Eivör styður Gay Pride í Færeyjum

eivor-pridejón-gnarr-pride

  Í Færeyjum andar köldu til samkynhneigðra.  Þeir eiga erfitt uppdráttar á eyjunum og eru nánast allir í felum.  Líka þeir sem búa utan Færeyja.  Það á við um þá flesta.  Þeir búa í Danmörku.  Stemmningin í Færeyjum í dag er svipuð og á Íslandi fyrir fjörtíu árum.  Munurinn er sá helstur að í Færeyjum er afstaðan til samkynhneigðra heiftúðlegri og studd fjandsamlegum tilvitnunum í Gamla testamentið.

  Á morgun fer fram þriðja eða fjórða Gay Pride gangan í Færeyjum.  Eða Föroya Pride eins og hún er kölluð.  Fyrri Gay Pride göngur hafa verið fámennar.  Ekki síst í samanburði við Gay Pride göngur á Íslandi.  Ég man ekki hvort 60 þúsund eða 80 þúsund Íslendingar þrammi Gay Pride árlega.  Fjöldinn er eitthvað á því bilinu. 

  Í Færeyjum eru það Íslendingar sem hafa þrammað, ásamt Færeyingum búsettum í útlöndum og ættingjum þeirra.  Samtals einhverjir tugir.

  Mikla athygli hefur vakið að borgarstjórinn í Reykjavík,  Jón Gnarr,  óskaði eftir því að fá að taka þátt í Föroya Pride og ávarpa göngumenn.  Íslenskur kór,  Reykjavik Gay Choir,  tekur sömuleiðis þátt í göngunni og syngur fjörug lög.  Minni eftirtekt hefur vakið að Snorri í Betel hefur hvorki boðist til að leiða gönguna né göngumenn. 

  Eivör hefur tilkynnt þátttöku sína í Föroya Pride.  Það hefur gríðarlega mikið að segja í Færeyjum að hún sýni málstað samkynhneigðra stuðning í verki.  Það er alveg klárt að nærvera og þátttaka borgarstjórans í Reykjavík og Eivöru mun reynast Föroya Pride þungt lóð á vogarskálina;  gefa göngunni alvöru vigt og verða Færeyingum hvatning til fjölmenna í hana.  Það er næsta víst að með þátttöku sinni tryggja þau að Föroya Pride 2012 verði fjölmenn gleðiganga.   

föroya-pride      


Rokkabillýsprengja aldarinnar á Gamla Gauknum!

  Kanadíska rokkabilly-stjarnan Bloodshot Bill lýkur hljómleikaferð sinni í Evrópu með hljómleikum á Gamla Gauknum 11. ágúst. Tónlistarferill Bloodshots Bills hófst 1998.  Síðan þá hefur hann spilað með fjölda hljómsveita (ýmist á trommur eða gítar) og í dúettum.
 Sólóferillinn er samt hans aðal.  Þá er hann eins-manns-hljómsveit:  Spilar samtímis á gítar og trommur ásamt því að syngja.  Til að svoleiðis komi vel út þarf viðkomandi að vera fjölhæfur gítarleikari, taktvís og kröftugur á
trommur og búa yfir blæbrigðaríkum söng.  Allt eiginleikar Bloodshots
Bills.  Til viðbótar er hann mikill grallari og kryddar tónlistarflutning
sinn með húmor.

  Bloodshot Bill hefur sent frá sér fjölda platna,  bæði smáskífur og
plötur í fullri lengd.  Sú nýjasta heitir "Thunder and Lightning".  Músíkin er hrátt og fjörlegt rokkabilly sem getur farið út í pönkabilly þegar sá gállinn er á honum.

https://www.facebook.com/events/487868717892605/


Mögnuð banana listaverk

  Bananar eru góðir og hollir.  Bragðbetri skyndibiti er vandfundinn.  Hann er skemmtilega hannaður:  Pakkaður innan í þykkar umbúðir sem auðvelt er að fjarlægja.  Til að byrja með þarf aðeins að fletta þeim niður hálfan bananann á meðan efri hluta hans er neytt.  Þetta er snilld. 

  Hitt vita færri að banani er upplagt hráefni til að móta myndlistaverk í.  Þeir eru aðeins mýkri en tré og töluvert mýkri og meðfærilegri en steinn.  Það er jafnframt hægt að nota lögun bananans til að túlka hár eða húfur.

banana-sculpturebanana-sculpture-07banana-sculpture-09banana-sculpture-13banana-sculpture-14banana-sculpture-15bananar-A

  Bananar hafa orðið mörgum yrkisefni.  Til eru margir söngvar um banana.  Þekktast er Banana Boat.  Margir hafa sungið Banana Boat.  Einn er Harry Belafonte.

  Bananar eru notaðir heilsusnyrtivörur.  Þaðan dregur sólarvörulínan Banana Boat heiti. 

banani+varasalvi


Hljómsveitin The Beatles The Next Generation

 

  Fyrir nokkrum vikum vakti heimsathygli frétt um að synir Bítlanna væru að hefja samstarf,  stofna hljómsveit, undir nafninu Næsta kynslóð Bítlanna (The Beatles The Next Generation).  Það var sonur Pauls McCartneys,  James McCartney (34 ára), sem átti hugmyndina.  Hann viðraði hugmyndina við syni annarra Bítla.  Zak, eldri sonur trommuleikarans,  Ringos,  var ekki áhugasamur.  Né heldur Julian,  eldri sonur Johns Lennons. 

Ekki var öll nótt úti þrátt fyrir dræmar undirtektir.  Sean (36 ára),  yngri sonur Johns Lennons, tók vel í hugmyndina.  Líka Jason (34 ára),  yngri sonur Ringos.  Svo og Dhani (33 ára),  einkasonur Georges Harrisons. 

