Þess vegna drekka sumir foreldrar

born1_938425.jpgborn2_938426.jpgborn3_938427.jpgborn4.jpgborn5.jpgborn6_938430.jpg

Þórður Bogason fimmtugur

Þórður Boga og Paul Stanley

  Rokksöngvarinn Þórður Bogason er fimmtugur í dag.  Eftir að hafa frá unglingsárum verið rótari hjá hljómsveitum Pétur Kristjánssonar (Pelican,  Paradís,  Póker,  Start...) stofnaði Þórður þungarokkshljómsveitina Þrek.  Ég man ekki ártalið.  Sennilega um eða upp úr 1980.  Síðan hefur Þórður sungið með fjölda hljómsveita.  Þar á meðal Foringjunum,  Rickshow,  Warning, Hljómsveitinni F,  Þukli,  DBD, Skyttunum,  Rokkhljómsveit Íslands og Mazza.  Eflaust er ég að gleyma einhverjum.

  Lagið  "Komdu í partý" með Foringjunum fór hátt á vinsældalista á níunda áratugnum.  Einnig vakti jólaplatan "Pakkaþukl" athygli.  Þar söng Þórður nokkra hressa jólaslagara í þungarokksstíl.  Rokkhljómsveit Íslands átti eitt lag sem fékk ágæta útvarpsspilun.  Ég man ekki hvað það heitir.  En það var eftir gítarleikara hljómsveitarinnar,  Friðrik Karlsson,  sem áður var í Mezzoforte. 

  Núna er Þórður að vinna sólóplötu sem kemur út á næsta ári.  Myndin hér fyrir ofan er frá því að Þórður var að skemmta með hljómsveitinni Kiss.  Þarna er hann á spjalli við Paul Stanley.

  Þórður er vinsæll ökukennari:  www.thordurbogason.com Hann rekur jafnframt hundaræktarfyrirtækið Mjölni,  www.mjolnir.123.is.  Margir kannast við Þórð frá því hann seldi hljóðfæri í verslununum Þreki og Hljóðfæraverslun Reykjavíkur. 

  Til hamingju með afmælið,  Þórður! 


Verðsamanburður á jólahlaðborðum - og verðbreytingar frá í fyrra

jólamatur

  Ég er búinn að fara daglega á jólahlaðborð núna í þrjár vikur.  Verðið gefur vísbendingu um úrvalið á hlaðborðinu en segir þó ekki alla söguna.  Hvort á hlaðborðinu eru 20 tegundir af réttum og meðlæti eða 100 segir heldur ekki alla sögu.  Það skiptir meira máli að laufabrauð,  Waldorf-salat og ris a la mande sé í boði en kjúklingur, kokteilsósa og tómatsósa.

  Ég læt slóðina yfir á jólahlaðsborðsmatseðla veitingastaðanna fylgja þar sem þeir eru í boði.  Þá er nefnilega hægt að gera samanburð og átta sig betur á pakkanum.

  Athygli vekur hvað mörg veitingahús hafa lækkað verð frá því í fyrra.  Þar munar mestu um 19% verðlækkun Lækjarbrekku.  Verri er 50% verðhækkun hjá Hótel Loftleiðum.  Skamm,  skamm!

  Vonandi hafið þið gagn af þessum lista.  Ég er búinn að eyða miklu lengri tíma í að setja hann saman en ætlun var.

Húsasmiðjan Skútuvogi:  990  kr.  Sjá:  http://www.husa.is/index.aspx?GroupId=957

Vox:  2850  kr. í hádegi (7500 kr. á kvöldin.  Um helgar eru skemmtiatriði með í pakkanum (Sigga Beinteins og Daddi diskó)).  100 kr. verðlækkun frá í fyrra í hádegi!  Óbreytt verð á kvöldin.  Gott mál.  Sjá:  http://www.vox.is/JOLAVOX/VOXihadeginu/
.
Strikið:  2980  kr. í hádegi (4980 kr. á kvöldin).  Sjá:  http://www.strikid.is/static/images/strikid_jol.jpg
Friðrik V:  2980  kr. í hádegi (6900 kr. á kvöldin).  Sjá:  http://www.fridrikv.is/is/page/jolin_2009
.
Silfur:  3500  kr. í hádegi (5900 - 6900 kr. á kvöldin eftir dögum)  1100 kr. verðlækkun frá í fyrra í hádegi.  300 kr. verðlækkun á kvöldin.  Gott mál.  Sjá:  http://www.silfur.is/index.phpop?tion=com_content&task=view&id=79&Itemid=58
Skrúður,  Hótel Sögu:  3900  kr. í hádegi.  5900 kr. á kvöldin.
.
Brauðbær,  Hótel Óðinsvé:  3900  kr. mánud. - miðvikud. (6900 kr. aðra daga).  700 kr. verðlækkun frá í fyrra á lægra verði en 400 kr. hækkun á hærra verði.  Í fyrra var reyndar verðmunurinn á milli hádegis og kvölds.  Sjá:  http://www.braudbaer.is/Forsida/UmBraudbae/
Lækjarbrekka:  3900  kr. í hádegi (6900 kr. á kvöldin).  900 kr. verðlækkun frá í fyrra í hádegi.  Kvöldverðið var mismunandi eftir dögum.  Sjá:  http://www.laekjarbrekka.is/index.php?option=content&task=view&id=22&Itemid=55
Gallerý,  Hótel Holt:  3900  kr. í hádegi (7900 kr. á kvöldin).  100 kr. verðhækkun frá í fyrra í hádegi.  Óbreytt kvöldverð.  Sjá:  http://www.hotelholt.is/index.php?/Gallery-Restaurant/Hadegismatsedill.html 
 
Hótel Loftleiðir:  3950 kr. í hádegi.  6500 á kvöldin.  Óbreytt verð.
 
