2.10.2017 | 10:24
Er Game of Thrones ađ leita ađ ţér?
Innan skamms hefjast tökur á áttundu seríunni af sjónvarpsţáttunum Game of Thrones. Ţeir hafa notiđ gríđarmikilla vinsćlda. Ekki síđur hérlendis en út um allan heim. Nú stendur yfir leit ađ fólki í nokkur hlutverk. Íslendingar smellpassa í ţau. Međal annars vegna ţess ađ fólkiđ ţarf ađ vera norrćnt í útliti og háttum.
Ţetta eru hlutverkin:
- Norrćnn bóndi á aldrinum 25 - 35 ára. Hann vinnur viđ landbúnađ. Tökur á hlutverkinu verđa skotnar um miđjan nóv.
- Hortug en ađlađandi norrćn dama á aldrinum 18 - 25 ára. Ţarf ađ vera kynţokkafull. Upptökur fara fram í fyrrihluta nóv.
- Norrćnn varđmađur á aldrinum 18 - 25 ára. Tökur eru í desember.
Eitt hlutverk til viđbótar en kallar ekki á norrćnt útlit en passar mörgum Íslendingum:
- Málaliđi á aldrinum 35 - 50 ára. Ţarf ađ vera líkamlega stćltur (hermannalegt útlit) og kunna ađ sitja hest.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
30.9.2017 | 18:21
Óhugnanlegar hryllingssögur
Ég var ađ lesa bókina "Martröđ međ myglusvepp". Rosaleg lesning. Höfundur er Skagfirđingurinn Steinn Kárason umhverfisfrćđingur, rekstrarhagfrćđingur, garđyrkjufrćđingur, tónlistarmađur, rithöfundur og sitthvađ fleira.
Fyrri hluti bókarinnar inniheldur átta reynslusögur fórnarlamba myglusvepps. Ţćr eru svo átakanlegar og sláandi ađ lesandinn er í "sjokki". Myglusveppurinn er lúmskur. Hann veldur hćgt og bítandi miklum skađa á líkama og sál. Jafnvel til frambúđar. Hann slátrar fjárhag fórnarlambsins. Ţađ ţarf ađ farga húsgögnum, fatnađi og öđru sem sveppagró hafa borist í.
Eđlilega er lengsta og ítarlegasta reynslusagan saga höfundar. Hinar sögurnar eru styttri endurómar. En stađfesta og bćta viđ lýsingu Steins á hryllingnum.
Í seinni hluti bókarinnar er skađvaldurinn skilgreindur betur. Góđ ráđ gefin ásamt margvíslegum fróđleik.
Ég hvet alla sem hafa minnsta grun um myglusvepp á heimilinu til ađ lesa bókina "Martröđ um myglusvepp". Líka hvern sem er. Ţetta er hryllingssögubók á pari viđ glćpasögur Arnalds Indriđasonar og Yrsu. Margt kemur á óvart og vekur til umhugsunar. Til ađ mynda ađ rafsegulbylgjur ţráđlausra tćkja hafi eflt og stökkbreytt sveppnum.
Bćkur | Breytt 1.10.2017 kl. 07:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
29.9.2017 | 10:02
Bretar segja fegursta áhangandann vera fćreyskan
Bretar eru gríđarlega uppteknir af fótbolta. Fćreyingar sömuleiđis. Breska dagblađiđ Daily Mail hefur skođađ áhangendur bresku knattspyrnufélaganna. Niđurstađan er sú ađ 25 ára fćreysk stúlka, Katrína María, beri af öđrum í fegurđ. Hún er grjóthörđ í stuđningi viđ Manchester United.
Vissulega er stúlkan myndarleg. Í Fćreyjum ţykir hún samt ósköp venjuleg. Fćreyskar konur eru almennt gullfallegar. Ekki síst í samanburđi viđ breskar.
![]() |
United er komiđ til baka |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
27.9.2017 | 23:26
Dularfullt mannshvarf
Fyrir mánuđi gagnrýndi ég - á ţessum vettvangi - veitingastađ Ikea í Garđabć fyrir ađ bjóđa ekki upp á lambakjöt. Viđbrögđ voru snöfurleg. Lambakótelettur voru ţegar í stađ settar á matseđilinn. Síđan hef ég ítrekađ kvittađ fyrir mig međ heimsókn í Ikea.
Í gćr snćddi ég ţar kótelettur utan matmálstíma. Klukkan var ađ ganga ţrjú. Fámennt í salnum. Á nćsta borđi sat aldrađur mađur. Skömmu síđar bar ađ annan aldrađan mann. Án ţess ađ heilsa spurđi hann hinn:
- Hefur ţú nokkuđ séđ hópinn minn?
- Hvađa hóp? spurđi hinn á móti.
- Ég er međ tuttugu manna hóp. Viđ vorum ađ koma af Úlfarsfelli. Ég leit af honum í smástund áđan hérna niđri. Svo var hann bara horfinn. Ég er búinn ađ leita ađ honum. Finn hann ekki.
Hinn kom ekki međ neitt ráđ. Eftir ađ hafa tvístigiđ um hríđ settist komumađur viđ borđiđ hjá honum og sagđi:
- Ég hinkra hérna. Ég hélt ađ hópurinn ćtlađi ađ fá sér bita. Hann hlýtur ţá ađ dúkka upp hér.