  Þar með voru synir allra Bítlanna tilbúnir að taka þátt í tilrauninni.  
 .
  John Lennon var söngvari og gítarleikari Bítlanna.  Sean Lennon syngur og er flinkur gítarleikari.  Paul McCartney var söngvari og bassaleikari Bítlanna.  James syngur og spilar á gítar.  Hann er liðtækur á bassa,  eins og Sean.  George Harrison var gítarleikari Bítlanna.  Dhani er flinkur á gítar.  Hann getur líka sungið.  Ringo var trommari Bítlanna.  Jason spilar á trommur.
.
.
  Bítlarnir eru stærsta nafn rokksögunnar.  Hvort sem litið er á plötusölu eða áhrif.  Það getur ekki hver sem er hlaupið í þeirra skarð.  Enginn getur endurtekið þeirra afrek.  Enda var það ekki hugmynd James McCartneys.  En það stendur engum nær að endurskapa eitthvað í anda Bítlanna en sonum Bítlanna.
.
  Mörgum spurningum er ósvarað.  Synir Bítlanna standa frammi fyrir risa áskorun.  Á hljómsveit þeirra að vera eftirhermuhljómsveit sem krákar (cover songs) gömul Bítlalög?  Eða á hljómsveit þeirra að gera eitthvað á eigin forsendum?  Seinni kosturinn er vænlegri.  Kannski í bland við fyrri kostinn.
.
  Hugmyndinni um hljómsveitina Næsta kynslóð Bítlanna hefur verið illa tekið af Bítlaaðdáendum.  Mjög illa.
  Breska blaðakonan Jan Moir spyr hæðnislega:  "Eiga Yoko Ono og Heather Mills að syngja bakraddir?  Here comes the sons - Let It Be."  
.
  Jan bendir á að ekki einu sinni Bítlarnir sjálfir hafi haft áhuga á að endurreisa Bítlana eftir að sú hljómsveit hætti 1969 (formlega hætti hún 1970). 
  Synirnir hafa allir verið að fást við músík en áhugi á þeirra músík er lítill. 
.
  Jan segir það vera hrópandi að þeir tveir synir Bítla sem hafi náð árangri í músík vilji ekki vera með í The Beatles The Next Generation:  Julian Lennon og Zak Starkey.  Julian hefur átt lög á vinsældalistum.  Zak hefur gert það gott sem trommar The Who og Oasis. 
  Líklegt má telja að í huga fólks verði The Beatles Next Generation hljómsveit lúseranna.  Lúseranna sem nú eru eldri en þegar feður þeirra hættu í Bítlunum.  Og mörgum árum eldri en þegar feður þeirra lögðu heiminn að fótum sér sem Bítlar.
.
  Í breska dagblaðinu Daily Mail er dregið fram að að nokkrum dögum áður en James McCartney viðraði hugmyndina um The Beatles The Next Genereation hélt Paul faðir hans því fram að hver sú hljómsveit sem reyndi að líkja sér við Bítlana væri að "kyssa dauðann" (kiss of death).
.
  Synir Bítlanna eru allir í góðu sambandi hver við annan.  Þeim er vel til vina.  Það var þess vegna ekki óvænt að þeir veltu fyrir sér möguleika á samstarfi.  Þeir eru hins vegar hikandi við að hrinda hljómsveitinni The Beatles The Next Generation úr vör.  Kannski hafa viðbrögð almennings á síðum dagblaða og netmiðla kæft hugmyndina í fæðingu.
. 
  James McCartney og Sean Lennon hafa sent frá sér sitthvorar tvær sólóplötur.
  Hér krákar James gamlan Neil Young slagara:
   
  Sean syngur lag eftir pabba sinn:
 Dhani að leika sér:
Hér eru öll börn Bítlanna:
  Ef hljómsveitin The Beatles The Next Generation kemst á koppinn er upplagt fyrir hana að æfa og gera út frá Íslandi.  James og Jason eru búsettir í Bretlandi en Dhani og Sean í Bandaríkjunum.  Ísland er mitt á milli.  Dhani og Sean eru hvort sem er með annan fótinn á Íslandi.  Dhani giftur íslenskri konu,  dóttur Kára Stefánssonar.  Feður James og Jasons eru sömuleiðis hagavanir á Íslandi.  Einkum Ringo,  sem ýmist trommar með Stuðmönnum eða kveikir á Friðarsúlunni í Viðey með Sean og þeir taka lagið í Háskólabíói með Plastic Ono Band.

Er djöfullinn í Krossinum?

  Það er gaman að sækja samkomur í Krossinum.  Þar er fjör.  En pínulítið skrítið að trúfélag sé kennt við aftökutæki.  Og þó.  Krossinn er betra nafn en Hengingarólin,  Rafmagnsstóllinn eða Gasklefinn.
  Mér var illa brugðið er ég las í DV haft eftir þungavigtarkonu í Krossinum að þrír nafngreindir einstaklingar í Krossinum séu haldnir illum anda.  Ég er ekki alveg klár á því hvað það þýðir.  Held helst að sá sem er haldinn illum anda hafi lent í klóm djöfulsins og djöfullinn ráði gjörðum hans.  Hugsanlega með illt í huga.
 
  Ef að minn skilningur er réttur þá þýðir þetta að djöfullinn eigi þrjá fulltrúa í Krossinum.  Djöfullinn er þá í Krossinum.  Það er ekki gott.  Og alls ekki gott til afspurnar.  Ég hef áhyggjur af þessu.
.
  Einar S. Ólafsson lýsir fundi í Krossinum þannig:  "Það þyrfti ekkert áramótaskaup ef þessi safnaðarfundur yrði sendur út í staðinn."
  Ingibjörg Guðnadóttir segir þetta hafa verið ósköp venjulegan fund. Venjulegur fundur í Krossinum er á við áramótaskaup.  Alltaf fjör.  Alltaf gaman.  Það er ekkert að því.  Nema kannski þetta með djöfulinn. 
 .
  Safnaðarfundurinn venjulegi er til á myndbandi.  Sjónvarpið getur sparað hellings pening með því að sýna myndbandið í stað hefðbundins áramótaskaups með dýrum leikurum og öðrum tilfallandi kostnaði.  RÚV þarf að spara.  Laun og bílakostnaður útvarpsstjóra kalla á það.  Hrópa á það. 
.
elvissmall_cross

Forvitnileg mynd af Grímsstöðum 2026

  Kínverjar hafa þegar fundað með færeyskum stjórnvöldum um að koma sér upp umskipunarhöfn í Færeyjum.  Risastórri umskipunarhöfn.  Hvers vegna funda Kínverjar ekki með íslenskum stjórnvöldum fyrst þeir hafa brennandi áhuga á umskipunarhöfn á Íslandi?  Eða eru það bara Huang og félagar sem hafa áhuga á umskipunarhöfn á Íslandi?  Er hugmyndin sú að það verði ein risastór umskipunarhöfn í Færeyjum og önnur á Íslandi?  Þetta er dularfullt.