 Kjöt & Kúnst:  3990  kr.
.
Kaffi Reykjavík:  4900  kr.  1000 kr. verðlækkun frá í fyrra.  Sjá:  http://www.restaurantreykjavik.is/index.php?option=content&task=view&id=30&Itemid=53
.
.
Tapas Bar:  4990  kr. með fordrykk700 kr. verðhækkun frá í fyrraSjá:  http://www.tapas.is/
.
Brassería, Grand Hótel:  5100  kr. í hádegi (7500 kr. - 8500 kr. með söng,  skemmtiatriðum og dansleik).  550 kr. verðhækkun  frá í fyrra í hádegi.  1100 - 1900 kr. verðhækkun á kvöldin.
.
Hótel Stykkishólmur:  5500  kr.  Sjá:  http://hringhotels.is//jolahladbord/Default.aspx
Gistihúsið Egilsstöðum:  5900  kr.. 
Hótel Laki:  5900  kr.
Hótel Varmahlíð:  5900  kr. 
Hótel Örk:  5900  kr. föstudaga (6900 laugardaga).  1000 kr. verðlækkun frá í fyrra á föstudegi.  Óbreytt verð á laugardegi.
.
Ráin:  5950  kr. með lifandi músík (Ari Jóns & Finnbogi Kjartans).  Sjá:  www.rain.is
.
Café Nielsen:  6100  kr.
.
Rub23:  6400  kr.  Sjá:  http://www.rub.is/Default.asp?Page=255
.
Lava,  Bláa lónið:  6500  kr. með fordrykk og boðsmiða í lónið. Sjá:  http://www.bluelagoon.is/resources/Files/Bath/Jolahladbord-LAVA-2009-[Compatibility-Mode].pdf
Hótel Selfoss:  6500  kr.
Rauða húsið:  6500  kr.  Sjá:  http://www.raudahusid.is/Frettir/762/  Smella þarf á innrammaða flötinn sem er merktur Jólahlaðborð 2009..
.
Fjörukráin:  6800  kr. með jólaglöggi og lifandi músík (Rúnar Þór og Gylfi Ægisson).  Dansleikur á eftir (Dans á Rósum).  400 kr. verðhækkun frá í fyrra.  Sjá:  http://www.fjorukrain.is/fjorukrain/is/a_dofinni/?cat_id=23805&ew_0_a_id=351816
.
Perlan:  6890  kr. mán. - miðvikud. (7980 aðra daga).  640 kr. verðhækkun frá í fyrra í hádegi.  Þá var lægra verðið reyndar á virkum dögum en 7250 kr. um helgar.  Sjá:  http://www.perlan.is/index.php/is/dni-veitingastadur-133/146-jolahladbord-perlunnar
.
Gamla Kaupfélagið:  6900  kr. með lifandi músík undir borðhaldi (André Backman og félagar) og dansleikur á eftir.  Sjá:  http://www.gamlakaupfelagid.is/  Ath:  Það þarf stækkunargler til að lesa matseðilinn.
Vodafone-höllin:  6900  kr. með skemmtidagskrá og balli (Á móti sól).  Sjá:  http://www.veislurettir.is/index.php?option=content&task=view&id=270&Itemid=151
Fjalakötturinn:  6900  kr.  Sjá:  http://www.fjalakotturinn.is/Matsedill/Jolasedill-2009/
Rauðará:  6900  kr.  Óbreytt verð frá í fyrra.  Sjá:  http://www.raudara.is/index.php?option=content&task=view&id=15&Itemid=38
.
Argentína:  7300  kr. sunnud. - miðvikud. (8300 kr. aðra daga).  Þetta er dálítið kanadískt jólahlaðborð. 2042 kr. verðhækkun frá í fyrra á lægra verði.  2050 kr. verðhækkun á hærra verði.  Sjá:  http://www.argentina.is/?c=webpage&id=55
.
Broadway:  7900- 8400 kr. (með hryllingsmúsík og sýningu á Mikjáli Jackson dönsum + balli (Bermúda) 
Grillið:  7900  kr. (9900 kr. ef valið er af sérmatseðli).  Sjá:  http://www.grillid.is/Grillid/Frett/58
.
Hótel Rangá:  8000  kr. föstudaga (8900 kr. laugardaga)
.
Fiskmarkaðurinn:  8900  kr. 1500 kr. verðhækkun frá í fyrra.  Þá kostaði 7400 kr. sunnud. - miðvikud og 8400 aðra dagaSjá:  http://fiskmarkadurinn.is/.  Það þarf að smell á "Seðill" og síðan "Jólaborðs matseðill".
Súlnasalur,  Hótel Sögu:  8900  kr.  (með skemmtiatriðum og balli).  Óbreytt verð frá í fyrra. 

Hvað heldur þú?

baconman

  Ég fékk mér að borða á veitingastað.  Sat úti í horni í góðu yfirlæti og las Uncut.  Á næsta borði sat fullorðinn maður.  Mikill bolti sem tók hraustlega til matar síns.  Ég var ekkert að fylgjast með honum en sá þó út undan mér að sósa og fleira meðlæti setti fljótlega svip á andlit kauða.  Í mestu átökunum sýndist mér sem tanngómur væri komin hálfa leið út úr manninum.

  Að nokkrum tíma liðnum hringdi maðurinn örstutt símtal.  Ég tók ekki eftir því um hvað var rætt.  Nokkrum mínútum síðar kom ung, nett og fínleg kona inn og settist gengt manninum.  Hún var af asísku bergi brotin.  Maðurinn ýtti til hennar disknum sínum.  Konan tók þegar að borða leifarnar eftir manninn.  Nagaði hvert bein snyrtilega og af samviskusemi.

