Töfrar vatnsins

vatn - veitingastađur í Zanzibar

  Fólk sćkir í náttúruna.  Ţađ hefur blóm í gluggakistum og víđar;  málverk af landslagi á veggjum;  húsgögn og innréttingar úr timbri;  blómum skreyttan garđ međ trjám og runnum.  Borgarbörn fá sér sumarbústađ uppi í sveit til ađ komast í ennţá nánari tengsl viđ náttúruna.  Ađrir fá sér snekkju í stađ sumarbústađar og upplifa náttúruna vaggandi á vatni.  Enn ađrir sameina ţetta tvennt.  

  Myndin hér ađ ofan er af veitingastađ í Zansibar í Afríku.  Hann er byggđur á skeri međ laufguđum trjám.  Sjórinn er svo grunnur ţarna ađ viđskiptavinir vađa í stuttbuxum til og frá stađnum. 

vatn - á Indlandshafi

  Hér er einskonar sumarbústađur á Indlandshafi. 

vatn - snekkja Jóns Ásgeirsvatn - snekkja Kaupţings-Bakkabrćđravatn - snekkja Pálmivatn - snekkja Björgúlfur

  Ţeir sem hafa ađgang ađ peningageymslum banka kúldrast ekki í litlum sumarbústađ úti á sjó.  Ţeir reyna ţess í stađ ađ toppa hvern annan međ flottustu snekkjunum (ásamt einkaţotum og öđru glingri).  Jón Ásgeir lét smíđa fyrir sig lúxussnekkjuna á efstu myndinni.  Ţessi svarthosótta snekkja er 9 svefnherbergja auk setustofu og allskonar annarra rýma.  Hin svarthosótta snekkjan var skráđ á Kaupţings-Bakkabrćđur.  Síđan er ţađ snekkja Pálma í Fons.  Á neđstu myndinni má sjá Björgúlf spóka sig,  sólbakađan og sperrtan.     

vatn - lúxussnekkja

  Bandarískir sveitalúđar (rednecks) spjara sig án ţess ađ láta sérsmíđa fyrir sig lúxussnekkjur í Hollandi fyrir 5000 milljónir króna.  Rauđhálsarnir klambra saman sínum lúxussnekkjum sjálfir.  Enda er ţađ eina sem ţarf til lítiđ hjólhýsi,  utanborđsmótor og örfáir spýtuplankar.  Bingó!  Ţađ er komin 2ja hćđa lúxussnekkja. 

vatn - viti

  Sumir kunna betur en ađrir viđ náttúruna villta og brjálađa.  Ţađ er enginn skortur á vitavörđum í ţennan franska vita.  Ef vel er ađ gáđ glittir í vitavörđinn ţar sem hann stendur í dyrunum.  Hann ćtlar ađ fá sér ađ reykja í rosanum.  Samkvćmt lögum má hann ekki reykja innan dyra.

vatn - Montana

  Í Montana í Bandaríkjum Norđur-Ameríku er vatniđ ótrúlega tćrt.  Ţađ myndar einskonar ađdráttarlinsu.  Ţess vegna sýnist ţađ vera grunnt.  Í raun er dýptin 113 metra.

vatn Yuntai,  Kína

  Ţađ ku vera fagurt í Kína.  Einkum í Yuntai.  Ţökk sé spegilsléttu vatninu.

  Fleiri stórfenglegar myndir af vatni má sjá međ ţví ađ smella á ţennan hlekk:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1222012/


Íslenskt tónskáld í útlöndum

  Íris Kjćrnested er ung íslensk tónlistarkona,  búsett í Svíţjóđ.  Hún er hámenntuđ í tónsmíđum og hljóđfćraleik.  Hún vinnur viđ tónsmíđar fyrir međal annars kvikmyndir,  sjónvarpsţćtti og auglýsingar.  Ég fann ţó ekkert eftir hana á ţútúpunni nema myndbandiđ hér fyrir ofan (athugiđ ađ músíkin byrjar ekki fyrr en á 42. sek).  Hinsvegar fann ég léttilega nokkrar netsíđur međ upplýsingum um hana,  svo sem ţessar:

 http://www.iriskjaernested.com/

 http://www.imdb.com/name/nm3572798/

  Allir kannast viđ einhver auglýsingastef eftir Írisi.  Ţekktast er sennilega "Veldu gćđi,  veldu Kjarnafćđi."

Íris Kjćrnested


Hversu lengi geymist drykkjarvatn?

  Fyrir nokkrum dögum birti ég á ţessum vettvangi stórfenglegar ljósmyndir af vatni.  Nokkrir fróđleiksmolar um vatn fylgdu međ.  Ţetta má sjá međ ţví ađ "skrolla" niđur síđuna eđa smella á eftirfarandi hlekk:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1222012/ .  Vatn er svo frábćrt fyrirbćri ađ ţarna verđur ekki látiđ stađar numiđ. 

  Allir kannast viđ ađstćđur sem ţessar:  Ţú ert ađ keyra á bíl langt frá mannabyggđ.  Ţorsti hellist yfir ţig.  Enginn lćkur í augsýn.  Ţá manstu skyndilega eftir flösku sem ţú keyptir í fyrra međ átöppuđu vatni og hefur veriđ ósnert í hanskahólfi bílsins síđan.  Ţú teygir ţig í flöskuna en sérđ ađ dagsetningin á eftir "Best fyrir:" er útrunnin.  Hvađ er til ráđa?

  Svar:  Dagsetningin er bull.  Hún er eitthvađ sem möppudýr í embćttismannakrađaki hafa náđ ađ setja í lög.  Forsendurnar eru ekki fyrir hendi.  Vatniđ breytist ekkert í flöskunni nćstu áratugi eđa jafnvel árhundruđ.  Norskur vatnssérfrćđingur, Truls Krogh,  getur stađfest ţetta.

  Reyndar geta einhverjir bent á ađ dagsetning á eftir orđunum "Best fyrir:" sé leiđbeinandi.  Hún ţýđir ekki ađ varan sé óhćf til neyslu eftir ţá dagsetningu.  Alltof margir halda ađ "Best fyrir:" ţýđi "síđasti neysludagur".  Ţetta á ekki ađeins viđ um vatn.  Ţađ er dapurlegt ađ vita af ţví hvađ matvöruverslanir henda miklu magni af matvöru í góđu lagi vegna dagsetningar á eftir "Best fyrir". 

 Truls Krogh fullyrđir ađ vatn sé jafn gott ţó ađ flaskan áđurnefnda hafi veriđ opnuđ ţegar hún var keypt og dreypt á vatninu ţá.  Sama á viđ um ţađ ef kranavatn er geymt opnu glasi í ísskáp.  Ţađ er í fínu lagi ađ drekka ţađ ári síđar.  

vatn - snjór

  Snjór er vatn í föstu formi.  Samspil vatns í lausu formi og föstu formi geta myndađ fagurt landslag.     


Er sendibođinn sá seki?