  Eins og margoft hefur verið bent á þá hugsa Kínverjar í heilum og hálfum öldum en ekki í árum.  Þannig lítur út tölvugerð kínversk mynd af Grímsstöðum á Fjöllum 2062.

grímsstaðir

  Samkvæmt viðtölum í útlendum fjölmiðlum við Huang þá hefur hann þegar selt hinum ýmsu Kínverjum 100 hús á Grímsstöðum.  Þar er um að ræða 100 blokkir, að því er virðist, því áætlað er að hvert hús hýsi um 3000 Kínverja (samtals 300 þúsund). 

  Athygli vekur að þessi hús hefur Huang selt áður en hann hefur leigt Grímsstaði.  Og áður en ljóst er hvort honum verða leigðir Grímsstaðir.  Það er snöfurlega að málum staðið. 

  Ef eða þegar Huang fær Grímsstaði leigða mun hann hefjast handa fyrir alvöru.  Þá færist fjör í sölu á blokkum til Kínverja.  Það er gaman.  Það hefur lengi verið alltof rólegt á Grímsstöðum.  Þar fyrir utan er áætlað að einhverjir Íslendingar fái vinnu við uppbygginguna.  Kannski 3.  Jafnvel fleiri.

  Hér er nærmynd af dæmigerðum kínverskum blokkum.   

grimsst

  Samkvæmt uppkasti að leigusamningnum munu Kínverjarnir varðveita gróður og náttúruna á Grímsstöðum,  ásamt því að gera út á golfaðstöðu.  20 hæða blokk verður lögð undir þessi ákvæði.   

grímsst.á fjöllum


mbl.is Skoða hafnir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýgift og fyrirsæta hjá heimsþekktu vörumerki

eivör+tróndureivör og þrándu

  Um síðustu helgi,  nánar tiltekið á laugardag,  gengu í hjónaband færeyska álfadísin Eivör og færeyski tónlistarmaðurinn Tróndur Bogason.  Athöfnin fór fram í höfuðborg Færeyja,  Þórshöfn.  Í fyrradag,  mánudag,  tilkynnti heimsþekkt fyrirtæki á sviði hárvara (permanent, litir, lengingar og svo framvegis) að samningar hefðu náðst um að Eivör verði fyrirsæta vörumerkisins Balmain.

  Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hollandi en starfsemin er fyrirferðarmest í Bandaríkjunum og Bretlandi. 

eivör+royal haireivör-royal

  Það er upplagt að samfagna þessu öllu með því að fara inn á netsíðu vinsældalista rásar 2,  http://www.ruv.is/topp30 ,  og kjósa lagið  Ég veit  með Eivöru. 


Mesti og grófasti svindlari tónlistarsögunnar

  Kannast þú við nafnið Joyce Hatto?  Það er einkennilegt.  Í virtum tónlistartímaritum hefur henni verið hampað sem besta píanóleikara og túlkanda klassískra píanóverka sem sögur fara af á okkar dögum.  Eða eitthvað svoleiðis.  Og vissulega hljómar þetta dásamlega;  lagið í myndbandinu hér að ofan til að mynda.  Það var ekki að undra að gagnrýnendur lofuðu hæfileika konunnar í hástert.  Þar fyrir utan var hún óvenju afkastamikil á gamals aldri.  Og það fárveik af krabbameini.  Dældi frá sér plötum hraðar en Sigríður Níelsdóttir.

  Veikindin drógu Joyce Hatto til dauða fyrir sex árum.  Hún náði þó 78 ára aldri.  

  Svo fór að upp komst um brögð í tafli.  Hatto spilaði ekki sjálf á plötunum sínum.  Það voru hinir og þessir sem spiluðu.  Allir dánir og lítt þekktir.  Það var eiginmaður Joyce Hatto sem stóð fyrir svindlinu.  Hann stal einfaldlega píanóspili af plötum annarra og endurútgaf það undir nafni Joyce Hatto. 

  Svo virðist sem Joyce Hatto hafi sjálf ekki vitað af svindlinu.  Hún var píanóleikari og vann lengst af við píanókennslu.  Kallinn hennar var hins vegar stöðugt í einhverju braski.  það átti ekki við hann að fara eftir lögum og leikreglum.  Hann svindlaði smá hér og smá þar.  Hann sat í fangelsi,  allt upp í heilt ár,  og stússaði undir það síðasta í plötuútgáfu.  Ýmist fyrir aðra eða þá að hann rak eigið útgáfufyrirtæki.  Allt gekk það illa.

  Þegar Joyce fór að missa heilsu ákvað kallinn að hljóðrita sem mest hann mætti af hennar píanóleik.  Henni til upphefðar.  Að hans sögn voru hnökrar á píanóleik hennar þegar hér var komið sögu.  Þá greip hann til þess ráðs að lagfæra hnökrana með píanóleik látinna manna.  Það vatt upp á sig á þennan hátt.

  Að sögn kallsins var þetta ekki illa meint.  Hann var aðeins að gleðja konu sína með því að láta hana halda að heilsan og píanófærnin væri betri en raun var á.

