7.9.2014 | 01:17
Yfirburđir fćreysku kartöflunnar niđurćgja íslenskar kartöflur
Fćreyingar kalla kartöflur epli. Um ţađ hef ég áđur skrifađ. Líka hversu snilldarlega Fćreyingar rćkta kartöflur. Um ţađ má lesa međ ţví ađ smella á ţennan hlekk: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1303680/
Fćreyskar kartöflur eru stćrri og bragđbetri en ţćr íslensku. Stćrsta fćreyska kartaflan í ár vegur 711 grömm. Hún er 18 cm löng og 20 cm í ţvermál. Ţađ er reisn yfir fćreyskum kartöflum í samanburđi viö lambaspörđ íslensku kartöflunnar.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
5.9.2014 | 22:34
Er forsprakki Sleep Shepherd geđveikur?

Fćreyskir fjölmiđlar hafa veriđ ađ rifja upp gömul viđtöl viđ Paul Watson stofnanda og forsprakka Sea Shepherd - eđa Sleep Shepherd eins og fyrirbćriđ er kallađ eftir ađ liđsmenn samtakann sváfu af sér hvalveiđar í Fćreyjum á dögunum. Sitthvađ bendir til ţess ađ mađurinn gangi ekki heill til skógar.
Á sínum tíma var Paul Watson rekinn úr Greenpeace. Hann fór ekki eftir reglum Greenpeace. Hann fór ekki eftir neinum reglum. Hann var skilgreindur af Greenpeace sem of geggjađur og skađlegur málstađ Grćnfriđunga.
SS-liđar staddir i Fćreyjum hafa veriđ frekar kurteisir á spjallsíđum. Ţeir hafa eins og stillt sig inn á stemmninguna sem yfirvegađir Fćreyingar leiđa í umrćđunni. En Paul Watson er kjaftfor og ögrandi. 1986 sökkti Paul eđa menn á hans vegum tveimur íslenskum hvalveiđiskipum.
Paul Watson segist hafa veriđ sem barn ćttleiddur af amerískum indíánum. Hann náđi sambandi viđ "Andann mikla". Hann fór ađ sjá sýnir, tákn, um ađ honum vćri ćtlađ ţađ hlutverk í lífinu ađ bjarga villtum dýrum frá ţví ađ vera veidd og drepin. Fyrsta sýnin sem honum birtist ítrekađ var af sléttuúlfum. Ţađ voru auđskilin fyrirmćli um beita sér gegn hvalveiđum.
1985 skýrđi Paul Watson frá ţví ađ hann hefđi náđ andlegu sambandi viđ hval. Sá sagđi honum ćvisögu sína og frumsamda smásögu í leiđinni. Ţetta skráđi Paul Watson samviskusamlega niđur og sagđist ćtla ađ gefa út í bók. Vandamáliđ var ađ hvalur hugsar ekki né tjáir sig alveg á sama hátt og manneskja. Ţess vegna hefur Paul ekki tekist ađ reka smiđshöggiđ á bókina.
Heilbrigđismál | Breytt 6.9.2014 kl. 18:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
4.9.2014 | 22:06
Hvađa ţjóđir eru duglegastar ađ reykja kannabis?
Sameinuđu ţjóđirnar hafa rannsakađ og tekiđ saman lista yfir ţćr ţjóđir heims sem eru lang duglegastar viđ ađ reykja marijúana. Ţjóđr heims eru eitthvađ á ţriđja hundrađ svo ađ ţađ er töff ađ vera ţar ofarlega á lista.
Í fljótu bragđi mćtti ćtla ađ sigurvegarinn sé íbúar Jamaíka. Ímynd Jamaíka er samofin viđ hassreykjandi reggí-tónlistarmenn sem ađhyllast trúfélag sem kallast rastafarian. Rastarnir reykja hass (kaya) allan sólarhringinn af trúarástćđum. Ţeir vitna til Biblíunnar um ţađ. Ţegar guđ birtist Móse á fjallinu (til ađ rćđa um bođorđin 10 eđa 20) leiđ ţykkt reykský út um vit hans. Ţađ var hassreykur.
Rastarnir ţurfa ekki frekari vitna viđ. Ţeir reykja hassiđ (kaya), fara á flug (feel high) og ná góđu og nánu sambandi viđ himnafeđgana.
Skekkjan í dćminu er ađ reggí-rastarnir á Jamaíka eru ađeins um 20 ţúsund. Jamaíska ţjóđin telur um 2 milljónir. En reggí rastanna er stór ţáttur í heimstónlistinni. Bob Marley heitinn er eina ofurstjarna 3ja heimsins. Fjöldi annarra jamaískra reggí-rasta eru sömuleiđis stór nöfn á alţjóđamarkađi: Peter Tosh, Bunny Wailer, I-Roy, U-Roy, Sly & Dunbar, Rita Marley, Ziggy Marley, Burning Spears...
Hassreykingar eru bannađar á Jamaíka. Tćp 10% ţjóđarinnar reykja hass. Jamaíkanar eru í 10. sćti yfir mestu hassreykingaţjóđir heims.
Í 9. sćti eru Ástralir. Rösklega 10% ţeirra svćla hass ţrátt fyrir ađ ţađ sé stranglega bannađ.
Spánverjar eru í 8. sćti. 10,6% ţeirra er í hassinu. Ţar er refsilaust ađ reykja en ólöglegt ađ rćkta kannabis, selja eđa nota á almannafćri.
Kanada er í 7. sćti. Rúmlega 12% Kanadabúa eru hassneytendur. Ţeir virđast vera dálítiđ heilsulitlir vegna ţess ađ einungis má reykja í lćkningaskini.
Í Nígeríu reykir 14,3% ţjóđarinnar hass - ţrátt fyrir ađ ţađ sé kolólöglegt.
Ný-Sjálendingar eru í 5. sćti. 14,6% eru skökk - ţvert á lög.
Ítalir eru í 4. sćti. Engu ađ síđur er sama hlutfall ţeirra reykjandi, 14,6%. Sennilega er eitthvađ minna prósentubrot sem greinir Ný-Sjálendinga og Ítala ađ. Á Ítaliu er bannađ ađ rćkta og selja hass en refsilaust ađ brúka ţađ.
Bandaríkjamenn eru í 3. sćti. 14,8% Kana eru dáldiđ í hassinu. Ţađ er löglegt í 2 ríkjum. Í 22 öđrum ríkjum er ţađ löglegt í lćkningaskini.
Zambía er í 2. sćti. Ţar er ţetta stranglega bannađ. Samt sem áđur reykja 17,7% íbúa hassiđ.
Vinningshafinn er: Ísland! Í 1. sćti á ţessu sviđi eins og svo mörgum öđrum.
18,3% Íslendinga reykir hass. 1 í hverjum 5 manna hópi. Og dregur hvergi af sér. Lćtur sem ekkert sé. Jú, ţetta er bannađ samkvćmt íslenskum lögum. En hver tekur mark á íslenskum lögum?
Rćktun á kannabis er hvergi meiri en á Íslandi ef frá eru talin lönd ţar sem jurtin vex villt. Rćktun á Íslandi er svo stórtćk ađ hún er langt umfram innlenda eftirspurn. Stór hluti framleiđslunnar er útflutningur til nágrannalanda og út yfir alla Evrópu. Allt til Eystrasaltslanda. Ţannig verđur til gjaldeyri til ađ borga fyrir harđari eiturlyf sem eru flutt til Íslands.
Til ađ forđast misskilning ţá hef ég 0% löngun í hass. Ég hef ţrívegis fengiđ mér smók. Víman er kjánaleg og ekki fyrir minn smekk. Föroya Bjór Gull er máliđ!
En ég sé enga ţörf á ţví ađ glćpavćđa hassreykingar. Nema síđur sé.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (20)
Byrjum á frćgum brandara. Spurt er: Hvađ er kvenkyns grúppía? Svar: Stelpa sem eltist viđ og sefur hjá karlkyns tónlistarmönnum. Spurt er: Hvađ er karlkyns grúppía? Svar: Trommuleikari.
