22.1.2019 | 05:54
Smásaga um ungt fólk
Hann hafđi aldrei fariđ á dansleik áđur. Frá 16 ára aldri hafđi hann ţó nokkrum sinnum fariđ á hljómleika. En nú var hann mćttur á dansleik. Hann var rétt svo búinn ađ koma sér fyrir viđ barinn er ađ honum vék sér gullfalleg dama. Hún spurđi hvort ađ hann vćri til í dans. Hann var til í ţađ. Tók samt fram ađ hann hefđi aldrei dansađ. Hún blés á ţađ: "Ekki máliđ. Viđ reynum bara ađ samhćfa einhvern takt." Ţađ gekk áfallalaust fyrir sig. Hann var nokkuđ sáttur viđ frammistöđu sína. Hafđi reyndar ekki samanburđ.
Ađ dansi loknum spurđi hún: "Ertu til í panta einhverja spennandi kokteila á međan ég skrepp á salerni?" Hann var til í ţađ. Hún yrđi ađ velja. Hann ţekkti enga kokteila. Hún stakk upp á ţví ađ hann léti barţjóninn velja. Hann tók vel í ţađ.
Eftir nokkra framandi og bragđgóđa kokteila lá beinast viđ ađ ţau fćru saman heim til hans. Ţar fćkkuđu ţau fötum ţegar í stađ. Er hún skreiđ undir sćngina til hans hvíslađi hún: "Nú er komiđ ađ fjármálunum. Semjum um greiđsluna." Honum dauđbrá. Varđ afar vandrćđalegur. Hikstandi og stamandi stundi hann upp međ erfiđismunum: "Fjármál eru ekki mín sterkasta hliđ. Púff! Ég ţekki ekki taxtann. Ég hef aldrei lent í ţessari stöđu. Segjum bara ađ ţú borgir mér tíuţúsundkall og máliđ er dautt."
Bćkur | Breytt 24.1.2019 kl. 17:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
20.1.2019 | 00:36
Hljómsveitin Týr orđin fjölţjóđleg
Voriđ 2002 hljómađi fćreyskt lag á Rás 2. Nokkuđ óvćnt. Fćreysk tónlist hafđi ekki heyrst í íslensku útvarpi til margra áratuga. Lagiđ var "Ormurin langi" međ hljómsveitinni Tý. Viđbrögđ hlustenda voru kröftug. Allt ćtlađi um koll ađ keyra. Símkerfi Útvarpsins logađi. Hlustendur vildu heyra ţetta "norska lag" aftur. Já, einhverra hluta vegna héldu ţeir ađ ţetta vćri norskt lag. Fćreyjar voru ekki inn í myndinni.
Lagiđ var aftur spilađ daginn eftir. Enn logađi símkerfiđ. Ţetta varđ vinsćlasta lag ársins á Íslandi. Platan međ laginu, "How Far to Aasgard?", sat vikum saman í toppsćti sölulistans. Seldist í 4000 eintökum hérlendis. Kiddi "kanína" (einnig ţekktur sem Kiddi í Hljómalind) var eldsnöggur sem fyrr ađ skynja ađ nú vćri lag. Hann bókađi Tý í hljómleikaferđ um Ísland. Hvarvetna var fullt út úr dyrum. Víđa komust fćrri ađ en vildu. Til ađ mynda í Ölfusi. Ţar voru fleiri utan húss en komust inn.
Á skall alvöru Týs-ćđi. Hljómsveitin mćtti í Smáralind til ađ gefa eiginhandaráritun. Ţar myndađist biđröđ sem náđi gafla á milli. Auglýstur klukkutími teygđist yfir ađ ţriđja tíma.
Í miđju fárinu uppgötvađi Kiddi ađ Fćreyingar sátu á gullnámu: Ţar blómstađi öflugt og spennandi tónlistarlíf međ ótrúlega hćfileikaríku fólki: Eivör, Hanus G., Kári Sverris, hljómsveitir á borđ viđ 200, Clickhaze, Makrel, Arts, Yggdrasil, Lena Anderson og ég er ađ gleyma 100 til viđbótar. Kiddi kynnti ţetta fólk til sögunnar. Talađ var um fćreysku bylgjuna. Eivör varđ súperstjarna. Einstakar plötur hennar hafa selst í 10 ţúsund eintökum hérlendis. Hún fyllir alla hljómleikasali. Í dag er hún stórt nafn víđa um heim. Hefur fengiđ mörg tónlistarverđlaun. Hún hefur átt plötur í 1. sćti norska vinsćldalistans og lag í 1. sćti danska vinsćldalistans. Fyrsta sólóplata Eivarar kom út 1999. Ţar heiđrađi hún nokkur gömul fćreysk kvćđalög. Ţau urđu Tý kveikja ađ ţví ađ gera slíkt hiđ sama. Fyrir ţann tíma ţóttu gömlu kvćđalögin hallćrisleg.