  Hægt og bítandi áttuðu menn sig á að eitthvað var ekki eins og það átti að vera.  Einn gagnrýnandi hrökk við er hann heyrði á plötu með Joyce Hatto sömu villu, rangan hljóm sleginn, í verki eftir Chopin og hann kannaðist við af gamalli plötu látins píanóleikara.  Aðrir fylltust grunsemdum er þeir spiluðu plötur með Joyce Hatto þar sem fleiri hljóðfæraleikarar spiluðu einnig án þess að nafn þeirra kæmi fram á plötuumbúðum.  Svoleiðis upplýsingar vantar aldrei á alvöru plötur.  Þó ekki væri nema vegna þess að liðsmenn hljómsveita sem spila inn á plötur sætta sig ekki við að þeirra sé ekki getið.

  Í enn einu tilfellinu setti tónlistargagnrýnandi plötu með Joyce í spilara í bíl sínum.  Á skjá spilarans birtist ekki nafn Joyce sem flytjanda eins verks á plötunni heldur annað nafn.  Gagnrýnandinn fann lagið á plötu með viðkomandi og heyrði að á plötu Joyce var píanóleikur þess manns.  Þar með lék ekki lengur vafi á hvað var í gangi.    


Einfalt ráð til að komast hjá fótameini

háhælaskórAháhælaskórBháhælaskór

  Ég þekki konu sem hefur tvívegis þurft að fara í aðgerð á spítala vegna þrálátrar fíknar í að ganga á skóm á háum hælum.  Hún lætur sér ekki segjast.  Hún kann ekki við sig utan heimilis öðru vísi en í skóm á háum hælum.  Getur ekki hugsað sér tilveruna öðru vísi hvað það varðar.

  Þessi kona er ekki ein um þetta vandamál.  Fjöldi kvenna gengur daglega á háhæla skóm.  Konur halda að körlum þyki það flott.  Málið er að karlar taka ekkert eftir skófatnaði neinna.  Hvorki kvenna né annarra.  Einn kunningi minni þurfti að skreppa til Asíu.  Strax í upphafi ferðar fann hann fyrir svo mikilli og sársaukafullri fótaóeirð að hann varð að vera á sokkunum það sem eftir var flugferðar.  Á meðan á nokkurra daga vinnuferð í Asíu stóð varð hann að nota hvert tækifæri til að fara úr skónum.  Fætur voru bólgnir og aumir.

  Kominn aftur heim til Íslands var hann nánast ógöngufær.  Fæturnir voru svo aumir að hann varð að styðja sig við alla nálæga hluti og skrönglast áfram með miklum erfiðismunum eins og farlama gamalmenni.

  Er hann loks náði að svo gott sem skríða inn um dyrnar á heimili sínu var konan hans fljót að benda honum á vandamálið.  Þau höfðu verið með næturgest utan af landi er maðurinn hélt af landi brott.  Maðurinn fór í ógáti í skó gestsins.  Þeir skór voru 2 númerum of litlir fyrir manninn.  Að auki voru skórnir brúnir.  Maðurinn átti enga brúna skó.  Hann hafði aftur á móti aldrei velt fyrir sér lit á skónum sínum fremur en á skóm annarra.  Þetta var fyrir daga farsímans svo konan gat ekki komið skilaboðum til mannsins um þetta á meðan hann var í Asíu.

  Næstum allir karlar lenda í því fyrr eða síðar að ruglast á sínum skóm og skóm annarra.

  Bítlarnir innleiddu háhæla skótísku fyrir karla á sjöunda áratugnum.  Háhæla karlaskór náðu hæstum hæðum á glamrokk tímabili áttunda áratugarins.  Þetta myndband með Slade varðveitir minninguna:

  Munurinn á háhælaskóm karla og kvenna var sá að fyrra tilfellið var nær stultum í hönnum.  Sólinn var jafn hár hælum.  Vandamálið með háhæla kvenskó er að konan stendur á tám.  Allur líkamsþunginn hvílir á tánum.  Það veldur skemmdum á fótunum.  Við þessu er til einföld lausn.  Hún er sú að konur kaupi sér sléttbotna en uppháa hvíta strigaskó og máli snyrtilega á þá teikningu af háhæla skó.  Ef vel er að verki staðið tekur enginn eftir öðru en að konan sé á flottum háhæla skóm.

sléttbotna skór sem virðast háhæla 

 


Nauðsynlegur fróðleikur um landafræði

  Fyrir nokkrum árum keypti ég í Bandaríkjum Norður-Ameríku lítinn hnött.  Eða réttara sagt líkingu af jarðkúlunni.  Hún var ekki í raunstærð heldur frekar nett.  Ástæðan fyrir því að ég fjárfesti í þessu hnattlíki var sú að þar er hvergi Ísland né Færeyjar að sjá.  Þar sem Ísland og Færeyjar eru vanalega á landakorti er aðeins blár flötur sem sýnir óslitið hafsvæði.

  Eftir að Sykurmolarnir,  Björk og Sigur Rós urðu stór nöfn í Bandaríkjunum óx landafræðiþekking þarlendra aðdáenda.  Einkum að því er snýr að Íslandi.  Í dag gæta bandarískir landakortagerðarmenn þess að hafa Ísland með.  Við endurprentun á eldri Íslandslausum landakortum er Íslandi nú bætt við.  Allur gangur er á því hvernig Ísland snýr á kortunum. 

  Ef vel er að gáð má sjá að Færeyjar eru bæði fyrir sunnan og norðan Ísland.  Syðri Færeyjarnar virðast heyra undir Ísland.  Það eru góðar fréttir. 

  Í rauða textanum kemur fram að Stokkhólmur sé höfuðborg Finnlands og nyrsta höfuðborg í heimi.  Íbúar Stokkhólms eru sagðir vera 2 milljónir og þar með 20% af heildar íbúafjölda Skandinavíu.  Vissulega slagar íbúafjöldi Stokkhólms í 2 milljónir ef allir á Stokkhólmssvæðinu eru með taldir.  Hins vegar hélt ég lengi vel að íbúafjöldi Skandinavíu væri um 25 milljónir.  En það eru ekki allir á einu máli um það hvort Skandinavía nær yfir öll Norðurlöndin eða bara hluta þeirra. 