Brandarinn er dćmi um stađlađ viđhorf til tónlistarmanna; persónuleika sem rćđur ţví hver velur sér hvađa hljóđfćri til ađ spila á eđa tekur ađ sér hlutverk söngvarans. Bassaleikarinn er skilgreindur sem ţögla feimna týpan. Ţađ skarast ţegar hann er jafnframt söngvarinn. Söngvarinn er iđulega framvörđur hljómsveitarinnar. Hann er einskonar leiđtogi og andlit hljómsveitarinnar. Oft ásamt sólógítarleikaranum. Ţannig mćtti áfram telja.
Ţađ er sitthvađ til í ţessu. En ekki algild regla. Skekkjumörkin eru til ađ mynda ţau ađ tónlistarmenn velja sér ekki í öllum tilfellum sjálfir sitt hlutverk. Dćmi um ţađ er ađ Paul McCartney vildi ekki vera bassaleikari Bítlanna. Hann vildi vera sólógítarleikari og hljómborđsleikari. Eftir fráfall bassaleikarans Stus Sutcliffes var samt ekki um annađ ađ rćđa. John Lennon var ágćtur gítarleikari en afleitur bassaleikari (ţađ heyrist m.a. glöggt í laginu "Long And Winding Road"). George Harrison var töluvert betri sólógítarleikari en Paul. Paul sat uppi međ hlutverk bassaleikarans. Til mikillar gćfu fyrir Bítlana. Hann er frábćr bassaleikari sem innleiddi í rokkiđ söngrćnan (melódískan) bassaleik.
Vísindalegar rannsóknir (ein sćnsk, önnur bandarísk og sú ţriđja bresk) á persónuleika og gáfum tónlistarmanna sýna sömu niđurstöđu: Trommuleikarinn er gáfađastur, skarpastur og sá sem hefur mesta félagsfćrni. Trommuleikarinn er jafnframt hamingjusamastur og međ hćsta sársaukaţröskuldinn.
Velta má fyrir sér orsökum og afleiđingum eđa öđrum skýringum. Trommuleikarinn er eini hljóđfćraleikarinn sem ţarf ađ stjórna fjórum útlimum samtímis og láta ţá skila sínu án truflunar frá (ósjálfráđum) viđbrögđum hvers annars. Trommuleikarinn ţarf jafnframt ađ samhćfa takta og áherslur viđ ţađ sem bassaleikari og rythmagítarleikari eru ađ gera. Ađ auki ţarf hann ađ tengja sveiflu frá versi til viđlags međ "breiki". Trommuleikarinn verđur ađ tengja sig nánar öllum öđrum í hljómsveit en hinir í bandinu. Hann hefur mest ađ segja um áferđ tónlistarinnar; hvort ađ hún sé mjúk og fínleg eđa hörđ og hávćr. Hann hefur mest ađ segja um ţađ hversu vel áherslur í framvindu lagsins komast til skila.
Trommuleikarar eru oft og tíđum málamiđlarar í stormasömu andrúmslofti innan hljómsveita. Ţökk sé fćrni ţeirra í mannlegum samskiptum. Ring Starr er gott dćmi um ţađ. Ţegar Bítlarnir voru á lokasprettinum, allt logađi í pirringi, síđan málaferlum og harđvítugum illindum átti Ringo góđ samskipti viđ alla. Á međan George og öllu fremur Paul höfđu horn í síđu Yoko ţá hefur Ringo alla tíđ átt góđ samskipti viđ hana. Međal annars fylgir hann henni oftast til Íslands ţegar Friđarsúlan er tendruđ.
Í einni rannsókninni fékkst sú niđurstađa ađ ţađ eitt, ađ lćra trommuleik og spila á trommur, hćkkar greindavísitölu viđkomandi. Heimskasta fólk getur orđiđ bráđgáfađ ef ţađ er duglegt ađ spila á trommur.
Tónlist | Breytt 4.9.2014 kl. 15:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
Á laugardaginn, um kvöldiđ, kom marsvínavađa (grind) upp í fjöru í Sandi á Sandey. Ţá varđ "grindbođ", útkall. Mótorbátar umkringdu vöđuna og ţjálfađir hvalveiđimenn slátruđu 33 marsvínum (grind). Án sársauka fyrir dýrin, vel ađ merkja. Ţau deyja á sekúndubroti viđ stungu í mćnu.
14 SS-liđar reyndu ađ trufla veiđina og flćma dýrin út á haf. Ţeir voru umsvifalaust handteknir af lögreglunni og fćrđir í járnum til Ţórshafnar. Eftir ţađ gekk allt sinn vanagang.
Í yfirheyrslum hjá lögreglunni lýsa sakborningar atburđarrás á ţann hátt ađ ljóst er ađ sumir eru veruleikafirrtir. Til ađ mynda segist ein daman hafa veriđ í bráđri lífshćttu. Henni hafi veriđ hótađ undir byssukjafti lífláti. Enginn annar varđ var viđ byssu á svćđinu. Né heldur hróp međ hótunum.
Flestir af handteknu SS-liđum koma fyrir dómara 25. sept. Hald var lagt á ţrjá SS-spíttbáta. Ţar á međal einn sem er gerđur út af bandarískum sjónvarpsţátta- og kvikmyndaleikara, Charlie Sheen. Sá ku vera einna frćgastur fyrir ofbeldi gegn konum, konulemjari. En andvígur hvalveiđum. Fćreyingar hafa bent á ţetta sem eitt af ótal dćmum um tvöfalt siđgćđi SS-liđa.
Spaugilegt | Breytt 3.9.2014 kl. 15:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2014 | 23:54
Viđbjóđsleg framkoma íslenskra embćttismanna gagnvart Fćreyingum
Fćreyskt skip, Nćraberg, lenti í nauđ. Vélarbilun viđ makrelveiđar í grćnlenskri lögsögu. Ţađ náđi ađ skrölta til Íslands á fjögurra hnúta hrađa. Móttökurnar á Íslandi voru til skammar. Ţćr einkenndust af embćttismannahroka og rembingi. Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar, Ásgrímur Ásgrímsson, bannfćrđi skipiđ međ ţađ sama. Bannađi alla ţjónustu viđ skipiđ. Skipsverjar máttu ekki einu sínni fara frá borđi. Ţeir máttu hvorki kaupa vistir né eldsneyti í íslenskri höfn.
Sjávarútvegsráđherra lýsti yfir ógildingu á banninu. En fylgdi ţví ekki eftir af neinum ţunga. Hrokafull afstađa íslenskra embćttismanna fékk ađ leika lausum hala dögum saman. Viđbrögđ íslensks almennings voru ţau ađ hátt í 14 ţúsund manns studdi á Fésbók afsökunarbeiđni til Fćreyinga. Sömuleiđis tóku einstaklingar upp á ţví ađ fćra áhöfn Nćrabergs hamborgara og gosdrykki. Ţađ var niđurlćgjandi fyrir alla ađila - ţó ađ reisn vćri yfir uppátćkinu út af fyrir sig.
Allt bull um lög frá 1998 um samskipti viđ Fćreyinga höfđu og hafa ekkert gildi eftir ađ fríverslunarsamningur viđ Fćreyinga 2006 gekk í gildi.
Framkoma íslenskra embćttismanna í garđ Fćreyinga er viđbjóđur. Nćsti bćr viđ hrokafullt erindi Ölgerđarinnar, kröfu um ađ frábćrt Föroya Bjór Gull sé tekiđ af markađi. Styđjiđ Fćreyinga í verki međ ţví ađ kaupa Föroya Bjór Gull og sniđgangiđ vörur frá Ölgerđinni.
Ég fordćmi hroka og yfirgangssemi íslenskra frekjuhunda í garđ Fćreyinga. Ég er búinn ađ setja viđskiptabann á Ölgerđina Egil Skallagrímsson. Óţverrafyrirtćki.