Mennirnir ţekktust greinilega. Ţeir spurđu frétta af sameiginlegum kunningjum. Nokkru síđar var ég mettur. Stóđ upp og gekk á brott. Hópurinn var ekki búinn ađ skila sér. Á útleiđ skimađi ég eftir honum. Án árangurs. Ég hefđi viljađ benda honum á ađ hann vćri týndur.
Matur og drykkur | Breytt 28.9.2017 kl. 15:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
25.9.2017 | 18:24
Gróf níđskrif um Íslendinga í erlendum fjölmiđli
Síđustu daga hafa erlendir fjölmiđlar fjallađ á neikvćđan hátt um Íslendinga. Ţeir fara frjálslega međ túlkun á falli ríkisstjórnarinnar. Gera sér mat úr ţví ađ barnaníđingar urđu henni til falls. IceHot1, Panamaskjölum og allskonar er blandađ í fréttaflutninginn. Smári McCarthy er sakađur um ađ hafa kjaftađ frá - auk ţess ađ líkja yfirhylmingu breska Íhaldsflokksins yfir barnaníđingnum Sovile, innvígđum og innmúruđum; líkja henni viđ yfirhylmingu Sjálfstćđisflokksins yfir sínum innvígđu og innmúruđu barnaníđingum.
Víkur ţá sögu ađ bandaríska netmiđlinum the Daily Stormer. Hann er málgagn ţess anga bandarískra hćgrisinna sem kalla sig "Hitt hćgriđ" (alt-right). Málgagniđ er kannski best ţekkt fyrir einarđan stuđning viđ ljúflinginn Dóna Trump.
Á föstudaginn birti málgagniđ fyrirferđamikla grein um Íslendinga. Fyrirsögnin er: "Íslenskar konur eru saurugar hórur. Fimm hrađsođnar stađreyndir sem ţú ţarft ađ vita."
Greinarhöfundur segist vera fastagestur á Íslandi. Hann vitnar af reynslu. Verra er ađ hans túlkun á lífsstíl Íslendinga er útlistuđ á ruddalegan hátt af bjána - í bland viđ rangtúlkanir.
Greinin er svo sóđaleg ađ ég vil ekki ţýđa hana frekar. Hana má lesa HÉR
Hlálegt en satt: Netsíđa Daily Stormer er hýst á Íslandi - ađ mig minnir í Garđabć (frekar en Hafnarfirđi) - til ađ komast framhjá bandarískum fjölmiđlalögum, meiđyrđalöggjöf og ţess háttar.
Löggćsla | Breytt 29.9.2017 kl. 15:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
24.9.2017 | 04:44
Óhugnanlegt dýraníđ
Umrćđa hefur kviknađ um hryllilegt dýraníđ á Íslandi. Upphaf ţess má rekja til Fésbókarfćrslu Tinnu Bjargar Hilmarsdóttur. Hún lýsir hrćđilegri međferđ á fé. Hún fór í réttir. Varđ hálf lömuđ og full af sorg og reiđi yfir ţví sem fyrir augu bar.
Tinna Björg er félagi í Aktivegan - samtökum um réttindi dýra til lífs og frelsis. Full ástćđa er til ađ lofa og fagna öllum sem láta sig velferđ dýra varđa. Dýraníđingar ţurfa sjaldnast ađ axla ábyrgđ á gjörđum sínum.
Tinna Björg segir féđ hafa veriđ skelfingu lostiđ og verulega stressađ. Hún fullyrđir ađ kindur og lömb deyi iđulega vegna streitunnar sem smölun fylgir. Sum slasist. Fjölskyldur tvístrist. Lamb tróđst undir. Kindum var fleygt eins og tuskudúkkum. Nokkrar kindur höltruđu. Ađrar voru međ blćđandi sár. Ein međ skaddađ auga. Sláturtrukkar biđu eftir ţeim. Ţćr sáu ekki fram á neitt annađ en dauđa eđa ţurfa ađ hírast í skítugu fjárhúsi í allan vetur.
Ég dreg ekki í efa neitt af ţessu. Ég hef ekki fariđ í göngur og réttir síđan á fyrri hluta áttunda áratugarins. Ţá var ţetta allt öđru vísi. Kindurnar fögnuđu okkur smölunum. Ţćr hlakkađi til ađ komast í réttina. Lögđu ţegar í stađ í átt ađ henni. Ţćr komu óţreyttar á áfangastađ. Ţćr röltu léttar í spori niđur fjalliđ á gönguhrađa smalanna. Ţađ vorum viđ sem ţurftum ađ klífa brattar fjallshlíđar.
Í réttunum urđu fagnađarfundir. Kindurnar hittu ćskufélaga sína og jörmuđu ákaft af fögnuđi. Lömbin hittu fjölda nýrra lamba. Ţađ var algjört ćvintýri ađ kynnast nýju lömbunum. Allir skemmtu sér hiđ besta. Líka smalarnir sem sumir voru fullir og vildu slást. Kindurnar hlógu ađ ţeim.
Ađ hausti eru kindurnar ađ mestu hćttar ađ skipta sér af lömbum. Lömbin hinsvegar sćkja í návist móđur. Fyrst og fremst af vana. Ţau eru fyrir löngu síđan hćtt á spena og ţurfa ekkert á mömmu ađ halda. Ţetta skiptir ţau engu máli.