  Hvernig sem það er þá er skemmtilegt og fróðlegt að skoða Norðurlöndin á landakorti sem þessu.  Ósló og Gautaborg eru þarna vel staðsettar í Noregi.  Stavangur, Bergen og Stokkhólmur dreifa sér um Finnland.  Helsinki blasir við í Svíþjóð.  Maður verður eiginlega ringlaður af þessum fróðleik. 

bandarískt landakort með fróðleik


Hljómleikar í hlöðu

 

 - Flytjendur:  Eldar og Brother Grass

 - Staðsetning:  Hlaðan í Vogum

 - Einkunn: ****

  Gunni Byrds hringdi í mig.  Hann er búsettur í Vogum og var áhugasamur um hljómleika í Hlöðunni með blágresishljómsveitunum Eldum og Brother Grass.  Það er alltaf gaman að eiga erindi í Voga.

  Hlaðan er sérkennilegur samkomustaður.  Þetta er gömul heygeymsla með torfþaki.  Hljómburður er góður og stemmningin notaleg.  Aðsókn var svo góð að hluti áheyrenda sat fyrir utan.  Gaflinn var opinn upp á gátt þannig að þetta koma vel út.  Þröngt máttu sáttir sitja fyrir innan og utan.  Kynslóðabil var ekkert.  Áheyrendur voru allt frá börnum til ellilífeyrisþega.  Flestir voru þó undir miðjum aldri.

  Eldar er fjögurra manna hljómsveit.  Þar fer söngvarinn Valdimar (þekktur úr samnefndri hljómsveit) fremstur í flokki.  Auk hans eru tveir karlkyns gítarleikarar og kona á bassa.  Músíkin er rólegt blágresi;  frumsamdir söngvar með íslenskum textum.  Valdimar hefur þægilega og hljómfagra söngrödd.  Það háði ekki verulega að hafa ekki áður heyrt þessi lög.  Þau runnu ljúflega án þess að einhver eitt eða tvö skæru sig úr.

  Brother Grass er sérkennilegt nafn á íslenskri hljómsveit.  En tengir við blágresi.  Líka við kvikmyndina  Oh Brother Where Art Thou.  Tónlist Brother Grass er einmitt mjög í anda tónlistarinnar í þeirri mynd.  Tónlist Brother Grass er þó fjölbreyttari.  Til viðbótar við blágresið flytja þau gömul ensk og bandarísk þjóðlög (folk),  gamlan blús,  nýrri blús, gospel og jug.  Án þess að blása í flösku, eins og heitið jug vísar til.  En líkt og einkennir jug þá spila þau á þvottabretti,  þvottabala og eitthvað svoleiðis.

  Aðal gítarleikari Brother Grass er Örn Eldjárn.  Hann er flinkur og fjölhæfur gítarleikari.  Fjórar söngkonur skipta á milli sín öðrum hljóðfærum.  Meðal annars harmónikku,  þottabala,  tamborínu  og eitthvað fleira.  Þvottabalinn var ýmist laminn með blautri tusku eða strokinn með trommuburstum. 

  Fagurlega raddaður söngur einkennir flutning Brother Grass.  Lagavalið er af ýmsu tagi.  Flest lögin eru vel þekkt.  Má þar nefna Please Don´t Hate Me  (Lay Low),  House of the Rising Sun (enskt lag með bandarískum texta),  One More Cup Of Coffee  (Bob Dylan) og vinsælt lag úr herbúðum Of Monsters and men (ég man ekki hvað það heitir).  One More Cup Of Coffee  var í snilldar útsetningu Rogers McGuinns.  Allt snyrtilega og fagmannlega afgreitt en jafnframt líflegt. 

  Þessir hljómleikar í Hlöðunni voru virkilega góð skemmtun. 

  Þetta lag er til með íslenskum texta.  Mig minnir að það hafi komið út á plötu með Mannakornum.  Gott ef íslenski textinn hefst ekki á orðunum:  "Graði Rauður var gæðingur / gamall hálftaminn gæðingur..."

  Þegar til er íslenskur texti við svona lag er upplagt að nota hann næst.


Varasöm málverk og hættuleg

  Það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig þegar málverk er keypt.  Það er ekki sama af hverju það er.  Ef vitlaust málverk er keypt getur það haft hræðilegar afleiðingar sem hvergi sér fyrir enda á.  Því er nauðsynlegt að vanda valið.  Annars getur farið eins og í þessu tilfelli:  Það var ekki fyrr búið að hengja þetta málverk upp á vegg en sjórinn fossaði út úr því með skipum og öllu saman.  Eftir stendur ramminn utan um örfá ský sem sluppu.  Gólfteppið fyrir neðan er ónýtt.

málverk


Tussufínt blogg

  Fyrir tveimur árum lak út tölvupóstur frá Elíasi Jóni Guðjónssyni,  aðstoðarmanni menntamálaráðherra,  Katrínar Jakobsdóttur.  Yfirskrift póstsins var:  Tussufínt.  Efni póstsins var um að tiltekinn blaðamaður væri æstur í að "skúbba" einhverju. 

  Ekki upplýstist hverjum pósturinn var ætlaður.  Talið var líklegt að hann hafi verið ætlaður einhverjum upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar.  Á dularfullan hátt endaði pósturinn í tölvu hjá tímaritinu Grapevine.  Þar á bæ birtu menn póstinn á vefsíðu Grapevine.

  Nýyrðið tussufínt olli bylgju hneykslunar og fordæminga.  Það þótti svakalega gróft.  Argasta klám.  Í netheimum,  fésbók og bloggi,  töpuðu menn jafnvægi.  Þeir voru miður sín.  Ekki síst þeir sem duglegastir eru að uppnefna stórnmálamenn og forsetann og saka þá um flesta glæpi sem til eru.

  Hægt og bítandi náðu menn aftur jafnvægi.  Orðið virtist ætla að gleymast.  En nú sprettur það skyndilega fram á ólíklegustu stöðum.  Bara í dag sá ég það í tveimur blöðum.