![]() |
Fćreyska skipiđ fariđ frá Íslandi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Matur og drykkur | Breytt 2.9.2014 kl. 12:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
31.8.2014 | 23:22
Fćreyingar pökkuđu Sleep Shepherd saman

Ţađ var rétt ákvörđun hjá bandarísku hryđjuverkasamtökunum Sleep Shepherd ađ framlengja dvöl sinni í Fćreyjum. Og ţar međ framlengja átakiđ "Grind Stop 2014". Átakiđ var orđiđ hrćđilega pínlegt. Ekkert gerđist í allt sumar. Enginn hvalur í allan júní og allan júlí. En í gćr bar til tíđinda. Ţá var "Grindbođ". Útkall á Sandey. Marsvínavöđu smalađ upp í fjöru.
14 SS-liđar brugđust viđ og reynda ađ fćla hvalina á haf út. Sumir reyndu ađ fćla ţá međ ţví ađ vađa út í fjöruna. Ađrir mćttu á ţremur spíttbátum í sama tilgangi.
Lögreglan tók máliđ snöfurlega föstum tökum. Handtók ţegar í stađ 14-menningana og flutti ţá handjárnađa međ ţyrlum beinustu leiđ í fangelsi. Hald var lagt á bátana.
14-menningarnir verđa fćrđir fyrir dómara 25. september. Sem ţýđir ađ dvöl ţeirra í Fćreyjum verđur lengri en upphaflega var áćtlađ. Hugsanlega verđa spíttbátarnir gerđir upptćkir til frambúđar.
Hvalveiđarnar gengu ađ öđru leyti snurđulaust fyrir sig. Stađan eftir atburđi gćrdagsins er Fćreyingar gegn SS 1:0.
Hitt er annađ mál ađ áróđursstađa SS á alţjóđavettvangi fékk byr í seglin eftir tíđindaleysi sumarsins. Áróđurs- og spunameistarar SS hafa nýtt sér átökin í botn. Fjöldi stuđningsmanna SS víđa um heim hafa bođađ komu sína til Fćreyja. Ađ ţví er virđist til ađ fylla upp í skarđ 14-menninganna.
Út af fyrir sig er ţađ bara ágćtt fyrir ferđamannaiđnađ Fćreyja ađ ţangađ komi sem flestir túristar. Ţeir koma međ gjaldeyri til eyjanna og efla verslun og viđskipti í Fćreyjum. Kaupa ţar mat og vistir, leigja bíla o.s.frv. Til viđbótar blogga túristarnir og skrifa statusa á Fésbók og twitter um fagurt landslag eyjanna og hrósa Fćreyingum fyrir gott og hlýlegt viđmót - ţrátt fyrir ágreining um marsvínaveiđar.
Gott dćmi um ávinninginn er ađ kanadísk-bandaríska leikkonan Pamela Anderson heimsótti Fćreyjar til stuđnings átaki SS "Grind Stop 2014". Í Fćreyjum heillađist hún af neđansjávarljósmyndum Fćreyings. Keypti af honum myndir og sýndi ţćr á Fésbók sinni og víđar. Ţađ varđ ljósmyndaranum góđ auglýsing. Hann náđi inn á heimsmarkađ međ myndir sínar.
Annar frćgur leikari kom til Fćreyja í sama tilgangi og Pamela. Sá er stjarna úr unglingasápuóperu sem heitir Beverly Hills (og einhver talnaröđ fylgir). Ég veit ekkert meira um ţann mann né sápuóperuna. Ţess vegna fór framhjá mér allt sem tengdist heimsókn hans til Fćreyja.
Aftur á móti er annar frćgur bandarískur leikari og dópisti, Charlie Sheen, búinn ađ blanda sér í baráttu SS í Fćreyjum. Mér skilst ađ hann geri ţar út einn SS bátinn og blađri sitthvađ um "Grind Stop 2014" á samfélagsmiđlum, hvort sem er Fésbók eđa twitter.
Ţegar upp er stađiđ mun herferđin "Grind Stop 2014" verđa Fćreyjum öflug ferđamálakynning. Allt ţetta frćga fólk sem skiptir sér af herferđinni vekur athygli á ţví ađ Fćreyjar séu til. 99% af fylgjendum ţeirra vissi ekki af tilvist Fćreyja í sumarbyrjun. Sama má segja um ţá SS-liđa sem dvarliđ hafa í Fćreyjum í sumar. Ţeir vissu ekkert um Fćreyjar áđur en ţeir komu ţangađ. Núna hafa ţeir upplýst vini sína og vandamenn um allan heim daglega um Fćreyjar á Fésbók, twitter o.s.frv. Í ţađ heila í ţrjá mánuđi og sér hvergi fyrir enda á. Ţetta er rosalega öflug kynning á Fćreyjum.