  Kynlíf er međ vandmeđfarnara lífi ađ lifa.  Ef ýtrustu varúđar er ekki gćtt og vandlega fariđ eftir leiđbeiningum ţeirra sem betur vita getur illa fariđ.  Fólk getur lent í synd.  Syndin er banvćn.  Á Íslandi höfum viđ ríkistrú og ríkispresta sem geta leiđbeint fáfróđum í ţessum efnum og öđrum.  Í ríkistrúarbókinni eru ýmsar útlistanir á ţessu öllu,  ásamt leiđbeiningum um ţađ hvernig ţrćlar eigi ađ haga sér;  hvernig hirta eigi börn;  ađ höfuđ heiđingja skuli moluđ og sitthvađ fleira.  Hjónaskilnađur er viđurstyggđ.  Fráskilin kona sem á kynferđislegt samneyti viđ annan mann er hórkona.  

  Ýmsir ríkiskirkjuprestar hafa áráttu til ađ milda fyrirmćli ţess sem sagđur er vera höfundur ríkistrúarbókarinnar.  Ţeir vilja nútímavćđa túlkun á textanum.

  Ţá koma til sögunnar svokallađir bókstafstrúarmenn og árétta texta bókarinnar.  Ţađ kallast eđa getur kallast hatursáróđur.  Gćti jafnvel varđađ viđ lög.  Bókstafstrúarmenn eru sendibođinn.  Illi sendibođinn.  Ţeir benda á ţađ sem stendur í ríkistrúarbókinni. 

  Ţađ hefur bjargađ margri manneskjunni frá glötun.  Ég hef heyrt ţví fleygt. 

  Svo er ţađ forstjóri ÁTVR.  Embćttismađur ríkisins.  Hann hefur komist ađ ţeirri niđurstöđu ađ neysla rauđvíns međ nafni ensku rokkhljómsveitina Motörhead (Spítthaus) leiđi til óábyrgs kynlífs.  Ţetta smellpassar viđ kenningu Snorra,  kenndan (en ţó allsgáđan) viđ Betel,  um ađ rokkmúsík sé músík djöfulsins.  Á ţetta bentu margir strax á sjötta áratugnum í Bandarikjum Norđur-Ameríku.  Forstjóri ÁTVR hefur bannađ sölu á rauđvíninu Motörhead.  

  Ţeir leiđast hönd í hönd,  Snorri og forstjóri ÁTVR.  Ţeir leggja sig fram um ađ standa vörđ um ađ Íslendingar fari ekki út af sporinu ţegar kemur ađ kynlífi.  Ţeir eru kynlífspostular.   Kynlífsverđir.  Annar ríkisrekinn í ţví embćtti.  Hinn hefur ekki (enn) veriđ rekinn - ţó ađ sumir telji hann ekki vera ţann uppfrćđara barna sem kennir umburđarlyndi,  ást og kćrleika heldur bođbera haturs og fordóma.  

  Reyndar held ég ađ fólk á Íslandi,  svona almennt,  sé ekkert ađ velta fyrir sér kynlífi annarra.  ţađ er töluvert "pervískt" ađ hafa áhuga á kynlífi annarra.  Sá sem hugsar ekki um kynlíf annarra er í hlutleysisgír.  Sá sem er upptekinn og áhugasamur um kynlíf annarra er í "pervískum" gír.  Af hverju er hann ađ velta sér upp úr hugmyndum um kynlíf sem er frábrugđiđ hans rétttrúnađar trúbođsstellingu?  Hvađ fćr hann út úr ţví?  Af hverju er hann upptekinn af vangaveltum um ţađ?  Hvađa hvatir liggja ţar ađ baki?   Ef fólk er sátt viđ sitt kynlíf ţarf ţađ ekki ađ "fantasía" um kynlíf annars fólks.    

  Músík djöfulsins.  Varast ber ađ setja ţetta myndband í gang.  Ţađ getur leitt til óábyrgs kynlífs,  hernađarhyggju og amfetamínneyslu,  ađ mati embćttismanns Áfengis- og tóbakssölu ríkisins.


mbl.is Ćfir vegna skrifa um samkynhneigđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Stórkostlegar myndir af vatni (í 3 heimsálfum)

vatn - Ţórs brunnur

  Vatn er besti svaladrykkur í heimi.  Einkum ef ţađ er ískalt og íslenskt,  svo ekki sé minnst á fćreyskt eđa grćnlenskt.  En vatn getur líka glatt augađ.  Heldur betur svo.  Ljósmyndin hér fyrir ofan er af skemmtilegu fyrirbćri sem kallast Ţórsbrunnur og er í Oregan í Bandaríkjum Norđur-Ameríku.  Ţađ hefur ekkert veriđ átt viđ ţessa mynd í "fótósjopp" eđa öđrum grćjum.

vatn - vietnam

  Ţessi magnađi hellir er í Víetnam.  Ef vel er ađ gáđ má greina manneskju á myndinni niđri til hćgri.  Hún gefur til kynna stćrđ hellisins.  Eins áhrifamikiđ og ţetta listaverk er ţá vćri hellirinn ekki svipur hjá sjón án lindarinnar.

vatn - sólarlag

  Hvađ vćri variđ í ţetta sólarlag án vatnsöldunnar sem ramma ţađ inn?

vatn jökulsárlón

  Íslenskt landslag skartar mörgu listaverkinu ţar sem vatn leikur stóra hlutverkiđ.  Jökulsárlón er gott dćmi.

vatn - ísland

  Íslenskar ár eru ekkert fallegar út af fyrir sig.  En ţćr einkenna íslenska dali.  Ţćr hlykkjast um lćgsta punkt fyrir miđju dalsins.  Úr fjarlćgđ setja árnar skemmtilegan svip á landslagiđ.

  Fćreyskir lćkir setja ennţá skemmtilegri svip á fćreyskt landslag:

vatn - faroes-kunoyvatn - fćreyjarvatn - fćreyjar Avatn Fćreyjar - Klakksvík

  Fćreyskir lćkir eru flottir.  Ţeir dreifa sér yfir breiđar klappir.  Ţeir úđast léttilega niđur eftir klöppunum fremur en ađ fossa eins og íslenskir lćkir.  Viđ minnstu gjólu fjúka fćreysku lćkirnir í loft upp.  ţađ er fögur sjón:

vatn - lćkur fýkur í fćreyjumvatn fýkur - fćreyjarvatn Faroes lćkir fjúka

  Ţegar mađur snýr sér viđ í Fćreyjum og lítur út á sjó blasir viđ fegursta hafsýn:

vatn - fćreysk hafsýn

  Hana má einnig sjá á myndinni í "hausnum" á ţessari bloggsíđu.  Sú ljósmynd var tekin á hljómleikum Týs í ströndinni á Götu á Austurey. 


Jón Ţorleifsson - VI

guđrún helgadóttirJón Ţorleifs

  Ég held áfram ađ rifja upp sögur af rithöfundinum og verkamanninum Jóni Ţorleifssyni.  Fyrir neđan eru hlekkir á eldri sögur af Jóni.  Ţađ er eiginlega nauđsynlegt ađ lesa ţćr fyrst til ađ átta sig á ţessum merka manni.  Á gamals aldri fór hann ađ skrifa bćkur.  Ţćr bćkur eru fjölbreyttar.  Allt frá ljóđabókum til sjálfsćvisöguminninga og skáldsagna.