Ofurvinsćldir Týs - og Eivarar - á Íslandi urđu ţeim hvatning til ađ leita fyrir sér enn frekar utan landsteinanna. Međ góđum árangri. Týr er í dag stórt nafn í senu sem kallast víkingametall. Hljómsveitin er vel bókuđ á helstu ţungarokkshátíđir heims. Ađ auki túrar hún ótt og títt um Ameríku og Evrópu. Fyrir nokkrum árum náđi hún toppsćti ameríska CMJ vinsćldalistans. Hann mćlir spilun framhaldsskólaútvarpsstöđva í Bandaríkjunum og Kanada (iđulega hérlendis kallađar bandarískar háskólaútvarpsstöđvar - sem er villandi ónákvćmni).
Hljómsveitin er ţétt bókuđ út ţetta ár. Ţar á međal á ţungarokkshátíđir í Ameríku, Evrópu og Asíu. Meira ađ segja í Kóreu og Japan.
Vegna bakveiki hefur trommarinn Kári Streymoy af og til helst úr lestinni síđustu ár. Frá 2016 hefur Ungverjinn Tadeusz Rieckmann veriđ fastur trommari Týs. Fćreyski gítarleikarinn Terji Skibenćs hefur í gegnum tíđina veriđ úr og í hljómsveitinni. Húđflúr á hug hans og hjarta. Nú hefur Ţjóđverjinn Attila Vörös veriđ fastráđinn í hans stađ.
Söngvahöfundurinn, söngvarinn og gítarsnillingurinn Heri Joensen segir ţetta ekki vera vandamál; ađ liđsmenn búi í mörgum löndum. Hljómsveitin var á sínum tíma stofnuđ í Danmörku. Allar götur síđan hafa liđsmenn hennar búiđ í ýmsum löndum. Vinnusvćđiđ er hljómleikaferđir ţvers og kruss um heiminn. Ţá skiptir ekki máli hvar liđsmenn eru skrásettir til heimilis.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
18.1.2019 | 00:02
Álit ferđamanns
Oft er gaman ađ heyra eđa lesa hvernig útlendir ferđamenn upplifa Ísland. Á netmiđlinum quora.com spyr ung kona frá Singapore í fyrirsögn: "Hve dýrt er Ísland?" Hún svarar sér: "Stutta svariđ er mjög."
Hún fór í 8 daga hringferđ um Ísland. Kíkti á Vestfirđi í leiđinni. Hún var í 5 manna hópi sem tók jeppa á leigu. Leigan var 134.200 kall. Hún hvetur ađra túrhesta á Íslandi til ađ ferđast saman í hópi til ađ halda kostnađi niđri. Jafnframt hvetur hún til ţess ađ keypt sé bílatrygging. Framrúđan í bílnum sprakk vegna steinkasts.
Bensínkostnađur var 48.800 kr. Á veitingastöđum kostar ađalréttur um 3660 kr. Á móti vegur ađ bensínsjoppur selja heitt ruslfćđi á borđ viđ pylsur, hamborgara og franskar. Kostnađur er á bilinu 976 til 1220 kall. Mín athugasemd: Hiđ rétta er ađ pylsa kostar víđast á bilinu 400 - 450 kall. Kannski ţarf 2 pylsur til ađ teljast vera máltíđ?
Daman bendir á ađ hćgt ađ kaupa samlokur í Bónus-verslunum. Sumar álíka verslanir selji líka heitan mat. Sennilega er hún ađ vísa til Krónunnar sem selur heitan kjúkling, sviđakjamma og ţurusteik.
Gistikostnađur hverja nótt á mann var 9760 kall á mann. Notiđ greiđslukort, segir hún. Íslenskar krónur eru verđlausar utan Íslands.
Niđurstađa hennar: Já, Ísland er dýrt. En hverrar krónu virđi!
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
14.1.2019 | 01:29
Vönduđ og metnađarfull plata
- Titill: Oddaflug
- Flytjandi: Kalli Tomm
- Einkunn: ****
Lengst af var Karl Tómasson ţekktur sem trommuleikari Gildrunnar. Fyrir fjórum árum eđa svo hóf hann farsćlan sólóferil; sendi frá sér plötuna Örlagagaldur. Ţar kom hann fram sem hörkugóđur söngvari og prýđilegt söngvaskáld. Örlagagaldur varđ ein söluhćsta plata ţess árs. Nokkuđ óvćnt vegna ţess ađ ekkert einstakst lag af henni varđ stórsmellur. Ţess í stađ var ţađ platan í heild sem hlaut svona vćnar viđtökur.
Oddaflug er önnur sólóplata Kalla. Eđlilega sver hún sig í ćtt viđ Örlagagaldur. Tónlistin er í humátt ađ norrćnum vísnasöng í bland viđ rokkađa spretti. Ţetta fléttast skarpast saman í opnulaginu, Kyrrţeyrinn andar. Fyrri hlutinn er ljúfur og áferđarfagur óđur til náttúrunnar. Um miđbik skellur óvćnt á kröftugur rokkkafli. Í niđurlagi taka rólegheitin aftur viđ. Útkoman er hiđ ágćtasta prog.