Löggćsla | Breytt 1.9.2014 kl. 11:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
31.8.2014 | 02:13
Falsanir Sleep Shepherd
Ţađ eru ekki ađeins uppbelgdir og hrokafullir íslenskir embćttismenn sem níđast á Fćreyingum ţessa dagana. Bandarísku hryđjuverkasamtökin Sleep Shepherd fara einnig mikinn. Forsprakki SS, Paul Watson, er töluvert yfirlýsingaglađari og kjaftforari en ađrir SS-liđar. SS hafa stađiđ vakt í Fćreyjum í allt sumar án tíđinda. Í gćr klúđrađist vaktin vegna ţess ađ SS-liđar sváfu á međan hvalur var veiddur fyrir framan trýniđ á hrjótandi hópnum. Í dag kom upp smá órói ţegar hvalur var veiddur. Ţađ gekk samt allt ljúft fyrir sig. SS-liđar voru handjárnađir og fjarlćgđir snöfurlega.
Forsprakki SS, Paul Watson, heldur ţví fram ađ fullyrđingar Fćreyinga um ađ veiđar á marsvínum (grind) sé sjálfsbjargarviđleitni en ekki í ábataskyni standist ekki skođun. Máli sínu til stuđnings birtir hann ljósmyndir úr kjötborđi fćreyskrar matvöruverslunar. Ţar sést glöggt ađ til sölu er hvalkjöt merkt hvalbiff. Ţađ sem Paul og félagar fatta ekki er ađ hvalbiff er norkst heiti á hvalkjöti. Ţetta er norskt hvalkjöt. Ekki fćreyskt.

Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
29.8.2014 | 22:40
Aulagangur hrokafyllstu Íslendinga ríđur ekki viđ einteyming
Skammt er stórra högga á milli í keppni hrokafyllstu Íslendinga í ókurteysi, yfirgangssemi og frekju í garđ Fćreyinga. Fyrst gekk fram Andri Ţór, forstjóri Ölgerđarinnar Egill Skallagrímsson. Međ verulega ókurteisu, frekjulegu og yfirgangssömu bréfi til Föroya Bjór hótađi hann öllu illu ef Föroya Bjór Gull yrđi ekki umsvifalaust tekiđ af markađi. Krafan var ósanngjörn, heimskuleg og óraunhćf. Frekjukast án innistćđu.
Frekjuhundurinn gerđi sig ađ athlćgi. Og ekki í fyrsta skipti. Aulalegt frekjukast hans skilađi ţví ađ sala á Föroya Bjór Gull óx um 1200% á Íslandi í síđustu viku. Á sama tíma sór fjöldi Íslendinga ţess heit ađ kaupa engar vörur frá Ölgerđinni fyrr en hrokafulla frekjukast Andra Ţórs rjátlađist af honum.
Nćst gerist ţađ ađ fćreyskt skip, Nćraberg, lendir í vandrćđum. Bilun og nćr međ erfileikum ađ koma sér í íslenska höfn. Ţá tekur á móti ríkisrekinn embćttismađur hjá Landhelgisgćslunni, Ásgrímur Ásgrímsson. Hann belgir sig út og neitar um alla ađstođ. Bannar skipsverjum landgöngu, bannar afgreiđslu á eldsneyti, bannar liđsinni viđ viđgerđ.
Embćttismađurinn útbelgdi ber titilinn framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar.
Ţökk sé Óđni og Ţór ađ hann fer ekki međ alrćđisvald. Seint og síđar meir tókst stjórnvöldum ađ gera hann afturreka međ rembinginn. Nćraberg fćr ţá ađstođ sem ţarf. Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar grćtur sig í svefn í kvöld. Niđurlćgđur.
![]() |
Vandar Íslendingum ekki kveđjurnar |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Löggćsla | Breytt 30.8.2014 kl. 18:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (22)
28.8.2014 | 23:16
Sea Shepherd-liđar sváfu af sér hvalveiđar í Fćreyjum


Matur og drykkur | Breytt 29.8.2014 kl. 11:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
27.8.2014 | 20:29
Sea Shepherd-liđi laminn í Fćreyjum

