við alþingis- og forsetakosningar skyldi framvegis greiddur af ríkissjóði en vafasamt er að réttlæta það að þessar breytingar leiddu af sér færslu fjármuna til stjórnmálaflokka í Reykjavík. Það hefur einnig komið fram að framlög Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka eru meira en helmingi hærri en framlög annarra sveitarfélaga, svo sem Kópavogs, Akureyrar og Garðabæjar ef miðað er við höfðatölu. Það er hinsvegar ljóst að Reykjavíkurborg er skylt skv. lögum að veita þeim stjórnmálasamtökum, sem uppfylla skilyrði ákvæðisins, fjárframlög til starfsemi sinnar, og skal heildarfjárhæðinni skipti milli þeirra í hlutfalli við atkvæðamagn í næstliðnum borgarstjórnarkosningum en í lögum er ekki getið um upphæð framlagsins. Færa má rök fyrir því að borgarstjórnaflokkar, sérstaklega þeir sem eru í minnihluta, þurfi á fjárframlögum að halda til þess að sækja sérfræðiaðstoð en sú mikla hækkun sem orðið hefur á framlögum undanfarin ár er langt umfram þá þörf. Lækkun framlaga til stjórnmálaflokka svarar kalli tímans þegar mikill niðurskurður kallar á forgangsröðun í þágu velferðarmála. Skerðing á fjármagni til stjórnmálaflokka, hvort sem það er frá einkafyrirtækjum eða opinberum aðilum, færir þá nær þeim tíma þegar starfsemin var fyrst og fremst byggð á félögunum í flokkunum sjálfum.
Tillögu Ólafs F. Magnússonar er vísað til forsætisnefndar með 15 samhljóða atkvæðum.
![]() |
Vísar ásökunum um lygar á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
2.2.2010 | 12:07
Sprengja!
Væntanleg er á markað bókin Ekki lita út fyrir. Þetta er sjálfshjálparbók eftir Evu "norn" og Ingólf Júlíusson, ljósmyndara. Bókin er sú opinskáasta / klúrasta sem komið hefur út á Íslandi. Það er næsta víst að ýmsir muni hrökkva við. Hér eru sýnishorn úr bókinni. Þau eru valin þannig að ekki þurfi að banna þessa bloggsíðu lesendum undir 18 ára aldri.
![]() |
Kynlífsbindindisfræðsla virkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.2.2010 | 00:26
Hrútur heimsótti prest
Á þessum árstíma eru hrútar hafðir í húsi. Oftast svokölluðum hrútakofa. Þar eru þeir í góðu yfirlæti. Fengitími kinda nýafstaðinn og hrútarnir nokkuð sáttir. Þeim er fært á silfurfati gott hey og una hag sínum vel. Á sumum bæjum er hrútunum hleypt út daglega til að drekka íslenskt ferskvatn í nálægum læk. Það kunna þeir vel að meta. Þeir vita fátt betra og hollara en íslenskt ferskvatn. Enda vita þeir ekki að bjór er ennþá betri og hollari svaladrykkur.
Í héraðsblaðinu Skessuhorni á Vesturlandi segir frá hrúti sem brá sér óvænt í bæjarferð. Hann heimsótti prestinn á Grundarfirði. Ekki fer sögum af því hvað þeim, hrútnum og presti, fór á milli. Né heldur hvort hrúturinn taldi sig eiga einhverja harma að hefna hjá presti eða hvort um sakleysislega kurteisisheimsókn var að ræða. Ekki fylgdi heldur sögu hvort hrúturinn og presturinn stönguðust á. Hrútum þykir fátt skemmtilegra en stangast á. Ég veit ekki með presta.
Hitt veit ég; að á færeysku kallast hrútur veðrur. Það er framborið vegrur. Síðar í vikunni læt ég húðflúra á vinstri framhandlegg merkið hér fyrir ofan. Það mun "harmónera" vel við hægri handlegginn sem skartar húðflúruðu landakorti af Færeyjum.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2010 | 21:26
Hver á hvað og hvað er hvurs?