  Ég veit ekki hvað var í gangi.  Þetta er eitthvað skrýtið.  Án þess að ég hafi hugmynd um þá læðist að mér grunur um að stutta símtal mannsins hafi verið við konuna.  Mér dettur í hug að konan hafi þá beðið fyrir utan.  Kannski í bíl.  Eða ég veit bara ekkert hvað ég á að halda.  Kannski þekkir þetta fólk manneskjuna sem sér um uppvaskið og vildu spara uppvask á diski og hnífapörum.  Hvað heldur þú?   

  Myndin hér að ofan er ekki af manninum á veitingastaðnum.  Sá var dálítið eldri og þykkari.


Samanburður á listum yfir bestu gítar"riff" rokksins

  Jimi Hendrix á afmæli í dag.  Það eru 67 ár síðan hann fæddist í Seattle í Bandaríkjum Norður-Ameríku,  síðar vöggu gruggsins (grunge).  27 ára gamall var hann myrtur.  Í tilefni dagsins er gaman að skoða úrslit í lesendakosningu breska músíkblaðsins Music Radar um bestu gítar "riff" rokksögunnar.  Music Radar er vinsælasta músíkblaðið í netheimi. 

  Fyrir nokkru birti ég lista breska rokkblaðsins Kerrang! yfir bestu gítar "riffin".  Um þann lista spratt mikil og áhugaverð umræða.  Það allt saman má finna ásamt tóndæmum á:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/973748/

  Að gefnu tilefni skal tekið fram að gítar "riff" er annað en gítarsóló.  Í rokkmúsík er algengast að "riff" sé síendurtekinn hljómagangur, sem myndar ráðandi stef í undirleik lagsins.  "Riffið" getur einnig verið síendurtekin gítarlykkja (eins og í  Sweet Child O´ Mine).

  Hér er listinn í Music Radar (innan sviga er staða sömu "riffa" á listanum í Kerrang!):

 

1.   Jimi Hendrix:  Voodoo Child (Slight Return)
Fékk 14% allra greiddra atkvæða 
.
2 (1) Guns N´ Roses:  Sweet Child O´ Mine
"Riffin" í þessum 2 efstu sætum höfðu sætaskipti frá síðustu kosningu fyrir 5 árum. 
.
3 (3) Led Zeppelin:  Whole Lotta Love
.
4.   Deep Purple:   Smoke on the Water
.
5.   Derek & The Dominos:  Layla
.
6 (5) AC/DC:  Back in Black
7 (9) Metallica:  Enter Sandman
.
8.   Bítlarnir:  Day Tripper
.
9 (4) Nirvana:  Smells Like Teen Spirit
.
10.   The Rolling Stones:  (I Can´t Get No) Satisfaction
.
11 (13) Black Sabbath:  Paranoid
12.   Muse:   Plug in Baby
13 (14) Van Halen:  Ain´t Talkin´ ´Bout Love
14 (11) Kinks:  You Really Got Me
15.   White Stripes:  Seven Nation Army
16.   AC/DC:  Highway to Hell
17.   Led Zeppelin:   Heartbreaker
18.   Black Sabbath:   Iron Man
19.   Led Zeppelin:   Black Dog
20.   Michael Jackson (Eddie Van Halen):  Beat It
21.   Bítlarnir:   Paperback Writer
22 (17)  Jimi Hendrix:  Purple Haze
23.   AC/DC:   Whole Lotta Rosie
24.   Chuck Berry:  Johnny B Goode
25.   Metallica:  Sad But True
26.   Led Zeppelin:  Rock And Roll
27.   Guns N´ Roses:  Welcome to the Jungle
28 (7) Rage Against the Machine:  Killing in the Name
29.   Ozzy Osbourne (Randy Rhoads):  Crazy Train 
30.   Pantera:  Walk
.
Til gamans er hér listinn úr Kerrang!  (innan sviga staðan á listanum í Music Radar):
.
1 (2) Guns ´N´ Roses:  Sweet Child O´ Mine
2.   Black Sabbath:  Black Sabbath
3 (3) Led Zeppelin:  Whole Lotta Love
4 (9) Nirvana:  Smells Like Teen Spirit
5 (6) AC/DC:  Back In Black
6.  Pantera:  Walk
7 (28) Rage Against the Machine:  Killing In The Name
8.  Ramones:  Blitzkrieg Bop
9 (7) Metallica:  Enter Sandman
10. Korn:  Blind
11 (14) The Kinks:   You Really Got Me
12.  Sex Pistols:  God Save the Queen
13 (11) Black Sabbath:  Paranoid
14 (13) Van Halen:  Ain´t Talkin´ 'Bout Love
15.  Bítlarnir:  Helter Skelter
16.  Slayer:  Raining Blood
17 (22) Jimi Hendrix:  Purple Haze
18.  Aerosmith:  Walk This Way
19.  Green Day:  Basket Case
20.  Pearl Jam:  Alive
21.  Machine Head:  Davidian
22.  Queen:  Bohemian Rhapsody
23.  The Clash:  White Riot
24.  Motörhead:  Ace of Spades
25 (39) The Stooges:  I Wanna be your Dog 
26.  Slipknot:  Surfacing
27.  Iron Maiden:  Hallowed be thy Name
28.  Led Zeppelin:  Communication Breakdown
29.  Black Flag:  Nervous Breakdown
30 (38) Megadeth:  Symphony of Destruction

Ofsóknir Fíladelfíu gegn samkynhneigðum

 

 Á mínum uppvaxtarárum í Skagafirði á sjötta og sjöunda áratugnum voru ekki til neinir hommar eða lesbíur á Íslandi.  Svoleiðis fólk var bara í útlöndum.  Þetta var á þeim árum sem konum var bannað að vera í buxum á sumum vinnustöðum.  Og þegar ég fór í skóla á Laugarvatni var sítt hár á strákum brottrekstrarsök.  Hátt í 100% landsmanna voru í ríkiskirkjunni.