Ég hef aldrei séđ blóđgađ fé í réttum. Hinsvegar hefur í réttum uppgötvast ađ horn er ađ vaxa inn í höfuđ á kind eđa lambi. Líka ađ kind er í vandrćđum vegna ullarreyfis. Ein var međ brunna snoppu eftir ađ hafa asnast upp á jökul og ekki fattađ ađ hann endurvarpađi sólarljósi. Henni ţurfti ađ sinna og grćđa brunasár međ Aloe Vera geli. Aldrei dó fé vegna streitu. Enda féđ sultuslakt - ţrátt fyrir hvađ ţví ţótti rosalega gaman.
Ég vissi ekki dćmi ţess ađ ekiđ vćri međ lömb beint úr rétt í sláturhús. Venja var ađ fita lömbin í nokkra daga á káli og öđru góđgćti síđustu daga fyrir slátrun. Ţađ var ţeim góđ skemmtun ađ ferđast á vörubílspalli. Flestum skepnum ţykir ţađ gaman; ađ vera kyrr á sama stađ en samt á ferđ. Ţau upplifa heillandi töfra.
Sjaldan eđa aldrei voru lömb leidd beint af vörubílspalli til slátrarans. Algengara var ađ ţau fengju ađ slaka á. Jafnvel yfir nótt. Ţau voru ekkert óróleg eđa kvíđin. Frekar ađ ţau vćru spennt ađ vita hvađa nćsta ćvintýri biđi ţeirra.
Er kólna tók í veđri urđu ćrnar afskaplega ţakklátar fyrir ađ komast í húsaskjól. Ţar var dekstrađ viđ ţćr. Heyi hlađiđ á garđa. Stundum gómsćtu mjöli blandađ saman viđ. Einkum síđvetrar. Ţá fengu ţćr líka síld. Ţvílíkt sćlgćti. Ţvílík hamingja.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
22.9.2017 | 07:16
Yoko Ono bannar svaladrykk
John Lennon var myrtur á götu úti í New York 1980. Síđan hefur ekkja hans, Yoko Ono, unniđ ötult starf viđ ađ vernda minningu hans. Reyndar gott betur. Hún hefur náđ ađ fegra ímynd hans svo mjög ađ líkist heilagri helgimynd. Gott og blessađ.
Nú hefur henni tekist ađ stöđva sölu á pólskum svaladrykk. Sá heitir John Lemon. Fyrstu viđbrögđ framleiđanda drykkjarins voru ađ ţrćta fyrir ađ gert vćri út á nafn Johns Lennons. Lemon sé annađ nafn en Lennon.
Yoko blés á ţađ. Vísađi til ţess ađ í auglýsingum um drykkinn sé gert út á fleira en nafn Johns. Til ađ mynda séu ţćr skreyttar međ ömmugleraugum samskonar ţeim sem eru stór hluti af ímynd hans. Ţar hjá stendur setningin "let it be". Sem kunnugt er heitir síđasta plata Bítlanna "Let it Be".
Til viđbótar notađi írska útibúiđ, John Lemon Ireland, mynd af John Lennon í pósti á Fésbók.
Lögmannastofa Yokoar stillti framleiđandanum upp viđ vegg: Hótađi 5000 evra (655.000 ísl kr.) dagsektum og krafđist 500 evra fyrir hverja selda flösku. Fyrirtćkiđ hefur lúffađ. Nafninu verđur breytt í On Lemon. Breski dreifingarađilinn segir ađ lítiđ fyrirtćki sem sé ennţá ađ fóta sig á markađnum hafi ekki bolmagn til ađ takast á viđ milljarđamćring.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
18.9.2017 | 04:43
Úrval annarra manna
Lengst af hafa minningargreinar í Morgunblađinu veriđ helsti vettvangur fyrir hrós. Fólkiđ sem ţar er til umfjöllunar er besta, gestrisnasta, greiđviknasta og skemmtilegasta fólk sem bréfritari hefur kynnst. Nú bregđur svo viđ ađ međmćlabréf valinkunnra manna til handa dćmdum kynferđisglćpamönnum ganga lengra í hólinu.
Um alrćmdasta barnanauđgara landsins segir (leturbreyting mín): "Sem manneskja er hann einstaklega ljúflyndur, ţćgilegur og umgengnigóđur í hvívetna. Hann hefur líka jákvćtt hugarfar og ađ sama skapi glađvćrđ sem smitar út frá sér og skapar gott og hlýlegt andrúmsloft."
Og: "Öll hans framganga er til fyrirmyndar."
Hrotta sem misţyrmdi, pyntađi og nauđgađi ţroskaheftri konu er lýst ţannig: "Einstaklega opinn og hjartahlýr mađur... traustur, heiđarlegur og góđur vinur međ einstaklega sterka réttlćtiskennd."
Körfuboltakall sem nauđgađi 17 ára stúlku er sagđur vera "til fyrirmyndar bćđi innan sem utan vallar."
![]() |
Međmćlin veitt vegna starfsumsóknar |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Löggćsla | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
15.9.2017 | 07:34
Hvađ nú? Kosningar?
Ţađ er saga til nćsta bćjar ađ barnaníđingar og stuđningsmenn ţeirra felli ríkisstjórn. Eđlilega gekk framvinda mála fram af Bjartri framtíđ. Eins og flestum öđrum en Sjálfstćđisflokknum. Reyndar hefur margoft gerst í útlöndum ađ komist hefur upp ađ ćđstu stjórnmálamenn og ţeirra nánustu slái skjaldborg um barnaníđinga.