Ţrátt fyrir rafmagnađa rokktakta er heildarsvipur plötunnar lágstemmdur, yfirvegađur og hátíđlegur. Sjö lög af tíu eru frumsamin. Ţar af eitt samiđ međ Tryggva Hubner og annađ međ Guđmundi Jónssyni. Hann á ađ auki annađ lag og texta. Tvö eru eftir Jóhann Helgason.
Textarnir hafa innihald og geta stađiđ sjálfstćđir sem ljóđ. Fjórir eru ortir af Bjarka Bjarnasyni - einn ásamt Guđmundi Jónssyni. Hjördís Kvaran Einarsdóttir er höfundur tveggja. Jón úr Vör, Jón Óskar og Líney Ólafsdóttir eiga sinn textann hvert. Margir ţeirra bera sameiginlegan trega og söknuđ, kasta fram spurningum um óvissa framtíđ en bođa ţó von og trú á ástina.
Jóhann Helgason, Íris Hólm og Ingibjörg Hólm Einarsdóttir syngja á móti Kalla í sitthverju laginu. Ţau eru einnig í bakröddum ásamt Kalla sjálfum og fleirum.
Gítarleikur er í höndum Kalla, Tryggva Hubner, Guđmundar Jónssonar, Ţráins Árna Baldvinssonar og Sigurgeirs Sigmundssonar. Hljómborđsleik afgreiđa Kjartan Valdimarsson, Jón Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon. Bassa plokka Jóhann Ásmundsson, Jón Ólafsson og Ţórđur Högnason. Ásmundur Jóhannsson trommar og Sigurđur Flosason blćr í sax. Ţetta er skothelt liđ.
Umslagshönnun Péturs Baldvinssonar setur punktinn yfir i-iđ; glćsilegt listaverk.
Vert er ađ taka fram ađ platan er frekar seintekin. Ţó hún hljómi vel viđ fyrstu spilun ţá ţarf hún ađ rúlla í gegn nokkrum sinnum áđur en fegurđ tónlistarinnar skilar sér í fullum skrúđa.
Tónlist | Breytt 17.1.2019 kl. 18:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2019 | 00:28
Fátćklegt jólaskraut
Gistiheimili sem ég dvaldi á í Toronto yfir jólin er stađsett í 2ja kílómetra fjarlćgđ frá miđborginni. Engu ađ síđur gat ég ekki ţverfótađ fyrir spennandi veitingastöđum og óspennandi verslunum af öllu tagi. Ég tel mig lánsaman ađ hafa engan áhuga á verslunum - ef frá eru taldar matvöruverslanir sem selja vatn og dagblöđ, svo og búđir sem selja bjór.
Í Toronto er bjór seldur í the Beer Store. Viđskiptavinurinn fćr ekki ađ sjá neinn bjór ţegar mćtt er á svćđiđ. Hann gengur ađ afgreiđsluborđi og tilkynnir afgreiđslumanneskju hátt og skýrt hvađa bjór hann vill kaupa. Afgreiđslumanneskjan bregđur sér ţá bak viđ luktar dyr. Nokkru síđar birtist hún aftur međ bjórkippur í gráum plastpoka.
Mér skilst ađ ađrar verslanir selji annarsvegar léttvín og hinsvegar sterkt vín. Ég átti ekki erindi í ţćr. Sannreyndi ekki dćmiđ.
Í miđbć Toronto var mikill og stórfenglegur jólamarkađur. Yfirgengilegar jólaskreytingar í ýktasta stíl. Ţeim mun merkilegra er ađ ţar fyrir utan fór lítiđ fyrir jólaskreytingum. Á gistiheimilinu sem ég dvaldi á var í setustofu plastjólatré. Um 1,5 metri á hćđ. Um 30 cm ţar sem ţađ var breiđast. Ekkert skraut.
Á rölti mínu um nágrenniđ sá ég inn um glugga ađ sami stíll var í öđrum gistiheimilum og hótelum. Óskreytt jólatré og engar ađrar jólaskreytingar. Gengt gistiheimili mínu er vegleg verslunarmiđstöđ (mall) međ tilheyrandi matsölustöđum og verslunum. Hvergi örlađi á jólaskreytingum.
Í Toronto máttu íbúar henda jólatrénu út á stétt 7. janúar. Um leiđ máttu ţeir henda út á stétt allskonar húsgögnum og tölvum. Sorphirđan er til fyrirmyndar.
Ferđalög | Breytt 11.1.2019 kl. 11:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
7.1.2019 | 00:07
Frétta- og fróđleiksţyrstir Kanadabúar
Í Toronto er gefiđ út alvörugefiđ dagblađ sem heitir Toronto Star. Prentútgáfan selst í 319 ţúsund eintökum ađ međaltali. Á laugardögum hoppar salan upp í 420 ţús. Merkilega góđ sala í 6 milljón manna borg. Ađ vísu reikna ég međ ađ sala blađsins nái út fyrir stađbundna borgina. Ţannig er ţađ í Bandaríkjunum. Dagblöđ eins og New York Times og Washington Post eru seld víđa um Bandaríkin. Jafnvel utan Bandaríkjanna. Til ađ mynda hefur veriđ hćgt ađ kaupa ţau í íslenskum ritfangaverslunum.