  Nú erum við komin langt inn á 21. öld.  Það er ekki lengur brottrekstrarsök í skólum eða á vinnustöðum að konur séu í buxum og strákar með sítt hár.  Kynhneigð skiptir fæsta meira máli en augnlitur.  Rétt um 70% landsmanna er ennþá í ríkiskirkjunni og þeim fækkar óðum.  Hinsvegar hefur sértrúarsöfnuðum bókstafstrúar vaxið ásmegin.  Með tilheyrandi hatursboðskap gegn samkynhneigðum,  fóstureyðingum,  hjónaskilnuðum og öðrum fornaldarviðhorfum með tilvísun í mótsagnakenndar mörg hundruð og mörg þúsund ára gamlar þjóðsögur gyðinga í Mið-Austurlöndum.

  Samkynhneigður söngvari,  Friðrik Ómar,  segist ekki fá að syngja í Fíladelfíu Hvítasunnumanna vegna kynhneigðar.  Forstöðumanni Fíladelfíu,  Verði Leví Traustasyni,  hefur vafist tunga um töng þegar þetta er borið undir hann.  Vörður ýmist ver þá afstöðu eða vísar henni á bug sem dellu,  misskilningi og lygi.  Í sumum viðtölum er Vörður skilningsríkur og umburðarlyndur.  Í öðrum viðtölum talar hann af sér sem talsmaður fordóma í garð samkynhneigðra.

  Það er gott hjá Friðriki Ómari að vekja athygli á þessu.  Hann segist þekkja fleiri dæmi en frá sjálfum sér um ritskoðun og útilokun frá Fíladelfíu vegna kynhneigðar. 

  Fíladelfía er ekki Krossinn og ekki eins öfgakennt fyrirbæri og Krossinn,  sem lýsir samkynhneigð og hjónaskilnaðum sem viðurstyggð í augum geimverunnar guði.  Það sem guð gyðinga Mið-Austurlanda hefur eitt sinn sameinað má ekki sundur slíta. Fráskildir og samkynhneigðir fara til helvítis og munu að eilífu brenna í vítisloga.  Fráskildir eru hórur ef þeir sænga hjá öðrum en fyrsta maka. 

  Þó ég sé í Ástrúarfélaginu er mér hlýtt til Fíladelfíu.  Trúboðar frá Fíladelfíu gerðu út frá mínu æskuheimili í Skagafirði á mínum uppvaxtarárum.  Síðar sá ég árum saman um auglýsingar fyrir Fíladelfíu þegar ég starfaði sem auglýsingahönnuður.  Í Fíladelfíu er margt góðra manna og kvenna.  Ég hef margoft sótt skemmtilegar samkomur í Fíladelfíu og á þar marga vini.  Þess vegna vil ég ekki kalla fyrirbærið Fífladelfíu.

  Snorri,  kenndur við Betel í Vestmannaeyjum,  fer mikinn á bloggi sínu um þetta mál.  Leggur að jöfnu barnaníðinga og samkynhneigða.  Já,  við erum stödd á árinu 2009.  En ekki Snorri.  Hann er staddur á árinu mínus 2009 fyrir okkar tímatal. 

  Ég er gagnkynhneigður.  Eða eiginlega lesbía.  Annars skiptir það engu máli.  Barnaníð og barnagirnd er allt allt allt annað en kynhneigð fullorðins fólks til annars fullorðins fólks.  Það er lágkúra af verstu sort að leggja að jöfnu samkynhneigð og barnaníð.  Barnaníð sem umfram annað hefur sett stóran og ljótan blett á kaþólsku kirkjuna í mörgum heimsálfum.

www.afldidak.is

www.stigamot.is

   


Bestu krákur poppsögunnar

  Bandaríska poppblaðið Spin hefur birt lista yfir bestu krákur (cover songs) poppsögunnar.  Það kemur ekki fram hvernig að listanum var staðið en hann er í boði heilsudrykksins Southern Comfort.  Hvernig sem Spin-menn komust að þessari niðurstöðu ætla ég að flestir geti verið nokkuð sáttir við hann.  Eflaust ekki röðina heldur að þessar krákur séu á listanum.  Hvað heldur þú?  Er nauðsynlegt að skjóta þá?

  Svona lítur listinn út (upphaflegi flytjandinn/höfundur er innan sviga):

1.   NIRVANA:  The Man Who Sold the World (David Bowie)

2.   JIMI HENDRIX:  All Along the Watchtower (Bob Dylan)

3.   TALKING HEADS:  Take Me to the River  (Al Green)

4.   DEVO:  (Can´t Get No) Satisfaction  (The Rolling Stones)

5.   SINEAD O´CONNOR:  Nothing Compares 2 U  (Prince)

6.   GUNS N´ ROSES:  Knocking on Heaven´s Door  (Bob Dylan)

7.   THE ZOMBIES:  Summertime  (George Gerswin)

8.   ELVIS COSTELLO:  (What´so Funny ´Bout)  Peace Love and Understanding  (Nick Lowe)

9.   ELLIOTT SMITH:  13  (Big Star)

10. THE CLASH:  Police and Thieves  (Junior Murvin)


Jón Ísleifsson - snillingur úr Árneshreppi

  Fyrir nokkrum árum fékk ég far frá Vestfjörðum með presti sem heitir Jón Ísleifsson og var með prestkall í Árneshreppi.  Til eru margar skemmtilegar sögur af Jóni.  Það var virkilega gaman að fá far með honum til Reykjavíkur.  Það var snemma morguns sem við lögðum af stað.  Á miðri leið bað ég Jón um að stoppa því ég þurfti að pissa. 

  Ég var ekki fyrr kominn út úr bílnum en Jón spíttaði með kraftmiklu spóli í burtu á bílnum en lagði honum eftir um það bil kílómeters akstur.  Ég pissaði og skokkaði síðan að bíl Jóns.  Lafmóður og óvanur skokki spurði ég ósáttur:  "Hvað er í gangi?  Þú lætur mig hlaupa heilan kílómeter."