Eftir því sem meira kemur fram í dagsljósið um útrásarvillingana og íslenska efnahagsviðundrið fjölgar spurningamerkjunum. Það er eins og allt hafi verið meira og minna í tómu rugli. Orð eins og misskilningur, mistök, sýndarviðskipti, "ég vissi ekki að þetta væri ólöglegt", "ég skrifaði bara undir en vissi ekki hvað stóð í skjalinu", "ég veit ekkert um þetta. Spurðu einhvern annan" og annað eftir því einkenna útskýringar þeirra sem fremstir fóru.
Allt er svo flókið og fljótandi að maður verður ringlaður af að reyna að átta sig á hver seldi hverjum hvað, hver átti hlut í hvaða fyrirtæki, hvaða fyrirtæki áttu hlut í sjálfum sér og öðrum fyrirtækjum sem síðan áttu hlut hvert í öðru, hver hefur yfirfært eignir yfir á maka og ættingja, hver á hvað og hvað er hvurs...
Örlítið dæmi sem vegur létt í heildarmyndinni snýr að málverkum er voru í eigu Skeljungs en enduðu uppi á vegg hjá Pálma Haraldssyni, kenndum við Fons. Þessi málverk höfðu áratugum saman glatt augu starfsfólks Skeljungs og viðskiptavina. Einn góðan veðurdag voru þau horfin. Pálmi fjarlægði þau að næturlagi. Þau voru skráð úr og í önnur fyrirtæki tengd Pálma.
Nú hefur komið í ljós að við fyrstu eignarfærslu úr eigu Skeljungs voru málverkin skráð á verulegu undirverði. Uppgefin skýring á því er þessi: Sá sem verðmat verkin fékk - fyrir mistök - í hendur að hluta til önnur málverk en þau sem átti að verðmeta. Þegar Pálmi greiddi fyrir verkin var allt í rugli. Vegna misskilnings keypti hann meðal annars nokkur ódýr málverk sem hann þegar átti. Önnur og dýrari málverk greiddi hann ekki fyrir vegna þess að hann vissi ekki að hann væri að eignast þau. Hann bara átti þau allt í einu án þess að hafa hugmynd um að hann hafði ekki borgað fyrir þau. Jafnframt eignaðist hann nokkur málverk sem hann þegar átti en vissi ekki að hann hafði átt. Eftir stendur að hann á í dag gott og verðmætt málverkasafn. Það hefur gengið kaupum og sölum á milli fyrirtækja Pálma án þess að færast til á veggjum hans. Pálmi er listunnandi. Safnar hvorki einkaþotum, þyrlum, lúxussnekkjum né lúxusbílum. En kann vel að meta góð málverk. Það er virðingarvert. Ég er alltaf á leiðinni að fara að dusta rykið af penslunum mínum. Þegar af því verður er gott að vita af mönnum eins og Pálma í Fons.
Málverkið af Mónu Lísu var upphaflega passamynd fyrir ökuskírteini. Núna er þetta eitt frægasta málverk heims. Pínulítil mynd.
.
![]() |
Nýr bavíani nær langt í viðskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 1.2.2010 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2010 | 16:05
Færeyingar rúlla Dönum upp
Á sama tíma og Íslendingar halda áfram að hasla sér völl í færeysku viðskiptalífi velta danskir fjölmiðlar fyrir sér hvers vegna færeysku tónlistarfólki gengur hlutfallslega vel á danska markaðnum. Færeyingar eru rösklega 48 þúsund, eða eins og lítið þorp, í danska sambandsríkinu sem telur hátt í 6 milljónir manna.
Færeyska innrásin í Danmörku hófst í ársbyrjun 2002 er þungarokkshljómsveitin Týr sigraði í dönsku tónlistarkeppninni Melody Makers. Týr náði bæði titlinum "Besta hljómsveitin" (valin af dómnefnd) og "Vinsælasta hljómsveitin" (valin af almenningi). Í kjölfarið sló Týr í gegn hérlendis með laginu Ormurinn langi. Það er önnur saga.