  Jón sótti um inngöngu í Rithöfundasambandiđ.  Guđrún Helgadóttir,  ţingkona og vinsćll barnabókahöfundur,  lagđist af ţunga gegn félagsađild Jóns.  Hún taldi bćkur hans vera hatursáróđur gegn nafngreindum mönnum en ekki verđugar bókmenntir.  Ţess ber ađ geta ađ Guđrún kannađist lítiđ viđ ţetta í einkasamtölum viđ Jón.  En hann hafđi áreiđanlega heimildarmenn fyrir ţví hvernig ţetta gekk fyrir sig.  Ţorgeir Ţorgeirsson,  rithöfundur,  stađfesti í mín eyru ađ Jón fćri rétt međ framgöngu Guđrúnar í ađ hindra félagsađild Jóns ađ Rithöfundasambandinu.

  Umsókn Jóns var hafnađ.  Ţađ er ljótur blettur á sögu Rithöfundasambandsins.  Jón tók ţetta nćrri sér og var afar ósáttur.

  Eitt sinn í jólaös var bođiđ upp á skemmtidagskrá í verslun Máls og Menningar á Laugarvegi.  Ţarna komu fram tónlistarmenn og lesiđ var upp úr bókum.  Ég vissi ekki af ţessu en átti leiđ hjá.  Ţađ var trođiđ út úr dyrum.  Ţegar ég kom ađ voru tónlistarmenn ađ ljúka sinni dagskrá.  Kynnir gekk ađ hljóđnema og kynnti Guđrúnu Helgadóttur,  sem var ađ senda frá sér bók.  Kynnirinn endađi kynninguna á orđunum:  "Viđ bjóđum Guđrúnu Helgadóttur velkomna á sviđ!"

  Áheyrendur klöppuđu og Guđrún steig á sviđ.  Ţá heyrđist Jón - í ţvögu áheyrenda -  hrópa hátt og snjallt (hann myndađi "gjallarhorn" međ lófunum):  "Ţađ bjóđa ekki allir hana velkomna!  Ţađ bjóđa ekki allir hana velkomna!  Stattu fyrir máli ţínu ef ţú ţorir!"

  Ţađ var eins og einhverjir hefđu átt von á ţessu upphlaupi Jóns (kannski hafđi eitthvađ ţessu gerst áđur).  Tveir stćđilegir menn stukku eldsnöggt ađ Jóni og hentu honum út á götu.  Ţar hitti ég Jón.  Hann var ánćgđur og sagđi sigri hrósandi:   "Mér tókst ađ eyđileggja stemmninguna fyrir helvítis kellingunni!" 

-------------------------------

Fyrri frásagnir:

Afmćlishóf Dagsbrúnar
Kastađi kveđju á forsćtisráđherra
Illa leikinn af verkalýđsforingja
Verkalýđsforingi hrekktur 1. maí
Á kosningadag

Veitingahússumsögn

  egg

  - Réttur:  Beikon og egg

  -  Veitingastađur:  Tapashúsiđ,  Ćgissíđu 2

  - Verđ:  890 krónur

  - Einkunn: ****

  Tapas er eitthvađ sem nćr yfir fjölbreytta smárétti.  Ţađ eru tveir slíkir stađir á sama bletti í miđbć viđ höfnina.  Mig bar niđur á Tapashúsiđ sem er stađsett í húsaţyrpingu er telur međal annars Sćgreifann frábćra og Hamborgarbúlluna.  Ţađ er eiginlega ćtlast til ađ fleiri enn einn smáréttur sé settur saman í máltíđ.  En sé mađur ekki verulega svangur né gráđugur er alveg upplagt ađ prófa einn smárétt. 

  Tapashúsiđ er millifínt veitingahús međ bryggjulegri stemmningu.  Á heimasíđu Tapashússins er klaufalegt ađ birta ađeins ljósmyndir af auđum sćtum og borđum.  Tóm sćti og borđ eru fráhrindandi.  

  Rétturinn "beikon og egg" er hálft léttsođiđ egg og reykt svínasíđa.  Svínasíđubitinn er af svipađri stćrđ og hálfa eggiđ.  Eggiđ bragđast vel.  Síđubitinn bragđast ennţá betur.  Ég kann ekki ađ útlista bragđgott krydd á honum.  Lostćti.  Ţetta er í raun 5 stjörnu biti en verđiđ dregur hann niđur um eina stjörnu.   Til samanburđar kostar á Vitaborgaranum í Ármúla 2 spćld egg + 12 beikonsneiđar + 2 ristađar brauđsneiđar og smjör fyrir 110 kr. meira.   


Ólystugur matur. Varúđ! Ekki fyrir klígjugjarna!

ólystugur matur E andarungar

  Ţađ er ekki alfariđ samasemmerki á milli matar sem gleđur augađ annars vegar og bragđlaukana hinsvegar.  Bragđgóđur matur getur veriđ ólystugur á ađ líta.  Hann getur jafnvel veriđ svo fráhrindandi í útliti ađ sá sem er óvanur viđkomandi mat geti ekki hugsađ sér ađ smakka hann. 

  Sums stađar í Asíu ţykir fátt betra en andarungar áđur en ţeir klekjast úr eggi.  Kúnstin er ađ ţeir séu ekki eldri en svo ađ nóg sé eftir af rauđunni í egginu.  Rauđan er nefnilega nauđsynleg međ upp á bragđiđ ađ gera.  Kostur viđ ţennan rétt er ađ goggur og bein ungans eru mjúk undir tönn á ţessu stigi.

ólystugur matur C hráir uxalimir

  Í sumum löndum eru uxatyppi vinsćlt snakk.  Ţau eru ţurrkuđ í nokkra daga og borđuđ hrá.

ólystugur matur A lasanja m-kolkrabbakjöti

  Á ferđalagi í útlöndum pantađi kona nokkur sér lasagna rétt međ fersku krabbakjöti.  Ţegar rétturinn var borinn á borđ reyndist krabbakjötiđ svo ferskt ađ ţađ var lifandi kolkrabbaungar. 

ólystugur matur B rottuungar

  Í Kína,  Kóreu og kannski víđar ţykja rottuungar lostćti.  Ţeir eru hárlausir svo auđvelt er ađ snćđa ţá í heilu lagi.  Sumir skilja ţó halann eftir.

ólystugur matur H silkiormapizza

  Í Kóreu eru silkiormar vinsćlt álegg á flatbökur.

ólystugur matur I vespukaka

  Í Japan ţykir höfđinglegt ađ bjóđa gestum upp vespukökur međ tebollanum.

ólystugur matur F ormasúpa

  Lirfusúpur njóta víđa vinsćlda.  Ţćr eru próteinríkar og hentugar ţegar passa á upp á línurnar.

hamborgariólystugur matur J hamborgari

  Fyrir örfáum árum fann ţáverandi leiđtogi í Norđur-Kóreu,  Kim Jong-Il,  upp á byltingarkenndum rétti ćtluđum fátćklingum heims.  Vinsćldir réttsins náđu á nokkrum dögum ţvílíkum vinsćldum ađ í dag stendur hann fátćklingum til bođa um allan heim.  Víđast er rétturinn kenndur viđ ţýska hafnarborg,  Hamborg.  Megin snilldin viđ uppfinningu Kims Jong-Ils er ađ fátćklingarnir geta snćtt hamborgarann án ţess ađ eiga hnífapör. 