  Jón svaraði ofurrólega:  "Ég vildi ekki að þú pissaðir utan í bílinn minn."


Dularfull bilun

  Einn kunningi minn ók á stórum og þunglamalegum sendibíl.  Bíllinn var gamall og þreytulegur.  Það ískraði í honum og marraði þegar ekið var yfir ójöfnur eða tekin mjög kröpp beygja.  Svo brá við einn daginn að lágvært en taktfast bank heyrðist þegar bíllinn var á ferð.  Kunningi minn kippti sér ekki upp við það.  Hann var vanur hinum fjölbreyttustu hljóðum frá bílnum.

  Daginn eftir ágerðist bankið.  Varð háværra og hvellara.  Kunninginn fór að hafa áhyggjur af þessu.  Um kvöldið kom í heimsókn til hans maður sem er vanur bílaviðgerðum.  Þegar honum var sagt frá vandamálinu vildi hann ólmur fá að kíkja á bílinn og finna út hvað væri að.  

  Félagarnir gengu út og að bílnum.  Gesturinn þurfti ekki að setjast inn í bílinn né setja hann í gang til að átta sig á biluninni.  Honum nægði að koma auga á sprungið afturdekk.  Eða réttara sagt það sem eftir var af dekkinu.  Það voru bara nokkrar gúmmítæjur og felgan farin að láta verulega á sjá eftir að hafa bankað malbikið í tvo daga þvers og kruss um höfuðborgarsvæðið.


Frábær bók

  Í vor fór fram viðamikil leit að 100 bestu íslensku plötunum.  Það var virkilega vel að verki staðið.  Sena,  rás 2 og Félag íslenskra hljómplötuútgefenda leituðu til almennings og mín.  Já, og annarra sem hafa þokkalega sýn yfir íslenska plötuútgáfu.  Leitin fór í gegnum nokkur þrep og ég ætla að flestir séu nokkuð sáttir við niðurstöðuna. 

  Að vísu er næsta víst að enginn er alsáttur við útkomuna.  Þannig er það bara.  Og það er sama hvernig að þessu hefði verið staðið.  Algjör sátt um listann yfir 100 bestu plöturnar getur ekki betri orðið en sá listi sem varð endanlegur.  

   Nú er komin út bók þar sem allar 100 bestu plöturnar eru teknar fyrir og gerð ítarleg grein fyrir þeim.  Jónatan Garðarsson og Arnar Eggert Thoroddsen eru höfundar bókarinnar.  Hún er frábær.  Uppsetning er flott.  Allar helstu upplýsingar um hverja plötu eru tíundaðar í smáatriðum.  Jafnframt fróðleikur um flytjendur og plöturnar.

  Texti er léttur og hlaðinn skemmtilegum fróðleiksmolum.  Þessi bók er afskaplega vel heppnuð í alla staði:  Skemmtileg umfram allt,  fróðleg og jafn aðgengileg sem uppflettirit og bók sem lesin er frá A-Ö í strikklotu.  Ég á og hef lesið hundruð músikbóka og var búinn að gera mér tiltekna hugmynd um þessa bók.  Hún trompaði allar væntingingar.  Ég gef henni 5 stjörnur af 5.

 

 

 


Spennandi hljómleikar

  Annað kvöld,  nánar tiltekið 19.  nóvember - sama dag og jólabjórinn kemur á markað hérlendis,  sextán tegundir í það minnsta - , verður boðið upp á heldur betur spennandi hljómleika frá klukkan 23.00 til 02.00 að morgni 20.  nóvember á rokkbarnum Bar 11.   Hann  er að  finna  í grennd við  Laugarveg  13.  Sennilega  á  Laugavegi  11.

  Það er hljómsveitin HFF sem heldur uppi fjörinu.  Hún er skipuð einvalaliði úr hljómsveitum á borð við Q4U,  Fræbbblunum,  Taugadeildinni,  Tappa tíkarrassi og Das Kapital.  Pönkað rokk HFF ber þess merki.

  Allir eru afskaplega velkomnir á hljómleikana.


Hvað er með þennan Martein?

  Ég er rosalega jákvæður út í íslenskt sjónvarpsefni.  Ekki síst leikið efni.  Og engin ástæða til annars.  Nætur-,  Dag- og Fangavaktin voru/eru frábærlega fyndnir og vel heppnaðir þættir í flesta staði.  Fóstbræður og Svínasúpan voru einnig alveg ljómandi.  HamarinnStóra planið og sitthvað fleira hefur sömuleiðis staðið undir væntingum.  Bara svo fátt eitt sé nefnt.

  En nú bregður svo við að RÚV hefur tekið til sýningar leikþætti sem kallast  Marteinn.  Öðrum eins hörmungar aulahúmor man ég ekki eftir.  Ég á við að þarna eru þekktir leikarar,  töluvert lagt í leikmynd og annað.  Alvöru áhorfendur í sal o.s.frv.  En textinn er hræðilega uppskrúfaður,  ósannfærandi,  hlaðinn gömlum þvældum þreyttum klisjum og pínlega ófyndinn. 

   Svo virðist sem hugmyndin hafi verið að hræra saman þáttum á borð við  King of QueensAccording to Jim  og öðrum álíka.  Grunnuppskriftin er sú sama:  Feitur rembingslegur kall,  kona hans og erfiður ættingi.  Þeir þættir eru frekar þunnir.  En stóri munurinn er sá að einstaka brandari í þeim virkar. 

  Gaman væri að vita hvort  Marteinn  framkallar önnur viðbrögð en andvörp hjá einhverjum. 


Smásaga um ólétta nunnu

 ThumbnailServer2

  Geislar sólar baða litla sumarbústaðinn í skóginum.  Haustfrostið bítur utan dyra.  Inni í bústaðnum er hlýtt og notalegt.  Sólarljósið smeygir sér lipurlega í gegnum glerið í litlum glugganum.  Það vekur allt með kossi sem getur vaknað. Í bústaðnum er það ólétta nunnan sem getur vaknað.  Hún geispar,  nuddar stírur úr augum og ákveður að kúra aðeins lengur undir sænginni.

