20.10.2019 | 05:42
Sökudólgurinn gripinn glóđvolgur
Í árdaga tölvunnar var sett upp tölvustofa í Háskóla Íslands. Tölvurnar voru frumstćđar og kostuđu skildinginn. Fljótlega kom upp sú stađa ađ lyklaborđin biluđu. Ţetta var eins og smitandi sýki. Takkar hćttu ađ virka eđa skiluđu annarri niđurstöđu en ţeim var ćtlađ. Ţetta var ekki eđlilegt. Grunur kviknađi um ađ skipulögđ skemmdarverk vćru unnin á tölvunum. Eftirlitsmyndavélum var komiđ fyrir í stofunni svo lítiđ bar á. Ţćr fundu sökudólginn. Hann reyndist vera rćstingakona; afskaplega samviskusöm og vandvirk međ langan og farsćlan feril.
Á hverju kvöldi skóladags ţreif hún tölvustofuna hátt og lágt. Međal annars úđađi hún yfir tölvurnar sótthreinsandi sápuúđa sem hún ţurrkađi jafnharđan af. Hún úđađi einnig vökvanum yfir lyklaborđin. Vandamáliđ er ađ enn í dag - nálćgt 4 áratugum síđar - eru lyklaborđ afskaplega viđkvćm fyrir vökva. Ég votta ţađ.
Tölvur og tćkni | Breytt s.d. kl. 05:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
14.10.2019 | 19:47
Bráđskemmtilegt "Laugardagskvöld međ Matta".
Ég var ađ hlusta á skemmtilegan útvarpsţátt, "Laugardagskvöld međ Matta", á Rás 2. Gestur ţáttarins var Logi Einarsson, formađur Samfylkingarinnar og Skriđjökull. Hann kynnti fyrir hlustendum uppáhaldslögi sín. Ţar ratađi hver gullmolinn á fćtur öđrum. Gaman var á ađ hlýđa. Líka vegna ţess ađ fróđleiksmolar flutu međ.
Snemma í ţćttinum upplýsti Logi undanbragđalaust ađ hans uppáhald sé bítillinn Paul McCartney. "Minn mađur," sagđi hann. Ekki vissi hann af hverju. Hinsvegar ţykir honum vćnt um ađ dóttir hans hefur erft ađdáun á Paul. Svo spilađi Logi uppáhaldslag sitt međ Paul. Ţađ var "Come Together", opnulag plötunnar "Abbey Road".
Er lagi lauk gerđi Matti athugasemd. Hann sagđi: "Ţetta er Lennon-legt lag en Paul á ţađ, eđa hvađ?" Logi svarađi: "Ég veit ţađ ekki. Ég hef aldrei kafađ ţađ djúpt í ţetta."
Hiđ rétta er ađ lagiđ er samiđ og sungiđ af John. Höfundareinkenni Johns eru sterk. Bćđi í söng og blúsađri laglinu.
Í frekara spjalli um "Abbey Road" upplýsti Logi ađ John og Paul hafi átt óvenju fá lög á plötunni. Hún vćri eiginlega plata George Harrisons. Hann eigi ţessi fínu lög eins og "Here Comes the Sun" og "Strawberry Fields".
Hiđ rétta er ađ Lennon-McCartney eiga 14 af 17 lögum plötunnar. Ringo á 1 og George 2. Vissulega eru lög George virkilega góđ og ađ mati mínu og Lennons bestu lög plötunnar. Logi nefndi réttilega "Here Comes the Sun" en hitt lag George á plötunni er "Something". Ekki "Strawberry Fields". Ţađ er Lennon-lag sem kom einungis út á smáskífu en löngu síđar á geisladiski međ "Sgt. Peppers...".
Tekiđ skal fram ađ međ ţessum pósti er ég ekki ađ reyna ađ gera lítiđ úr stjórnmálamanninum Loga Einarssyni. Stjórnmálamenn ţurfa ekki ađ vera međ sögu Bítlanna á hreinu. Sú hljómsveit starfađi stutt. Plötuupptökur hennar spönnuđu ađeins 6 ár, 1963-1969. Ţeim mun merkilegra og skemmtilegra er ađ fólk sé ađ hlusta á Bítlana 2019. Hvađ varđ um allar hinar hljómsveitirnar sem tröllriđu markađnum á sama tíma og Bítlarnir: Love, Iron Butterfly, Crazy World of Arthur Brown, Soft Machine, Them, Strawbs...?
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
10.10.2019 | 00:03
Hótel Jórvík
Á tíunda áratug síđustu aldar átti ég erindi til Ţórshafnar á Langanesi. Var međ skrautskriftarnámskeiđ ţar. Gisti á Hótel Jórvík. Hótelstýran var hölt öldruđ kona. Hún var hálf heyrnarlaus. Lá ţví hátt rómur. Auk mín dvöldu á hótelinu flugmađur og dúettinn Súkkat.
Ég kom mér fyrir í hótelinu síđdegis á föstudegi; hafđi herbergisdyrnar opnar. Ég heyrđi ađ hótelsíminn hringdi. Kerla svarađi. Viđmćlandinn var auđheyranlega ađ bjóđast til ađ hjálpa til. Hótelstýran hrópađi í tóliđ: "Ég slepp létt frá kvöldmatnum. Ég er bara međ nýja kalla sem komu í dag. Hinir fóru í morgun. Ég get ţess vegna hitađ upp afganginn af karríkjötinu frá ţví á mánudaginn og nýju kallarnir fatta ekki neitt!"
Um kvöldiđ var karríkjötsréttur í matinn.
Hótelstýran lét okkur vita ađ hún hefđi bjór og vín til sölu. Viđ gestirnir pöntuđum eitthvađ af veigum. Enginn var barinn. Konan sótti drykkina inn í hliđarherbergi. Hún bar ţá ekki fram í umbúđum heldur í vatnsglösum.