Bandarísku hryđjuverkasamtökin Sea Shepherd hafa haldiđ til í Fćreyjum í sumar. Ţar eru ţau í herferđ gegn hvalveiđum. Herferđin kallast Grind Stop 2014. Hún hófst í byrjun júní og átti ađ standa fram í miđjan ágúst. Einhverra hluta vegna hafa 100 Sea Shepherd-liđar orđiđ ţaulsćtnari í Fćreyjum en upphaflega var ćtlađ.
Svo óheppilega vildi til ađ á dögunum lamdi Fćreyingur einn Sea Shepherd-liđa. Sá síđarnefndi stóđ vaktina, góndi út á haf í heilan dag og skimađi eftir hval. Rétt eins og ađrir SS-liđar gera alla daga í Fćreyjum. En ekkert gerist. Nema ţađ ađ ţegar komiđ var undir miđnćtti ţá lamdi ofurölvi Fćreyingur manninn tvívegis í höfuđiđ. Sá segir SS-liđann hafa áreitt sig og föđur sinn, hvalveiđimann.
Fćreyingar eru ósáttir viđ ţessa uppákomu. Ţeir eru friđsamir og leggja mikiđ upp úr friđsamlegum samskiptum viđ allt og alla. Réttilega telja ţeir ţetta vera fordćmanlega framkomu í garđ gests í Fćreyjum. Ţar fyrir utan fćrir ţetta Sea Shepherd öflugt áróđursvopn upp í hendur. Núna stillir Sea Shepherd sér upp sem hópi fólks međ fallega hugsjón, hetjum sem standi vaktina í ađ vernda "mannréttindi" hvala ţrátt fyrir gróft ofbeldi og annađ mótlćti sem ţćr sćta.
Sea Shepherd hefur ţegar nýtt sér uppákomuna í botn. Sent heimspressunni frásögn af barsmíđunum ásamt ljósmyndum af fórnarlambinu. Ţćr eru ljótar:


Sea Shepherd kćrđi líkamsárásina ţegar í stađ. Ofbeldismađurinn viđurkenndi sök sína undanbragđalaust.
Viđ tók einkennileg atburđarrás. Ljósmyndir Sea Shepherd passa ekki viđ lýsingu á ţví sem gerđist. Einhverjir sem ţekkja betur en ég til áverka eftir tvö högg í höfuđiđ fullyrđa ađ litur á mari sé ekki svona strax eftir höggin.
Fórnarlambiđ segir ađ árásarmađurinn hafi margbrotiđ fingur hans. Ţess vegna sé hann í fatla.
Ţeir sem eru mér fróđari um svona segja ađ fingurbrot kalli á gifsumbúđir. Umbúđirnar á myndinni eru hinsvegar losarlega vafiđ sárabindi.
Ţar fyrir utan vekur upp spurningar hvers vegna mađur sem telur sig sitja uppi međ margbrotna fingur leitar ekki til slysavarđstofu heldur býr sjálfur um margrotna fingur međ sárabindi. Eđlilegast vćri ađ fá röntgenmynd af fingurbrotunum til ađ leggja fram fyrir dómi vegna árásarkćrunnar.
Ţrátt fyrir ţetta hafa margir af SS-liđum í Fćreyjum vitnađ á Fésbók um undrun sína á ţví hvađ Fćreyingar almennt eru hlýjar og góđar manneskjur. Ţađ ţekkjum viđ Íslendingar sem fariđ hafa til Fćreyja heldur betur. Meira ađ segja formađur SS, Paul Watson, hefur á Fésbók vitnađ um elskulegheit Fćreyinga.
Paul Watson hefur ţó ekki komiđ til Fćreyja í sumar. Hann hefur samt látiđ sem svo sé. Hann birtir međ Fésbókarfćrslum sínum ljósmyndir af sér í Fćreyjum frá árinu 2011. Í fćrslunum verđur ekki annađ ráđiđ en ađ hann sé í Fćreyjum.
Löggćsla | Breytt 28.8.2014 kl. 10:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
26.8.2014 | 20:17
Sprenging í sölu á Föroya Bjór Gulli