Ólétta nunnan heyrir fugla kvaka í móa.  Í fjarlægð heyrist tígrisdýr öskra.  Þá veit nunnan að hún er ekki á Íslandi.  Það eru engin tígrisdýr á Íslandi.  Því eina Íslandi sem nunnan veit um:  Bresku matvöruverslunarkeðjuna Iceland.

.Eins og aðrar barnshafandi nunnur í klaustrinu áður hefur ólétta nunnan flúið úr þorpinu og hyggst dvelja í sumarbústaðnum þangað til útþaninn maginn hjaðnar.  Óléttar nunnur verða alltaf fyrir aðkasti í þorpinu.  Þorpsbúar eru fordómafulli.

  .Ólétta nunnan veit að hún er ekki barnshafandi.  Hún hefur ekki haft kynmök við nokkurn mann.  Aldrei.  Nema helst prestinn.  Og einstaka sinnum kirkjuorganistann þegar presturinn er ekki í þorpinu.  Og einungis á miðvikudagskvöldum.  Nunnurnar skrifta á fimmtudögum.  Það er létt verk að bera synd rétt á meðan sofið er yfir blánóttina.  Strax á fimmtudagsmorgni er minnsta mál í heimi að losna við syndina með því að fara með nokkrar skemmtilegar Maríubænir.
.
  Útþaninn maginn er áreiðanlega uppþemba.  Hún mun hjaðna með réttu mataræði.  Presturinn hefur sjálfur sagt að útilokað sé að hann barni nunnu.  Hann hefur áður áratugum saman haft kynmök við allar nunnur klaustursins.  Nema þær allra ljótustu.  Engin hefur eignast barn. 
 
  .Skyndilega er bankað á dyr sumarbústaðarins.  Nunnunni er brugðið.  En hún er óttalaus.  Enda með hreina samvisku.  Hún opnar dyrnar.  Fyrir utan er geit.  Nunnan skynjar að geitin er að snýkja kex.  Nóg er til af kexi. 
 
  .Næstu daga bankar geitin upp hjá nunnunni allt að þrisvar á dag.  Og alltaf fær hún kex.
  Einn daginn gefur geitin með höfuðhnykk nunnunni bendingu um að elta sig.  Þetta þykir nunnunni spennandi.  Þær stöllur þræða stíga um þétt skógarþykknið.  Allt í einu eru þær staddar fyrir framan ókunnugan sumarbústað.  Geitin bankar á dyr.  Út kemur maður sem horfir undrandi á nunnuna.  Þetta er ást við fyrstu sýn hjá manninum og nunnunni.  Maðurinn er miklu fallegri en presturinn.  Presturinn er reyndar mjög ljótur.
.
  Maðurinn býður nunnunni upp á óblandaðan vodka.  Nokkru síðar drepast þau bæði áfengisdauða á gólfi sumarbústaðarins. 
  Daginn eftir vekur geitin þau með banki á galopnar útidyrnar.  Með höfuðhnykk biður hún parið um að elta sig.  Parið fylgir henni grúttimbrað út úr skóginum og niður á steypta bryggju sem liggur út í sjó.  Hafsýnin er fögur.  Nokkrar eyjar rísa úr hafi.  Bakuggar á hákörlum rista hafflötinn fyrir framan bryggjuna.  Parið stendur í faðmlögum nánast dáleitt af áhrifamikilli fegurðinni. 
.
  Bakvið parið tekur geitin tilhlaup.  Hún stangar þau síðan eldsnöggt og kröftuglega fram af bryggjunni út í kaldan sjóinn.  Parið berst um og reynir að klöngrast aftur upp á bryggjuna.  Geitin varnar þeim lipurlega landgöngu.  Með hörðum hornum neglir hún á krókloppnar hendur parsins sem öskrar af sársauka.
  Hákarlarnir taka við sér.  Innan skamms er sjórinn við bryggjuna litaður rauðu blóði.  Hákarlarnir hafa komist í óvænta veislu.
  Þegar ekkert er eftir nema blóðrauður sjórinn röltir geitin aftur inn í skóginn.  Hún er glöð í bragði.  Dagurinn hefur verið kryddaður frá fábrotinni tilveru.   
----------------------------------------- 
 
Fleiri örleikrit og smásögur:
- Gullfiskur
- Flugvélamódel
- Miðaldra maður
- Leyndarmál stráks

4 klukkutíma kynlíf á hverri nóttu

  Bresk frú,  hin næstum fimmtuga Karólína,  undrast tillits- og skilningsleysi nágranna sinna á kynlífi þeirra hjóna.  Hátt í 30 sinnum hefur lögregla verið send á vettvang og truflað leikinn.  Karólína segir þau hjón hafa fyrir venju að sofna út frá pizzum og sjónvarpinu á kvöldin.  Síðan vakna þau er líður á nóttu.  Þá vinda þau sér í kynmök sem standa yfir í 4 klukkutíma.  Af tillitssemi við nágranna hefur Karólína reynt að færa fjögurra tíma ástarleikinn nær morgni fremur en trufla svefnfrið um miðja nótt. 

  Hjónin eru þeim hæfileikum gædd að gleyma stund og stað í þessum skemmtilega leik.  Þau lifa sig inn í hann án þess að fá nokkuð við ráðið og - taka varla eftir því sjálf - öskra allan tímann,  emja,  rymja,  korra og urra.  Reyndar telja nágrannar að hljóðin séu nánast einvörðungu frá Karólínu komin en hún vill meina að kallinn tísti líka.   