Nokkrum árum síđar var forsíđufrétt í DV um ađ viđ húsleit í Hótel Jórvík hefđi fundist töluvert magn af heimabrugguđum bjór og víni ásamt bruggtólum. Hótelstýran sagđist ekki selja áfengi. Hún vćri ađ geyma ţetta fyrir sjómann sem hún vissi ekki hvađ hét.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
4.10.2019 | 23:29
Stórtíđindi af breskri plötusölu
Ţćr eru óvćntar sviptingarnar í plötusölu í Bretlsndi ţessa dagana. Og ţó. Einhverjir voru búnir ađ spá ţví ađ mögulega gćti ţessi stađa komiđ upp. Formlegt heiti breska plötusölulistans er Official Album Chart Top 100. Hann mćlir plötusölu í öllu formi, hvort heldur sem er vinyl, geisladiskar, niđurhal eđa streymi.
Ţetta eru söluhćstu plöturnar í dag:
1. Abbey Road međ Bítlunum
2. Wy Me Why Not međ Liam Gallagher
3. Divinlely Uninspired To A Hellish Extent međ Levis Capaldi
Aldrei áđur hefur hálfrar aldar gömul plata snúiđ aftur á vinsćldalistann og endurheimt 1. sćtiđ. Ţetta er met. Á sínum tíma var platan í 13 vikur á listanum.
Í 28. sćti er Bítlaplatan 1. Hún hefur veriđ á listanum í 230 vikur. Ţar af hćst í 1. sćti.
Í 69. sćti er Bítlaplatan Sgt Peppers Lonely Hearts Club Band. Hún hefur veriđ á listanum í 274 vikur. Ţar af hćst í 1. sćti.
Í 72. sćti er Bítlasafnplatan 1967-1970. Hún hefur veriđ í 41 viku á listanum. Ţar af hćst í 4. sćti.
Í 94. sćti er Bítlaplatan Hvíta albúmiđ. Hún hefur veriđ í 37 vikur á listanum. Ţar af hćst í 1. sćti.
Menning og listir | Breytt 5.10.2019 kl. 02:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
30.9.2019 | 23:42
Bítlalögin sem unga fólkiđ hlustar á
Síđasta platan sem Bítlarnir hljóđrituđu var "Abbey Road". Hún kom út undir lok september 1969. Ţess vegna er hún hálfrar aldar gömul. Meiriháttar plata. Hún hefur elst vel. Hún gćti hafa komiđ út í ár án ţess ađ hljóma gamaldags.
Svo merkilegt sem ţađ er ţá hlustar ungt fólk í dag á Bítlana. Bćđi börn og unglingar. Í minni fjölskyldu og í mínum vinahópi eru Bítlarnir í hávegum hjá fjölda barna og unglinga. Lokaritgerđ frćnku minnar í útskrift úr framhaldsskóla var um Bítlana. Mjög góđ ritgerđ. Fyrir nokkrum árum hitti ég 14 ára dóttur vinafólks mín. Hún var svo fróđ um Bítlana ađ ég hafđi ekki rođ viđ henni um smáatriđi tengd Bítlatónlist. Tel ég mig ţó vera nokkuđ fróđan um Bítlana.
Spilanir á músíkveitunni Spotify stađfesta ađ ţetta sama má segja um börn og unglinga út um allan heim.
Ţessi Bítlalög eru mest spiluđ af börnum og unglingum upp ađ 18 ára aldri.
1. Here Comes The Sun
2. Let It Be
3. Hey Jude
4. Come together
5. Twist And Shout
Ţessi lög eru mest spiluđ af aldurshópnum 18 - 24 ára:
1. I Want To Hold Your Hand
2. Here Comes The Sun
3. Come Together
4. Penny Lane
5. You Never Give Me Your Money
Tónlist | Breytt 5.10.2019 kl. 01:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
25.9.2019 | 23:59
Ný James Bond mynd tekin í Fćreyjum
2. apríl 2020 verđur sýnd ný kvikmynd um breska leyniţjónustumanninn James Bond, 007. Hún hefur fengiđ heitiđ No Time to Die. Hún verđur 25. myndin um njósnarann. Jafnframt er ţetta 5. myndin međ Daniel Craig í hlutverki 007.
Tökur eru hafnar. Tökuliđiđ er mćtt til Fćreyja ásamt áhćttuleikurum. Líklega á ađ gera út á fagurt en sumstađar hrikalegt landslag eyjanna. Enn ein stađfestingin á ţví ađ Fćreyjar og Fćreyingar hafa stimplađ sig inn á heimskortiđ.
22.9.2019 | 23:05
Plötuumsögn
- Titill: Punch
- Flytjandi: GG blús
- Einkunn: ****1/2 (af 5)
GG blús er dúett skipađur Guđmundunum Jónssyni og Gunnlaugssyni. Sá fyrrnefndi spilar á gítar og er einn lunknasti smellasmiđur landsins; ţekktastur fyrir störf sín međ Sálinni, Pelican, Vestanáttinni, Nykri og Kikki. Hinn síđarnefndi er best kunnur fyrir trommuleik međ Kentári, X-izt og Sixties. Báđir voru í Jötunuxum. Báđir eru ágćtir söngvarar og raddir ţeirra liggja vel saman.
Töluverđa fćrni og útsjónasemi ţarf til ađ gítar/trommur dúó hljómi sannfćrandi; ađ hlustandinn sakni ekki drynjandi bassalínu. Hljómsveitum eins og White Stripes, Black Keys og dauđapönksveitinni Gyllinćđ hefur tekist ţetta. Líka GG blús - og ţađ međ glćsibrag!
GG blús spilar kraftmikinn og harđan rokk-blús. Platan er bćrilega fjölbreytt. Sum laganna eru mýkt međ rólegum kafla. Hluti af söng í sumum lögum er keyrđur í gegnum "effekt" sem lćtur hann hljóma í humátt ađ gjallarhorni. Sjö af tíu lögum plötunnar eru frumsamin. Öll af Guđmundi Jónssyni. Ţar af ţrjú samin međ nafna hans. Í hinu KK-lega "Lost and Found" er Mike Pollock međhöfundur nafnanna og gestasöngvari. Ađkomulögin eru "Money" eftir Roger Waters, "Cradle" eftir Rory Gallagher og "Spoonful" eftir Willie Dixon, best ţekkt í flutningi Howlin´ Wolf.