Íbúar Bandaríkjanna eru 326 milljónir. 3ja fjölmennasta ţjóđ heims. Til samanburđar er Kanada smáţjóđ. Íbúar 37 milljónir. Ţeim mun athyglisverđara er ađ söluhćsta bandaríska dagblađiđ, USA Today, selst "ađeins" í 957 ţúsund eintökum.
Annađ söluhćsta bandaríska dagblađiđ, New York Times, selst í 572 ţúsund eintökum ađra daga en sunnudaga. Ţá er salan 1,088 millj.
Söluhćsta dagblađ Kanada heitir The Globe and Mail. Salan á ţví er 337 ţúsund eintök ađ međaltali. Ţar af er laugardagsblađiđ í 355 eintökum. Rösklega fimmtungur kanadísku ţjóđarinnar talar frönsku ađ móđurmáli. Munar mestu um ađ í 8 milljón manna kanadíska fylkinu Quebec er franska ráđandi. Dagblöđ međ frönskum texta seljast eins og heitar lummur. Le Journal de Montreol selst í 233 ţúsund eintökum ađ međaltali. Á laugardögum er salan 242 ţús.
Eflaust segja sölutölur á kanadískum og bandarískum dagblöđum heilmikiđ um ţjóđirnar. Rétt er ţó ađ undirstrika ađ hér er lagt út af prentmiđlum. Öll dagblöđin eru einnig á netinu. Ţar eru ţau seld í áskrift. Einnig fá netsíđur ţeirra heimsóknir frá öđrum. Útreikningar eru snúnir. Talađ er um ţumalputtareglu: Fyrir vestan haf megi margfalda heimsóknir á netsíđur daglađa međ 2,5 á prentađ upplag til ađ fá út heildarneyslu dagblađsins..
Ţetta er samt flóknara. Viđ getum boriđ saman visir.is og mbl.is. Ţessar síđur fá álíka mörg innlit. Munurinn er sá ađ ýmist efni á mbl.is er ađeins ađgengilegt áskrifendum. Ţar fyrir utan er mikill munur á útbreiđslu prentmiđlanna. Fréttablađiđ nćr til meira en tvöfalt fleiri en Morgunblađiđ.
Pappírsbrot kanadísku dagblađanna er ţannig ađ ţau eru álíka breiđ og íslensk dagblöđ. En um ţriđjungi hćrri. Efnisval er ađgreint í lausum "kálfum". Ţađ er ţćgilegt. Ţá er hćgt ađ byrja á ţví ađ henda kálfunum "Sport" og "Business".
Tónlist | Breytt 9.1.2019 kl. 18:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
4.1.2019 | 00:02
Gleđilegt nýtt ár!
Ég var í útlandinu. Eins og jafnan áđur ţá fagna ég sigri ljóssins yfir myrkrinu í útlöndum. Ađ ţessu sinni hélt ég upp á hátíđ ljóss og friđar í Toronto í Kanada. Toronto er alvöru stórborg, sú fjórđa fjölmennasta í Norđur-Ameríku. Telur 6 milljónir íbúa. Nokkuđ vćnn hópur. Íbúar Kanada eru 37 milljónir.
Toronto er friđsamasta og öruggasta borg í Ameríku. Sem er merkilegt vegna ţess ađ hún liggur upp viđ New York. Ţar kalla menn ekki allt ömmu sína ţegar kemur ađ glćpatíđni.
Ţetta var mín fyrsta heimsókn til Kanada. Ég hafđi ekki gert mér grein fyrir ţví hvađ bresk áhrif eru mikil ţarna. Munar ţar einhverju um ađ ćđsti ţjóđhöfđingi Kanada er breska drottningin. Mynd af henni "prýđir" 20 dollara seđilinn. Fleiri Breta má finna á öđrum dollaraseđlum.
26 desember er stór dagur í Bretlandi. Hann heitir "Boxing Day". Ţá ganga Bretar af göflunum. Breskar verslanir losa sig viđ afgangslager; kýla niđur verđ til ađ geta byrjađ međ hreint borđ á nýju ári. Viđskiptavinir slást um girnilegustu kaup. Ţađan dregur dagurinn nafn sitt.
Í Kanada heitir 26. desember líka "Boxing Day". Í Toronto er hamagangurinn ekki eins svakalegur og í Bretlandi. Í og međ vegna ţess ađ fjöldi kanadískra verslana auglýsir og eru merktar stórum stöfum "Boxing Week". Lagerhreinsunin varir til og međ 1. janúar.
Margir veitingastađir bjóđa upp á enskan morgunverđ. Ţađ er svo sem ekki bundiđ viđ Kanada. Hérlendis og víđa erlendis má finna veitingastađi sem bjóđa upp á enskan morgunverđ. En ţađ er bresk stemmning ađ snćđa í Kanada enskan morgunverđ og fletta í leiđinni dagblađinu Toronto Sun. Ţađ er ómerkilegt dagblađ sem tekur miđ af ennţá ómerkilegra dagblađi, breska The Sun. Ţetta eru óvönduđ falsfrétta slúđurblöđ. Kanadíska Sun reynir pínulítiđ ađ fela stćlinguna á breska Sun. Breska Sun er ţekkt fyrir "blađsíđu 3". Ţar er ljósmynd og kynning á léttklćddum stelpum. Oft bara á G-streng einum fata. Í Toronto Sun er léttklćdda stelpan kynnt í öftustu opnu.