  Fyrst átti ég leið í banka.  Þar lá frammi áróðursrit LÍÚ,  Morgunblaðrið.  Ég fletti upp á leiðara DOddssonar.  Þá blasti við mér fyrirsögnin "Tussufínn pistill".  

  Ég flýtti mér að hylja fyrirsögnina með höndunum.  Leit svo í kringum mig til að ganga úr skugga um að hvorki börn né óharðnaðir unglingar væru á staðnum.  Það voru aðeins örfáir rígfullorðnir þarna inni.  Ég braut blaðið saman og faldi það.

  Því næst fór ég á pósthús til að sækja póstinn minn.  Þar á meðal var tímaritið Séð og heyrt.  Ég fletti í gegnum það og staðnæmdist við opnu með plötuumsögnum.  Þar æpti á mig fyrirsögnin  "Tussufín plata".  Átt var við plötuna  Valtara  með Sigur Rós.

  Hvað er í gangi?  

   


Ódýrustu heyrnartæki á markaðnum

  Eins og öllum er bærilega kunnugt um þá fer heyrn okkar að hraka er við nálgumst miðjan aldur.  Um og upp úr miðjum aldri hrakar heyrn hratt og mikið.  Flestir sem komast á áttræðis aldurinn eru verulega heyrnarskertir.  Svo ekki sé talað um þá sem eru komnir yfir 100 ára múrinn. 

  Heyrnartæki eru dýr.  Að auki þarf sífellt að kaupa ný batterí í þau. 

  Þetta þarf ekki að vera svona.  Ódýrustu heyrnartæki á markaðnum býrð þú til sjálf/ur.  Það eina sem þarf að gera er að taka gúmmíið af drullusokkum heimilisins.  Gúmmíið er þrætt upp á eyrun.  Þetta skerpir á heyrninni alveg um 10%.  Gúmmíið er viðhaldsfrítt.  Það þarf ekkert batterí eða neitt í það. 

  Ef vaskur eða klósett stíflast er minnsta mál í heimi að rífa gúmmíið af eyrunum og smella því á gamla tréskaftið,  rétt á meðan losað er um stífluna.  Síðan er gúmmíið aftur þrætt upp á eyrun. 

heyrnartæki

  Ég fann enga mynd af neinum með drullusokkagúmmí á eyrunum.  Þessi mynd af manni með blómapotta komst næst því.


Börn eru altalandi 6 mánaða gömul

 

  Algild kenning er sú að börn byrji fyrst að tjá sig með skiljanlegum orðum á aldursbilinu 12 - 15 mánaða gömul.  Staðreyndin er hins vegar sú að börn eru orðin altalandi 6 mánaða gömul.  Það er ótrúlegt en satt.  Vandamálið er að annað fólk og eldra, eldri börn jafnt sem fullorðið fólk,  áttar sig ekki á því hvað barnið er að segja.  Framburður 6 mánaða barns er bjagaður og orðin sem það notar eru ekki alveg þau sömu og aðrir nota.

  Dæmi um orð/hljóð sem 6 mánaða barn notar: 

"Ah" - mamma

"Ger" - pabbi

"Eh" - ég er svöng/svangur

"Bú" - ég þarf nýja bleyju

  Þessar upplýsingar hef ég eftir enskum sálfræðingi,  Dr. Klöru Halsey. 

  Allir kannast við það að ungabörn mynda allskonar hljóð sem við köllum babbl.  Við höldum að þau séu að bulla eitthvað út í loftið.  Því fer fjarri að svo sé.  Börnin eru að tjá sig,  segja okkur eitthvað.  Þau ganga út frá því sem vísu að við skiljum hvað þau eru að segja.  Réttu viðbrögðin eru að þykjast skilja barnið.  Svara:  "Já, er það?".  Eða:  "Þetta er gaman að heyra."  Næsta víst er að barnið færist allt í aukana af gleði yfir að hlustað sé á hvað það hefur að segja.

  Rangt er að tala "barnamál" við börn.  Það er að segja bullmál með skældum og skrækum rómi.  Með því er gert lítið úr barninu.  Heppilegast er að tala lágum og þýðum rómi við börn.  Og um að gera að útskýra fyrir þeim hluti.

  Dæmi:  Þú hnerrar óvænt,  barninu bregður og það brestur í grát.  Þá skaltu útskýra fyrir barninu hvað gerðist.  Barnið skilur ekki allt sem þú segir.  En áttar sig á því að þú varst ekki að hnerra til þess eins að hrekkja það.  Næst þegar þú hnerrar sýnir barnið því skilning og bregður ekki neitt.

  Þegar tvö ungabörn hittast þá ræða þau saman á sínu tungumáli.  Þau skilja hvert annað alveg eins og þegar eldra fólk spjallar saman.

  Kímnigáfa barna er óþroskuð og barnaleg.  Ef barni þykir eitthvað vera fyndið þá fær það seint leið á brandaranum.  Það er kostur.  Það þarf ekki að finna upp nýjan brandara fyrir það á hverju kvöldi.


mbl.is Ekkert mál að eiga börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegt og vandræðalegt mál

  Snúið mál - í bókstaflegri merkingu - er fyrir dómstólum í Norður-Ameríku.  Svo snúið er málið að veruleg hætta er á að það leiði til alvarlegrar milliríkjadeilu.  Það er að segja víðtækari deilu en þeirri sem snýr aðeins að bandarískum húskaupanda og kanadískum húsaframleiðanda. 

  Forsaga málsins er sú að bandarískur maður,  John Brown,  var tilbúinn að flytja úr foreldrahúsum.  Hann keypti landskika í sveitinni og pantaði einingarhús í póstkröfu frá Kanada.  Síðan hófst hann handa við að setja húsið saman.  Eins og aðrir rauðhálsar (rednecks) í Suðurríkjunum er John "reddari".  Menn bjarga sér sjálfir,  redda hlutunum og eru ekkert að eltast við þjónustu fagmanna.  John gekk sjálfur frá pípulögnum,  rafmagni og öðru sem þarf til að hús sé íbúðarhæft.  Hann sparslaði og málaði húsið að utan og innan,  sló upp girðingu umhverfis það og gróðursetti nokkrar trjáhríslur.