Flutningur GG blús á "Money" er ólíkur frumútgáfunni međ Pink Floyd. Framan af er ekki auđheyrt hvađa lag um rćđir. Sigurđur Sigurđsson - iđulega kenndur viđ Kentár - skreytir lagiđ listavel međ munnhörpublćstri. Hiđ sama gerir Jens Hansson međ saxófónspili í "Spoonful". Blessunarlega er platan laus viđ hefđbundin rokk- og blúsgítarsóló, ef frá er taliđ progađ titillag. Í ţví er sitthvađ sem kallar Audioslave upp í hugann. Rétt eins og í "Touching the Void".
Yrkisefniđ er töluvert blúsađ. Sungiđ er um allskonar krísur og deilt á misskiptingu auđs og fégrćđgi. Allt á ensku. Sýna má ţví umburđarlyndi vegna útlendu laganna.
Hljómur á plötunni er sérdeilis hreinn og góđur. Eiginlega er allt viđ plötuna afskaplega vel heppnađ. Ţađ á einnig viđ um umslagshönnun Ólafar Erlu Einarsdóttur.
Skemmtileg og flott plata!
Tónlist | Breytt 23.9.2019 kl. 21:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2019 | 06:09
Glćsileg ljóđabók
Fyrir helgi gaf bókaútgáfan Skrudda út ljóđabókina Ástkćra landiđ. Höfundur er söngvarinn og söngvaskáldiđ Ólafur F. Magnússon. Einnig ţekktur sem farsćll og frábćr lćknir, baráttumađur fyrir umhverfisvernd og verndun gamalla húsa, borgarfulltrúi og besti borgarstjóri Reykjavíkur.
Útgáfuhófiđ var í Eymundsson á Skólavörđustíg. Ég man ekki eftir jafn fjölmennu útgáfuhófi. Ţađ var trođiđ út úr dyrum. Bókin seldist eins og heitar lummur.
Ađ ţví kom ađ Ólafur gerđi hlé á áritun. Ţá fékk hann Ómar Ragnarsson og Guđna Ágústsson til ađ ávarpa gesti. Allir fóru ţeir á kostum. Reittu af sér brandara á fćribandi. Gestir lágu í krampa af hlátri. Svo sungu Ólafur og Guđlaug Dröfn Ólafsdóttir fallegt lag viđ undirleik gítarsnillingsins Vilhjálms Guđjónssonar.
Ólafur yrkir á kjarnyrtri íslensku í hefđbundnu formi stuđla, höfuđstafa og endaríms. Hann tjáir ást sína á fósturjörđinni og náttúrunni. Einnig yrkir hann um forfeđurna, fegurđ og tign kvenna, kćrleikann og bjartsýni. En líka um dimma dali sem hann hefur ratađ í. Ţá deilir hann á efnishyggju og rétttrúnađ. Hér er sýnihorn:
Ástkćra landiđ
Ástkćra landiđ, elskađa ţjóđ,
ást mín til ţín er hjartanu kćr.
Ég einlćgt vil fagna feđranna slóđ
og fćra til nútíđar söguna nćr.
Áarnir traustir, sem tryggđu vorn hag,
viđ tignum ţá, heiđrum og fullveldiđ dýrt.
Viđ mćrum ţá alla hvern einasta dag.
Enn ber ađ ţakka, viđ kveđum ţađ skýrt.
_____________________________________________________________
Uppfćrt 18.9.2019: Áskćra landiđ er í 1. sćti á sölulista Eymundsson.
Ljóđ | Breytt 18.9.2019 kl. 18:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (27)
10.9.2019 | 07:22
Bítlalögin sem John Lennon hatađi
". .
Bítillinn John Lennon var óvenju opinskár og hreinskiptinn. Hann sagđi undanbragđalaust skođun sína á öllu og öllum. Hann var gagnrýninn á sjálfan sig ekki síđur en ađra. Ekki síst lög sín. Hann hafđi óbeit á mörgum lögum Bítlanna - ţó hann hafi sćtt sig viđ ađ ţau vćru gefin út á sínum tíma vegna ţrýstings frá útgefandanum, EMI. Bítlarnir voru samningsbundnir honum til ađ senda frá sér tvćr plötur á ári og einhverjar smáskífur. Til ađ uppfylla samninginn leyfđu Bítlarnir lögum ađ fljóta međ sem voru uppfyllingarefni - ađ ţeirra mati.
Ađ sögn gítarleikarans George Harrison litu ţeir Ringo og Paul alltaf á John sem leiđtoga hljómsveitarinnar - ţrátt fyrir ađ stjórnsami og ofvirki bassaleikari Paul McCartney hafi ađ mörgu leyti stýrt Bítlunum síđustu árin eftir ađ umbođsmađurinn Brian Epstein dó.
Paul sýndi George og trommuleikaranum Ringo ofríki ţegar ţar var komiđ sögu. En bar lotningarfulla virđingu fyrir John. Stofnađi ekki til ágreings viđ hann. Ţeir skiptust á tillögum og ábendingum um sitthvađ sem mátti betur fara. Báđir tóku ţví vel og fagnandi. Ţeir voru fóstbrćđur.
Ţó komu upp nokkur dćmi ţar sem Paul mótmćlti John. Fyrst var ţađ ţegar John dúkkađi upp međ lagiđ "She said, she said" á plötunni Revolver. Paul ţótti ţađ vera óbođleg djöflasýra. John fagnađi ţví viđhorfi vegna ţess ađ hann ćtlađi laginu einmitt ađ túlka sýrutripp. Í stađ ţess ađ rífast um lagiđ stormađi Paul úr hljóverinu og lét ekki ná á sér viđ hljóđritun ţess. Lagiđ var hljóđritađ án hans. George spilađi bassalínuna í hans stađ. Síđar tók Paul lagiđ í sátt og sagđi ţađ vera flott.
Í annađ sinn lagđist Paul - ásamt George og Ringo - gegn furđulagi Johns "Revolution #9". En John fékk sínu fram. Lagiđ kom út á "Hvíta albúminu". Hann var sá sem réđi. Samt ţannig ađ hann umbar öll ţau lög Pauls sem honum ţóttu léleg.
Eftirtalin Bítlalög hafđi John óbeit á. Fyrir aftan eru rökin fyrir ţví og tilvitnanir í hann.