Sigur Týs í Melody Makers vakti mikla athygli og mikla umfjöllun í dönskum fjölmiðlum. Augu Dana var beint að Færeyjum. Það leiddi til þess að færeysku hljómsveitinni Clickhaze var boðið að spila á Hróarskeldu. Þar heillaði hún danska gagnrýnendur upp úr skónum. Margir þeirra sögðu hljómleika Clickhaze hafa verið toppinn á Hróarskeldu hátíðinni það sumarið. Í Jyllands-Posten var frammistöðu Clickhaze lýst á þann hátt að söngkona hljómsveitarinnar, Eivör, hefði blásið Björk út í hafsauga. Lesendur voru hvattir til að gleyma Björk. Eivör væri framtíðin. Eivör mótmælti þessari söguskoðun í öllum viðtölum þar sem þetta bar á góma. Sagðist vera aðdáandi Bjarkar og frábað sér að taka þátt í samanburði á sönghæfileikum þeirra. Þegar ég var kynnir á hljómleikum Clickhaze á Grand Rock 2002 og vitnaði til þessara ummæla Jyllands-Posten hóf Eivör hljómleikana með þeim orðum að Björk sé frábær og ummæli JP algjörlega út í hött.
Síðar heillaði Evör Dani sem sólósöngkona. Hún hefur fengið margar útnefningar og nokkur verðlaun í dönsku tónlistarverðlaununum. Einnig tók stórsveit danska ríkisútvarpsins upp á því að útsetja lög Eivarar og flytja í útvarpinu. Það starf þróaðist þannig að síðar söng Eivör lögin með hljómsveitinni inn á plötu.
Teitur er annar færeyskur tónlistarmaður sem nýtur vinsælda og virðingar í Danmörku. Hann hefur verið drjúgur við að fá tilnefningar og verðlaun í dönsku tónlistarverðlaununum.
Högni Lisberg er enn einn færeyski tónlistarmaðurinn sem hefur haslað sér völl í Danmörku, spilað á Hróarskeldu og fleiri dönskum tónlistarhátíðum.
Fyrir tveimur árum vakti pönkskotin færeysk popprokksveit, The Dreams, athygli í dönsku "Músíktilraunum". The Dreams hafnaði í 2. sæti og sló hressilega í gegn. Enginn man lengur eftir hljómsveitinni sem sigraði en The Dreams hefur raðað lögum í 1. sæti danska vinsældalistans og sigrað í ótal vinsældakosningum. The Dreams er ofur vinsæl í Danmörku.
Fyrir 2 árum eða svo kom færeyska söngkonan Guðrun Sölja, sá og sigraði í söngvarakeppninni "Stjarna kvöldsins" í danska sjónvarpinu. Í fyrra endurtók færeyska söngkonan Linda Andrews leikinn í danska X-factor. Í ár er færeyska söngkonan Anna Nygaard á fljúgandi siglingu í danska X-factor og virðist sigurstrangleg.
Þetta er ástæðan fyrir því að danskir fjölmiðlar spyrja sig hvernig á því standi að færeyskir tónlistarmenn séu svona sigurstranglir hvar sem til þeirra spyrst. Danir vísa jafnframt til þess að færeyski söngvarinn Jógvan sigraði í íslensku X-factor og sé kominn í lokaúrslit í forkeppni Júrivisjón á Íslandi.
Hér fyrir neðan er forsíðufrétt í danska Berlingske Tidene af því að færeyska söngkonan Anna Nygaard meiddi sig á hökunni. Hún missteig sig í stiga og féll við.
![]() |
Hilda hf. eignast í Færeyjabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt 1.2.2010 kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.1.2010 | 00:02
Samanburður við prófkjörið 2006
Sem fyrr er gaman að skoða úrslit prófkjörs, bera þau saman við framboðslistann 2006 og rúlla upp vangaveltum um niðurstöðuna. Hér hef ég sett innan sviga í hvaða sæti frambjóðendur Samfylkingarinnar voru í framboðinu til borgarstjórnar 2006.
1 ( 1 ) Dagur B. Eggertsson
2 ( 5 ) Oddný Sturludóttir
3 ( 4 ) Björk Vilhelmsdóttir
4 ( - ) Hjálmar Sveinsson
5 ( - ) Bjarni Karlsson
6 ( 7 ) Dofri Hermannsson
7 ( 6 ) Sigrún Elsa Smáradóttir
8 ( - ) Margrét K. Sverrisdóttir
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og ævisöguritari Steingríms Hermannssonar, bauð sig einn fram í 1. sæti. Þess vegna kemur ekki verulega á óvart að hann skuli nú hreppa það sæti. Allir aðrir í efstu sætum eru ýmist nýliðar eða hækka sig á listanum. Nema Sigrún Elsa. Hún fellur um sæti. Hugsanlegt er að ferðagleði hennar til útlanda á kostnað borgarbúa eigi þar hlut að máli.