  Hins vegar er hamborgarinn ljótur og fráhrindandi í útliti og nánast óćtur fyrir fólk sem hefur kynnst skárri mat.

ólystugur matur L sviđ

  Ţessu er öfugt fariđ međ sviđakjamma.  Ţeir eru augnayndi og bragđgóđir eftir ţví.   Eini gallinn er sá ađ útlendingum ţykir sviđakjamma svipa til hundshauss eđa mannsandlits.  Fyrir bragđiđ eru ţeir feimnir viđ ţennan veislumat.  Ţeir fáu útlendingar sem ţora ađ smakka sviđ skilja oftast augađ eftir.  Samt er ţađ besti bitinn.


Smásaga um baráttu góđs og ills

djöfull í kúdjöfullinn í kú

  Ţađ er stóri dagurinn í Litla-Koti.  Dagurinn er kallađur stóri dagurinn ţegar kúnum er hleypt út úr fjósi í fyrsta sinn ađ vori.  Bóndinn er taugaveiklađur og áhyggjufullur vegna ţessa.  Börnin sjö rađa sér í kringum morgunverđarborđiđ.  Bóndinn sest viđ innri enda borđsins.  Frúin er á ţönum á milli borđs og ísskáps,  borđs og eldavélar,  borđs og brauđskúffu. 

  Bóndinn skipar frúnni ađ setjast viđ borđiđ.  "Nú ríđur á ađ viđ förum međ borđbćn og syngjum nokkra sálma.  Allir verđa ađ taka undir eins hátt og ţeir geta.  Viđ ţurfum ađ kljást viđ sjálfan djöfulinn á eftir ţegar kúnum verđur hleypt út.  Viđ verđum ađ fá styrk frá guđi til ađ hafa betur í viđureigninni viđ djöfulinn!"
.
  Bóndinn spennir greipar,  lokar augum og ákallar guđ um hjálp.  Svo galopnar hann augun,  stjarfur af hrćđslu og syngur:  "Ó,  sú náđ ađ eiga Jesú..."  Ósjálfrátt sprettur hann á fćtur til ađ koma söngnum betur frá sér.  Yngsta barniđ,  sex ára gamalt,  kann ekki textann nógu vel til ađ syngja af fullum styrk.  Áđur en bóndi veit af hefur hann slegiđ barniđ utan undir međ flötum lófa.  Hann fipast í engu viđ sönginn en horfir reiđilega á barniđ.  Hann vill koma ţví til skila ađ barniđ ţurfi ađ leggja sig fram í söngnum eins og ađrir.  Ţađ verđa allir ađ hjálpast ađ.
.
  Eftir fjóra sálma segir bóndi ađ nú skuli hópurinn matast vel.  Allir ţurfi ţá orku sem hćgt er.  Einkum hann sjálfur.  En líka Bjössi vitleysingur,  elsta barniđ,  14 ára.  Bjössi er enginn vitleysingur.  Hann er ađeins kallađur ţađ til ađgreiningar frá öđrum Bjössa.  Ţađ er hrútur sem ţykir líkur Bjössa vitleysingi í framan.  Sami sauđarsvipurinn.  Bjössi vitleysingur er reyndar ekkert gáfumenni.  En hann er duglegur ađ gefa hćnunum og lesa fyrir ţćr upp úr Biblíunni.
.
  Ađ afloknum morgunverđi gefur bóndinn fyrirmćli um ađ allir haldi sig innan dyra á međan ţeir Bjössi vitleysingur hleypi kúnum út.  Loka skuli gluggum og lćsa útidyrahurđ međ lykli.
  Feđgarnir fara út í fjós.  Bóndinn lćtur vatn renna í fötu.  Hann fer međ stutta bćn og signir vatniđ. 
  Bjössi vitleysingur spyr hvort ađ ţeir eigi ekki ađ fá prestinn til ađ vígja vatniđ.
  "Ertu band brjálađur?"  ćpir bóndinn skrćkróma af ćsingi.  "Presturinn er trúvillingur.  Hann gengur á vegum djöfulsins.  Hann mun brenna ađ eilífu í vítislogum.  Hann mun kveljast hrođalega.  Ţađ er gott á hann.  Ađeins viđ í svart-hvítasunnusöfnuđinum erum hólpin.  Okkar bíđur ţúsund ára sćluríki og viđ fáum reykta sviđakjamma og Nóa konfekt á hverjum degi."
  Bóndanum ţykir fátt betra en reykt sviđ og Nóa konfekt.  Sćlubros fćrist yfir andlitiđ á honum.  Svo verđur hann skyndilega aftur reiđilegur á svip og heldur áfram:  "Ţađ var presturinn sem kom um áriđ af stađ lygasögu um ađ ég vćri međ vatnshöfuđ.  Síđan horfa sumir skringilega á mig.  Ég varđ ađ hringja í sjónvarpsdagskrárblađiđ og kaupa auglýsingu um ađ ég vćri ekki međ vatnshöfuđ.  Auglýsingin gerđi illt verra.  Ţegar blađiđ kom út stóđ í auglýsingunni:  "Bóndinn í Litla-Koti er ekki međ fast höfuđ."  Símasambandiđ var ekki betra en ţetta.  Auglýsingasnatinn misheyrđi ţađ sem ég sagđi.  Blessađur drengurinn.  Ţetta er kaupstađabarn.  Ţau misheyra allt.  Nćst ţegar ég hitti prestinn úti á bensínstöđ sagđist hann vera međ skrúfjárn í bílnum ef ég vildi herđa á lausu skrúfunni.  Ég sagđi honum ađ spara brandarana ţangađ til hann hefđi efni á ţeim.  Svo sá ég hann fyrir mér emjandi og gólandi af kvölum ţegar hann brennur í vítislogum.  Ţá hló ég svo hátt ađ fćturnir svignuđu undan mér.  Ég varđ ađ skríđa á fjórum fótum inn á bensínstöđina til ađ borga fyrir bensíniđ.  Ţetta var svo skemmtileg tilhugsun ađ ég varđ ađ skríđa aftur á fjórum fótum út í bíl."
.
  Bóndinn bćtir bćn viđ yfir vatnsfötuna.  Svo sćkir hann vatn í lófann og smyr ţví yfir höfuđ kúnna.  Ţví nćst ber hann vatniđ á dyrakarminn.  Hann nuddar einnig niđurskornum hvítlauk á karminn og útskýrir fyrir Bjössa vitleysingi:
  "Ţađ er hér viđ dyrnar sem djöfullinn rćđst til atlögu."
  Loks kallar bóndinn:  "Leystu nú fremstu kúna og stuggađu henni úr básnum.  Um leiđ og hún er komin út úr húsi skaltu loka dyrunum og halda ţig innan dyra.  Ég rćđst á djöfulinn og sýni honum í tvo heimana."
.
  Bjössi vitleysingur hlýđir í hvívetna.  Ţegar hann hefur skellt dyrunum í lás horfir hann út um glugga á kúna fara í loftköstum á hlađinu og skvetta upp afturendanum.  Bóndinn hleypur ađ kúnni međ járnkall reiddan til höggs.  Hann lemur járnkallinum nokkru sinnum af alefli í höfuđ kýrinnar.  Um leiđ hrópar hann:  "Í Jesú nafni skipa ég ţér djöfull ađ yfirgefa kúna.  Komdu ţér í burtu,  segi ég!  Vertu feginn ađ flýja,  heigull!"
  Ţađ er eins og viđ manninn mćlt.  Allt dettur í dúnalogn.  Kýrin lćtur af rassaköstum,  hristir höfuđiđ ringluđ og skjögrar dösuđ löturhćgt úr hlađi.
.
  Sama atburđarás endurtekur sig viđ hinar ţrjár kýrnar.  Bjössi vitleysingur kemur út á hlađ ţegar síđasta kýrin er ađ skjögra af hlađinu.  Bóndinn er kominn í gott skap.  Hann geislar af gleđi, hamingju og stolti:  "Ţetta hafđist međ hjálp Jesú.  Djöfullinn reynir ekki aftur ađ taka sér bólfestu í kúnum í sumar.  Ég fór illa međ hann.  Kýrnar eru fljótar ađ byggja upp varnarkerfi skrokksins hérna úti í súrefnisríku sumarloftinu og safaríku grasi.  Ég notađi líka nýtt trix núna.  Sérđu:  Ég sargađi hérna kross á járnkallinn.  Djöfullinn fékk ekki ađeins járnkall í hausinn heldur lúbarđi ég hann einnig međ krossi."   
.
.
kýr međ farangur
------------------------------
Fleiri smásögur og leikrit:
.
 - Skóbúđ
 - Álfar
.
- Bóndi og hestur
.
.
 - Gömul hjón
http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1098829/
.
 - Hnefaleikakeppni aldarinnar:
.
 - Peysuklúbburinn
.
 - Vinalegur náungi:
.
 - Gamall einbúi
.
- Saga af systrum
.
 - Jólasaga
.
- Á rjúpnaveiđum:
.
- Ólétta nunnan:
.
- Gullfiskur:
.
- Flugvélamódel:
.
- Miđaldra mađur:
.
- Leyndarmál stráks:
.
 