1 It´s Only Love (á plötunni Help) - "Einn af söngvum mínum sem ég hata. Glatađur texti."
2 Yes it Is (smáskífa 1965) - "Ţarna reyndi ég ađ endurtaka leikinn međ lagiđ This Boy. En mistókst.
3 Run For Your Life (á Rubber Soul). - "Uppfyllingarlag. Enn eitt sem mér líkađi aldrei. George hefur hinsvegar alltaf haldiđ upp á ţetta lag."
4 And Your Bird Can Sing (á Revolver). - "Enn ein hörmung. Enn eitt uppfyllingarlagiđ."
5 When I m Sixty-Four (á Sgt. Peppers...) - "Afalag Pauls. Ég gćti aldrei hugsađ mér ađ semja svona lag."
6 Glass Onion (á Hvíta albúminu) - "Ţetta er ég ađ semja uppfyllingarlag"
7 Lovely Rita (á Sgt. Peppers...) - "Ég kćri mig ekki um ađ semja lag um fólk á ţennan hátt."
8 I ll Get You (á 4ra laga smáskífu 1963) - "Viđ Paul sömdum ţetta saman en lagiđ var ekki ađ gera sig."
9 Hey Bulldog (á smáskífu 1967) - "Góđ hljómgćđi á merkingarlausu lagi."
10 Good Morning, Good Morning (á Sgt. Peppers...) - "Einskonar bull en samt falleg orđ. Uppfyllingarlag."
11 Hello, Goodbye - John var mjög ósáttur ţegar EMI gaf ţetta lag út á smáskífu. Honum ţótti ţađ ekki ţess virđi.
12 Lady Madonna (á smáskífu 1968) - "Gott píanóspil sem nćr ţó aldrei flugi."
13 Ob-La-Di Ob-La-Da (á Hvíta albúminu) - Paul vildi ólmur ađ ţetta lag yrđi gefiđ út á smáskífu. John tók ţađ ekki í mál.
14 Maxwells Silver Hammer (á Abbey Road) - John leiddist ţetta lag svo mikiđ ađ hann harđneitađi ađ taka ţátt í hljóđritn ţess. Engu ađ síđur sagđi hann ţađ vera ágćtt fyrir hljómsveitina ađ hafa svona léttmeti međ í bland. Ţannig nćđu plöturnar til fleiri.
15 Martha My Dear (á Hvíta albúminu) - John leiddist ţetta lag. Samt ekki meira en svo ađ hann spilar á bassa í ţví.
16 Rocky Racoon (á Hvíta albúminu) - "Vandrćđalegt!"
17 Birtday (á Hvíta albúminu) - "Drasl!"
18 Cry Baby Cry (á Hvíta albúminu) - "Rusl!"
19 Sun King (á Abbey Road) - "Sorp!"
20 Mean Mr. Mustard (á Abbey Road) - "Óţverri sem ég samdi í Indlandsdvölinni."
21 Dig a Pony (á Let it be) - "Enn ein vitleysan. Ég var í orđaleik og ţetta er bókstaflega rugl."
22 Let It Be (á Let it be) - "Ţetta lag hefur ekkert međ Bítlana ađ gera. Ég skil ekki hvađ Paul var ađ pćla međ ţessu lagi."
Rétt er ađ taka fram ađ John skipti oft um skođun á flestum hlutum. Líka á Bítlalögum. Til ađ mynda er til upptaka ţar sem hann hrósar Let It Be sem glćsilegu lagi. Ţetta fór dálítiđ eftir dagsforminu; hvernig lá á honum hverju sinni.
Tónlist | Breytt 11.9.2019 kl. 20:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
5.9.2019 | 01:12
Kvikmyndaumsögn
- Titill: Hérađiđ
- Helstu leikarar: Sigurđur Sigurjónsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir...
- Handrit og leikstjórn: Grímur Hákonarson
- Einkunn: **** (af 5)
Ţessi áhugaverđa kvikmynd átti upphaflega ađ vera heimildamynd um Kaupfélag Skagfirđinga. Vegna hrćđslu Skagfirđinga viđ ađ tjá sig um hiđ alltumlykjandi skagfirska efnahagssvćđi reyndist ógjörningur ađ fá viđmćlendur til ađ tjá sig fyrir framan myndavél. Ţar fyrir utan eru margir Kaupfélagssinnar af hugsjón. Telja ađ ofríki Kaupfélagsins veiti mörgum vinnu og standi gegn ţví ađ peningar samfélagsins fari suđur. Kaupfélag Skagfirđinga stendur svo sterkt ađ lágvöruverslanir á borđ viđ Bónus, Krónuna og Nettó eiga ekki möguleika á ađ keppa viđ KS í Skagafirđi Skagfirđingar vilja fremur versla í dýrustu búđ landsins, Skagfirđingabúđ Kaupfélagsins, en ađ peningur fyrir greiddar vörur fari úr hérađinu.
Ég er fćddur og uppalinn Skagfirđingur. Ég votta ađ margar senur myndarinnar eiga sér fyrirmynd í raunveruleikanum. Jafnvel flestar. Sumar samt í hliđstćđu. Í myndinni er stofnađ mjólkursamlag til höfuđs Kaupfélaginu. Í raunveruleika stofnađ pabbi minn og fleiri bćndur sláturhús til höfuđs KS.
Kvikmyndin fer rólega af stađ. Eftir fćđingu kálfs og dauđsfall vörubílstjóra gerist myndin dramaatísk. Hún er spennandi, áhrifarík og vekur til umhugsunar. Flott í flesta stađi.
Arndís Hrönn er sannfćrandi í hlutverki reiđu ekkjunnar. Ég man ekki eftir ađ hafa séđ ţessa leikkonu áđur. Ađrir leikarar standa sig einnig međ prýđi. Ekki síst Sigurđur Sigurjónsson. Hann túlkar Ţórólf, nei ég meina Eyjólf kaupfélagsstjóra, af snilld.
Gaman er ađ sjá hvađ fjós eru orđin vélvćdd og sjálfvirk.
Ég mćli međ ţví ađ fólk skreppi í bíó og kynnist skagfirska efnahagssvćđinu.