Íslendingar kunna vel ađ meta hinn bragđgóđa fćreyska bjór Föroya Bjór Gull. Í vörulista Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) er honum lýst ţannig: "Gullinn, ósćtur, međalfylling, međalbeiskja. Korn, baunir, malt, humar." Ég lýsi bragđinu sem skörpu, ósćtu og ađ eftirbragđ sé gott. Hann kippir vel í, um 6%.
Ţađ er stutt síđan Íslendingar almennt vissu af tilvist Föroya Bjór Gulls. Ţó hefur hann veriđ framleiddur í hálfan fjórđa áratug og veriđ seldur á Íslandi lengst af. Lengst af ţeim tíma hefur hann veriđ seldur á Íslandi. Hinsvegar hefur aldrei veriđ gert neitt átak í kynningu á honum. Ţađ hafa helst veriđ Fćreyingar á Íslandi sem sótt hafa í heilsudrykkinn, svo og Íslendingar sem hafa heimsótt Fćreyjar.
Í síđustu viku brá svo viđ ađ Föreyja Bjór Gull barst í tal í íslenskum fjölmiđlum. Ástćđan var afskaplega hrokafullt og ósvífiđ bréf sem forstjóri Ölgerđarinnar Agli Skallagrímssyni sendi forstjóra Föroya Bjór. Viđ ţau tíđindi rann á Íslendinga Gull-ćđi. Sala á Föroya Bjór Gulli á Íslandi óx um 1200%. Söluaukningin hefđi orđiđ ennţá meiri ef hann hefđi ekki selst upp í sumum vínbúđum. Ţar toguđustu menn á um síđustu dósirnar ţannig ađ víđa lá viđ stimpingum. Mörg dćmi voru um ađ menn keyptu Föroya Bjór Gull tvo og upp í ţrjá daga í röđ. Ţá hafa margir lýst ţví yfir á Fésbók og á bloggsíđum ađ héđan í frá kaupi ţeir engan bjór annan en Föroya Bjór Gull. Ţetta sé besti bjór í heimi.
Samkvćmt upplýsingum á heimasíđu ÁTVR eru í dag til örfáar kippur í ađeins ţessum ţremur verslunum: Heiđrúnu (20 kippur + 1 dós), Akureyri (26 kippur) og Hafnarfirđi (51 kippa + 5 dósir).
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
23.8.2014 | 22:56
Kaupum ekkert frá Ölgerđinni Agli Skallagrímssyni
Stađreynd númer 1: Til margra áratuga hafa skandínavískir bjórframleiđendur auđkennt tilteknar bjórtegundir međ nöfnum eins og Pilsner, Stout, Lite, Gull og svo framvegis.
Stađreynd númer 2: Fyrir hálfum fjórđa áratug hóf fćreyska Föroya Bjór framleiđslu á Föroya Bjór Gull samkvćmt ţessum skandinavísku stöđlum á bjór.
Stađreynd númer 3: Níu árum síđar hóf Ölgerđin Egill Skallagrímsson framleiđslu á Egils gull. Bragđdaufum pissbjór. Ţađ er aukaatriđi. Gárungar kalla hann Egils sull.
Fćreyski Föroya Bjór Gull er góđur. Virkilega góđur.
Á útrásarárum íslensku geđveikinnar fyrir bankahrun fór Ölgerđin fram á ţađ ađ kaupa Förya Bjór. Óskađi eftir nákvćmum upplýsingum um allt sem snéri ađ markađsmálum Föroya Bjór. Ţví var hafnađ en af vinsemd bođiđ upp á samvinnu.
Stađreynd númer 4: Ölgerđin fann sér fćreyska heildsölu sem kann ekkert á fćreyska bjórmarkađinn. Kann ekkert á dreifingarkerfi bjórs í Fćreyjum til vínveitingastađa, pöbba eđa annarra sem selja bjór í Fćreyjum. Ráđamönnum Föroya Bjór ţótti ţađ undarlegt uppátćki. Og spaugilegt. Föroya Bjór hefđi af vinsemd alveg getađ bćtt bjór Ölgerđarinnar inn í sitt góđa og öfluga dreifingarkerfi á bjór. Ţađ var einungis jákvćđni gagnvart ţví. Vegna ţess hvađa aulalegu leiđ Ölgerđin fór er hún ađhlátursefni í Fćreyjum.
Stađreynd númer 4: Fyrir ţremur árum fékk Ölgerđin nafniđ "Egils gull" skrásett vörumerki.
Stađreynd númer 5: Fyrir ţremur vikum eđa svo sendi Ölgerđin bréf til Föroya Bjórs. Í ţví var ekki óskađ eftir viđrćđum eđa neitt slíkt. Erindiđ var afskaplega hrokafull skipun um ađ Föroya Bjór taki Föroya Bjór Gull af markađi. Frestur var gefinn til 18. ágúst. Ef ađ fćreysku skrćlingjarnir yrđu ekki viđ skipun herraţjóđarinnar ţá muni Föroya Bjór Gull verđa sett út af markađnum fyrir tilstilli dómsstóla.
Ósvífin skipun Ölgerđarinnar er forkastanleg. Ţar rćđur hrokinn ríkjum. Ţrátt fyrir fráleita kröfuna hefđi samt veriđ eđlilegri framsetning ađ óska eftir viđrćđum. Ekki ţetta: Ţú skalt hlýđa mér eđa ađ öđrum kosti verđur ţú dreginn á rassgatinu fyrir dómsstóla.
Hroki Ölgerđarinnar er fyrirlitlegur. Ölgerđin hefur enga möguleika á ađ vinna máliđ. Löng hefđ er fyrir ţví ađ tiltekin bjórtegund sé kennd viđ gull. Meira ađ segja finnski Lapin Kulta ţýđir Lapin Gull. Ţó ađ einhver fái skrásett vörumerkiđ Egils Pilsner ţá veitir ţađ viđkomandi ekki einkarétt á orđinu Pilsner. Né heldur Lite eđa Stout eđa öđrum fjölţjóđlegum og alţjóđlegum heitum sem skilgreina bjórtegundir.
Ég hef ţegar sett viđskiptabann á Ölgerđina og hvet alla til ađ taka ţátt í viđskiptabanninu. Ţetta er óţverrafyrirtćki á međan hrokafullir skrattakollar ráđa ţar ríkjum.
Fćreyingar eru bestu og nánustu vinir Íslendinga. Ţeir björguđu okkur ţegar engir vildu lána okkur gjaldeyri í kjölfar bankahrunsins. Yndislegt fólk. Yndisleg ţjóđ. Ölgerđin er andstćđan: Hrokafullir frekjuhundar.