Meira og mjög áhugavert varđandi kanadísk dagblöđ í bloggi helgarinnar.
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
22.12.2018 | 04:09
Gleđileg jól!
Heims um ból
halda menn jól;
heiđingjar, kristnir og Tjallar.
Uppi á stól
stendur í kjól
stuttklipptur prestur og trallar.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
20.12.2018 | 04:06
Veitingaumsögn
- Stađur: Sćgreifinn
- Stađsetning: Geirsgata 8 í Reykjavík
- Réttur: Kćst skata
- Verđ: 2350 kr.
- Einkunn: ****
Sćgreifinn er skemmtilega hrár veitingastađur međ sterkan persónuleika (karakter). Hann er í senn "heimilislegur" og heillandi. Andi stofnandans, Kjartans Halldórssonar, svífur yfir og allt um kring. Hann var bráđskemmtilegur og magnađur náungi sem gustađi af. Féll frá 2015. Í hans tíđ var ánćgjuleg ábót viđ góđa máltíđ ađ rćđa sjávarútvegsmál viđ hann. Alltaf var stutt í húmorinn. Hann sá broslegu hliđarnar í bland viđ annađ.
Eitt af sérkennum Sćgreifans hefur veriđ og er ađ bjóđa upp á kćsta skötu og siginn fisk. Skata er svipuđ frá einum veitingastađ til annars. Hjá Sćgreifanum er hún frekar mild. Međ á disknum eru saltfisksbitar, kartöflur, hamsar og tvćr rúgbrauđssneiđar međ smjöri. Í eftirrétt er hrísgrjónagrautur međ rjóma og kanil, kenndur viđ Steingrím Hermannsson, fyrrverandi forsćtisráđherra.
Einn af mörgum kostum Sćgreifans er hófleg verđlagning. Enginn veitingastađur á höfuđborgarsvćđinu býđur upp á hagstćđara verđ á skötumáltíđ í ár.
Ég geri tvćr athugasemdir viđ skötu Sćgreifans: Annarsvegar er skammturinn alltof ríflegur. Ţađ er ekki möguleiki ađ torga nema helmingi hans. Ţrátt fyrir ađ trođa í sig löngu eftir ađ mađur er orđinn saddur. Hinsvegar sakna ég ţess ađ fá ekki rófubita međ. Í sćlli minningu á ég kćsta skötu á Sćgreifanum međ rófubita.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2018 | 06:23
Veitingaumsögn
- Veitingastađur: Rakang
- Stađsetning: Hraunbćr 102A í Reykjavík
- Réttur: Tćlenskt hlađborđ
- Verđ: 2000 / 2800 kr.
- Einkunn: ****
Rakang er tćlenskur veitingastađur, stađsettur í sama húsnćđi og áđur hýsti veitingastađinn Blástein. Hann rak Ásgeir heitinn Hannes Eiríksson. Ţetta er rúmgóđur stađur sem skiptist upp í nokkra sali. Á góđum helgardegi var bođiđ upp á dansleiki.
Fyrir ókunnuga er erfitt ađ finna stađinn. Hraunbćr 102 teygir sig yfir nokkur hús í grennd viđ Orku bensínsölu. Til ađ finna 102a ţarf ađ keyra niđur fyrir eitt húsiđ.
Asísk hlađborđ eru hvert öđru lík. Enda eru ţau iđulega blanda af tćlenskum mat, víetnömskum og kínverskum. Hlađborđiđ á Rakang samanstendur af kjúklingabitum í sósu, ţunnt skornu nautakjöti í sósu, djúpsteiktum svínakjötstrimlum, djúpsteiktum fiski, djúpsteiktum vćngjum og tveimur núđluréttum međ grćnmeti. Međlćti eru hvít hrísgrjón, grćn karrýsósa, rauđ karrýsósa og súrsćt sósa.
Maturinn er bragđmikill og góđur. Á borđum eru flöskur til ađ skerpa enn frekar á bragđi. Ţćr innihalda soyja sósu, sterka chilli sósu og sterka mayones sósu.
Enginn laukur er í matnum, ólíkt ţví sem algengt er í asískum mat. Ţeim mun meira er af grćnmeti á borđ viđ gulrćtur, papriku og blómkáli.
Í hádegi er hlađborđiđ á 2000 kr. Á kvöldin er ţađ 2800 kall. Innifaliđ er kaffi og gosdrykkir.
Ljósmyndirnar njóta sín betur ef smellt er á ţćr.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2018 | 14:54
Keith Richards hćttur ađ drekka
Enski gítarleikarinn Keith Richards hefur sett tappann í flöskuna. Hann er best ţekktur fyrir ađ spila í the Rolling Stones. Áratugum saman neytti hann eiturlyfja af öllu tagi ásamt ţví ađ vera meira og minna blindfullur í bland.