Kvikmyndir | Breytt 6.9.2019 kl. 11:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
28.8.2019 | 09:04
Smásaga um gamlan mann
Jói Jóns er 97 ára. Hann er ern og sjálfbjarga. Býr einn í hrörlegu einbýlishúsi. Ţađ er gamalt og kallar á stöđugt viđhald. Jói er međvitađur um ţađ. Honum ţykir skemmtilegt ađ dytta ađ ţví. Hann hefur hvort sem er ekki margt annađ fyrir stafni.
Ađ ţví kom ađ Jói ţurfti ađ tjarga ţakiđ til ađ verja ţađ betur gegn vćtu. Er langt var liđiđ á verk missti hann fótanna á bröttu ţakinu. Sveif á hausinn. Viđ ađrar ađstćđur hefđi hann rúllađ fram af ţakinu og kvatt ţennan heim á stéttinni fyrir neđan. Í ţessu tilfelli límdist hann viđ blauta tjöruna. Svo rćkilega ađ hann gat sig hvergi hrćrt. Hékk bara límdur á ţakinu. Ţađ var frekar tilbreytingalaust. Hann kallađi á hjálp. Röddin var veik og barst ekki langt utan hússins.
Kallinn kvartađi ekki undan veđrinu. Ţađ var honum hagstćtt. Nokkrum klukkutímum síđar áttu barnungir strákar leiđ framhjá húsinu. Ţeim ţótti einkennilegt ađ sjá mann límdan viđ húsţak. Komnir heim til sín sögđu ţeir frá ţessu sérkennilega ţakskrauti. Mamma eins ţeirra hringdi í lögguna. Löggan er ţaulvön ađ bjarga köttum ofan úr trjám. Henni ţótti ekki meira mál ađ bjarga ellilífeyrisţega ofan af húsţaki.
Kominn niđur af ţakinu tók Jói stađfasta ákvörđun um ađ fara aldrei aftur upp á ţak. Hvorki á sínu húsi né öđrum.
Spaugilegt | Breytt 30.8.2019 kl. 20:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
25.8.2019 | 00:00
Einfaldur skilnađur - ekkert vesen
Hver kannast ekki viđ illvíga hjónaskilnađi? Svo illvíga ađ hjónin ráđa sér lögfrćđinga sem fara međ máliđ til skiptastjóra. Matsmenn eru kallađir til. Ţeir telja teskeiđar, diska og glös. Tímakaupiđ er 30 ţúsund kall. Heildarkostnađurinn viđ skilnađinn er svo hár ađ allar eigur eru seldar á brunaútsölu til ađ hćgt sé ađ borga reikningana. Ţađ sem eftir stendur er lítiđ eđa ekkert handa hjónunum.
Miđaldra bóndi í Kambódíu valdi ađra leiđ er hjónabandiđ brast eftir tuttugu ár. Hann sagađi húsiđ í tvennt. Öđrum eigum skipti hann í fjóra hluta. Ţau eiga nefnilega tvo syni. Ţessu nćst lét hann flytja sinn helming hússins heim til aldrađra foreldra sinna. Ţar klambrađi hann hálfhýsinu utan á hús ţeirra.
Konan býr međ sonunum í sínu hálfhýsi ţar sem stóđ.
Mađurinn átti frumkvćđiđ ađ skilnađinum. Hann sakar konuna um ađ hugsa ekki nógu vel um sig. Hann hafi veriđ vanrćktur eftir ađ hann fárveiktist andlega.
Spaugilegt | Breytt 28.8.2019 kl. 19:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
22.8.2019 | 05:52
Spornađ gegn matarsóun
Matarsóun er gríđarmikil á Íslandi - eins og víđa um heim allan. Algengt er ađ fólk kaupi of mikiđ matarkyns fyrir heimiliđ. Maturinn rennur út á tíma og skemmist. Sama vandamál hrjáir matvöruverslanir. Svo eru ţađ veitingastađirnir. Einkum ţeir sem bjóđa upp á hlađborđ. Margir hrúga óhóflega á diskinn sinn og leifa helmingnum.
Í Hong Kong er veitingastađur sem býđur upp á hlađborđ. Gestir eru hvattir til ađ taka lítiđ á diskinn sinn; fara ţess í stađ fleiri ferđir ađ hlađborđinu. 1000 kr. aukagjald er sett á reikning ţeirra sem klára ekki af disknum sínum. Ţetta mćttu íslensk veitingahús taka upp.
18.8.2019 | 05:22
Hvađ ef John og Paul hefđu aldrei kynnst?
1956 var litla enska hafnarborgin Liverpool "slömm". Margir Englendingar neituđu ađ viđurkenna Liverpool sem hluta af Englandi. Ţetta ár bankađi 14 ára gutti, Paul McCartney, hjá 16 ára bćjarvillingnum John Lennon. Bauđ sig fram sem gítarleikara, söngvara og lagahöfund í hljómsveit Johns, The Querrymen. Ţarna varđ til öflugasta tvíeyki sögunnar. Frábćrt söngvapar, hugmyndaríkir flytjendur og djarfir tilraunakenndir útsetjarar sem toguđu og teygđu tónlist lengra og víđar en áđur ţekktist.
The Querrymen breyttust í The Beatles. Á íslensku alltaf kallađir Bítlarnir. Bítlarnir frá Liverpool rúlluđu heimsbyggđinni upp eins og strimlagardínu. Allt í einu urđu Liverpool og England ráđandi forysta í dćgurlagamarkađi heimsins.
Pabbi Johns, Freddie Lennon, var söngvari, söngvaskáld og banjoleikari. Mamma Johns var líka banjoleikari og píanóleikari. John ólst ekki upp hjá ţeim en erfđi frá ţeim tónlistarhćfileika. Ţegar plötufyrirtćkiđ EMI gerđi útgáfusamnning viđ Bítlana var ţađ munnhörpuleikur Johns sem heillađi upptökustjórann, George Martin, umfram annađ.
Pabbi Pauls lagđi hart ađ honum ađ fara í markvisst tónlistarnám. Rökin voru: "Annars endar ţú eins og ég; ađ spila sem láglaunamađur á pöbbum." En Paul valdi ađ lćra sjálfur ađ spila á gítar og píanó.