  Karólína segist hafa reynt að koma til móts við kvartanir nágrannanna.  Meðal annars hafi hún fjarlægt höfuðgafl hjónarúmsins.  Fram að þeim tíma lamdi hún hausnum ótt og títt í gaflinn með tilheyrandi bankhljóðum.  Einnig hefur hún reynt að dúða höfuð sitt með koddum.  Það virkar ekki vegna þess að hún ýtir koddunum ósjálfrátt burtu í fjörinu.  

  Það er ekki nema áratugur síðan hjónin náðu tökum á að njóta kynlífs af slíkri innlifun og hömluleysi.  Karólínu grunar nágrannana um öfund í sinn garð.  Bíll þeirra hjóna hefur verið skemmdur og iðulega er - vel að merkja tómum - bjórdósum,  nýbökuðum pizzasneiðum og öðru lauslegu grýtt í svefnherbergisglugga þeirra á meðan leikar standa sem hæst.

  Lögregla og nágrannar hafa skipað þeim að loka gluggum og dyrum til að dempa hávaðann.  Karólína segir útilokað að fara eftir því.  Hún svitni svo svakalega á þessum 4 tímum og þurfa gífurlega mikið af súrefni.  Á síðasta áratug hafi hún grennst um næstum helming.  Og kann því vel að vera orðin grönn og spengileg.

  Nágrannar segja að til að byrja með hafi óhljóðin vakið kátínu í hverfinu.  Unglingar eiga það ennþá til að safnast flissandi saman fyrir utan glugga hjónanna.  Næstu nágrönnum þykir þetta ekki fyndið lengur.  Þetta heldur vöku fyrir þeim og ung börn eru eitt spurningamerki.  Ein kona,  sem þó er hálf heyrnalaus,  segist ekki hafa náð fullum svefni í 2 ár vegna hávaðans frá Karólínu.  Meðal þeirra sem kærðu hjónin var póstburðarmaðurinn.  Hann tapar einbeitingu við að koma pósti á réttan stað undir ópunum og gólinu.  Hefur ítrekað sett póst í ranga póstkassa vegna truflunar frá turtildúfunum. 

  Héraðsdómur hefur dæmt Karólínu í rösklega 100 þúsund króna sekt fyrir andfélagslega hegðun.  Kallinn var sýknaður af hávaðanum.  Enda ber nágrönnum saman um að hann sé bara dula í höndum Karólínu.  Hún stjórni heimilinu eins og einræðisherra.  Heilbrigðisfulltrúi staðarins bar vitni um að hafa hlustað á 23 segulbandsupptökur af kynlífsópum hjónanna.  Heilbrigðisfulltrúinn,  sem er kona,  staðhæfði að uppistaðan af hljóðunum kæmu frá konu.

  Nágrannakona fullyrðir hinsvegar að sá hluti hljóðanna sem hljómar líkastur sársaukaveini, löng ái, æji og óó,  séu óp frá kallinum. Þau hljóð bendi til þess að konan klípi um pung karls til að treina framvindu mála.  Nágrannakonan telur sig þekkja hljóðin betur en flestir því hún hefur ótal oft mætt of seint til vinnu eftir að hafa vakað í 4 tíma undir hávaðanum um nóttina.  Nágrannakonan lét mæla hávaðann eins og hann skilar sér inn til hennar.  Hávaðinn náði 47 db en var þó oftast nær 30 -40 db. 

  Karólína segir leiðindi og nöldur nágranna hafi valdið því að hún hafi hallast um of að áfengisflösku og læknadópi til að vinna gegn þunglyndi.  Það hafi síðan orsakað að hún hafi ekki taumhald á aðstæðum.  Hún kennir neikvæðni nágranna um að hún hafi ekki haft rænu til að leita sér menntunar.  En kallinn er í ágætri vinnu og mæti þangað vel sofinn eftir að hafa sofnað út frá pizzum og sjónvarpi áður en ástarleikur hefst.  Jafnframt hafi hún reynt sitt besta til að færa ástarleikinn frá nóttu yfir til snemmmorguns.  En ekki alltaf tekist þrátt fyrir einbeittan vilja.  Náttúran kallar og tekur ekki alltaf tillit til aðstæðna. 

bresku hjónin

Efri myndin af þeim hjónum er dálítið gömul og kella í holdum en sú neðri er nýleg og mörgum kílóum síðar.  Kallinn hefur líka horast á þessu tímabili.  En kominn með flott gleraugu.

bresku hjónin 1 


mbl.is Kærð fyrir kynlífsóhljóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalega skemmtileg bók

islgamansogur3

  Ég var að lesa bókina  Íslenskar gamansögur 3.  Hún er nýkomin út.  Ég hef ekki lesið fyrri tvö heftin.  En þessi #3 er virkilega skemmtileg og um margt fróðleg. Sögurnar eru sannar íslenskar gamansögur,  flestar um nafngreinda einstaklinga.  Fæstar eru sögurnar brandarar af því tagi sem enda með "pöns-læn" (endahnykk).  Þetta eru frekar spaugilegar sögur af áhugaverðu fólki. 

  Margar söguhetjurnar eru kynntar rækilega í formála að sögunum um þær.  Þannig nær lesandinn betur að skynja andrúmsloftið í atburðarrásinni og hugsunarhátt þeirra sem fjallað er um.  Sumar sögurnar spanna tvær heilsíður og allt upp í 3 síður.  Inn á milli eru stuttir brandarar og gamanvísur.  Fjölbreytni er þess vegna með ágætum.

  Svo skemmtilega vill til að einn kafli bókarinnar heitir Jens Guð.  Hann samanstendur af sögum af blogginu mínu.   Mér þótti gaman að lesa þær.  Var búinn að gleyma sumum þeirra.  Einnig kannast ég við sögur af blogginu mínu sem "dúkka" upp í öðrum köflum án þess að þess sé getið sérstaklega.  Og bara gaman að því líka.   