Ekki fyrir lofthrćdda

ekki fyrir lofthrćdda A

Hćsta tívolítćki í heimi.  Ţarna snýst fólk í 117 metra hćđ.  Ţetta er í Vín.  Einhverra hluta vegna er jafnan fámennt í tćkinu.

ekki fyrir lofthrćdda B

Ţađ er gaman ađ horfa yfir Dubć úr 828 metra háum turni.

ekki fyrir lofthrćdda C

Litla hnátan liggur á glergólfi á 103. hćđ í Chicago.

ekki fyrir lofthrćdda D

Byggingin séđ utan frá.  Í fljótu bragđi virđist ţetta vera lyfta.  Ţegar betur er ađ gáđ sést ađ ţetta er lítill útsýnisgluggi.  Hann speglast í rúđum hússins ţannig ađ svo virđist sem 6 manneskjur séu í honum.  Ţćr eru ađeins 3.

ekki fyrir lofthrćdda E

Ţađ ţykir mikiđ sport ađ taka kollhnís á Tröllatungu í Noregi.

Brýnna breytinga er ţörf

  Áđur en Sykurmolarnir slógu í gegn erlendis og Björk varđ súperstjarna á alţjóđavettvangi vissu útlendingar ekki hvar Ísland var.  Ef ţeir vissu ţá á annađ borđ ađ Ísland vćri til.  Ísland var yfirleitt ekki ađ finna á útlendum landakortum.  Útlenda túrhesta á Íslandi mátti telja á fingrum sér og nokkurra annarra. 

  Nú er öldin önnur.  Árlega heimsćkja Ísland yfir 600 ţúsund útlendingar.  Ţar af eru Bandaríkjamenn fjölmennastir.   Víđa í Bandaríkjunum er nekt algjörlega forbođin.   Nekt jafngildir grófasta klámi.  Fyrir örfáum árum sást í eina eđa tvćr sekúndur í bert hćgra brjóst á söngkonunni Janet Jackson í sjónvarpsútsendingu.  Sjónvarpsstöđin var umsvifalaust sektuđ um 66 milljónir króna.  Samt var geirvartan hulin međ stjörnu.  Ýmsum ţótti sektarupphćđin of lág miđađ viđ hvađ brotiđ var alvarlegt og gróft.  Lesendadálkar dagblađa fylltust af bréfum frá sjónvarpsáhorfendum sem voru í losti.  Einn sagđist ekki ţora ađ hleypa hundinum sínum inn í sjónvarpsholiđ eftir ţetta af ótta viđ ađ eitthvađ ţessu líkt gćti endurtekiđ sig.

  Mörgum Bandaríkjamönnum (og eflaust fleiri útlendingum) er alvarlega misbođiđ í búnings- og ţvottaklefum íslenskra sundlauga.  Eftir ađ hafa einu sinni upplifađ ţá nekt sem ţar blasir viđ - og veriđ jafnvel sjálfir neyddir af sundlaugavörđum til ađ ţvo sér naktir fyrir framan ađra - geta ţeir ekki hugsađ sér ađ fara aftur í sund á Íslandi.  Ţess eru dćmi ađ ţeir hafi ţurft ađ leita sér ađstođar hjá sálfrćđingi til ađ ná heilsu eftir áfalliđ.

  Íslenskar sundlaugar verđa árlega af háum upphćđum vegna ţessa fyrirkomulags.  Ţađ vćri mjög arđbćr fjárfesting ađ setja upp ţunnt tjald fyrir eins og eina sturtu í hverri sundlaug. 

john-yoko


mbl.is Íslenskur kynfćraţvottur ekkert gamanmál
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Virkilega spennandi plata - og gott málefni

 chimes of freedom

  Í nćstu viku kemur út í Evrópu merkileg og spennandi plata.  Mjög svo spennandi.  Hún kom út í Norđur-Ameríku (samt ekki í Grćnlandi) í síđustu viku og hefur vakiđ rokna mikla athygli og líflegar umrćđur.  Málstađurinn er ađ auki afskaplega góđur.  Platan heitir Chimes of Freedom.  Ţađ er mannréttindahreyfingin Amnesty International sem gefur plötuna út.  Hún inniheldur 75 krákur (cover songs) á sönglögum Bobs Dylans (plús 1 lag í flutningi Dylans sjálfs).  Sönglög sem flestir ţekkja. 

  Flytjendur eru allt frá táningsaldri (Miley Cyrus, 19 ára) til aldargamals (Pete Seeger, 120 ára).