Samfylkingin er með 4 borgarfulltrúa. Að óbreyttu verður Hjálmar Sveinsson nýr borgarfulltrúi. Hann er hástökkvari prófkjörsins ásamt Oddnýju. Varaborgarfulltrúarnir fá vel launuð nefndarstörf. Það er huggun harmi gegn. Þeir stefndu í efri sæti.
Sjá einnig samanburð á úrslitum prófrkjörs Sjálfstæðisflokksins: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1009679/
.
![]() |
Átta atkvæði milli Bjarna og Dofra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2010 | 00:39
Áttir þú erfiðan dag?
Þessi vaknaði upp með andfælum af værum blundi þegar klukkan hringdi.
Til að losa um spennu í líkamanum var ekki um annað að ræða en gera nokkrar kröftugar hálsæfingar.
Því næst að fara í sturtu. Í asanum gleymdist að taka upp hárgreiðuna.
Því næst að stíga á vigtina. Megrunin eftir jólasteikina og konfektið er ekki að virka.
Samt er þraukað í prógramminu. Léttar teygjuæfingar eru nauðsynlegar.
Mættur of seinn í vinnuna tekur við niðurlægjandi athugasemdir frá yfirmanninum. Hann hreinlega smjattar á skömmustulegum og niðurlútum þeim sem svaf yfir sig.
Síðan var svefnpurkan send út í rigninguna að kaupa inn vínarbrauð fyrir kaffitímann.
Æ, gjörsamlega fastur í vítahringnum. Hvorki gengur né rekur.
Það rigndi ofan í vínarbrauðið á leiðinni. Það var ógeðslegt.
Leiðinlegir viðskiptavinir mættu með ósanngjarnar kröfur. En það var ekki um annað að ræða en reyna að gera gott úr átroðslunni.
Þetta var meira en nóg. Stressið helltist yfir og ælunni var spýjað ofan í klósettið.
Loks þegar dagsverkinu var lokið og kvöldið átti að vera notalegt heyrðist dularfullt þrussk úr kjallaranum.
Og þú hélst að þú hefðir átt erfiðan dag.
29.1.2010 | 12:44
Bílar framtíðarinnar
Þrátt fyrir tímabundna verðlækkun á olíu af og til hækkar hún og hækkar í verði til lengri tíma litið. Bílaframleiðendur eru hver á fætur öðrum farnir að laga sig að kröfum markaðarins. Bílarnir eru að færast hratt í það form sem kallast "smart": Sparneytnir, litlir og liprir í stórborgarumferð þar sem stöðugt erfiðara er að finna laus bílastæði.
Hér eru nokkrar tegundir sem verið er að kynna á markað næstu ára. Fyrst er það Smorvette:
Smaudi A3 AWD:
Smamboghini:
Smerrari:
Smorche:
Smustang:
Þessi ferðamáti er að verða æ sjaldgæfari í Reykjavík og víðar. Mun algengara er að einungis ein einangruð manneskja sé í hverjum bíl.
![]() |
Olía lækkar í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.1.2010 | 00:02
Kvikmyndarumsögn
- Titill: Avatar
- Handrit og leikstjórn: James Cameron
- Einkunn: **** (af 5)
Það hafa ekki allir Íslendingar séð Avatar. En margir. Sumir þeirra hafa hvatt mig til að missa ekki af þessari vinsælu mynd. Ég hef verið tregur til. Með vaxandi þrýstingi lét ég loks undan. Ég var búinn að heyra ýmislegt um myndina og hún kom því ekki á óvart. Sagan er uppfull af klisjum og aftur klisjum. Hún gerist á plánetu sem er langt í burtu frá jörðinni. Þar býr 3ja metra hátt fólk, blátt að lit með svarta flókalokka (dreadlocks) að hætti jamaískra rastafara. Tengsl þeirra við náttúruna eru sterk. Þetta eru sönn náttúrubörn. Talsmenn þeirra tala ensku. Að sjálfsögðu.