  Þegar allt var orðið fínt bauð John æskuvinkonu sinni í heimsókn.  Hún benti honum á að húsið væri eins og á hvolfi.  Fleiri í sveitinni tóku undir með henni þegar John bar þetta undir þá.  Sjálfur komst hann loks að sömu niðurstöðu eftir að hafa skoðað málið vandlega.  Honum hafði frá fyrsta degi þótt húsið einkennilegt.  En hann fór nákvæmlega eftir teikningunni sem fylgdi.

  Nú hefur John kært kanadíska húsframleiðandann fyrir að selja sér hús á hvolfi.  Framleiðandinn heldur því fram að John hafi snúið teikningunni á haus. 

hús á hvolfi


Bjargaðu lífi þínu með því að vita þetta

  Viðbragðsteymi vegna landgöngu hvítabjarnar í Húnavatnssýslu var kallað saman í morgun.  Í teyminu eru sérfræðingar og fulltrúar Landhelgisgæslunnar,  Ríkislögreglustjóraembættisins,  Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar.  Í samráði við lögregluna á Blönduósi og sýslumannsembættið í Húnavatnssýslu lét viðbragðsteymið hanna og teikna upp spjald með nauðsynlegustu upplýsingum sem geta bjargað lífi þess sem kemur auga á ísbjörn.  Hjálparsveitin hefur dreift þessu spjaldi á bæi í sýslunni í allan dag,  ásamt því sem spjaldinu hefur verið dreift á Fésbók.

  Ísbjörninn hefur ekki fundist þrátt fyrir víðtæka leit.  Hins vegar fundust tveir Ítalir.  Þeir eru taldir vera hættulausir.

  Á meðan ísbjörninn er týndur er áríðandi að þú skoðir þetta spjald gaumgæfilega,  leggir það á minnið og sýnir síðan öðrum spjaldið. 

björn-hestur


mbl.is Búið að finna Ítalina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldisfullur kópur skotinn

selur 

  Selurinn hefur mannsaugu.  Góðleg augu og hrekklaus.  Samskipti sels og manns eru yfirleitt ljúf og eins og best verður á kosið.  Selurinn forðast manninn,  kemur sér í burtu þegar maðurinn nálgast hann.  Maðurinn skýtur selinn.  Selkjöt er gott.  Selspik er sælgæti.  Úr feldi selsins er hægt að búa til skjólgóðar og fallegar flíkur.

  Í síðustu viku urðu breytingar á samskiptum sels og manns.  Stálpaður kópur í Hróarskeldufirði mátti ekki koma auga á manneskju öðru vísi en tryllast.  Hann reyndi af öllum mætti að ráðast á fólk með grófu ofbeldi.  Til allrar hamingju náði hann til fæstra sem árás hans beindist að.  Fólki til happs varð að hann hafði ekki almennilega útlimi til að klifra um borð í báta.  Ekkert vantaði samt upp á að hann reyndi.  Hann reyndi og reyndi.  Honum tókst að glefsa að mörgum og náði að bíta í hönd á konu. 

  Það var ekki um annað að ræða en leita ráða hjá Háskólanum í Hróarskeldu.  Þar á bæ komust menn að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að drepa kópinn.  Það væri aðeins tímaspursmál hvenær hann næði að slasa einhvern alvarlega.  Börn að leik niðri í fjöru voru í sérlega mikilli hættu.  Núna stendur jafnframt yfir í Hróarskeldu mikil tónlistarhátíð.  Ofur ölvi eða dópaðir Íslendingar gætu ráfað um fjöruna og meira að segja lagst til sunds. 

  Kópurinn var drepinn með einu skoti í hausinn.

  Fræðimenn hafa sett fram ýmsar kenningar um þessa afbrigðilegu hegðun kópsins.  Kópar eiga ekki að haga sér svona eins og ruddalegt fólk.  Ein kenningin er sú að kópurinn hafi verið geðveikur.  Önnur kenning er sú að kópurinn hafi átt harma að hefna.  Hann hafi lent í slæmum samskiptum við fólk.  Samskiptum sem kallaði fram hjá honum hatur í garð fólks.  Selir eru ekki mannglöggir.  Fyrir þeim er maðurinn bara maður.  Sami rassinn undir þeim öllum.

  Ef seinni kenningin er rétt þykir líklegt að manneskja hafi náð kópnum mjög ungum og haldið hann sem gæludýr.  En verið vondur við hann.  Það eru til manneskjur sem eru vondar við dýr og vondar við manneskjur. 


Óvænt bylting í N-Kóreu

  Norður-Kórea er eitt lokaðasta og undarlegasta þjóðfélag heims.  Það er jafnframt eitt hervæddasta land heims.  Kommúnistaflokkur fer þar með völd.  Frá 1948 var Kim Il-Sung aðal spaðinn og er enn.  Hann lést 1994 en hefur samt ekki látið af embætti.  Þvert á móti þá heldur hann fast um stjórnartauma.

  Sonur hans,  Kim Jong-Il,  fékk það hlutverk að hafa milligöngu um að sinna störfum eilífðarforsetans.  Kim Jong-Il kaus sér jafnframt það hlutverk að þamba allsnakinn koníak á kvöldin og hlusta á plötur enska blúsgítarleikarans Erics Claptons.  Sérstakt dálæti hafði hann á flutningi Eiríks á gamla blússlagara Leadbellys Goodnight Irene.

kim jung-il

  Í fyrra féll Kim Jong-Il frá.  Að sögn kóreskra fjölmiðla vegna vinnuálags.

  Einhver vandræði voru á elstu sonum Kims Jong-Ils.  Ég man ekki alveg hver þau voru.  Gott ef einn þeirra lenti ekki í klúðri í Japan með fölsuð skilríki.  Ég man ekki hvort það var sá eða einhver annar sem var og er talinn vera bjáni.