  Bókin  Íslenskar gamansögur 3  er vel heppnuð og kostar aðeins um 2000 kall.   Hún á eftir að laða fram bros og hlátur hjá mörgum um jólin.  Þetta verður vinsæl jólagjöf.  


Bestu plötur aldarinnar - framhald

  Í fyrrakvöld setti ég inn færslu sem sýndi lista yfir 5 bestu plötur aldarinnar.  Listinn birtist í breska poppblaðinu  Uncut.  Hann má sjá á:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/976052/.  Ég vildi leyfa sjálfum mér og ykkur að melta 5 efstu sætin í smástund.  En nú held ég ótrauður áfram með næstu sæti listans.

6.   Robert Plant og Alison Krauss:  Raising Sand  (2007)

  Breski blússöngvarinn Robert Plant kom flestum í opna skjöldu er hann tók höndum saman við bandarísku blágresissöngkonuna (blue grass) og fiðluspilarann Alison Krauss.  En uppátækinu var vel tekið.

7.   The Arcade Fire:  Funeral  (2005)

8.   Bob Dylan:  Modern Times  (2006)

  Sjá fleiri plötur Dylans á listanum í fyrri færslunni.

9.    Ryan Adams:  Heartbreaker  (2000)

10.  Fleet Foxes:  Fleet Foxes  (2008)   

11.  The Flaming Lips:  Yoshimi Battles the Pink Robots  (2002)

12.  Portishead:  Third  (2008)

13.  Gillian Welch:  Time (The Revelator)  (2001)

14.  Primal Scream:  Xtrmntr  (2002)

15.  Radiohead:  In Rainbows  (2007)

  Radiohead á aðra plötu á listanum,  Hail to the Thief   (2003) í 134.  sæti.


Glæsilega afastelpan

ylfa mjöllylfa mjöll daníelsdóttir

  Þessi færsla er "lókal".  Fyrst og fremst fyrir vini og vandamenn.  Þarna er afastelpan glæsilega,  Ylfa Mjöll Daníelsdóttir.  Hún átti að fæðast 28.  nóv. en vildi ná síðasta þættinum af Fangavaktinni.  Þess vegna spratt hún í heiminn 5.  nóv.  Og skuldar aðeins örfáar milljónir króna.  En það er bara Johnny Cash (staðgreiðsla) um leið og hún getur.  Ekki vandamálið þegar þar að kemur - fyrst Björgúlfar,  Sigurjón Þ.  Árnason og Baugsfeðgar eiga bara fyrir Diet Kók. 


Einföld og skjótvirk leið til að losna við tóbaks- og áfengisfíkn

  Er það ekki dæmalaust með fólk;  það eyðir mörgum mörgum þúsund köllum og löngum tíma á námskeiðum til að reyna venja sig af því að reykja og drekka.  Öðrum eins upphæðum er eytt í nikotínplástra, nikotíntyggjó,  antibus og hvað þetta drasl heitir. 

  Þetta er heimska.  Það eina sem þarf til að losna við tóbaks- og áfengisfíkn er örstutt öndunaræfing.  Hún er sýnd hér á myndbandinu fyrir neðan.  Mestu máli skiptir að láta tunguna lafa afslappaða,  ranghvolfa augunum og láta hendur ekki snerta neitt.  Æfingin tekur innan við mínútu og öll tóbaks- og áfengisfíkn hverfur eins og dögg fyrir sólu. 

  Ef þetta virkar ekki í fyrstu atrennu er minnsta mál í heimi að endurtaka æfinguna daginn eftir.  Eða svo lengi sem þarf til að hún virkir.  Nokkrir dagar til eða frá skipta engu máli.  Án þess að ég sé viss hef ég grun um að þessi létta æfing virki einnig kröftuglega á dópfíkn og vondan bókmenntasmekk.  


Bestu plötur aldarinnar

  Í nýjasta hefti breska músíkblaðsins Uncut er birtur listi yfir bestu plötur síðustu 10 ára.  Listinn er unninn af blaðamönnum Uncut og styðst við plötudóma blaðsins.  Listinn kemur ekki beinlínis á óvart í stærstu dráttum.  En vitaskuld er þetta samkvæmisleikur sem bara gaman er að velta sér upp úr.  Efstu sætin eru þannig (útgáfuárið innan sviga):

1.   The White Stripes:  White Blood Cells (2001)

  Þessi bandaríski dúett kom sterkur til leiks með lagrænni (melódískri) blöndu af kántrýi,  blús,  rokki og einfaldleika.  Hann á einnig plötur í 17. (Elephant 2003),  35. (Yankee Hotel Foxtrot 2002),  59.  (De Stijl 2000),  88. (Get Behind Me Satan 2000) og 109. sæti (Icky Thump 2007).

2.   Bob Dylan:  Love and Theft (2001)

  Gamli seigur hefur hvergi slakað á (nema stundum).  Síðustu plötur hans hafa verið virkilega góðar.  Þær eru í 8. sæti (Modern Times 2006) og 58. (Together Through Life 2009)

3.   Wilco:  A Ghost is Born (2004)

  Bandarískt alt-kántrý í hæsta gæðaflokki.  Lærisveinar The Byrds.  Wilco eiga líka plötu í 138. sæti (Sky Blue Sky 2007).

4.   Brian Wilson:  Smile (1967/2004)

5.   The Strokes:  Is This It (2001).  Þessi leiðinlega hljómsveit á sömuleiðis plötu í 136. sæti (Room on Fire 2003). 


Ég er orðinn afi!

  Nú er allt í gangi.  Daníel sonur minn og Mónika tengdadóttir mín eignuðust síðdegis heilbrigða og hrausta dóttur.  Hún er sem sagt síðdegisbarn.  Þar með er ég í fyrsta - en ekki síðasta - sinn að upplifa þann merka viðburð að verða afi.  Það er heilmikið ævintýri og getur bara orðið skemmtilegra.       

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.