Keith verđur 75 ára núna 18. desember. Fyrir nokkrum árum lagđi hann eiturlyfin á hilluna. Ástćđan var sú ađ ţau veittu honum ekki sömu vímu og áđur. Hann vildi meina ađ eiturlyfin í dag séu ómerkileg og blönduđ fylliefnum. Áđur hafi ţau veriđ hrein og góđ og gefiđ snarpa vímu.
Nú hefur Keith stađfest viđ bandaríska tímaritiđ Rolling Stone ađ hann sé hćttur ađ drekka áfengi. Reyndar sé hann búinn ađ vera edrú í heilt ár. Hann segir ţessa ákvörđun ekki hafa breytt neinu.
Hinn gítarleikari Stóns, Ronny Wood, er á öđru máli. Keith sé miklu ljúfari í dag og jákvćđari gagnvart nýjum hugmyndum. Áđur gnísti hann tönnum. Núna tekur hann uppástungum opnum örmum međ orđinu: "kúl!"
Keith viđurkennir ađ ţrátt fyrir ađ hann sé hćttur ađ drekka ţá sötri hann bjór og fái sér léttvín.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
10.12.2018 | 00:10
Flottar augabrúnir - eđa ţannig
Fagurlega mótađar augabrúnir eru höfuđprýđi. Ţetta vita konur - umfram karlmenn (ţeir taka yfirleitt ekki eftir augabrúnum). Á síđustu árum hefur fćrst í vöxt ađ konur skerpi á lit augabrúnanna. Jafnvel međ ţví ađ láta húđflúra ţćr á sig. Sumar nota tćkifćriđ og breyta lögun ţeirra og/eđa fćra ţćr úr stađ.
Hér eru nokkur skemmtileg dćmi:
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
5.12.2018 | 00:03
Stam
Í síđustu viku var ég í viđtali á Útvarpi Sögu, hjá Pétri Gunnlaugssyni. Nokkru síđar hringdi í mig kunningi. Hann var ţá búinn ađ hlusta á spjalliđ í tvígang og hafđi gaman af. Hinsvegar sagđist hann taka eftir ţví ađ stundum komi eins og hik á mig í miđri setningu, líkt og ég finni ekki rétta orđiđ.
Ég upplýsti hann um ađ ég stami. Af og til neita talfćrin ađ koma strax frá sér tilteknum orđum. Á barnsaldri reyndi ég samt ađ koma orđinu frá mér. Ţá hjakkađi ég á upphafi orđsins, eins og spólandi bíll. Međ aldrinum lćrđist mér ađ heppilegri viđbrögđ vćru ađ ţagna uns ég skynja ađ orđiđ sé laust. Tekur aldrei lengri tíma en örfáar sekúndur.
Ţetta hefur aldrei truflađ mig. Ég hugsa aldrei um ţetta og tek yfirleitt ekki eftir ţessu.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
25.11.2018 | 00:15
Kinnasleikir
Lengi er von á einum. Nú hefur Óli kinnasleikir bćst viđ í skrautlega flóru íslenskra jólasveina. Störfum hlađin kynferđisbrotadeild ríkiskirkjunnar rannsakađi máliđ: Komst hćgt og bítandi ađ niđurstöđu; um ađ háttsemi jólasveinsins falli undir eitt af mörgum fjölskrúđugum kynferđislegum áreitum og ofbeldi kirkjunnar ţjóna. Kinnasleikir vill frekar telja ţetta til almennra ţrifa. Svona sé algengt. Einkum međal katta.
Trúmál og siđferđi | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (46)
19.11.2018 | 23:04
Ţegar Birgitta snéri mig niđur
Nú standa öll spjót úti. Ţau beinast ađ rithöfundinum og tónlistarkonunni Birgittu Haukdal. Hún hefur skrifađ barnabćkur um Láru. Hún leggur sig fram um ađ breyta eđa leiđrétta stađalímynd telpna. Sem er gott mál. Ég ćtla ađ gefa mínum barnabörnum ţessar bćkur. Nema hvađ ađ í nýjustu bókinni kemur fyrir úrelt orđ, hjúkrunarkona. Um ţađ snýst fjađrafokiđ. Hjúkrunarfrćđingum ţykir gróflega ađ sér vegiđ. Ţeir eru miđur sín.
Birgittu er eđlilega brugđiđ viđ hin hörđu viđbrögđ. Hún harmar mistökin og lofar ađ ţetta verđi lagađ í nćstu prentun.
Ég ţekki ekki Birgittu. Hef aldrei talađ viđ hana né hitt hana. Hinsvegar varđ mér á ađ blogga um hana skömmu fyrir jólin 2007, fyrir 11 árum. Hún kom fram í sjónvarpsţćtti. Međ vanţroskuđum galgopahćtti reyndi ég ađ vera fyndinn á hennar kostnađ; bullađi eitthvađ um sjálfbrúnkukrem hennar.