Foreldrar George Harrison eru sagđir hafa veriđ góđir söngvarar. Mamma hans er skráđ međhöfundur "Piggies" á Hvíta albúminu.
Ringó Starr ólst upp á tónlistarheimili. Ţar var allt fullt af hljóđfćrum af öllu tagi. Hann hélt sig viđ trommur en getur gutlađ á píanó og gítar.
Synir allra Bítlanna hafa haslađ sér völl sem tónlistarmenn. Zak Starkey, sonur trommuleikarans Ringos, hefur vegnađ vel sem trommuleikari The Who og Oasis. Eldri sonur Johns, Julian, kom bratt inn á markađ 1984 međ laufléttu alltof ofunnu reggí-lagi um pabba sinn, "Too Late for goodbyes". Ţetta var á skjön viđ vinnubrögđ Johns sem gengu út á hráleika. Síđan hefur hvorki gengiđ né rekiđ hjá Julian - fremur en hjá öđrum sonum Bítlanna ađ Zak undanskildum. Vegna frćgđar Bítlanna hafa synir ţeirra forskot á ađra í tónlistarheimi. Ţrátt fyrir ađ ţeir séu alveg frambćrilegir tónlistarmenn ţá vantar upp á ađ tónlist ţeirra ađ heilli nógu marga til ađ skila lögum ţeirra og plötum inn á vinsćldalista.
Niđurstađan er sú ađ ef John og Paul hefđu ekki kynnst ţá hefđu ţeir ekki náđ árangri út fyrir Liverpool-slömmiđ. Lykillinn ađ yfirburđum ţeirra á tónlistarsviđinu lá í samstarfi ţeirra. Hvernig ţeir mögnuđu upp hćfileika hvors annars.
John var spurđur út í samanburđ á Bítlunum og The Rolling Stones. Hann svarđi eitthvađ á ţá leiđ ađ Rollingarnir vćru betri tćknilega. Ţeir vćru skólađir. Bítlarnir vćru amatörar. Sjálflćrđir leikmenn. En spjöruđu sig. Svo bćtti hann viđ: Ţegar heildarútgáfa á flutningi á Bítlalögum er borin saman viđ flutning annarra ţá hallar ekki á Bítlana.
Tónlist | Breytt 2.10.2019 kl. 19:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2019 | 00:08
Áhrifamáttur nafnsins
Flestum ţykir vćnt um nafn sitt. Ţađ er stór hluti af persónuleikanum. Sérstaklega ef ţađ hefur tilvísun í Biblíuna, norrćna gođafrćđi, Íslendingasögurnar eđa nána ćttingja. Ég varđ rígmontinn ţegar afastrákur minn fékk nafniđ Ýmir Jens.
Ţekkt sölutrix er ađ nefna nafn viđskiptavinarins. Sölumađurinn öđlast aukna viđskiptavild í hvert sinn er hann nefnir nafn viđskiptavinarins.
Góđur vinur minn endursegir ćtíđ samtöl sín viđ hina og ţessa. Hann bćtir alltaf nafni sínu viđ frásögnina. Lćtur eins og allir viđmćlendur hans ávarpi hann međ orđunum " Óttar minn, ..." (ekki rétt nafn). Sem engir gera.
Annar vinur minn talar alltaf um sig í 3ju persónu. Hann er góđur sögumađur. Ţegar hann segir frá samtölum viđ ađra ţá nafngreinir hann sig. Segir: "Ţá sagđi Alfređ..." (rangt nafn).
Ég ţekki opinberan embćttismann. Sá talar aldrei um sig öđruvísi en međ ţví ađ vísa í titil sinn: "Forstöđumađurinn mćlti međ..." (rangur titill).
Ţetta hefur eitthvađ ađ gera viđ minnimáttarkennd; ţörf til ađ upphefja sig.
Fjölmiđlar | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2019 | 00:05
Spaugilegt
Um miđjan sjöunda ártuginn fór bandaríska hljómsveitin The Byrds međ himinskautum á vinsćldalistum međ lagiđ "Turn, Turn, Turn". Líftími lagsins er langur. Ţađ lifir enn í dag góđu lífi. Er sívinsćlt (klassík). Fjöldi ţekktra tónlistarmanna hafa krákađ lagiđ. Allt frá Mary Hopkins og The Seekers til Dolly Parton og Judy Collins. Ađ auki hljómar lagiđ í mörgum sjónvarpsţáttum og kvikmyndum, Til ađ mynda í "Forrest Gump".
Flestir vita ađ texti lagsins er úr Biblíunni. Samt ekki allir. Á föstudaginn póstađi náungi laginu í músíkhópinn "Ţrumur í ţokunni" á Fésbók. Svaný Sif skrifađi "komment". Sagđist vera nýbúin ađ uppgötva ţetta međ textann. Hún var ađ horfa á trúarlegt myndband. Presturinn las upp textann úr Biblíunni. Svaný skildi hvorki upp né niđur í ţví hvers vegna presturinn vćri ađ ţylja upp dćgurlagatexta međ The Byrds.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
7.8.2019 | 00:01
Lúxusvandamál Fćreyinga
Skemmtilegt er ađ fylgjast međ uppganginum í Fćreyjum síđustu árin. Íbúum fjölgar árlega um 3%. Nú eru ţeir ađ nálgast 52000. Sífellt fćkkar ţeim sem flytja frá eyjunum. Ađ sama skapi fjölgar ţeim sem flytja aftur heim eftir búsetu erlendis.
Til viđbótar eru Fćreyingar frjósamasta ţjóđ í Evrópu. Ađ međaltali eignast fćreyskar konur 2,5 börn. Íslenskar konur eignast ađeins 1,7 börn. Ţađ dugir ekki til ađ viđhalda stofninum. Tíđni hjónaskilnađa í Fćreyjum er sú lćgsta í Evrópu.