  Það kom í hlut yngsta sonar Kims Jong-Ils,  Kims Jong-Un, að taka við sæti föður síns.  Sá hefur verið talinn af þeim sem til þekkja óreyndur og strengjabrúða embættismanna.  Á tímabili voru sögusagnir um að hætta væri á að honum yrði steypt af stóli.  Jafnvel að undirlagi Kínverja sem hafa haft miklar áhyggjur af ófyrirsjáanlegum uppátækjum ráðamanna í N-Kóreu.

  Framan af var Kim Jong-Un aðallega í því að skoða hluti,  eins og var aðal starf föður hans.  Kim Jong-Un virðst leiðast að skoða hluti.  Hann er jafnan með fýlusvip.  Nema þegar hann fær að skoða matvæli.  Þá brosti hann út að eyrum og er áhugasamur.  Hann þykir gráðugur mathákur.

  Reiknað var með að Kim Jong-Un myndi ekki rugga bátnum heldur reyna að festa sig í sessi í því hlutverki að skoða hluti.  Hann hefur svo sem hvergi slegið af sér við það.  Hins vegar kom hann verulega á óvart á dögunum með því að boða byltingarkenndar breytingar í N-Kóreu.

  Þær felast meðal annars í því að aflétta banni við því að konur gangi í buxum að eigin vali.  Sömuleiðis er reglum aflétt um það hvernig skóm konur skuli ganga í.  Jafnframt er konum heimilt að nota eyrnalokka. 

  Ekki nóg með það.  Kim Jong-Un hefur aflétt banni við því að þegnar landsins megi eiga og brúka farsíma. 

  Stærsta skrefið í umbótum Kims Jong-Uns er að hann hefur heimilað einstaklingum að opna matsölustaði með öðrum mat en hundakjöti og öðrum kóreskum þjóðlegum réttum.  Héðan í frá má hver sem er í N-Kóreu opna veitingastað með pizzum,  pylsum og hverju sem er.  Sjálfur hefur Kim Jong-Un vísað til þess að faðir hans fann að sögn upp skyndibita sem kallast hamborgari. 

  Þetta hljómar allt eins og eitthvað sem ætti að vera sjálfsagt.  En í N-Kóreu er þetta bylting.

  Til gamans má geta að þrátt fyrir að íbúar N-Kóreu búi við mjög svo skert ferðafrelsi (eiginlega ekkert) þá hefur verið og er auðvelt fyrir útlendinga að heimsækja landið.  Þeim er úthlutað fararstjórum sem fylgja þeim hvert fótmál.

  Þegar ég skrapp til Noregs í fyrra hitti ég hermann frá S-Kóreu.  Sá sagði mér frá því að það væru engin vandkvæði fyrir sig að ferðast um N-Kóreu.  Hann vann á landamærum Kóreu-ríkjanna og átti vinsamleg samskipti við landamæraverði N-Kóreu.  Fór meðal annars í fjallaferðir með þeim í frístundum.  Engu að síður eru af og til skærur á milli ríkjanna.  En ekki á hans slóðum.  Þar ríkti vinsemd á milli landamæravarða.  Þeir léku sér saman í fótbolta og skiptust á geisladiskum með músík og svo framvegis. 

kim jong-un spilar á gítar

  Í N-kóreskum fjölmiðlum var birt þessi mynd af Kim Jong-Un að spila á gítar.  Kim var sagður hafa tekið þvílíkt gítarsóló að Eric Clapton gæti margt af honum lært.  Illar tungur telja sig sjá að gítarinn sé vanbúinn strengjum og þeir fáu strengir sem í gítarnum séu beri þess merki að vera of laust strekktir til að hægt sé að spila á hann með góðu móti.  Að auki bendi meðhöndlun Kims Jong-Uns á gítarnum ekki til fagmennsku í gítarleik.


Margir eru með orm í auga

augnaormurFaugnaormurT

  Það er algengt að fólk ali orm í auga sér.  Miklu algengara en flestir halda.  Fæstir eru þó að hafa orð á því.  Síst af öllu hýsill ormsins.  Ástæðan fyrir þögguninni er margþætt.  Ein er sú að menn skammast sín afskaplega mikið fyrir að vera með orm í auga.  Þeir reyna að leyna aðra því.  Hafa þetta út af fyrir sig sem vandræðalegt leyndarmál.     

  Önnur ástæða er sú að margur maðurinn með orm í auga veit ekki af því.  Það fer svo lítið fyrir orminum.  Þessi kvikyndi hafa rebbavit.  Þau vita hvænær brýn ástæða er til að hafa hægt um sig og láta lítið á sér bera.

  Grennstu og rauðleitustu ormarnir fela sig innan um blóðfylltar æðar í auganu.  Eigandi augans virðist þá vera aðeins rauðeygari en áður.  En ekki sem neinu nemur. 

augnaormurVaugnaormurK

 

   Aðrir ormar eru eiginlega litlausir.  Nánast glærir.  Það er erfitt að koma auga á þá.

 augnaormurUaugnaormurSaugnaormurRaugnaormurQaugnaormurA

  Í enn öðrum tilfellum kemur ormurinn sér fyrir neðan við augað.  Hýsillinn virðist þá vera með smá baug undir auganu.  Það er ekkert óvenjulegt við það.  Flestir eru með bauga undir augum í kjölfar langs fyllerís.  Ef baugur undir öðru auga er örlítið stærri en baugur undir hinu auga er næsta víst að í þeim stærri leynist ormur.

augnaormurJ

  Hvaðan koma ormarnir?  Hvert fara þeir?  Hvað heita þeir?  Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör.  Einn möguleikinn - kannski - er að ormarnir berist úr dýrum.  Augu í dýrum eru sum hver löðrandi í ormum.  Þetta þurfa dýraeigendur að vita.  Á myndunum af kattaraugunum má greina orm í auganu neðst til vinstri.

augnaormurPaugnaormurMaugnaormurIaugnaormurHaugnaormurG


mbl.is Var með 13 cm orm í auganu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.