Tveimur dögum síđar barst mér í hendur jólakort frá henni. Ţar afvopnađi hún mig til lífstíđar. Steinrotađi mig međ óvćntum viđbrögđum. Síđan hef ég ekki og mun aldrei segja né skrifa neitt neikvćtt um hana. Ţađ er mikiđ variđ í manneskju sem tćklar ókurteisi í sinn garđ svona glćsilega. Í kortinu stóđ:
Bćkur | Breytt 20.11.2018 kl. 03:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
18.11.2018 | 00:01
Uppfinningar sem breyta lífi ţínu
Japanir eru allra manna iđnastir viđ ađ finna upp gagnlega hluti. Ţađ er eins og ţeir geri ekkert annađ allan daginn. Hugmyndaflugiđ er ótakmarkađ. Hér eru nokkur snjöll sýnishorn af vörum sem hafa ekki borist til Evrópu. Bara tímaspursmál um daga fremur en ár.
Sólarorkukveikjarinn sparar bensín og fé. Margnota líftíđareign. Fer vel í stóra vasa.
Augndropar eru til stöđugra vandrćđa. Ţeir hitta ekki á augađ. Lenda upp á enni eđa niđur á kinn. Ţar fer dýr dropi til spillist. Augndropatrektin leysir máliđ. Snilldin felst í ţví ađ trektinni er haldiđ stöđugri međ ţví ađ vera föst viđ gleraugu. Gleraugun tryggja ađ dropinn lendi á mitt augađ.
Banani er hollastur ţegar hann er vel ţroskađur; orđinn mjúkur og alsettur svörtum deplum. Í ţví ástandi fer hann illa í vasa. Klessist og atar vasann. Bananaboxiđ er lausnin. Ţađ er úr ţunnu og léttu plasti og varđveitir lögun ávaxtarins. Algengt er ađ fólki međ mikiđ dót í öllum vösum rugli öllu saman; man ekki stundinni lengur hvađ er hvađ. Bananaboxiđ lítur út eins og banani. Enginn ruglast á ţví.
Vatnsmelónur eru plássfrekar í verslunum og í flutningum. Ţćr staflast illa; kringlóttar og af öllum stćrđum. Japanir hafa komist upp á lag međ ađ rćkta ţćr ferkantađar. Ţćr eru rćktađar í kassa. Ţannig eru ţćr jafnframt allar jafn stórar.
Vísindi og frćđi | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
11.11.2018 | 00:45
Smásaga um hjón
Jón og Gunna höfđu veriđ gift í átta ár. Ţau voru barnlaus. Sem var í góđu lagi. Ţau söfnuđu peningum í stađinn. Ţađ kostar ekkert ađ vera barnlaus. Ađ ţví kom ađ ţau langađi til ađ gera eitthvađ skemmtilegt. Formlegur fjölskyldufundur var settur og fariđ yfir máliđ. Eđa öllu heldur hjónafundur.
Gunna hafđi lćrt fundarsköp á námskeiđi. Hún var ţví sjálfkrafa ritari fundarins. Jón var einróma kjörinn formađur.
Svo vildi til ađ Jón og Gunna höfđu fyrir siđ ađ borđa á veitingastađ fyrsta sunnudag hvers mánađar. Eftir ađ skauta á milli fjölbreyttra veitingastađa varđ ađ siđ ađ snćđa á asískum stađ. Jón uppgötvađi ađ asískur matur var og er hans uppáhald. Í lok hverrar máltíđar á asískum veitingastađ byrjađi hann ađ hlakka til nćstu heimsóknar á asískan veitingastađ. Var friđlaus. Nagađi eldspýtur og tannstöngla til ađ slá á tilhlökkunina. Eitt sinn nagađi hann skóreim.
Hjónafundurinn skilađi niđurstöđu. Hálfsmánađarlangri ferđ til Peking í Kína. Jón kumrađi viđ hverja máltíđ ţar. Hóteliđ sem ţau bjuggu á var vel stađsett. Sitt hvoru megin viđ ţađ voru veitingastađir og fjöldi verslana af öllu tagi. Ţarna uppgötvađist ađ Gunna hefur lítiđ áttaskyn. Ítrekađ villtist hún ţegar hún skrapp í nćstu búđ eftir gosdrykk eđa súkkulađi. Týndist jafnvel klukkutímum saman. Alveg áttavillt.
Svo skemmtilega vildi til ađ skömmu eftir heimkomu til Íslands uppgötvađist ađ Gunna var ólétt. Hún fćddi barn sléttum 9 mánuđum síđar.
Jóni var verulega brugđiđ er hann sá barniđ. Ţađ bar sterk útlitseinkenni kínversks barns. Fyrstu viđbrögđ voru ađ snöggreiđsast. Hann hrópađi hamslaus af reiđi á Gunnu: "Hvađ er í gangi? Af hverju er barniđ kínverskt?" Hann hefđi lagt hendur á Gunnu ef hann hefđi ekki í ćsingnum runniđ til á gólfmottu og skolliđ flatur á bakiđ á gólfiđ.