Svo óheppilega vill til að á búsetusvæði þessa fólks er verðmætur málmur. Þann málm ásælast siðblindir og herskáir jarðarbúar. Þeir eru tilbúnir að beita öllum meðulum til að hrekja blámennina frá heimkinnum sínum. Og gera það með stæl þó ekki takist ætlunarverkið að öllu leyti.
Sagan deilir á heimsvaldastefnu, hernaðarhyggju og virðingarleysi gagnvart náttúrunni. Hannes Hólmsteinn Gissurarson vældi sáran á pressan.is undan boðskapnum. Sem þýðir að boðskapurinn er góður og fallegur.
Myndin er óþarflega löng; um 3 tímar með hléi. Það má að skaðlausu stytta hana niður í 2 tíma. Lengdin þjónar sennilega þeim tilgangi að skerpa á ímynd myndarinnar sem stórmyndar. James Cameron er fram til þessa þekktastur fyrir stórmyndina væmnu og leiðinlegu, Titanic.
Avatar er þrívíddarmynd. Við innganginn fær áhorfandinn í hendur sérstök gleraugu til að ná þrívíddinni. Margar senur eru rosalega fallegar og þrívíddin nýtur sín í botn. Sú er ástæðan fyrir því að virkilega gaman er að horfa á myndina.
Ég hvet fólk til að sjá Avatar í kvikmyndahúsi. Á DVD eða í sjónvarpi án þrívíddarinnar verður hún ekki svipur hjá sjón. Þrívíddin gerir upplifunina svo sterka að í nokkrum senum fann ég votta fyrir lofthræðslutilfinningu.
Varast ber að rugla myndinni saman við sænsku þungarokkshljómsveitina Avatar.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
26.1.2010 | 22:22
Ósvífið svindl
Sjö ára breskur gutti er að mokselja málverk fyrir háar upphæðir. Ég nam myndlist í fjögur ár við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í eitt ár við Myndlistaskóla Reykjavíkur. Ég hef kennt sjö ára börnum og eldri myndlist. Það stenst ekki að þessi drengur hafi svona gott vald á fjarvídd, mynduppbyggingu, litameðferð, sé búinn að koma sér upp þetta sterkum stíl og sé jafnvígur í að mála landslag, skýjafar og hús. Myndir hans eru að vísu engin meiriháttar listaverk. En of pottþétt til að möguleiki sé á að sjö ára drengur afgreiði þessi verk einn síns liðs. Ekki einu sinni þó hann væri sjö ára stelpa.
Hér er um svindl að ræða. Foreldrar hans eru klárlega að hlaupa undir bagga. Þetta svindl mun komast upp þó síðar verði. Ég er ekki að mæla með að strákurinn verði hýddur. En kannski foreldrana...
![]() |
Lítill listmálari vekur athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.1.2010 | 22:22
Vek athygli á 4ða þættinum með Ragga Bjarna á rás 2 - nú á dagskrá
Það er alltaf grín í kringum Keith Richards, gítarleikara Flækinganna (The Rolling Stones). Nú þykist hann vera hættur að drekka. Ásgeir Jónsson, söngvari BARA-flokksins, sagði mér eitt sinn frá vini sínum sem vann á hóteli í London fyrir nokkrum árum. Flækingarnir gistu á hótelinu. Lítið fór fyrir liðsmönnum hljómsveitarinnar. Nema Keith Richards bað reglulega alla nóttina um að fá bætt á miní-barinn. Eftir nokkrar áfyllingar spurði næturvörðurinn Keith hvort hann vildi ekki bara fá almennilega stóra vínflösku frekar en lepja úr litlum flöskum miní-barsins. Nei, Keith sagðist vera hættur að drekka. Hann ætlaði bara aðeins að bæta á sig undir svefninn. Þannig gekk það fram á morgun. Keith svaf ekki neitt. Drakk bara. En var ljúfur og stóð sína vakt á hljómleikunum síðar um daginn.
Í annað sinn var bróðir minn í Svíþjóð þegar Flækingarnir héldu þar hljómleika. Múgur papparassa hélt til fyrir utan hótelið sem þeir dvöldu á. Nema fátt bar til tíðinda. Annað en það að alla nóttina sást af og til skuggamynd af Keith fyrir innan gluggatjöldin þamba úr flösku af stút. Hann svaf ekkert alla nóttina en stóð sína vakt glæsilega á hljómleikum hljómsveitarinnar um kvöldið.