![]() |
Sprenging í sölu á Fřroya-Gulli |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Matur og drykkur | Breytt 25.8.2014 kl. 19:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (34)
23.8.2014 | 12:24
Nýjar spennandi íslenskar plötur
Synthadelia Records er sjálfstćđ (independent) íslensk plötuútáfa. Hún kynnir međ stolti ţrjár nýjar útgáfur ásamt tveimur endurútgáfum frá áttunda og níunda áratugnum.
Nýjustu útgáfurnar eru smáskífan "Praise Of The Saints" međ íslenska tónlistarmanninum Indigo sem kom út í vikunni og markar upphaf nýrrar plötu sem Ingó vinnur nú ađ. Platan Grúska Babúska er međ samnefndri hljómsveit vinkvenna. Hún hefur ađ geyma tíu áđur útgefin lög af tveimur EP plötum. Síđast en ekki síst má nefna blús plötuna 3rdmeđ gamla Utangarđsmannapönkaranum Michael Dean Odin Pollock og munnhörpuleikaranum Sigurđi Sigurđssyni. Siggi er jafnframt upptökustjórinn. Ţetta er síđasta platan í ţríleik dúettsins.
Endurútgáfurnar eru tvćr. Má ţar fyrst nefna plötuna Angeli Daemoniaque Omnigena Imbecilli Sunt" međ gođsagnakennda gjörningabandinu Inferno 5 frá árinu 1996. Hljómsveitina skipa: Birgir Mogensen, Guđjón Rúdólf Guđmundsson, Ómar Stefánsson, Óskar Thorarensen, Örn Ingólfsson og Jafet Melge. Ţeir sömdu og frömdu sérútbúinn gjörning međ sem fylgdi hverju lagi af plötunni. Var ţessi útgáfa tekin upp live í gamla Rósenbergkjallaranum dagana 30.05 og 10.10 áriđ 1996.
Hin endurútgáfan er platan "Rise 2B Free" međ hinni umdeildu pönkhljómsveit Sjálfsfróun frá árinu 1990. Hljómsveitin sló eftirminnilega í gegn og gerđi garđinn frćgan í mynd Friđriks Ţórs Friđrikssonar, Rokk í Reykjavík. Ţessi plata er tekin upp á síđari hluta ferils ţeirra, eftir ađ Bjarni "Móhíkani" lést og Frikki pönk gekk til liđs viđ hljómsveitina. Ađrir međlimir Sjálfsfróunnar eru ţeir Jónbjörn Valgerisson og Siggi Pönkari. Á plötunni má finna 30 hráar lo-fi demó upptökur frá hljómsveitarćfingum ţeirra félaga ásamt Hljóđversupptökum og ýmsu öđru aukaefni.
Synthadelia Records sérhćfir sig í útgáfu á tónlist í rafrćnu formi. Úgáfan var stofnuđ á jóladag áriđ 2010 ţegar Vilmar Pedersen og Jón Schow gáfu út sitt eigiđ lag, Let the partý start undir sama nafni og útgáfan. Nýveriđ bćttust fleiri félagar í Synthadeliu-hópinn. Olga Jenný, Ýmir Einarsson og Árni Briem hafa veriđ hópnum innan handar á árinu. Nú ţegar hefur Synthadelia Records gefiđ út yfir 50 plötur eftir fjölmarga hćfileikaríka tónlistarmenn.
Synthadelia Records dreifir tónlist á netinu, í hinar ýmsu búđir og streymisveitur eins og Spotify, iTunes, tonlist.is og fjölda annarra búđa ásamt ţví ađ kynna hana vel međ ţví ađ nýta internet-markađssetningu, ţannig ađ hún er á öllum helstu samfélagssíđum á netinu.
Synthadelia Records leitar ađ gömlum plötum/óútgefnu efni međ hljómsveitum og tónlistarfólki sem enn á eftir ađ endurútgefa og koma á netiđ og miđla til almennings.Áhugasöm bönd og tónlistarfólk vinsamlegast sendi email á synthadeliarecords@gmail.com
http://synthadeliarecords.bandcamp.com/
https://www.facebook.com/synthadeliarecords
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
21.8.2014 | 11:36
Dópađir Sea Shepherd-liđar í Fćreyjum

Hundrađ manna hópur frá bandarísku hryđjuverkasamtökunum Sea Shepherd hefur haldiđ til í Fćreyjum í sumar. Frá júníbyrjun og til dagsins í dag. Ađ vísu ćtlađi hópurinn ađ vera í Fćreyjum fram ađ miđjum ágúst. En virđast hafa framlengt dvölinni vegna Sjómannadagsins. Hann stendur yfir til sunnudags.
Erindi Sea Shepherd í Fćreyjum er ađ hindra hvalveiđar heimamanna. Svo spaugilega vill til ađ ekkert hefur sést til hvals í Fćreyjum í sumar. Ţađ hefur áđur gerst. Síđast 2008. Sea Shepherd-liđar hafa ţess vegna fariđ sneypuför til Fćreyja í sumar. Ţeir eru ađhlátursefni.
Hitt er verra ađ ţetta liđ hefur fariđ ránshendi um eyjarnar. Og byrjađi strax ađ stela úr matsalnum á Norrćnu á leiđ til eyjanna. Í kjölfar stal ţađ áfengi úr verslun í Nolsey og öllu steini léttara úr ferđamannaskýli í Sandey. Ţar á međal heilsársbirgđum af klósettpappír.
Í fyrrakvöld kom lögreglan á Suđurey auga á grunsamlegan bíl. Hann var stöđvađur. Í honum voru ţrír Sea Shepherd-liđar. Ţeir voru í annarlegu ástandi. Ţeir ranghvolfdu í sér blóđhlaupnum og skilningssljóum augum. Lögreglan hóf leit í bílnum. Ţar fannst dálítiđ magn af eiturlyfjum. Ţrímenningarnir voru handteknir og fćrđir á lögreglustöđina. Einn ţeirra viđurkenndi drćmlega ađ eiga dópiđ. Hann verđur vćntanlega rekinn frá Fćreyjum.
Í yfirlýsingu frá Sea Shepherd vegna atviksins er fullyrt ađ hryđjuverkasamtökin hvetji ekki sérstaklega til dópneyslu.

Nú er mig fariđ ađ gruna ađ eiturlyf hafi komiđ viđ sögu í ţessu atviki: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1420693/
Löggćsla | Breytt 22.8.2014 kl. 14:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (17)
20.8.2014 | 19:45
Fćreyskir hljómleikar annađ kvöld (Ţórsdagur 21. ágúst)
Annađ kvöld verđa heldur betur spennandi djasshljómleikar í Bćjarbíói í Hafnarfirđi. Húsiđ er opnađ klukkan 20:00. Hljómleikarnir hefjast klukkan 21.00. Tvćr magnađar hljómsveitir stíga á stokk: Annarsvegar fćreyski Magnus Kvartett. Hinsvegar íslenska hljómsveitin Skarkali. Miđinn kostar ađeins 2000 kall. Honum fylgir frábćr sólódiskur međ Magnúsi Johannessen, forsprakka Magnus Kvartetts. Stakur kostar diskurinn í búđ 3200 kr.
Forsala á hljómleikana er á www.midi.is. Diskurinn er afhentur viđ hurđ, eđa kannski örlítiđ innan viđ dyrnar.
Magnús er píanóleikari. Hann semur ljúfa og áferđarfallega djasstónlist međ söngrćnum (melódískum) laglínum. Ţetta er samt enginn dinnerdjass. Alls ekki. Ţetta er áleitinn norrćnn djass eins og hann gerist bestur. 2001 var Magnús nefndur til Norrćnu tónlistarverđlaunanna.
Međ ţví ađ smella á ţennan hlekk má heyra sýnishorn af eyrnakonfekti Magnúsar: http://www.magnusjohannessen.com/Listen.html
Hljómleikarnir eru samvinnuverkefni Menningar- og listafjelags Hafnarfjarđar, Jazzklúbbs Hafnarfjarđar og Bćjarbíós.

Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
19.8.2014 | 01:39
Viđskiptabann á Ölgerđina Egil Skallagrímsson
Ég hvet til ţess ađ viđ, Íslendingar, látum af öllum viđskiptum viđ Ölgerđina Egil Skallagrímsson. Einkum og sér í lagi sniđgöngu á Egils sulli (vörumerki Egils gull). Ástćđan er ćrin og liggur í dónalegu bréfi frá Andra Ţór Guđmundssyni, forstjóra Ölgerarđinnar, til Föroya Bjór í Fćreyjum. Ţar segir međal annars:
"Ef Föroya Bjór hćttir ekki ţegar í stađ allri sölu og markađssetningu á Íslandi - og öllum innflutningi til Íslands á fćreyskum Gull-bjór, ţá hefur forstjórinn, Andri Ţór Guđmundsson, engin önnur úrrćđi en ađ leita réttar síns fyrir dómsstólum."
Ofstopinn, dónaskapurinn og frekjan í ţessum texta er til skammar. Ţar fyrir utan er krafan út í hött. Föroya Bjór Gull hefur veriđ á markađi mun lengur en Egils sulliđ. Jafnframt er Föroyja Bjór Gull úrvals góđur bjór en Egils sulliđ ómerkilegt skólp. Egils sulliđ hefur stórskađađ viđskiptavild Föroya Bjór Gull međ ţví ađ gera út á rótgróiđ nafn úrvals bjórs.
Ţetta er góđi fćreyski Gull-bjórinn:

Ekki rugla honum saman viđ Egils sull.
--------------------------------------------------------------------------------------
Matur og drykkur | Breytt 20.8.2014 kl. 00:44 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
17.8.2014 | 23:58
Sea Shepherd-liđar halda áfram ađ stela í Fćreyjum
Sem kunnugt er ţá hafa bandarísku hryđjuverkasamtökin Sea Shepherd haldiđ til í Fćreyjum frá ţví í júníbyrjun. Ţau gefa sig út fyrir ţađ ađ vera hugsjónafólk međ sterka réttlćtiskennd. Ţađ sé siđferđislega rangt ađ veiđa hvali. Ţeir séu gáfađir og leggi mikiđ upp úr sterkum fjölskyldutengslum. Hvorutveggja er della. Hvalir eru heimskir (meira ađ segja heimskari en gullfiskar). Fjölskyldubönd ná ekkert út fyrir nýborna kálfa.
Athygli vakti ađ ţegar SS-liđar mćttu til leiks í Norrćnu, skipi Smyril Line. Ţar voru ţeir stađnir ađ stórfelldum ţjófnađi á matvćlum í matsal skipsins. Ţeir beittu fagmannlegum sjónhverfingum er ţeir fylltu heilu ferđatöskurnar af stolnum matvćlum.
Komiđ til Fćreyja hélt ţetta pakk áfram ađ stela. Rćndi bjór úr verslun í Nolsey. Fćreyingar gerđu góđlátlegt grín ađ ţessu. SS-liđarnir ţykjast vera bođberar réttlćtis eru í raun siđlausir ţjófar.
Fćreyingar eru óvanir ţjófnađi. Ţeir skilja hús sín eftir ólćst. Meira ađ segja ţegar ţeir fara í 6 vikna sumarfrí til útlanda ţá lćsa ţeir ekki húsum sínu. Fćreyingar stela ekki. Ef ađ ţú kemur ađ húsi í Fćreyjum ţá er ţar engin dyrabjalla eđa bankbúnađur. Ţú gengur inn í húsiđ og leitar uppi heimilisfólk. Ef ađ enginn er heima ţá er ţér velkomiđ ađ kíkja í ísskápinn og finna ţér bjór eđa matarsnarl. Ađ vísu á ţađ bara viđ um ţá sem koma lengra ađ. Nágrannar sćkja ekki í ísskápinn. Ţađ vćri dónaskapur.
Víkur ţá sögu ađ Sandey. Ţar er opiđ mannlaust skýli fyrir ferđamenn. Ţeir geta áđ ţar, fariđ í sturtu, notađ salernisađstöđu og svo framvegis. Ţessa ađstöđu hafa liđsmenn bandarísku SS-hryđjuverkasamtakanna misnotađ gróflega. Ţeir fóru ránshendi um skýliđ. Stálu ţar öllu steini léttara. Ţar á međal öllum klósettpappírsbirgđunum. Svona ósvífni er Fćreyingum framandi nýlunda.
Bćjarstjórinn á Sandi hefur brugđiđ á ţađ ráđ ađ banna SS-hryđjuverkahópnum gengi ađ skýlinu. Til áréttingar hefur ţessi texti veriđ settur upp viđ skýliđ:
Meira um ţjófa SS: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1405591/
Upphaflega ćtluđu SS-liđar ađ vera í Fćreyjum fram í miđjan ágúst. Ţeir virđast ćtla ađ dvelja ţar lengur. Sennilega vegna ţess ađ á morgun hefst Sjómannadagurinn í Klakksvík. Hann stendur í sex daga. Međal dagskrárliđa er ađ skera marsvín (grind). Kenna ungu fólki handbrögđ viđ ţađ. Ţetta ţýđir ađ sćkja ţarf hval út á sjó. SS-hryđjuverkahópurinn er grunađur um ađ ćtla sér hlutverk í ţví dćmi. Hefur kallađ út hrađskreiđan mótorbát. Dönsk herskip eru mćtt á svćđiđ til verndar fćreyskum hvalveiđibátum.
Löggćsla | Breytt 18.8.2014 kl. 12:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
16.8.2014 | 21:33
Ósvífin frekja í garđ fćreysks framleiđanda

Löggćsla | Breytt 17.8.2014 kl. 15:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
15.8.2014 | 21:39
Veitingaumsögn
- Réttur: Íslensk kjötsúpa
- Stađur: Warm Farmer´s Soup
Salatbarinn: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1320816/
Hótel Cabin: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1309370/
Grillmarkađurinn: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1298062
Matur og drykkur | Breytt 16.8.2014 kl. 12:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)