Ókurteisin lagđist illa í Gunnu. Hún sló til Jóns međ inniskó - frekar ljótum - og svarađi: "Viđ hverju bjóst ţú eiginlega? Étandi kínverskan mat í öll mál? Vitaskuld ber barn okkar einkenni ţess!"
Jón áttađi sig ţegar í stađ á ţví ađ ţetta var rétt. Hann varđ skömmustulegur, niđurlútur og sagđi - skríđandi á fjórum fótum: "Gunna mín, ég biđst innilega fyrirgefningar á framkomu minni. Ţetta er rétt hjá ţér. Ég mun refsa mér fyrir ruddaskapinn međ ţví ađ klćđa mig úr öllum fötum og velta mér nakinn upp úr snjóskafli." Ţađ gerđi hann. Nágrönnum til töluverđrar undrunar.
Tónlist | Breytt 13.11.2018 kl. 00:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
8.11.2018 | 00:09
Fóstureyđingar í Fćreyjum
Um ţessar mundir eru fóstureyđingar fyrirferđamiklar í umrćđunni hér - eđa ţungunarrof eins og fyrirbćriđ er einnig kallađ. Ástćđa umrćđunnar er sú ađ veriđ er ađ breyta lögum; rýmka og lengja heimild til verknađarins fram ađ 23. viku međgöngu.
Forvitnilegt er ađ bera saman á milli landa fjölda fóstureyđinga á ári. Fćreyingar skera sig rćkilega frá öđrum norrćnum löndum. Í fyrra voru 19 fóstureyđingar ţar.
Berum saman hve margar fóstureyđingar eru á móti hverjum 1000 börnum sem fćđast. Listinn er ţannig:
Grćnland 1030
Svíţjóđ 325
Danmörk 264
Ísland 253
Noregur 224
Finnland 177
Fćreyjar 29
Ţessi samanburđur undirstrikar ađ Fćreyjar eru mesta velsćldarríki heims. Annar listi sem styđur ţađ er hversu mörg börn hver kona eignast ađ međaltali:
Finnland 1,5
Noregur 1,6
Ísland 1,7
Danmörk 1,75
Svíţjóđ 1,8
Grćnland 2,0
Fćreyjar 2,5
Heilbrigđismál | Breytt 9.11.2018 kl. 17:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
2.11.2018 | 07:27
Hvers vegna ţessi feluleikur?
Á níunda áratugnum vann ég á auglýsingastofu. Einn daginn kom Ingvar Helgason á stofuna. Hann rak samnefnda bílasölu. Hann sagđist vera ađ gera eitthvađ vitlaust. Hann vćri búinn ađ kaupa fjölda heilsíđuauglýsinga í dagblöđunum um tiltekinn bíl án viđbragđa.
Ţegar ég skođađi auglýsingarnar blasti vandamáliđ viđ. Í ţeim var bíllinn lofsunginn í bak og fyrir. Hinsvegar vantađi í auglýsingarnar hver vćri ađ auglýsa; hver vćri ađ selja bílinn. Lesandinn gat ekki sýnt nein viđbrögđ.
Ég á fleiri sögur af fyrirtćkjum sem auglýsa hitt og ţetta án upplýsinga um ţađ hver er ađ auglýsa og hvar hćgt er ađ kaupa auglýstu vöruna.
Í vikunni birtist í Fréttablađinu heilsíđuauglýsing undir fyrirsögninni "Combo-tilbođ". Ţar voru myndir af mat og drykk, brauđmeti og allskonar á tilbođsverđi. Ţađ er ađ segja lćkkuđu verđi - ađ ţví er má skiljast.
Undir auglýsinguna er kvittađ "netgíró Kvikk". Ekkert heimilisfang. Engin vísbending um hvort um er ađ rćđa sjoppu á Reyđarfirđi eđa í Keflavík, Stokkseyri eđa Hofsósi.
Ég sló inn netgíró.is. Fyrirbćriđ reyndist vera einhverskonar peningaplottsdćmi. Lánar pening, gefur út greiđslukort og hengir fólk eđa eitthvađ.
Ég sló inn "kvikk.is". Ţar reyndist vera bifreiđaverkstćđi. Eftir stendur ađ ég hef ekki hugmynd um hver er ađ selja pylsu og gos á 549 kall. Ţangađ til ég kemst ađ ţví kaupi ég pylsu og gos í Ikea á 245 kall. Spara 304 krónur í leiđinni.
Viđskipti og fjármál | Breytt 3.11.2018 kl. 18:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
29.10.2018 | 10:55
Magnađar styttur
Á áttunda áratugnum söng hljómsveitin Spilverk ţjóđanna um "styttur bćjarins sem enginn nennir ađ horfa á." Hitti ţar naglann á höfuđiđ eins og oft fyrr og síđar. Íslenskar styttur eru svo ljótar og óspennandi ađ fólk nennir ekki ađ horfa á ţćr.
Í útlöndum er ađ finna styttur sem gleđja augađ. Hér eru nokkur dćmi. Ef ţú smellir á myndirnar ţá stćkka ţćr og stađsetning birtist.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)