Fyrir nokkrum árum hitti ég í Hollandi enskan kokk sem hafði nýlokið við að kokka ofan í Flækingana á hljómleikaferð þeirra um Evrópu. Sá var vinur Rods Stewarts og fékk "djobbið" í gegnum hann. Kokkurinn kynntist engum af liðsmönnum Flækinganna á þessu ferðalagi nema Ronnie Wood. Þeir Ronnie höfðu sameiginlegan áhuga á myndlist og spjölluðu mikið um þetta áhugamál. Aðrir Flækingar héldu sig út af fyrir sig. Mick Jagger var umkringdur læknum, íþróttaþjálfurum og öðrum slíkum. Þeir blönduðu engu geði við aðra starfsmenn. Það var skörp stéttarskipting á þessu ferðalagi. Eins og algengt er meðal Breta. Kokkurinn sagði að það hafi þó ekki farið framhjá neinum í þessum - að mig minnir 70 manna hópi - að Keith virtist aldrei sofa. Hann sat að drykkju dag sem nótt. Kokkurinn sagði að hann hljóti þó að hafa tekið stuttar kríur af og til.
Annar gleðigjafi á svipuðum aldri og Keith í poppmúsík, Raggi Bjarna, er núna í sínu 4ða viðtali í Færibandinu, þætti Bubba Morthens, á rás 2. Fyrri þættirnir hafa verið óhemju skemmtilegir. Enda Raggi eðal skemmtilegur (og hefur ekkert með það að gera að ég hannaði bókakápu ævisögu hans. Það er önnur saga).
![]() |
Keith Richards hættur að drekka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.1.2010 | 11:42
Kolbrenglaðar mælingar á útvarpshlustun
Mér hefur borist til eyrna að á morgun muni Samkeppniseftirlitið halda fund. Helsta fundarefni verður hvernig Capacent Gallup stendur að mælingu á hlustun á útvarpsstöðvar og gón á sjónvarp. Vandamálið er að núna eru þessar mælingar rafrænar. Þrír aðilar eiga rafrænu græjurnar. Það eru RÚV, 365 miðlar og Skjár 1.
Útvarps- og sjónvarpsstöðvar í eigu annarra geta verið með. En það kostar 4 milljónir fyrir hverja þeirra. Útvarp Saga, Kaninn, Flash, Lindin, alkastöðin og hvað hún heitir útvarpsstöðin á Selfossi hafa ekki fjárhagslegt svigrúm né vilja til að afhenda keppinautunum 4 milljónir. Áreiðanlega er sama staða uppi hjá ÍNN, Omega og N4.
Fyrir bragðið mælir Capacent Gallup ekki gón á litlu sjónvarpsstöðvarnar eða hlustun á fjölda útvarpsstöðva. Þar með er niðurstaða hlustunar á útvarpsstöðvar skökk. Auglýsingastofur og aðrir stórir auglýsendur sitja uppi með villandi upplýsingar þegar verið er að reikna út snertiverð auglýsinga í útvarpi. Þessum aðilum vantar inn í reikningsgögnin rétta mynd af útvarpshlustun landsmanna.
Skortur á heildarmyndinni veldur því að auglýsendur sniðganga útvarpsstöðvar sem hvergi er minnst á í gögnum Capacent Gallup. Þetta þýðir að RÚV og 365 miðlar halda keppinautunum úti í kuldanum. Beita fjárhagslegu svigrúmi sínu til þess að halda keppinautunum frá auglýsingamarkaðnum.
Samkeppniseftirlitið hlýtur að taka þetta föstum tökum.
.
.
![]() |
Samruni sendur aftur til Samkeppniseftirlitsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
24.1.2010 | 21:40
Skemmtilegar og broslegar myndir af þreyttum köttum
Kettir hugsa fyrst og síðast um að láta sér líða vel. Þeir nota hvert færi sem gefst til skreppa inn í draumalönd - á milli þess sem þeir gera strangar kröfur um að fá gott að borða og drekka hjá "eiganda" sínum. Reyndar viðurkenna kettir ekki að neinn eigi þá. Fólk má snúast í kringum þá, klappa þeim og klóra, en kötturinn fer sínar eigin leiðir, frjáls og óháður.