Ferđamönnum hefur fjölgađ mjög ađ undanförnu. Ríkissjóđur fitnar sem aldrei fyrr. Tekjur hans uxu um rúm 20% í fyrra. Útsvarstekjur sveitarfélaga jukust um rúm 15%. Fyrir bragđiđ geta bćđi ríki og sveitarfélög kastađ sér í allskonar framkvćmdir. Fjöldi gangna eru í smíđum og enn fleiri fyrirhuguđ. Göng til Suđureyjar verđa lengstu neđansávargöng í heimi. Ekki er frágengiđ hvađan ţau liggja. Kannski verđa ţau 26 kílómetrar. Kannski styttri. En samt ţau lengstu.
Sífellt fjölgar fögum og námsbrautum á háskólastigi. Ć fćrri ţurfa ađ sćkja framhaldsnám til útlanda.
Útlánsvextir eru 1,7%.
Uppsveiflan í Fćreyjum veldur ýmsum lúxusvandamálum. Til ađ mynda skorti á heimilislćknum, leikskólaplássum og húsnćđi. Hvort heldur sem er íbúđum til kaups eđa leigu, svo og hótelherbergjum. Sem dćmi um skortinn ţá er í byggingu blokk í Klakksvík. Í henni eru 30 íbúđir. 350 sóttu um ađ fá ađ kaupa. Skorturinn hefur ţrýst upp húsnćđisverđi og leigu.
Allt stendur ţetta til bóta. Hús af öllu tagi eru á byggingarstigi: Skólahús, hótel, íbúđahús, iđnađarhúsnćđi, landspítala, leikskóla og svo framvegis. Ţetta hefur leitt til skorts á vinnuafli í byggingaiđnađi. Ţađ er sótt til Austurevrópu. Í fyrra var 525 Rúmenum veitt atvinnuleyfi í Fćreyjum.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (34)
30.7.2019 | 00:01
Samband Johns og Pauls
John Lennon og Paul McCartney voru fóstbrćđur. Ţeir kynntust á unglingsárum á sjötta áratugnum og urđu samloka. Vörđu öllum frítímum saman viđ ađ semja lög og hlusta á rokkmúsík. John gerđi út hljómsveitina Querrymen. Hún er ennţá starfandi. Reyndar án Johns. John var stofnandi hljómsveitarinnar og forsprakki; söngvari, gítarleikari og söngvahöfundur.
Paul segir ađ á ţessum tíma hafi allir unglingar í Liverpool vitađ af John. Hann var fyrirferđamikill ofurtöffari. Svalasti gaurinn í Liverpool, ađ sögn Pauls. Liverpool er hafnarbćr. Íbúar á sjötta áratugnum kannski 200 eđa 300 ţúsund eđa ţar í grennd. John var kjaftfor og reif stólpakjaft viđ alla, slóst á börum eins og enginn vćri morgundagurinn, ţambađi sterk vín, reykti og svaf hjá stelpum. Hann var dáldiđ geggjađur. Eins og mamma hans.
Paul sá í hendi sér ađ frami sinn í Liverpool vćri fólginn í ţví ađ vingast viđ John. Hann bankađi upp hjá John. Kynnti sig og spilađi fyrir hann nokkur lög til ađ sanna hćfileika í hljóđfćraleik og söng. Jafnframt sagđist Paul vera lagahöfundur.
John angađi eins og bruggverksmiđja ţegar ţeir hittust. Koníak gutlađi í honum. Eftir ađ Paul spilađi og söng fyrir John hugsađi hann eitthvađ á ţessa leiđ: Ég get auđveldlega orđiđ ađal rokkstjarnan í Liverpool. En međ Paul mér viđ hliđ get ég sigrađ heiminn. Ég verđ ađ gefa eftir forystuhlutverkiđ. Deila ţví međ Paul. Viđ getum sigrađ heiminn saman. Ţetta varđ niđurstađan. Ţetta var langsótt niđurstađa á ţessum tíma. Varđandi heimsfrćgđ. Liverpool var útkjálki og ţótti "slömm".
John var um margt afar erfiđur í umgengni. Hann tók skapofsaköst. Hann var "bully"; árásagjarn til orđs og ćđis. Hann lamdi fyrri konu sína. Hann lamdi Paul og fleiri í hljómsveitinni Querrymen.
Paul var og er mjög stjórnsamur og ofvirkur. Í Bítlunum sýndi hann George og Ringo ofríki. En forđađist árekstra viđ John. Ţegar John gekk fram af honum međ gríđarlegri eiturlyfjaneyslu og flaut í sýrumóki viđ hljóđritun á laginu "She said, she said" 1966 ţá ofbauđ Paul. Hann stormađi út úr hljóđverinu, tók ekki ţátt í hljóđritun lagsins og lét ekki ná á sér. George Harrison spilar bassalínu lagsins. Í bókinni góđu "Beatlesongs" er Paul ranglega skráđur bassaleikarinn. Lagiđ hljómar í dag ósköp venjulegt. 1969 var ţetta brengluđ sýra.
Annađ dćmi er lagiđ "Come together" á Abbey Road plötunni. Síđustu hljóđversplötu Bítlanna. Framan af ferli Bítlanna sungu Paul og John flest lög saman. Ađ mörgu leyti var ţađ einkenni Bítlanna og gaf hljómsveitinni forskot á ađrar hljómsveitir. Undir lok ferils Bítlanna dró mjög úr dúettsöngnum. Meira varđ um ţríröddun ţeirra Pauls, Johns og Georges. Líka sólósöngs ţeirra hvers fyrir sig. Paul saknađi tvíröddunarinnar. Ţeir John, Paul og George voru allir afar flinkir í ađ radda og sniđgengu iđulega viđurkennda tónfrćđi.
Er John kynnti til sögunnar "Come Together" bađ Paul um ađ fá ađ radda lagiđ međ honum. Paul sárnađi mjög er John svarađi: "Ég grćja ţađ sjálfur." Sem hann reyndar gerđi ekki. Paul laumađist í skjóli nćtur til ađ radda međ í laginu. John heyrđi ekki ţá útfćrslu fyrr en platan kom út.