  Hér er heildarlistinn yfir lögin (ég hefđi ekki byrjađ á ađ pikka listann inn ef ég hefđi áttađ mig á hvađ ţađ tók langan tíma.  Ég fann hann ekki til ađ copy/paste):

1.
Johnny Cash međ The Avett Brothers - One Too Many Mornings
2.
Raphael Saadiq - Leopard--Skin Pill-Box Hat
3.
Patti Smith - Drifter's Escape
4.
Rise Against - Ballad Of Hollis Brown
5.
Tom Morello The Nightwatchman - Blind Willie McTell
6.
Pete Townshend - Corrina, Corrina
7.
Bettye LaVette - Most Of The Time
8.
Charlie Winston - This Wheels On Fire
9.
Diana Krall - Simple Twist Of Fate
10.
Brett Dennen - You Ain't Goin' Nowhere
11.
Mariachi El Bronx - Love Sick
12
Ziggy Marley - Blowin' In The Wind
13
Silversun Pickups - Not Dark Yet
14. 
The Gaslight Anthem - Changing Of The Guards
15
My Morning Jacket - You're A Big Girl Now
16.
The Airborne Toxic Event - Boots Of Spanish Leather
17.
Sting - Girl From The North Country
18.
Mark Knopfler - Restless Farewell
19.
Queens Of The Stone Age - Outlaw Blues
20
Lenny Kravitz - Rainy Day Woman #12 & 35
21.
Steve Earle w/Lucia Micarelli - One More Cup Of Coffee (Valley Below)
22.
Blake Mills featuring Danielle Haim - Heart Of Mine
23.
Miley Cyrus - You're Gonna Make Me Lonesome When You Go
24.
Billy Bragg - Lay Down Your Weary Tune
25.
Elvis Costello - License To Kill
26.
Angelique Kidjo - Lay, Lady, Lay
27.
Natasha Bedingfield - Ring Them Bells
28.
Jackson Browne - Love Minus Zero/No Limit
29.
Joan Baez - Seven Curses
30.
The Belle Brigade - No Time To Think
31.
Sugarland - Tonight I'll Be Staying Here With You (Live)
32.
Jack's Mannequin - Mr. Tambourine Man1.01
33.
Oren Lavie - 4th Time Around
34.
Sussan Deyhim - All I Really Want To Do
35.
Adele - Make You Feel My Love (Live At WXPN)
36.
K'NAAN - With God On Our Side
37.
Ximena Sarinana - I Want You
38
Neil Finn međ Pajama Club - She Belongs To Me
39.
Bryan Ferry - Bob Dylan's Dream
40.
Zee Avi - Tomorrow Is A Long Time
41.
Carly Simon - Just Like A Woman
42.
Flogging Molly - The Times They Are A-Changin'
43.
Fistful of Mercy - Buckets Of Rain
44.
Joe Perry - Man Of Peace
45.
Bad Religion - It's All Over Now, Baby Blue
46.
My Chemical Romance - Desolation Row
47.
RedOne međ Nabil Khayat - Knockin' On Heaven's Door
48
Paul Rodgers & Nils Lofgren - Abandoned Love
49.
Darren Criss og Chuck Criss of Freelance Whales - New Morning
50
Cage the Elephant - The Lonesome Death Of Hattie Carroll
51.
Band of Skulls - It Ain't Me, Babe
52.
Sinead O'Connor - Property Of Jesus
53.
Ed Roland og The Sweet Tea Project - Shelter From The Storm
54.
Kesha - Don't Think Twice, It's All Right
55.
Kronos Quartet - Don't Think Twice, It's All Right
56.
Maroon 5 - I Shall Be Release
57.
Seal & Jeff Beck - Like A Rolling Stone
58.
Carolina Chocolate Drops - Political World
59.
Taj Mahal of The Phantom Blues Band - Bob Dylan's 115th Dream
60.
Dierks Bentley - Senor (Tales Of Yankee Power)
61.
Mick Hucknall - One Of Us Must Know (Sooner Or Later)
62.
Thea Gilmore - I'll Remember You
63.
State Radio - John Brown
64.
Dave Matthews Band - All Along The Watchtower
65.
Michael Franti - Subterranean Homesick Blues
66.
We Are Augustines - Mama, You Been On My Mind
67
Lucinda Williams - Tryin' To Get To Heaven
68.
Kris Kristofferson - Quinn The Eskimo (The Mighty Quinn)
69
Eric Burdon - Gotta Serve Somebody
70.
Evan Rachel Wood - I'd Have You Anytime
71.
Marianne Faithfull - Baby Let Me Follow You Down
72.
Pete Seeger with The Rivertown Kids - Forever Young
73.
Outernational - When The Ship Comes In
74.
Silverstein - Song To Woody
75.
Daniel Bedingfield - Man In The Long Black Coat
76.
Bob Dylan - Chimes Of Freedom
 .
  Ţessu skylt,  sem ekki allir vita:  Lag Johns Lennons  Imagine  er eign AI.  AI fćr óskipt öll höfundarlaun ţess lags.  Hvort sem ţađ er spilađ í útvarpi eđa gefiđ út á plötum međ John Lennon eđa krákađ af öđrum.

 


Hvađa Bítlasonur er líkastur pabbanum?

  Bítlarnir eignuđust aldrei nein börn saman.  Allir eignuđust ţeir ţó börn.  Og allir eignuđust ţeir syni.  Fćrra var um dćtur.  Allir synir Bítlanna bera sterkan svip af föđur sínum,  eins og sjá má í myndbandinu.  Ţađ bendir til ţess ađ Bítlarnir hafi ekki haldiđ framhjá eiginkonum sínum meira en gerist og gengur. 

  Nú eru Bítlasynir (og Bítlaekkjur) orđnir tíđir gestir á Íslandi.  Ţeir eru miklu oftar hérlendis en fjölmiđlar greina frá.  Engu ađ síđur eru fjölmiđlar farnir ađ rćđa um strákana sem tengdasyni Íslands. 

  En hver Bítlasona er líkastur föđur sínum?

  Sean Lennon á röltinu međ Rakel Ósk.

rakel ósk & sean lennon 

  Dhani Harrison á röltinu međ dóttur Kára Stefánssonar.

dhani harrison & káradóttir


Gaman ađ rifja upp

  Söngvarinn og söngvahöfundurinn Ţórđur Bogason var áberandi í íslensku tónlistarlífi á níunda og tíunda áratug síđustu aldar.  Eđa reyndar fyrr ţví ađ hann var rótari hjá hljómsveitum Péturs heitins Kristjánssonar á áttunda áratugnum,  hvort sem ţćr hétu Paradís eđa Póker eđa Pícassó eđa eitthvađ annađ.  Svo stofnađi Ţórđur ţungarokkshljómsveitina Ţrek,  sem naut töluverđra vinsćlda en sendi aldrei frá sér lag á plötu.

  Á einhverjum tímapunkti breyttist Ţrek í hljómsveitina Ţrym.  Eflaust var ţađ í kjölfar einhverra mannabreytinga í hljómsveitinni.  Ţrymur sendi frá sér lagiđ  Tunglskin.  Ţađ getur ađ heyra í myndbandinu hér fyrir ofan.  Ţađ kom út á safnplötu sem ég man ekki hvađ heitir.  Á henni voru einnig lög međ Grafík,  Tappa tíkarrassi og Sverri Stormsker.

  Auk söngvarans Ţórđar voru í Ţrymi ţeir  Halldór Erlendsson gítarleikari, Ţórđur Guđmundsson bassaleikari, Kjartan Valdimarsson hljómborđsleikari og Pétur Einarsson trommari.