Líklegt er ađ ţetta kalli á nýjar kosningar. Hvađ ţá? Nćsta víst er ađ Flokkur fólksins fljúgi inn á ţing. Jafnvel viđ ţriđja mann. Spurning hvort ađ nýir flokkar bćtist í hópinn. Einn heitir Frelsisflokkurinn eđa eitthvađ svoleiđis. Dettur Viđreisn út af ţingi? Mun Framfarafylking Sigmundar Davíđs bjóđa fram? Segir Bjarni Ben af sér formennsku í Sjálfstćđisflokknum?
![]() |
Ekki lengra gengiđ ađ sinni |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.9.2017 kl. 09:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
13.9.2017 | 02:29
Skeljungi stýrt frá Fćreyjum
Skeljungur er um margt einkennilega rekiđ fyrirtćki. Starfsmannavelta er hröđ. Eigendaskipti tíđ. Eitt áriđ fer ţađ í ţrot. Annađ áriđ fá eigendur hundruđ milljóna króna í sinn vasa. Til skamms tíma kom Pálmi Haraldsson, kenndur viđ Fons, höndum yfir ţađ. Í skjóli nćtur hirti hann af öllum veggjum glćsilegt og verđmćtt málverkasafn.
1. október nćstkomandi tekur nýr forstjóri, Hendrik Egholm, viđ taumum. Athyglisvert er ađ hann er búsettur í Fćreyjum og ekkert fararsniđ á honum. Enda hefur hann nóg á sinni könnu ţar, sem framkvćmdarstjóri dótturfélags Skeljungs í Fćreyjum, P/F Magn.
Ráđning Fćreyingsins er hrópandi vantraustsyfirlýsing á fjóra núverandi framkvćmdastjóra Skeljungs. Ţeir eru niđurlćgđir sem óhćfir í forstjórastól. Fráfarandi forstjóri, Valgeir M. Baldursson, var framkvćmdastjóri fjármálasviđs ţegar hann var ráđinn forstjóri.
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 03:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
10.9.2017 | 18:42
Stórskemmtileg íslensk kvikmynd - umsögn
- Titill: Undir trénu
- Handrit: Huldar Breiđfjörđ og Hafsteinn Gunnar Sigurđsson
- Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurđsson
- Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Sigurđur Sigurjónsson, Steindi Jr., Ţorsteinn Bachman, Selma Björnsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir
- Tegund: Drama/harmleikur/grín
- Einkunn: **** (af 5)
Sumar kvikmyndir eru ţannig ađ eftir ţví sem áhorfandinn veit meira um ţćr fyrirfram ţeim mun ánćgjulegra er áhorf. Ađrar kvikmyndir eru ţannig ađ áhorfandinn má ekki vita fyrirfram neitt um framvindu né tilteknar senur. Hámarks upplifun nćst međ ţví ađ myndin komi stöđugt á óvart.
Undir trénu fellur undir síđarnefndu lýsinguna. Ég hvet eindregiđ ţá sem sjá myndina ađ ţegja um hana - ef frá er taliđ ađ mćla međ henni.
Óhćtt er ađ upplýsa örfáa punkta. Myndin segir tvćr sögur. Önnur er af ungu pari sem stendur í skilnađarbasli. Hin er af foreldrum unga mannsins. Ţeir eiga í nágrannadeilum vegna trés í garđinum. Ţađ er orđiđ of stórt. Varnar sólargeislum leiđ ađ garđi nágranna.
Sögurnar tvćr fléttast lipurlega saman. Framvinda beggja styrkir hina. Pakkinn er 2 fyrir 1; ađ fylgjast međ tveimur spennandi og viđburđaríkum sögum á sama tíma.
Tilfinngaróf áhorfandans sveiflast hratt til og frá. Allar lykilpersónur vekja samúđ. Ţađ er sjaldgćft í kvikmynd sem byggir á harđvítugum átökum. Svo ekki sé minnst á átökum á tveimur vígstöđvum. Hefđbundna uppskriftin er átök á milli góđs og ills. Hér er dramatíkin af og til óvćnt brotin upp međ vel heppnuđu skopi.
Miklu skiptir úrval margra bestu leikara landsins. Túlkun ţeirra er frábćr og hefur mikiđ ađ segja um útkomuna. Edda Björgvins toppar sig. Hefur hún ţó allan leikferil veriđ í hćstu hćđum.
Steindi Jr. er í burđarhlutverki; gaurinn ađ skilja og sonur hjóna í nágrannaerjum. Hann - amatör/leikmađur - er settur í rosalega bratta stöđu/áskorun ađ leika á móti bestu leikurum Íslands. Hann veldur hlutverkinu. Ţađ hjálpar ađ hans "karakter" er ţekktur sem galgopi í göslaragangi.
Tónlist Daníels Bjarnasonar er áhrifarík. Iđulega dimm og drungaleg. Bođar eitthvađ ógnvćnlegt. Karlakór setur svip á tónlistina. Gegnir einnig ţví hlutverki ađ túlka tilfinningasveiflur persónunnar sem Siggi Sigurjóns leikur. Virkilega vel heppnađ. Tónlistin á stóran ţátt í ţví hvađ ţetta er góđ kvikmynd.
Eins og algengt er međ íslenskar myndir ţá er nafniđ ekki lokkandi. Ţađ gefur ekkert forvitnilegt til kynna.
Ég mćli eindregiđ međ Undir trénu sem virkilega góđri kvöldskemmtun í kvikmyndarhúsi. Ţó ekki fyrir viđkvćma.