Tónlist | Breytt 29.8.2019 kl. 18:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
24.7.2019 | 23:44
Smásaga um kćrustupar
Unga kćrustupariđ gat ekki veriđ ástfangnara og hamingjusamara. Ţađ var nýflutt inn í litla leiguíbúđ. Sambúđin var ćvintýri upp á hvern dag. Í innkaupaferđ í matvöruverslun rákust ţau á gamla skólasystur konunnar. Ţćr ţekktust samt aldrei mikiđ. Skólasystirin fagnađi ţó samfundinum eins og ţćr hafi alla tíđ veriđ ćskuvinkonur. Knúsađi konuna í bak og fyrir. Spurđi frétta og sagđi frá sjálfri sér. Hún flutti til Frakklands en var ţarna stödd á Íslandi í örfáa daga. Vandamáliđ var ađ hún hafđi ekki áttađ sig á hvađ gistimarkađurinn á Íslandi er verđbólginn. Kostnađurinn var ađ slátra fjárhag hennar.
"Er smuga ađ ég fái ađ gista hjá ykkur í örfáa daga?" spurđi hún. "Ţess vegna í svefnpoka á eldhúsgólfinu eđa eitthvađ? Ţađ myndi gjörsamlega bjarga fjárhagnum."
Unga pariđ var tvístígandi. Konan spurđi kćrastann hvort hann myndi sćtta sig viđ ađ hún gisti í stofusófanum í nokkra daga. Hann sagđi ađ ţađ muni ekki "bögga" sig. Eflaust yrđi gaman fyrir ţćr dömurnar ađ rifja upp gamla skóladaga.
Nokkrum dögum síđar fékk kćrastan slćmt kvef. Hún hóstađi heilu og hálfu nćturnar. Kallinn missti svefn og varđ eins og uppvakningur í vinnunni. Á ţriđja degi sagđi hann viđ kćrustuna: "Ég get ekki veriđ svefnlaus í marga daga til viđbótar. Ég neyđist til ađ biđja ţig um ađ sofa í stofunni ţangađ til kvefiđ er gengiđ yfir."
Hún hafđi fullan skilning á ţví. Vandamáliđ var hinsvegar ađ stofusófinn var eiginlega of lítill fyrir skólasysturnar ađ deila honum. Um morguninn tilkynnir skólasystirin ađ hóstinn hafi haldiđ fyrir henni vöku. "Ég verđ ađ fá ađ sofa í svefnherberginu," sagđi hún. "Hjónarúmiđ er alveg nógu breitt til ađ deila ţví međ kćrastanum ţínum án vandrćđa."
Ţetta var samţykkt. Hóstinn varđ ţrálátur. Um síđir hjađnađi hann. Kćrastan vildi eđlilega endurheimta sitt pláss í hjónarúminu. Skólasystirin hafnađi ţví. Sagđist vera ólétt. Barniđ vćri getiđ í ţessu rúmi. Foreldrarnir vćru sammála um ađ ala ţađ upp í sameiningu sem par.
Kćrustunni var brugđiđ viđ ađ vera óvćnt x-kćrasta (fyrrverandi). Hún lét ţó ekki á neinu bera. Sagđi: "Ég styđ ţađ."
Skólasystirin varđ hćgt og bítandi stjórnsöm. Hún fór ađ gefa x-inu fyrirmćli: Ţađ ţurfi ađ strjúka af gólfunum; nú ţurfi ađ ţurrka af. X-iđ sá um eldamennsku eins og áđur. Um helgar fékk hún fyrirmćli um bakstur: Pönnukökur, vöfflur, ástarpunga og svo framvegis.
Ef gest bar ađ garđi fékk hún fyrirmćli: "Skottastu út í búđ eftir gosi og kökum."
Ţegar barniđ fćddist fékk hún nóg ađ gera: Bleyjuskipti, böđun, út ađ ganga međ barnavagninn. Allan tímann vann hún sem kassadama í matvöruverslun. Fjármál heimilisins voru sameiginleg. Heimilisfađirinn var međ ágćtar tekjur sem starfsmađur í álverinu í Straumsvik. Skólasystirin vann aldrei úti. Eiginlega ekki inni heldur ef frá er taliđ ađ hún var dugleg viđ ađ vakta sjónvarpiđ. Hún fékk einn daginn hugmynd um ađ heimiliđ vantađi meiri innkomu. Ţá skráđi hún x-iđ í útburđ á dagblöđum á morgnana. Benti á ađ ţađ vćri holl og góđ hreyfing sem bónus ofan á launin. Sem er alveg rétt.
Lífstíll | Breytt 25.7.2019 kl. 09:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
20.7.2019 | 19:17
Af hverju túra Paul og Ringo ekki saman?
Paul McCartney og Ringo Starr eru einu eftirlifandi Bítlarnir. Ţeir eru mjög góđir vinir. Á hljómleikum gera báđir út á gömlu Bítlalögin. Paul á ţađ til ađ fá Ringo sem gest á hljómleika sína. Ţá trommar kappinn í nokkrum Bítlalögum.
Af hverju túra ţeir aldrei saman? Vćri ţađ ekki stórkostleg upplifun fyrir Bítlaađdáendur? Jú, vissulega. Hćngur er á. Illilega myndi halla á Ringo. Hann er frábćr trommari, orđheppinn og bráđfyndinn. Hinsvegar hefur hann ekki úr mörgum frumsömdum lögum ađ mođa. Ţví síđur mörgum bitastćđum. Ţar fyrir utan er hann ekki góđur söngvari. Öfugt viđ Paul sem er einn besti og fjölhćfasti söngvari rokksögunnar. Ţeir John Lennon voru ótrúlaga frábćrir söngvarar - og Paul er ennţá. Paul hefur úr ađ velja frumsömdum lögum sem eru mörg hver bestu lög rokksögunnar. Á hljómleikum stekkur Paul á milli ţess ađ spila á píanó, orgel, gítar, bassa og allskonar. Meira ađ segja ukulele. Frábćr trommuleikur Ringos býđur ekki upp á sömu fjölbreytni.
Bćđi Paul og Ringo átta sig á ţví ađ tilraun til ađ endurskapa anga af Bítladćmi sé dćmt til ađ mistakast. Ţađ var ekki einu sinni hćgt á međan George Harrison var á lífi. Eins og Geroge sagđi: "Bítlarnir verđa ekki aftur til á međan John er dáinn." Ég set spurngamerki viđ "á međan".
Tónlist | Breytt 21.7.2019 kl. 12:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)