  Ţekktasta hljómsveit Ţórđar Bogasonar er sennilega Foringjarnir.  Ţeir komu laginu  Komdu í partý á vinsćldalista.  Myndbandiđ viđ ţađ var spilađ grimmt í sjónvarpinu.  Af öđrum hljómsveitum sem Ţórđur hefur sungiđ í má nefna Skytturnar,  Warning,  Rickshow,  DBD,  Rokkhljómsveit Íslands og Mazza. 

  Hér fyrir neđan er skemmtilegt jólalag sem Ţórđur samdi og söng međ hljómsveitinni F (kannski ekki alveg rétti árstíminn fyrir ţetta lag.  En samt gaman ađ rifja upp): 

  Hljómsveitirnar Kiss og Foringjarnir spiluđu eitthvađ saman.  Foringjarnir voru áberandi miklu betri hljómsveit.  Hér eru söngvarar ţessara hljómsveita,  Paul Stanley og Ţórđur Bogason,  ađ fara yfir málin:

Paul-Stanley-Thordur-Bogason


Ţađ er gaman ađ eldast!


  Fimmtug kona međ hjartaálfall var flutt í skyndi á spítala.  Međan á ađgerđ stóđ var hún nćrri farin yfirum.  Guđ birtist henni:
- Er minn tími kominn?  spurđi konan.
- Nei, svarađi guđ.  Ţú átt 43 ár, 2 mánuđi og 8 daga eftir ólifađa.

  Á gjörgćslunni ákvađ konan, ţar sem hún ćtti svona langt líf fyrir höndum, ađ dvelja lengur á spítalanum og fá sér andlitslyftingu, brjóstastćkkun, vararstćkkun og gangast undir fitusogsađgerđ. Í leiđinni lét hún aflita á sér háriđ og hvítta tennurnar.  
  Eftir síđustu ađgerđina var hún útskrifuđ af sjúkrahúsinu. Á leiđ yfir götuna varđ hún fyrir sjúkrabíl og lést samstundis.
  Ţegar hún kom fyrir guđ krafđi hún hann svara strax.

- Ég gat ekki betur skiliđ en ég ćtti 43 ár eftir ólifuđ!  Af hverju bjargađir ţú mér ekki frá sjúkrabílnum, skömmin ţín?


- Úps!  Ert ţetta ţú?  Ég bara ţekkti ţig ekki aftur!

páfinn


tölvubrandari15

mbl.is J.R., Sue Ellen og Bobby eldast vel
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Klúđur í kosningabaráttu

gingrich_og_the_heavy.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Í útlöndum - ekki öllum,  en sumum - er til siđs ađstjórnmálamenn velji sér einkennislag í kosningabaráttu.  Iđulega er ţetta ţekkt og grípandi lag.  Nafn lagsins og texti í viđlagi er jafnan eitthvađ sem innifelur ćskileg skilabođ.  Einkennislagiđ er spilađ í upphafi og endi frambođsfunda,  í sjónvarps- og útvarpsauglýsingur og hvar sem ţví er viđkomiđ.

  Af hverju fá frambjóđendurnir ekki vinsćla poppara til ađ semja fyrir sig sérstakt kosningalag?  Jú,  ţađ eru til dćmi um slíkt.  Kosturinn viđ hina leiđina er ađ hún gefur útvarpsstöđvum,  plötusnúđum og fleirum möguleika á ađ spila gamla vinsćla lagiđ án ţess ađ ţađ sé skilgreint sem eiginlegur kosningaáróđur.  

  Einhverra hluta vegna hafa íslenskir stjórnmálamenn gert lítiđ af ţessu.  Ég man ţó eftir ţví ađ Alţýđuflokkurinn gerđi út á lagiđ  18 rauđar rósir.  Í ţví tilfelli var ţađ krákađ (cover song) af Stuđmanninum Jakobi Magnússyni og Stebbi Hilmars söng.  Einnig krákađi Ingibjörg Sólrún lagiđ  Borg mín borg  ásamt Ríó tríói.  Egill Ólafsson (og kannski fleiri?) söng eitt sinn frumsamiđ lag eftir Árna Sigfússon,  ţáverandi frambjóđanda í Sjálfstćđisflokksins í Reykjavík.  Framsóknarflokkurinn var í einhverri kosningabaráttunni međ frumsamiđ lag eftir bróđir Magnúsar Kjartanssonar (man ekki nafn mannsins).  Viđ erum best,  söng Besti flokkurinn,  slagara úr smiđju Tinu Turner.

  Margrét Thatcher gerđi á sínum tíma út á lag Johns Lennons,  Imagine.  Yoko brást viđ međ ţví ađ gefa lagiđ til Amnesty International - í međ - til ađ lagiđ vćri ekki notađ af stjórnmálamönnum.

  Bandarískir stjórnmálamenn eru duglegir viđ ađ velja sér einkennislag í kosningabaráttunni.  Einkennislag Bills Clintons var  Don´t Stop Me Now  međ Fleetwood Mac.   Ronald Reagan sótti sitt einkennislag til Brúsa frćnda,  Born in the USA.  Brúsi gaf leyfi til ţess međ ţví skilyrđi ađ Reagan myndi hlusta á plötu hans,  Nebraska,  ţar sem sungiđ er um hlutskipti bandarísks verkafólks.  

  Einhverra hluta vegna hafa ótrúlega margir bandarískir stjórnmálamenn lent í tómu klúđri viđ val á einkennislagi.  Ţeir - eđa starfsmenn ţeirra - hafa ekki gengiđ nćgilega vel frá formlegu leyfi fyrir notkun lagsins.  Plötuútgefandinn hefur kannski gefiđ grćnt ljós en höfundur og flytjandi lagsins veriđ ósáttur ţegar á reynir.  Einkum hefur ţetta komiđ frambjóđendum rebbanna í koll.  En demókratar hafa líka lent í klúđri.

  Núna síđast er forsetaframbjóđandi rebba,   Gingrich,  í klúđri.  Einkennislag hans er  How You Like Me Now  međ bresku hljómsveitinni The Heavy.  Hljómsveitin er afar ósátt og krefst ţess ađ Gingrich hćtti ţegar í stađ ađ nota ţetta lag.  

  Áđur voru Tom Petty og Katrína and The Waves búin ađ stöđva notkun annars frambjóđanda rebba,  Michele Bachman, á sitthvoru laginu međ ţeim.  Gott ef hún datt ekki út úr forvalinu í kjölfar leiđinda vegna ţessa (og einhvers fleira).

  Tom Petty stoppađi á sínum tíma stoppađ notkun Brúsks (Bush yngri) á öđru lagi eftir sig,  I Won´t Back Down.  Ţađ er kannski skiljanlegt ađ svona klúđur komi upp ţegar bandarískir stjórnmálamenn nota bresk popplög međ leyfi frá bandarískum plötuútgefanda ţeirra.  Ţađ er klaufalegra ţegar rebbar nota lög eftir yfirlýstan frjálslyndan,  eins og Toms Pettys.   Tom Petty er mun stćrra nafn í Bandaríkjunum en viđ verđum vör viđ hér á Íslandi.  Hann er svo sem ekki mjög pólitískur en vill ekkert púkka upp á republikana.