Kvikmyndir | Breytt 11.9.2017 kl. 08:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 11:45
Heilinn ţroskast hćgar en áđur var taliđ
Margt ungmenniđ telur sig vita allt betur en ađrir. Eđa ţá ađ ţađ telur sig vera kjána. Bjána sem aldrei rćtist neitt úr. Vonlaust eintak. Tilfelliđ er ađ ungt fólk er óţroskađ. Óttalega óţroskađ. Ţess vegna fćr ţađ ekki ađ taka bílpróf fyrr en 17 ára í stađ 13 - 14 ára (um leiđ og ţađ nćr niđur á kúplingu og bremsu). Af sömu ástćđu fćr ţađ ekki ađ ganga í hjónaband og kjósa til Alţingis fyrr en 18 ára (auđveldara ađ keyra bíl en vera í hjónabandi og kjósa).
Lengi var kenningin sú ađ heilinn vćri ekki fullţroskađur fyrr en á 18 ára. Nýgiftu fólki međ kosningarétt er ţó ekki treyst til ţess ađ kaupa áfengi fyrr en tveimur árum síđar.
Nú ţarf ađ endurskođa ţetta allt saman. Međ nýjustu tćkni til ađ skođa virkni heilans hefur komiđ í ljós ađ heilinn er ekki fullţroskađur fyrr en á fertugs aldri. Um eđa upp úr ţrítugs afmćlinu.
Ţetta birtist á ýmsan hátt. Til ađ mynda snarfellur glćpahneigđ upp úr 25 ára aldri. Ţađ vekur upp spurnar um hvort ástćđa sé til ađ hafa ţađ til hliđsjónar í sakamálum. Nú ţegar eru börn ósakhćf ađ mestu.
Annađ sem breytist á ţessum aldri er ađ athyglisgáfa eflist sem og rökhugsun og skammtímaminni. Jafnframt dregur úr kćruleysi, áhćttusćkni og hvatvísi. Fólk hćttir ađ taka hluti eins oft og mikiđ inn á sig og komast í uppnám.
Vísindi og frćđi | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
7.9.2017 | 09:28
Gott ađ vita
Tímareimin í bílnum mínum var komin á tíma. Ég hringdi í nokkur bifreiđaverkstćđi. Spurđi hvađ skipti á tímareim kosti. Heildarverđ međ öllu. Verđin reyndust mismunandi. En öll eitthvađ á annađ hundrađ ţúsund. Af einhverri rćlni álpađist ég til ađ leita á náđir "gúgglsins". Fann ţar nokkrar jákvćđar umsagnir um Bifreiđaverkstćđi Jóhanns í Hveragerđi. Ţar á međal ađ verđlagning sé hófleg.
Nćsta skref var ađ hringja ţangađ. "Vinnan kostar 35 ţúsund," var svariđ sem ég fékk. "Ţú getur sjálfur komiđ međ varahlutina sem til ţarf ef ţú ert međ afslátt einhversstađar."
Ég var ekki svo vel settur. Spurđi hvort ađ ég gćti ekki keypt ţá hjá honum. Jú, ekkert mál. "Ţá verđur heildarpakkinn um 70 ţúsund."
Ég var alsćll. Brunađi austur fyrir fjall. Ţegar til kom reyndist vélin miklu stćrri en venja er í bíl af mínu tagi. Fyrir bragđiđ tók vinnan klukkutíma lengri tíma en tilbođiđ hljóđađi upp á.
Er ég borgađi reikninginn var ţó slegiđ til og tilbođiđ látiđ standa. Endanlegur heildarreikningur var 68 ţúsund kall.
Tekiđ skal fram ađ ég hef engin tengsl viđ Bifreiđaverkstćđi Jóhanns. Vissi ekki af tilvist ţess fyrr en "gúggliđ" kynnti ţađ fyrir mér.
Af ţessu má lćra: Nota tćknina og "gúggla". Fyrir mismuninn á fyrstu tilbođum og ţví síđasta er hćgt ađ kaupa hátt í 200 pylsur međ öllu í Ikea. Samt langar mig ekkert í pylsu.
Vefurinn | Breytt 9.9.2017 kl. 09:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
2.9.2017 | 10:37
Fćreyingar stórgrćđa á vopnasölubanni Íslendinga til Rússa
Ţađ tók Íslendinga heilt ár ađ ögra og mana Rússa til ađ sýna viđbrögđ viđ vopnasölubanni sem Gunnar Bragi Sveinsson, ţáverandi utanríkisráđherra, setti á Rússa. Seinbúin viđbrögđ Rússa fólust í ţví ađ hćtta innflutningi á íslenskum vörum. Fram til ţess voru Rússar í hópi stćrstu kaupenda á íslenskum sjávarafurđum og lambakjöti.
Um leiđ og Rússar hćttu ađ kaupa makríl af Íslendingum hćkkađi verđ á fćreyskum makríl um 20%. Allar götur síđar hafa Fćreyingar malađ gull á mjög bratt vaxandi sölu á sjávarafurđum til Rússa.
Í ár borga Rússar Fćreyingum 37,4 milljarđa ísl. kr. í beinhörđum gjaldeyri. Ţetta er 11,3 milljarđa aukning frá síđasta ári. Munar heldur betur um ţennan gjaldeyri fyrir 50 ţúsund manna samfélag.
Kaup Rússa nema 27% af útflutningi Fćreyinga. Ţeir eru lang stćrsti viđskiptavinurinn. Í humátt á eftir eru Bretar og Kanar. Ţeir kaupa hvorir fyrir tćpa 15 milljarđa. Ţar á eftir koma Danir, Ţjóđverjar og Kínverjar.
Salan til Rússa er á laxi, makríl og síld. Hinar ţjóđirnar kaupa fyrst og fremst lax. Nema Bretar. Ţeir kaupa nánast einungis ţorsk og ýsu.
Utanríkismál/alţjóđamál | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
31.8.2017 | 08:04
Allir verđa ađ hjálpast ađ
Lambakjötiđ hrannast upp óselt. Ţökk sé međal annars vopnasölubanni sem Gunnar Bragi Sveinsson, ţáverandi utanríkisráđherra, setti á Rússa. Út af fyrir sig var gott ađ draga úr vopnasölu. Brögđ eru ađ ţví ađ vopn séu notuđ til illra verka. Rússar eru seinţreyttir til reiđi. Gunnar Bragi ţurfti ađ ögra ţeim ítrekađ međ digurbarkalegum yfirlýsingum á alţjóđavettvangi til ađ knýja fram viđbrögđ. Seint og síđarmeira tókst ţađ. Rússar hćttu ađ kaupa íslenskt lambakjöt og makríl.
Íslendingar verđa sjálfir ađ hlaupa í skarđiđ sem Rússar skilja eftir. Hrun blasir viđ sauđfjárbćndum. Ţetta eru hamfarir. Allir verđa ađ hjálpast ađ. Öflugt átak ţarf til ađ auka tímabandiđ lambakjötsneyslu á međan markađurinn leitar jafnvćgis.
Góđu fréttirnar koma úr Garđahreppi. Í sumarbyrjun var opnađ ţar Kaupfélag. Ţađ selur lambahakk. Slíkt hafđi ekki sést í íslenskum matvöruverslunum til áratuga - ţrátt fyrir mikla eftirspurn. Kaupfélag Garđahrepps hefur jafnframt sannađ ađ hćgt er ađ verka lambaskrokk ţannig ađ kótelettur séu beinlausar.
Nýveriđ hóf Bónus ađ selja í lítersfötu fulleldađa kjötsúpu. Ţađ er til fyrirmyndar. Almenningur veit ekki af ţessu. Ef hann fćr vitneskju um ţetta er líklegt ađ kjötsúpan verđi einnig seld í 3ja lítra fötu.
Einhver er byrjađur ađ kynna til sögunnar lambabeikon. Man ekki hver.
Ţetta dugir ekki til ađ vinda afgerandi ofan af kjötfjallinu. Almenningur verđur ađ leggjast á árar; leggja hausinn í bleyti og koma međ hugmyndir og ábendingar um hvađ megi betur fara til ađ efla lambakjötsneyslu.
Hér eru punktar í púkkiđ:
- Frosiđ lambakjöt í kćliklefum matvöruverslana er óađlađandi; grátt og guggiđ. Lystugra vćri ađ umbúđirnar sýndu ljósmynd af fulleldađri máltíđ: Steiktu eđa grilluđu kjöti ásamt girnilegu međlćti.
- Hafa einfaldar og spennandi uppskriftir á öllum pakkningum á frosnu lambakjöti. Skipta ţeim út fyrir nýjar međ reglulegu millibili.
- Margir búa einir. Heilt lćri eđa heill lambahryggur er of stór skammtur fyrir ţá. Minni einingar ţurfa einnig ađ vera í bođi. Kannski eins og ţriđjungur af hrygg eđa kvart lćri.
- Ţađ ţarf stöđugt ađ glenna lambakjöt framan í neytendur. Til ađ mynda međ ţví ađ vera međ smakk í öllum helstu stórmörkuđum daginn út og inn. Smakk er einhver virkasta söluađferđ sem til er. Mun betri leiđ til ađ minnka kjötfjalliđ en urđa kjötiđ.
- Margir kvarta undan og undrast ađ kubbasteik hafi hvergi sést til áratuga - ţrátt fyrir mikla eftirspurn.
- Lambagúllas hefur ekki fengist í árarađir - ţrátt fyrir mikla eftirspurn.
- Ţađ ţarf ađ fá lambakjötiđ vottađ sem ţjóđarrétt Íslendinga. Hampa ţví framan í milljónir erlendra ferđamanna. Bjóđa hvarvetna upp á lamborgara (lambaborgara). Engin vegasjoppa má vera svo aum ađ hún bjóđi ekki upp á lamborgara.
- Vöntun er á úrvali lambakjötsáleggs. Hangikjöt og rúllupylsa eru ekki nóg. Ţađ ţarf kjötsneiđar sem keppa viđ roastbeaf og skinku.
- Sumir vinsćlustu veitingastađir landsins selja enga lambakjötsrétti. Munar ţar mestu um Ikea. Ţessu ţarf ađ kippa í liđ.
- Liđur í ađlögunarferli innflytjenda ćtti ađ vera námskeiđ í fjölbreyttri matreiđslu á lambakjöti. Námskeiđiđ getur stađiđ öllum opiđ fyrir vćgt hráefnisgjald.
- Fjölga ţarf fullelduđum lambakjötsréttum án međlćtis. Helst einhverjum sem ţarf ekki ađ hita. Til ađ mynda gćtu lambanaggar veriđ ágćtt snakk (međ pítusósu).
![]() |
Taka allt kjötiđ heim og selja |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Matur og drykkur | Breytt 1.9.2017 kl. 20:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
27.8.2017 | 15:44
Svindlađ á tollinum
Fyrir hátt í fjórum áratugum flutti Íslendingur aftur heim til Íslands eftir langdvöl í Svíţjóđ. Hann hafđi keypt ýmis heimilistćki, fatnađ, sćngurföt og fleira í Svíţjóđ. Hann var međ kvittanir fyrir öllu. Ţćr stađfestu ađ um gamlar notađar vörur var ađ rćđa. Búslóđ sem mađurinn sankađi ađ sér í áranna rás. Ţar međ ţurfti hvorki ađ greiđa vörugjald né söluskatt af henni.
Reyndar keypti hann sjónvarp rétt fyrir heimförina. Bađ búđarmanninn um ađ dagsetja kvittunina nokkur ár aftur í tímann. Sá tók ţví vel og sótti brúsa undir afgreiđsluborđiđ. Opnađi svo pappakassann međ sjónvarpinu, úđađi ryki yfir sjónvarpiđ og sagđi: "Ţú segir tollinum ađ sjónvarpiđ hafi rykfalliđ uppi á háalofti hjá ţér eftir stutta notkun. Ég er alltaf ađ gera svona fyrir Íslendinga á heimleiđ."
Mađurinn vandi sig á sánaböđ í Svíţjóđardvölinni. Sánaklefar á Íslandi kostuđu meira en tvöfalt á viđ samskonar klefa í Svíţjóđ. Mađurinn fjárfesti í glćsilegasta sánaklefa sem hann fann í Svíţjóđ. Skrúfađi bekkina lausa og notađi ţá fyrir vörubretti undir búslóđina sína. Búslóđin smekkfyllti sánaklefann. Ţar međ var hann orđinn gámur en ekki sánaklefi sem fengi á sig hátt vörugjald, söluskatt og allskonar. Á núvirđi erum viđ ađ tala um gjöld upp á meira en hálfa milljón kr.
Ţegar gámurinn var tollafgreiddur ţurfti mađurinn ađ opna hann og sýna innihaldiđ. Hann framvísađi kvittunum. Tollverđir rótuđu dálítiđ í búslóđinni og sannreyndu ađ allt var eins og ţađ átti ađ vera. Er ţeir gengu á braut bankađi einn utan í gáminn og sagđi: "Assgoti eru sćnsku trégámarnir orđnir vandađir."
Eigandinn svarađi: "Já, ég er mjög ánćgđur međ hann. Mér var sagt ađ búslóđ sé miklu betur varin í trégámi en járngámi ţegar siglt er um ólgusjó.. Ţar ađ auki get ég smíđađ sólpall eđa eitthvađ úr timbrinu."
------------------------------------------------------------------------
Til gamans má geta ađ sánaklefi kallast bađstofa á fćreysku.
![]() |
Ein flottasta sánan í eigu Íslendings |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt 28.8.2017 kl. 13:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2017 | 18:44
Stranglega bannađ
Ţađ verđur ađ vera agi í íslenskri hrossarćkt. Annars er hćtta á losarabrag. Mörgum er treystandi til ađ taka réttar ákvarđanir. En ekki öllum. Brögđ hafa veriđ ađ ţví ađ innan um ábyrga og rétthugsandi hrossaeigendur leynist óreiđupésar. Ţeim verđur ađ setja stól fyrir dyr áđur en allt fer úr böndum. Ill nauđsyn kallar á lög.
1. Bannađ er ađ gefa hesti nafn međ ákveđnum greini.
2. Bannađ er ađ gefa hesti nafn sem fallbeygist ekki. Mikilvćgt er ađ nafniđ taki eignarfallsendingu.
3. Bannađ er ađ gefa hesti erlent heiti. Ţađ skal vera rammíslenskt.
4. Bannađ er ađ gefa hesti ćttarnafn.
5. Bannađ er ađ gefa hesti nafn sem gefur til kynna ađ hann sé önnur dýrategund. Ţannig má ekki gefa hesti nafn á borđ viđ Asna, Kisa, Hrút eđa Snata.
6. Bannađ er ađ gefa hesti nafn sem vísar til rangs litar. Einlitur hestur má ekki heita Skjóni eđa Sokki. Grár hestur má ekki heita Jarpur.
7. Bannađ er ađ gefa hesti dónalegt nafn, svo sem Gamli građur.
8. Bannađ er ađ gefa hesti nafn sem veldur honum vanliđan og angist.
9. Bannađ er ađ gefa hesti nafn međ óvenjulegum rithćtti. Blesi skal ţađ vera en ekki Blezy.
10. Bannađ er ađ kalla hest léttúđlegu gćlunafni. Um hann skal í öllum tilfellum rćtt og skrifađ međ réttu nafni. Hest sem heitir Sörli má ekki kalla Sölla.
Brot á hestanafnalögum getur varđađ sektum ađ upphćđ 50 ţúsund kr. Ítrekuđ brot geta kostađ brottrekstur međ skömm úr Alţjóđahreyfingu íslenskra hesta.
Spaugilegt | Breytt 10.9.2017 kl. 16:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
24.8.2017 | 10:39
Áríđandi upplýsingar fyrir sólarlandafara!
Margur sólarlandafarinn er varla fyrr mćttur á svćđiđ en magakveisa herjar á hann. Ástćđan er matareitrun. Löngum hefur ferđalöngum veriđ kennt ađ forđast hrátt salat, grćnmeti og annađ ćti sem er skolađ upp úr kranavatni. Vatniđ er löđrandi í bakteríum sem íslenska magaflóran rćđur ekki viđ.
Ástćđa er til ađ hefja dvölina á ţví ađ slafra í sig jógúrt. Hún inniheldur varnir gegn vondum bakteríum.
Nú hefur spćnska blađiđ El Pais bćtt inn í umrćđuna fróđleik. Ţađ greinir frá rannsókn á mat og drykk hjá svokölluđum götusölum. Bćđi á götum úti og á strönd er krökkt af söluborđum og söluvögnum. Í Barcelóna eru 7000 veitingagötusalar. Rannsóknin leiđir í ljós ađ ţarna er pottur mélbrotinn. Sóđaskapurinn er yfirgengilegur. Matur og drykkur fljóta í E-coli bakteríum. Magniđ er svo svakalegt ađ ţađ er bein ávísun á matareitrun. Meira ađ segja frambornir áfengir kokteilar eru 7200% yfir skađlausum mörkum.
Götusalarnir starfa á svörtum markađi. Ţeir lúta ekki heilbrigđiseftirliti né öđrum kröfum sem gerđar eru til fastra veitingastađa innanhúss. Ţeir halda ekki bókhald og borga lítil sem engin gjöld. Ţađ er önnur saga. Hitt skiptir öllu: Til ađ lágmarka hćttu á matareitrun á ströndinni og göngugötunni: Ekki kaupa neitt matarkyns af götusölunum.
Matur og drykkur | Breytt 25.8.2017 kl. 14:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2017 | 00:03
Örstutt smásaga um vísitölufjölskylduna
Ţađ er sunnudagskvöld. Fjölskyldan situr inni í stofu. Hver međ sinn snjallsíma: Mamma, pabbi, 12 ára sonur og 14 ára dóttir. Enginn hefur sagt orđ allan daginn. Skyndilega rýfur mamman ţögnina og segir: "Mér finnst eins og ég sé ađ gleyma einhverju. Ég veit ekki hverju." Hún fćr engin viđbrögđ. Tveimur klukkutímum síđar endurtekur hún ţetta. Dóttirin svarar: "Viđ höfum ekkert borđađ í dag."
Mamman: "Er ţađ?" Sonurinn bćtir viđ: "Viđ borđuđum ekkert í gćr heldur."
Mamman: "Er ţađ rétt? Borđuđum viđ kannski ekki á föstudaginn? Ţiđ fenguđ ţó áreiđanlega ađ borđa í skólanum á föstudaginn."
Sonurinn: "Já, ég fékk mat í skólanum á föstudaginn. Síđan hef ég ekkert borđađ."
Mamman: "Viđ höfum gleymt ađ borđa ţessa helgi. Viđ verđum ađ gera eitthvađ í ţví."
Pabbinn: "Ţetta er ekkert mál. Ţiđ krakkarnir fáiđ mat í skólanum á morgun. Viđ mamma ykkar fáum okkur heita pylsu međ öllu í Costco á morgun. Hún kostar bara 299 krónur ţar."
Mamman: "Ţetta er í fjórđa sinn í ţessum mánuđi sem viđ gleymum ađ borđa yfir heila helgi. Viđ gleymum okkur alltof mikiđ í snjallsímanum. Viđ verđum ađ endurskođa ţetta. Ţetta gengur ekki svona."
Pabbinn: "Ertu eitthvađ verri kona? Viđ spörum hellings matarkostnađ ţessar helgar. Nćr vćri ađ nota peninginn sem sparast til ađ kaupa ennţá betri snjallsíma. Viđ erum hvort sem er ömurlegir kokkar og uppvaskiđ fer alltaf í eitthvađ rugl. Manstu ţegar ég skrúbbađi í ógáti međ uppţvottasápu óniđursneitt hálft heilkornabrauđ? Eđa ţegar mér skrikađi fótur og ég datt ofan í vaskinn og braut allt leirtauiđ? Svo var ég allt í einu farinn ađ ţerra diskana međ skyrtuhorninu mínu."
Mamman: "Já, ţú meinar ţađ. Ég er alveg til í ađ fá nýjan snjallsíma."
Börnin í kór: "Ég líka!"
.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
19.8.2017 | 09:45
Stórmerkilegt fćreyskt myndband spilađ 7,6 milljón sinnum
Fćreysk myndbönd eiga ţess ekki ađ venjast ađ vera spilađ yfir 7 milljón sinnum. Eitt myndband hefur ţó veriđ spilađ yfir 20 milljón sinnum. Nú hefur annađ myndband slegiđ í gegn. Ţađ heitir "Hvat ger Rúni viđ hondini". Ţar sýnir Rúni Johansen svo liđuga hönd ađ nánast er um sjónhverfingu ađ rćđa.
Myndbandiđ hefur veriđ spilađ 4 ţúsund sinnum á ţútúpunni og 7,6 milljón sinnum á LADbible síđunni. Ţađ hefur fengiđ yfir 100 ţúsund "like", 81 ţúsund "komment" og veriđ deilt 50,450 sinnum.
Mest spilađa fćreyska myndbandiđ sýnir hval springa er Bjarni Mikkelsen stingur í hann.
Spil og leikir | Breytt 20.8.2017 kl. 09:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)