  2008 stoppađi hljómsveitin Heart notkun Söru Pálínu á laginu  Barracuda.  Sama ár lenti John McCain í klúđri.  Jackson Browne fékk dómstóla til ađ stöđva notkun hans á laginu  Running On Empty.  Sjaldnast ţarf ţó dómstóla til.  John Mellemcamp dugđi ađ krefjast ţess án atbeina dómstóla ađ stöđva notkun Johns McCains á tveimur lögum eftir sig.  Til gamans má geta ađ lengst af kallađi John Mellemcamp sig John Cougar Mellemcamp.  Liđsmenn Sykurmolanna upplýstu hann um ađ millinafniđ Cougar hljómar illa á íslensku í íslenskum framburđi.  Mellemcamp var svo brugđiđ ađ hann "droppađi" millinafninu međ ţađ sama.

  Ţađ er nánast ţumalputtaregla ađ bandarískir stjórnmálamenn sem lenda í klúđri međ einkennislag tapa slagnum.  Ţeir heltast úr lestinni og verđa ekki forsetar.

  Gaman vćri ađ velta fyrir sér hvađa ţekkt íslensk lög íslenskir stjórnmálamenn geta tekiđ upp sem sitt einkennislag.  Ósmekklegar tillögur:  Silfurskotturnar hafa sungiđ fyrir mig  međ Megasi fyrir Jóhönnu.  Ţrjú hjól undir bílnum  međ Ómari Ragnarssyni fyrir Steingrím J.  Eđa  Taxman  međ Bítlunum?  Er til eitthvađ vafningslag fyrir Bjarna Ben?  Eđa bara  Money,  Money,  Money  međ Abba?  Sveitaball  međ Ómari Ragnarssyni fyrir Sigmund Davíđ?


Jón Ţorleifsson - V

Jón Ţorleifs

  Hér fyrir neđan eru hlekkir á fyrri frásagnir af Jóni Ţorleifssyni,  verkamanni og rithöfundi.  Ţađ er ástćđa til ađ fletta upp á ţeim í réttri röđ fyrir ţá sem ekki ţekktu ţennan merka mann áđur en lengra er haldiđ.  Og kannski líka fyrir ţá sem ţekktu hann.

  Jón hafđi andúđ á stjórnmálastéttinni eins og hún lagđi sig.  Hann mćtti jafnan á kjörstađ og tók sér góđan tíma í ađ skrifa á kjörseđil skilabođ til stjórnmálastéttarinnar í bundnu formi.  Ţó brá svo viđ eitt sinn ađ hann greiddi atkvćđi.  Ţegar Jón var ađ yfirgefa kjörstađ hitti hann einn af frambjóđendum Alţýđubandalagsins.  Ég man ekki hver ţađ var.  Mig hálf rámar í ađ ţađ hafi veriđ Magnús Kjartansson.  Samt er ég ekki viss.  Sá kastađi kveđju á Jón og spurđi hvort hann vćri búinn ađ kjósa.

  Jón játti ţví.  Sagđist í fyrsta skipti í langan tíma hafa merkt viđ frambođslista.  Viđmćlandinn spurđi hvort ađ Jón hefđi kosiđ rétt.  Jón svarađi:  "Ég veit ţađ ekki.  Ég kaus Alţýđubandalagiđ."

  Viđmćlandinn tók í hönd Jóns og ţakkađi honum fyrir atkvćđiđ.  Jón svarađi:  "Ţetta var mér nauđung.  Eina ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus Alţýđubandalagiđ var ađ fá tćkifćri til ađ strika yfir ţitt nafn.

---------

Afmćlishóf Dagsbrúnar
Kastađi kveđju á forsćtisráđherra
Illa leikinn af verkalýđsforingja
Verkalýđsforingi hrekktur 1. maí

Mikilvćgt varđandi sigurlagiđ í söngvakeppninni

  Eins og allir vita ţá er  Eilíf ást  međ Herberti Guđmundssyni sigurlagiđ í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöđva (júrivisjón) í ár.  Ţegar ţetta ber á góma verđur mörgum ađ orđi eitthvađ í ţessa veru:  "Ţađ kjósa auđvitađ allir lagiđ hans Hebba.  Ţađ er neyđarlegt fyrir ađra söngvahöfunda í keppninni.  Af ţví ađ lagiđ hans Hebba er svo öruggt í sigursćti ćtla ég ađ greiđa einhverjum öđrum höfundi mitt atkvćđi af vorkunnsemi."

  Ţessi afstađa er varasöm og allt ađ ţví refsiverđ.  Ef allir hugsa á ţennan veg fer allt í rugl.  Ţađ eina rétta í stöđunni er ađ greiđa atkvćđi međ ţví ađ hringja í 900-9901.  Ađeins ţannig fer allt vel.


Pottţétt hálkuvörn

  Margir detta á hausinn ţessa dagana.  Ţađ er fljúgandi hált á blautu svellinu.  Ţađ er vont ađ detta.  Ennţá verra er ađ beinbrotna.  Ţađ ţarf samt ekki ađ fara svo.  Ţađ er í raun afskaplega einfalt ađ verjast falli á hálu svelli.  Besta ađferđin er ađ fara ekki úr húsi.  En sumir ţurfa ţess samt vegna vinnu eđa skóla eđa annars. 

  Ţá er röđin komin ađ nćst bestu ađferđinni.  Hún er sú ađ fara í hnausţykkustu sokkana sína utan yfir skóna.  Sokkarnir eru svo stamir ađ ţađ er auđvelt ađ ganga á svellinu hnarreistur og öruggur á eđlilegum hrađa.


mbl.is Allt ađ 11 stiga hiti um helgina
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Í ţá gömlu góđu daga - III

  Ţetta er síđasta lotan í upprifjun á gömlu góđu dögunum.  Ţessari ótrúlegu tilveru fyrir daga heimilistölvunnar,  internetsins,  Fésbókar,  bloggsins,  tölvuleikja, "google",  ţútúpunnar og ţess alls sem er svo stór liđur í ţví sem viđ erum ađ fást viđ dag hvern.  Táningar og börn geta ekki ímyndađ sér hvernig hćgt var ađ komast af án tölvunnar og internetsins.  Á ţeim dögum var pabbinn alfrćđiorđabók:

breyttir tímar-5

  Ţá spurđi barniđ:  "Hver skapađi heiminn,  pabbi?"  Fađirinn svarađi:  "Guđ skapađi heiminn,  sonur sćll."

  Nú spyr barniđ:  "Hver skapađi heiminn,  pabbi?"  Og fađirinn svarar:  "Gúgglađu ţađ,  sonur sćll."

breyttir tímar-6

  Áđur stóđu foreldrarnir valdmannslegir yfir taugaveikluđum,  óöruggum og niđurlútum nemendum og hrópuđu:  "Hvađ eiga ţessar einkunnir ađ ţýđa?"

  Nú standa nemendurnir sjálfsöruggir fyrir framan taugaveiklađa, óörugga og niđurlúta kennara ţegar foreldrarnir yfirheyra kennarana:  "Hvađ eiga ţessar einkunnir ađ ţýđa?"

breyttir tímar-7

 


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband